8-1 einkenni hryggdýra bls. 144-145

75
1

Upload: dee

Post on 19-Mar-2016

93 views

Category:

Documents


11 download

DESCRIPTION

8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145. Hryggdýr hafa burðarsúlu sem nefnist hryggur. Hann ber uppi líkamann og veitir honum ákveðna lögun. Einnig verndar hann mænuna. Hryggur er ýmist úr brjóski eða beini og skiptist í hryggjarliði. Hryggur úr beini. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

1

Page 2: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

2

8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145.

• Hryggdýr hafa burðarsúlu sem nefnist hryggur. Hann ber uppi líkamann og veitir honum ákveðna lögun. Einnig verndar hann mænuna.

• Hryggur er ýmist úr brjóski eða beini og skiptist í hryggjarliði.

Page 3: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

3

Hryggur úr beini

Page 5: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

5

8-2 Fiskar bls. 145-149.• Elstu hryggdýr jarðarinnar. Komu fram fyrir um

540 milljónum ára.• Stærstu flokkar brjóskfiskar og beinfiskar.• Anda með tálknum enda best fallnir til lífs í vatni. • Straumlínulaga, sleipir, venjulega þaktir hreistri

(eða skráp).• Hafa ugga til að hreyfa sig með og stjórna

hreyfingu.Stirtlan og sporður eru sundfæri.

• Lifa í fersku vatni eða söltu.

Page 6: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

6

Þorskur

Page 7: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

7

Brjóskfiskar• Hafa stoðgrind úr brjóski.• Dæmi: Háfiskar (hákarlar og háfar) og skötur .• Húð flestra brjóskfiska kallast skrápur. Hann er ekki

slímkenndur eins og roð beinfiska heldur hrjúfur vegna örsmárra gadda sem minna á tennur.

• Margir brjóskfiskar fæða lifandi unga – hafa því innri frjóvgun.

• Skötur og fleiri brjóskfiskar verpa eggjum sem eru eitt og eitt í hornkenndu hylki – pétursskipi.

• Háfiskar hafa hvorki sundmaga né tálknlok og verða því að synda stöðugt til að sökkva ekkieða kafna.

Page 8: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

8

Skata ásamt egghylki- pétursskipi

Page 9: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

9

Brjóskfiskur - hákarl

Page 10: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

10

Page 11: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

11

Page 12: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

12

Page 13: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

13

Page 14: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

14

Page 15: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

15

8-2 frh. Beinfiskar• Beinfiskar skipa stærsta flokk hryggdýra. Minnsta

kosti 20.000 tegundir. Um 200 teg. lifa við Ísland í sjó eða í fersku vatni.

• Hafa stoðgrind úr beini.• Húðin kallast roð, er slímkennd og oftast þakin

hreistri. Hreistrið er þunnar beinplötur sem sitja í húðinni.

• Rákin er skynfæri sem greinir m.a. titring í vatni og hljóð.

• Sundmagi er notaður til að stjórna eðlisþyngd.• Hafa flestir ytri frjóvgun. Fæðing unga þekkist.

Page 16: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

16

Beinfiskur - karfi

Page 17: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

17

8-3 Froskdýr bls. 150-152.• Froskdýr eru hryggdýr, líkjast á unga aldri fiskum,

lifa þá í vatni og anda með tálknum. Skríða síðan flest á land og anda með húð og lungum sem fullvaxin dýr.

• Froskar hafa ytri frjóvgun. Hrygningin fer fram í vatni.

• Lungun eru óþroskuð og fer öndun því einnig fram gegnum húð sem þá er háð raka.

• Þrír helstu hópar eru froskar, salamöndrur og körtur.

Page 18: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

18

Froskar

• Froskar klekjast úr eggi og hefja ævina sem fótalausar lirfur sem minna á fiskseiði. Lirfurnar nefnast halakörtur. Þær hafa langan og áberandi sundhala, eru með tálkn og geta andað í vatni. Smám saman breytast þær, halinn rýrnar, fætur taka að myndast og tálknin hverfa. Samtímis þroskast lungu inni í líkamanum og síðan skríða dýrin á land. Flestir froskar leggjast í dvala yfir kaldasta hluta ársins.

