22.tbl_2011

24
›› Listakonan ›› Menningin ›› Dúxinn Fríða Rögnvalds elskar að synda Síða 10 Það þarf fólk eins og þig Síður 12-14 Kláraði stúdents- prófið á 3 árum Síða 18 Ljúffengar vöfflur með sveitasultu og rjóma! vf.is vf.is | www.ytjandi.is | sími mi 525 7 5 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND N1 GRÆNÁSBRAUT 552 Á ALLAR GERÐIR BIFREIÐA SUMARDEKK OG FELGUR Meira í leiðinni NÝTT Morgunverðar- matseðill Aðeins í boði á Subway Fitjum OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN TM Fitjum K. Steinarsson ehf. Njarðarbraut 13 - 260 Reykjanesbæ Sími 420 5000 Víkurfréttir Grundarvegur 23, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 MIÐVIKUDAGURINN 1. JÚNÍ 2011 22. TÖLUBLAÐ 32. ÁRGANGUR STÆRRA OG EFNISMEIRA BLAÐ Í HVERRI VIKU! ›› Dansskólaslit í Andrews LJóSMYND: ODDGEIR KARLSSON Í Reykjanesbæ eru reknir tveir stórir dansskólar þar sem mikill fjöldi ungmenna af Suðurnesjum sækir sitt dansnám. Skólarnir tveir héldu báðir vorsýningar sínar í Andrews-leikhúsinu á Ásbrú á dögunum. Meðfylgjandi mynd er úr sýningu Danskompaní. Í Víkurfréttum í næstu viku birtum við fleiri myndir frá vorsýningum dansskólanna sem Sölvi Logason, ljósmyndari VF, tók. Dansað inn í sumarið Fall sparisjóð- anna rannsakað Þ ingsálykt- unartillaga um rannsókn á aðdraganda og orsökum erf- iðleika og falls sparisjóðanna var samþykkt á Alþingi í gær. Nefndinni er ætlað að ljúka störfum fyrir 1. sept. 2012 og skila skýrslu fyrir þann tíma. Skipuð verður þriggja manna rannsóknarnefnd og skal hún m.a. leggja mat á hvort um mis- tök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um starfsemi sparisjóða og eſtirlit með henni, og hverjir kunna að bera ábyrgð á því. Þá eigi nefndin að meta starfshætti sparisjóðanna á undanförnum árum og varpa ljósi á hverjar séu helstu orsakir mismunandi ár- angurs rekstrar þeirra. S tjórn Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum telur ábendingar innanrík- isráðuneytisins réttmætar og mun SSS hafa þær í huga þegar kemur að ráðningum starfsfólks í framtíðinni og eru hlutaðeigandi aðilar beðnir afsökunar. Ráðu- neytið úrskurðaði ráðn- ingu Bjarkar Guðjónsdótt- ur í embætti verkefnastjóra ólögmæta. Gunnar Þór- arinsson, formaður stjórnar SSS, segir ráðninguna hafa verið verk fyrri stjórnar SSS. Nánar um málið á síðu 16. Stjórn SSS biðst afsökunar ›› Ólögleg ráðning:

Upload: vikurfrettir-ehf

Post on 08-Mar-2016

296 views

Category:

Documents


5 download

DESCRIPTION

22.tbl_2011

TRANSCRIPT

Page 1: 22.tbl_2011

›› Listakonan ›› Menningin ›› Dúxinn

Fríða Rögnvalds elskar að synda

› Síða 10

Það þarf fólk eins og þig

› Síður 12-14

Kláraði stúdents-prófið á 3 árum

› Síða 18

Ljúffengar vöfflur með sveitasultu og rjóma!

vf.isvf.is

Metan er innlendurog umhverfisvænnorkugjafi sem erhelmingi ódýrarien bensín.

Nýttu þér kostimetans meðVolkswagen.

K. Steinarsson – Njarðarbraut 13420 5000 - [email protected]

Das Auto. TM

Opið allansólarhringinn

Fitjum

NÝTTMorgunverðar-matseðill

Aðeins í boði áSubway Fitjum

14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011

Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is

989kr/stk.Tilboðsverð!

339kr/stk.Tilboðsverð!

EasyÞvoTTaEfni

aloE vEra 2.7 kg

EasyMýkingarEfni

2 l

| www.flytjandi.is | símimi 525 75 7700 |

VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND

Víkurfréttir ehf.Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær

Sími 421 0000 - Póstur: [email protected]ðslan er opin virka daga kl. 09-17

Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan-úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2.

Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0

fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB

Æsispennandikörfuknattleikir

- sjá nánar á bls. 23

N1 GRÆNÁSBRAUT 552

Á ALLAR GERÐIR BIFREIÐA

SUMARDEKK OG FELGUR

Meira í leiðinni

NÝTTMorgunve

rðar-

matseðill

Aðeins í boði á

Subway Fitjum

OPIÐ ALLANSÓLARHRINGINN

TM

Fitjum

K. Steinarsson ehf.Njarðarbraut 13 - 260 Reykjanesbæ

Sími 420 5000

VíkurfréttirGrundarvegur 23,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

M I Ð V I K U d A G U R I n n 1 . J Ú n Í 2 0 1 1 • 2 2 . t ö l U b l A Ð • 3 2 . á R G A n G U R

Stærra og efniSmeira blað í hverri viku!

›› Dansskólaslit í AndrewsLjósmynd: Oddgeir KarLssOn

Í reykjanesbæ eru reknir tveir stórir dansskólar þar sem mikill fjöldi ungmenna af suðurnesjum sækir sitt dansnám. skólarnir tveir héldu báðir vorsýningar sínar í andrews-leikhúsinu á Ásbrú á dögunum. meðfylgjandi mynd er úr sýningu danskompaní. Í Víkurfréttum í næstu viku birtum við

fleiri myndir frá vorsýningum dansskólanna sem sölvi Logason, ljósmyndari VF, tók.

dansað inn í sumarið

Fall sparisjóð-anna rannsakað

Þingsálykt-unartillaga

um rannsókn á aðdraganda og orsökum erf-

iðleika og falls sparisjóðanna var samþykkt á Alþingi í gær. Nefndinni er ætlað að ljúka störfum fyrir 1. sept. 2012 og skila skýrslu fyrir þann tíma.Skipuð verður þriggja manna rannsóknarnefnd og skal hún m.a. leggja mat á hvort um mis-tök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um starfsemi sparisjóða og eftirlit með henni, og hverjir kunna að bera ábyrgð á því. Þá eigi nefndin að meta starfshætti sparisjóðanna á undanförnum árum og varpa ljósi á hverjar séu helstu orsakir mismunandi ár-angurs rekstrar þeirra.

Stjórn Sambands sveitar-félaga á Suðurnesjum

telur ábendingar innanrík-isráðuneytisins réttmætar og mun SSS hafa þær í huga þegar kemur að ráðningum starfsfólks í framtíðinni og eru hlutaðeigandi aðilar beðnir afsökunar. Ráðu-neytið úrskurðaði ráðn-ingu Bjarkar Guðjónsdótt-ur í embætti verkefnastjóra ólögmæta. Gunnar Þór-arinsson, formaður stjórnar SSS, segir ráðninguna hafa verið verk fyrri stjórnar SSS. Nánar um málið á síðu 16.

Stjórn SSSbiðst afsökunar

›› Ólögleg ráðning:

Page 2: 22.tbl_2011

2 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

„Þetta er alrangt,“ sagði Geir-mundur Kristinsson, fyrr-verandi sparisjóðsstjóri um að hann, sonur hans og fleiri stjórnendur Sparisjóðsins í Keflavík hafi innleyst stofnfé eftir bankahrun á meðan öðrum sem þess óskuðu var neitað um slíkt. Upplýsingar þess efnis komu fram á fundi Samtaka stofnfjáreigenda Spkef og í grein Silju Daggar Gunnarsdóttur, varabæj-arfulltrúa í Reykjanesbæ á vef Víkurfrétta, daginn eftir fundinn, sl. fimmtudag.Geirmundur sagðist að öðru leyti ekki vilja tjá sig að svo stöddu um málefni Sparisjóðsins í Keflavík.Á fundinum var rannsókn-arvinna stjórnar samtakanna kynnt en þau eru eins árs. Þórunn Einarsdóttir, for-maður samtaka stofnfjáreig-enda Spkef sagði á fundinum í Fjölbrautaskóla Suðurnesja sorglegt hvernig hefði farið

fyrir þessari stofnun sem Suðurnesjamenn hefðu ver-ið svo stoltir af og ánægðir með. Hún sagði ljóst að 20-30 manna hópur hefði fengið megnið af útlánum Sparisjóðsins síðustu árin. Þau hefðu flest verið með afar litlum tryggingum eða ónýtum veðum. „Regluverkið var allt í óreiðu og sparisjóðs-stjóri virðist hafa haft þau völd sem hann vildi án þess að þurfa að fá samþykki stjórnar,“ sagði Þórunn.Í máli stjórnarmanna samtak-

anna kom fram að þeir telja að stofnfjáraukningarnar sem fram fóru árið 2007 hafi verið byggðar á röngum forsendum og hefðu ekki átt að ná fram að ganga. Það hafi orðið til þess að mikill hluti stofnfjár-eigenda sæti uppi með háar skuldir hjá lánastofnunum sem mynduðust við kaup á handónýtum stofnfjárbréfum en stjórnendur sparisjóðsins höfðu eindregið hvatt fólk til lántöku vegna þessara kaupa.Samtökin telja að eftirlits-aðilar, Fjármálaeftirlitið

og Seðlabanki Íslands, hafi með glæfralegu aðgerð-arleysi, átt stóran þátt í því að óheilbrigð starfsemi sparisjóðanna hafi verið lát-in viðgangast alltof lengi.Stofnfjáraðilar í Spkef voru 1750 en þeir töpuðu 16,5 milljörðum á falli sparisjóðs-ins. Nálægt 100 manns mættu á fundinn og var stjórn samtakanna endurkjörin. Um 550 manns hafa greitt 2000 kr. árgjald til samtak-anna en forráðamenn þeirra vonast til að fleiri geri það. Fjármunirnir eru notaðir í rannsóknarvinnu tengdri falli Spkef. „Við höfum verið í eitt ár í þessari vinnu og lent á ýmsum veggjum, t.d. nánast verið hent út úr Fjármálaeft-irlitinu. Ef fleiri myndu borga gætum við ráðið lögfræðing í meira starf fyrir samtökin sem væri nauðsynlegt,“ sagði Þór-unn Einarsdóttir, formaður.

Nýr sjúkrabíll kominn til Brunavarna Suðurnesja

Brunavarnir Suður-n e s j a f e n g u a f -

hentan nýjan sjúkrabíl fyrr í mánuðinum frá Rauða krossi Íslands. Sjúkrabíllinn er af gerð-

inni Mercedes-Benz Sprinter og var bíllinn inn-réttaður og breytt af Sigurjóni Ólafssyni ehf. á Ólafsfirði að undangengnu útboði í samstarfi við Rauða krossinn og sjúkraflutningamenn.Sjúkrabíllinn er afturhjóladrifinn sem gerir hann aðeins lægri en eldri bílana og snarpari í snún-ingum. Undanfarin ár hafa verið notaðir bæði Ford Econoline og Benz Sprinter sjúkrabílar hjá BS og hafa verið skiptar skoðanir um hvor bílanna sé betri en sá nýi lofar mjög góðu. Sjúkrabílar hjá BS eru búnir öllum þeim fullkomnasta búnaði sem völ er á og eru í raun og veru slysa- og bráðastofa á hjólum.Sjúkrabíllinn hefur nú þegar verið tekinn í notkun og láta sjúkraflutningamenn hjá BS mjög vel af hon-um. [email protected]

Vilja nýta höfuðstól Framfarasjóðs Voga til

greiðslu skulda

Tillaga um að höfuð-stóll Framfarasjóðs

Sveitarfélagsins Voga verði nýttur til upp-greiðslu skulda A-hluta við sjóðinn, til greiðslu

framkvæmda árið 2011 og heimild til að draga á sjóðinn allt að 50 milljónum til að mæta rekstri árið 2011 var tekin til fyrri umræðu á bæj-arstjórnarfundi í Vogum í síðustu viku en fyrir fundinum lá álit sérfræðings um málið.Oddur Ragnar Þórðarson (H) lagði fram eftir-farandi tillögu:„Í stað þess að veitt sé heimild til að draga á Fram-farasjóðinn til að mæta rekstri árið 2011 krónur 87.600.000.- verði veitt heimild til að draga á sjóð-inn til að mæta kostnaði við framkvæmdir árið 2011. Skilgreindar verði framkvæmdir eftirfarandi: 62.000.000 kr. í framkvæmdir við tvo nýja fótbolta-velli. 20.000.000 kr. í framkvæmdir við fráveitu. 10.000.000 kr. í framkvæmdir við endurbætur á götum“.Tillaga Odds Ragnars var felld en tveir greiddu henni atkvæði, tveir sátu hjá og þrír greiddu at-kvæði á móti.Bergur Álfþórsson (E) lagði fram eftirfarandi bókun: „Ekki er hægt annað en að greiða atkvæði gegn tillögu Odds Ragnars Þórðarsonar þar sem hún er byggð á miklum misskilningi og eða van-þekkingu á rekstri sveitarfélagsins.Óskað er eftir heimildinni fyrir 87,6 milljónir til að gera upp skuld aðalsjóðs við Framfarasjóð, vegna framkvæmda og rekstrar árið 2010, en ekki árið 2011 eins og Oddur telur“.Tillögunni var vísað til seinni umræðu og kynn-ingar á íbúafundi. [email protected]

›› FRÉTTIR ‹‹

›› Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík haldin um helgina:

›› Fundur samtaka stofnfjáraðila Spkef:

Sjómanna- og fjöl-skylduhátíðin Sjóarinn

síkáti í Grindavík verður haldin með pompi og pragt um helgina en alls eru skráðir um 100 viðburðir. Í raun hefst hátíðin í kvöld, miðvikudag, með tónleikum og ljósmyndasýningu og síðan rekur hver viðburð-urinn annan. Mikið er lagt upp úr glæsilegri barnadag-skrá en að sögn Þorsteins Gunnarssonar upplýsinga-fulltrúa Grindavíkurbæjar er búist við fjölmenni á Sjóarann síkáta en um tutt-ugu þúsund gestir komu á hátíðina í fyrra.„Það er frábært að sjá hvað Grindvíkingar sjálfir eru orðnir öflugir að skreyta bæinn og hvet ég Suður-nesjabúa til að koma og sjá hvað bærinn er orðinn flottur. Bænum er skipt í fjögur lita-hverfi sem eru búin að halda fundi hvert í sínu lagi til að skipuleggja skreytingarnar og hátíðargönguna á föstudags-kvöldið. Þá fer hver ganga

af stað úr sínu hverfi og svo hittast þær allar við Ránargöt-una og ganga saman niður á hátíðarsvæðið við höfnina. Þetta er tilkomumikil sjón og stemmningin alveg frábær. Þar verða ýmis skemmtiatriði frá hverfunum og síðan taka við hljómsveitirnar Buffið og Ingó og Veðurguðirnir á bryggjuballi,“ segir Þorsteinn.Á laugardag og sunnudag er svo mikið um að vera um allan bæ þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Vönduð barnadag-skrá, skemmtiatriði, Sterkasti maður á Íslandi, leiktæki, handverksmarkaður, kapp-róður, ýmis íþróttamót, sigl-

ing, keppni í sjómanni og kerlingahlaupi, flökun og netagerð, ýmsir tónleikar og skemmtanir er meðal þess sem er á dagskrá en allar upplýsingar um hátíðina má sjá á www.sjoarinnsikati.is. Þá verða hefðbundin hátíð-arhöld Sjómanna- og vél-stjórafélags Grindavíkur á Sjómannadaginn á sunnudag-inn en Sjóaranum síkáta lýkur með stórtónleikum í íþróttahúsinu á sunnudags-kvöldið með Guðrúnu Gunnars og Ragga Bjarna í minningu Ellýjar Vilhjálms.Nýja tjaldsvæðið í Grindavík verður eflaust þétt setið en Þorsteinn bendir á að nægt

pláss sé á tjaldsvæðinu því það sé stækkað um meira en helming yfir Sjóarann síkáta. Nýtt þjónustuhús var tekið í notkun í síðustu viku sem gerir tjaldsvæðið eitt hið glæsilegasta á landinu.„Við leggjum áherslu á að þetta er fyrst og fremst sjó-manna- og fjölskylduhátíð. Ströng gæsla verður í bænum og á tjaldsvæðinu. Á sama tíma og verið er að leggja hátíðarhöld Sjómannadagsins niður víða um land eru Grindvíkingar hins vegar að bæta í hátíðina og gera hana sem glæsilegasta enda erum við stolt af því að vera sjávarútvegsbær og viljum með þessu heiðra sjómenn-ina sem halda þessu landi okkar á floti líkt og áður, eða eins og segir í textanum að sæmd er hverri þjóð að eiga sægarpa enn. Ég hvet sem flesta til að mæta og taka þátt í skemmtuninni með okkur Grindvíkingum,“ sagði Þorsteinn að endingu.

