veidislod 2. tbl. 2012
Post on 11-Mar-2016
314 Views
Preview:
DESCRIPTION
TRANSCRIPT
tímarit um sportveiði og tengt efniVEIÐISLÓÐ
nr. tvö 2012
Ný viðmið í nákvæmniHér sést hvernig grafíttrefjarnar liggja þéttar saman. Orka stangarinnar flyst því jafnt frá handfangi fram í topplykkju. Sage ONE er ekki bara kraftmeiri heldur er hún einnig nákvæmari með Konnetic tækninni og talsvert léttari.
Fyrstu Sage ONE stangirnar sem komu til Evrópu fóru í flugustangarekka Veiðihornsins Síðumúla 14. ágúst 2011.
Hefðbundin flugustöng KONNETIC™tæknin / Sage ONE
Þessi nýja tækni er afsprengi margra ára þróunarvinnu. Með nýrri aðferð og efnum er nú unnt að pressa meira af bindiefni eða lími úr koltrefjamottunum en áður hefur verið unnt. Við þetta er hægt að gera stangarefnið (grafítmotturnar) enn léttari en áður án þess það tapi styrk. Grafíttrefjarnar liggja þéttar saman og bjögun verður því minni í stangarefninu. Konnetic tæknin gerir því nýju Sage One stöngina léttari og grennri en aðrar stang-ir um leið og hún auðveldar veiðimanni auð auka nákvæmni í köstum.
Hefðbundin flugustöng KONNETIC™tæknin / Sage ONE
KONNETIC™ TÆKNIN
Hefðbundin flugustöng
KONNETIC™tæknin / Sage ONE
BEST FRESHWATER ROD- International Dealer Show í New Orleans 2011
BEST SALTWATER ROD- International Dealer Show í New Orleans 2011
BEST FLY ROD- Efftex 2011
BEST ALL ROUND ROD- Fly Fisherman Gear Guide 2012
BEST NEW FLY ROD- Feild & Stream feb. 2012
ONE
SÍÐUMÚLI 8 - 108 REYKJAVÍKSÍMI 568 8410 - VEIDIHORNID@VEIDIHORNID.IS
ONE ER NÝJA FLAGGSKIPIÐ FRÁ SAGE. MEÐ SAGE ONE FÆR NÁKVÆMNI NÝ VIÐMIÐ. ÞRIGGJA ÁRA ÞRÓUNARVINNA. NÝJA KONNETIC TÆKNIN. HANDGERÐ STÖNG FRÁ GRUNNI. VIÐ LEYFUM OKKUR AÐ FULLYRÐA AÐ SAGE ONE ER MERKASTA NÝJUNG Í FLUGUSTÖNGUM FRÁ ÞVÍ GRAFÍT KOM TIL SÖGUNNAR.SAGE ONE ER HIN FULLKOMNA FLUGUSTÖNG.
8 Stiklað á stóru
Yfirlit yfir margt af því sem gerðist á sviði sportveiða síðustu vikurnar.
12 Viðtal
Við tókum tali Guðrún Unu Jónsdóttur sem nýlega var kjörin formaður SVAK.
20 Fluguboxið
Hér fjöllum við um þurr-fluguna Blue Bottle sem hefur gefið gríðarlega vel. Langá Fancy sem hinn nýlátni Íslandsvinur Alan Mann hannaði. Alexöndru sem er gömul og klassísk og Peter Ross sem er miklu vinsælli fluga en Alexandra nú til dags.
30 Veiðistaðurinn
Við skoðum okkur um á bökkum Straumfjarðarár, laxveiðiperlu á Snæfellsnesi.
40 Fjölskylduveiði
Við tökum til við fyrri iðju að benda fólki á fjölskyduvæna veiðikosti. Einn slíkur og með þeim betri, er Vífil-staðavatn í Garðabæ.
44 Fjölskylduveiði
Vatnasvæði Lýsu er van-metið af mörgum, en í raun er um fjölbreytt og gríðarlega fiskauðugt vatnasvæði að ræða sem hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldufólk.
50 Vöðlur og vöðluskór
Fáir hafa jafn mikið vit á umhirðu vaðla og vöðluskótaus heldur en Herra Skóstofan Lárus Gunnsteinsson. Hér tekur hann saman eitt og annað sem huga ber að áður en lengra er haldið.
52 Ljósmyndun
Ljósmyndagalleríið okkar er að þessu sinni í höndum Matts Harris, Englendings sem hefur starfað við veiði-ljósmyndun í 15 ár.
66 Einu sinni var
Við rifjum upp veiðisögur úr gömlu viðtali við Kristján heitinn á Hólmavaði.
70 Villibráðareldhúsið
Seiðandi laxasúpa. Salka gaf fyrir fáum árum út bókina Spriklandi lax í boði veiði-kokka þar sem nokkrir af helstu kokkum veiðihúsanna töfruðu fram snilld sína.
72 Strandveiði
Við heyrðum aðeins í Oddgeiri Guðmundssyni, áhugamanni um strand-veiði, sem hefur sett upp vandaða vefsíðu um þetta vaxandi og heillandi sport.
76 Veiðihundar
Að þessu sinni fjöllum við um öryggi hunda í bílum, eitthvað sem allt of margir huga ekki að sem skyldi.
78 Veiðisagan
Svo virðist vera að læra megi eitt og annað um veiðitrix í smiðju Andrésar Andar!