Page 19: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

19

Lífsferill froska

Page 20: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

20

Froskar

Page 21: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

21

Page 22: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

22

Hver segir að froskar séu alltaf grænir?

Page 23: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

23

Page 24: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

24

Halakarta

Page 25: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

25

Salamöndrur

• Ólíkt froskum eru salamöndrur búklangar og með hala alla ævina. Fætur eru einnig styttri (afturfæturnir). Salamöndrur eru háðar raka líkt og froskar. Þær verpa í vatni og sumar dvelja þar allt sitt æviskeið.

Page 26: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

26

Salamöndrur

Page 27: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

27

8-4 Skriðdýr bls. 152-155.

• Skriðdýr hafa misheitt blóð, anda með lungum og hafa þurra og hreisturkennda húð. Þau verpa eggjum sínum á landi og ala unga sína upp þar.

• Í flokki núlifandi skriðdýra eru slöngur, eðlur, skjaldbökur og krókódílar.

Page 28: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

28

Skriðdýr

• Skriðdýr eru ekki háð vatni á sama hátt og froskdýrin þar sem þeim er ekki nauðsynlegt að dvelja hluta af ævi sinni í vatni.

• Húð þeirra er vatnsþétt og því eru dýrin ekki háð röku umhverfi.

• Egg skriðdýra eru með leðurkennda skurn sem kemur í veg fyrir ofþornun þótt þeim sé verpt á landi. Hafa innri frjóvgun sem verður áður en skurnin myndast.

Page 29: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

29

Slöngur

• Sumar slöngur hafa eiturkirtla sem fram-leiða eitur sem notað er til að lama bráð eða drepa. Slöngur hafa einnig mjög næm skynfæri sem auðveldar þeim að finna bráð.Tungan er notuð til að finna lykt/bragð. Hafa slæma sjón og heyrn. Hreisturplötur á kvið hjálpa þeim að liðast áfram. Stærstu slöngurnar eru vatnabóa og flekkjaspýtan. Þær eru um 10 m á lengd.

Page 30: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

30

Snákur

Page 31: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

31

Page 32: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

32

Eðlur

• Flestar eru smávaxnar. Kameljónið getur skipt litum og falist þannig fyrir óvinum sínum, líkir eftir litum í umhverfinu. Ef óvinur getur náð taki á hala þeirra, losnar hann af en nýr getur vaxið í staðinn.

Page 33: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

33

Page 34: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

34

Page 35: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

35

Page 36: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

36

Page 37: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

37

Kameljón

Page 38: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

38

Kameljón

Page 39: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

39

Skjaldbökur

• Helsta einkenni þeirra eru þykkar plötur úr hyrni sem hylja líkama þeirra og mynda varnarskjöld. Skjaldbökur lifa ýmist á landi eða í vatni en allar verpa eggjum á landi. Þær eru tannlausar og nærast á plöntum eða dýrum. Risaskjaldbökur geta orðið allt að 200 ára gamlar.

Page 40: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

40

Skjaldbaka

Page 41: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

41

Margt smátt gerir eitt stórt!

Page 42: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

42

Page 43: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

43

Krókódílar

• Krókódílar eru náskyldir risaeðlunum. Þeir eyða mestum af tíma sínum í vatni og veiða oft stór dýr eins og sebrahesta. Móðir hugsar vel um afkvæmi sín og ber þau jafnvel í munninum.

Page 44: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

44

Breiðtrýningur

Page 45: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

45

Krókódíll

Page 46: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

46

8-5 Fuglar bls. 156-161.

• Fuglar eru fiðruð hryggdýr með jafnheitt blóð og verpa eggjum.