[email protected]

Sæmd er hverri þjóð að eiga sægarpa enn

Velferðarráðuneytið hefur til-kynnt að ekki verði af þeim

breytingum sem átti að gera á Nesvöllum vegna hjúkrunar-rýma. Lagt var fram svarbréf Vel-ferðarráðuneytisins frá 16. maí sl. ásamt umsögn Framkvæmda-sýslu ríkisins frá 28. apríl 2011 fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar þann 19. maí sl.Í framhaldi af því bókaði bæjar-ráð Reykjanesbæjar eftirfarandi: „Samningar við Nesvelli ehf. um nýtingu ónotaðra íbúða að Nes-völlum sem breytt yrði í 30 hjúkrunaríbúðir voru með fyrir-vara um samþykki Heilbrigðis-ráðuneytisins, nú Velferðarráðu-neytisins.Fyrir sex mánuðum síðan taldi ráðuneytið, eftir mat Fram-

kvæmdasýslu ríkisins, mögulegt að ganga að slíkum hugmyndum að ákveðnum skilyrðum upp-fylltum sem gera þyrfti á hús-næðinu. Unnið hefur verið að útfærslu þeirra breytingatillagna undanfarna mánuði. Stefnt var að því að taka íbúðirnar í notkun í lok þessa árs. Tillögur sem bæjar-félagið taldi mjög aðgengilegar voru svo kynntar ráðuneytinu í síðasta mánuði.Ráðuneytið, með vísan í umsögn Framkvæmdasýslu ríkisins, hefur nú svarað með tilkynningu um að það geti ekki fallist á að íbúðunum verði breytt í hjúkrunaríbúðir. Breytir Framkvæmdasýslan þar með fyrri skoðun sinni á fyrirliggj-andi hugmyndum. Sex mánaða undirbúningsvinna er þar með

ónýt. Um leið eru samningar við Nesvelli fallnir úr gildi.Upphafleg tillaga Reykjanes-bæjar miðaði að því að byggja 60-90 rúma hjúkrunaríbúðir að

Nesvöllum. Þar var gert ráð fyrir að flytja starfsemi af Hlévangi í þetta nýja húsnæði auk 30 nýrra hjúkrunarrýma, samtals 60-70 rými, auk framtíðarstækkunar. Við þetta fengist hagkvæmur og góður rekstrarkostur. Velferðar-ráðuneytið hefur hins vegar aðeins samþykkt að greiða fyrir nýbygg-ingu 30 rýma.Í ljósi afsvars ráðuneytisins nú telur bæjarráð brýnt að fá fram hvort ráðuneytið sé reiðubúið að endurskoða samning þannig að unnt sé að byggja stærra heimili með því að flytja núverandi starf-semi á Hlévangi þangað einnig. Þá er mikilvægt að fyrir liggi áætlun á leigugreiðslum frá ríkinu þar sem ljóst er að hjúkrunarheimili verður vart tilbúið fyrr en á árinu 2013.

Bæjarráð telur brýnt að fá strax úr þessu skorið og felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með ráðuneytis-stjóra hið bráðasta“.Í fundargerð Dvalarheimila aldr-aðra á Suðurnesjum er greint frá niðurstöðu velferðarráðuneytisins og sá bæjarráð Garðs ástæðu til að bóka eftirfarandi:„Bæjarráð Garðs harmar þann drátt sem verður á uppbyggingu hjúkrunarrýma á Nesvöllum vegna synjunar Velferðarráðuneytisins á þeim hugmyndum sem unnið hefur verið að sl. 6 mánuði og kostað bæði mikið fé og fyrirhöfn. Bæjarráð Garðs hvetur stjórn DS til þess að þegar verði sett í gang stefnumótunarvinna vegna fram-tíðarhúsnæðis DS,“ segir í bókun sem samþykkt var samhljóða.

EkkErt hjúkrunarhEimili á nEsvöllum›› Velferðarráðuneytið skiptir um skoðun:

Sorglegt hvernig fór fyrir Spkef-samtökin segja sparisjóðsstjóra og stjórnendur hafa innleyst stofnfé eftir bankahrun. „Alrangt,“ segir sparisjóðsstjóri

Page 3: 22.tbl_2011

3VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

NS

SO

N &

LE

’MA

CK

S

jl.i

s

SÍA

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

Landsbankinn lækkar skuldir yfi r 30 þúsund viðskiptavina

2 Við lækkum fasteignaskuldir 3 Við lækkum

aðrar skuldir

Þær aðgerðir sem nú eru kynntar koma til framkvæmda fyrir 1. október 2011. Viðskiptavinir sem áður voru með viðskipti sín hjá Spkef njóta allra sömu réttinda og aðrir viðskiptavinir Landsbankans. Skilmála og nánari upplýsingar um skuldalækkun Landsbankans má fi nna á heimasíðu okkar, landsbankinn.is, eða í næsta útibúi Landsbankans.

1 Við endurgreiðum 20% af vöxtum

Kynntu þér nýja skuldalækkun Landsbankans. Við lækkum skuldir einstaklinga og munu yfi r 30 þúsund viðskiptavinir njóta góðs af. Þetta gerum við í samræmi við þá stefnu okkar að styðja við endurreisn heimila og atvinnulífs. Við ætlum að vera Landsbankinn þinn.

Page 4: 22.tbl_2011

4 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

Sumarleg stemmning

mar

khon

nun.

is

Birt

með

fyrir

vara

um pr

entv

illur o

g myn

davíx

l.

Skráðu þig á póstlistann á www.netto.isMjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær - Borgarnes

Tilboðin gilda 2. - 5. júní eða meðan birgðir endast

Kræsingar & kostakjör

1.998kr/kg

áður 3.549 kr/kg

NautaiNNralæriferskt

kalkÚNaGrillsNeiðar kryddaðar

989kr/kg

áður 1.798 kr/kg

349kr/kg

áður 498 kr/kg

GræNmetisbuff 4 stk. 320 G fersk

45%afsláttur

44%afsláttur

28%afsláttur 30%

afsláttur

2.419kr/kg

áður 4.398 kr/kg

Nautarib-eyeferskt

GrísaGrillpiNNarm/GræNmeti 690 G

Vöfflumix450 g359 kr/pk.

299 kr/pk.

Nettó ReykjaNesbæFöstudaginn 14:00-19:00Laugardag 13:00-16:00

Vöfflu kynning

sprautu-rjómi250ml239 kr/stk.

199 kr/stk.

Ljúffengar

sveitasultur

á 20% afslætti 45%afsláttur

796kr/kg

áður 1.098 kr/kg

tómatar á stilk 500g 449kr/pk.

269 kr/pk.

40%afsláttur

Rauðir tommy santa, 250 g331 kr/pk.

199 kr/pk.

40%afsláttur

tómatar ísl 598 kr/pk.

419 kr/pk.

30%afsláttur

Plómu ísl.698 kr/pk.

489 kr/pk.

30%afsláttur

Page 5: 22.tbl_2011

5VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

Sumarleg stemmning

mar

khon

nun.

is

Birt

með

fyrir

vara

um pr

entv

illur o

g myn

davíx

l.

Skráðu þig á póstlistann á www.netto.isMjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær - Borgarnes

Tilboðin gilda 2. - 5. júní eða meðan birgðir endast

Kræsingar & kostakjör

1.998kr/kg

áður 3.549 kr/kg

NautaiNNralæriferskt

kalkÚNaGrillsNeiðar kryddaðar

989kr/kg

áður 1.798 kr/kg

349kr/kg

áður 498 kr/kg

GræNmetisbuff 4 stk. 320 G fersk

45%afsláttur

44%afsláttur

28%afsláttur 30%

afsláttur

2.419kr/kg

áður 4.398 kr/kg

Nautarib-eyeferskt

GrísaGrillpiNNarm/GræNmeti 690 G

Vöfflumix450 g359 kr/pk.

299 kr/pk.

Nettó ReykjaNesbæFöstudaginn 14:00-19:00Laugardag 13:00-16:00

Vöfflu kynning

sprautu-rjómi250ml239 kr/stk.

199 kr/stk.

Ljúffengar

sveitasultur

á 20% afslætti 45%afsláttur

796kr/kg

áður 1.098 kr/kg

tómatar á stilk 500g 449kr/pk.

269 kr/pk.

40%afsláttur

Rauðir tommy santa, 250 g331 kr/pk.

199 kr/pk.

40%afsláttur

tómatar ísl 598 kr/pk.

419 kr/pk.

30%afsláttur

Plómu ísl.698 kr/pk.

489 kr/pk.

30%afsláttur

Page 6: 22.tbl_2011

6 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.

Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000Páll Ketilsson, sími 421 0007, [email protected] Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected]þór Sæmundsson, [email protected] Einarsson, sími 421 0001, [email protected]íkurfréttir ehf.Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, [email protected]Þorsteinn Kristinsson, [email protected], sími 421 0011Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, [email protected] Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, [email protected] eintök.Íslandspósturwww.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is

Útgefandi:Afgreiðsla og ritstjórn:

Ritstjóri og ábm.:Fréttastjóri:

Blaðamaður:Auglýsingadeild:

Umbrot og hönnun:Auglýsingagerð:

Afgreiðsla:

Prentvinnsla:Upplag:

Dreifing:Dagleg stafræn útgáfa:

Ritstjórnarpistill Víkurfréttapáll ketilsson, ritstjóri

Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 9. júní. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða [email protected]

Á fundi stofnfjáraðila í Spari-sjóðnum í Keflavík í Fjöl-

brautaskóla Suðurnesja og einnig í grein Silju Daggar Gunnarsdótt-

ur, varabæjarfulltrúa Framsóknarflokks-ins í Reykjanesbæ á vef Víkurfrétta, vf.is, er undrast um þögn um málefni Spkef og aðdraganda hruns stofnunarinnar. Silja spyr í sinni grein hvers vegna svo lítið hafi verið fjallað um bankaránið mikla í Keflavík. Hvort það sé smæð samfélags-ins og innbyrðis tengsl, vanmáttur og áhugaleysi fjöl-miðla eða jafnvel pólitík?Fall Spkef er eitt stærsta mál sem komið hefur upp í samfélaginu á Suðurnesjum. Ríkissjónvarpið, eitt allra fjölmiðla, komst í trúnaðarskýrslu sem gerð var um starfsemi Spkef af KPMG og var afhent rétt fyrir bankahrun. RÚV fjallaði ítarlega um hana í fréttum í vetur. Fljótlega eftir þessa umfjöllun sem stóð í marga daga var í kjölfarið hætt við endurreisn Spkef. Árni Páll Árnason, viðskiptaráðherra sagði í viðtali að það hefði ekki verið í mannlegu valdi að endurreisa Spkef. Aðrir fjölmiðlar en RÚV hafa lítið fjallað um fall Spkef enda liggja upplýsingar um það ekki á lausu þar sem bankaleynd ríkir um einstök mál og málefni lántak-enda. Af þeim sökum hafa Víkurfréttir eins og marg-ir aðrir fjölmiðlar ekki getað fjallað um aðdraganda og ástæður hruns Spkef. Á einu ári hefur samtökum

stofnfjáreigenda Spkef ekki orðið mikið ágengt í upplýsingaöflun sinni m.a. vegna bankaleyndar sem ríkir á Íslandi. Um leið og ástæða er til að þakka fyrir störf samtakanna skiptir líka máli að forráða-menn þeirra vandi sig í upplýsingaöflun og komi réttum upplýsingum á framfæri. Það er ekki á bætandi að aðilar séu hafðir fyrir rangri sök í þessu erfiða máli.Það skal á engan hátt úr því dregið að fall Spkef er eitt stærsta áfall sem Suðurnesja-

menn hafa orðið fyrir og því er eðlilegt að spurt sé eftir upplýsingum um ástæður þess að svona fór. Sautján hundruð og fimmtíu stofnfjáreigendur töpuðu samtals 16,5 milljörðum. En það eru ekki bara Suðurnesjamenn sem töpuðu miklu fé því fólk í öðrum bæjarfélögum þar sem sparisjóðir höfðu sameinast Spkef er margt mjög illa statt. Þar er Hvammstangi helst nefndur en þar tóku margir aðilar stór lán til stofnfjárkaupa.Í gær var samþykkt þingsályktunartillaga á Alþingi um rannsókn á falli Spkef og sparisjóðanna. Nefnd-inni er ætlað að ljúka störfum fyrir 1. sept. 2012 og skila skýrslu fyrir þann tíma. Því miður hefur skipan rannsóknarnefndarinnar tekið allt of langan tíma því sl. haust var samþykkt að fara í gerð hennar. Hvað sem þeirri gagnrýni líður þá munu að rannsókn lokinni vonandi liggja fyrir upplýsingar um fall Spkef.

Páll Ketilsson, ritstjóri.

Afgreiðsla Víkurfrétta er opinalla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.

Athugið að föstudaga er opið til kl. 15.

Fall Sparisjóðsins og leyndin

vf.isvf.is

›› Sjómannadagurinn í Reykjanesbæ:

›› Körfuboltastjarna úr Keflavík gerist golfkennari:

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur með

stuttri dagskrá í Duushúsunum eins og verið hefur undanfarin ár. Dagskráin er unnin í sam-starfi nokkurra aðila og hefst með sjómannamessu á vegum Keflavíkurkirkju. Sr. Sigfús B. Ingvason, Arnór Vilbergsson og félagar úr kór Keflavíkurkirkju sjá um messuna og sjómannalög verða leikin og sungin með þátt-töku gesta. Hafsteinn Guðnason úr stjórn Bátafélagsins ásamt fleirum afhenda ný bátalíkön í Bátasafnið og líkanasmiðurinn

Grímur Karlsson segir sögur tengdar nýju bátunum. Sigrún Ásta Jónsdóttir safnstjóri Byggðasafns Reykjanesbæjar heldur erindi í máli og myndum um sjóminjar í eigu safnsins. Í lok dagskrár verður að venju lagður krans við minnismerki sjómanna fyrir tilstilli Skipstjóra- og stýrimannafélags Suðurnesja, Vélstjórafélags Suðurnesja og Verkalýðs- og sjómannafélags Suðurnesja. Eftir dagskrána er boðið upp á fiskisúpu á Kaffi Duus gegn vægu gjaldi.

Blómamarkaður Systrafélags Ytri-Njarðvíkurkirkju

Dagana 1.-3. júní er Systrafélag Ytri-Njarðvíkurkirkju með sinn árlega blómamarkað. Þetta er 30. árið sem

blómamarkaðurinn er haldinn og er hann orðinn fastur liður í hugum margra bæjarbúa. Mörgum finnst sumarið fyrst komið þegar Systrafélagskonur hefja sölu sína. Þetta er aðal fjáröflunarleið félagsins og vonumst við eftir að sem flestir komi og geri góð kaup. Eins og undanfarin ár verður m.a. boðið upp á sumarblóm, rósir og runna. Að þessu sinni ætlum við að byrja markaðinn á miðvikudegi. Hann verður við kirkjuna eins og áður og er opnunartím-inn að þessu sinni:

Miðvikudagur kl. 17-21, fimmtudagur kl. 13-17og föstudagur kl. 14-17.Alltaf heitt kaffi á könnunni.

Með fyrirfram þökk fyrir góðan stuðning,Systrafélag Ytri-Njarðvíkurkirkju

Segja Suðurnesin heppilegan stað fyrir Landhelgisgæsluna

Beiðni um umsögn frá Samgöngunefnd Alþingis um þings-ályktunartillögu um flutning Landhelgisgæslunnar til Reykja-

nesbæjar var tekin fyrir á síðasta bæjarráðsfundi í Grindavík. Bæj-arráð Grindavíkur tekur undir með flutningsmönnum að á Suður-nesjum er afar heppileg aðstaða fyrir starfsemi Landhelgisgæslunnar til framtíðar, ekki síst ef þau verkefni sem áður heyrðu undir Varn-armálastofnun verði falin Landhelgisgæslunni.Á svæðinu er húsnæði, flugbrautir, góð hafnaraðstaða og stoðkerfi sem fullnægir þörfum Landhelgisgæslunnar að öllu leyti. Frá Suðurnesjum er stutt á aðal starfssvæði Landhelgisgæslunnar, hafsvæðið í kringum Ísland. Með flutningi skapast aðstæður til að sameina alla starfsemi Landhelgisgæslunnar til framtíðar á einum stað.Bæjarráðið bókar jafnframt eftirfarandi:Bæjarráð Grindavíkur telur að hagkvæmnisathugun vegna flutnings starfsemi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja sé mjög takmörkuð og nái engan veginn að varpa ljósi á kosti og galla þess að Landhelgis-gæslan verði flutt. Bæjarráð telur mikilvægt að kláruð verði sú vinna að skoða hagkvæmni flutninganna þannig að ráðamenn geti tekið upplýsta ákvörðun um þetta mikilvæga mál.

Sáttur við opnunmótorsmiðju í Vogum

„Ég vil lýsa ánægju minni með að bæjarráð skuli ætla að samþykkja hús-næði undir mótorsmiðju frá og með 1. september næstkomandi. Málið kom til okkar sem nú eru í frí-stunda- og menningar-nefnd frá síðustu nefnd

og höfum við verið að vinna að því í allan vetur. Nú er hægt að setja aukinn kraft í málið og vonandi hægt að starta verkefninu í haust. Það er von mín að þetta verkefni geti orðið hluti af öflugu forvarnastarfi hér í bænum,“ segir Björn Sæbjörnsson, bæjarfulltrúi í Vogum í bókun við fundargerðir bæjarráðs Voga frá 113. og 114. fundum ráðsins.

Dagskrá í Duushúsum

6 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

„Nýja starfið er mjög spennandi og leggst vel í mig. Þetta er bæði tækifæri og áskorun í senn,“ segir Erla Þorsteinsdóttir, nýr-áðin golfkennari hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Hún tekur við af Kar-en Sævarsdóttur nú í vor.Golfkennarastarf Erlu hjá GS ber reyndar stærri titil, íþróttastjóri, því hún hefur yfirumsjón með allri þjálfun hjá félaginu. Erla var lengi einn af lykilmönnum Keflavíkur í kvennakörfunni og vann marga titla með félaginu. Hún hefur þó frá unga aldri einnig leikið golf en

ákvað svo að fara í golfkennaranám sem kennt er hjá PGA golfkennara-samtökunum á Íslandi.Hvernig er starfi íþróttastjóra GS háttað og hvernig sérðu fyrir þér framtíðina hjá GS?„Starf íþróttastjóra GS er margþætt. Ég sé um barna- og unglingastarfið ásamt afreksstarfinu fyrir klúbbinn. Þar að auki verð ég með námskeið og einkakennslu fyrir félagsmenn. Það verður margt í boði í sumar eins og t.d. námskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára, námskeið fyrir byrjendur, golfnámskeið fyrir kon-

ur ásamt kennslu í stutta spilinu og margt fleira.Þann 2. júní kl. 14.00-16.00 verður Golfklúbbur Suðurnesja með þá nýjung að hafa opinn dag fyrir börn og unglinga í 5.-10. bekk. Þarna er kjörið tækifæri fyrir áhugasama að kynna sér golfíþróttina. Það er mikill hugur í GS mönnum, áhug-inn er mikill og mikil gróska í þess-ari skemmtilegu íþrótt. Það verður nóg um að vera í Leirunni í sumar,“ segir Erla sem mun auk kennsl-unnar leika golf þegar tími gefst til.

