dk viðskiptahugbúnaðurskjol.dk.is/pdf/dk_vidskiptahugbunadur_baekl_web.pdf · (e. template)...
Post on 05-Aug-2020
2 Views
Preview:
TRANSCRIPT
1
dk Viðskiptahugbúnaður
Íslenskur í 15 ár
2
3
dk hugbúnaður ehf. er framleiðandi dk viðskipta- og upplýsingakerfa. Allt frá stofnun fyrir tækisins árið 1998 höfum við haft það að markmiði að sjá íslenskum fyrir-tækjum fyrir öflugum viðskiptalausnum sem eru sérsniðnar að íslensku atvinnulífi.
Í dag er svo komið að á fimmta þúsund fyrir
tækja nýta sér kosti hugbúnaðar og hýsingar
lausna okkar og hefur hróður fyrirtækisins
borist út fyrir landsteinana og orðið til þess að
við höfum haldið úti starfsemi í Bretlandi og á
Norðurlöndunum um árabil.
Lykillinn að örum vexti okkar undanfarin ár
liggur í hæfu og traustu starfsfólki en fyrir
tækið er í meirihlutaeigu starfsmanna og hefur
stór hluti núverandi starfsfólks starfað hjá
fyrirtækinu allt frá stofnun þess.
Með fagmennsku í fyrirrúmi reynum við ávallt
að veita persónulega og góða þjónustu og
vinnum við í nánu samstarfi við viðskiptavini
okkar til að sjá þeim fyrir bestu lausninni fyrir
þeirra fyrirtæki hverju sinni.
dk hugbúnaður ehf.
4
dk Viðskiptahugbúnaður hefur verið hjartað í okkar starfsemi allt frá upphafi. Kerfið er í dag leiðandi viðskipta- og upplýsingakerfi fyrir smá og meðalstór fyrirtæki og þá hefur það færst mikið í vöxt að stærri fyrirtæki séu farin að velja kerfið fyrir sína starfsemi.
dk Viðskiptahugbúnaður er hagkvæm heild ar
lausn fyrir íslensk fyrirtæki sem er í senn ein
föld í uppsetningu og notkun. Auk algengustu
kerfiseininga dk Viðskipta hugbúnaðar eins
og fjárhags, sölu og birgða bjóðum við upp á
mikið úrval sérlausna fyrir hinar ýmsu tegundir
fyrirtækja s.s. hótel, verslanir, veitingahús og
félagasamtök svo fátt eitt sé nefnt auk þess að
hafa smíðað tengingar við önnur kerfi, vefsíður,
vef þjón ustur o.þ.h.
Kerfið er að öllu leyti þróað á Íslandi með
íslenskar aðstæður í huga og sérfræðingar
okkar í þróunardeildinni eru sífellt að bæta
kerfið í takt við nýja tíma og nýjungar í nútíma
tækni s.s. spjaldtölvur og snjallsíma.
Dæmi um fyrirtæki sem nýta sér dk Viðskiptahugbúnað
• Auglýsingastofur
• Apótek
• Arkitekta & verkfræðistofur
• Byggingaverktakar
• Endurskoðunar & bókhaldsstofur
• Félagasamtök
• Fiskvinnslu & útgerðarfyrirtæki
• Framleiðslu & rekstrarfyrirtæki
• Hótel
• Inn & útflutningsfyrirtæki
• Lögfræðistofur
• Nýsköpunarfyrirtæki
• Veitingastaðir
• Verslunarfyrirtæki
• Þjónustufyrirtæki
Nokkrar staðreyndir um dk Viðskipta-hugbúnað
• Í dag er textinn sem hefur verið forritaður
um 3 milljónir lína. Ef hann yrði prentaður
út á laserprentara sem prentar 8 síður á
mínútu, þar sem hver síða inniheldur 50
línur, þá tæki það hann:
> 7.500 mín. = 125 klst. = 5 sólarhringa.
> 245 bækur, þar sem hver bók er 350
bls. með 35 línur á bls.
