að orða hugsun s ína

42
Að orða hugsun sína Steingerður Steinarsdóttir

Upload: caine

Post on 27-Jan-2016

57 views

Category:

Documents


4 download

DESCRIPTION

Að orða hugsun s ína. Steingerður Steinarsd óttir. Ég skildi, að orð er á Íslandi til um allt sem er hugsað á jörðu. (Móðir mín Vogar 1921). Sk áldskapurinn og víman Fr á aldaöðli hafa menn tengt skáldskapinn við einhvers kona vímu eða guðlegan innblástur. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Að orða hugsun s ína

Að orða hugsun sína

Steingerður Steinarsdóttir

Page 2: Að orða hugsun s ína

Ég skildi, að orð er á Íslandi til

um allt sem er hugsað á jörðu.

(Móðir mín Vogar 1921)

Page 3: Að orða hugsun s ína

• Skáldskapurinn og vímanFrá aldaöðli hafa menn tengt skáldskapinn við einhvers kona vímu eða guðlegan innblástur.

Óðinn tældi Gunnlöðu og stal af henni Suttungamiðinum sem gerði hann að skáldi. En sagt var að sá mjöður svifi kröftuglega á þá sem af honum supu.

Í Íslendingasögunum sitja menn iðulega við drykkju þegar kvæði og drápur verða til.

Page 4: Að orða hugsun s ína

Bæði Grikkir og Rómverjar tengdu skáldskapinn við drykkjuskap og Díonýsos og Bakkus voru gjarnan blótaðir áður en skáldgáfan náði tökum á mönnum. Þjóðsögur herma að gríska harmleikjaskáldið Eskílos (Aískhylos) hafi samið öll sín leikrit í ölvímu. Aristóteles taldi að skáldin hefðu hæfileika til að verða frá sér numin og Rómverjar kölluðu skáldgáfuna sem hið ljúfa æði eða amabilis insania.

Page 5: Að orða hugsun s ína

Hinar innri sjónir

Í forngrískum sögnum voru skáldin oft blind. Demódókus sem segir frá í Odysseifskviðu Hómers var blindur. Kannski er þess vegna talið að Hómer sjálfur hafi verið blindur. Skáldin þurftu ekki á sjóninni að halda því þau höfðu innri sjónir sem þau höfðu þegið að gjöf frá Appólon. Platón telur að skáldið sé léttfætt vera, fleyg og helg og það getur ekki ort fyrr en það er orðið frá sér numið og vitstola. Hlutverk skálda var að túlka einhvers konar sammannlegan sannleika og vera tengiliður milli fornra og nýrra tíma.

Page 6: Að orða hugsun s ína

Spádómar og kraftaskáld

Völuspá er lögð í munn völvu sem er alvitur um fortíðina en sér einnig fram í tímann. Hún syngur um það sem verið hefur og verður. Hér á landi var lengi ríkjandi sú trú að til væru kraftaskáld sem gátu kveðið þá sem gerðu þeim illt yfir móðuna miklu. Níðvísur áttu menn einnig bágt með að þola og segja má að nágrannar Bólu-Hjálmars hafi haft nokkra ástæðu til að hugsa illa til hans því níðvísur hans um Akrahrepp hafa lifað með þjóðinni þótt engin muni nú lengur tilefni þeirra.

Page 7: Að orða hugsun s ína

Línulaga Frásögn

1. Upphaf

2. Miðja

3. Endir

Page 8: Að orða hugsun s ína

Laumuspil í leyniþjónustunni

I. Upphaf: Sagan hefst á því að dómsmálaráðherrra finnst myrtur á skrifstofu nýstofnaðrar leyniþjónustu á vegum ráðuneytisins.

a) Fyrsti kafli: Jóna Jóns. hreingerningakona kemur inn á skrifstofu leyniþjónustunnar til að þrífa.

b) Líki dómsmálaráðherra hefur verið troðið undir skrifborðið og skrifborðsstóllinn færður vandlega að því.

