nýsköpun í opinberum rekstri - interact

Post on 25-Jun-2015

546 Views

Category:

Art & Photos

3 Downloads

Preview:

Click to see full reader

DESCRIPTION

Nýsköpun í opinberum rekstri, Interact, Elvar Örn Arason

TRANSCRIPT

Nýsköpun í opinberum rekstri

Elvar Örn ArasonGrand Hótel, 16. maí 2007

Þrjár spurningar

• Hvers vegna er mikilvægt að stuðla að nýsköpun í opinberum rekstri?

• Hvað einkennir nýsköpun í opinberum rekstri?

• Hvernig er mögulegt að stuðla að nýsköpun í opinberum rekstri?

Nýir tímar og nýjar áherslur

• Nútímavæðing hins opinbera

• Stjórnsýslan er “flöt, sveigjanlega, sérhæfð og dregið úr miðstýringu”.

• Áhersla á skilvirkni og hagkvæmni

Hvers vegna nýsköpun í opinberum rekstri?

• Bregðast við auknum kröfum og væntingum borgaranna

• Auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri

• Bæta afrakstur og útkomu opinberrar þjónustu

• Hagnýta sér tækifæri sem upplýsingatæknin hefur upp á að bjóða

Hvað er nýsköpun?

• Hagrænt fyrirbæri en ekki tæknilegt

• Nýsköpun snýst ekki eingöngu um vísindi og tækni (rannsóknir og þróun)

• Meginuppspretta nýsköpunar er ekki vísindalegar uppgötvanir og rannsóknir.

• Nýsköpun sem miðaðst við að sinna þörfum notenda

Skilgreining á hugtakinu

„Nýsköpun leiðir til nýrrar aðferðar við að leysa

dagleg störf með ákveðin markmið í huga. Þessi

meðvitaða breyting á atferli getur leitt til nýrrar

og/eða bættrar þjónustu, ferla, tækni,

stjórnunar- og rekstraraðferða á öllum stigum

stofnunarinnar. Þetta atferli þarf ekki að fela í sér

nýbreytni fyrir samfélagið í heild en þarf að vera

nýtt innan stofnunarinnar“

Tegundir nýsköpunar

• Ný eða bætt þjónusta

• Ný vinnuaðferð eða vinnuferlar

• Nýjar eða endurbættar aðferðir við stjórnun eða rekstur

• Breyting á stjórnskipulagi eða samskiptamynstri við notendur eða aðrar stofnanir

• Hugtaka eða hugmyndafræðileg nýsköpun

Umfang nýsköpunar

• Smáskrefa (incremental)“Nýsköpun sem fellst í að framkvæma eitthvað á nýjan hátt sem hefur verið gert áður”T.d. gera gögn aðgengileg á rafrænu formi eða endurbætur á upplýsingakerfi.

• Róttæk (radical)“Eitthvað nýtt sem ekki hefur verið reynt áður”T.d. Íslendingabók eða stöðumælagjöld sem innheimt eru í gegnum gsm

• Kerfislæg nýsköpun (transformative)T.d. uppstokkun á stjórnarráðinu eða sameining Landspítalans og Borgarspítalans.

Uppspretta nýsköpunar

Stjórnvöld og sveitastjórnir

Stjórnendur

Starfsfólk

Aðrar stofnanir og fyrirtæki

Notendur

Dæmi um nýsköpun

• Heilbrigðisþjónusta: rafræn lyfjafyrirmæli, rafræn sjúkraskrá, starfræn röntgentækni, fjarlækningar, nýtt tæki til hjartaígræðslu....

• Dómskerfi: sáttamiðlun milli brotaþola og gerenda, samfélagsþjónusta fanga, Barnahús.....

• Menntakerfi: fjarnám, alþjóðlegt stúdentspróf, nýjar námsbrautir....

• Félagsþjónusta: heimaþjónusta, hverfamiðstöðvar...

Stefnumótandi tillögur stjórnvöld

• Útvíkka nýsköpunarstefnuna

• Samræma nýsköpunaraðgerðir

• Leita uppi nýsköpunarverkefni sem vænleg til árangurs

• Stuðla að aðgerðum sem auðvelda flæði þekkingar

Erlend dæmi um aðgerðir stjórnvalda

• Danmörk: Nýsköpunarmiðstöðin MindLab ráðleggur stjórnvöldum hvaða nýsköpunarverkefni á að styrkja

• Holland: Sameining fjögurra stjórnsýslueininga í Future Centre, verkefnið heitir “Getting people together” snýst um skipta á milli sín hugmyndum og koma þeim á framfæri.

• Frakkland: Gagnabanki með fjölda dæma um nýsköpun

• Ítalía: Stofnun opinberar stjórnsýslu, Canteri – verkefni þar sem ólíkir aðila koma nýsköpunahugmyndum á framfæri

Stefnumótandi tillögur stofnanir

• Stofnanir þurfa að vera móttækilegar fyrir utanaðkomandi áhrifum

• Vinnumenning sem stuðlar að endurmenntun, þekkingaröflun og nýsköpun

• Byggja upp innri starfshæfni

• Líta til þarfa notenda og læra af reynslu fyrirtækja

• Fjölbreytilegt starfsfólk er nauðsynlegt

Til umhugsunar

• Hversu miklum fjármunum er varið til nýsköpunar?

• Er einhver starfsmaður sem hefur það hlutverk að fylgjast með starfsaðferðum annarra fagaðila og stofnana?

• Er fylgst með breyttum þörfum notenda? Er greið samskiptaleið milli notenda og stjórnenda innan stofnunarinnar?

• Er starfsmaður sem metur möguleika stofnunarinnar til nýsköpunar?

• Er starfsfólki gert kleift að taka áhættu eða koma fram með nýjar lausnir?

• Eru undirmenn hvattir til að koma hugmyndum á framfæri? Er þeim umbunað eða veittur stuðningur til að þróa þær innanhúss?

Interact – www.step.no/interact/

top related