1 (2)/namsmoppur 200…  · web viewleikinn er að finna í bókinni leiklist í kennslu eftir...

70
Kennaraháskóli Íslands Leikir sem kennsluaðferð Kennari: Ingvar Sigurgeirsson Vor 2007 Námsmappa

Upload: others

Post on 23-Mar-2020

3 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Kennaraháskóli Íslands Leikir sem kennsluaðferðKennari: Ingvar SigurgeirssonVor 2007

Námsmappa

Hildur SigurðardóttirKt. 090979-3379

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Efnisyfirlit

Efnisyfirlit......................................................................................................................2

Inngangur.......................................................................................................................3

1. þáttur—Gildi leikja í uppeldi og menntun.................................................................4

2. þáttur—Flokkun Leikja..............................................................................................9

3. þáttur—Leikjavefurinn.............................................................................................10

4. þáttur—Nafna- og kynningarleikir - hópstyrkingarleikir / hópeflileikir..................13

5. þáttur—Gamlir og góðir íslenskir leikir...................................................................16

6. þáttur—Kveikjuleikir...............................................................................................17

7. þáttur—Sönghreyfileikir..........................................................................................20

8. þáttur—Hugþroskaleikir..........................................................................................22

9. þáttur—Námsspil og flókin töfl...............................................................................25

10. þáttur—Gátur, þrautir og heilabrjótar....................................................................27

11. þáttur—Orðaleikir..................................................................................................31

12. þáttur—Tölvuleikir................................................................................................34

Lokaorð........................................................................................................................37

Tillögur að leikjum inná leikjavefinn...........................................................................38

Heimildaskrá................................................................................................................46

Hildur Sigurðardóttir 2

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Inngangur

Í þessari námsmöppu eru að finna þau gögn sem ég hef unnið að, verkefni og

úrlausnir þeirra á námskeiðinu Leikir í skólastarfi. Í lok hvers kafla er dagbók sem

inniheldur mínar vangaveltur um glímuna á viðfangsefnum námskeiðsins og það sem

ég hef skrifa á vefmálsstofu á webct.

Það er mín von að þessi námspappa nýtist kennurum og þeim sem áhuga hafa á

leikjum í skólastarfi sem hugmyndabanki og fróðleikur um mismunandi flokka leikja.

Hildur Sigurðardóttir 3

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

1. þáttur—Gildi leikja í uppeldi og menntun

Í þessum námsþætti er verkefnið að vekja til umhugsunar um þýðingu leikja í uppeldi

og menntun

LeikurLeikir hafa mikið gildi fyrir alhliða þroska barnsins, líkamlegan, tilfinningalegan,

félagslegan, vitsmunalegan, siðgæðislegan og fagurfræðilegan. Að mínu mati þá ætti

að setja leikinn í öndvegi í öllu starfi með börnum. Börn yfirfæra reynslu sína og

kunnáttu í leikinn og t.d. er það oft fyrri reynsla barnsins sem markar atburðarásina í

leiknum. Leikur eflir frjálsræði og börn læra að vinna að lausn vandamála innan

leiksins. Börn lifa sig inn í mismunandi hlutverk og félagsfærni þeirra eflist í

samskiptum við aðra. Í leik styrkist sjálfsmynd barnanna og tungumálið örvast. Börn

búa til sínar reglur í leiknum, hugmyndaflug eflist og þau verða öruggari gagnvart

umhverfinu og þeim gildum sem þar ríkir.

VerkefniÍ fyrsta verkefni kennslubréfsins voru tvær frábærar greinar settar til grundvallar. Jill

Englebright Fox: Back-to-Basics: Play in Early Childhood þar er umfjöllun um leiki

sem hrífandi athöfn sem börn taka þátt í af æðruleysi. og Francis Wardle: Play as

Curriculum en þar er leikur skilgreindur sem frjáls athöfn sem veitir ánægju.

Verkefnið var að svara nokkrum spurningum úr greinunum.

Hvernig er leikurinn skilgreindur?

Í greininni Play as Curriculum er ágætis skilgreining á leik sem er mjög lík

skilgreininga í greininni Back-to-Basics: Play in Early Childhood. Aðalatriðið í

þessum skilgreiningum er það að leikur er eitthvað sem einstaklingur er að leika sér

hefur valið sjálfur að gera og hefur jákvæð viðhorf til. Talað er um að enginn getur

þvingað þig til að leika þér, því þá er það ekki leikur (Wardle 2002). Í greinunum er

leikur skilgreindur á þann hátt að börn telji sig vera í leik þegar þau eru frjáls og ráða

ferðinni sjálf án leikreglna og þeim finnst gaman af því sem þau eru að gera. Í

greininni Play in early childhood kemur fram að leikir eru byggðir upp á skilningi og

skynjun barnanna á raunveruleikanum. Hann er frjálst val á athafnarsemi sem er

drifinn af sjálfs-hvatningu, hefur ákveðið ferli og veitir ánægju. Reglur og hlutverk

Hildur Sigurðardóttir 4

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

eru fundin upp af börnunum sem leika leikinn.

Hver er meginþýðing leiks og leikja að dómi höfunda? Hver er þín afstaða?

Bæði Fox og Wardle eru sammála um mikilvægi og nauðsyn leikja þegar kemur að

þroska barna Vísað er í fjöldann allan af rannsóknum sem sýnt hafa fram á að í

gegnum leik þroskast svo margt m.a. félagshæfni, ímyndunarafl og rökhugsun. Fjallað

er um að leikur sé leið barna til þess að læra og æfa sig. Leikur er ekki alltaf aðeins

skemmtun heldur einnig undirbýr hann börn fyrir það sem er framundan í lífinu.

Mikilvægt er að börn fái oft tækifæri til félagslegra leikja til að þroskast eðlilega á

mismunandi þroskastigum. Börn læra reglur í samskiptum við aðra. Leikur styrkir

samskipti foreldra og barna og hvetja þau til þess að rannsaka umhverfi sitt. Þátttaka

barna í félagslegum leikjum og samskiptum skiptir gríðarlega miklu máli til þess að

börn geti virkað vel sem fullorðnir einstaklingar. Leikir styrkir málþroska,

vitsmunaþroska, félagsþroska, sköpunargáfu, ímyndunarafl svo eitthvað sé nefnt.

Að mínu mati er mjög mikið til í því sem höfundar nefna. Sérstaklega þykir mér það

augljóst að til þess að börn geti lært og virkað sem einstaklingar í samfélaginu þá

verði þau að fá að prófa og æfa sig í gegnum leiki. Mín skoðun er sú að hægt sé að

samþætta allar námsgreinar með leikjum að einhverjum hluta a.m.k því öll börn hafa

áhuga á leik og því er hægt að kenna þeim margt í gegnum leikinn þannig að þau hafi

gaman af.

Hvernig tengist leikurinn þróun hugsunar hjá börnum?

Leikir hafa áhrif á þróun hugsunar hjá börnum. Hugsunin verður sveigjanlegri, þau

læra að hugsa út fyrir núið, að nota ímyndunaraflið. Einnig þjálfast þau í að nota ný

orð og orðasambönd á viðeigandi hátt til að tjá hugmyndir sínar og skoðanir (Wardle

2007).

Hvaða þýðingu hafa regluleikir (games with rules)?

Leikir með reglum hafa þá þýðingu að þeir þroska börnin svo sjálflægnin hverfur og

þau fara að skilja betur hugmyndir og reglur samfélagsins og fara að taka tillit til

annarra. Regluleikir geta þó verið bæði af hinu góða og slæma. Það góða við

regluleikina er að börn læra reglur á leikrænan hátt sem mun nýtast þeim síðar á

lífleiðinni. Það slæma er hins vegar þegar þau börn sem ná ekki að tileinka sér

reglurnar og verða utangátta. Þá er skemmtanagildi leiksins ekki lengur til staðar.

Hildur Sigurðardóttir 5

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Verkefni 2 var byggt á myndaflokkinum The Promise of Play. Þættirnir vekja mann

til umhugsunar um hinar ýmsu hliðar leikatferlis, auk þess að vekja margar

spurningar.

The Mother of Invention:

Hvernig skilgreina höfundar leikinn?

Í myndaflokkinum The Promise of Play kemur fram að leikur sé eitthvað sem er

skemmtilegt. Börn sækjast í að leika, leikurinn er þeim eðlislegur og geta þau alltaf

leikið sér. Fram kemur að leikur sé sjálfsprottinn og frjáls, hefur engin markmið,

skemmtir okkur og gerir okkur hamingjusöm. Tekið er fram eins og í greinunum að

leikur er mikilvægur fyrir allan eðlilega þroska, Leikur er nám til að þróa þá færni

sem þarf til að vera fullorðinn einstaklingur

Skráðu hjá þér á lista allt sem fram kemur um þýðingu leikja.

- Ekki má vanmeta mátt leiksins fyrir barninu

- Börn læra í gegnum leik

- Börn læra ýmsar reglur samfélagsins í gegnum leikinn

- Leikurinn er mikilvægur til þjálfunar

- Börn læra hvernig þau eiga að haga sér í gegnum leik

- Allt það sem er skemmtilegt er leikur

Hugaðu sérstaklega að skólastarfinu í The Roof Top School og veltu fyrir þér

sjónarmiðum starfsliðsins: Hvað finnst þér?

Í The Roof Top School fór kennsla fram í gegnum leik. Nemendur skólans urðu

jákvæðari og opnari fyrir náminu. Að horfa á The Roof Top School og hlusta á

sjónarmið starfsliðsins í skólanum þótti mér mjög lærdómsríkt. Þau voru svo jákvæð,

glöð og meðvituð um að hafa gaman í skólanum. Sem dæmi þá nefni ég Amy sem

rætt var við kennari 4 bekkjar. Samkvæmt henni þá verður enginn lærdómur hafi

nemendur ekki gaman að því að læra. Hún vildi meina að nemendur læri vel í gegnum

leik og eru því leikir mikilvægir í námsárangri barna.

Hildur Sigurðardóttir 6

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

The Heart of the Matter:

Hvað vakti helst athygli þína af því sem fram kom í þættinum?

Það voru ýmis atriði í þættinum The Heart of the Matter sem vakti athygli mína en hér

nefni ég þau helstu. Fjallað er um að leikir hjálpa okkur að falla inn í hópinn. Ekki er

spurt um bakrunn þinn til þess að fá leyfi fyrir því að taka þátt í leik. Smátt og smátt

kemst þú inn í hópinn. Það sem vakti mig til umhugsunar var hversu fólkið var

frjálslegt í fasi. Fólkið sem dansaði á götunum án búninga Þetta fólk var allt

blökumenn. Það undirstrikar hversu menning hefur gífurleg áhrif á hegðun okkar.

Okkur þætti svona hegðun stangast á við reglur samfélagsins.

Taktu saman í fáar meitlaðar setningar þær meginályktanir sem þú dregur af því efni

sem fram hefur komið í þessum myndum

,,If you like something you continue to do it’’. Fyrir mér á þetta vel við og á rétt á sér.

Ef eitthvað er skemmtilegt þá sækist maður í það aftur og aftur.

Leikurinn gefur okkur tækifæri til að tjá okkar dýpstu hugsanir og tilfinningar.