Page 9: Að orða hugsun s ína

c) Lýsing á hvernig Jóna þrífur allt í kringum líkið án þess að sjá það en þegar hún tekur fram skrifborðstólinn fellur dómsmálaráðherra

að fótum hennar. Kaflinn endar á skerandi veini sem berst um bygginguna og bergmálar á tómum göngunum.

Page 10: Að orða hugsun s ína

II. Miðja: Meginmál sögunnar segir frá rannsókn málsins. Af hálfu lögreglunnar er hún í höndum Sigfinns rannsóknarlögreglumanns. Sigfinnur er drykkfellt karlrembusvín og alls ekki með á nótunum. Það er því undir rannsóknarblaðamanninum Kristínu Hersveinsdóttur komið að leysa þetta flókna mál en hún hefur myndað tengsl við undirheima borgarinnar.

Á eftir þessu fylgir svo nánari sundurgreining á hverjum kafla fyrir sig og hvernig rannsókninni vindur fram.

Page 11: Að orða hugsun s ína

III. Endirinn er svo nokkrir æsispenanndi lokakaflar þar sem Kristín þarf að takast á við Olgu Federovu, lettneskan mafíuforingja sem er ákveðinn í að hasla sér völl hér á landi og hefur þegar náð umtalsverðum ítökum í nokkrum stórum fyrirtækjum. Þessar sterku konur mætast í mögnuðu lokauppgjöri sem endar með því að

önnur liggur í valnum.

Page 12: Að orða hugsun s ína

Ritgerðir byggja mikið til á sama formi.

1. Inngangur.

2. Meginmál.

3. Niðurlag.

Page 13: Að orða hugsun s ína

Beinagrind af ritgerð

Ritgerð um gildi Íslendingasagna § Inngangur a) Sögulegur bakgrunnur sagnanna,

höfundar og ritungartími. b) Efnisyrðing: Íslendingasögur eru

klassískar heimsbókmenntir sem hafa skírskotun enn í dag.

Page 14: Að orða hugsun s ína

2. Meginmál a) Umfjöllun um bókfestu- og

sagnfestukenningarnar. Íslendingasögurnar á miðöldum og fleira. Þáttur þeirra í að móta sjálfsmynd þjóðarinnar.

3. Niðurlaga) Skoðað hvernig Íslendingasögurnar

hafa haft áhrif á ýmsa rithöfunda, kvikmyndagerðamenn og fleira. Gildi þeirra fyrir nútímamanninn skoðað.

Page 15: Að orða hugsun s ína

1. Um hvað ætla ég að fjalla?

2. Hvað er áhugaverðast við það sem ég hef að segja?

3. Hvaða hughrifum vil ég ná fram hjá þeim sem frásögnin er ætluð?

4. Hvernig er best að gera það?

Page 16: Að orða hugsun s ína

Almennt gildir að eftir að höfundur hefur mótað skýrt í huganum það sem hann ætlar að fjalla um, búið til efnisyrðingu þá raðar hann öðrum atriðum á eftir henni í röð eftir mikilvægi. Það sem er áhugaverðast eða mikilvægast fyrir framvindu sögunnar kemur fyrst síðan það sem síðra er og í lokin er frásögnin hnýtt saman og hnykkt á þeim útgangspunkti sem byrjað var með í upphafi.

Page 17: Að orða hugsun s ína

II. Munnleg frásögn

Munnleg frásögn byggir að mörgu leyti á sömu lögmálum og rituð frásögn. Helsti munurinn er sá að í munnlegri frásögn getur sögumaður auðgað söguna með því að breyta um raddblæ, nota líkamstjáningu og svipbrigði til að auka áhrif ýmissa atburða og með því hreinlega að leika persónur og atburði.

Page 18: Að orða hugsun s ína

Í munnlegri frásögn er enn mikilvægara að halda góðu skipulagi en í ritaðri. Til að mynda er mjög ruglingslegt þegar saga hleypur fram og aftur í tíma. Í rituðu máli er slíkt oft gert en þá getur lesandinn flett til baka og glöggvað sig á því sem ekki er skýrt. Það er ekki hægt í munnlegri frásögn þannig að sögumaður verður að halda vel utan um ytri uppbyggingu frásagnarinnar og passa að hvorki skeiki í tíma eða rúmi.