• Egg fugla hafa um sig harða skurn úr kalki. Allur forði ungans rúmast í egginu . Loftskipti súrefnis og koltvíoxíðs fer fram

gegnum skurnina.

• Til eru um 9000 tegundir fugla sem skiptast í fjölmarga ættbálka og ættir. Hér á landi verpa 70-80 tegundir.

Page 47: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

47

Kría

Page 48: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

48

8-5 Fuglar framhald

• Fyrstu fuglarnir lifðu á jörðinni fyrir um 150 milljónum ára á blómaskeiði risaeðlanna. Þessir frumstæðu fuglar nefnast eðlufuglar og báru ýmis einkenni skriðdýra s.s. langa rófu og hvassar klær.

• Núlifandi fuglar hafa ein einkenni skriðdýra, hreisturkennda húð á fótum.

Page 49: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

49

Microraptor gui – hlekkur milli flugeðla og fugla

Page 50: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

50

Skipting fugla

• Í Lifandi veröld er fuglum skipt í fimm meginhópa: spörfugla, sundfugla, vaðfugla, ránfugla og ófleyga fugla.

Page 51: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

51

1. Spörfuglar

• Spörfuglar hafa svokallaðan setfót sem hentar vel til að grípa um trjágreinar. Snúa þá 3 tær fram en ein aftur. Af um 5000 teg. þekkjast hér á landi m.a. hrafn, skógar-þröstur og músarrindill Hrafn

Page 52: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

52

2. Sundfuglar

• Sundfuglar hafa flestir sundfót með fit milli tánna sem þeir nota við köfun og sund. Dæmi: endur, gæsir, máfar, svartfuglar.

Grágæsir

Page 53: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

53

Hverra anda er ég?

Page 54: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

54

3. Vaðfuglar

• Vaðfuglar Eru háfættir og vaða í grunnu vatni í leit að æti. Dæmi: spói, stelkur.

Spói

Page 55: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

55

4. Ránfuglar

• Ránfuglar eru vel fleygir, sjá vel og hafa sterkan gogg og sterkar klær. Dæmi: haförn, fálki, smyrill.

Fálki

Page 56: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

56

5. Ófleygir fuglar

• Ófleygir fuglar hafa flestir sterka hlaupafætur og eru fráir á fæti. Dæmi: strútur, nandúi og emúi.

Mörgæsir synda hratt en ganga hægt.

Emúi

Page 57: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

57

Í hvaða hópi eigum við heima?

Page 58: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

58

Page 59: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

59

Ófleygur fugl - Strútur

Page 60: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

60

Aðlögun fugla að flugi bls.159.

• Sterk og létt bein sem eru samt hol að innan.• Mismunandi fiður. Sumar eru fíngerðar dúnfjaðrir en aðrar

lengri með stinnum fjöðurstaf og nefnast þakfjaðrir. Handflugfjaðrir í vængjum eru lengstar en þær skapa stóran hluta af lyftikrafti flugsins. Í

stéli eru líka langar fjaðrir –stélfjaðrir til að stýra á flugi.

• Sterkur bringuvöðvi til að knýja vængina.• Fullkomin lungu sem taka upp mikið af súrefni

sem er nauðsynlegt vegna mikillar brennslu á flugi.

Page 61: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

61

Page 62: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

62

Atferli fugla bls. 159-161.

• Fuglar helga sér óðal með ýmsum hætti m.a. með söng og hljóðum. (Óðal er tiltekið svæði sem dýr helga sér og ætla sér og sínum til afnota.)

• Hljóð eru notuð til að laða til sín maka og vara við hættum.

• Sumir karlfuglar nota skæra liti og dans til að laða til sín maka.

• Sumir karlfuglar gera glæsileg hreiður til að lokka til sín maka.

Page 63: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

63

Far fugla bls. 161.

• Far er það nefnt þegar fuglar skipta um búsvæði árstíðabundið. Margir fuglar fara í langar ferðir milli varpstöðva og vetrar-stöðva. Dæmi: krían sem hefur vetursetu á suðurhveli jarðar en verpir á norðurslóðum.

