kynningarglærur á heimasíðu.breytt.4.1.2017

Post on 24-Jan-2017

1.028 Views

Category:

Government & Nonprofit

0 Downloads

Preview:

Click to see full reader

TRANSCRIPT

Réttindi og skyldurHvað þarftu að vita?

Yfirlit

Atvinnuleysistryggingar – almennar upplýsingarRéttindi og skyldur.

Kynning á helstu þjónustuþáttum Vinnumiðlun.Ráðgjafaþjónusta.Vinnumarkaðsúrræði.

Atvinnuleit Hagnýt ráð

Vinnumálastofnun

Heyrir undir VelferðarráðuneytiðFer með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu atvinnuleysistryggingasjóðs.

Starfar samkvæmt lögum Nr. 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar.Nr. 55/2006 um Vinnumarkaðsaðgerðir.

Markmið laganna er• Að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þátttakendur á

vinnumarkaði.• Að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.

Heimasíða Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is

Skráning - vinnumiðlun - ráðgjöf

Nýskráning og móttaka Móttaka og skráning umsókna um atvinnu- og atvinnuleysisbætur, vottorða og annarra fylgigagna.

VinnumiðlunVeitir m.a. upplýsingar um laus störf og starfstengd vinnumarkaðsúrræði. (Tímapöntun hjá vinnumiðlara.)

RáðgjafaþjónustaVeitir upplýsingar og ráðgjöf varðandi atvinnuleit og möguleika á námi samhliða henni. (Tímapöntun hjá náms- og starfsráðgjafa.)

Úrskurður bótaréttarAfgreiðsla umsóknar og úrskurður bótaréttar getur tekið allt að 6 vikur frá því gögn berast til Greiðslustofu. (Upplýsingar um stöðu umsóknar á Mínum síðum.)

Mínar síður

• Rafræn skjölGreiðsluseðlar (útreikningur atvinnuleysisbóta)LaunamiðarBréf

• UmsóknUmsókn um atvinnuleysisbætur og skráning í atvinnuleitStaða umsóknar

• AðgerðirTilkynna um tilfallandi vinnuTilkynna um tekjurBreyta persónuafslættiSkráning í atvinnuleit án atvinnuleysisbóta (Valið ef breyta þarf persónuupplýsingum)Skrá mig af atvinnuleysisbótumTilkynna orlof

Svara bréfi á Mínum síðum

Persónuafsláttur Mínar síður - Aðgerðir – Breyta persónuafslætti

Réttur til atvinnuleysisbótaAlmenn skilyrði

Launafólk á aldrinum 18 – 70 ára með búsetu og lögheimili á Íslandi. Atvinnuleitendur þurfa einnig að vera staddir á landinu til að eiga rétt til greiðslu bóta í atvinnuleit.

Krafa er gerð um virka atvinnuleit: Vera fær til flestra almennra starfa. Skila þarf læknisvottorði ef vinnufærni er

skert. Frumkvæði við atvinnuleit og vera reiðubúinn að taka starfi á Íslandi sem

greitt er fyrir skv. lögum og kjarasamningum. Vilji og geta til að taka þátt í úrræðum samanber lög um

vinnumarkaðsaðgerðir.

Lengd bótatímabilsBótatímabilið er 30 mánuðir.

Upphæð atvinnuleysisbóta

Grunnatvinnuleysisbætur

eru kr. 217.208.- á mánuði miðað við fullan bótarétt (100%)

Tekjutengdar atvinnuleysisbætur Bætur eru tekjutengdar í þrjá mánuði í upphafi bótatímabils þannig að greiddar eru grunnbætur fyrsta hálfa mánuðinn en síðan tekur tekjutengingartímabilið við.

Launamaður Miða skal við meðaltal heildarlauna á 6 mánaða tímabili sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus og eru greidd 70% af heildarlaunum viðmiðunartímabilsins.

Sjálfstætt starfandi Miða skal við síðasta heila tekjuár.

Hámark tekjutengdra bóta: kr. 342.422.- á mánuði.

Greiðsla vegna barna: Vegna hvers barns á framfæri yngra en 18 ára eru greiddar kr. 8.688.- á mánuði til viðbótar, óháð hlutfalli bótaréttar.