Dagbók

Að mínu mati þá ættu allir leikir að vera ein af kennsluaðferðunum á öllum

skólastigum. Ég tel hinsvegar það vera alltof algengt að leikir séu notaðir eitthvað á

yngsta stigi en þegar komið er á miðstig og efsta stig þá sé það sjaldgæfara að kennari

leyfi nemendum að fara í leiki. Allavega er mín minning sú úr grunnskóla að við

fengum að leika okkur töluvert fyrstu árin en síðan þegar við vorum eldri og báðum

oft um að fá að fara í leiki en þá var það alltaf námsbækurnar sem gengu fyrir. Það var

akkúrat þá sem við hefðum þurft á að halda að hafa gaman og brjóta kennsluna upp

því margir voru komnir með svo mikið leið á skólanum, námsefninu og kennurunum.

Varðandi myndböndin þá hafði ég ótrúlega gaman að horfa á þau og hef verið að

horfa á þau aftur og aftur þar sem mér finnst þau lærdómsrík og skemmtileg. í The

mother of Invention fannst mér athyglisvert að hlusta á það að eftir því sem

ímyndunarafl barna er meira því betri efnilegri eru þau í leik og að leika. Ég á einmitt

4 ára dreng sem leikur sér daginn út og inn í ofurhetjuleik og hann er oftast Clark

Kent þessa dagana og ég er þá Louise Lane. Við leikum okkur mikið í þessum

ímynduðu hlutverkum og hann vill helst ekki hætta því hann er svo upptekinn að

bjarga einhverjum eða leita uppi Lex Luthor. Þegar ég tala við hann um eitthvað sem

Hildur Sigurðardóttir 7

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

snýr ekki að leiknum þá segir hann ég heiti ekki Kristján ég heiti Clark Kent. Ég var

farinn að hafa smá áhyggjur á þessu endalausa ímyndunarafli hans og áhuga á

leiknum þar sem mér fannst þetta vera orðið fullmikil ímyndun. En eftir að hafa horft

á myndböndin þá róaðist ég nú því þau fengu mig til að hugsa um gildi leikja og

hversu gott er að börn hafi frjótt ímyndunarafl.

-------------------------------

Tek undir með þér Arnsteinn Ingi á vefmálsstofu Webct varðandi það að þeir sem

vilja og hafa áhuga á að æfa og stunda einhverja íþrótt en ná kannski ekki á toppinn

eða hafa ekki áhuga á að vera í endalausri keppni við aðra enda á að hætta og/eða

gefast upp. Það er sorglegt að sjá hversu góðar íþróttir þar sem börn fá mikla

útrás,hreyfingu og hafa gaman af þarf alltaf að snúast svona mikið um keppni um að

vera bestur.

--------------------------------

Varðandi það sem Guðrún minnist á inná vefmálsstofu Webct að börn verði öruggari

með sig í leik en í raunveruleikanum gæti ég vel trúað. Þau fara inn í ímyndaðan heim

og útiloka oft allt utanaðkomandi áreiti. Ég var í innilotu um helgina á námskeiðinu

Barnið þitt er nemandi minn og þar var hópur að kynna starfsemi á leikskóla þar sem

brúða var mikið notuð til þess að fá börn til að tjá sig. Börnin töluðu þá við brúðuna

og leikskólakennarinn svaraði fyrir hönd brúðunnar. Þetta gafst mjög vel sérstaklega

fyrir börn sem voru feiminn að tjá sig, því þarna gleymdist feimnin og barnið var í

sínum heimi með brúðunni. Einnig rámar mig í verkefni sem að mig minnir samtökin

Blátt áfram stóðu fyrir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum sem gekk út á það að

flytja brúðuleikhús fyrir börn þar sem börnunum gafst tækifæri á að ræða við

brúðurnar um hluti sem þau hefðu líklega ekki rætt við fullorðna eða átt erfiðara að tjá

sig um. Allavega heyrði ég að þetta hafi gefist vel og börnin ræddu við brúðurnar eins

og það væri enginn annar nálægt og sögðu frá ótrúlegustu hlutum.

Finnst alveg frábært hvað hægt er að gera með svona litlum brúðum og eflaust ýmsir

leikir sem spinnast út frá samtölum við brúður og þá sérstaklega fyrir börn á

leikskólaaldri

Hildur Sigurðardóttir 8

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

2. þáttur—Flokkun Leikja

Markmið þessara þáttar er að velta flokkun leikja fyrir sé og reyna að setja fram

hugmynd um góða flokkun á leikjum.

Flokkun leikja er afar mikilvæg þannig að aðgengi að leikjum sé gott. Ég tel að

notkun leikja í kennslu þurfi kennarar að leggja meiri áherslu á en nú er gert. Leit á

vefnum þarf að vera aðgengileg og þyrfti að vera hægt að slá inn ákveðið leitarorð og

þá birtast leikir við hæfi. Í dagbók minni hér að neðan kemur fram flokkun sem ég

gæti trúað að væri góð á Leikjavefinn góða. Hins vegar eftir að hafa kynnt mér

Leikjavefinn enn frekar þá í raun uppgötva ég hversu vandasamt það er að flokka leiki

þannig að vel takist til því möguleikarnir eru mjög margir. Hér er ein útgáfa af

flokkun leikja

- Inni hreyfileikir - Úti hreyfileikir

- Flokkur eftir aldri - Keppnisleikir

- Hópeflisleikir - Námsleikir

DagbókInni og útileikir er góð flokkun. Einnig er gott að námsleikir og hreyfileikir fari í

sérflokka. Ég notaði leikjavefinn mikið þegar ég var í vettvangsnáminu enda að kenna

yngsta stigi og mikil krafa frá nemendum að fara í leiki. Þar sem mér fannst oft vanta

var sérflokk með leikjum fyrir börn á yngsta stigi. Oft var ég að lesa um leiki sem

hentaði engan veginn yngsta stigi það kemur þó fram á hvaða aldursstigi leikurinn

hentar en ekki fyrr en maður er búinn að smella á nafn leiksins. Kannski bara

smáatriði en hefði flýtt fyrir mér í leit minni af leikjum fyrir 6 ára. Annars finnst mér

Leikjavefurinn frábær vefur og vona að sem flestir kennarar noti hann til þess að fá

nýjar hugmyndir og krydda kennslu sína.

Hildur Sigurðardóttir 9

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

3. þáttur—Leikjavefurinn

Markmið þessa viðfangsefnis er að verða handgenginn Leikjavefnum –

Leikjabankanum (www.leikjavefurinn.is).

Leikjavefurinn – Leikjabankinn er samvinnuverkefni kennara og kennaranema og er

umsjónarmaður þess Ingvar Sigurgeirsson. Leikirnir eru flokkaðir í 20 flokka.

Leikjunum er líst vandlega og oft fylgir önnur útfærsla á leiknum með. Við hvern leik

eru markmið talin upp, tillaga um aldur þeirra nemenda sem leikur inn hentar og gögn

eru tilgreind ef þörf er á.

Leikir Ég valdi leik sem heitir Ávaxtakarfa og er í flokknum ýmsir hópleikir. Leiklýsing

hljómar svona :

Allir nemendur fá ávaxtanafn. Þeir sitja í hring á stólum. Stólarnir eru einum færri en nemendur. Sá sem ekki hefur stól stendur í miðjunni og nefnir tvo ávexti, t.d. appelsínu og epli. Þá standa þeir upp sem heita þeim nöfnum og eiga að skipta um sæti. Einnig getur hann sagt ávaxtakarfa og þá eiga allir að skipta um sæti. Sá sem er í miðjunni á einnig að reyna að setjast og sá sem ekki fær sæti fer í miðjuna.

Þetta er skemmtilegur leikur og valdi ég hann vegna þess að þennan leik fór ég í með

nemendum í 6 ára bekk síðasta daginn minn í vettvangsnáminu. Þau höfðu ekki farið í

hann áður en voru mjög snögg að læra hann. Þeim þótti leikurinn alveg ótrúlega

skemmtilegur og ætluðu aldrei að vilja hætta. Helstu kostir þessa leiks er hversu léttur

og einfaldur hann er fyrir unga grunnskólanemendur. Allir eru mjög virkir í leiknum

og nemendur fá að hreyfa sig töluvert með því að standa sífellt upp og finna sér nýtt

sæti.

Næsti flokkur sem ég skoðaði heitir söng og hreyfileikir og var þar áhugaverður

söngleikur sem ég hef ekki heyrt um áður sem heitir Falinn steinn. Leiklýsingin af

vefnum er eftirfarandi:

Einn nemandi er valinn til að fara út úr kennslustofunni á meðan kennarinn felur stein í stofunni (ath. steinninn verður að sjást). Bekkurinn tekur vel eftir felustaðnum og þegar búið er að fela steininn er nemandanum fyrir utan hleypt inn. Hlutverk hans er svo að finna steininn með aðstoð bekkjarins. Bekkurinn syngur t.d. lagið Óskasteinar (sem er ungverskt þjóðlag) á meðan nemandinn leitar

Hildur Sigurðardóttir 10

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

að steininum. Ef nemandinn nálgast steininn á bekkurinn að syngja sterkara, og svo veikara ef hann fjarlægist steininn. þannig þarf nemandinn að hlusta vel á sönginn til þess að finna steininn. þegar hann hefur fundið steininn velur hann einhvern til þess að fara fram og leikurinn er endurtekinn.Lagið Óskasteinar er t.d. á geisladiskunum Íslandsklukkur og Litlu börnin leika sér.

Þessi leikur gæti verið skemmtileg tilbreyting frá náminu. Margir skólar eru með

söngstund reglulega og gæti verið gaman fyrir nemendur að prufa þennan leik í

leiðinni. Hann krefst þess að sá nemandi sem er að leita af steininum þarf að hlusta

vel á samnemendur sína þannig að hann viti hvort hann sé að nálgast steininn eða

ekki. Nemendurnir þurfa einnig að fylgjast með þannig að þeir syngi sterkt eða veikt

eftir því hvernig nemandanum gengur að finna steininn.

Síðasti flokkurinn sem ég skoðaði sérstaklega heitir ýmsir námskeikir. Þar eru

fjöldinn allur af skemmtilegum og góðum námsleikjum en þar sem ég er á yngri barna

sviði þá einblíndi ég sérstaklega á góða námsleiki á yngsta stigi. Leikurinn Hver á

stafinn? Hljómar mjög skemmtilegur fyrir unga nemendur en hann er sagður vera

fyrir nemendur frá 7 ára aldri. Á vefnum er honum lýst svona :

Fjórir nemendur standa upp við töflu og hinir grúfa fram á borðin sín. Þá fara fjórmenningarnir á stúfana og stilla sér upp fyrir aftan fjóra bekkjarfélaga. Síðan skrifa þeir upphafsstaf sinn á bak viðkomandi og fara að því loknu aftur upp að töflu. Þá eiga þeir sem voru valdir að segja nafn þess sem skrifaði. Geti þeir rétt er skipt um hlutverk en annars halda hinir áfram.

Ég gæti trúað því að kostir þessa leiks væri að nemendur lærðu betur stafrófið og

upphafstafi samnemenda sinna. Einnig er þetta ágætis slökun fyrir alla þegar þreyta á

námsefninu er farinn að segja til sín.

Vefsíður með LeikjumÉg skoðaði nokkrar síður sem leikjavefurinn mælir með og byrjaði ég á slóðinni:

http://www.kidspsych.org/gooochy2.html Þar skiptist í auðveldar þrautir fyrir aldur 1-

5 ára og prufaði ég allar þrautirnar þar. Þetta eru einfaldar þrautir þar sem eflaust

hjálpar ungum nemendum að æfa sig á músinni og fá tilfinningu fyrir því hvernig hún

virkar. Þrautirnar eru skemmtilegar og mjög auðveldar, þær krefjast þess þó að

fullorðinn lesi fyrir þau útskýringar á þrautunum. Það á einnig við með þrautir 6-9 ára

þær hafa allar útskýringar sem foreldrar og/eða börnin lesa áður er byrjað er á

Hildur Sigurðardóttir 11

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

þrautunum.