Erla Þorsteinsdóttir,

íþróttastjóri Golfklúbbs

Suðurnesja:

Mikill áhugi og gróska í Leirunni

Page 7: 22.tbl_2011

7VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

NÁM OG HEIMILI63.000 KR. Á MÁNUÐI!

Verðið miðast við skólagjöld í B.Sc. námi í tæknifræði og leigu á 3ja herbergja fjölskyldu- eða paraíbúð.

UMsóKNaRfREstUR ER tIL 6. júNí. Nánari upplýsingar er að finna á www.keilir.net

Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka og byggist

upp á fjórum mismunandi skólum: Háskólabrú, Heilsuskóla, Orku- og tækniskóla og

Flugakademíu. Komdu í nútímalegt, metnaðarfullt og skemmtilegt nám. Komdu í Keili.

HEILsUsKóLINNHeilsuskóli Keilis býður upp á fjölbreytt nám í þjálfun og á sviði heilsu-, heilbrigðis- og íþróttafræða.

ÍAK EINKAÞJÁLFUN ÍAK HÓPÞJÁLFUNÍAK ÍÞRÓTTAÞJÁLFUN

KEILIR ER GóÐUR KOstUR

HÁsKóLabRúINHáskólabrú Keilis býður upp á nám fyrir þá sem hafa ekki lokið stúdentsprófi. Að loknu námi uppfylla þeir inntökuskilyrði í háskóla.

HEILsUsKóLINNHeilsuskóli Keilis býður upp á fjölbreytt og hagnýtt námí þjálfun. Mikil áhersla lögð á verklega kennslu samhliðabóklegri.

ÍAK einKAþjálfunÍAK ÍþróttAþjálfunÍAK Hópþjálfun

fLUGaKadEMíaNflugakademía Keilis leggur áherslu á nútímalega kennsluhætti og flugfloti Keilis er bæði nýstárlegur og hátæknilegur.

einKAflugAtVinnuflugfluguMferðArStjórnflugþjónuStA

ORKU- OG tæKNIsKóLINNOrku- og tækniskóli Keilis býður upp á fjölfaglegt og hagnýtt tæknifræðinám á háskólastigi. námið fléttar saman atvinnutengdum verkefnum og bóklegu námi.

OrKu- Og uMHVerfiStæKnifræðiMeKAtrónÍK tæKnifræðitrOMpið VerKefnA- Og ViðBurðAStjórnun

PiPa

r\TB

Wa

• S

ía •

111

141

Page 8: 22.tbl_2011

8 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

Um leið og við óskum Suðurnesjamönnum, KIA og Mercedes-Benz eigendum á Suðurnesjum innilega til hamingju með nýju umboðin bjóðum við þér á sérstaka opnunarhátíð í húsakynnum K. Steinarssonar ehf. að Holtsgötu 52, Reykjanesbæ, laugardaginn 4. júní, frá kl. 12.00-16.00.

Kynning á Mercedes-Benz bílumEinnig verður boðið upp á reynsluakstur á Mercedes-Benz E-Class, B-Class metan og GLK sportjeppanum.

7 ára ábyrgðá öllum nýjum KIA bílum

KOMDU OG REYNSLUAKTUMARGFÖLDUM VERÐLAUNABÍLUM

NÝ SÖLU- OG ÞJÓNUSTUUMBOÐ ÖSKJU Á SUÐURNESJUM

Eigum bíla til afgreiðslu strax!

Kia Sportage 2,0, dísil, fjórhjóladrifinn

Verð frá 5.490.000 kr. Kia Sportage 1,6, bensín, framhjóladrifinn

Verð frá 4.290.000 kr.

www.kia.isK. Steinarsson ehf. | Holtsgötu 52 260 Reykjanesbæ | Sími 420 5000 | ksteinarsson.is

Bílar & hjól | Njarðarbraut 11d 260 Reykjanesbæ | Sími 421 1118 | bilaroghjol.is

Söluumboð Þjónustuumboð

Sími: 420-5000

K. Steinarsson ehf. er nýtt söluumboð Öskju á Suðurnesjumog Bílar & hjól nýtt þjónustuumboð.

Grillaðar pylsur, kaffi og kleinur í boði. Allir hjartanlega velkomnir!

Boðið verður upp á reynsluakstur á Kia Sorento, Kia Sportage, Kia cee’d og Kia cee’d Sporty Wagon.

Page 9: 22.tbl_2011

9VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

Um leið og við óskum Suðurnesjamönnum, KIA og Mercedes-Benz eigendum á Suðurnesjum innilega til hamingju með nýju umboðin bjóðum við þér á sérstaka opnunarhátíð í húsakynnum K. Steinarssonar ehf. að Holtsgötu 52, Reykjanesbæ, laugardaginn 4. júní, frá kl. 12.00-16.00.

Kynning á Mercedes-Benz bílumEinnig verður boðið upp á reynsluakstur á Mercedes-Benz E-Class, B-Class metan og GLK sportjeppanum.

7 ára ábyrgðá öllum nýjum KIA bílum

KOMDU OG REYNSLUAKTUMARGFÖLDUM VERÐLAUNABÍLUM

NÝ SÖLU- OG ÞJÓNUSTUUMBOÐ ÖSKJU Á SUÐURNESJUM

Eigum bíla til afgreiðslu strax!

Kia Sportage 2,0, dísil, fjórhjóladrifinn

Verð frá 5.490.000 kr. Kia Sportage 1,6, bensín, framhjóladrifinn

Verð frá 4.290.000 kr.

www.kia.isK. Steinarsson ehf. | Holtsgötu 52 260 Reykjanesbæ | Sími 420 5000 | ksteinarsson.is

Bílar & hjól | Njarðarbraut 11d 260 Reykjanesbæ | Sími 421 1118 | bilaroghjol.is

Söluumboð Þjónustuumboð

Sími: 420-5000

K. Steinarsson ehf. er nýtt söluumboð Öskju á Suðurnesjumog Bílar & hjól nýtt þjónustuumboð.

Grillaðar pylsur, kaffi og kleinur í boði. Allir hjartanlega velkomnir!

Boðið verður upp á reynsluakstur á Kia Sorento, Kia Sportage, Kia cee’d og Kia cee’d Sporty Wagon.

Page 10: 22.tbl_2011

10 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

Uppáhalds:Matur:Subway

Bíómynd:Rio

Sjónvarpsþáttur:How I Met Your Mother

Veitingastaður:Chucky Cheese

Tónlist:Bruno Mars

Vefsíðan:YoutubeÍþrótt:

KörfuboltiÍþróttamaður:

Zach Randolph, Chris Bosh og Ryan Andersen

Þetta eða hitt ?Kók eða Pepsi?

Pepsi er miklu betra!Morgunblaðið eða

Fréttablaðið? Frétta-blaðið því það er frítt

Hamborgari eða Pizza? Pizza því hún er betri

Vatn eða Mjólk?Mjólkin því hún er holl

KR eða Keflavík?Keflavík, Jesús hatar KR

Tölvuleikir eða Sjónvarp?Tölvuleikir þeir eru

skemmtilegriLucky Charms eða Cocoa Puffs?

Lucky Charms, Coca Puffs er vont

Maggi Mix eða Nilli?Nilli því hann er meistari

Snickers eða Mars?Mars því það eru ekki hnetur í því

Spurning frá seinasta grunn-skólanema vikunnar:

Ferðu til útlanda í sumar?Nei, var að koma frá Orlando

lokaspUrningar:Hvað ertu að hugsa núna?

Um tölvuleikiHvað langar þig að verða í framtíðinni?

Frægur körfuboltaleikmaðurHver eru helstu áhuga-

málin þín?Körfubolti

Hvað viltu spyrja næsta grunn-skólanema vikunnar að?

Hvor staðnum væriru til í að búa á, Egilstöðum eða Ísafirði?

grUnnVikUnnar

skÓlaneMi

helgi Jónsson5. BEKK NJARÐVÍKURSKÓLA

UMsJÓn:páll orri pálsson

„Við erum tólf sundvinir, sem höf-um verið að synda saman hérna en ég hef verið með þeim með hléum, í svona sirka 13 ár. Að vísu hef ég stundum mætt seinna á morgn-ana en þau og lendi þá með næsta sundhópi og þar á ég líka góða vini. Það er alltaf svo skemmtilegt að koma í sund. Maður syndir og á svo góða stund á eftir með fólkinu í heita pottinum. Mér finnst sund vera allra meina bót, það heldur manni líka gleði megin í lífinu, því sundið styrkir bæði líkamann og andann“, segir Fríða, sem heitir fullu nafni Sigurfríð Rögnvalds-dóttir, fædd og uppalin í Keflavík.

Fjölbreyttur lífsferillFríða hefur fengist við margt um dagana. Margir muna eftir henni úr gamla Sparisjóðnum í Keflavík en þar vann hún í sautján ár. Í dag er hún einna þekktust fyrir glæsilegu málverkin sín. En hún lærði upp-haflega tannsmíði og vann hjá Ein-ari Magnússyni, tannlækni við það

og einnig hjá Magnúsi Torfasyni. Fríða var einnig fararstjóri á Ít-alíu en hún er ágætis málamann-eskja, sem er ekki skrýtið, því bæði tungumálafærni og listrænir hæfi-leikar, tengjast jú hægra heilahveli.Fríða hefur teiknað síðan hún man eftir sér og var alltaf heilluð af myndlist. Hún vildi verða listakona en mamma hennar taldi hana af því á sínum tíma, því þá var vonlaust fyrir konur að ætla að lifa eingöngu af list sinni. Þegar hún var ung, fór hún í húsmæðraskóla, því mömmu hennar fannst hún yrði einnig að kunna eitthvað hagnýtt til heimilis-ins. Það var alls ekki ónýtt nám, því Fríða segist hafa lært margt þar.„Ég hef teiknað síðan ég man eftir mér. Þegar ég var átta ára, fékk ég verðlaun í skólanum fyrir teikn-ingu. En ég fór aldrei í formlegt nám hérna heima, heldur í Brussel, þar sem ég bjó á þriðja ár. Ég byrj-aði á sínum tíma með Baðstofu-hópnum hjá Erlingi Jónssyni en þegar ég flutti til Brussel, ásamt

manninum mínum heitnum, Axel Birgissyni, þá fór ég í tveggja ára myndlistarnám og það var frábær tími. Ég hlakkaði til að fara í skól-ann á hverjum morgni, þetta var svo spennandi allt saman. Þar byrj-aði ég fyrst að nota steypu í mynd-irnar mínar,” segir Fríða.

Áhorfendur skapamyndirnar líka

Fríða hefur verið dugleg að sýna á Ljósanótt í Reykjanesbæ, við miklar vinsældir. Hún hefur málað margar myndir, sem tengjast sjómennsku og saltfisk. Myndirnar eru oftast af andlitslausu fólki. En hvers vegna að mála saltfisk og fólk án andlits?„Þegar ég sýndi fyrstu myndirn-ar mínar í Saltfisksetrinu góða í Grindavík, þá rakst ég á gamla ljósmynd þar niðri þegar ég var að skoða húsið. Myndin var af manni að vaska saltfisk en þessi ljósmynd reyndist vera af afa mínum. Mér fannst þetta svo skemmtileg til-viljun, að ég ákvað að tengja mál-

verkin betur við afa minn og mála myndir af fólki með saltfisk. Fólk hreifst svo af þessum myndum og bað um fleiri, þannig að ég fór ósjálfrátt að mála meira af mynd-um, sem tengdust saltfiski, fólki og fiskverkun. Þetta kom bara svona til mín. Stundum gerist það að eitt-hvað myndefni dettur til manns, kemur bara óvart. Svo vil ég hafa fólkið á myndunum án andlits, því þá geta áhorfendur sjálfir full-komnað andlitin. Ég vil að þú t.d. sjáir sjálfan þig í andlitum fólksins á myndunum. Mér finnst fólk eiga léttar með að tengja myndirnar sjálfu sér eða einhverjum, sem það þekkir, þegar ég mála þær svona“, segir hún brosandi og það er alltaf stutt í brosið hennar Fríðu.

Sjómaður dáðadrengurFríða var nýbúin að sýna í Vest-mannaeyjum, þegar félagsmenn Listatorgs höfðu samband við hana og báðu hana að sýna í salnum í Sandgerði fyrstu helgina í júní. Hún tók erindinu vel og opnar sýn-ingu á Sjómannadagshelgi. Það á einkar vel við að sýna myndirnar hennar Fríðu á Sjávarrokkshátíð Listatorgs, á hátíð sem er til heið-urs sjómönnum, sjónum og sjáv-arfangi. Fríða nefnir sýningu sína Sjómaður dáðadrengur en ein myndanna á sýningunni heitir ein-mitt þessu nafni.Fríða býður alla gesti hjartanlega velkomna á sýninguna sína í Sand-gerði á Listatorgi, sem opnar laug-ardaginn 4. júní klukkan 13:00 og stendur til sunnudagsins 12. júní.Viðtal okkar Fríðu fór nú upp úr sundlauginni og leiddist næst yfir á vinnustofu Fríðu, sem er í iðnaðar-hverfi nálægt Helguvík. Þangað var gaman að koma. Fríða er á fullu að undirbúa næstu sýningu, mála fleiri myndir og gera klárt. Þennan tiltekna dag, sem viðtalið fór fram, ætlaði hún einnig að taka þátt í golfmóti en það veitir henni mikla ánægju þegar vel viðrar.Fríða lætur sér ekki leiðast, hún syndir inn í nýjan dag á hverjum morgni, málar fallegar myndir af lifandi fólki, spilar golf og nýtur þess að hitta góða vini þess á milli. Það þarf hugrekki til að fylgja draumum sínum eftir, það hug-rekki hefur Fríða og ræktar með gleði.

Viðtal: Marta Eiríksdóttir.

Hún elskar að synda

Við mæltum okkur mót á uppáhalds-

staðnum hennar Fríðu, í sundfötum báðar tvær, ofan í útisundlauginni í Keflavík en þangað mætir Fríða á hverj-um morgni og syndir hressilega, fer síðan í heita pottinn til að hitta sundvini sína.„Já, ég get ekki án sunds-ins verið, þetta er allra meina bót og kemur mér af stað inn í nýjan dag. Ég spila líka golf en það er ekki eins ómissandi fyrir mig og sundið,“ segir Fríða glaðbeitt og hress ofan í heita pott-inum. Þennan tiltekna morgun lenti Fríða í óvæntri afmælisveislu eins sundvinar síns, sem varð fimmtugur og þá er siður innan sundhóps-ins, að bjóða upp á rjómatertu á stórafmæli.

Fríða Rögnvalds, myndlistarkona opnar sýningu á Sjómannadaginn í Sandgerði

Page 11: 22.tbl_2011

11VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

Óskum sjómönnum til hamingju með daginn

Reykjaneshöfn

-er svarið

Umsóknir og nánari upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk. Umsækjendur eru beðnir um

að senda umsókn ásamt ferilskrá á netfangið [email protected].

Nánari upplýsingar veitir Íris Sigtryggsdóttir í síma 522 3260.

Já óskar eftir traustum og kraftmiklum starfsmönnum. Hjá Já starfar

samheldinn hópur hæfileikaríks starfsfólks sem hefur gildin Traust, Hraða,

Fróðleiksást, Nýsköpun og Umhyggju að leiðarljósi í öllum störfum sínum.

118 ja.is Símaskráin

Já, okkur vantar starfsfólkHlutverk þjónustufulltrúa er að veita viðskiptavinum upplýsingar í dagsins önn, bæði hratt og örugglega.

• Upplýsingar um símanúmer og heimilisföng innanlands og erlendis• Leiðbeiningar um hvernig á að finna heimilisföng eftir kortum• Upplýsingar úr Gulu síðunum• Skiptiborðssvörun• Annað tilfallandi

Auglýst er eftir þjónustufulltrúum í sumarstörf með möguleika á framtíðarstarfi í starfsstöð okkar í Reykjanesbæ.

Til þess að geta svarað hratt og örugglega þurfa þjónustufullrúar að búa yfir almennri þekkingu og læra vel á þau upplýsinga- og símkerfi sem notuð eru. Almenn tölvuþekking er mikilvæg, enskukunnátta er kostur. Um er að ræða vaktavinnu – 100% starfshlutfall og þurfa viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Við hvetjum karla jafnt sem konur til þess að sækja um.

EN

NE

MM

/ S

ÍA /

NM

46

98

2

Page 12: 22.tbl_2011

12 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

Ef þú varst ekki þarna á laugardaginn, þá misstirðu af skemmtilegum hug-myndum, sem komu frá frumkvöðlum, fólki sem er að skapa þér og mér tæki-færi til að lifa betra mannlífi. Þetta er fólkið, sem er að búa til menningu en auðvitað er allt sem maðurinn skapar í raun menning. Menning er ekki bara eitthvað snobb, notað á tyllidögum. Menning er alla daga að fæðast og gerist allt í kringum okkur mannfólkið.

TEXTI marta eiríksdóttir HiLmar BraGi BÁrÐarsON OG LJósmYNdasaFN VíkUrFrÉtta

Það þarf fólk eins og þig

Menning skiptirokkur öll máli

Jæja en málþingið var stórmerki-legt, já það var það. Fólkið, sem mér fannst áhugaverðast var okkar fólk af svæðinu, já þessir Suður-nesjamenn voru heillandi. Það er einhver rosa kraftur í þessu fólki og margt mjög skapandi að gerast eða alveg að fara að gerast. Það eru margir að sjóða hugmyndir í pottum sínum, enda er framtíðin þeirra er þora að skapa sér tæki-færi, það er bara þannig.Gamla Keflavík rifjaðist upp fyrir manni, þegar Einar Falur Ingólfs-son, landsfrægur keflvískur ljós-myndari, hélt lifandi framsögu um gamla bæinn sinn og hvers hann saknaði úr menningaruppeldi sínu í Keflavík en það voru helst sjónlist-ir. Þá var ekki kominn þessi merki-legi sýningarsalur, Suðsuðvestur, sem hann sagði í raun vera stór-virki á landsvísu. Tónlistaruppeldi fékk hann þó óspart af og nefndi hljómsveitina sína, sem æfði í gömlu þvottahúsi á Suðurgötunni. Með honum í hljómsveit voru ekki

ómerkari menn en Jóhann Smári og Bjarni Thor, sem fengu þó ekki að syngja þá, því þeir þóttu ekki nógu góðir. Guðmundur Karl, sem nú er prestur í Kópavogi, var söngv-ari sveitarinnar og hinir hafa núna meikað það sem ótrúlega magnaðir einsöngvarar, báðir með hyldjúpa bassarödd.En svona er þetta, maður veit aldrei hvað maður er með í höndunum þá stundina. Tíminn leiðir ævintýrin og miklu mennina í ljós.