Útborgun atvinnuleysisbótaAtvinnuleysisbætur eru greiddar út fyrsta virkan dag í mánuði.Greitt er fyrir einn mánuð í einu sem nær yfir tímabilið 1. – 31. hvers mánaðar, greitt eftirá.

Veikindi Tilkynna skal veikindi sem hindra virka atvinnuleit.

5 daga veikindaréttur er á hverju 12 mánaða tímabili eftir 5 mánuði á atvinnuleysisskrá. Má taka í tvennu lagi.

Ferðalög•Atvinnuleysisbætur eru ekki greiddar ef dvalið er erlendis.

• Tilkynna þarf um dvöl erlendis fyrir brottför og óska eftir skráningu í orlof (Mínar síður/Aðgerðir/Tilkynna orlof)

Reglubundin samskipti

Staðfesting á atvinnuleit fer fram í gegnum Atvinnuleit þarf að staðfesta 20.- 25. hvers mánaðar þann tíma sem einstaklingur er skráður í atvinnuleit.

Ef staðfest er á tímabilinu 26. – 3. næsta mánaðar seinkar greiðslum um 5 virka daga.

Þeir sem ekki staðfesta atvinnuleit á tilsettum tíma eru afskráðir.

Staðfesting á atvinnuleit

Þegar atvinnuleit hefur verið staðfest berst tölvupóstur um að skráning hafi tekist.

Berist tölvupóstur ekki er mikilvægt að hafa strax samband við þjónustu-skrifstofu Vinnumálastofnunar

Atvinnuleit innanlands og í Evrópu

• Upplýsingar um störf í boði innanlands á www.vinnumalastofnun.is

• Tenglasafn á aðrar ráðningarþjónustur á heimasíðu Vinnumálastofnunar (Störf í boði/Aðrar vinnumiðlanir)

• Evrópsk vinnumiðlun á www.eures.europa.eu (Störf í boði/Eures)

• Vinnumiðlarar og ráðgjafar Vinnumálastofnunar aðstoða fólk við leit að starfi og veita nánari upplýsingar.

Atvinnuleit í Evrópu

Vottorð U-2Veitir þeim sem eiga staðfestan rétt til atvinnuleysisbóta heimild til að leita að starfi erlendis í allt að þrjá mánuði á greiddum atvinnuleysisbótum frá Íslandi. (Gildir aðeins um lönd í Evrópu)

Afgreiðsla umsókna tekur 3-4 vikur.Nánari upplýsingar á þjónustuskrifstofum VMST.

ATH. Ekki er heimilt að fara til útlanda samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta nema með U-2

Eures - Evrópsk vinnumiðlunUpplýsingar og ráðgjöf um atvinnuleit í Evrópu.

Hlutastörf og tilfallandi vinna

Hlutastarf Breyta þarf rafrænni umsókn á Mínum síðum, skrá þar rétt starfshlutfall í

hlutastarfi og hlutfall í atvinnuleit. Fylla út áætlun um tekjur vegna hlutastarfs á Mínum síðum (Aðgerðir/tilkynna

um tekjur/tekjur af hlutastarfi).

Tilfallandi vinna Tilkynna um tilfallandi vinnu til VMST í síðasta lagi með dags fyrirvara á

Mínum síðum (Aðgerðir/tilfallandi vinna). Heimilt að tilkynna samdægurs við sérstakar aðstæður.

Á við alla tilfallandi vinnu óháð lengd, tíma eða launum. Tilkynna um heildartekjur inn á Mínum síðum þegar laun hafa verið

greidd út (Aðgerðir/tilkynna um tekjur/tilfallandi tekjur).

Tilkynning um tilfallandi vinnuskráð inn gegnum Mínar síður - Aðgerðir

Tilkynning um tekjur - Mínar síður

Tilkynna þarf um allar tekjur og styrki á Mínar síður.

Frítekjumark v/tilfallandi vinnu

Frítekjumark er kr. 63.476.- á mánuðiDæmi: Heildartekjur kr. 73.476

Frítekjumark kr. 63.476 Tekjur umfram frítekjumark kr. 10.000.-

Helmingur af þeim tekjum sem eru umfram frítekjumarkið mynda frádrátt á greiðslu bóta við samkeyrslu við upplýsingar RSK eftir tvo mánuði. Frádráttur vegna tekna væri þá í þessu dæmi kr. 5.000.-

Sjálfstætt starfandi

• Ekki má opna launagreiðendaskrá samhliða atvinnuleysisbótum.