• Forritunarmálið sem er notað er Delphi
(Pascal forritunarmál).
• Gagnagrunnurinn, sem er undirstaðan, er
Pervasive PSQL frá Pervasive Software Inc.
• Í dag eru fyrirtæki sem nota dk Viðskipta
hugbúnað á fimmta þúsund.
• Kerfið er í notkun í fjórum löndum: Íslandi,
Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð.
dk Viðskiptahugbúnaður
5
Einfaldleiki og
hagkvæmni í fyrirrúmi
Kerfið er að fullu þróað á Íslandi með íslenskar
aðstæður í huga. Þetta hefur gert okkur kleift
að hanna kerfið svo það endurspegli og styðji
við íslenska viðskiptaferla svo auðvelt sé að
læra á og nota kerfið.
Með kerfinu fylgja fulluppsett fyrirtækjaform
(e. template) fyrir mismunandi tegundir
rekstrar sem innihalda m.a. bókhaldslykla
og tengingar við hin ýmsu undirkerfi dk
Viðskiptahugbúnaðar. Þetta gerir það að
verkum að mjög auðvelt og fljótlegt er að taka
kerfið í notkun.
Kerfið er byggt upp af mörgum kerfiseiningum
sem velja má saman eftir þörfum. Auðvelt er
að byrja með fáa kerfishluta og bæta síðan
við eftir því sem þörf krefur. Á þennan máta
vex kerfið með fyrirtækinu og skapar aukna
hagkvæmni því aðeins er greitt fyrir þær
kerfiseiningar sem eru í notkun hverju sinni.
Grant ThorntonGrant Thornton er framsækið og leiðandi
endurskoðunarfyrirtæki sem var stofnað í
árslok 1989 og hefur verið í stöðugum vexti
allar götur síðan. Fyrirtækið hefur ávallt
lagt mikla áherslu á að veita faglega og
persónulega þjónustu á sviði fjármála og
viðskipta og þannig aðstoða viðskiptavini sína
við að ná markmiðum sínum. Grant Thornton
hefur unnið í nánu samstarfi við dk hugbúnað
allt frá árinu 2000 og hefur átt ríkan þátt í að
gera dk Viðskiptahugbúnað að jafn öflugri
lausn og hann er í dag.
„Við höfum átt einstaklega gott samstarf við dk
hugbúnað til fjölda ára. Við höfum unnið náið með
fyrirtækinu við þróun fjárhagshluta dk Viðskipta
hugbúnaðar og dk Framtals en við notum kerfið fyrir
alla okkar starfsemi auk þess að bjóða upp á aðgang
fyrir viðskiptavini okkar í gegnum dkVistun. Auk
bókhaldshlutans hefur verk bókhaldskerfi dk reynst
okkur afar vel og notum við það til að halda utan um
allar okkar tímaskráningar.“
Theodór S. Sigurbergsson, Grant Thornton
6
7
Helstu kostir
• Alíslenskt kerfi, hannað af starfsmönnum dk
frá grunni með íslenskar aðstæður í huga.
• Heildstætt kerfi þar sem notendaviðmót er
samræmt milli allra kerfishluta.
• Kerfið er auðvelt í uppsetningu og geta
viðskiptavinir, á einfaldan hátt, sett kerfið
upp sjálfir.
• Öflug greiningartól er að finna í öllum kerfis
einingum þar sem auðvelt er að nálgast
upplýsingar og hreyfingar.
• Greiningartré gefa góða sýn á bókhaldslykla,
skuldunauta, lánar drottna, vörur, starfsmenn,
sölumenn og verk á myndrænan hátt.
• Í kerfinu eru lykiltölugreiningar sem gera
not andanum kleift að nálgast upplýsingar
um stöðu lykilstærða, án sérstakrar upp
setningar.
• Notendaviðmót kerfisins er skýrt, einfalt og
einstaklega auðvelt í notkun.
• Einfalt er að innleiða dk og kennsla og
þjálfun starfsmanna tekur stuttan tíma.