80 Lífríkið
Að þessu sinni fjöllum við um lóminn, mikinn og harðsækinn veiðifugl, barlóm og hrekkjalóm.
82 Græjur o.fl.
Frá og með blaðsíðu 82 fjöllum við um alls konar græjur, uppákomur o.fl.
Forsíðumynd: Sjóbirtingur úr Tungulæk. Ljósmynd: Jón Eyfjörð
efnið
frá ritstjórnSælir lesendur góðir. Við höldum nú áfram með Veiðislóðina.
Þetta er 2. tölublað þessa árs og áttunda blaðið frá því við byrjuðum
á þessu kukli. Fyrsta blaðið kom út um líkt leyti í fyrra, þannig að
við erum að tala um átta blöð á einu ári.
Þetta er skemmtilegt og að sama skapi krefjandi verkefni. Móttökur lesenda hafa verið svo
magnaðar að það er ekki hægt annað en að halda þessu áfram, ekki hvað síst þar sem þessi
útgáfa styrkir mjög fréttavefinn okkar www.votnogveidi.is og rennir sterkum stoðum undir þá
sérstöðu sem við höfum á tímum vaxandi samkeppni þar sem stóru vefmiðlarnir hafa allt í einu
áttað sig á því að sportveiði er málið. Það er alveg ljóst að smærri sérhæfðir miðlar munu í vax-
andi mæli eiga undir högg að sækja nú þegar stóru valtaranir eru komnir á kreik. Er nauðsynlegt
að halda vöku sinni og sérstöðu, annars er hætta á ferðum.
Á öðrum nótum: Vertíðin er hafin og þegar þetta er skrifað seint í mai er meira að segja búið að
landa fyrsta laxinum. Við óskum veiðimönnum og konum frábærrar vertíðar 2012. Megi allir
koma heilir með með góðar minningar í hugskotinu.
Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrot
Jón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif.
Guideline er leiðandi veiðivöruframleiðandi í Skandinavíu. Hjá Guideline vinna bestu veiðimenn Norðurlanda við hönnun á stöngum og línum. Við hjá Veiðiflugum erum með mikla veiðireynslu og okkar sérgrein eru línur og stangir. Það er ekki sama hvaða lína fer á stöngina þína, þar þarf að gæta mikillar nákvæmni svo þú fáir sem mest út úr veiðinni og köstunum. Vissir þú að línurnar frá Guideline eru hannaðar af bestu veiðimönnum Skandinavíu? Bullet skotlínan er hönnuð til að kasta langt með einu kasti og það mun koma þér verulega á óvart hvað hún flýgur mjúklega. 4Cast er einstök samsetning af skotlínu og langri belglínu og hefur 11 metra haus sem leggst mjúklega á vatnsflötinn. 4Cast línan var kosin besta línan hjá Trout&Salmon og er hrein bylting í hönnun á línum.
Í tvíhendulínum erum við með sérstöðu, við skerum og vigtum línuna fyrir stöngina þína svo þú náir því besta út úr köstunum. Það er mikilvægt að fá rétta ráðgjöf varðandi hvað hentar í línum og við fullyrðum að sú ráðgjöf er framúrskarandi hjá okkur í veiðiflugum. Vissir þú að ábyrgðin á stöngunum frá Guideline er fullkomin. Við hjá Veiðiflugum erum sjálf veiði-menn og vitum hvað það er slæmt að þurfa að bíða eftir stangarpörtum í marga mánuði eða ár. Ábyrgðin hjá okkur er einfaldlega 100% sem felst í því að við eigum alltaf alla stangar-toppa á lager í búðinni hjá okkur og afgreiðum þá samdægurs ef þú lendir í óhappi með Guideline stöngina þína. Komdu í Veiðiflugur og fáðu þjónustu og ráðleggingar frá þeim sem hafa reynsluna.Það styttir leiðina að góðum árangri.
Veiðikveðja!
111
Ó T V Í R Æ T T M E R K I U M G Æ Ð I
8 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Stiklað á stóru: Síðan að Veiðislóð kom síðast út hefur heldur
betur dregið til tíðinda. Komið er vor og veiðitíminn byrjaður.
Að venju voru augu flestra á sjóbirtignsvötnu í Skaftárhreppi
og þau sviku ekki frekar en fyrri daginn. Vatnamótin, Tungulækur,
Tungufljót, Geirlandsá, öll voru þau gjöful fyrstu veiðidaganna.
Síðan fjaraði veiðin smátt og smátt út eins og algengt er, en að þessu
sinni dró ekki síður úr veiði vegna þess að menn voru minna að fara
að veiða. Kreppan og eldsneytisverðið að sliga menn þar, enginn vafi
á því og til marks um það var sú staðreynd að meira var af lausum
leyfum á þessum vorveiðislóðum en verið hefur.
Þingvallaurriði af stærri gerðinni. Mynd: Nils Folmer Jörgensen
9
Stórir silungar og mikið af rjúpu og svartfugli
10 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Einnig opnuðu vötnin, en það voru lítil tíðindi við hin
þekktari eins og Vífilstaðavatn og Elliðavatn. Kropp lengst
af, enda alls ekki hlýtt og vinsamlegt vor. Þingvallavatn var
að vanda mest í fréttum fyrir stóru urriðana og þeir virðast
vera fleiri en í annan tíma eftir að ræktun þeirra byrjaði á
nýjan leik. Að venju hefur verið talsvert af svindli með
makríl og svoleiðis sem bannað er og háværar raddir hafa
verið uppi um að friða eigi algerlega Þingvallaurriðann.