• Einstaklingur getur ekki verið í sjálfstæðum rekstri og fengið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða.

• Þeim sem býðst vinna sem verktakar á eigin kennitölu verða að skrá sig ekki atvinnulausa meðan verkefni/vinnu stendur.

•Tilkynna þarf um verktakavinnu fyrirfram.•Skila þarf afriti af reikningi fyrir vinnuna.

Upplýsingaskylda

Nauðsynlegt er að tilkynna um breytingar á högum sem snerta atvinnuleitina s.s.

Heimilisfang, símanúmer, netfang. Vinnu (tilfallandi vinnu, hlutastarf, fullt starf). Tekjur (t.d. laun, lífeyrisgr., fjármagnstekjur, styrki s.s. líkamsræktarstyrk og fjárhagsaðstoð). Þátttöku í námi samhliða atvinnuleit. Orlof og ferðir utanlands án U-2. Veikindi sem hindra virka atvinnuleit. Vinnufærni (Skert vinnufærni eða óvinnufærni).

Ef ekki er tilkynnt um breytingar þá getur það leitt til biðtíma/viðurlagaBiðtími/viðurlög: Ekki eru greiddar atvinnuleysisbætur þann tíma sem biðtími varir. Til að biðtími telji þarf atvinnuleitandi í virkri atvinnuleit að sinna skyldum atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun og staðfesta atvinnuleit mánaðarlega.

Biðtími og viðurlög

Komið getur til biðtíma eða viðurlaga í tengslum við...

Starfsmaður segir upp starfi. Starfsmaður er valdur að eigin uppsögn. Námsmaður hættir námi án lokaprófs. Starfi eða atvinnuviðtali hafnað. Þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum hafnað eða mætingarskylda ekki uppfyllt. Er í námi án þess að hafa sótt um námssamning. Látið hjá líða að veita upplýsingar um vinnu, tekjur, dvöl erlendis eða tilkynna

um breytingar á högum (heimilisfang, símanúmer, netfang).

Málum vísað til Greiðslustofu til úrskurðar. Kallað eftir skýringu atvinnuleitanda áður en úrskurðað er í málinu.

Einstaklingur sem hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur í 24 mánuði eða lengur – og fær þá viðurlög – á ekki rétt á bótagreiðslum aftur fyrr en hann hefur áunnið sér nýtt bótatímabil, þ.e. . hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði til að eiga rétt á bótum á ný.

Vinnumarkaðsúrræði

Tegundir vinnumarkaðsúrræðaStarfstengd úrræði, námskeið, námsúrræði, atvinnutengd endurhæfing og ráðgjöf

Markmið vinnumarkaðsúrræða Sporna gegn atvinnuleysi Auðvelda fólki að halda virkni Stuðla að tengslum við atvinnulífið Endurmenntun – viðhalda og öðlast nýja hæfni

Starfstengd vinnumarkaðsúrræði

Vinnustaðaþjálfun (hámark 8 vikur)

Starfsþjálfun (allt að 6 mán.)

Verkþjálfun (t.d. Fjölsmiðjan – hámark 12 mán.)

Sérstök átaksverkefni (allt að 6 mán.)

Sjálfboðaliðastarf Atvinnutengd endurhæfing (3 mánuðir)

Frumkvöðlastarf innan fyrirtækis eða stofnunar (allt að 6 mán.)

Þróun eigin viðskiptahugmyndar (allt að 6 mán.)

Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is

Önnur úrræði í boði hjá VMST

• Náms- og starfsráðgjöfTímpantanir hjá ráðgjöfum

• ÁhugasviðsgreiningÍ leit að starfi – upplýsingar hjá ráðgjöfum

• Ferilskrárgerð - kynningarbréfLeiðbeiningar á heimasíðu og aðstoð hjá ráðgjöfum

• Ýmis námskeiðNánari upplýsingar á heimasíðu og hjá þjónustuskrifstofum

Atvinnuleysisbætur og námAlmennt er nám samhliða atvinnuleit og greiðslu atvinnuleysisbóta ekki leyfilegt. Að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er heimilt að stunda nám samhliða atvinnuleit sbr. ákvæði reglugerðar nr. 1223/2015 og 1224/2015.Slíkt nám atvinnuleitenda verður að vera samþykkt af Vinnumálastofnun og uppfylla skilyrði skv. reglugerð svo hægt sé að gera námssamning vegna námsins. (Sjá nánar á www.vinnumalastofnun.is)

Þeim sem ákveða að hætta virkri atvinnuleit um lengri tíma og fara í formlegt nám er bent á að leita til Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

Nám samhliða atvinnuleit - viðmið

• Nám í dagskóla á framhaldsskólastigi er ekki heimilt samhliða atvinnuleit og greiðslu bóta.