Vefur Bókasafns Garðabæjar http://www2.gardabaer.is/bokasafn/leikir.htm er með

margar slóðir að íslenskum og erlendum þrautum fyrir börn..

Vefsíðan Games kids play er heimasíða sem minnir þó nokkuð á heimasíðu

Leikjabankans okkar. Þar er að finna mikið úrval af leikjum . Þar má nefna hópleiki

og útileiki þetta er vefur sem vert er að skoða vel og vandlega

http://www.gameskidsplay.net/

DagbókMarkmið 3. Þáttar var að gera mig handgengna Leikjavefnum og má það með sanni

segja að það hafði tekist. Áður þekkti ég aðeins til vefsins en hafði aldrei grandskoðað

hann eins og ég hef nú gert. Þessi vefur er frábær og kemur til með að nýtast mér vel í

leik og starfi. Hann er vel uppsettur og mjög aðgengilegur. Leikirnir margir hverjir

mjög sniðugir og rakst ég á marga sem ég hef ekki kynnst áður.

Hildur Sigurðardóttir 12

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

4. þáttur—Nafna- og kynningarleikir - hópstyrkingarleikir / hópeflileikir

Markmið 4 þáttar er að vekja til umhugsunar um þýðingu leikja til að efla og bæta

samskipti.

Nauðsynlegt er fyrir alla kennara að vera fljótir að læra nöfn nemenda sinna . Þannig

er bæði kennarinn og nemendur öruggari með sig í kennslustofunni. Því er þessar

tegundir leikja mjög mikilvægt fyrir kennara að hafa góða kunnáttu á.

Hópstyrkingaleikir og hópeflileikir eru ekki síður mikilvægir þegar saman er komin

hópur fólks sem þarf að kynnast.

Það kom mér töluvert á óvart hversu fáir kynningaleikir eru í leikjabankanum. Ég las

yfir þá alla og þar sem nokkrir hafa sama titil þ.e. nafna-/leikur/runa/söngleikur þá

fannst mér vanta að titillinn á leikjunum myndi breyta um lit þ.e verða t.d. blár þar

sem ég er búinn að skoða hann eða klikka á hann. Fór nokkrum sinnum inn í sömu

leikina oftar en einu sinni því ég mundi ekki hvort ég var búinn að lesa yfir hann fyrr

en ég var komin aftur inní hann. Það hefur nú eflaust verið fljótfærni hjá mér en smá

ábending um að bæta vefinn, man ekki eftir að einhver hafi bent á þetta hér á þessu

námsskeiði áður en það gæti þó vel verið. Leikurinn Góðan daginn fannst mér

skemmtilegur þar sem hann skerpir hlustun og eftirtekt. Hinsvegar er hann ætlaður

þeim sem þekkjast töluvert og þurfa nemendur að þekkja öll nöfn bekkjarfélaga sína

til þess að fara í þennan leik. Leiklýsingin er svona:

Einn leikmaður hefur bundið fyrir augu þannig að hann sjái ekki aðra leikmenn sem sitja í sætum sínum. Stjórnandi leiksins gefur einhverjum leikmanni bendingu. Hann stendur upp og segir "Góðan daginn ... (nafn blindingjans)" og breytir gjarnan röddinni. Blindinginn reynir að þekkja röddina og svarar þá t.d. "Góðan daginn, Anna". Hann má geta einu sinni til þrisvar (ákveðið hverju sinni t.d. með hliðsjón af aldri nemenda) og dugi það ekki til skipta þeir um hlutverk. Ef blindinginn getur rétt heldur hann áfram hlutverki sínu. Þetta má vitaskuld hafa öfugt.

Önnur útfærsla sem getið er til um finnst mér mjög spennandi líka en hún hljómar svona:

Í annarri útgáfu þessa leiks gengur blindinginn milli hinna leikmannanna, heilsar með handabandi og spyr að nafni. Sá sem svarar hverju sinni segir til nafns og föðurnafns og segir jafnvel

Hildur Sigurðardóttir 13

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

einhver deili á sér. Sá sem svarar notar annað hvort eigið nafn eða einhvers annars í hópnum. Blindinginn svarar með því að segja hvort satt var eða logið. Geti hann rétt hafa þeir hlutverkaskipti.

Hefti Helga Grímssonar um hópeflileiki er mjög góð handbók með mörgum góðum

og skemmtilegum leikjum. Margir leikjanna sem í handbókinni eru þekkti ég ekki

áður. Kostir leikjanna er hversu einfaldir þeir eru, lýsingar eru hnitmiðaðar og skýrar.

Ég prufaði nokkra leiki og tókust þeir allir mjög vel og höfðum börnin gaman af.

Leikir sem auðvelda fólki sem er að hittast og kynnast kallast á ensku icebreakers. Ég

hef oft lent í þeim aðstæðum t.d. í veislum og allskonar mannamótum að svona leiki

hefði þurft til þess að brjóta ísinn á skemmtilegan hátt. Ég fletti á google og fann þar

ýmsa skemmtilega leiki í þessum flokki. Ég set hér inn tvo leiki sem mig langar að

halda til haga og koma á framfæri.

http://www.kimskorner4teachertalk.com/classmanagement/icebreakers.html

Þessi síða er skýr og einföld og margir góðir leikir á þeirri síðu. Hér er ein leiklýsing:

Divide students into groups of three or four. Give each group a large sheet of butcher paper and a different color marker for each person. Have them draw a Venn diagram with an oval for each student. The students in each group are to discuss what their similarities and differences are. After the discussion, they are to fill in the diagram showing their similarities and differences.

If a group has a hard time getting started, give them some guidance by asking questions such as, "What is your favorite music?", "When is your birthday?", "What sports do you like?, or "Where were you born?"

http://www.mftrou.com/icebreaker-games.htmlÁ þessari slóð er annar frábær leikur sem er einfaldur en eflaust mjög skemmtilegur og þjónar vel tilgangi sínum þegar hópur er að kynnast. Leikurinn hljómar svona:

Icebreaker Game 1 – Who Am I?

A silly icebreaker game for a small group.Have each person secretly write on a post-it note the name of a famous person. Keeping the name hidden, stick the post-it to another’s forehead.Each person takes turns to ask the group questions to figure out whom the unknown person is. The catch is that only yes or no answers can be asked e.g.

Hildur Sigurðardóttir 14

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Am I alive?

Am I female?If the answer is no your turn is over. If the answer is yes, you can ask another question. Keep going until you get a no or make a guess at whom you are. If you guess right, you win or if you guess wrong your turn is over.Keep going until everyone has guessed or if time is tight, maybe stop after a few right answers.

Dagbók

Inn á vefmálsstofu Webct kom Dagný kom með hugmynd af skemmtilegan nafnaleik

sem ég fann ekki á vefnum sem heitir kærleiksvefurinn. Þá mundi ég eftir leik sem ég

fór í með nemendum í vettvangsnáminu sem er svipaður og kærleiksvefurinn og

einnig leikurinn Ég er frábær eins og ég er sem er á vefnum. Einn byrjar og kynnir sig

og kastar bolta til nemanda sem kynnir sig og segir í hverju nemandinn sem kastaði

boltanum til hans er góður í. Þetta fannst 6 ára börnum mjög skemmtilegt og það var

greinilegt að þeim fannst ekki erfitt að finna eitthvað sem samnemendur væru góðir í.

Ef einhverjum vantaði hugmynd þá hjálpuðust bekkjarfélagarnir að. Við lékum

þennan leik nokkrum sinnum en þá breyttum við aðeins og þá átti nemandinn að segja

frá hvað honum sjálfum fyndist skemmtilegt eða hver er uppáhaldsmaturinn. T.d. Ég

heiti Hildur og mér finnst gaman að ferðast.

Markmið þessar þáttar var að vekja til umhugsunar um þýðingu leikja til að bæta og

efla samskiptin. Ég taldi mig nú vera nokkuð með á nótunum hvað leikir gerðu

börnum gott eftir að hafa farið í gegnum kennslubréf 1-3, en nú er ég enn öruggari á

gildi leikja eins og nafna- og kynningarleikja, hópstyrkingarleikir og hópeflileikja.

Hildur Sigurðardóttir 15

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

5. þáttur—Gamlir og góðir íslenskir leikir

Í þessu viðfangsefni er rifjað upp nokkra gamla góða leiki.

Í kennslubréfi 5 er gaman að lesa þá umfjöllun sem Ingvar hefur tekið saman um

gamla og góða leiki. Þar er fjallað um leikinn fuglafit en hægt er að lesa nánar um

þann leik á vef þjóðminjasafnsins (http://www.natmus.is/) á þeim frábæra leik sem

þjálfar fínhreyfingar. Einnig er minnst á leik sem kallast parís. Sá leikur byggist á því

að búa til braut á jörðina og hoppa í gegnum eftir ákveðnum leiðum. Bent er á frábæra

vefi eins og vef þjóðminjasafnsins sem er mikill fróðleikur um ýmsa gamla leiki.

Þegar ég skoðaði vef þjóðminjasafnsins þá las ég lýsingu af leik sem heitir

Fuglaleikur sem er í raun eltingaleikur en skemmtileg útfærsla að mínu mati hér

kemur leiklýsingin:

Einn er kóngur, annar karl og hinir fuglar, og fær hver fuglanna sitt nafn hjá kónginum. Karl kemur til kóngsins og segir: "Komdu sæll, kóngur minn". "Komdu sæll, karl minn", svarar kóngur. "Geturðu selt mér fugla?", spyr karl. "Ef þú getur nafn þeirra og nærð þeim", segir kóngur. Karl fer þá að geta og nefnir ýmis fuglanöfn: spói, lóa, hrafn, álft, örn o.s.frv. Þegar karl hittir á nafn einhvers fuglsins, hleypur sá burt í stóran hring og á þá karlinn að reyna að ná honum og klukka hann áður en hann kemst aftur til kóngsins.

http://www.natmus.is/leitarnidurstodur?SearchFor=leikir

DagbókÉg spurði ömmu mína hvaða leiki hún man eftir og þá sagðist hún nú ekki muna þá

alla en það sem hún gat sagt frá var hlaupa í skarðið. Í skólanum voru þeim kenndir

þjóðdansar og hún sagði að þau hafi leikið sér mikið með þá og dansað þá mikið. Í

skólanum hafi hún oft sungið lag og leikið eftir söngtextanum Ég lonníetturnar lét á

nefið.

