afreksfólk aron baldvin lillý sara

2
Afreksfólk Handrit af myndbandi Afreksmanneskjur eru manneskjur sem að skara fram úr öðrum í því sem að þeir gera. Menn eins og Lionel Messi, Ronaldinho, Jón Margeir Sverrisson, Tiger Woods og Usain Bolt hafa allir náð ótrúlegum árangri í sinni íþrótt, með stanslausum æfingum og með hausinn á réttum stað. Svo eru menn eins og Lance Armstrong sem að fóru ólöglegar leiðir í því að ná árangri. Við ætlum að fjalla um alla þessa menn í þessu myndbandi. Lionel Messi: Besti knattspyrnumaður nútímans, meira að segja allra tíma að sumra mati. Hann er 25 ára leikmaður Barcelona á Spáni og er lykilinn af velgengni þeirra síðustu ár. Hann hefur spilað með aðalliði þeirra síðan 2005 en þá var hann 18 ára. Hann hefur 3 sinnum unnið Ballons D‘Or sem er verðlaun fyrir að vera besti leikmaður heimsins. Hann hefur unnið spænsku deildina fimm sinnum, meistaradeildina þrisvar og heimsmeistaramót félagsliða tvisvar. Hann er nýlega búinn að eignast son sem að er þá líklega mikil pressa. Ronaldinho: Eða Ronaldo de Assis Moreira er 32 ára brasilískur leikmaður Atletico Mineiro. Hann er lang frægastur fyrir ár sín hjá Barcelona, þar sem hann var lykilmaður í liði sem vann: Spænsku deildina 2 sinnum, Meistaradeildina 1 sinni og Spænska ofurbikarinn. Hann sjálfur hefur unnið: Ballon D‘Or einu sinni, Fótbolta maður ársins af bæði FIFA og UEFA.

Upload: axelorri

Post on 28-Jul-2015

39 views

Category:

Documents


8 download

TRANSCRIPT

Page 1: Afreksfólk aron baldvin lillý sara

Afreksfólk

Handrit af myndbandi

Afreksmanneskjur eru manneskjur sem að skara fram úr öðrum í því sem að þeir gera. Menn eins og Lionel Messi, Ronaldinho, Jón Margeir Sverrisson, Tiger Woods og Usain Bolt hafa allir náð ótrúlegum árangri í sinni íþrótt, með stanslausum æfingum og með hausinn á réttum stað. Svo eru menn eins og Lance Armstrong sem að fóru ólöglegar leiðir í því að ná árangri. Við ætlum að fjalla um alla þessa menn í þessu myndbandi.

Lionel Messi: Besti knattspyrnumaður nútímans, meira að segja allra tíma að sumra mati. Hann er 25 ára leikmaður Barcelona á Spáni og er lykilinn af velgengni þeirra síðustu ár. Hann hefur spilað með aðalliði þeirra síðan 2005 en þá var hann 18 ára. Hann hefur 3 sinnum unnið Ballons D‘Or sem er verðlaun fyrir að vera besti leikmaður heimsins. Hann hefur unnið spænsku deildina fimm sinnum, meistaradeildina þrisvar og heimsmeistaramót félagsliða tvisvar. Hann er nýlega búinn að eignast son sem að er þá líklega mikil pressa.

Ronaldinho: Eða Ronaldo de Assis Moreira er 32 ára brasilískur leikmaður Atletico Mineiro. Hann er lang frægastur fyrir ár sín hjá Barcelona, þar sem hann var lykilmaður í liði sem vann: Spænsku deildina 2 sinnum, Meistaradeildina 1 sinni og Spænska ofurbikarinn. Hann sjálfur hefur unnið: Ballon D‘Or einu sinni, Fótbolta maður ársins af bæði FIFA og UEFA.

Tiger Woods: Alvöru nafnið hans er Eldrick Woods.Hann er þekktasti kylfingur heims og var einu sinni bestur áður en hneyksli um framhjáhald komst upp. En þetta kynlífs hneyksli er frekar tengt ströngu uppeldi heldur en genum. Pabbi hans ól hann upp til þess að verða sá besti og það tókst hjá honum, en þegar pabbi hans dó missti hann algjörlega fótanna og féll ofan í þessa gryfju.