Page 19: Að orða hugsun s ína

Skynjun og myndmál

Page 20: Að orða hugsun s ína

Hvernig skynjum við?

Skilningarvitin eru fimm.

1. Sjón

2. Heyrn

3. Bragð

4. Lykt

5. Tilfinning

Page 21: Að orða hugsun s ína

Með notkun myndmáls er verið að höfða til skilningarvitanna og með að vekja eins mörg þeirra og hægt er því áhrifameiri verður textinn.

Við höfum öll tilhneigingu til að lýsa fyrst og fremst því sem við sjáum en gleymum að hljóð, lykt, bragð eða tilfinning geta vakið upp viðbrögð engu að síður en það sem augað sér.

Page 22: Að orða hugsun s ína

Ljósið kemur langt og mjótt,

logar á fífustöngum

Halla kerling fetar fljótt

framan eftir göngum.

Page 23: Að orða hugsun s ína

Myndmál

Bein mynd

Bein mynd er það kallað þegar dregin er upp bein mynd úr raunveruleikanum án þess að notað sé einhvers konar viðmið, viðlíking eða tilraun til endursköpunar.

Handan við Okið er hafið grátt,

heiðarfugl stefnir í suðurátt. (Á Rauðsgili e. Jón Helgason)

Page 24: Að orða hugsun s ína

Líking

Líking er fólgin í því að einhverju er líkt við eitthvað annað. Lesandinn verður þá að þekkja til þess fyrirbæris sem líkt er við og geta séð hann fyrir sér.

sólin var hjá mér,

eins og grannvaxin kona

í gulum skóm. (Tíminn og vatnið e. Stein Steinarr)

Page 25: Að orða hugsun s ína

Eins og kórall í djúpum sjó varst þú undir bláum himninum, eins og sylgja úr drifnu silfrihvíldir þú á brjóstum jarðarinnar. Sorg e. Jóhann Sigurjónsson

Fuglar sem flugu yfir hafiðmeð fögnuði og vængjagný,- hurfu í himinblámannhratt eins og vindlétt ský. (Heimþrá e. Jóhann Sigurjónsson)

Page 26: Að orða hugsun s ína

Svo er um okkar ást í milli sem hús standi hallt í brekku,svigni súlur, sjatni veggur,sé vanviðaðvöldum bæði. (Úr Bryngerðarljóðum)

Page 27: Að orða hugsun s ína

Myndhverfing

Myndhverfing er ekki ósvipuð líkingu nema tengiorðið er fallið brott. Í stað þess að segja að sumir dagar séu eins og hús er fullyrt að sumir dagar séu hús, að ljósið vaki stillt í stjakans hvítu hönd eða ljóðið vængjaður fugl.

Page 28: Að orða hugsun s ína

Gleðin er fífill í garði manns og ljóð sem vaknar á vörum hans. (Þorsteinn Valdimarsson)

Ást er föstum áþekk tindÁst er veik sem bóla,Ást er fædd og alin blind,Ást sér gegnum hóla. (Steingrímur Thorsteinson)

Page 29: Að orða hugsun s ína

Persónugerving

Persónugerving er það kallað þegar alls kyns raunveruleg fyrirbæri eða hugtök er gefið líf og þau látin birtast eins og gerendur eða persónur með eigin skapgerðareinkenni, hæfileika og útlit.

Page 30: Að orða hugsun s ína

Ljósið loftin fyllir og loftin verða bláVorið tánum tyllir tindana á. (Þorsteinn Gíslason)

Page 31: Að orða hugsun s ína

• ShakespeareThere is a tide in the affairs of men, Which taken at the flood leads on to fortune,Omitted, all the voyage of their lifeIs bound in shallows and in miseriesUpon such a sea are we now afloat, We must take the current when it serves Or lose our ventures.

• Hugrökk teygist á háum legghvönnin fram yfir gljúfravegg,dumbrauðu höfði um dægrin ljósdrúpir hin vota engjarós. (Á Rauðsgili e. Jón Helgason)

Page 32: Að orða hugsun s ína

Endurtekning

Endurtekning er stílbragð sem getur gefist vel en það er vandmeðfarið. Ekki má ofnota endurtekna orðið. Stundum verða sífelldar endurtekningar eins frekar til marks um orðafæð höfundar en stílleikni hans.