Að mati sérfræðinga þolir hann þó nokkur afföll af veiði
og það liggur enn engan vegin fyrir hvar og hvernig
jafnvægi kemst á í Þingvallavatni við fjölgun urriða
á nýjan leik, en þegar hann var næstum þurrkaður út
forðum þá kom mikið ójafnvægi í lífríki Þingvallavatns.
Veiðimálastofnun hélt sinn ársfund og
þar spáði Guðni Guðbergsson ágætri
laxveiði 2012, en hann reiknaði þó með
að kúrfan væri eigi að síður byrjuð að
síga niður á við eins og búast mætti
við með reglulegum millibilum. Hvað
laxveiðivertíðina varðar, þá eru margir
spenntir og ekki hvað síst vegna þess
að augljóst er að miklu meiri snjór er
í fjöllum að þessu sinni heldur en oft
áður í gegnum síðustu árin. Óhætt að
segja að margir séu orðnir leiðir á lang-
varandi þurrkum á sumrum og ýmsir
veiðileyfasalar hafa sagt okkur að slíkt
óþol sé jafnvel farið að hafa áhrif á sölu
veiðileyfa á besta veiðitíma.
Á skotveiðislóðum, þá stytti um-
hverfisráðherra all verulega veiði-
tíma svartfugla, en stofnar þeirra hafa
beðið hnekki við sandsílahrunið sem
einnig hefur haft áhrif á stofna kríu og
sílamáfa. Skiptar skoðanir eru á þessum
gjörningi ráðherra, því bent hefur verið
á að skotveiðar á svartfugli eru ekki
stærri stærð en svo í stóra samhenginu
að menn telji að þær skipti heilu stofn-
ana nokkru máli.
Rjúpnatalningar hafa og farið fram
og komið misjafnlega út. T.d. fundu
menn lítið af rjúpu á Þingvallasvæðinu.
Okkur hafa hins vegar sagt glöggir
menn að það segi ekkert þó að ákveðnir
staðir sýni lítið, meira geti verið af rjúpu
annars staðar og það sé raunin. Einn
sagði okkur t.d. að í nágrenni Horna-
fjarðar væri mikið af rjúpu. Annar sagði
okkur af óvenj mörgum körrum víða á
Vesturlandi.
stiklað á stóru
11
Gunnar Óskarsson með birting úr opnun Geirlandsár.
Þetta er Denni leiðsögumaður með stóran birting úr Litluá.
Glæsilegur birtingur úr Eldvatni. Mynd Jón Eyfjörð.
Kvikmyndin Lón-búinn var frumsýnd fyrir skemmstu, hér er verið að mynda í myndina.
Nefndur Nils Folmar með 16 punda drjóla úr Minnivallalæk.
Þessi ófrýnilegi haus er úr Tungufljóti.
Bændur og leigutakar við Haukadalsá á góðri stundu.
Stórir fisar voru líka að veiðast í Húseyjarkvísl.
Ásta Ólafsdóttir með 10 pundara úr Minnivallalæk.
Mögnuð vorveiðistemning við Eldvatn.
Fyrr-margnefndur Nils Folmer með 18 pundara úr Þingvallavatni. Varla veiðir nokkur maður fleiri stórfiska en téður Dani.
Strengir áttu stórafmæli á dögunum, Lax-á líka.
Guðrún Una með stóra sjóbleikju.
viðtal
13
Guðrún Una Jónsdóttir
Ætlaði aldrei að verða formaðurGuðrún Una Jónsdóttir er ekki fyrsta konan sem veitir
stangaveiðifélagi forstöðu. Þær gera sig æ meira gildandi.
Tvær konur hafa setið í stjórn SVFR, ein verið formaður
Ármanna og gott ef formaður SVFK er ekki í raun forkona.
Það telst samt alltaf til tíðinda þegar konur taka að sér
forystuhlutverk í sporti eins og stangaveiðinni þar sem
karlaveldið er jafn áberandi og raun ber vitni. En það
segir okkur kannski líka að það er miklu meira af
veiðikonum þarna úti á örkinni heldur en margur
heldur. En hvað sem því líður, þá er frambærileg
veiðikona spennandi kostur fyrir þá sem gefa út
veiðitímarit, við heyrðum því í Guðrúnu Unu
og spurðum hana nokkrar af þessum klassísku
veiðimannaspurningum. Eins og t.d…..
14 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
hér í nágrenni Akureyrar sem auðvelt er
að heimsækja. Laxveiðin er þó líka alltaf
á sínum stað og þá er það Jöklusvæðið.
Hef einnig farið í Hölkná, Blöndu og Iðu
svo eitthvað sé nefnt.
Eftirlætis veiðistaðir?“Gjöfulustu staðirnir verða jú fljótt eftir-
lætisstaðir og nefndir hér að neðan
þó svo margir aðrir séu jafnvel fallegri
en ekki eins gjöfulir. Netselstanginn í
Ánavatni, Eiðsbreiðan í Laxá, Laxárfoss,
Arnarmelsbreiðan í Jöklu, Sauðár-
breiðan í Kaldá og Þelamerkubreiðan í
Hörgá.