Bítlabærinn vagga tónlistarKeflavík iðaði af tónlist á árum áður og gerir í raun enn. Héðan hefur sprottið landsfrægt tónlistar-fólk alla tíð. Jónatan Garðarsson kom einmitt með fróðlegt erindi um þetta, um allar hljómsveitirnar og alla söngvarana héðan af Suður-nesjum, sem á árum áður skemmtu öllum landsmönnum með tónlist.Hann nefndi einnig nýjar hljóm-sveitir en gleymdi að minnast á klassíkina og nýju óperusöngv-arana, sem koma héðan. Enn er mikil gerjun í gangi hérna og nú

bráðum líka meira í klassíkinni. Merkilegir hlutir eru í undirbún-ingi á óperusviðinu, Jóhann Smári sagði okkur það, svo að eftir verður tekið, ekki bara á landsvísu heldur á heimsvísu.Jónatan Garðarsson nefndi allt það sem hann sæi fyrir sér í ferðabrans-anum fyrir svæðið út frá tónlist fyrri ára og sá mörg stór tækifæri fyrir Suðurnesin í því samhengi. Hann vildi endilega tengja okkur meira við veru hersins, hafa hérna Kanadaga en það skal tekið fram að Jónatan er ekki alinn upp í Kefla-vík. Ég er ekki viss um að gamlir Keflvíkingar séu sammála honum, með að svoleiðis dagar kæmu Keflavík á kortið? Þeir gerðu það ekki í gamla daga. Það var nefnilega þannig þá, að við vorum oftast illa stimpluð vegna veru Kanans hérna. Það þótti ekki fínt að búa í Keflavík vegna nálægðar við Kanann en það þykir kannski fínna núna, þegar fólk sér menningarverðmætin, sem sköpuðust af veru þeirra. Hér var mikil gerjun á tónlistarsviðinu vegna kanaútvarpsins og sjónvarps seinna meir.Kaninn leiddi marga góða hluti inn í keflvískt samfélag t.d. á sviði tón-listar. En ég man hvað við stelpurn-ar urðum alltaf að réttlæta keflvíska tilveru okkar, þegar borgarbúar spurðu okkur hvort við værum mikið á Vellinum. Nei, það voru nú frekar stelpurnar úr höfuðborg-inni sem sóttu í þá, okkur þótti það ekkert sérstaklega fínt að vera við-loðandi Kanann og fá þannig á sig kanamellu stimpilinn.Með auknum þroska og af því að fjarlægðin gerir fjöllin blá, þá gæt-um við einhvern tímann búið til Kanadaga en þeir þurfa þá kannski fyrst að vera haldnir í Reykjavík

með Kanaútvarpinu hans Einars Bárðar og öllu hans reykvíska staffi, sem þekkti þó ekki hina einu sönnu kanaútvarps stemningu, sem við ól-umst upp við hérna. Kannski? Það þarf nefnilega stundum að meika það annars staðar og þá sést hversu merkilegt eitthvað er. Svona erum við mannfólkið. Skrýtin. Let´s face it!

Landnámssetrið með góð fjölmiðlatengsl

Það voru nokkrir landsþekktir gestafyrirlesarar staddir þarna (svona rétt á meðan þeir fluttu er-indi sín), og komu færandi hendi með hugmyndir til okkar Suður-nesjamanna, varðandi svæðið okkar hérna og ferðamennsku.Kjartan Ragnarsson leikari, talaði hratt og mikið en hann kom á fót Landnámssetrinu í Borgarfirði ásamt eiginkonu sinni. Þau hjónin fengu þessa frábæru hugmynd, sem bæjaryfirvöld í Borgarnesi, gripu á lofti með þeim og unnu að því að gera Borgarfjörð að lifandi nútíma virki Egils Skallagrímssonar og Ís-

lendingasagna, þeirra sem tengjast svæðinu. Draumar og hugmyndir þeirra í Borgarfirði halda áfram að vaxa, því nú vilja þeir opna mið-aldaböð, þar sem þeir nýta heita vatnið úr jörðu Borgarfjarðar. Snilldarhugmynd, þar sem álfar og fleiri vættir fá að vera með í lands-laginu í kringum heitu böðin. Þetta á eftir að slá í gegn, það er ég viss um.Kjartan sagðist sjálfur ekki vera neinn hagfræðingur og þess vegna leysir hann ekki reikningsdæmin en hann og konan hans eru í flæði hugmynda, sem þau koma í fram-kvæmd með velviljuðum bæjar-yfirvöldum á staðnum. Landnáms-setrið er að gera það mjög gott á landsvísu en einnig á heimsvísu, því margir erlendir ferðamenn sækja líka staðinn.

Eldhugar eru alls staðar!Í lokin nefndi einn aðstandenda ráðstefnunnar, að Suðurnesin þyrftu að fá einn svona eldhuga eins og Kjartan Ragnarsson til að rífa upp Víkingasafnið okkar hérna.

• Málþing um menningu á Suðurnesjum í Duushúsum

- fyrir fólk eins og migMenning þrífst þegar fólk tekur þátt. Það þarf fólk til að skapa menningu. Ef engin mætir á viðburð, þá

gerist ósköp lítið. Gaman hefði verið t.d. að byrja eftirfarandi grein svona;Það var troðfullt út úr dyrum á málþingi um menningu, sem fram fór í Bíósal Duushúsa sl. laugardag. Nú missa sumir kannski hjartslátt og hugsa með sér, að þeir hafi misst af einhverju stórmerkilegu. Það er nefnilega oft þannig að þegar fólk sér að annað fólk er að fara eða gera eitthvað, þá vill það líka vera með. Fólksfjöldi er nefnilega smitandi. Ef þú sérð t.d. marga inni á einhverjum veitingastað, þar sem þú þekkir lítið til, þá ferðu þangað inn því allir hinir eru þar. Þú treystir því að staðurinn sé góður, því þarna er svo mikið af fólki. Skrýtin erum við.Ókey þú misstir ekki af fólksmergð í þetta sinn en þú misstir samt af miklu. Ef þú varst ekki þarna á laugar-daginn, þá misstirðu af skemmtilegum hugmyndum, sem komu frá frumkvöðlum, fólki sem er að skapa þér og mér tækifæri til að lifa betra mannlífi. Þetta er fólkið, sem er að búa til menningu en auðvitað er allt sem maðurinn skapar í raun menning. Menning er ekki bara eitthvað snobb, notað á tyllidögum. Menning er alla daga að fæðast og gerist allt í kringum okkur mannfólkið.Þeir sem töluðu á málþinginu voru lifandi fólk með skemmtilegar hugmyndir til að bæta menningarlíf okkar allra. Mæting hefði mátt vera betri, það verður að segjast eins og er.

MYNDIR

LJÓSM

YND: ELLERT G

RÉTARSSON

MENNINGARVERKEFNIÐ HLAÐAN Í VOGUM. JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON ÓPERUSÖNGVARI.

BÍTLABÆRINN ER VAGGA TÓNLISTARINNAR.

Page 13: 22.tbl_2011

13VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

Brimsölt og glæsilegdagskrá í Grindavík fyrir

alla fjölskylduna:Föstudagur:- Götugrill um allan bæ kl. 18.Grindavíkurbæ hefur verið skipt upp í fjögurhverfi þar sem hvert þeirra hefur sinn lit og sittþema.- Kl. 20:00 Litaskrúðganga úr hverfunumfjórum að hátíðarsvæðinu við Hafnargötu.- Bryggjuball á hátíðarsvæðinu við Kvikunameð Ingó og Veðurguðunum og Buffinu.

Laugardagur:Mikið um að vera á hátíðarsvæðinu allandaginn fyrir fjölskylduna.- Skemmtidagskrá og leiktæki fyrir börnin- Sterkasti maður á Íslandi- Uppákomur, tónleikar og skemmtiatriði- Sýningar- Íslandsmót í flökun og netagerð- Handverksmarkaður- Reykköfun, veltibíll

Sunnudagur(Sjómannadagur):Mikið um að vera á hátíðarsvæðinu allandaginn fyrir fjölskylduna.- Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkurheldur sjómannadaginn sjálfan hátíðlegan meðglæsilegri dagskrá.- Tónleikar, uppákomur, barnadagskrá ogmargt fleira.

Sjá nánar áwww.sjoarinnsikati.is

Sjóarinnsíkáti3. - 5 . jún í 20 1 1

SJOARINNSÍKÁTI

auglysing:Layout 1 30.5.2011 16:18 Page 1

Erindi Skipulagsstofnunar vegna fiskimjölsverksmiðju

í Helguvík ásamt umsögn yfir-verkfræðings var til umfjöllunar bæjarráðs Reykjanesbæjar í lið-inni viku. Þar kom fram að aðal-skipulag Reykjanesbæjar gerir ráð fyrir iðnaði á þessu svæði og hefur fiskimjölsverksmiðjan

verið starfrækt þarna í um 10 ár. Fjarlægð í næstu íbúabyggð er um 1500 m og því ekki hætta á áhrifum á hana, enda hafa um-kvartanir ekki borist á þessum árum.Breytingar á tækjabúnaði til aukningar afkasta úr 900 tonnum á sólarhring í 1200 tonn hefur

minnkað olíunotkun um 50% á unnið tonn og innlendir orku-gjafar, sem valda minni mengun, eru meira nýttir.Að framansögðu þá telur bæjar-ráð Reykjanesbæjar að ekki sé þörf á því að fara í mat á umhverf-isáhrifum vegna ofangreindrar framkvæmdar.

En ég hélt að allir vissu hvers vegna Landnámssetrinu hefur vegnað svona vel. Það er jú auðvitað að einhverju leyti, vegna Kjartans en einnig vegna góðs fréttaflutings af svæðinu í fjölmiðlum landsmanna.Það vantar alls ekki eldhuga hér fyrir sunnan, það er til nóg af þeim hérna. Það sem okkur vantar miklu frekar, er ríkisrekinn fjölmiðla-fulltrúi, eins og Gísla Einarsson, sem hefur greiðan aðgang að fjöl-miðli allra landsmanna. En Gísli hefur verið mjög duglegur að markaðssetja heimasvæðið sitt, Borgarfjörð.Það er þessi fjölmiðlatenging sem opnar fyrir meiri umfjöllun um til-tekið landssvæði. Það er t.d. enginn fréttaritari fyrir alla tuttugu þúsund íbúa Suðurnesja. Landshluti okkar er ávallt talinn innan höfuðborgar-svæðisins en er það þó alls ekki.Við eigum að krefjast fréttaritara hingað frá ríkisfjölmiðlum, sem mundi búa á svæðinu. Það er nefni-lega þannig, að ef það birtist ekki í útvarpi eða sjónvarpi, þá verður það aldrei eins merkilegt, þó það sé samt stórmerkilegt. Nei, okkur vantar ekki Kjartan Ragnarsson hingað, okkur vantar jákvæða um-fjöllun frá suðurneskum fréttarit-ara í föstu starfi hjá RÚV, sem talar um allt það góða menningarstarf, sem er að gerast hérna. Þá komast Suðurnes loksins á kort lands-manna á jákvæðan hátt.

Kvikmyndagerð í GarðinumUngur eldhugi kom þarna fram með áhugavert erindi um kvik-myndagerð á heimaslóðum en hann lærði þessa iðn og vill skrá-setja heimabyggð sína, Garðinn, í kvikmynd og jafnframt opna safn til heiðurs sjáandanum og hug-lækninum Unu í Garðinum. Guð-mundur Magnússon heitir mað-urinn og er sannur eldhugi með ótalmargar hugmyndir, sem hann er þegar að koma í verk. Hann er að láta verkin tala. Ég vænti þess að sjá stórmerkilegar kvikmyndir og við-burði koma frá honum Guðmundi í framtíðinni.

Óperan lifir góðu lífiJóhann Smári Sævarsson, óperu-s öng var i , he fur óta lmargar skemmtilegar hugmyndir, sem hann er þegar farinn að framkvæma með sönghópnum sínum Norður-ópi en þau hafa sett upp óperur hérna Suður með sjó. Hann er núna að undirbúa opnun söngskóla og vill setja upp óperusýningar hérna. Hann er þegar búinn að ákveða að setja upp stórvirkið Tosca í sam-starfi við Keflavíkurkirkju á árinu. Þar vilja stórsöngvarar landsins endilega vera með honum, nöfn eins og Kristján Jóhannsson, Jó-hann Friðgeir og Bergþór Pálsson hafa pantað að vera með.Smári er víðsýnn, enda víðförull vegna óperunáms erlendis. Hann segir að smæðin hjálpi okkur að vekja athygli, það sé „in“ að vera

smár og kannski líka pínu hrár og náttúrulegur. Að vera „orginal“, að vera maður sjálfur, vera í gras-rótinni, þaðan sem maður sprettur og að vera einlægur, þora að vera mannlegur og gefa af sér.Smári nefndi í þessu tilviki frægt óperuhús í Evrópu í litlum bæ, þar sem reisa átti álver en húsgrindin var svo frekar notuð til að hýsa óperuna og reyndist fullkomin tekjulind fyrir bæjarfélagið, sem nú rakar inn peningum. Nú sækir þangað fullt af fólki alls staðar að, því fjarlægð skiptir engu máli þegar þú vilt sjá frægt fólk koma fram. Hrá og sveitaleg umgjörð getur jafnvel heillað meira en stílhreint, stíft og of fágað umhverfi.

Skapandi líf í VogunumMarta Jóhannesdóttir, hugvitskona, lætur frumlega og frábæra drauma sína rætast með opnun Hlöðunnar í Vogunum. Hún opnar á mögu-leikann fyrir aðra að fá útrás fyrir listsköpun sína með því að standa að rekstri Hlöðunnar, sem er stað-ur þar sem margt skemmtilegt og óvenjulegt gerist. Hugsjónir reka hana áfram og fólkið, sem vinnur þarna með henni.Sem betur fer er til svona fólk eins og Marta, sem er rekin áfram af elsku til samferðamanna sinna og samfélagsins en ekki græðgi. Hún vinnur hægt og hljótt að merkilegri viðburðum en margan grunar.Fylgjumst öll betur með Hlöðunni hennar Mörtu í Vogunum en þang-að streyma gestir hvaðanæva að úr heiminum en fæstir kíkja samt við sem eiga heima inni í Vogum. Merkilegt. En er það ekki alltaf þannig? Við sjáum ekki það sem stendur okkur næst. Ekki fyrr en að aðrir benda okkur á það, sem koma gagngert til að sjá það sem við vild-um ekki sjá. Frægt dæmi um þetta er Björk Guðmundsdóttir, sem var fremur fyrirlitin en dáð hér á landi, þar til Englendingar uppgötvuðu gullið í henni, þá opnuðum við augun fyrir snilldar tónlistargáfum Bjarkar „okkar“ Guðmundsdóttur.

Handverkskonurog listagyðjur

Hildi Harðardóttur og Írisi Jóns-dóttur þarf vart að kynna en báðar hafa þær skapað sérstöðu á sviði listar í Keflavík. Hildur leysti Írisi af hólmi með gallerý Hringlist, þegar hún ákvað að halda þeirri starfsemi áfram og Íris hvarf af vettvangi um tíma.Hildur er þekkt fyrir frumlegar silki- og ullarflíkur en jafnframt fyrir myndirnar sínar en hún er einnig leikskólakennari, sem vinn-ur að því að vekja áhuga barna á listsköpun og svo aftur áhuga okkar fullorðinna á listsköpun barnanna. Hún er ein af aðstandendum Listahátíðar barna í Reykjanesbæ, þar sem menning barna fær að blómstra um allan bæ og einnig á

Telja ekki þörf á umhverfismati vegnabreytinga á fiskimjölsverksmiðju

Framhald á næstu síðu...

Frá málÞInGInu í BíÓsal duus um sl. hElGI.

Page 14: 22.tbl_2011

14 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

www.heilsuhusid.is

Hringbraut 99 • Keflavík • Sími 578 5560Opið: mánud. - föstud. 10 -18

Ásdís RagnaEinarsdóttir

grasalæknirveitir ókeypis ráðgjöf um

mataræði og bætiefnanotkun í Heilsuhúsinu, Hringbraut 99, Reykjanesbæ þriðjudaginn

7. júní milli kl. 15:00 og 18:00.

Það vantar alls ekki eldhuga hér fyrir sunnan, það er til nóg af þeim hérna. Það sem okkur vantar miklu frekar, er ríkisrekinn fjölmiðlafulltrúi, eins og Gísla Ein-arsson, sem hefur greiðan aðgang að fjölmiðli allra landsmanna. En Gísli hefur verið mjög duglegur að markaðssetja heimasvæðið sitt, Borgarfjörð.

sérstakri barnalistaráðstefnu, þar sem börnin sjálf taka þátt. Virð-ingarvert framtak hjá Hildi og leik-skólunum, sem vita af eigin raun, hvað það er þarft að vekja athygli fullorðinna á menningu litla fólks-ins okkar.Íris Jóns er óhrædd við að láta drauma sína rætast, það hefur hún gert í mörg ár, bæði með því að flytja með alla fjölskylduna til Akureyrar, þar sem hún nam myndlist og að ferðast sjálf til Ítalíu til að fræðast meira um listir. Hún hefur byggt upp listnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja ásamt góðum kenn-urum þar en nú hverfur hún þaðan um tíma, því nýjasta afkvæmið hennar er að stækka hratt. Hún og æskuvinkonan, Ingunn Yngva stofnuðu fatahönnunarfyrirtæki fyrir ári síðan, sem nefnist Spiral en fatnaðurinn selst eins og sjóðheitar lummur. Þær hafa ekki undan og eru komnar með saumastofu núna utan um allt saman.Frábær árangur hjá þeim skvísum, sem auðvitað eru algjörar tísku-gellur og vilja núna leiða íslenskar konur, á öllum aldri, ákveðna tísku-slóð. Spiral er fyrir allar konur, líka þær sem vilja vera aðeins meiri skvísur til að lífga upp á tilveruna.