• Kerfið er byggt upp af mörgum kerfis
einingum sem má velja saman eftir þörfum.
8
Sjónlag Sjónlag augnlæknastöð var stofnuð árið
2001 og er í fararbroddi á Íslandi hvað
varðar tæknibúnað og þjónustu við sjúklinga.
Sjónlag hefur á tveimur skurðstofum
framkvæmt yfir 9000 sjónlagsaðgerðir með
laser og yfir 1000 augasteinsaðgerðir.
„Árið 2008 tók Sjónlag upp dk hugbúnað fyrir
starfsemi fyrirtækisins. Við völdum dk hugbúnað
vegna þess hve mikla breidd dk hugbúnaður hefur
í viðskiptalausnum og vegna afspurnar af góðri
þjónustu og ráðgjöf. dk hugbúnaður hefur vaxið
með fjölbreyttri starfsemi okkar. Við erum ánægð
með bókhaldshugbúnaðinn, verslunarkerfið og ekki
síst þjónustuna þar sem að við höfum fengið lausn
allra okkar mála hverju sinni á skjótan og öruggan
hátt.“
Guðrún Antonsdóttir, Sjónlag
Auðvelt aðgengi að
lykilupplýsingum
Vaxandi samkeppni og hraði í viðskiptum gerir
auknar kröfur til stjórnenda fyrirtækja. Þeir
þurfa að hafa góða yfirsýn og vera fljótir til
aðgerða ef nauðsyn krefur. Til að geta tekið
markvissar ákvarðanir þurfa stjórnendur upp
lýsingar. Þær þurfa að vera aðgengilegar og
auðfengnar og veita stjórnendum nauðsyn
lega yfirsýn. Stjórnendur vilja í auknum mæli fá
upplýsingarnar framsettar á myndrænan hátt
og eiga auðvelt með að sjá „stóru myndina“.
9
Einn af kostum hugbúnaðarins frá dk eru
þær öflugu uppflettingar og greiningartól
sem í boði eru. Þær gera stjórnendum kleift
að fá góða yfirsýn yfir reksturinn og taka vel
upplýstar ákvarðanir um starfsemina sem
getur aukið bæði hagkvæmni og skilvirkni í
rekstri.
Með því að nota greiningartól dk Viðskipta
hugbúnaðar getur þú með auðveldu móti séð
m.a. hverjir þínir bestu viðskiptavinir eru, hvaða
vörur seljast best og hvaða vörur veita þér
bestu framlegðina.
Allar skýrslur og greiningar í dk er hægt að
flytja út í Excel þar sem hægt er að eiga við
þær eins og hentar.
Öflug greiningartól
Í öllum kerfiseiningum dk eru að finna öflug
greiningartól, hvort sem unnið er með fjárhag,
skuldunauta, lánardrottna, sölu, birgðir, verk
eða laun. Greiningarvinnslurnar virka frá upp
hafi og ekki er þörf á langri og erfiðri upp
setn ingar vinnu með tilheyrandi tilraunum og
prófunum. Auðvelt er að fylgjast með stöðu
rekstrar og nálgast viðeigandi upplýsingar úr
undirkerfum.
LykiltölurÍ dk eru einnig öflugar lykiltölugreiningar sem gefa stjórnendum yfirlit yfir stöðu lykil
stærða í rekstrinum, sjálfkrafa og eins langt
aftur í tímann og óskað er. Skoða má gögnin
á myndrænan hátt og koma þannig auga
á þróun og sveiflur, t.d. í lausafjárstöðu,
útistand andi viðskipakröfum, væntanlegum
greiðslum frá skuldunautum, hagnaði,
lykiltölum um arðsemi, lykiltölum um nýtingu
fjármagns, lykil tölum um greiðsluhæfi og fleira.