Fluga eða maðkur.... eða jafnvel spúnn?“Ég hef aldrei verið dugleg með maðk-
inn, það hefur eitthvað með að gera að
þræða þá uppá öngulinn. Spúnninn
var mitt aðalvopn þangað til ég lærði
að kasta flugu. Seinni ár hefur flugan
unnið á og síðasta ár fékk spúnastöngin
oftast að liggja heima.“
Uppáhalds flugur?„Nú myndu sjálfsagt margir tala um
eitthvað örsmátt en ég er meira fyrir
þær stóru enda oft að veiða í miklu
vatni. Í síðasta túr austur í Jöklu var sú
ófrýnilega fluga Randalín heit í Jökl-
unni sjálfri. En hún skilaði okkur hjón-
um m.a 3 löxum á sama klukkutím-
anum í myrkri og mígandi rigningu á
Arnarmelsbreiðunni. Sunrayinn er líka
mikið notuð sem og Skröggur og Kol-
skeggur. Ef ég á að nefna smærri flugu,
að þá var það í öðrum túr austur í Jöklu,
nánar tiltekið á Eiðsbreiðunni í Laxá, að
við vissum af fiskum en vatnsleysið var
algert og bara dauði og djöfull þrátt fyrir
ótalmörg rennsli. Þá fór Hairy Mary nr
14 undir að beiðni míns heittelskaða
og bingó hann var á. Á sama tíma beit
Hvenær byrjaðir þú að veiða og hvernig bar það til?“Ég byrjaði nú ekki að veiða fyrr en um
1996 en þá kynntist ég eiginmanni
mínum Árna Jóhannessyni geðlækni
og Mokveiðifélagsmeðlimi. Hann og
faðir hans Jóhannes Sigurjónsson eru
miklar veiðiklær og hafa kennt mér allt
sem ég kann í dag í tengslum við stang-
veiði. Sem krakki fór ég líka oft í Jökul-
dalsheiðina með pabba og fjölskyldu
þar sem veitt var í net. Faðir minn
Jón Hallgrímsson bóndi á Jökuldal er
líka mikill skotveiðimaður og aðeins í
stangveiðinni líka,sérstaklega síðustu
ár, svo líklega hefur það ýtt undir veiði-
áhugann. Draumur okkar pabba er að
sjá laxinn ganga upp alla Jökulsá á Dal
og í þverár hennar. Veiðidellan hefur
síðan bara aukist eins og frægt er um
dellur sem grípa fólk. Fólk er td hætt að
spyrja mig hvað ég ætli að gera í sum-
arfríinu.”
Með hverjum veiðir þú.... fjölskyldu eða í föstum vinahollum?“Ég veiði talsvert ein mín liðs, sér-
staklega í silungsveiðinni. Skrepp t.d oft
í Hörgána sem er í nokkurra mínútna
fjarlægð frá Akureyri. Þá er yngsta
barninu skutlað í leikskólann og síðan
brunað útí á. Tengdapabbi fær stundum
að koma með og ef hann nennir ekki,
bíð ég manni vinkonu minnar með en
við gerðum samning um að ég gæti
fengi hann lánaðan reglulega. Já svona
eiga vinkonur að vera. Bíð bara eftir að
Gróa á Leiti fari á stúfana. Síðan förum
við hjónakornin alltaf í einn stóran lax-
veiðitúr á Jöklusvæðið með Mokveiði-
félagsmönnum og fleiru góðu fólki.
Silungur eða lax?“Nú seinni ár hefur silungsveiðin unnið
á enda svo margar silungsveiðiperlur
viðtalGuðrún Una Jónsdóttir
15
Guðrún veiðir með ýmsum og út um allt, hér eru m.a. myndir frá laxveiðiám, Jökuldalsheiði, með eiginmanni, börnum og tengdapabba. Stóra myndin er frá Hörgá.
16 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
17
18 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Við erum með öflugt fræðslustarf einu
sinni í viku yfir vetrartímann. Í vetur
var það í samstarfi við stangveiði-
félögin Fluguna og Flúðir og var vel
sótt. Þegar líða tekur á vorið bjóðum við
uppá kastnámskeið fyrir byrjendur og
lengra komna. Félagið hefur líka lagt sig
fram við að efla áhuga barna á þessari
íþrótt og boðið uppá námskeið sem
sérstaklega eru ætluð þeim. Framundan
er síðan vorhátíðin okkar, uppákoma
vegna 150 ára afmælis Akureyrarbæjar
svo eitthvað sé nefnt. Við eigum 10 ára
afmæli á næsta ári, sem við munum að
sjálfsögðu halda uppá með pompi og
prakt.“
Svona í lokin: Hvað á að veiða í sumar?„Veiðisumarið mitt byrjar í Jökul-
dalsheiðinni í Sænauta- og Ánavatni
fljótlega eftir að vötnin koma undan
ís. Bleikjurnar þar eru svakalega flottar
en það þarf þolinmæði til að fá þær til
að bíta á. Síðast þegar ég var þar á ferð
kastaði ég með ullarvettlingum af því
það var svo kalt en uppskar 2 flottar 3
og 4 punda bleikjur. Seinnihluta sumars
fram á haust eyði ég í Hörgánni og
ég er einnig búin að panta mér daga
í Ólafsfjarðaránni. Reikna líka með að
ég kíki í Svarfaðardalsána en hún gaf
mér lax í síðasta túr. Fleiri ár á söluvef
SVAK verða vonandi heimsóttar líka
ef færi gefst. Síðast en ekki síst er það
Jöklutúrinn austur en þar fengum við
hjónin 13 laxa á þremum dögum á eina
stöng í fyrra.“
á hjá partnernum mínum og voru það
einu fiskarnir sem náðust í þeim túr
en þeir björguðu sannarlega ferðinni. Í
silungsveiðinni eru það Noblerarnir og
Dýrbítarnir sem gefa best hjá mér.“
Veitt og sleppt? „Ég er alltaf að verða duglegri að sleppa í
laxveiðinni og fer auðvitað að lögum og
reglum í hverri á. Ef þú veiðir með Mok-
veiðifélagsmönnum stendur eiginlega
ekkert annað til boða en að sleppa öllu.