Rúnni okkar JúllGeimsteinn er elsta stúdíó landsins, stofnað af Rúnari okkar Júlíussyni en það er elst í lífaldri kennitölu hér á landi, sem segir allt sem segja þarf.Baldur, sonur Rúnna Júll, sagði frá þeirri frábæru hugmynd að búa til poppminjasafn utan um ævi for-eldra hans, á heimili þeirra hjóna Rúnars og Maríu Baldursdóttur. Poppminjasafnið er alltaf opið þeg-

ar gestir vilja, staðsett á Skólavegi í Keflavík en eins og margir vita þá átti Rúnni Júll alltaf heima í Kefla-vík en aldrei í Reykjanesbæ.Þarna á Skólavegi er einnig til húsa þetta fornfræga upptökustúdíó Geimsteinn, sem enn er í fullri notkun.Rúnar pabbi Baldurs var dæmalaust hlýr og hjartagóður maður, sem gaf öllum sjéns, sem vildu fá að taka upp tónlist hjá honum. Hemmi Gunn var einn af þeim, sem vildi fá að syngja inn á plötu. Ekki það að Rúnar hefði einhverja sérstaka trú á honum, að hann syngi svona vel, heldur var eldmóður Hemma og lífsgleði svo smitandi, að Rúnni stóðst ekki mátið. Rúnar veðjaði á réttan hest, því Hemmi sló í gegn á einhvern furðulegan hátt með sveitalega slagara eins og „Út á gólf-ið“ og „Einn dans við mig“. Maður veit aldrei hvenær „hittari“ fæðist!

Ljósmyndari áheimsmælikvarða

Við fengum að sjá gullfallegar ljós-myndir og hlusta á framúrstefnu-legar ferðamannahugmyndir á málþinginu. Maðurinn á bak við myndirnar og þessar hugmyndir er sannur hugsjónamaður, uppfullur af frábærum hugmyndum en segist ekki kunna neitt á fjárhagsáætlanir og lætur því margar hugmyndir sínar fuðra upp í tómið. Svona fólk eins og Ellert Grétarsson, þarf að taka í fóstur, dæla í hann fjárstuðn-ingi og virkja magnaðar hugmynd-ir hans áfram til okkar hinna.Hann byrjaði sem áhugaljósmynd-ari en er í dag verðlaunaður ljós-myndari og lærði m.a. leiðsögu-manninn til að fara með fólk út í náttúruna til að mynda furður nátt-úrunnar. Hann leiðsegir erlendum ljósmyndurum um Reykjanesskag-ann og segir þá ekki eiga orð yfir

fegurð skagans. Ellert hefur löngum verið ástfanginn af Reykjanesinu og myndað ótrúlegustu myndir af svæðinu. Hann hefur opnað augu okkar hinna fyrir leyndum stöðum og þekkir líklega manna best verð-mætin í náttúrufegurð Suðurnesja.

Nafli alheimsins?Það sem við skiljum ekki alltaf, á samt rétt á sér, því það gefur okkur innblástur á einhvern óút-skýranlegan hátt. Inga Þórey Jó-hannsdóttir, áhugakona og fram-kvæmdastýra um sýningarsalinn Suðsuðvestur benti okkur á þessa staðreynd. Það eru ekki allir lista-menn alveg eins, að mála skýr mál-verk, sem við hin skiljum og þolum að horfa á. Stundum þurfum við að horfa á það sem ýtir við okkur, gerir okkur ringluð og rugluð, því list á líka að víkka okkur út. Hún á stundum að vera óþægileg, sýna okkur það sem okkur finnst rugl og vitleysa, þá vitum við kannski betur hvað við viljum ekki eða viljum.Ef einhver hefur þörf á að skapa svo dauðfrumlega list, hver á þá að banna honum það og segja að hann megi það ekki? Þegar hann má það bara víst. Þetta er hans tjáning og er hvorki betri né verri. Þetta er hreyfiafl mannlífsins, list sem held-ur okkur vakandi og kemur hreyf-ingu á lífið. Það er gaman að fara og sjá ögrandi, óskiljanlega list, hún rífur í mann, hristir upp í manni og sýnir líka, að það eru fleiri skrýtn-ari en þú eða gáfaðri eða bara eitt-hvað eða ekkert.Frumlegt fólk þarf líka að tjá sig en það er ekki að biðja um einkunn-arspjald fyrir sköpun sína. Bara það að við öndum listinni þeirra inn, finnum hana í hjarta okkar, send-um hana aftur út með öndun, það er upplifun í sjálfri sér. Það gleður þann sem sýnir, að þú sást þér færi á að koma og skrifa þig í gestabók-ina hans. Það vilja ekki allir selja þér eitthvað, bara það að fá athygli þína og tíma með þér, er stundum nóg.

Grindavík er magnaðurleikhúsbær

Það gustaði í salnum þegar Grind-víkingurinn, Bergur Ingólfsson, landsfrægur leikari kom fram með erindi um GRAL, sem er atvinnu-

leikhús í Grindavík, stofnað af hon-um og Víði Guðmundssyni, öðrum frægum leikara úr Grindavík.Bergur kveikti í salnum með eld-móði sínum fyrir litlu leikhúsi í fæðingarbænum, Grindavík. Þeir félagar, Víðir og hann, fengu þessa hugmynd fyrir nokkrum árum, vilja núna láta hana lifa áfram og vonast eftir dyggum stuðningi bæj-arbúa, bæjaryfirvalda og þeirra er koma á leiksýningarnar. Þeir áætla að sýna einu sinni á ári en vantar sárlega núna fast húsnæði undir starfsemina í Grindavík. Bergi leist vel á að fá gamla Festi undir leik-hús en því miður fékk sú hugmynd ekki hljómgrunn bæjaryfirvalda. Af hverju ekki?Mér datt í hug að ættleiða strákana tvo og hugmyndir þeirra til Sand-gerðisbæjar, því þar er fullt af tómu húsnæði til að halda leiksýningar í en öll tómu frystihúsin í Grindavík eru víst full af tómum tjaldvögnum á veturna. Ég geri samt ráð fyrir því að Berg langi mest að fá framtíð-arhúsnæði fyrir atvinnuleikhúsið í Grindavík.Þetta framtak Bergs og Víðis er mjög virðingarvert. Mér finnst þeir félagar sýna gamla bænum sínum og bæjarbúum mikla virðingu og heiður, með því að færa atvinnu-leikhúsmenningu inn í svona lítinn bæ. Á þennan hátt segist Bergur vilja gefa til baka, þangað sem rætur hans liggja. Hann segir aðsókn hafa verið frábæra á fyrri sýningum þeirra í Grindavík, leikhúsgestir hafi komið úr plássinu sjálfu og annars staðar frá. Barnasýningin

hlaut verðlaun og gefur það þeim félögum enn meiri kjark til að halda áfram. Fleiri landsfrægir leikarar vilja endilega slást í hópinn með þeim, segir Bergur.Leikhúsmenning atvinnuleikara þarf ekki að einskorðast við höfuð-borgina, það sannast vel á Akureyri og Ísafirði en þar er einnig atvinnu-leikari með leikhús í öruggu hús-næði.Um leið og öruggt húsaskjól fæst utan um skapandi starfsemi, þá geta enn stærri hlutir farið að ger-ast, sem hafa margföld áhrif á alla starfsemi í kring. Allir njóta góðs af svona atvinnuleikhúsi, t.d. veit-ingahúsin, gististaðir, sundlaugar, íþróttahús, gallerý og sjoppur, svo eitthvað sé nefnt. Það eru listvið-burðir sem koma bæjarfélögum á kortið, svo einfalt er það. Það er menning sem lætur hjartað slá í hverju bæjarfélagi. Og auðvitað er alltaf gott að hafa landsþekkt nöfn til að vekja enn meiri athygli!

Mörg hestöfl ískapandi krafti

Þetta var góð og gefandi ráðstefna, sem gaf manni ferskan innblástur. Gaman var að sjá kornungar tón-listarkonur flytja okkur gestunum hljómfagra tónlist á milli erinda.Nei, það var ekki fullt út úr dyrum á málþinginu í þetta sinn í Duus-húsum en það verður það næst! Því menning er stóriðja framtíðarinnar, fólkið er stóriðjan og hugmyndir þess. Þarna liggja sóknarfæri okkar, í okkar eigin skapandi mætti.Tækifærin liggja núna einnig í stór-iðju innlendrar og erlendrar ferða-mennsku á Íslandi, segir Kristján Pálsson hjá Markaðsstofu Suður-nesja, sem mér finnst auðvitað miklu hollara fyrir fallegt umhverfi okkar en spúandi álver.Markaðsstofa Suðurnesja er að gera góða hluti og einnig Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum með því að standa að svona málþingi. SSS á líka lof skilið vegna styrkveit-inga til menningarmála á svæðinu. Ef þessir aðilar halda áfram á sömu braut, þá verða Suðurnesin áfram sú vagga menningar, sem þau hafa í raun ávallt verið.Fleiri þurfa þó að fá að vita af öfl-ugri menningu hérna, sem gæti gerst með góðum samböndum og réttri markaðssetningu inn á fjölmiðla landsins. Við þurfum að koma okkur upp einum svona Gísla Einarssyni, sem hefur góðar fjölmiðlatengingar. Þá gætu hlut-irnir farið að gerast okkur í hag!

Það þarf fólk eins og þig...

GRAL - GRINDVÍSKAATVINNULEIKHÚSIÐ.

Page 15: 22.tbl_2011

15VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

VÍKURFRÉTTIR 236x178

www.sjova.is

Hlaupið er á eftirtöldum stöðum á svæðinu:

Þátttökugjald er 1.250 kr.

SJÓVÁ KVENNAHLAUP ÍSÍ LAUGARDAGINN 4. JÚNÍ

GANGA EÐA SKOKK – ÞÚ RÆÐUR HRAÐANUM

HREYFINGALLT LÍFIÐ

Vogar: Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 2 til 3 km. Forskráning í Íþróttamiðstöðinni. Frítt í sund að loknu hlaupi.

Reykjanesbær: Hlaupið frá Húsinu okkar, Hringbraut 108, Keflavík kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 2 km, 4 km og 7 km. Frítt í sund að hlaupi loknu. Forskráning 1. og 3. júní milli kl. 17 og 19 í Húsinu okkar.

Grindavík: Hlaupið frá Sundmiðstöðinni Grindavík kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 5 km og 7 km. Forskráning í Sundmiðstöðinni Grindavík.

Sandgerði: Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni í Sandgerði kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 1,5 km, 3 km og 5 km. Forskráning í Vörðunni Miðnestorgi og í Íþróttamiðstöðinni. Frítt í sund að loknu hlaupi.

Garður: Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni Garði kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 2 km, 3,5 km og 5 km. Forskráning í Íþróttamiðstöðinni Garði. Frítt í sund að loknu hlaupi.

HV

ÍTA

SIÐ

/SÍA

11

-09

39

›› FRÉTTIR ‹‹

Vestmannaeyjar gestabæjarfélag í Garðinum

Bæjarráð Sveitarfélags-ins Garðs samþykkir að

bjóða Vestmannaeyjabæ að verða „Gestabæjarfélag“ á Sólseturshátíðinni í Garði nú í ár. Þessi samþykkt er gerð í framhaldi af fundargerð Ferða-, safna- og menningar-nefndar Garðs frá 23. maí sl.Kostnaður vegna verkefnisins er áætlaður 300.000.- kr. og verði hann greiddur á árinu 2011 af liðnum Menningarmál.

Styrkja hvala-rannsóknir í Garðsjó

Umsókn um styrk vegna hvalarannsókna í Garði

var samþykkt á síðasta fundi bæjarráðs Garðs, sem haldinn var í síðustu viku. Styrkurinn hljóðar upp á 200.000 krónur.Bæjarráð fagnar því að að-staðan á Garðskaga nýtist til rannsókna á atferli hvala í Garðsjónum. Hér er á ferðinni stórmerkilegt rannsóknarefni sem mun kynna náttúru Garðs og stórbrotið sjávarlíf, en þegar hafa kafarar uppgötvað magnað sjávarlíf við höfnina í Garði og Gaukstaðavör.

Þáttaskil verða í rekstri fyrirtækisins K. Steinarsson ehf. í dag. Fyrirtækið hefur

opnað nýja starfsstöð að Holtsgötu 52, við hliðina á skoðunarstöð Aðalskoðunar. Þar verður fyrirtækið með söluumboð fyrir Öskju og mun selja Mercedes-Benz og Kia. Í dag hefur fyrirtækið jafnframt lokað starfstöð sinni við Njarðarbraut og hætt með umboð fyrir bíla frá Heklu og rekstri þjónustuverk-stæðis. Þjónusta fyrir bíla frá Öskju verður hjá Bílar & Hjól við Njarðarbraut.Kjartan Steinarsson opnaði fyrirtæki sitt á Njaðarbrautinni árið 2000 með umboð og þjón-

ustuverkstæði fyrir bíla frá Heklu. Síðustu ár hafa verið erfið í bílasölu og breytingar orðið á umboðum. Kjartani fannst því kominn tími á að gera breytingar sem nú hafa gengið í gegn. Hann segir eftirsjá í öllu því góða starfsfólki sem hann hafi haft með sér síðasta áratuginn en tekur jafnframt fram að það sé ánægjulegt að þegar hann lokar starfsstöðinni við Njarðarbraut, séu allir sem unnu hjá honum komnir með vinnu á öðrum stöðum.Í nýrri starfsstöð fyrirtækisins við Holtsgötu verða þrír starfsmenn en auk Kjartans verður eiginkona hans, Guðbjörg Theodórsdóttir, starf-

andi þar og bróðir hans, Sigtryggur Steinarsson. Þar verða eins og áður segir seldir nýir bílar frá Öskju, auk notaðra bíla.Síðustu þrjú ár eru án efa þau erfiðustu í sögu bílasölu á Íslandi og blasir við að fáir nýir bílar af þessum árgerðum hafa verið seldir í landinu sem mun koma niður á sölu notaðra bíla þegar vöntun verður á árgerðum 2008 til 2010. Bílasala er hins vegar aðeins að glæðast aftur þar sem endurútreikningur bílalána er að ganga í gegn og viðskipti tekin að glæðast að nýju.

[email protected]

›› K. Steinarsson flytur að Holtsgötu 52

Ný bílasala með mercedesbeNz og Kia í reyKjaNesbæ

Kjartan Steinarsson bílasali í nýjum sýningarsal K. Steinarssonar við Holtsgötu í Njarðvík.

Page 16: 22.tbl_2011

16 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

›› Grindavík:

KOFABYGGÐKOFABYGGÐKofabyggð verður starfandi í sumar fyrir börn fædd 2000 – 2004,

frá 7. til 23. júní.

Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13:00 - 16:00.

Innritun fer fram 6. júní frá kl. 17:00 - 19:00 á svæði

kofabyggðar við Krossholt/Baugholt.

Gjaldið er kr. 5.000,-Systkinaafsláttur kr. 500,-ATH. Ekki er hægt að greiða með greiðslukorti.

ÁRÁSIN Á GOÐAFOSSÁ Byggðasafninu á Garðskaga laugardaginn 4. júní kl. 14:00 

Þór Whitehead rithöfundur segir frá árásinni á Goðafoss og stríðsárunum á Garðskaga. Jón Ársæll Þórðarson og Björn B. Björnsson segja frá tilurð myndarinnar.

Allir velkomnir Myndin verður til sýnis á Byggðasafninu í sumar.

BYGGÐASAFNIÐ Í GARÐI KYNNIR

Tveir vitarVeitingahús á Garðsskaga

Nýja þjónustuhúsið á tjald-svæðinu í Grindavík var

opnað formlega síðasta föstudag. Þjónustuhúsið er í alla staði hið glæsilegasta og hafa tjaldsvæðis-gestir í sumar lýst yfir mikilli ánægju sinni með það.Í nóvember 2009 voru opnuð til-boð í byggingu þjónustuhúss. Lægsta tilboð átti HH smíði upp á 51,8 milljónir króna en alls buðu 10 verktakar í húsið. Bygginga-framkvæmdir gengu vel og skiluðu verktakar húsinu af sér í síðustu viku.Tjaldsvæðið sjálft var opnað 2009 en það sumar var gerð viðhorfs-könnun meðal gesta á nýju tjald-

svæði bæjarins. Helstu niður-stöður voru að 98% gestanna voru ánægðir með tjaldsvæðið og töldu það í háum eða góðum gæðaflokki.Um þriðjungur erlendra gesta sem dvaldi á tjaldsvæðinu var annað hvort að koma úr flugi eða á leið í flug. Um þriðjungur valdi tjald-svæðið til að skoða sig um í Grinda-vík og nágrenni. Gott orðspor virt-ist hafa töluverð áhrif á innlenda gesti. Flestar athugasemdir við tjaldsvæðið sem gerðar voru sneru að sturtuaðstöðu og svo þvotta- og eldunaraðstöðu. Tilkoma þjónustu-hússins kemur til móts við þessar athugasemdir. Stefnt er að því að gera nýja þjónustukönnun í sumar.