Hildur Sigurðardóttir 16

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

6. þáttur—Kveikjuleikir

Í þessum námsþætti á að finna og segja frá þremur leikjum sem hægt er að nota sem

kveikjur þegar byrjað er á nýju námsefni

Í kennslubréfi 6 eru góðar hugmyndir að kveikjuleikjum í kennslu. Fram kemur að

leikir geti verið skemmtilegar kveikjur þegar byrjað er á nýju námsefni. Ég hafði lengi

verið að velta fyrir mér hvaða hugmyndir að kveikjum ég gæti komið með í þetta

kennslubréf, þegar byrjað er á nýju námsefni. Ég hafði ekki fengið neinar

skemmtilegar hugmyndir. Þannig að ég fór á bókasafn Kennaraháskólans og fékk

lánaðar nokkrar bækur sem gætu hjálpað mér. Ein af bókunum sem vakti mikla

athygli mína fyrir að vera með skemmtilega appelsínugula kápu og augljóslega komin

til ára sinna enda gefin út árið 1970 og heitir AÐ LEIKA OG LÁTAST eftir Barbor

Mala og Ann Mari Undén og okkar ágæti kennari Ingvar Sigurgeirsson ásamt Erlu

Kristjánsdóttur þýddu. Ég fjalla nú um nokkrar góðar hugmyndir sem er að finna í

þessari líflegu bók. Þegar lífsleikni er kennd á yngsta stigi er mikilvægt að allt

viðfangsefnin séu fremur einföld og skýr. Á bls 4 í bókinni Að leika og látast er leikur

sem heitir Lítu í spegil og vertu……. Þar eru myndir af speglum þar sem andlit eru

með mismunandi svipbrigði t.d. glaður, leiður, hræddur, hissa, reiður, þreyttur,

forvitin, súr á svipinn, vandræðalegur. Til þess að ung börn fái tilfinningu fyrir

svipbrigðum sínum væri hægt að leyfa þeim að spreyta sig með því að horfa sjálf í

spegil og tjá sig með svipbrigðum og látast vera t.d. reið,glöð og hissa. Í hefti sem

heitir Nokkrar hugmyndir um notkun bókarinnar Að leika og látast sem Ingvar og

Erla hafa tekið saman er sagt að tilgangur svipbrigðaleikja er að þjálfa nemendur í að

túlka mismunandi hugarástand. Nemendur átta sig á að túlkun svipbrigða getur verið

með ýmsu móti. Einnig ættu þeir að geta áttað sig á hlutverki svipbrigða í tjáningu.

Nokkrar hugmyndir eru þar að finna um mismunandi aðferðir í svipbrigðaleikjum.

Í bókinni eru einnig nokkrar hugmyndir um einfaldar leikbrúður. Brúðuleikur

auðveldar mörgum nemendum, sem eiga erfitt með að tjá sig, að túlka eigin

tilfinningar. Það losar oft um hömlur þegar nemandinn getur ,, falið’’ sig á bakvið

leikbrúðu

Hildur Sigurðardóttir 17

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Hér koma nokkrir áhugaverðir punktar úr inngangi bókarinnar Að leika og látast sem

mér fannst tilvalið að láta fylgja með

Leikir, þar sem nemendur þurfa að tjá sig með hreyfingum, látbragði og orðum, hafa gildi fyrir öll börn en eru þó þyngstir á metunum þegar um feimna eða hlédræga nemendur er að ræða

Hlutverkaleikir og þjálfun í tilsvörun koma nemendum að góðum notum þegar þeir þurfa að taka til máls og tjá sig við ýmsar aðstæður innan og utan skólans.

Í bókinni AÐ LEIKA OG LÁTAST eru nemendur ekki lögð nein orð í munn. Þeir eru yfirleitt settir í þess konar aðstæður að bregðast má við á ólíkan hátt. Þetta þjálfar nemendur í að setja sig í annarra spor , veitir innsýn í mismunandi hugsunarhátt og tilfinningar,

Mikil áhersla er lögð á innlifunarleiki. Nemendur gera sér – ef til vill með aðstoð kennarans – grein fyrir þeim tilfinningum sem búa að baki látbragði, svipbrigðum og orðum. (Malm, Barbro – Undén, Ann-Mari 1970:1)

Ég mæli með þessari bók, en hún er með ýmsum skemmtilegum hugmyndum að

leikjum sem t.d, mætti nota sem kveikju að námsefni og höfðar þá sérstaklega til

barna á leikskóla og yngsta stigi grunnskóla

Við stafainnlögn á yngsta stigi gæti verið gaman að leyfa nemendum að búa til stafina

með líkama sínum. Ég gerði þetta með 6 ára nemendum í síðasta vettvangsnámi og

skipti þá bekknum til helminga og annar helmingurinn fór fram á gang í 2-5 manna

hópa og fékk að spreyta sig í að vinna saman og mynda þann staf sem við lögðum

fyrir þá vikuna. Við mynduðum alla hópana og hengdum ljósmyndirnar inní

skólastofunni. Mjög gaman var að sjá hvernig þau notuðu hugmyndaflug sitt og unnu

saman þannig að stafurinn kæmi sem best út

Að lokum finnst mér leikurinn Refir og Kanínur (7 ára og eldri) sniðugur námsleikur

og ágætis kveikja. Leikinn er að finna í bókinni Leiklist í kennslu eftir Önnu

Jeppesen og Ásu Helgu Ragnarsdóttur og er kjörin leikur ef fjalla á um einelti til þess

að tengja nemendur við viðfangsefnið og fá þá til þess að setja sig í spor þolenda.

Leikurinn hljómar svona:

Hildur Sigurðardóttir 18

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Kennarinn velur í upphafi tvo nemendur sem eiga að vera í hlutverki refs og kanínu. Hinir dreifa sér um svæðið tveir og tveir saman og haldast í hendur. Refurinn á að byrja á því að elta kanínuna og ef hann nær henni er skipt um hlutverk. Kanínan getur þó sloppið frá refnum með því að hverfa inn í kanínuholuna. Tveir þáttakenndur sem haldast í hendur mynda holuna þannig að pláss er fyrir þriðja þáttakaldann í miðjunni. Kanínan á að fara út úr fylgsni sínu eins fljótt og hægt er. Eftir smá stund er skipt um hlutverk og leikurinn gerðu erfiðari fyrir kanínuna því stundum lokast kanínuholurnar samkvæmt merki frá kennaranum. Kennarinn getur stöðvað leikinn annað slagið og spurt kanínuna hvernig henni líði. Síðan er bætt við fleiri refum sem allir elta sömu kanínuna þannig að alltaf verður erfiðara og erfiðara fyrir kanínuna að komast undan. Að lokum segir kennarinn að þetta sé ekki lengur leikur og svona gerast hlutirnir í raunveruleikanum. Kennarinn ræðir síðan með nemendum að svona líði eflaust fórnarlambinu sem verður fyrir ofbeldi. Undankomuleiðirnar eru engar að lokum. Kennarinn biður nemendur að hafa leikinn í huga þegar þeir fara í leikferlið um einelti og ofbeldi á eftir.

(Anna Jeppesen, Ása Helga Ragnarsdóttir, 2006:50)

DagbókVið vinnu á þessu kennslubréfi átti ég erfitt með að koma með skemmtilegar útfærslu

sem gætu flokkast undir kveikjuleiki. Þegar ég hinsvegar fór loksins að viða að mér

ýmsum bókum og lesa mig til um leiki sem hægt væri að nýta í kennslu kom mér það

skemmtilega á óvart hversu marga leiki má nýta í raun sem svokallaða kveikjuleiki.

Það er í verkahring kennarans eða stjórnandans að undirbúa svo að vel takist til og

leikurinn skili tilgangi sínum þannig að áhugi kvikni fyrir ákveðnu námsefni eða

viðfangsefni.

Hildur Sigurðardóttir 19

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

7. þáttur—Sönghreyfileikir

Verkefni sjöunda þáttar er að prófa tvo til þrjá sönghreyfileiki og fjalla um hvernig til

tókst.

Í kennslubréfi 7 er bent á frábæra slóð þar sem er fjallað um ýmislegt er viðkemur

tónlist og hreyfingu. Þar er að finna m.a. greinar um efnið, leiki og skipulag kennslu.

Slóðin er eftirfarandi: http://en.wikipedia.org/wiki/Music_and_movement

Þar kemur m.a. fram að tónlist og hreyfing hefur jákvæð áhrif á þroska barna .

Þekking á gildi tónlistar og hreyfingar í námi hefur farið vaxandi eftir að rannsóknir

hafa verið gerðar á jákvæðum tengslum á áhrifum tónlistar á lærdóm.

Ég prufaði nokkra sönghreyfileiki með 8 börnum sem öll voru 4 ára. Þau voru

ótrúlega spennt og fannst gaman að fá ókunnuga manneskju í heimsókn á leikskóla

sinn. Ég byrjaði á að fá þau öll í hring og prufaði að Senda klapp á milli og fannst

þeim það skemmtilegt í fyrstu og náðu flest öll að senda klappið rétta leið. Þegar ég

sýndi þeim hvernig hægt væri að senda klappið til baka með því að klappa tvisvar fór

allt úr böndunum. Þau fóru að klappa á röngum tíma og misstu fljótt einbeitinguna.

Þannig að ég ákvað að pína þau ekki lengi í því þar sem mig langaði að fara í marga

leiki og fannst þau ekki hafa lengur áhugann á þessum leik enda líklega of ung til þess

að ná þessu.

Næst fórum við í Bangsi Lúrir sem þau kunnu nú öll. Þeim fannst greinilega mjög

gaman að elta hvort annað og fá smá útrás. Ég prufaði að syngja lagið með

mismunandi raddstyrk eins og að hvísla lagið, syngja það dimmraddað og hátt og

skýrt. Þau áttu ekki í vandræðum með að breyta röddinni. Börnin voru öll frekar æst

eftir leikinn og átti ég erfitt með að stoppa eltingaleikinn. Þannig að ég ákvað að fá

þau til að setjast í hring og róa sig niður.

Rútuleikur kallast næsti leikur sem farið var í. Þar er sungið lag sem hljómar eins og

höfuð herða hné og tær, en textinn er putti, armur, tá og tönn. Þau þekktu öll textann

höfuð herðar en ekki þennan texta. Þannig að við sungum þetta saman nokkrum

sinnum og gerðu hreyfingarnar með. Öll voru þau mjög fljótt að tileinka sér nýjan

texta og notuðu vísifingur með til þess að benda á viðkomandi staði.

Hildur Sigurðardóttir 20

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Síðan sungum við Það búa litlir dvergar og var það sungið einu sinni yfir og sýndi ég

þeim hreyfingar með. Þau þekktu lagið en ekki hreyfingarnar. Það tók þau ekki langan

tíma að læra hreyfingarnar og kom það mér verulega á óvart hversu fljót þau voru að

læra. Við spjölluðum aðeins um hvað dvergur væri og þau voru sko ekki í vandræðum

með að útskýra hver munurinn væri á litlu og stóru fólki.

Að lokum fórum við í hver er undir teppinu og þá áttu sum erfitt með að finna út hver

það væri sem væri undir teppinu en yfirleitt tókst það þegar þau fengu að sjá hárið á

einstaklingnum.

DagbókSönghreyfileikir er eitthvað sem allir geta haft gaman af hvort sem að sönghæfileikinn

er til staðar hjá einstaklingum eða ekki. Ég kann lítið að syngja en alltaf þegar ég er

stödd á mannamótum eða neyðist til þess að taka þátt í söng þá tel ég sjálfan mig

alltaf á það að ég sé virkilega góð söngkona sem geti vel haldið lagi. Ég vil trúa því að

það sé jákvæða viðhorfið og viðleitnin sem skiptir mestu máli en ekki sönghæfileikinn

þegar verið er að leika leiki með söng. Slíkir leikir létta andrúmsloftið, skapa góða

stemmingu og geta verið góð leið fyrir kennara að nota í kennslu sinni.

Hildur Sigurðardóttir 21

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

8. þáttur—Hugþroskaleikir

Verkefnið þessa námsþáttar er fólgið í því að kynna sér vel hugþroskaleiki. Lesa

vandlega kver sem Ingvar Sigurgeirsson hefur tekið saman um hugþroskaleiki. Prufa

einn leik úr fimm flokkum sem dæmi eru gefin um. Einnig að velta fyrir sér hvaða

þýðingu hugþroskaleikir í kennslu hefur

Hugþroskaleikir eiga rætur að rekja til bókarinnar Thinking goes to school: Piaget's

theory in practice (1974) og er eftir Hans Furth og Harry Wachs. Þeir Furth og Wachs

unnu að því að þróa leiki sem voru ögrandi fyrir hugann. Því eru leikirnir kallaðir

Thinking Games – Hugsunarleikir. Þeir byggðu hugmyndir sínar á kenningum Jean

Piaget áhrifamesti þroskasálfræðingi síðustu aldar.

