að uppgötva hið heilaga í náttúrunni
DESCRIPTION
Að uppgötva hið heilaga í náttúrunni. - Hugleiðingar um Hvítbókina og friðlýsingar. Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, M.Sc. Umhverfisfræðingur o g ráðgjafi í umhverfismálum. Mengun á Everestfjalli. Magn kadmíums og arseniks í snjónum á toppi Everestfjalls er yfir öryggismörkum. - PowerPoint PPT PresentationTRANSCRIPT
- Hugleiðingar um Hvítbókina og friðlýsingar.
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, M.Sc.Umhverfisfræðingur
og ráðgjafi í umhverfismálum
Magn kadmíums og arseniks í snjónum á toppi Everestfjalls er yfir öryggismörkum.
Háloftavindar eru taldir hafa borið mengunina frá iðnaðarborgum Asíu.
Bakgrunnsgildi mengunar á ósnortnum svæðum jarðar eru að hækka smám saman.
Öll Jörðin er að mengast – ekkert landsvæði er óhult.
Ósnortin náttúra er að verða afskaplega verðmæt svo verðmæt að ekki er hægt að meta hana til fjár.
Náttúra Íslands er verðmæti sem við eigum í dag, en sem við gætum auðveldlega glatað á morgun.
Náttúruvernd á Íslandi er fyrst og fremst fyrirbyggjandi í eðli sínu.
Ekki er hægt að laga eyðilögð svæði eftir á sbr. ofauðgun stöðuvatna.
Bandaríkjamenn er farið að skorta vatn
Kínverja skortir nú þegar vatn
Jöklarnir í Himalaja eru að bráðna
Stórfljótin Ghanges og Brahmaputra gætu þornað upp
Umhverfisflóttamenn í leit að drykkjarvatni!
Jöklar og ósnortin víðerni Íslands eru vatnsforðabúr sem verða æ verðmætari sé horft til framtíðar.
Boutros Boutros-Ghali sagði að samkeppni um vatnsauðlindir jarðar gæti valdið styrjöldum í framtíðinni.
Ekki skrýtið að erlendir aðilar vilji eignast vatnsauðlindir á Íslandi.
Verðum að sýna fyrirhyggju og horfa a.m.k. 500 ár fram í tímann!
Tímamótaverk í umhverfismálum á Íslandi
Náttúruvernd á Íslandi er skoðuð út frá alþjóðlegum sjónarhóli og með hliðsjón af löggjöf á hinum Norðurlöndunum
Siðferðilegt mat er tekið með og málin skoðuð frá mörgum hliðum
Til hamingju með hvítbókina!
Ýmsar hugsanir koma upp við lestur bókarinnar!
Er hægt að friðlýsa vistkerfi sem maðurinn er í beinum samskiptum við?
Af hverju hafa svona fá búsvæði verið friðlýst?
Hugmyndir um net verndarsvæða eru mjög mikilvægar. Forðast skal að vernda einangruð svæði.
Rannsóknir eru nauðsynleg forsenda friðlýsinga en það þarf að flýta þeim. Það liggur á að friðlýsa mörg svæði á Íslandi. Undirbúningur friðlýsinga er brýnt viðfangsefni sem þarf að hafa forgang á hinum stjórnmálalega vettvangi.
Að friðlýsa náttúruvé er afar brýnt. Veitir sterka vernd.
Sérstakur flokkur – óbyggð víðerni er mikilvægur. Þó má ekki gleyma náttúruvættum/véum í byggð.
Fagna skal áætlunum um sérstaka landslagsvernd.
Munu friðlýsingar halda, eða verður hægt að breyta þeim í framtíðinni?
URRIÐAFOSS
Mannleg samfélög eru gjörsamlega háð vistkerfum og þjónustu náttúrunnar
Engar tæknilegar lausnir geta komið í staðinn fyrir þá þjónustu sem náttúran veitir t.d. við miðlun og hreinsun grunnvatns.
Meira að segja út frá sjónarhóli mannhyggjunnar er óráðlegt að ganga of nærri náttúrunni.
Ef ekkert er heilagt verður allt leyfilegt!
Faðir vor og móðir vorÞú sem ert á himni og jörðuHelgist þitt nafnog til komi þitt ríki...Hvernig við hugsum um heiminn og hverju við trúum skiptir máli!Allt sem við hugsum skiptir máli!
Við getum umbreytt veröldinni:með því að breyta hegðun okkar og lífsstíl, með því að gefa meira en við þiggjum, með því að rækta allt sem lifir, vökva, næra og gefa öllu lífi framtíð og von.
Man must cease attributing his problems to his environment, and learn to exercise his will - his personal responsibility. - Albert Schweitzer