Innanríkisráðuneytið hefur úrskurðað að ráðning Bjarkar Guðjónsdóttur í starf verkefnastjóra hjá Sam-

bandi sveitarfélaga á Suðurnesjum var ólögmæt. Úr-skurður ráðuneytisins er í stjórnsýslumáli sem Frið-leifur Kristjánsson höfðaði gegn Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum [SSS], en Friðleifur var einn af fimm ein-staklingum sem teknir voru í starfsviðtal vegna umsóknar um starf verkefnastjóra hjá SSS.Aðdragandi þess að ákveðið hafi verið að ráða í stöðu verk-efnisstjóra hjá SSS hafi verið sá að stjórn SSS hafi vorið

2010 gert tvo samninga við íslenska ríkið. Annars vegar menningarsamning og hins vegar vaxtarsamning. Gildis-tími beggja samninga er eitt ár. Hvor samningur um sig hafi lagt þær kvaðir á SSS að ráðinn skyldi aðili til að sinna þeim verkefnum sem tengdust hvorum samningi fyrir sig.Þegar samningarnir höfðu verið undirritaðir var ákveðið á fundi Atvinnuþróunarráðs SSS, sem skipað er af bæjar-stjórum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum, að auglýsa eftir starfsmanni til eins árs til að sinna þeim störfum er að samningunum lutu.

Þann 8. júlí 2010 birtist svo auglýsing um að laust til um-sóknar væri starf verkefnisstjóra hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Var umsóknarfrestur auglýstur til 26. júlí sama ár. Eftir að umsóknir höfðu verið yfirfarnar var tekin um það ákvörðun, þann 9. ágúst 2010, að ráða Björk Guð-jónsdóttur í starfið.Á vef innanríkisráðuneytisins er ítarlega farið yfir málið.Úrskurðarorð ráðuneytisins eru að ákvörðun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem tekin var þann 9. ágúst 2010 um ráðningu í starf verkefnisstjóra er ólögmæt.

Ráðning Bjarkar í starf verkefnastjóra var ólögmæt

Nýtt og glæsilegt þjónustu-hús opnað á tjaldsvæðinu

20 til 30 villikettir veiddir í Grindavík

Grindvíkingar eru hvattir til þess að örmerkja og skrá ketti sína en nú stendur yfir átak í því að fækka villiköttum og ómerktum

köttum. Búið er að veiða milli 20 og 30 villiketti síðustu vikur í bænum en þeir eru geymdir í 7 daga hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja áður en þeim er lógað.Ef bæjarbúar telja að það sé villiköttur í nágrenni við hús þeirra er hægt að hafa samband við Grindavíkurbæ og óska eftir að það verði sett niður búr til þess að veiða köttinn.

Hælisleitandi reynir sjálfsvíg

Palestínskur hælisleitandi var sendur á sjúkrahús í síðustu viku eftir að hann reyndi að svipta sig lífi á gistiheimilinu FIT í Reykjanesbæ.

Hann hafði þá verið í hungurverkfalli í þrjá daga til að mótmæla þeirri ákvörðun Útlendingastofnunar að senda hann úr landi.Fyrir tveimur árum svipti lettneskur hælisleitandi sig lífi á gistiheimilinu FIT og tveir aðrir hælisleitendur hafa reynt að fremja sjálfsvíg á meðan þeir dvelja þar. Að minnsta kosti þrír hælisleitendur hafa verið lagðir inn á geðdeild undanfarið ár á meðan þeir bíða úrskurður Útlendingastofnunar, segir í frétt RÚV.

›› FRÉTTIR ‹‹

Auglýsingadeild í síma 421 0001 ([email protected])

Fréttadeild í síma 421 0002 ([email protected])

Ritstjórn og afgreiðsla í síma 421 0000

vf.is • m.vf.is • kylfingur.is

Page 17: 22.tbl_2011

17VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR

SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS

TIL LEIGU

Orlofsíbúðir Akureyri.Höfum til leigu notalegar íbúðir í miðbænum.Sjá gistingamaro.is sími: 461-5403

Ýmsar stærðir og gerðir af her-bergjum, með eða án húsgagna, með sameiginlegu eldhúsi og bað-herbergi eða sér eldhús og bað, með eða án húsgagna. Aðgangur að gufubaði og borðtennisborði. Internet og orka innifalin og all-ur sameiginlegur kostnaður. Góð staðsetning og hagstætt leiguverð. Uppl. í síma 895 8230 og 860 8909.

Til leigu 100 m² og 280 m² atvinnu-húsnæði við Víkurbraut, hagstætt leiguverð. Skammtímaleiga mögu-leg. Uppl. í síma 895 8230 og 860 8909.

Íbúð í Y-Njarðvík, miðsvæðis. Uppl. í síma 892 3987.

2ja herb íbúð m/svölum2ja herb. íbúð á fyrstu hæð við Fífumóa Njarðvík til leigu. Svalir. Laus strax. Verð: 55.000 + rafmagn (Fyrirframgr. 2 mán) Uppl í síma: 822 3858.

3ja herb. íbúð á 2. hæð við Þórustíg til leigu. Verð 70.000 + rafm. og hiti (2 mán fyrirfram). Laus strax. Uppl. í s. 822 3858.

Til leigu 2 snyrtilegar íbúðir í Grindavík, 2ja og 3ja herb. Verð 120.000 og 90.000, rafmagn og hiti innifalið. Trygging/bankaábyrgð. Uppl. í síma 772-0881.

Skrifstofur til leiguGóð skrifstofuherbergi með sameiginlegri fundaraðstöðu til leigu við Iðavelli 3. Upplýsingar í síma 860 3838.

HEILSA

Meiri orka – Betri líðan!H3O Pro Isotonic drykkurinn, ShapeWorks & flr. góðar vörurÁ s d í s o g J ó n a s He r b a l i f e dreifingaraðilar S: 843-0656 (Á), 864-2634 (J) og 421-4656Tölvupóstur: [email protected]íða/netverslun: http://www.betriheilsa.is/aj

ÓSKAST

4 herb. íbúð í Keflavík S.O.SVantar 3-5 herb. íbúð miðsvæð-is við Myllubakkaskóla sem fyrst. Öruggar greiðslur Uppl. í síma 770-6565.

ÖKUKENNSLA

ÖKUKENNSLA - AKSTURSMATÖ k u k e n n s l a t i l a l m e n n r a ökuréttinda. Nánari upplýsingar um verð og námstilhögun er á: www.aka.blog.isSkarphéðinn Jónsson löggiltur ökukennari s. 456-3170 og 777-9464

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 1. júní - 9. júní. nk.• Bingó • Gler-, keramik- og leirnámskeið • Handavinna

• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.• Línudans • Félagsvist • Tölvuklúbbur

• Bridge • Hádegismatur • Síðdegiskaffi • Bókaútlán

Léttur föstudagur á Nesvöllum 3. júní 2011.

Kaffihúsið opið.Dagskráin með Arnóri, Skúla

og félögum fellur niður.Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á

www.nesvellir.is/

ÝMISLEGT

Búslóðaflutningar og allur al-mennur flutningur. Er með 20 rúmmetra sendibíl/kassabíl með lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi.

Tek að mér allskonar viðgerð-ir á bílum, sláttuvélum. Er með greiningartölvu til að bilanagreina margar tegundir bíla. Vanur mað-ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð! Uppl. S: 864 3567.

www.vf.IS

Tökum að okkur allar almennar hreingerningar og ræstingar.

Einnig bónvinnu,teppahreinsun og fluttningsþrif.

Stórhreingerningar og reglubundnar ræstingar fyrir stofnanir og fyritæki.

Upplýsingar 849 9600 og 895 4990

www.stjornuthrif.com

Kirkjur og samkomur:GrindavíkurkirkjaSjómannadagsmessa kl. 13:00R æ ð u m a ð u r v e rð u r B i r g i r Hermannsson.Kór Grindavíkurkirkju syngur undir stjórn Helgu Bryndísar Magnúsdóttur organista.Einsöngvari: Berta Dröfn Ómars-dóttir.Ritningarlestra lesa Sigurður Jónsson og Fanney Pétursdóttir. Ingibjörg Sigurðardóttir ber blómakrans niður að Von.Sr. Elínborg Gísladóttir

Hvít Víðbláinn- Nuddmeðferðir,

- Heilun,- Miðlun.

Tímapantanir í síma 861 2004

Reynir Katrínarson, Nuddmeistari.

Túnþökusala OddsTeins

Erum mEð til sölu gæða túnþökur, fótboltagras,

gólfvallagras, holtagróður, lyng og gras á opin svæði.

margra ára rEynsla.

sími: 663-6666/663-7666

›› Laugardaginn 4. júní kl. 14:00

GARÐAÚÐUN SUÐURNESJA

GARÐAÚÐUN SUÐURNESJA

Úðum m.a. gegn:Lirfum og lús í trjágróðri,

roðamaur, kóngulóm,illgresi úr grasflötum (fíflum)

og lús á grenitrjám.

Upplýsingar í símum:822 3577, 699 5571 og 421 5571 eða á netfangið [email protected]

Geym

ið a

uglý

singuna

Björn Elín

Laugardaginn 4. júní nk. kl. 14:00 verður opnuð sýning

á myndinni Árásin á Goðafoss á Byggðasafninu á Garðskaga sem gerð var eftir handriti Jóns Ársæls Þórðarsonar og Þórs Whitehead í leikstjórn Björns B. Björnsson-ar. Þór Whitehead verður með frásögn um slysið og stöðu Garð-skagans í stríðinu en þar reistu Bretar fyrsta flugvöll sinn á Ís-landi og miðunarstöð. Á svæðinu við flugvöllinn nálægt Hólavöll-um er nú verið að grafa upp skot-

grafir sem voru til varnar flug-vellinum en í ár eru 70 ár liðin frá komu Breta á Garðskaga.Jón Ársæll mun segja frá gerð myndarinnar en 10. nóvember 1944 er enn mörgum eldri Garð-mönnum og Sandgerðingum í fersku minni. Fjöldi manns sá þeg-ar Goðafoss varð fyrir tundurskeyt-inu frá kafbátnum U-300 og skipið lyftist í sjónum og miklar drunur fylgdu í kjölfarið. Í árásinni fórust 42 sem voru um borð í Goðafossi, þar af 24 sem voru í skipinu áður en

Árásin á Goðafoss áByggðasafninu á Garðskaga

- Þór Whitehead og Jón Ársæll Þórðarson segja söguna.

Laugardaginn 4. júní næst-komandi mun Ernir, bif-

hjólaklúbbur Suðurnesja halda sitt árlega Arnarkast, er þetta leikur þar sem hjólað er um Reykjanesið og stoppað á fyr-irfram ákveðnum stöðum þar sem kastað er teningum, í lok-in eru síðan veitt verðlaun fyr-ir hæstu skorin. Þeir sem taka

þátt í þessum leik greiða ákveðið þátttökugjald, eins og undan-farin ár mun ágóðinn renna til góðs málefnis. Að þessu sinni mun klúbburinn styrkja ung-an dreng, Helga Rúnar Jóhann-esson sem átt hefur við alvarleg veikindi að stríða.

HjólakveðjurStjórnin

Arnarkast 4. júní

Sýslumaðurinn í KeflavíkVatnsnesvegi 33,

230 Keflavík, s: 4202400

www.naudunagarsolur.is

UPPBOÐFramhald uppboðs á eftirfarandi eign

verður háð á henni sjálfri, sem hér segir

Tjarnabraut 8 fnr. 228-8295, Njarðvík, þingl. eig. Ester Bryndís Axelsdóttir,

gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 8. júní 2011 kl. 09:15.

Sýslumaðurinn í Keflavík,30. maí 2011.

Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.

Sýslumaðurinn í KeflavíkVatnsnesvegi 33,

230 Keflavík, s: 4202400

www.naudungarsolur.is

UPPBOÐFramhald uppboðs á eftirfar-

andi skipi verður háð á skrifstofu embættisins að Vatnsnesvegi 33,

Reykjanesbæ, sem hér segir:

Steinunn Finnbogadóttir RE-325, sknr. 245, þingl. eig. Skip ehf, gerðarbeið-andi Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf, föstudaginn 10. júní 2011 kl. 10:00.

Sýslumaðurinn í Keflavík,30. maí 2011.

Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.

Sýslumaðurinn í KeflavíkVatnsnesvegi 33,

230 Keflavík, s: 4202400

www.naudungarsolur.is

UPPBOÐUppboð munu byrja á skrifstofu emb-ættisins að Vatnsnesvegi 33, Keflavík, sem hér segir á eftirfarandi eignum:

Greniteigur 8 fnr. 208-7752, Keflavík, þingl. eig. Db. Guðrúnar E. Ólafs-

dóttur, gerðarbeiðandi Tómas Hrafn Sveinsson skiptastjóri, föstudag-

inn 10. júní 2011 kl. 10:00.

Hafnargata 6 fnr. 208-7965, Keflavík, þingl. eig. Spjaldhagi ehf, gerðarbeið-

endur Byggðastofnun og Reykjanesbær, föstudaginn 10. júní 2011 kl. 10:00.

Heiðardalur 1 fnr. 228-2612, Vogar, þingl. eig. Db. Jóhanns Már Jóhanns-son og Ragnhildur B Svavarsdóttir,

gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 10. júní 2011 kl. 10:00.

Pósthússtræti 1 fnr. 227-2490, Keflavík, þingl. eig. Db. Sigurð-

ar Þorgeirssonar, gerðarbeiðandi Tómas Hrafn Sveinsson skiptastjóri, föstudaginn 10. júní 2011 kl. 10:00.

Tjarnargata 8 fnr. 209-5139, Sandgerði, þingl. eig. Db. Gunnars Berg Guðna-

sonar, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 10. júní 2011 kl. 10:00.

Víkurbraut 3 fnr. 209-4717, Sandgerði, þingl. eig. Db. Gunnar Berg Guðnason,

gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 10. júní 2011 kl. 10:00.

Sýslumaðurinn í Keflavík,30. maí 2011.

Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.

Vertu í góðu sambandi!Auglýsingadeild í síma 421 0001 ([email protected])

Fréttadeild í síma 421 0002 ([email protected])

Ritstjórn og afgreiðsla í síma 421 0000

vf.is • m.vf.is • kylfingur.is

Auglýsingadeildí síma 421 0001 vf.is • m.vf.is • kylfingur.is

það bjargaði sjómönnum af breska olíuskipinu Shirvan skömmu fyr-ir árásina. Að loknum frásögnum þeirra verður myndin sýnd og gest-um gefst kostur á að ræða við þá félaga.Á veitingastaðnum Tveir vitar (áður Flösin) verður boðið upp á veiting-ar, kaffi og meðlæti.

Hvar ert þú að auglýsa?

Page 18: 22.tbl_2011

18 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

›› Bjarki Brynjólfsson dúx í FS:

Til hamingju!Óskum öllum útskriftarnemum FStil hamingju með glæsilegan feril

Rauði kross ÍslandsSuðurnesjadeild

Föstudaginn 3. júní nk., verður haldinn �óamarkaður að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ, frá kl. 13:00 - 16:30.

Flóamarkaður

Bjarki Brynjólfsson dúxaði á síðustu útskrift hjá Fjöl-

brautaskóla Suðurnesja en hann útskrifaðist með meðaleinkunn upp á 8,7. Bjarki er 18 ára Njarð-víkingur en hann kláraði stúd-entsprófið á þremur árum og fór í útskriftarferðina í janúar til Mexíkó. Bjarki fékk verðlaun frá Íslenska stærðfræðafélaginu og Verkfræðistofu Suðurnesja fyr-ir góðan árangur í stærðfræði. Hann fékk einnig verðlaun frá skólanum fyrir frönsku, stærð-fræði og efnafræði. Bjarki fékk einnig viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda og verðlaun frá danska sendiráðinu fyrir árangur sinn í dönsku. Bjarki segist hafa valið sér áfanga sem henti með læknisfræði en þangað stefnir Bjarki. Skólagangan tók Bjarka aðeins þrjú ár en hann var á nátt-úrufræðibraut í FS. Sterkasta fag-ið segir Bjarki vera stærðfræði og honum finnst Gunnlaugur Sig-urðsson stærðfræðikennari vera einn af þeim betri á landinu.Bjarki æfði körfu á yngri árum en hætti í rauninni bara vegna þess að hann segist hafa verið lélegur. Hann var í tónlistarnámi sem hann

segir örugglega hafa hjálpað til við lærdóminn, það sé jú vísindalega sannað.„Það kom alveg til greina að fara til Reykjavíkur í MR eða Verzló en ég vildi fá að sofa aðeins leng-ur og valdi því FS,“ segir Bjarki í hálfgerðu gríni. „Bekkjarkerfið hjá þessum skólum heillaði dálítið en að menntunin sé eitthvað betri þar finnst mér bara ekki vera rétt. FS er með mjög góða kennara og allt til alls.“ Bjarki segir að skipulag og metnaður hafi fyrst og fremst skilað þessum árangri en hann hefur ætl-að sér að komast að í læknisfræði allt frá fermingaraldri. Hann situr nú sveittur á Þjóðarbókhlöðunni og lærir undir inntökuprófið í lækn-isfræði en hann hefur einnig sótt um í læknisfræði í Danmörku en það að fara í læknisnám á dönsku hræðir hann ekki, enda fékk hann dönskuverðlaunin í útskriftinni. Bjarki getur vel hugsað sér að búa erlendis og þá sérstaklega í Skandi-navíu þar sem tvö eldri systkini hans búa núna. Ef að það gengur ekki upp með læknisfræðina þá getur Bjarki vel hugsað sér að fara í einhverskonar verkfræði.

Kláraði stúdents-prófið á þremur árum

Anna Jónsdóttir, verkefna-stjóri Fjölskylduhjálpar

Íslands, Keflavík, vill þakka öllum þeim sem lagt hafa Fjöl-skylduhjálpinni lið með mat-argjöfum fyrir páska. Lions-félaginu í Vogum og Skólamat fyrir rausnarlega matargjöf, Kvenfélaginu Fjólu fyrir bakst-ur og svo þeim fjölmörgu fyr-irtækjum sem gáfu páskaegg til barnanna. Þá gáfu Elín Jónsdóttir Griffin og fjölskylda hennar 45 þúsund krónur til að stofnsetja lyfjasjóð. Hún hefur verið búsett í Georgíu-fylki Bandaríkjanna og starfað mikið fyrir Íslendingafélagið þar og hana langaði að leggja Fjölskylduhjálpinni lið. Einnig langaði okkur að benda skjól-stæðingum okkar á að fyrsta fimmtudag hvers mánaðar verður ekki úthlutað mat en opinn verður fatamarkaður fyrir þá sem vilja nýta sér það. Á fatamarkaðinum er mikið af góðum fatnaði, bæði notuðum og nýjum og eru allir velkomn-ir. Allur ágóði af fatasölu renn-ur í lyfjasjóð.