Hvaða þýðingu hafa hugþroskaleikir í kennslu?

Samkvæmt heftinu um Hugþroskaleiki sem Ingvar Sigurgeirsson tók saman eru

hugþroskaleikir leikir sem örva hugsun. Það að mínu mati er mjög mikilvægt að

kennarar hafi í huga að örva þurfi hugsun nemenda sinna og má það gera með ýmsum

hugþroskaleikjum. Markmiðin eru mörg og misjöfn eftir leikjum en fram kemur í

heftinu að markmið hugþroskaleika er m.a.

- að stuðla að samhæfingu hreyfingar og skynjunar,

- örva hugmyndaflug nemenda

- þjálfa nemendur í samvinnu

(Ingvar Sigurgeirsson 2005:6)

Annað markmið sem mér datt í hug með hugþroskaleikjum er að þjálfa einbeitingu og

því margir leikjanna í heftinu krefjast einbeitingar nemenda.

Prófun á hugþroskaleikjumÉg fékk að kíkja í heimsókn á frístundarheimili í Reykjavík og prufaði ég þar fimm

leiki á börnum á aldrinum 6-9 ára

Hildur Sigurðardóttir 22

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Hreyfileikir - Með á bakinu

Lýsing: Nemendur skríða undir stóla, borð eða aðrar hindranir með e-n hlut (t.d.

eldspýtnastokk, bók) á bakinu og reyna að komast leiðar sinnar án þess að missa

hlutinn. 

Prófun:Gekk vel, þau voru ótrúlega flink og vandvirk og ef þau misstu hlutinn þá

byrjuðu þau uppá nýtt en það gerðist yfirleitt bara einu sinni.

Skoðunarleikir – Að skoða og muna

Lýsing: Ýmsir smáhlutir lagðir á borð. Dúkur er breiddur yfir. Nemendur raða sér í

kringum borðið. Kennari eða nemandi tekur dúkinn af stutta stund. Nemendur skoða

hlutina stutta stund. Síðan er dúkurinn breiddur yfir aftur og nemendur eiga að rifja

upp hlutina.

Prófun: Ég notaði aðra aðferð þar sem ég tók einn hlut í burtu og sýndi þeim hlutina

aftur. Þau áttu síðan að giska hvaða hlut vantaði. Gekk mjög vel, reyndar var ein

keppnismanneskja í hópnum sem gat alltaf uppá fyrst þannig að hinir fengu ekki að

spreyta sig. Breytti ég þá reglunni og lét ganga hringinn þ.e. hver og einn átti að

spreyta sig og giska fyrstur þegar teppið var tekið af. Þau voru öll mjög góð að

uppgötva hvaða hlut vantaði. Þó tók ég eftir að hlutirnir sem voru smærri voru börnin

lengur að uppgötva ef þá vantaði.

Snertileikur – Hvað er í pokanum

Lýsing: Einn í einu stingur hendinni í poka fullan af ýmsum smáhlutum og þreifar á

einhverjum hlut. Nemendur lýsa hlutunum upphátt án þess að nefna hann. Hvernig er

hann í laginu? Er hluturinn stór eða lítill?. Hvernig ætli hann sé á litinn? Síðan er

hluturinn skoðaður.

- hvort tveggja kemur til greina að nemendur hafi séð hlutinn áður eða ekki.

- Nemendur gætu um leið og hlutnum er lýst giskað á hver hann er.

Prófun: Prufaði að láta þau þreifa á hlutum sem þau höfðu ekki séð áður. Þeim tókst

ágætlega að lýsa hlutunum fyrir hinum og náðu þau að giska á flesta hlutina. Sumir

hlutana höfðu hljóð og höfðu þau gaman af því að fá að giska eftir hljóðinu líka.

Hildur Sigurðardóttir 23

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Hlustunarleikur – Hvað er í kassanum.

Lýsing: Nokkrir smáhlutir í litlum lokuðum ógegnsæjum kassa. Kennari setur einn

hlut í kassann án þess að hinir sjái. Síðan er kassinn látinn ganga á milli nemenda.

Þeir reyna að þekkja hlutinn af hljóðinu sem heyrist þegar þeir hrista kassann og

einnig eftir þyngd kassans.

Prófun:Nú vissu þau öll hvaða hlutir komu til greina og þau sem voru 8-9 ára voru

áberandi flinkari í þessum leik. Þau reyndu að meta þyngd kassans og hlustuðu eftir

hljóðinu þegar þau hristu kassann.

Rökþroskaleikur – Palli og Lyftan

Lýsing: Kennarinn segir nemendum sögu Nemendur reyna að finna svör við

spurningum (sjá í heftinu Hugþroskaleikir eftir Ingvar Sigurgeirsson).

Prófun: Ýmsar pælingar voru í gangi þegar ég spurði þau. En flest voru þau á því að

Palli hafi verið á undan og hann hafi vitað að lyftan yrði lengur á leiðinni upp og því

þyrfti hann að hlaupa á undan strákunum og farið út á 3 hæð.

DagbókVið athugun mína á hugþroskaleikjum hef ég öðlast mikinn áhuga fyrir þessum flokki

leikja. Það sem heillar mig hvað mest er námslega gildið sem þessir leikir hafa.

Margir eru einfaldir en þjálfa oft svo margt hjá börnum.

Hildur Sigurðardóttir 24

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

9. þáttur—Námsspil og flókin töfl

Í 9. Þætti er verkefnið velta þeirri spurningu fyrir sér hvað það er sem aðgreinir spil

frá öðrum leikjum og einnig að reyna að skilgreina spil. Verkefnið er að velja nokkur

námsspil og prófa þau og skrifa um reynsluna

Margar góðar skilgreiningar um spil hafa komið hér fram og tek ég undir þær. Það

sem aðgreinir helst spil frá öðrum leikjum er að oftast er setið til borðs og einbeitt sér

að ákveðnum fyrirfram gefnum reglum og áþreifanlegum hlutum/búnaði/áhöld sem

nýtt er til þess að spila með.

Þau spil sem ég hef helst spilað mikið og gæti flokkast undir námsspil eru Scrabble,

Pictonary, Fimbulfamb, samstæðuspil og Sequence sem er nýjasta æðið í

fjölskyldunni minni og er spilað helst við öll tækifæri sem gefast. Sequence krefst

mikillar einbeitningar og útsjónarsemi og hefur að mínu mati mikið námslegt gildi

fyrir grunnskólanemendur á efsta stigi þar sem það byggist á því að spilarar vinni

saman tveir og tveir og lesi vel í spilamennsku með og mótspilara. Sequence er einnig

til fyrir börn en ég hef ekki náð að prufa þá útgáfu. Ég spila mjög oft

samstæðuspil/minnisspil með myndum við son minn sem er 4 ára og hef ég séð

hversu vel honum hefur farið fram í að leggja á minni. Við höfum líka spilað

samstæðuspil með bókstöfunum á og þar eru einnig myndir á þeim spjöldum sem

byrja á þeim staf t.d. stafurinn J og þá er mynd af jeppa. Hann hefur þjálfast mikið við

að læra stafina með þessu spili þar sem hann kunni áður nokkra stafi, sinn staf og staf

foreldra sinna en nú þekkir hann mun fleiri stafi.

Í síðasta vettvangsnámi mínu var ég í 1 bekk. Þar útbjó ég stafaspil með stöfunum

sem nemendurnir höfðu þegar lært og voru þá fjögur spjöld af hverjum staf. Ég útbjó

spjöldin í sömu stærð og handspilin gömlu góðu eru í. Þau spiluðu síðan veiðimann

með þessum spilum og höfðu gaman af.

Að lokum langar mig að minnast á eitt spil sem ég á og hentar vel fyrir börn frá 3 ára

aldri. Keypt í Ameríku en eflaust til hér á landi líka. Ég hef ekki íslenska heitið yfir

það en þetta kallast Pattern Blocks & Boards. Þetta er með 10 tréspjöldum og 120

litlum formum mismunandi að lögun og á litinn t.d. sexhyrninga, tígla, þríhyrninga og

Hildur Sigurðardóttir 25

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

ferhyrninga. Þetta virkar í raun eins og púsl nema það á að leggja mismunandi form á

spjöldin eftir fyrirmyndinni sem er á spjaldinu. Þetta tel ég hafa mikið námslegt gildi

þá sérstaklega til þess að læra hugtökin ferhyrningur, þríhyrningur.... ofl. Einnig

handfjatla þau formin og leggja þannig á minnið útlit og lögun hvers hlutar fyrir sig.

Þetta spil hefur sonur minn mikið gaman af og hann vissi nöfnin á fáum formum áður

en hann spilaði þetta. Nú kann hann þau öll og er farinn að spila þetta í kappi við

tíman og tek ég oft tíman á honum eða spila á móti honum í kapp við hvort annað.

Eflaust hægt að útfæra þetta á ýmsa vegu en þetta er líka skemmtilegt spil/púsl fyrir

einn.

DagbókSpil er fínasta afþreying og ekki spillir þegar einhver lærdómur einstaklingar öðlast í

leiðinni. Það er mín skoðun að með tilkomu tölvutækninnar og öllum þeim óþrjótandi

möguleikum sem henni fylgir hafa spil verið að falla í gleymsku smátt og smátt. Þau

eru allavega minna notuð nú en áður. Kennarar og foreldrar verða að kenna börnum

spil og hvetja þau til þess að leika sér meira með spil.

Hildur Sigurðardóttir 26

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

10. þáttur—Gátur, þrautir og heilabrjótar

Verkefnið í þessum námsþætti er að fara mjög vel í gegnum það efni sem bent er á í

kennslubréfinu

Gildi gáta og þrauta í skólastarfi getur verið þónokkur. Hægt er að þjálfa nemendur í

samvinnu og að færa rök fyrir máli sínu. Gátur og þrautir eru einnig góð þjálfun fyrir

hugann. Þær vekja nemendur til umhugsunar um ákveðið viðfangsefni. Gæta þarf vel

að þyngdarstig sé við hæfi þegar nemendur glíma við þannig verkefni. Þó

stærðfræðiþrautir séu líklega mest notaðar í skólastarfinu þá eru í þessum flokki til

þrautir sem tengjast fjölmörgum námsefnum.

Það kom mér verulega á óvart hversu mikið magn af gátum,þrautum og heilabrjótum

er til og einnig hversu mikið gildi viðfangsefnin geta haft í námi. Ég hef eytt miklum

tíma á netinu og hef viðað að mér ýmsu efni sem kemur til með að nýtast mér í

kennslu. Skemmtilegt finnst mér að hægt er að nota þrautir til að leiðbeina nemendum

og nálgast ólík viðfangsefni. Þrautirnar gætu verið góð og skemmtileg kveikja að

ákveðnu námsefni. Það gæti hjálpa kennaranum að opna huga nemenda og efla

jákvæðni þeirra á Því viðfangsefni sem hann ætlar að leggja fyrir. Fram kemur í

kennslubréfinu að gátur og þrautir séu kjörin heimaverkefni og að fá foreldra með

gæti verið skemmtileg leið til að virkja foreldrana í að aðstoða við heimanámið.

Ég fór í gegnum 10 kennslubréf Ingvars og byrjaði að skoða myndagátur. Á

leikjavefnum eru nokkrar myndagátur Gunnars Halldórssona og gæti verið

skemmtilegt að nota þær þegar þreyta er komin í nemendur á ákveðnu viðfangsefni.