Helstu kostir stjórnendaverkfæranna eru:
• Minni þörf fyrir skýrslugerð
• Notendur eru fljótir að tileinka sér notkun
vinnslanna
• Hægt að skoða fyrirtækið í heild og
ákveðnar einingar þess
• Hægt er að skoða gögn út frá mörgum
mismunandi sjónarhornum
• Auðvelt að sjá þróun lykilstærða út frá
hinum ýmsu víddum rekstrarins
10
FjárhagurInniheldur allar hefðbundnar vinnslur fjárhags
kerfis, svo sem bókhalds lykla, dagbækur,
öflugar uppfletti og fyrirspurnarvinnslur,
útprentun á margvíslegum skýrslum, virðis
aukaskattsvinnslur, fjárhagsáætlanir, banka
kerfi, ársreikningsvinnslur, greiningartól,
meðhöndlun gjaldmiðla, meðhöndlun vídda
(tilvísanir, deildir, verkefni og viðfangsefni) og
ýmsar uppsetningar.
EignirInniheldur allar hefðbundnar vinnslur eigna
kerfis, svo sem eignaskráningu, dagbækur,
uppfletti og fyrirspurnarvinnslur, útprentun á
margvíslegum skýrslum, afskriftaútreikninga
og ýmsar uppsetningar.
SkuldunautarInniheldur allar hefðbundnar vinnslur skuldu
nauta kerfis (viðskiptamannakerfis), svo sem
skuldunautaskráningu, öflugar uppfletti og
fyrirspurnarvinnslur, útprentun á margvíslegum
skýrslum, dráttarvaxtaútreikning, reiknings
yfirlitsvinnslur, afstemmingar, innheimtukerfi
banka, greiningartól, áskriftarvinnslur, með
höndlun gjaldmiðla og ýmsar uppsetningar.
CRMInniheldur allar hefðbundnar vinnslur sölu
og markaðskerfis, svo sem meðhöndlun
reglulegra og væntanlegra viðskiptavina, smíði
úrtaka, meðhöndlun herferða, meðhöndlun
aðgerða og funda, meðhöndlun bréfa, tölvu
pósta og límmiða, öflugar uppfletti og fyrir
spurnarvinnslur, útprentun á margvíslegum
skýrslum, öflugt eiginleika, hópa og flokk
unar kerfi og ýmsar uppsetningar.
SalaInniheldur allar hefðbundnar vinnslur sölu
kerfis, svo sem skráningu reikninga, sölu pant
ana, tilboða og áskriftarreikninga, öflugar
uppfletti og fyrirspurnarvinnslur, útprentun
á margvíslegum skýrslum, sölumannakerfi,
söluáætlanir, greiningartól, rafrænar sendingar
(SMT), verslunareiningu, frístandandi
afgreiðslu kerfi (dk POS), tengingar við hand
tölvur og afgreiðslukassa (sjóðvélar) og ýmsar
uppsetningar.
LánardrottnarInniheldur allar hefðbundnar vinnslur lánar
drottna kerfis, svo sem lánardrottna skrán ingu,
móttöku og skráningu reikninga, samþykktar
kerfi, beiðnakerfi, greiðslu reikninga, öflugar
uppfletti og fyrirspurnar vinnslur, útprentun
á margvíslegum skýrslum, afstemmingar,
greiningartól og ýmsar upp setningar.
InnkaupInniheldur allar hefðbundnar vinnslur inn
kaupakerfis, svo sem innkaupapantanir,
innkaupatillögur, öfluga vörumóttöku, toll
skýrslu gerð, rafrænar sendingar (SMT),
verðútreikninga vegna innkaupa á vörum
frá erlendum birgjum, uppfletti og fyrir
spurnarvinnslur, útprentun á margvíslegum
skýrslum, greiningartól og ýmsar uppsetningar.
BirgðirInniheldur allar hefðbundnar vinnslur birgða
kerfis, svo sem vöruskráningu, birgða skrán
ingu, talningavinnslur, öflugar uppfletti og
fyrirspurnarvinnslur, útprentun á margvíslegum
skýrslum, verðbreytingar, afsláttarkerfi,
samningsbundin verð, strika merkjavinnslur,
uppskriftakerfi, raðnúmerakerfi (serial númer),
lotunúmerakerfi, greiningartól, margar birgða
geymslur og ýmsar upp setningar.