Elín Jónsdóttir Griffin

Þakkir fráFjölskylduhjálp

Page 19: 22.tbl_2011

19VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

Kæru SandgerðingarVið hjá Vodafone höfum nú stóreflt þjónustuframboð okkar í Sandgerði

Nú hafa bæjarbúar loks fullan aðgang að heimasímaþjónustu á kerfum Vodafone, ásamt aðgangi að ADSL-sjónvarpsþjónustu, sem tryggir úrval af erlendum sjónvarpsrásum og aðgengi að kvikmyndum og sjónvarpsefni á Leigunni. Við hvetjum ykkur til að skoða hagkvæmar og fjölbreyttar þjónustuleiðir okkar hjá Tölvuþjónustu Vals, umboðsaðila Vodafone í Keflavík.

Allar nánari upplýsingar í síma 1414 eða á vodafone.is

vodafone.is

207x282_sandgerdi_velkomin.ai 1 31.5.2011 09:54

Page 20: 22.tbl_2011

20 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

Kjarasamningarnir samþykktir hjá Verslunarmannafélagi Suðurnesja

Félagsmenn Verslunarmanna-félags Suðurnesja hafa sam-

þykkt kjarasamning sem undir-ritaður var þann 5. maí sl. Kjör-sókn var lítil eða 15,18%. Já sögðu 81,03% Nei sögðu 17,24% Auðir seðlar og ógildir voru 1,72%Þá hafa starfsmenn IGS einnig sam-þykkt nýgerða kjarasamninga en þeir gilda fyrir farþegaafgreiðslu/hleðslueftirlit, frílager og flugþjón-ustu.

Það var árið 1977 sem Hrekkjusvínin sungu þetta lag inn á plötu við texta Péturs Gunnarssonar og er þarna verið að vísa í þá kröfu að við vitum hvað við ætlum að gera við líf okkar. Hver man ekki eftir unglingsárunum þegar maður vissi ekki í hvorn fótinn átti að stíga og á mann svifu ömmur, frænkur og nágrannar með spurn-

ingar eins og ,,hvað ætlar þú að verða“! Það var oft fátt um svör enda nóg að hafa áhyggjur af því hverju átti að klæðast daginn eftir eða hvort toppurinn hallaði út á rétta hlið. Staðreyndin er sú að flest okkar hafa ekki hugmynd um hvað við viljum gera við líf okkar, hverjir styrkleikar okkar eru og hvar þeim væri best varið. Það getur verið tilviljunum háð hvar við endum og því fylgir sú tilfinning að örlög manns hafi verið ráðin af einhverjum öðrum en manni sjálfum. Vissulega hefur margt breyst frá þeim tíma sem ég var að alast upp en samt sem áður fæ ég til mín fjölda fólks á öllum aldri sem segir nákvæmlega þetta ,,ég hef ekki hugmynd um hvað ég vil gera við líf mitt“.Við stöndum á miklum tímamótum í samfélaginu í dag og margir sem þurfa að horfa fram á miklar breytingar á lífi sínu. Á slíkum tímamótum er gott að horfa yfir farinn veg og skoða hvernig og hvaða ákvarðanir hafa verið teknar í lífinu, hvað er maður sáttur við og er eitt-hvað sem maður mundi vilja gera öðruvísi. Það er hollt og gott fyrir alla að staldra við og spyrja sig eftirfarandi spurninga:• Hverjir eru styrkleikar mínir?• Hvað færir mér merkingu og ánægju í vinnu og einkalífi ?• Hver eru áhugamál mín ?• Hvað ætlaði ég að verða sem barn ?

• Hvaða fög voru mín uppáhalds í skóla ?• Vil ég vinna í hóp eða ein/-n• Er ég mikið fyrir að taka áhættur eða kýs ég öryggið

Í þessu ferli er hægt að nota áhugasviðsgreiningar en markmiðið með þeim er einmitt að aðstoða við að svara þessum spurningum. Með áhugasviðsgreiningu eru fundin tengsl milli persónuleika og áhugamála annars vegar og starfsgreina hins vegar. Áhugasviðs-greining getur verið gagnleg ef einstaklingur er í vafa um hvað hann vill gera í framtíðinni en út úr greining-unni koma hugmyndir að starfssviðum sem er líklegt að einstaklingnum líði vel í. Þá er hægt að nýta þessar greiningar í tengslum við starfslok og þá aðallega með það fyrir augum að skoða hvaða tómstundir eða nám-skeið henti viðkomandi. Það á ekki að teljast til forréttinda að gegna starfi sem maður brennur fyrir og sinnir af ástríðu þar sem maður er knúinn áfram af innri ástæðum. Starf þar sem maður finnur bæði merkingu og ánægju ásamt því að nýta styrkleika sína þannig að vinnan verður tilgangur í sjálfri sér. Hjá MSS eru í boði áhugasviðsgreining fólki að kostnaðarlausu. Áhugasamir geta haft samband við náms- og starfsráðgjafana Önnu Lóu Ólafsdóttur [email protected] eða Jónínu Magnúsdóttur [email protected] og pantað tíma eða hringt í síma 421-7500 í sömu erindagjörðum.Vertu virkur í að skapa eigin framtíð, betrumbæta hana og kynnast sjálfum þér betur í leiðinni. Ef þú veist ekki eða trúir því ekki að þú hafir val, þá hefur þú það ekki !

Anna Lóa ÓlafsdóttirNáms- og starfsráðgjafi MSS

,,Hvað ætlar þú að verða væni,voða ertu orðinn stór!“ Anna Lóa Ólafsdóttir skrifar

Komdu og eigðu frábæran dag í fallegum Sandgerðisbæ!

SJÁVARROKKSjómannadagshelgi laugardag og sunnudag

frá kl. 13:00 - 17:00.

Hátíð til heiðurs sjómönnum, sjónum og sjávarfangi:

›› FRÉTTIR ‹‹

Erla Sigurjónsdóttir,Sigurjón Kjartansson, Rúna Sigurðardóttir,Margrét Ragna Kjartansdóttir, Pétur Valdimarsson,Hafdís Kjartansdóttir, Árni H. Árnason,Sif Kjartansdóttir, Haukur H. Hauksson,Lilja Guðrún Kjartansdóttir, Svanur Þorsteinsson,barnabörn og barnabarnabarn.

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,

G. Kjartan Sigurðsson, vélstjóri, Háaleiti 27, Keflavík,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 29. maí síðastliðinn.Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 3. júní kl. 15:00.

Þóra Ágústa Harðardóttir,Reynir Kristjánsson,Baldvin Kristjánsson,Hrafnhildur Kristjánsdóttir,tengdabörn, barnabörn, barnabarnabarn,vinir og vandamenn.

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,

Kristján Kristjánsson,lögregluvarðstjóri, Hæðargötu 11, Reykjanesbæ,

lést af slysförum á Spáni, laugardaginn 21. maí.Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju, miðvikudaginn 8. júní kl. 13:00.

Þráinn Stefánsson,Jón Kalman Stefánsson, María Karen Sigurðardóttir,Bergljót Sif Stefánsdóttir,Kristvin Stefánsson,barnabörn og barnabarnabörn.

Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi,

Stefán Frímann Jónsson, múrarameistari, Kirkjuvegi 11, Reykjanesbæ,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, föstudaginn 27. maí.Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 3. júní kl. 13:00 Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.

ZEDRAFöt fyrir allar konur

Verslunarkjarnanum Fitjum Reykjanesbæ

Full búð af nýjum vörum

Verið velkominSími 568-8585

Page 21: 22.tbl_2011

21VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

Síðastliðið haust opnaði Mark-aðsstofa Suðurnesja fría bók-

unarþjónustu fyrir ferðamenn í Upplýsingamiðstöðinni í komu-sal Flugstöðvar Leifs Eiríksson-ar. Þessi bókunarþjónusta er nýtt innlegg í því að markaðssetja ferðaþjónustuna á Suðurnesjum. Bókunarþjónustan er rekin í sam-vinnu við ITA sem er stærsta bók-unarþjónustufyrirtæki á landinu í sölu og markaðssetningu fyr-ir ferðaþjónustufyrirtæki. Með þessu var opnað fyrir alveg nýja þjónustu fyrir ferðaþjónustufyr-irtækin á Suðurnesjum við að setja á markað nýja vöru, einir eða með öðrum, ásamt því að koma á framfæri því sem þeir hafa sérhæft sig í.

Bláa lónið, Ráin ogVitinn af stað

Margir hafa kvarað yfir því að ekki náist nógu vel til þeirra farþega sem bíða uppi á velli á milli véla. Með þessari bókunarþjónustu opnast góð leið til að ná til þessa fólks og nýta þannig nálægðina við flug-völlinn til hins ítrasta. Margir hafa reynt að ná til flugfarþega sem bíða á milli véla í Leifsstöð og fá þá til að skoða svæðið og njóta þess fjölmarga sem hér er í boði. Það nýjasta er að Bláa lónið mun setja á markað í júní ferð fyrir transit far-þega í Bláa lónið með morgunmat. Verða farþegarnir þá keyrðir beint úr Leifsstöð í Lónið og til baka í tæka tíð fyrir vélina. Ferðirnar verða seldar í bókunarþjónstunni í Leifsstöð. Nokkrir matsölustaðir eru að reyna að skapa sér sérstöðu í matargerð og má þar nefna Rána

sem hefur sérhæft sig í laxaréttum og Vitann í Sandgerði sem er að sérhæfa sig í skelfiskréttum. Með samstilltu átaki má gera úr þessu öllu mikil viðskipti ef rétt er á mál-um haldið.

Grípum tækifærinUndirritaðir vilja hvetja aðila í ferðaþjónustunni á Suðurnesjum, hvaða nafni sem hún nefnist, til að nýta sér bókunarþjónustuna í Leifs-stöð. Bókunarþjónustan er að mati undirritaðra eitt stærsta markaðs-setningartækifæri sem hefur gefist á Suðurnesjunum í ferðaþjónust-unni til þessa. Það er spáð mik-illi aukningu ferðamanna í sumar og bendir mikill fjöldi lendinga á Keflavíkurflugvelli í sumar til þess að sú verði raunin. Markaðsstofan tók þátt í átakinu Inspiered by Ice-land í fyrra með fjárframlagi. Slíkt kynningarátak er ekki nauðsynlegt að þessu sinni þrátt fyrir Gríms-vatnagosið, nú eiga ferðaþjónar á Suðurnesjum að grípa tækifærið. Það er gott ferðasumar í vændum.

Kristján Pálsson framkvæmda-stjóri Markaðsstofu Suðurnesja

Yngvi Örn Stefánsson fram-kvæmdastjóri ITA

Kristján Pálsson og Yngvi Örn Stefánsson skrifa

BRJÁLUÐ TILBOÐHúsasmiðjunni og Blómavali

Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.

25% AFSLÁTTUR

AF GARÐ-

HÚSGÖGNUM

Stjúpusprengjafimmtudag til sunnudag

999,-1.499,-

1.699,-2.998,-

2.499,-4.499,-

Tilboð 30 stk.

Tilboð 20 stk.

Tilboð 10 stk.

PYLSUPARTÍlaugardag 12-14 25%

AFSLÁTTURAF

LEIKFÖNGUM

NÚ HÖFUM VIÐ

OPIÐ Á

FITJUM

UPPSTIGNINGARDAG

12-16TIMBURSALA

LOKUÐ

Kort í tækjasal sem gildir frá 1. júní til 31. ágúst á kr.10,000. Innifalið er eitt af eftirfarandi vali: • Leiðsögn ásamt æfingarforriti í tækjasal 40 mínútur • Hálftíma sjúkranudd framkvæmt af sjúkraþjálfara • Skoðun, blóðþrýstingsmæling og sérsniðið æfingarforrit hjá sjúkraþjálfara án leiðsagnar í sal. Upplýsingar í síma 421 7474

SUMARTILBOÐ Í TÆKJASAL

ÁTAK NESVÖLLUM

Bókunarþjónustan stærsta markaðssetningartækifæri

Suðurnesjamanna

Síminn er 421 0000

Page 22: 22.tbl_2011

22 Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR

Grindvíkingar fóru létt með nýliða Þórs í Pepsi-deild karla í knattspyrnu og höfðu öruggan sigur, 4-1. Það tók heimamenn í Grindavík ekki nema hálfa mínútu að skora og þar var að verki Robbie Winters með laglegu skoti. Ekki þurftu áhorfendur að bíða lengi eftir næsta marki en það kom á 9. mínútu og það gerði Yacine Si Salem en það var líka glæsilegt.

Grindvíkingar fylltust sjálfstrausti eftir þetta og gerðu algerlega út um leikinn þegar Jóhann Helgason skoraði beint úr aukaspyrnu en hann var þá nýbúinn að biðja um skiptingu. Staðan því 3-0 í leikhlé.Þrátt fyrir glæsileg mörk í fyrri hálfleik þá kom fallegasta mark leiksins í síðari hálfleik. Alexander Magnússon kom sér þá á YouTube með því að framkvæma eina

frumlegustu vítaspyrnu sem sést hefur í íslenska boltanum. Hann spyrnti knettinum utanfótar með vinstri fæti en allir bjuggust við spyrnu með hægri fæti, þar á meðal markmaðurinn sem var löngu farinn í rangt horn og staðan 4-0. Þórsarar náðu að minnka muninn í lokin en Grindvíkingar unnu þarna sanngjarnan sigur sem var síst of stór.

vf.isvf.is

SUMARSUNDSundnámskeið fyrir 3 ára og eldri.

Hópunum er skiptu upp eftir aldri og getu: 3 til 5 ára, 6 til 7 ára, 8 til 9 ára, 10 ára og eldri og einn hópur verður fyrir þá sem voru að æfa sund í vetur.

Námskeiðin verða haldin í sundlaug Akurskóla í Innri Njarðvík og sundlaug Heiðarskóla í Keflavík.

Námskeiðið kostar 5.000 kr.

Leitast er við að kenna yngstu börnunum vatnsöryggi og grunn-hreyfingar sundtakanna með og án hjálpatækja. Markmið með kennslu eldri barnanna er að kenna þeim rétt sundtök án allra hjálpartækja.

Heiðarskóli og Akurskóli Tímabil 1 = 14. - 30. júní Tímabil 2 = 4. - 15. júlí

Hvert námskeið er 10 skipt.Kl. 8:30 - 9:20Kl. 9:30 - 10:20Kl. 10:30 - 11:20Kl. 11:30 - 12:20Kl. 12:30 - 13:20

Kennarar eru: Sóley Margeirsdóttir, íþróttfræðingur og sundþjálfari hjá ÍRBJóna Helena Bjarnadóttir, sundkona og sundþjálfari hjá ÍRB.

Upplýsingar og skráning fer fram fimmtudaginn 9. júní í Vatnaveröld milli kl. 16:00 og 18:00.

Yfirumsjón hefur Sóley Margeirsdóttir, íþróttafræðingur.

Víðismenn með sigurVíðismenn léku við lið Augnabliks í 3. deild og fengu sex mörk að líta dagsins ljós að þessu sinni. Heimamenn úr Garðinum lentu 0-2 undir snemma í leiknum en Eiríkur Viljar Kúld minnkaði muninn.Gestirnir komust svo í 1-3 en með seiglu náðu Víðismenn að jafna með mörkum frá Viktori Gíslasyni og Atla Rúnari Hólmbergssyni. Víðismenn hafa því fjögur stig eftir tvo leiki í 3. deildinni en liðið er í 4. sæti í sínum riðli.

Grindvíkingur til IpswichGunnar Þorsteinsson, 17 ára gamall leikmaður úr Grindavík, mun í næsta mánuði skrifa undir tveggja ára samning við enska 1. deildar liðið Ipswich Town. Gunnari var boðið til æfinga hjá liðinu í vikutíma í vetur og í kjölfarið óskaði félagið eftir að fá hann aftur út til skoðunar og var hann hjá liðinu við æfingar á dögunum.Gunnar hefur greinilega hrifið forráðamenn enska liðsins því þeir buðu honum samning sem hann hefur ákveðið að taka. Búið er að ganga frá öllum pappírum og mun hann skrifa undir samning við Ipswich í lok þessa mánaðar og hefja þá um leið undirbúningstímabilið með liðinu.

Falur þjálfar Keflavík á nýKeflvíkingar hafa gengið frá ráðningu Fals Harðarsonar sem þjálfara kvennaliðs félagsins í körfubolta. Falur skrifaði undir samning til tveggja ára en hann var aðstoðarþjálfari liðsins í fyrra, hann hefur einnig þjálfað yngri flokka hjá félaginu undanfarin ár en hann hefur ekki stýrt meistaraflokki síðan árið 2003-2004 þegar hann og Guðjón Skúlason stjórnuðu karlaliði Keflavíkur.

Keflvíkingar töpuðu gegn FylkiKeflvíkingar máttu sætta sig við 2-1 tap gegn Fylkismönnum í sjöttu umferð Pepsi-deildar karla á mánudagskvöld en leikurinn fór fram í Árbænum. Keflvíkingar byrjuðu þó af krafti og Jóhann B. Guðmundsson skoraði eftir aðeins þriggja mínútna leik en Hilmar Geir Eiðsson og Guðmundur Steinarsson áttu þátt í undirbúningi marksins en Jóhann kláraði vel. 20 mínútum síðar skoraði Ingimundur Níels Óskarsson fyrir heimamenn í Fylki og þannig var staða í leikhlé, 1-1 og leikurinn fjörugur. Annað var uppi á teningnum í síðari hálfleik þar sem lítið markvert gerðist þar til í blálokin þegar Ingimundur Níels skoraði sitt annað mark fyrir Fylki og tryggði þeim stigin þrjú.

SPORTMOLAR

Glæsileg vítaspyrna Alexanders

Viltu læra að tína & nota íslenskar lækningajurtir?

Námskeiðið verður haldið 7. júní kl. 18.30 - 20.30

í Húsinu Okkar Hringbraut 108, Keflavík.

Farið verður á tvo tínslustaði og jurtir

skoðaðar úti í náttúrunni.