Væri þá hægt að fá nemendur til að hugsa um eitthvað allt annað. Þar sem flestar

gáturnar hafa fleiri en eitt svar væri gaman að búa til hópakeppni á milli nemenda.

Nemendur vinna þá í hópum og koma sér saman um eina ákveðna lausn, það gæti

jafnvel ýtt undir betri samskipti á meðal nemenda þar sem verða að ræða máli og

pæla í lausninni.

Rúmfræðiþrautirnar eru skemmtilegar og eru til ótal slíkar á netinu. Fyrsta sem mér

datt í hug í tengslum við það hvernig hægt væri að nýta þrautirnar í kennslu væri að

bjóða t.d. nemendum uppá að leysa þrautir í tölvu í stærðfræðitímum þ.e. ef aðstæður

Hildur Sigurðardóttir 27

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

bjóða uppá það. Sniðugt væri að vera með stöðvavinnu í stærðfræði þar sem ein

stöðin væri að leysa ákveðnar þrautir á netinu. Það krefst þolinmæði og einbeitingu.

Hex er skemmtilegur og einfaldur leikur sem krefst rökhugsun og útsjónarsemi.

Sniðugur Rökleikur sem bæði er hægt að spila á netinu og útbúa sérstakt spilaborð. L-

leikurinn sem Edward deBono bjó til er einfaldur og býður uppá ýmsa möguleika.

Leikurinn reynir á hugsun og ályktunargáfu. Afar skemmtileg hugmynd sem nefnd er

í kennslubréfinu að fá nemendur til að búa sjálfir til slíkar þrautir, en þar reynir m.a. á

sköpunargáfuna.

Sagnagátur er mjög skemmtilegur flokkur þar sem kennsluaðferðirnar sagnalist og

þrautalausnir eru notaðar. Ég átti ekki kost á að leggja gáturnar fyrir nemendur en

fékk fjölskyldumeðlimi til þess að spreyta sig. Ég hafði lesið þrautirnar nokkrum

sinnum yfir sjálf þannig að ég las þrautirnar með nokkrum tilþrifum þannig að allir

hlustuðu með athygli og höfðu gaman af. Lausnirnar komu eftir miklar vangaveltur

og umræður. Eftir þetta verkefni er ég handviss um að kennslufræðileg þýðing

verkefna að þessu tagi hafi mikið gildi. Nemendur æfa sig í þrautalausnum og

rökræða þar sem oft á tíðum fæst lausnin eftir að búið er að bera saman bækur sína og

velta mögulegum lausnum aðeins fyrir sér.

Eldspýtnaþrautir er eitthvað sem ég þekkti lítið fyrir og man ekki eftir að hafa leikið

mér með. Það kom mér því skemmtilega á óvart hversu margir möguleikar eldspýtur

bjóða uppá. Þrautir sem þessar reyna á rökhugsun og dettur mér í hug að sniðugt er að

nota þær þegar verið er að kenna börnum að telja. Hægt er þá að útfæra ýmsa

skemmtilega og einfalda leiki með talningu fyrir ung börn. Á vefnum er gaman að

fara inná puzzle.com og getur maður alveg gleymt sér þar í þrautum með eldspýtur. Á

þrautavef Jim Loy eru margar sniðugar hugmyndir að eldspýtnaleikjum sem gætu

verið frábærar fyrir yngri nemendur þar sem þeir eiga m.a. að útbúa ýmis form úr

eldspýtum.

http://www.puzzles.com/index.htm

http://www.jimloy.com/

Rökleitargátur eru mjög skemmtilegar og hef ég verið að prufa á ýmsum í kringum

mig með slíkum gátum og haft mjög gaman af. Misjafn er nú áhuginn fyrir að pæla í

Hildur Sigurðardóttir 28

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

og finna út lausnir,en sumir hverjir hættu ekki fyrr en lausnin var komin. Það er

augljóst að ímyndunarafl og frjó hugsun er eitthvað sem fólk hefur mismikið í sér.

Skemmtilegast var að spyrja 4 ára son minn og mann minn svara við gátunum enda

hafa þeir endalaust ímyndunarafl og ekki vantaði skemmtileg tilsvör og lausnir frá

þeim. Þetta er eitthvað sem ég gæti trúað að skemmtilegt sé að byrja og/eða enda

skóladaginn á þannig að andrúmsloftið milli kennarans og nemenda verði léttara og

skemmtilegra. Kennarinn gæti fengið nemendur til þess að skrifa hver fyrir sig lausn

niður á blað og lesa síðan upp fyrir bekkinn í lok dagsins. Þá þjálfast ekki aðeins

athygli, eftirtekt og einbeiting heldur líka framkoma og tjáning.

Raðþrautir þjálfa einbeitingu og þolinmæði, auka tilfinningu fyrir formum og lögun

hluta. Ég prufaði bæði á netinu Tangram og Hexa og missti mig alveg í púsleikjunum.

Þetta er ótrúlega skemmtilegt en hættulegur tímaþjófur. Nú get ég bara ekki beðið

eftir að klára ferilmöppuna til þess að geta leyft mér að missa mig meira í þessar

þrautir. Ekki er verra ef einbeiting og þolinmæði þjálfast eitthvað.

Tangram - history. 2007, 19.apríl. Wikipedia. Vefslóð: http://tangrams.ca/inner/tanhist.htm

Hex (board game). 2007, 23.apríl. Wikipedia. Vefslóð: http://en.wikipedia.org/wiki/Hex_game

DagbókÉg verð nú að viðurkenna að gátur, þrautir og heilabrjótar var ekki titill sem höfðaði

vel til mín í upphafi vinnu mína að þessu kennslubréfi. Þetta eru allt viðfangsefni sem

mér hefur þótt erfið viðureignar og einhvernvegin aldrei ná góðum tökum á. Því hefur

áhuginn á gátum,þrautum og heilabrjótum verið mjög svo takmarkaður.

Kennslubréfið er með fjöldann allan af góðum ábendingum á slóðum og hugmyndum

um viðfangsefni þessi. Vanþekking mín á viðfangsefninu mátti ekki halda aftur að

mér og bretti ég því upp ermar og sat í langan tíma og las mér til um ýmsar gátur og

þrautir. Vitir menn ég hafði gaman af og náði meira að segja að leysa nokkrar gátur að

sjálfsdáðum. Nú er áhuginn á viðfangsefninu orðinn töluverður en þó situr enn í mér

óöruggi sem ég er sannfærð um að hverfi um leið og ég prufa mig enn meira áfram.

Hildur Sigurðardóttir 29

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Miklu máli skiptir að kennarar nýti sér viðfangsefnin til að leiðbeina nemendum um

það hvernig má nálgast þau á margvíslegan hátt. Gildi slíkra þrauta er óþrjótandi og

tel ég að hægt sé að nýta þennan flokk leikja mun meira í kennslu en nú er gert,

Hildur Sigurðardóttir 30

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

11. þáttur—Orðaleikir

Í þessum námsþætti fjalla ég um orðaleiki og legg mat á þá.

Í orðaleikjum þjálfast orðaforði og getur verið skemmtileg aðferð til þess að lífga upp

á skóladaginn. Ég fann ýmsa orðaleiki á netinu. Á leikjanet.is eru 9 orðaleikir þar af

var einn á íslensku.

Á skólavefnum undir krakkasíður eru stafarugl þar sem gefin eru upp orð sem hægt er

að finna í kassa með fullt af stöfum. Mjög skemmtilegt og kemur fagnaðarhljóð þegar

maður finnur orð. Þar eru einnig að finna snillingaþrautir sem gengur út á það sama

þ.e. orðaleit en ákveðin þema í gangi t.d. nöfn allra reikistjarnanna það er hægt að

prenta þessar þrautir út og láta nemendur spreyta sig.

Á vef námsgagnastofnunar eru ýmsir skemmtilegir orðaleikir fyrir yngri börnin eins

og rím og stafaleikir. Þar er rödd sem segir hvað á að gera og les upp orðin eða stafina

þegar smellt er á þá með músarhnappnum.

Ég fór á goggle og sló inn word games og komu ansi margar slóðir. Ég skoðaði

nokkrar og þessar fannst mér góðar:

http://blackdog4kids.com/games/word/

Ýmsir orðaleikir fyrir börn á öllum aldri. Þarna var að finna t.d. stafarugl, orð þar sem

vantaði nokkra stafi og giska átti á rétt orð. Hægt var þá að velja ýmis þema orð m.a.

dýraheiti, litirnir, ávaxta- og grænmetisheiti og blómaheiti.

http://www.funbrain.com/whichword/index.html

Er snilldar vefur og hentar vel í ensku kennslu. Þar er t.d leikur sem hefur setningu og

í henni kemur fyrir orð sem vantar. Nemandi fær þá tvö orð sem eru mjög lík og

hljóma eins í framburði og giska hvort orðið á við í setninguna. Dæmi: Shirts are on

______ today at the mall. Þá stendur til boða að velja um þessi tvo orð:

Sail sale

Hildur Sigurðardóttir 31

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

http://www.vocabulary.co.il/

Frábær leikur sem hjálpar eflaust vel í málfræðikennslu í ensku.

með nokkrum leikjum þar sem lögð er áhersla á að auka orðaforða. Þar er

skemmtilegur minnisleikur eins og samstæðuspil þar sem dýraheiti kemur fyrir og

rödd segir nafnið á dýrinu þegar klikkað er á það. Annar leikur á sömu síðu er

uppbyggður eins og hangman nema að hægt er að velja um orð í ákveðnum flokkum

og maður hefur viss marga möguleika til þess að giska á hvaða stafur kemur fyrir.

Undir word play var mikið úrval leikja mikið var þó af sömu síðum sem komu upp og

í word games.

http://pbskids.org/lions/games/wordplay.html

Ótrúlega líflegur og krúttlegur vefur. Þar er t.d rödd sem segir hvernig orðið hljómar

þegar klikkað er á það. Sniðugt þegar verið er að æfa framburð. Þar er einnig stafir í

súpudiski og gengur leikurinn út á það að raða stöfunum saman og finna hvað orð þeir

mynda.

http://www.fun-with-words.com/

Hefur fjöldann allan af sniðugum orðaleikjum. Þar er t.d. 16 stafa stafarugl þar sem

fólk á að reyna að finna eins mörg orð út úr þeim á 3 mínútum. Þar er teljari sem telur

niður.

Word Puzzles er mikið af skemmtilegum leikjum t.d.

http://www.agameaday.com/

Mjög skemmtilegir orðaleikir og púsl. Þarna eins og á fyrrgreindum slóðum þurfa

einstaklingar að hafa einhverja enskukunnáttu

http://www.kidsdomain.com/holiday/thanks/word.html

Skemmtileg púsl og stafarugl leikir þar sem hægt er að velja um miserfiða orðaleiki

DagbókOrðaleikir eru leikir sem byggjast á því að vinna með bókstafi og orð. Leikir þessir

efla flestir orðaforða, hugmyndaflug, minni og rökhugsun og kenna einnig stafrófið.

Orðaleikir geta verið sniðug leið til þess að lífga upp á tungumálakennslu.

Hildur Sigurðardóttir 32

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Við vinnu mína á þessu kennslubréfi komst ég að því að kennarar þurfa að vera opnir

fyrir öllu því frábæra efni sem netið hefur að geyma og þá eru orðaleikir enginn

undantekning.

Hildur Sigurðardóttir 33

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

12. þáttur—Tölvuleikir

12 þáttur gengur út á það að velja einn tölvuleik á netinu og gera grein fyrir gildi hans.