Yfirlit yfir kerfiseiningar
11
VerkInniheldur allar hefðbundnar vinnslur verk
kerfis, svo sem tímaskráningu, kostnaðar
skráningu (efnisúttekt), skráningu á verkum,
verkþáttum og verkliðum, öflugar uppfletti og
fyrirspurnarvinnslur, útprentun á margvíslegum
skýrslum, áætlanir, greiningartól og ýmsar
uppsetningar.
LaunInniheldur allar hefðbundnar vinnslur launa
kerfis, svo sem starfsmannaskráningu, skrán
ingu á tímum og upphæðum, launa út reikning,
prentun á launaseðlum og skilagreinum,
uppfletti og fyrirspurnarvinnslur, útprentun á
margvíslegum skýrslum, rafrænar sendingar,
stimpilklukka, sjómannalaun, greiningartól og
ýmsar uppsetningar.
FélagarInniheldur allar hefðbundnar vinnslur félaga
kerfis, svo sem skráningu á félagsmönnum,
félagsgjöldum og sjóðagjöldum, styrkveitingu
úr ýmsum sjóðum, svo sem sjúkra, styrktar,
vísinda og endurmenntunarsjóðum, öflugar
uppfletti og fyrirspurnarvinnslur, útprentun
á margvíslegum skýrslum, öflugt hópa og
flokkakerfi og ýmsar uppsetningar.
HótelkerfiInniheldur allar hefðbundnar vinnslur hótel
kerfis, svo sem herbergjapantanir, inn skrán
ingu gesta, skráningu kostnaðar á herbergi,
gistináttaskýrslu, þrifaskýrslu, sérskýrslur
vegna gesta og dagatal yfir stöðu herbergja.
Einnig er einföld vinnsla þar sem hægt er að
setja verð á herbergi m.v. daga og tímabil.
Hótelkerfið er samhæft við dk POS og því er
hægt að skrá úttektir í veitingasal og/eða bar
beint á herbergi.
dkVistundkVistun er kerfisleiga dk hugbúnaðar.
Notendur kerfisins tengjast þjónustunni í
gegnum internetið og öll gagnavinnsla fer
fram á öflugum miðlurum. dkVistun sér um
alla afritun gagna og annast uppfærslu hug
búnaðar. Þetta tryggir aukið rekstraröryggi
og gerir allan kostnað vegna tölvubúnaðar
fyrirsjáanlegri. dkVistun hentar jafnt PC sem
Mac notendum.
12
dk hugbúnaður er framleiðandi dk viðskipta- og upplýsingakerfa. Hjá fyrirtækinu starfar þrautreynt og harðsnúið lið vel menntaðra einstaklinga. Markmið þeirra er að viðskipta -vinir fyrirtækisins njóti bestu lausna og þjónustu hverju sinni.
Hröð, nákvæm og örugg meðhöndlun upplýsinga er ráðandi lykilþáttur í rekstri fyrirtækja, jafnt við daglega stjórnun sem stefnumótandi ákvarðanir. Starfsmenn dk hugbúnaðar veita aðstoð við úttekt á þörfum fyrirtækja og gefa góð ráð við endurskipulagningu þeirra.
Fyrirtækið var stofnað í desember árið 1998 og eru notendur dk hugbúnaðar í dag orðnir á fimmta þúsund, þar af um þrjú þúsund í dkVistun. Þeir eru úr flestum atvinnugreinum og �ölgar ört. dk hugbúnaður er nú leiðandi fyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki á Íslandi.
dk hugbúnaður ehf.Bæjarhálsi 1110 ReykjavíkSími: 510 5800Netfang: dk@dk.is
www.dk.is
Hjá okkur er fagmennska í samskiptum og vinnubrögðum í hávegum höfð.
BókhaldskerfiLaunakerfiVerslunarkerfiVistun
top related