• Að uppfylltum ákv. skilyrðum og að höfðu samráði við náms- og starfsráðgjafa er hægt að gera námssamning um að hámarki 33 % nám í fjarnámi/kvöldskóla á framhaldsskólastigi.

• Gerður er námssamningur vegna náms á háskólastigi – 10 ECTS ein. Með fleiri einingum á misseri skerðast bætur í ákv. hlutfalli.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar og hjá náms- og starfsráðgjöfum.

Námskeið - Námsstyrkir

Námskeið skipulögð af Vinnumálastofnun eru atvinnuleitendum með staðfestan bótarétt að

kostnaðarlausu. Upplýsingar og skráning á heimasíðu Vinnumálastofnunar og hjá ráðgjöfum.

Námsstyrkurer veittur til greiðslu hluta námskeiðsgjalda vegna annarra námskeiða en þeirra sem Vinnumálastofnun stendur fyrir. Skilyrði er að námið auki líkur á vinnu og að umsækjandi sé kominn með staðfestan bótarétt. Námsstyrkur getur mest verið 50% af námskeiðsgjaldi og að hámarki kr. 70.000.- á ári.

• Umsókn um námsstyrk skal skila til ráðgjafa, (eyðublað á www.vinnumalastofnun.is) Með umsókninni þurfa að fylgja allar helstu upplýsingar um námið.

• Sækja þarf um áður en námskeið hefst. • Skriflegt svar gildir sem staðfesting á námsstyrk frá Vinnumálastofnun.

Styrkir og afsláttarkjör

BúferlastyrkurHeimilt er að veita styrk vegna búferlaflutnings innanlands frá lögheimili til þess staðar sem lögheimili er flutt í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum atvinnurekanda sem hefur sannanlega boðið fastráðningu í starf. Með umsókninni þurfa að fylgja reikningar fyrir útlögðum kostnaði.

LækniskostnaðurÞeir atvinnuleitendur sem hafa verið atvinnulausir samfellt í 6 mánuði eða lengur geta sótt um afsláttarkort til Vinnumálastofnunar vegna komu á heilsugæslustöð eða til læknis. Umsóknir hjá þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar.

Annað í boði

Stéttarfélög bjóða fjölbreytta þjónustu þeim félagsmönnum sínum, sem hafa misst vinnu og fá greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun.

Atvinnuleitendur hafa val um það hvort þeir halda áfram að greiða félagsgjald í sitt stéttarfélag eftir að þeir hætta störfum og skrá sig í atvinnuleit. Með

áframhaldandi greiðslu félagsgjalds er áunnum réttindum viðhaldið.

Sum sveitarfélög bjóða atvinnuleitendum fríðindi, t.d. frítt í sund. Atvinnuleitendum er bent á að leita upplýsinga á skrifstofu síns sveitarfélags.

Skipulögð atvinnuleit

Ferilskrá og kynningarbréfLeiðbeiningar um gerð ferilskrár og kynningarbréfa er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Ráðgjafar veita aðstoð ef óskað er.

Nálgast atvinnuleit eins og vinnumeð ákveðin verkefni á hverjum degi / í hverri viku.

Setja sér markmið Skrifleg og mælanleg t.d. fyrir eina viku í senn.

Halda skrá yfir: Störf sem sótt er um og svör sem hafa borist við umsóknum Atvinnuviðtöl sem farið er í Fyrirspurnir og óformlegar umsóknir Tengiliði í tengslaneti Ráðningastofur og samskipti við þær

31

Ferilskrá sem viðhengi

Ferilskrá er mikilvægt í atvinnuleitinni. Til að hún komi að gagni í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun er nauðsynlegt að setja ferilskrána sem viðhengi aftast í rafrænu umsóknina á Mínum síðum á heimasíðu Vinnumálastofnunar áður en umsóknin er send.

Dæmi um yfirlit í atvinnuleit

top related