Sjóbleikjuna hirði ég hins vegar og fer
hún oftast beint í pottinn.“
Hvað fékk þig til að fara í formennsku í SVAK.... ertu félagsmálatröll?„Ég fór að starfa með félaginu í vetur og
endaði í stjórn. Ætlaði aldrei að verða
formaður en hlutirnir æxluðust bara
þannig. Ég hef starfað í foreldraráðum
innan KA og hef þokkalega reynslu
þaðan. Þetta er samt mikil áskorun sem
ég vona að ég standi undir, en er með
reynslubolta með mér í stjórn og saman
munum við gera okkar besta.“
Hvað er SVAK stórt félag og fyrir hvað stendur það?„Í Stangveiðifélagi Akureyrar eru um
2-300 félagar. Tilgangur félagsins er
fyrst og fremst að útvega félagsmönn-
um sem hagstæðust og fjölbreyttust
veiðileyfi hverju sinni. Nú fá félags-
menn 20 % afslátt af veiðileyfum sem
eru í umboðssölu hjá okkur og félags-
gjaldi er verulega stillt í hóf og hefur
verið það sama frá upphafi. Vefsalan
okkar er öflug og þannig gerð að menn
geta gengið frá veiðileyfapöntun þegar
þeim hentar og greitt með kreditkorti.
Erum einnig með rafræna veiðibók sem
gefur góðar upplýsingar um veiðina, er
auðveld í notkun og alltaf aðgengileg.
viðtalGuðrún Una Jónsdóttir
19
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
ALLIR VEIÐIMENN ÞEKKJA SIMMS GÆÐI! Gore-tex gerir gæfumuninn.Gore-tex öndunarfilman ber höfuð og herðar yfir aðrar öndunarfilmur bæði hvað varðar vatnsheldni og útöndun.Simms notar Gore-tex Performance-Shell og Gore-tex Pro-Shell í vöðlur og jakka.Engar málamiðlanir. Simms er málið.
Veiðihornið er Simms búðin
20 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Einhvern tíman er við hlýddum á
flugusamtal þá sagði einn: „Það var
nú alveg svakalegt þegar við fórum
síðan að reyna Blue Bottle.“ Og hinn
svaraði: „Já, hún toppaði allt.“ Þegar
spurt var út í þetta kom í ljós að menn
fóru að nota þessa flugu í Laxá í Kjós
á níunda áratugnum, á árunum þegar
Ásgeir Heiðar var þar umsjónarmaður
og Haraldur Eiríksson staðarleiðsögu-
maður. Það var Haraldur sem léði okkur
flugurnar á myndinni og sagði okkur
þessa skemmtilegu sögu.
„Við byrjuðum að nota þessa flugu
líklega 1998. Hún mun vera Nýsjálensk
að uppruna. Heimsþekktur veiðimaður,
Terry Ring, var hér staddur og var að
vinna að sjónvarpsmyndinni „The
Take“, eða Tökuna. Sú mynd er stórkost-
lega vel gerð og gengur enn sinn gang
á sjónvarpsstöðum ytra. Gallinn var
bara sá í byrjun, að áin var afar vatnslítil
og þetta var bölvað vesen. Rétt að menn
voru að fá einhverja hreyfingu með því
að nota Bombera. Anthony Luke var
þarna leiðsögumaður og hann gróf allt
í einu þessa flugu uppúr boxinu sínu
og öllum að óvörum þá bara svínvirkaði
hún. Menn fóru að koma inn eftir vakt-
Tökurnar eins og
sturtað sé niður úr klósettiMiðað við fjölda laxveiðimanna í landinu eru
þeir líklega fáir sem nota þurrflugur í laxinn.
Margir hafa gert einhverjar tilraunir og eiga
2-3 Bombera í boxum sínum. Fæstir hafa sett
í fisk á þessar flugur, en þeir eru þó til sem
það hafa gert og láta vel af þeim við vissar
kringumstæður. Við urðum því meira en lítið
forvitnir þegar okkur var sagt frá miklu minni
og nettari þurrflugu, Blue Bottle, sem menn
veiddu gríðarlega vel á hér fyrir allnokkrum
árum og sumir gera svo enn í dag.