Einnig að leggja mat á leiki sem vefur námsgagnastofnun býður uppá

Krakkasíður Námsgagnastofnunnar

Hér er stutt lýsing á þeim leikjum sem við áttum að meta:

Orðakistur Krillu- þar á að raða í stafrófsröð, ríma og ýmis orðaleit og finna sama

orðið sem gefið er.

Minnisleikur- Skiptist í erfileikastig sem er góður möguleiki og þjálfar minni og

einbeitingu

Stafaleikir Bínu- kenndir stafirnir og hljóð þeirra

Þríhyrningarnir/Ferhyrningar reynir á stærðfræðikunnáttu þ.e samlagningu nemendur

læra stærðfræði og setja dæmin upp í þríhyrningar-og ferhyrningarform.

Þrír í röð- komst ekki inn í þann leik

Talnaferningurinn- reynir einnig á stærðfræðiþekkingu og að sjá á alla vegu sömu

Lukkuhjólið-tölurnar sem koma upp eru byggðar á heppni. Maður þarf hins vegar að

vera útsjónasamur til þess að staðsetja tölurnar.

Hver þeirra er bestur að þínum dómi?

Allir hafa þessir leikir námslegt gildi.þó svo að sviðið er fremur þröngt námslega séð

sem þeir uppfylla. Ég tel þá vera skemmtilega viðbót við hefðbundið nám

Að mínu mati tel ég Orðakistur Krillu vera besti námsleikurinn þar sem hann þjálfar

svo margt og er einnig skemmtilegur og auðveldur í aðgengi. Ég myndi nota hann í

íslenskukennslu á yngsta stigi og byrja á því að fara með nemendum yfir alla leiki og

varpa leiknum uppá tjald þannig að allir sjái hvernig hann virkar og skilji hvað eigi að

gera í hverju verkefni. Sniðugt væri að fá nemendur til þess að leysa leikinn tvo og

tvo saman þannig að þeir þurfi að ræða saman um réttar lausnir og gæti það fest frekar

í minni þann lærdóm sem þeir hafa af leiknum

Hildur Sigurðardóttir 34

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Legðu mat á það hvort forritið Álfur er leikur eða ekki! Færðu rök fyrir máli þínu!

Álfur er að mínu mati námsleikur. Sjálf sagan er bæði skemmtileg og hægt væri að

nota hana í lífsleiknikennslu á yngsta stigi þar sem verið er að ræða um framkomu og

virðingu fyrir öðrum og að skilja ekki útundan. Að búa til andlit er einnig tilvalið í

tengslum við lífsleiknina og væri þá hægt að ræða hvernig manneskju líður eftir

mismunandi svipbrigðum og geta þá nemendur séð andlitið myndrænt. Ég tel að þessi

leikur sé einnig sniðugur fyrir börn sem eru að prófa sig áfram á tölvum og hafa ekki

vald á músinni. Þá er ágæt æfing að búa til andlit eða að setja Álf í föt. Ég prufaði að

sýna 4 ára syni mínum þessa sögu og verkefnin sem fylgdu og þótti honum þetta mjög

áhugavert þó svo að ég hafi stýrt honum enda hafði hann aldrei prufað neitt í tölvu

áður. Hann hafði gaman af og á ég eftir að nýta mér þennan leik til þess að æfa son

minn í leikni á tölvu

Tölvuleikir á netinuÉg hef skoðað mikið magn af leikjum á netinu og erfitt er að velja og hafna. Þó hafa

þeir leikir sem hafa mikið námslegt gildi verið að mínu mati þeir allra áhugaverðustu

og í mínu uppáhaldi

Vefur sem ég staldraði ansi lengi við hefur mikið af góðu efni sem hægt er að nýta í

kennslu fyrir allan aldur. Vefurinn er þægilegur þar sem hann flokkar eftir aldri og

námsgreinum. Hann býður uppá leiki sem nýta má m.a. í enskukennslu. Þar var leikur

sem kallast on the shelf þar sem var myndir af hlutum og við hliðina á var nafn á

ýmsum hlutum. Hlutinn átti síðan að draga með músinni að hillu með réttu heiti. Mjög

gott fyrir nemendur sem eru að byrja enskukennslu til þess að auka orðaforða og læra

stafsetningu orða. Síðan er vel uppsett og er litrík og aðlaðandi. Síðan bíður einnig

uppá fjöldann allan af skemmtilegum málfræði-verkefnum til útprentunar sem er

ókeypis og þykir mér það mikill kostur. Slóðin er þessi:

http://www.thekidzpage.com/learninggames/index.htm

Leikjanet er fín síða með fullt af skemmtilegum leikjum. Sumir hafa meira námslegt

gildi en aðrir og ef farið er neðst á síðuna sjást þeir flokkar sem leikirnir eru flokkaðir

í þeir eru: bardagaleikir, barnaleikir, bílaleikir, flugleikir, geimleikir, hjólaleikir,

íþróttaleikir, orðaleikir, spil og kaplar, ævintýri og fjársjóðir, þrautir og heilabrot,

annað. Ég skoðaði sérstaklega tvo flokka en það voru barnaleikir og orðaleikir.

Hildur Sigurðardóttir 35

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Barnaleikirnir voru 22 talsins og eru eflaust skemmtilegir fyrir ung börn. Orðaleikirnir

voru því miður færri eða 9 talsins en margir ágætis námsleikir

http://leikjanet.is/

Langar að lokum benda á skemmtilega leik sem gengur út á það að stimpla á

lyklaborðið þann staf sem flýgur um skjáinn. Nemandi þarf að vera snöggur að finna

stafinn á lyklaborðinu þar sem hann dettur ofan í vatn ef ekki er stimplað á réttan staf.

Í lok leikja koma upplýsingar um hversu margir stafir voru réttir, rangir og í hvað

borð nemandinn komst. Leikur sem þessi hefur þann kost að nemandi þjálfast í að

læra á lyklaborðið og reynir á einbeitingu.

http://www.thekidzpage.com/freekidsgames/games/alphadrop/alphadropgame.html

DagbókTölvutæknin með sínum kostum og göllum er komin til að vera. Mikið er til af

leikjum á netinu. Þó svo að margir þeirra uppfylli ekki skráð markmið Aðalnámskrá

met ég það svo að flestir þeirra hafi eitthvert námslegt gildi mismikið þó. Má þar

nefna aukna færni nemenda í tölvu Þeir leikir sem stuðla beint eða óbeint að því að

uppfylla námsmarkmið skólanna eru vel nýtanlegir í kennslu en mig grunar að

kennarar sé sumir hverjir ekki nægilega duglegir við að nýta sér þessa leiki.

Hildur Sigurðardóttir 36

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Lokaorð

Ég hef fjallað um ýmislegt í tengslum við leiki. Ég hef velt fyrir mér hvernig megi

flokka þá, hver gagnsemi þeirra er og áhrif þeir geta haft. Prófun á leikjum hefur mér

þótt mjög eftirminnileg og skemmtileg. Námskeiðið Leikir í skólastarfi hefur verið

einstaklega skemmtilegt og fræðandi. Að mörgu hef ég komist sem ég vissi ekki áður.

Mig hafði t.d. ekki grunað að leikir hefðu eins mikið námslegt gildi og þeir virðast

hafa. Eftir situr hugur minn fullur af hugmyndum sem og þessi námsmappa sem ég

veit að kemur til með að nýtast mér í leik og í starfi því leikurinn er mögnuð aðferð til

að vekja áhuga nemenda á náminu. Þetta námskeið hefur hvatt mig til að nota leiki í

mínu starfi sem verðandi kennari.

Hildur Sigurðardóttir 37

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Tillögur að leikjum inná leikjavefinn

Leikur 1

Höfundar: Anna Bára Aronsdóttir, Hildur Sigurðardóttir og Linda Marie Samuelsson – 2007.

Nafn sendanda: Anna Bára Aronsdóttir

Nafn á leik: Aumingja kisa

Flokkur: Hreyfileikir og æfingar

Aldur: frá 4 ára aldri

Markmið: Skapa góða stemmningu, tilbreyting og efla einbeitingu.

Gögn: engin

Leiklýsing: Þátttakendur sitja í hring á gólfinu. Einn er í miðjunni og er kisan. Kisa á

að skríða, á fjórum fótum, að einhverjum í hringnum, nudda sér upp við hann og

mjálma. Sá sem kisa er að nudda sér upp við á að klappa á bakið á henni og segja;

"Aumingja kisa". En, hann má ekki fara að hlæja, ekki einu sinni brosa. Allir hinir í

hringnum mega hlæja eins mikið og þeim sýnist. Kisa má endurtaka leikinn þrisvar

sinnum við sama þátttakandann. Ef honum stekkur ekki bros á vör verður hún að

reyna við einhvern annan. Sá sem fer að hlæja verður kisa og fer inn í hringinn.

Útfærsla: Heimild: Krakkasíðan; http://www.vortex.is/omo/krakkasida.htm,

http://www.vortex.is/omo/aumingja_kisa.htm

Hildur Sigurðardóttir 38

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Leikur 2

Höfundar: Anna Bára Aronsdóttir, Hildur Sigurðardóttir og Linda Marie Samuelsson – 2007.

Nafn sendanda: Anna Bára Aronsdóttir

Nafn á leik: Teiknum skrímsli

Flokkur: Teikni og litaleikir

Aldur: frá 4 ára aldri

Markmið: að efla samvinnu, auka ímyndunaraflið og þjálfun í teikningu.

Gögn: Tafla og krítar í mismunandi litum eða stórt blað og margir litir.

Leiklýsing: Myndlistaleikur þar sem allir taka þátt. Stjórnandi leiksins (kennari)

skrifar efst á töfluna “teiknið handa mér skrímsli”. Útskýrir svo fyrir bekknum að þeir

séu brjálaðir vísindamenn og eiga í sameiningu að útbúa skrímsli. Hver þátttakandi

dregur um þann hlut sem hann á að teikna og einn teiknar í einu. T.d fyrsti þátttakandi

dregur miða með orðinu skegg og þarf þá að byrja að teikna skeggið þó andlitið sé

ekki komið og aðrir þátttakendur þurfa síðan að vinna út frá því. Í lokinn ertu með

frábærlega samsett skrímsli.

Útfærsla: Hægt að tengja þennan leik t.d., sögunni og láta nemendur teikna eitthvað

sniðugt upp úr henni.

Heimild: http://www.eslcafe.com/idea/index.cgi?display:1166106693-11650.txt

Hildur Sigurðardóttir 39

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Leikur 3

Höfundar:Anna Bára Aronsdóttir, Hildur Sigurðardóttir og Linda Marie Samuelsson - 2007

Netfang sendanda: Linda Marie Samuelsson

Nafn á leik: Tölustafastiginn

Flokkur: Námsspil

Markmið: að efla stærðfræðihugsun barna

Aldur: frá 6 ára.

Gögn: pappír að stærð A3, penni og teningur og þurrkaðar baunir eða hnappar.

Leiklýsing: Byrja að teikna tölustafastiga á blað frá 1 til 10, það þarf ekki að vera í

neinni sérstakri röð. Barnið byrjar að kasta teningnum. Ef barnið fær t.d 3 á það að

bæta 3 við hvern tölustaf í stiganum. Barnið heldur áfram að bæta 3 við hverja tölu og

í hvert sinn sem talið er rétt fer það einu þrepi hærra. Ef barnið telur rangt fer það alla

leið niður aftur og næsti tekur við.