Page 33: Að orða hugsun s ína

Vappar ósyndur ungi á bakka

með augun blikandi af þrá -

en sumir þora ei til þess að hlakka

sem þeim er annast að fá.

Gegn svo mörgu sem guð þeim sendir

menn gera kvíðann að hlíf,

og kvíða oft því sem aldrei hendir,

og enda í kvíða sitt líf. (Vikivaki e. Guðmund Kamban)

Page 34: Að orða hugsun s ína

Vonin styrkir veikan þrótt,

vonin kvíða hrindir,

vonin hverja vökunótt

Vonarljósin kyndir. (Vonin e. Pál Ólafsson)

Page 35: Að orða hugsun s ína

Mér fannst mjög fallegt í London. Þar voru fallegar byggingar, falleg föt í búðunum og fallegir garðar. Mér fannst líka mjög gaman að vera þar, gaman að ganga um, gaman að fara í búðirnar og gaman skemmta sér þar.

Page 36: Að orða hugsun s ína

• KvöldÁ grunnsævi kvölds flæðir gullinn straumur um þéttriðin net nakinna trjánna og fyllir þau ljóskvikum fiskum.

Bráðum kemur rökkrið undir brúnum seglumog vitjar um aflann.

Page 37: Að orða hugsun s ína

Nokkur dæmi um myndmál í óbundnum texta.

Vani er vani og enginn getur einfaldlega fleygt honum út um gluggann. Hins vegar er hægt að lokka hann niður stigann, þrep fyrir þrep. (Mark Twain)

Fegurðin og mannlífið eru tveir elskendur sem fá ekki að hittast.(Heimsljós e. Halldór Laxness)

Page 38: Að orða hugsun s ína

The night is a jet black lake. A person could sink down and disappear without a trace.

No wonder he never fought back. Her weapons are invisible, and she would never admit to even carrying them much less putting them to use. (Jest of God Margaret Laurence)

Page 39: Að orða hugsun s ína

Kreppan er eins og vindurinn. Enginn veit hvaðan hún kemur eða hvert hún fer.

(Ásgeir Ásgeirsson)

,Maður er langa ævi að hrapa, hrapa og lengst niðri í botninum er tjara, tjörudíki þar sem litlar mýs byltast og krafsa í seigri eðjunni, með örlitlum smágerðum fótum og berjast við dauðann. (Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns e. Ásta Sigurðardóttur)0000

Page 40: Að orða hugsun s ína

Þegar um það bil tíu minútur voru liðnar af kennslustundinni var bankað á dyr kennslustofunnar. Siggi kíkti inn og gekk síðan í sæti sitt. Hann dró skólatöskuna á eftir sér og á leið framhjá borði Gunnu rakst hún í borðfótinn svo af hlaust nokkur skarkali.

Siggi flýtti sér að setjast og taka upp kennslubókina og fór að fletta í henni.

Page 41: Að orða hugsun s ína

Varla voru liðnar nema tíu mínútur af tímanum þegar barið var að dyrum í kennslustofunni. Halla kennari kallaði: Kom inn. Siggi stakk úfnum rauðhausnum í gættina. Afsakaðu hvað ég er seinn, sagði hann feimnislega. Hann smeygði sér inn og gekk niðurlútur af stað í átt að borðinu sínu. Hann dró þunga töskuna á eftir sér en þegar hann ætlaði að kippa henni upp á öxlina rakst hún í borðfótinn á borði Gunnu.

Page 42: Að orða hugsun s ína

Af þessu hlaust mikill skarkali og Siggi eldroðnaði. Hann flýtti sér að setjast og þorði varla að líta upp en teygði sig í kennslubókina í töskunni. Um leið og bókin var komin á borðið grúfði Siggi sig yfir hana og fletti í henni sem mest hann mátti. Það var engu líkara en líf lægi við að hann fyndi kaflann sem verið var að fara í.