fluguboxiðBlue Bottle
21
irnar hafandi sett í 10 til 12 fiska og þetta
var að virka bæði á lax og sjóbirtinga,
sérstaklega stóru birtingana. Í framhaldi
af þessu var þessi fluga mikið notuð
og í gegnum þurrkana voru hollin að
fá allt upp í 70 prósent af afla sínum á
Blue Bottle. Þetta var á tímabilinu frá
miðjum júlí og fram í miðjan ágúst. Best
gafst hún veidd á dauðareki og ef fínn
goluhjúpur var á ánni. Þá notuðum við
hana nær eingöngu á frísvæðunum
svokölluðu en þar eru margir veiðistaðir
sem hæfa þurrflugu mjög vel, þessi
stóru lygnu fljót sem eru í ofanálag
full af fiski. Ef að við hreyfðum hana,
þá tók fiskur ekki og á þeim tíma var
það líka svoleiðis, að maðkahollum var
hleypt inn á milli og þá tók fyrir alla
töku á Blue Bottle, að okkar mati vegna
þess að menn maðkveiddu frísvæðið
með stórum flotholtum. Fiskurinn varð
hreinlega fyrir of miklu áreiti. En svo
fór hún aftur að gefa þegar maðkurinn
hætti. Tökurnar á Blue Bottle voru
einstaklega skemmtilegar, hún situr
þannig á vatninu að afturendinn er í
kafi en vængirnir uppúr. Það eru engin
læti þegar hún er tekin, meira eins og
það myndist svelgur undir henni og
fiskurinn sjúgi hana niður til sín. Minnir
á þegar pústað er niður úr klósetti og
síðan er eins og allt ætli til fjandans að
fara þegar fiskurinn tekur við sér, búinn
að átta sig á mistökunum
Við veltum því mikið fyrir okkur hvers
vegna flugan var svona mögnuð. Ekkert
svar fékkst auðvitað við því, en það
virðist samt vera augljóst að hún virðist
eiga að líkja eftir fiskiflugunni, enda
heitir hún Blue Bottle á ensku. Það fer
minna fyrir notkun Blue Bottle hin
seinni ár, en það eru þó enn nokkrir
sem veiddu í Kjósinni á þessum árum
sem nota hana samhliða öðru. Þeir eru
að veiða á hana. Sjálfum langar mig
mjög til að fá reynslu á hana víðar. T.d. í
Laxá í Leirársveit, Grímsá, frammi á dal
í Norðurá, þar eru alls staðar svipaðir
staðir og á frísvæðinu í Kjósinni, stórir,
lygnir og fiskur liggur þétt í torfum. Ég
er líka ákveðinn í að reyna hana þegar
við opnum Mývatnssveitina . Hún er
áreiðanlega mögnuð í urriðann ekki
síður en laxinn,“ sagði Haraldur um
þessa mögnuðu töfraflugu.
Þetta er hin magnaða þurrfluga Blue Bottle, eða Fiskiflugan. Mynd: Heimir Óskarsson.
22 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
„Þetta var sumarið 1980 og köldu árin
1978 og 1979 voru farin að taka sinn toll,
það var frekar lítið af laxi í ánni og þegar
Alan og félagar hans voru í ánni, var
hún auk þess hálf steríl, það var sól og
frekar lítið vatn og þeir voru ekkert að
veiða vel kapparnir. Ameríkanarnir voru
byrjaðir að kenna okkur hér hitsið og
það var aldrei byrjað í neinum hyl nema
með hitsi. En það var lítið að ganga og
Alan settist við væsinn í Sólvangi og fór
að „fiddle about“ eins og hann orðaði
það þegar ég spurði hann, en hann sat
við þetta við kertaljós um miðnætti.
Hann var þá byrjaður að vinna í þessari
flugu.
Daginn eftir sagði hann mér að skutla
félögunum að ánni, hann ætlaði sjálfur
að vera uppi í húsi og dunda við flug-
una. Sjálfur fór ég í snúninga niður
í Borgarnes og svo leið á daginn. Á
seinni vaktinni átti Alan Stangarhyl, en
félagar hans voru á Tannalækjarbreiðu,
Jarðlangsstaðakvörn og Neðri Hvíts-
staðahyl. Rétt fyrir sex kom ég í hús og
þá var Alan búinn að klára fluguna og
sýndi mér. Þetta var tvíkrækja á löngum
legg með fremur stóran haus til að
gáruhnúturinn passaði betur. Þetta var
falleg fluga fannst mér, silfraður búkur,
grænt vaf, Jungle cock. Það var eitt-
Níu laxar á fyrstu vakt í fiskleysi
Langá fancy er fluga sem kom fyrst fram á
sjónarsviðið sumarið 1980. Eins og nafnið
gefur til kynna var Langá á Mýrum vettvang-
ur þess atburðar. Höfundur flugunnar var
Alan Mann, breskur veiðikappi sem veiddi
á Íslandi í 30 ár, í Hofsá, en aðallega þó um
árabil í Langá á Mýrum þar sem honum varð
vel til vina með Ingva Hrafni Jónssyni frétta-
manni og sjónvarpsstjóra ÍNN, en Ingvi
var þá með miðsvæðin í Langá á leigu og
hafði veiðimenn sína í veiðihúsinu Sólvangi
í landi Stangarholts. Alan Mann var ein af
frægustu kappaksturshetjum Bretlands og
hann lést nýverið. Það er einkar skemmtileg
saga á bak við tilurð Langá fancy, sem enn
í dag er ein gjöfulasta flugan sem bleytt er í
Langá á Mýrum. Við báðum Ingva að segja
okkur söguna.
fluguboxiðLangá fancy
23
hvað í henni úr öðrum flugum, Night
Hawk, Silver Doctor, en samt var þetta
ný fluga með eigin sérkenni. Hann var
með fjögur eintök og vildi byrja á því að
hitta vini sína, sem voru Carl Wheeler,
Tony Seare og Peter Hewitt. Hann fór
til þeirra allra og gaf þeim eintak af
flugunni, gegn því að mega kasta henni
fyrst í hylinn hjá þeim. Tony Seare var
tannlæknir frá Brighton og þeir voru
sérstaklega miklir mátar og afar inn-
stilltir inn á sprellið hvor hjá öðrum.