Útfærsla: Þessum leik er hægt að breyta fyrir yngri börn sem eru að læra tölustafi og

þá eru skrifaðar tölurnar 1 – 10 og byrjað er á tölunni 1. Barnið fær hnapp eða baun

sem það á að henda í stigann. Ef það lendir á t.d 4 á barnið að taka jafn marga

hnappa/baunir og talan sýnir sem barnið lenti á.

Heimild: Kaye Peggy (1994). Mattelekar. [þýð. Rikard Hedenblad]. Malmö, Brain Books.

Hildur Sigurðardóttir 40

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Leikur 4

Höfundar: Anna Bára Aronsdóttir, Hildur Sigurðardóttir og Linda Marie Samuelsson - 2007

Netfang sendanda: Linda Marie Samuelsson

Nafn á leik: Fyrst að fimmtíu

Flokkur: Námsspil

Marmið: að hjálpa barninu að skilja tíund.

Aldur: Frá 7 ára

Gögn: pappír A3, penni, karton, þurrkaðar baunir, skæri og pappírsklemma.

Leiklýsing:Undirbúning:

1. Teikna á tveim A3 blöðum 5 stóra ferninga og 10 litla ferninga öðru megin á

blaðinu. Stóru ferningarnir eiga að geta rúmað 10 baunir hvor og þeir litlu

eiga að geta rúmað eina baun hvor.

2. Nú þarf að búa til ,,talnaklukku“ sem sýnir tíund. Taktu eitt A3 blað á það

teiknar þú stóran hring sem er skipt niður í 12 kökur. Svo þarf að búa til

ör/vísir sem á að geta snúist auðveldlega og bent á eina kökuna. Örin/vísirinn

er fest með blaðaklemmu. Skrifið á kökurnar: vinnið 10, tapið 10 og vinnið 1.

Spilið gengur út á að vera fyrstur upp að 50.

Börnin spila þannig að þau fá sitt hvert A3 blað með ferningum sem telja tíund. Eitt

barn byrjar að snúa örinni/vísinum og ef hann stoppar á vinnið 10 tekur barnið 10

baunir og getur með hjálp litla ferninganna séð hversu margar það eru. Ef örin/vísirinn

hins vegar lendir á tapið 10 missir barnið tíu baunir. Sá sem er fyrstur upp að 50

vinnur.

Útfærsla: Hægt er að gera þetta með yngri börnum og nota þá tölurnar 1 til 10 samt

merkja með punktum við hlið hvers tölustafs jafn margir punktar og talan er til að

hjálpa barninu að telja. Hér er ekki hægt að tapa neinum baunum en spilið gengur út á

að vera fyrstur upp í vissa upphæð.

Hildur Sigurðardóttir 41

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Heimild: Kaye Peggy (1994). Mattelekar. [þýð. Rikard Hedenblad]. Malmö, Brain Books.

Fyrstu tvær myndirnar eru fyrir spilið ,,fyrst að 50” og hin er fyrir tölustafastigann

Hildur Sigurðardóttir 42

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Leikur 5

Höfundar:Anna Bára Aronsdóttir, Hildur Sigurðardóttir og Linda Marie Samuelsson - 2007

Netfang sendanda: Hildur Sigurðardóttir

Nafn á leik: Leikur með bönd

Flokkur: Námsleikir

Markmið: að fylgja fyrirmælum sem innihalda hugtökin ,,einn’’, ,,tveir’’, ,,inn í’’,

,, fyrir utan’’ og ,, á’’. Efla vitneskju á þýðingu hugtakanna

Aldur: frá 3 ára.

Gögn: miðlungsgróf bönd með krækju, leikbrúða (má sleppa).

Leiklýsing: Réttið hverju barni band með krækjum á sitthvorum endanum. Fáið þau

til að tengja böndin sín saman og mynda stóran hring úr kaðlinum á gólfinu.

Hagræðið stærð hringsins eftir stærð stofunnar. Biðjið börnin að raða sér í kringum

hringinn að utanverðu. Stjórnandi slæst í för með börnunum Gott er að hafa leikbrúðu

sem stjórnandinn talar í gegnum og gefur fyrirmælin með. t.d. Bassi segir:

Við skulum leika okkur með hringinn okkar. Hlustið mjög vel á það sem ég segi. Svo

skuluð þið gera eins og ég segi.

Bassi/stjórnandinn gefur fyrirmæli eins og eftirfarandi. Þegar búið er að framkvæma

hvert atriði eru börnin beðin um að fara aftur í upphafsstöðu fyrir utan hringinn.

1. Setjið einn fót inn í hringinn

2. Setjið eina hönd á hringinn

3. Gangið í hring fyrir utan hringinn

4. Setjið tvo fætur inn í hringinn

5. Setjið tvo fætur á hringinn.

6. Snúið ykkur í hring fyrir utan hringinn.

7. Setjið tvær hendur inn í hringinn

8. Hoppið upp og niður inn í hringnum

9. Skríðið í hring fyrir utan hringinn

10. Setjið einn fót á hringinn.

Hildur Sigurðardóttir 43

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Útfærsla: Hver og einn búi til ýmis form úr bandinu t,d, hring, þríhyrning,

ferhyrning. Einnig geta allir hjálpast við að tengja saman böndin og búa til í

sameiningu ýmis form úr einu stóru bandi.

Heimild: Peabody Early Experiences Kit Útgefandi: AGS American Guidance Service. INC Þýðandi Hjördís Björg Gunnarsdóttir

Hildur Sigurðardóttir 44

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Leikur 6

Höfundar:Anna Bára Aronsdóttir, Hildur Sigurðardóttir og Linda Marie Samuelsson - 2007

Netfang sendanda: Hildur Sigurðardóttir

Nafn á leik: Hvaða hlutur er horfinn?

Flokkur: Námsleikir/Athygli- og skynjunarleikir

Markmið: Að þjálfa athygli og minni, æfa tjáningu, læra að þekkja litina

Aldur: frá 2 ára.

Gögn: Litlir hlutir sem allir eru mismunandi á litinn.

Leiklýsing: Stjórnandi sýnir börnunum fjóra hluti í ólíkum litum eða gulur,rauður,

grænn og blár. Stjórnandi breiðir teppi yfir hlutina og fjarlægir einn hlut án þess að

börnin sjái til. Síðan eru börnin spurð hvaða litur er horfinn. Það má gera leikinn

erfiðari með því að taka fleiri en einn hlut í hvert skipti eða bæta við fleiri hlutum í

mismunandi litum. Sniðugt er að biðja ákveðið barn að giska í hvert skiptið þannig að

allir fái að spreyta sig.

Útfærsla: Setja má hluti með mismunandi lögun, t.d. þríhyrning, ferhyrning, hring og

ferning. Þannig þjálfast börnin í að þekkja heiti á mismunandi formum. Það hentar

fyrir eldri börn.

Heimild: Þessi leikur er útfærsla á öðrum leik. Hugmynd fengin frá Ástfríði Árnadóttur og Höllu Ösp Hallsdóttir

Hildur Sigurðardóttir 45

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Heimildaskrá

Anna Jeppesen, Ása Helga Ragnarsdóttir. Leiklist í kennslu: handbók fyrir kennara. 2006. Reykjavík. Námsgagnastofnun.

Between the Lions. Word Play. 2007, 19 apríl Vefslóð: http://pbskids.org/lions/games/wordplay.html

BlackDog’s Word Games. 2007, 19 apríl. Vefslóð: http://blackdog4kids.com/games/word/

Bókasafn Garðabæjar – Leikir. 2007, 15 mars Vefslóð: http://www2.gardabaer.is/bokasafn/leikir.htm

Educational Games For Kids – Children´s Printable and online Learning Games. 2007,20 apríl. Vefslóð: http://www.thekidzpage.com/learninggames/index.htm

Erla Kristjánsdóttir, Ingvar Sigurgeirsson. Nokkrar hugmyndir um notkun bókarinnar Að leika og látast. 1977. Reykjavík. Menntamálaráðuneytið, skólarannsóknardeildFox , Jill Englebright. 2007, 20 janúar. Back-to-Basics: Play in Early Childhood. Vefslóð: http://www.earlychildhoodnews.com/earlychildhood/article_view.aspx?ArticleID=240

Free Kids Games. 2007, 19 apríl. Vefslóð: http://www.thekidzpage.com/freekidsgames/games/alphadrop/alphadropgame.html

Funbrain – Word Confusion. 2007, 19 apríl. Vefslóð: http://www.funbrain.com/whichword/index.html

Furth,Hans, Wachs,Harry. Thinking goes to school: Piaget's theory in practice 1974. London. Oxford University Press, 1974

Games for children ages 1 to 5. 2007, 15 mars vefslóð: http://www.kidspsych.org/gooochy2.html

Helgi Grímsson. Hópeflileikir

Hex (board game). 2007, 23.apríl. Wikipedia. Vefslóð: http://en.wikipedia.org/wiki/Hex_game

Icebreakers. 2007, 15 apríl. Vefslóð: http://www.kimskorner4teachertalk.com/classmanagement/icebreakers.html

Icebreaker games for small groups. 2007, 15 apríl. Vefslóð: http://www.mftrou.com/icebreaker-games.html

Ingvar Sigurgeirsson. Hugþroskaleikir – Leikir sem örva hugsun. 2005. Ljósritað sem handrit. Kennaraháskóli Íslands

Hildur Sigurðardóttir 46

Leikir sem kennsluaðferðVor 2007

Ingvar Sigurgeirsson 2007, Kennslubréf 1-12 af námskeiðinu Leikir í Skólastarfi 13.03.81

Ingvar Sigurgeirsson. 2007, janúar - Apríl.. Leikjavefurinn /Leikjabankinn Vefslóð: http://leikjavefurinn.is Jim Loy´s home page. 2007, 20. apríl. Vefslóð: http://www.jimloy.com/is/

Kids Domain – Thanksgiving Word Puzzles. 2007, 19 apríl. Vefslóð: http://www.kidsdomain.com/holiday/thanks/word.html

Kids Games. 2007, 15 mars. Vefslóð: http://www.gameskidsplay.net/

Learning Vocabulary Can Be Fun. 2007, 19 apríl. Vefslóð: http://www.vocabulary.co.il/

Leikjanet.is. 2007, 20. apríl Vefslóð: http://leikjanet.is/

Malm,Barbro, Undén, Ann-Mari. Að leika og látast. 1970 Erla Kristjánsdóttir og Ingvar Sigurgeirsson þýddu. Ríkisútgáfa Námsbóka

Music and movement – Wikipedia. 2007, 14 apríl. Vefslóð: http://en.wikipedia.org/wiki/Music_and_movement

Námsgagnastofnun. 2007, 19 apríl. Vefslóð: http://nams.is/

Puzzles.com. 2007 sótt 20 apríl. Vefslóð: http://www.puzzles.com/index.htm

Tanagram - history. 2007, 19.apríl. Wikipedia. Vefslóð: http://tangrams.ca/inner/tanhist.htm

The Promise of Play: Episode 1: The Mother of Invention. 2000. The Institute for Play.

The Promise of Play: Episode 3: The Heart of the Matter. 2000. The Institute for Play.

Þjóðminjasafn Íslands. 2007, 19 febrúar. Vefslóð: http://www.natmus.is/leitarnidurstodur?SearchFor=leikir

Wardle, Francis. 2007, 20.janúar. Play as Curriculum. Vefslóð: http://www.earlychildhoodnews.com/earlychildhood/article_view.aspx?ArticleID=127

Word Games and Puzzles, Brainteasers, Anagrams, Word search. 2007,19 apríl Vefslóð: http://www.agameaday.com/

Hildur Sigurðardóttir 47