Page 64: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

64

8-6 Spendýr bls. 162-169.• Spendýr eru hærð á einhverju stigi ævinnar, eru með

jafnheitt blóð og mjólkurkirtla.• Fyrstu spendýrin komu fram fyrir um 200 milljónum

ára. Þróuðust af skriðdýrum.• Til eru um 4500 tegundir sem skiptast í marga

ættbálka.• Spendýr anda öll með lungum, hafa tvískipt fjögurra

hólfa hjarta.• Taugakerfi er háþróað og heili fullkominn.• Frjóvgun fer fram innvortis. Spendýrum er skipt eftir

fósturþroska í nefdýr, pokadýr og fylgjudýr.

Page 65: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

65

Nefdýr• Eru frumstæðustu spendýrin.• Verpa eggjum en frjóvgun er innvortis.• Hafa enga spena, bara mjólkurop.• Þrjár tegundir til allar í Ástralíu.

-Breiðnefur lifir í ám og vötnum. Er með sundfit, vatnsheldan feld og gogg sem minnir á andargogg.-Mjónefur -tvær teg. Með langa brodda á baki og mjóan gogg.

Page 66: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

66

Breiðnefur

Page 67: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

67

Mjónefur

Page 68: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

68

Pokadýr

• Fæða vanþroska unga (fóstur) sem skríða í poka á kviði móður. Sjúga sig fasta á spena þar til þroska spendýrsunga er náð.

• Kengúran er þekktust pokadýra. Önnur eru kóalabirnir og pokarottur. Kengúrur og kóalabirnir lifa í Ástralíu en pokarottur lifa bæði þar og í Ameríku.

Page 69: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

69

Kengúra

Page 70: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

70

Kóala björn

Page 71: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

71

Fylgjudýr bls. 164-169.

• Flestar tegundir spendýra eru fylgjudýr.• Ungi fylgjudýra þroskast í líkama móður

og fær súrefni og næringu um fylgjuna (legkökuna).

• Fylgjudýr skiptast í 15 ættbálka.

Page 72: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

72

Nokkrir ættbálkar fylgjudýra 1• Skordýraætur – frumstæð spendýr sem lifa

á skordýrum t.d. moldvörpur, broddgeltir og dversnjáldran sem er minnsta spendýrið.

• Leðurblökur – einu fleygu spendýrin. Dæmi: vampíra og flugrefur.

• Rándýr – eru sérlega löguð til veiða, hafa hvassar tennur og klær og öfluga vöðva. Dæmi: kettir, hundar, ljón, selir, birnir.

Page 73: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

73

Ættbálkar fylgjudýra 2• Tannleysingjar – Dæmi: letidýr, maura-

ætur og beltisdýr. • Fílar – einkenni þeirra er raninn. Tvær

tegundir, afríkufíll og asíufíll.• Hófdýr – eru grasbítar með hófa. Dæmi:

hestur og nashyrningur.• Klaufdýr – eru grasbítar með klaufir.

Dæmi: nautgripir, gíraffi, svín.

Page 74: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

74

Ættbálkar fylgjudýra 3• Nagdýr – stærsti ættbálkur spendýra 2000

teg. Hafa nagtennur sem vaxa alla ævina. Dæmi: mýs og rottur.• Nartarar – náskyldir nagdýrum. Dæmi:

kanínur, hérar, blísturshérar og múshérar.• Hvalir – sjávardýr, stærstu dýr jarðar.

Skiptast í tannhvali og skíðishvali. Dæmi: steypireyður stærsta dýr jarðar.

Page 75: 8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145

75

Ættbálkar fylgjudýra 4

• Sækýr – eru jurtaætur sem lifa í grunnum sjó og eru skyldar fílum.

• Prímatar – hafa vel þroskaðan heila, grip á höndum og fótum (nema menn), augun sitja framan á höfðinu. Til prímata teljast apar og menn.