Þeir hleyptu allir Alan í hylinn, en Tony
ætlaði þó fyrst að senda hann til baka.
Forvitnin réði síðan að lokum og það
er skemmst frá að segja að Alan setti
strax í lax í öllum hyljunum fyrir framan
nefin á félögum sínum. Hafði þó eng-
inn þeirra fengið fisk á vaktinni. Síðan
lét hann þá alla hafa flugur og fór síðan
upp í Stangarhyl. Þar lauk hann vakt-
inni og landaði sex löxum í beit! Alls var
hann þá búinn að landa níu löxum á
þessa nýju flugu í fiskleysinu.
Ég fór síðan og sótti félagana og Alan
var búinn að biðja mig að segja ekki frá
löxunum sex. Hann raðaði þeim öllum
á pallinn (allt drepið í þá daga) á meðan
ég skaust eftir körlunum, en enginn
þeirra hafði fengið fisk eftir að Alan fór
frá þeim. Hann lá svo í leyni til að sjá
svipina á þeim þegar þeir sáu hrúguna
við húsið og víst er að þeir misstu
algerlega andlitin og hvein mikið í
þeim. En þeir voru um það bil hálfnaðir
með vikuna sína þegar þetta gerðist og
veiðin batnaði mjög. Og mest veiddist á
Langá fancy, sem Alan skýrði því nafni
þar og þá. Hann hnýtti margar í viðbót
þarna við ána og gaf mér m.a. box með
15-20 stykkjum. Í framhaldi af því fór
ég að gauka flugu og flugu að félögum
mínum. Það endaði með því að Doktor
Jónas fór að framleiða fluguna fyrir
opinn markað. Flugan er enn mikið
notuð í Langá og víðar og enn hefur
hún töframáttinn. Seinni árin er hún
hins vegar oftast notuð sem hitstúpa.
Langá fancy, hugar-smíð Alans Mann. Mynd: Heimir Óskarsson.
24 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Galdrafluga með gamla sögu
Silungaflugan Alexandra er með þeim skraut-
legri. Litlum sögum fer af veiðni hennar nú til
dags, en svo var ekki forðum er hún var svo
banvæn í breskum vötnum að ástæða þótti
til að banna notkun hennar víða. Það mætti
ætla að fáir noti hana þó að flestir hafi heyrt
hennar getið og fræg lýsing á henni var í hinni
klassísku Roðskinnu Stefáns heitins Jónssonar
fréttamanns. Hann sagði frá því að veiðibúðar-
eigandi einn hefði hvíslað því að sér að Alex-
öndru keyptu engir nema eiginkonur í gjafaleit
handa körlum sínum. Var sá þá nýbúinn að selja
einni frúnni Alexöndru númer 2, sem er býsna
skrautleg og stæðileg fluga. En Alexandra á sér
bráðskemmtilega sögu sem gaman er að rifja
upp og þegar við spurðumst fyrir hjá hópi veiði-
manna sem við þekkjum til, kom í ljós að ýmsir
höfðu af henni góða reynslu. Var jafnvel talað
um galdraflugu.
Stefán Bjarni Hjaltested er fróður mjög
um flugur og sögu þeirra. Hann sagði
okkur þetta um uppruna Alexöndru:
„Alexandra bar fyrst nafnið Lady of
the Lake en var endurnefnd til heiðurs
Alexöndru Bretaprinsessu .Talin fyrst
hnýtt um 1860, annaðhvort af W. G.
Turle frá Newton eða Dr.John Brunton
breskum hugvits og veiðimanni.“
En hver var umrædd Alexandra? Það
er hægt að gúggla alla hluti að því er
virtist og fyrsta gúgl sagði okkur þetta:
„Alexandra prinsessa af Danmörku var
valin 16 ára gömul til að verða kvonfang
Alberts Játvarðs prins af Wales. Þegar
Victoría Bretadrottning, tengdamóðir
hennar, andaðist árið 1901, færðist
Alexandra upp um titil, varð drottning
hins nýja kóngs af Wales. Opinberlega
þótti Alexandra virðuleg og aðlaðandi
og í einkalífinu ástrík og glaðleg.“
Á hnýtingarsíðu sem við fundum á
Netinu var Alexöndru lýst sem fyrrum
stórveiðiflugu og komið var inn á bannið
sem skellt var á hana sums staðar. Það
kemur líka fram að flugan virki í stað-
bundinn urriða, sjóbirting og regnboga-
silung. Hún flokkist undir „attractor flies“
sem virki gjarnan best á dögum þegar
engin leið virðist fær til að finna réttu
fluguna eða fá töku. Þá sé gott að draga
fluguboxiðAlexandra
Alexandra prinsessa og síðar drottning.