Verð 3500 kr.

Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri og hafa

meðferðis skæri og ílát undir jurtir og e.t.v. flórubók.

✤ Hvernig á að tína, þurrka og geyma jurtir

✤ Hvernig er best að tína og við hvaða aðstæður

✤ Hvernig útbúa á jurtablöndur á einfaldan hátt

✤ áhrif algengra lækningajurta og notkun þeirra

upplýsingar og skráning | s. 899-8069 | [email protected]

Alexander Magnússon er 22 ára Njarðvíkingur sem hefur leikið með Grindavík síðan 2009. Hann á að baki 41 leik með Njarðvíkingum en hann lék 15 leiki með Grindavík í fyrra og hefur byrjað í öllum leikjum liðsins í ár. Hann á einnig að baki 2 leiki með U-19 ára landsliði Íslands. Alexander vakti athygli á mánudaginn þegar hann framkvæmdi ansi tilþrifamikla vítaspyrnu í leik Grindvíkinga og Þórs. „Það þarf taugar í þetta og menn gera kannski bara svona í stöðunni 3-0, “ sagði Alexander í samtali við Víkurfréttir. „Jamie (McCunnie) ætlaði að taka vítið en ég spurði Óla þjálfara hvort ég mætti ekki taka utanfótar vinstri. Þetta er svona mitt aðalsmerki og þaulæft fyrir og eftir æfingar,“ segir hægri bakvörðurinn knái.

Óskar í lokahóp U-21Grindvíkingurinn Óskar Pétursson er eini Suðurnesjamaðurinn sem fer með Íslendingum á EM U-21 landsliða í knattspyrnu sem hefst nú 11. júní. Áður voru Jósef Kristinn Jósefsson og Einar Orri Einarsson einnig í hópnum en nú hefur endanlegur 23 manna hópur verið valinn og er Óskar einn af þremur markvörðum liðsins.

Haraldur í A-landsliðiðHaraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði Keflvíkinga hefur verið kallaður inn í íslenska A-landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir leikinn gegn Dönum í undankeppni EM sem fram fer á Laugardalsvellinum á laugardagskvöldið. Haraldur tekur sæti Ragnars Sigurðssonar sem dró sig út úr hópnum.Haraldur, sem er 30 ára gamall, á að baki tvo leiki með A-landsliðinu. Hann kom við sögu í 4:1 sigri gegn Suður-Afríku í vináttuleik árið 2005 og lék gegn Ungverjum í undankeppni HM 2006 þegar Íslendingar töpuðu á heimavelli, 3:2.

Page 23: 22.tbl_2011

23VÍKURFRÉTTIR • Miðvikudagurinn 1. júní 2011

Njarðvíkingar standa núna á krossgötum. Körfuknatt-

leikslið félagsins hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku þar sem mátt-arstólpar liðsins síðasta áratug-inn eða svo hafa lagt skóna á hill-una. Leikmenn eins og Brenton Birmingham, Páll Kristinsson og Friðrik Stefánsson sem hafa fagnað titlum með liðinu og verið meðal bestu leikmanna úrvals-deildarinnar síðan um aldamótin eru hættir að stunda íþróttina. Leikmenn eins og Jóhann Árni Ólafsson, Guðmundur Jónsson, Kristján Sigurðsson og Egill Jón-asson hafa leitað annað. Félagið hefur tekið þann pól í hæðina að notast eingöngu við unga og óreynda leikmenn sem uppaldir eru hjá félaginu en einnig hafa þeir þegar ráðið til sín tvo erlenda leikmenn en þeir erlendu leik-menn sem léku með liðinu í fyrra munu ekki snúa aftur.

„Það eru ákveðin tímamót hjá Njarðvíkingum núna. Nýja stjórnin sem tók við núna í febrúar fór af stað með ákveðin markmið og ákveðna hugsjón og hafa hugsað sér að fara ákveðna leið í þessu. Sú leið hent-ar kannski ekki öllum,“ segir Jón Júlíus Árnason formaður körfu-knattleiksdeildar UMFN. Hver er sú leið? „Það eru gömlu góðu gild-in, að spila fyrir fánann og UMFN og við munum ekki koma til með að borga leikmönnum okkar laun, menn fá leikmannasaminga en engin laun verða greidd. Við viss-um svo sem að þegar þessi stefna var tekin yrðu einhver brottföll þó svo að við hefðum vonast til þess að halda sem flestum leikmönnum. Við ætlum okkur að setja boltann í hendurnar á ungu strákunum úr unglinga- og drengjaflokk. Þar er á ferðinni samheldinn hópur sem þekkir lítið annað en að æfa stíft og mikið. „Við byrjuðum að æfa 2. maí og munum æfa næstu 10 vikur þar sem æft er 8 sinnum á viku, bæði lyftingar og ýmsar körfuboltaæf-ingar. Mæting hefur verið nánast 100% en þetta er 12 manna hópur. Þetta verður kjarninn næsta tíma-bil segir Jón. Njarðvíkingar hafa þegar gengið frá samningum við tvo erlenda leikmenn. Annar er bakvörður sem getur leyst nokkrar stöður og svo einn miðherji. Þeir eru báðir bandarískir en í flestum tilfellum eru þeir leikmenn ódýrari og oftast betri en þeir frá Evrópu.

Hver eru markmið félagsins?„Markmiðin eru alltaf sú sömu,

við höfum það mikla trú á þessum ungu strákum. Ef að maður á hins vegar að vera raunsær þá erum við ekki að fara að landa titlum á næsta ári. Það verður erfitt að keppa við hin liðin sem hafa safnað að sér reyndum leikmönnum. Fyrr en síðar verðum við þó komnir í þá stöðu,“ segir Jón en félagið horfir til framtíðar. „Við höfum teiknað upp 5 ára plan fyrir bæði karla- og kvennaboltann. Fyrsti liðurinn í þeirri áætlun er að fá þessa ungu leikmenn inn í liðið en bæði þjálf-arar og þessir leikmenn skrifuðu undir þriggja ára samning á dög-unum. Nú er félagið með tvo þjálf-ara, hvernig er það að virka? „Mig minnir að þetta sé í fyrsta sinn sem félag hefur tvo aðalþjálfara, yfirleitt er annar aðstoðarþjálfari eða eitt-hvað slíkt. En nú erum við með tvo þjálfara sem ég vil meina að

séu tveir af fjórum bestu þjálfurum landsins, þeir eru líka alveg með það á hreinu hver hlutverkaskipti þeirra eru. Hluti af þessari stefnu okkar er líka að hafa allan aðbúnað sem bestan hvað varðar þjálfun og annað. Aðstaðan hjá okkur er virki-lega góð, flottur lyftingarsalur og við erum með skot- og frákastvélar og menn geta yfirleitt æft í salnum þegar þar eru dauðir tímar.“

Hvað finnst þér um launamál í íslenskum körfubolta?„Mér finnst kannski í góðu lagi, ef menn eru í hópi bestu leikmanna landsins, þá fái þeir umbun fyrir það. Ástandið hjá okkur í Njarðvík og eflaust hjá fleiri liðum var þann-ig að þetta var komið út í vitleysu, hreinlega orðið of mikið. Mér fannst jafnvel að menn væru ekki að leggja sitt af mörkum í samræmi við launin sem þeir voru að fá. Þá er ég að tala um það að taka auka-æfingar og leggja aukalega á sig, menn voru jafnvel orðnir áskrif-endur að laununum. Hluti af þessu

vandamáli er bara röng uppeld-isstefna hjá UMFN síðustu 10 árin eða svo. Þó að þú sért orðinn 20 ára og kominn í meistaraflokk þá þýðir það ekki að þú fáir einhvern pening, leikmenn eiga að spila fyr-ir klúbbinn og vilja skara framúr sem getur svo leitt til þess að menn komist á þann stall að geta fengið greitt fyrir körfubolta á erlendri grundu. Við viljum breyta þessari þróun og erum að því.“

Sagan segir að fjárhagsstaðan hjá félaginu hafi ekki verið góð. „Ástandið er langt frá því að vera gott, klúbburinn hefur sennilega ekki verið í þessari stöðu áður hvað varðar fjárhaginn, það er ekkert launungarmál. Það ýtir undir það að við getum ekki lengur borgað leikmönnum, við þurfum að taka reksturinn í gegn og skera niður og

það er nánast bara hægt að gera í launum leikmanna. Það er þó ekki ástæðan fyrir því af hverju við erum að fara út í þetta en sú staðreynd að staðan sé svona hjálpaði okkur að taka þessa ákvörðun. Við fimm sem erum í stjórn höfðum rætt þetta þegar við ákváðum að bjóða okkur fram og vissum ekki hver staðan væri nákvæmlega, þannig að þessi stefna er ekki einungis til-komin af illri nauðsyn.“

Við munum leita eftir aðstoð bæj-arbúa varðandi ýmsar hugmyndir og hverslags verkefni. Við verðum með opinn almennan félagsfund þar sem allir eru velkomnir. Þar munum við kynna mál körfubolt-ans í UMFN bæði karla og kvenna, fundurinn verður 7. júní.

Hvað varð til þess að fjárhagurinn varð svona hjá UMFN?„Þetta er ekkert að gerast á einu til tveimur árum, það sem gerðist er að auglýsingatekjur og styrkir minnkuðu um 40% og ástand-

ið í þjóðfélaginu hefur sín áhrif. Menn sáu fram á þessa þróun og við hefðum þurft að stíga fyrr inn í varðandi leikmannasamninga og lækka þá, það hefði þurft að gerast miklu fyrr. Við ætlum hins vegar ekki að benda á einhverja söku-dólga staðan er bara svona og við reynum að vinna úr þessu og koma klúbbnum á rétt ról. Í fyrra komu nokkrir erlendir leikmenn og það var kostnaðarsamt. Á ákveðnum tímapunkti vorum við í fallbar-áttu og menn urðu smeykir, og því var þessi leið farin. Einn erlendur leikmaður var reyndar borgaður af hópi velferðarmanna félagsins með fjáröflun. Það hefur verið gert í gegnum tíðina en við viljum jafnvel frekar núna að þannig fjármagn skili sér inn í félagsstarfið, ekki bara tímabundið í einn leikmann.

Njarðvík er eitt af flaggskipunum í körfuboltanum„Mér hefur fundist hluti af vanda-málunum hjá UMFN vera sá hvað margar neikvæðar einingar eru í bæjarfélaginu. Það hafa allir skoð-un á klúbbnum, sem er fínt, en neikvæðnin hefur verið hávær-ari undanfarið. Við ætlum því að opna dyrnar og ef einhver er með eitthvað neikvætt að segja þá get-ur hann komið sinni skoðun á framfæri við okkur. Í íslenskum körfubolta er Njarðvík eitt af flagg-skipunum, sagan segir til um það. Við ætlum okkur að koma liðinu á réttan kjöl aftur. Maður getur samt ekki alveg séð fyrir hvernig næsta tímabil verður.Einn daginn hugsa ég að þetta verði gott tímabil alveg í það að hugsa til þess að þetta verði jafnvel ströggl fram að síðasta leik, að halda sér í deildinni. Ég viðurkenni það alveg að það getur vel gerst. En strax að

Gömlu gildin taka viðGömlu gildin taka við

„Það eru ákveðin tímamót hjá Njarðvík-ingum núna. Nýja stjórnin sem tók við núna í febrúar fór af stað með ákveðin markmið og ákveðna hugsjón og hafa hugsað sér að fara ákveðna leið í þessu. Sú leið hentar kannski ekki öllum,“ segir Jón Júlíus Árnason formaður körfuknatt-leiksdeildar UMFN.

Njarðvíkurbraut 9 - Sími: 421 1052 - 823 4228

Full búð af nýjum vörum Komdu í heimsókn og taktu þátt í leiknum.

Tvö 20.000 króna gjafakort í verðlaun, dregið 17. júní

Opið 10-18 virka daga, 10-14 laugardaga

loknu næsta tímabili, sama hvernig það endar er ég viss um að við för-um að sjá miklar framfarir.“

„Í fyrra og árið áður þá var UMFN ekki lið að mínu mati, heldur tólf einstaklingar í grænum búning að reyna að vinna leiki og liðsandinn fannst mér ekki vera til staðar. Við sjáum það hins vegar núna þeg-ar við erum búnir að æfa í mánuð að einingin og stemmingin er allt önnur. Félagsmaður sem vill styðja liðið kemur og horfir á leik og þú skynjar að allir á vellinum eru í fýlu og þá nennir þú síður að hvetja slíkt lið.“

Hefði viljað að Jóhann og Guð-mundur tækju slaginn með okkurJón segir erfitt að segja til um af hverju staðan hafi verið orðin svona en þar spili margt inn í.„Hjörtur Einarsson og Rúnar Ingi Erlingsson voru fljótir að gefa það út að þeir vildu vera áfram, Egill Jónasson og Kristján Sigurðsson voru strax farnir að huga að öðru en Jóhann Árni Ólafsson og Guð-mundur Jónsson voru spurning-armerki. Persónulega var ég að vonast til þess að þeir yrðu áfram í UMFN, alla vega annar þeirra. Mér fannst núna vera tímapunktur fyrir þá að taka að sér leiðtogahlut-verk í þessu verkefni okkar. Mér hefur fundist að þeir hafi verið að bíða eftir því að verða leiðtogar hjá liðinu, nú þegar reyndir leik-menn eru hættir og þeir næstir í goggunarröðinni. Ég hefði viljað að þeir hefðu verið meiri menn og tekið slaginn með okkur. En ég get aftur á móti skilið það að menn leiti þangað sem þeir fá greitt fyrir að spila körfubolta. Það var erfitt að sjá á eftir Guðmundi og Jóhanni. Hefði dugað fyrir þá að fá einhverja skiptimynt? Það var freistandi að gauka pening að þeim til að halda þeim, en við vorum búin að setja þessa stefnu og verðum að standa við hana.“Jón segir engin leiðindi gagnvart þessum strákum þó svo að hann hefði óskað þess að þeir hefðu verið um kyrrt.

Finnur fyrir jákvæðum viðbrögðum„Í fyrrasumar vorum við með æf-ingar fyrir hluta af þessum hóp sem er að koma upp. Það vakti mik-ið umtal og athygli innan körfu-boltahreyfingarinnar, og ungir og metnaðarfullir leikmenn á landinu fylgdust með því sem var að gerast og við höfðum fengið fyrirspurnir frá ungum leikmönnum sem eru að fara í framhaldsskóla og vilja koma til UMFN. Við sjáum það bara í jákvæðu ljósi að fólk horfi til okkar og meti það starf sem hér er verið að vinna. Eftir að það byrjaði að spyrjast út hvað er að fara að eiga sér stað hérna þá finnst mér viðbrögð fólks vera afar jákvæð. Maður hefur hitt fólk sem hefur ekki mætt á leiki svo árum skiptir en vilja núna kaupa ársmiða. Fólk hefur trú á verkefninu og finnst þetta spennandi.“

Page 24: 22.tbl_2011

vf.isvf.is

Opið frá kl. 8:00 - 17:00Engar tímapantanir

Njarðarbraut 7

Bifreiðaskoðun

GOLFTÍÐIN ER HAFINNÝIR FÉLAGAR VELKOMNIR

NÝJAR MOTTUR Á ÆFINGASVÆÐINU OPIÐ TIL 22:00 ÖLL KVÖLD VEITINGASALAN OPIN ALLA DAGA

FYRIR KYLFINGA OG AÐRA GESTI

GLÆSILEG BARNADAGSKRÁ Á SJÓARANUM SÍKÁTA

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á barnadagskrá á sjómanna- og fjölskylduhátíðinni Sjóaranum síkáta í Grindavík, laugardaginn 4. júní og sunnudaginn 5. júní. Barnadagskráin er í boði Landsbankans.

Dagskrá Sjóarans síkáta og allar nánari upplýsingar eru á www.sjoarinnsikati.is

Dagskrá

Töframennirnir Ingó og Einar Mikael

Sirkus Sóley

Hoppukastali

Dorgveiðikeppni

Götukörfubolti

Vatnsrennibraut

og margt fl eira

Sproti

Skoppa og Skrítla

Íþróttaálfurinn og Solla Stirða

Björgvin Franz og félagar

Brúðubíllinn

Friðrik Dór

Sproti mætir hress að vanda.Sproti mætir hress að vanda.

Skoppa og Skrítla verða á staðnum.

Miðvikudagurinn 1. júní 2011 • 22. tölublað • 32. árgangur

auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001

MUNDI

Þjófar með jukkuá rúntinum?

SVART & SYKURLAUSTKarlmenn á jeppa

stálu jukkuÓsvífnir þjófar voru á ferðinni í Keflavík á dögunum og var þýfið all sérstakt. Þannig sáu íbúar í íbúðum eldri borgara við Kirkjuveg undir iljarnar á tveim-ur karlmönnum á jeppa þar sem þeir báru á milli sín stóra og myndarlega jukku, stungu henni inn í bílinn og óku á brott. Núna finnst íbúum hússins sameignin vera tómleg og vilja endilega fá jukkuna sína til baka.

14 ára internetstjarnafrá Keflavík

Fjórtán ára strákur að nafni Grétar Ágúst Agnarsson hef-ur heldur betur verið að gera það gott á myndbandsvefnum youtube.com að undanförnu. Hann sendi frá sér skemmtilegt myndband þar sem hann gerir nýja útgáfu af Coca- Cola laginu en gosdrykkurinn sjálfur kemur við sögu í laginu. Myndbandið má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is.

Fékk eina spurninguí starfsviðtali

Pólitíkin fékk blautt handklæði í andlitið þegar innanríkisráðu-neytið úrskurðaði ráðningu Bjarkar Guðjónsdóttur í stöðu verkefnastjóra hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum ólöglega. Formaður stjórnar SSS bendir á að það hafi ver-ið fyrri stjórn sem réð Björk. Starfsviðtölin sem tekin voru í ráðningarferlinu voru eitthvað innihaldslaus, samkvæmt heim-ildum sem svart & sykurlaust hefur. Þannig var maður boð-aður af höfuðborgarsvæðinu í viðtal og eina spurningin sem hann fékk var, hvaða launakröfu hefur þú?