25
Eimskips .Hann átti sumarhús við
Helluvatn og var veiðimaður af guðs-
náð fannst mér Veiddi oftast af báti og
eingöngu á flugu . það voru sæludagar
að vera með þessum öðlingi. Aðallega
veiddi hann á 4-5 flugur Alexöndru,Teal
and black Black zulu Peter Ross og
Connemara black Hann hnýtti þessar
flugur sjálfur og tíndi oft viss efni í þær
við vatnið. Alexandra var gríðarlega
mikið notuð hér áður fyrr en er ein af
þeim flugum sem hreinlega datt út,
en er að taka við sér aftur núna. Farið
var að sleppa rauðu andarfjöðrunum
í hala og hliðum, sem að mínu mati
eyðilagði fluguna. Alexandra veiddi best
neðarlega í vatni og var oft dregin mis-
hratt ,stundum með vægum rykkjum
Mér var kennt að spara stundum efnið í
vængnum. Veiddi mikið á hana á árum
áður hjá frændum mínum á Vatnsenda.“
fram Söndru, því hún veki áhuga fiska
og um leið aukist mjög vonin um að þeir
taki agnið. Hún sé sem sagt fremur fluga
sem fífli fiskinn til að bíta fyrir forvitnis-
sakir heldur en að hún minni hann sér-
staklega á eitthvað gómsætt.
En þeir sem eru miðaldra eða meira
muna sumir eftir því að Alexandra var
gjarnan nefnd í sömu andránni og
nokkrar aðrar klassískar eins og Tiel
and Black, Peter Ross, Connemara black
og fleiri. Þá var hún víða mikið notuð,
en síðan virðist frægðarsól hennar hafa
hnigið verulega.
En okkur fýsti að heyra hvað veiðimenn
hafa að segja um fluguna. Stefán Bjarni
sagði okkur meira, t.d. þetta: „Árið 1954
kynntist ég manni sem Valtýr hét og
var skrifari við höfnina starfsmaður
Það eru mjög skiptar skoðanir um það hvort að fluga þessi sé veiðileg eða ekki. Sumir vilja jafnvel slíta vængina af. Mynd: Heimir Óskarsson.
26 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
gert það. Mér er efst í huga þegar ég var
við veiðar í Laxá í Aðaldal í urriðaveiði
og var að veiða Höfðahyl. Þarna var ég
með Pétur Pétursson, Húsvíking, mér
til aðstöðar og fékk ég tvo væna urr-
iða á stuttum tíma, báða á Alexöndru í
straumflugu útgáfu. Þessir urriðar voru
52 og 56cm ef að ég man það rétt.“
Það var og
Og annar veiðimaður í yngri kantinum,
Svavar Hávarðsson, benti okkur á að
Alexandra gefur ekki bara silung ef
svo ber undir, heldur getur hún einnig
reynst hin skæðasta laxafluga. Og það
þarf engum að koma á óvart. Svavar
sendi okkur tilvitnun af vef Affallsins
frá haustinu 2010, en þá var að veiðast
óhemjulega vel í ánni. En í tilvitnuninni
stóð: „Nýtt met var slegið í Affallinu í
gær þegar 49 laxar komu á land. Þar
af tóku 37 rauðan Frances, en 12 tóku
Alexöndru. Með veiði dagsins í dag fór
Affallið svo í fyrsta sinn yfir 900 laxa.”
Ritstjóri kastaði oft Alexöndru fyrr á
árum. Þá var verið að stunda vötnin
meira en nú til dags. Henni var kastað í
Þingvallavatn, Elliðavatn, Vífilstaðavatn
og einhver vötn á Arnarvatnsheiði, t.d.
Arnarvatn litla. En engin var veiðin.
Aðrar flugur voru að gera það gott,
en Alexandra var bara ekki að standa
vaktina. Á þeim árum fékk undir-
ritaður þar með megna ótrú á flugunni.
Mörgum árum seinna var tregt hjá
okkur í Sjávarstrengjum Skálmardalsár,
en þó slangur af bleikju á ferðinni. Eftir
að hafa reynt margt var komið skap til
að gera einhverja vitleysu. Þarna kúrði í
boxinu gamalt lúið eintak af Alexöndru.
Ótrúin sat föst við sinn keip og eftir
öll þessi ár rann það upp fyrir mér að
það voru grænu vængirnir sem fóru í
Það var Ragnar Hólm Ragnarsson sem
notaði orðið Galdrafluga. Hann sagði
þetta: „Sagt er að Alexandra hafi verið
bönnuð í ákveðnum vötnum þegar hún
kom til skjalanna seint á 19. öld og hét
þá Lady of the Lake. Mér hefur alltaf
fundist þessi fluga einkar falleg: græni
páfuglinn og rauða línan í vængnum
yfir silfruðum búknum. Hún er samt
eins og margar af þessum klassísku
gömlu silungaflugum, vanmetin nú
til dags og allt of lítið reynd. Ég á hana
alltaf til í boxunum mínum og gríp
oft til hennar við erfiðar aðstæður.
Mér finnst hún eiginlega flottust sem
tvíkrækja nr. 12, þá er einhverju jafn-
vægi náð.
Alexandra hefur gefið mér marga fiska
þegar tregt hefur verið í Hlíðarvatni
og einu sinni bjargaði hún túr í vötnin
fyrir landi Mallands á Skaga. Þá hafði
Álftavatnið verið steindautt drjúga
dagsstund en þegar Alexandra sveif yfir
vatnsflötinn og lenti loks með blautum
kossi, var eins og suða kæmi upp í
stórum potti. Menn gætu deilt um hvort
það hafi verið einmitt sá tími dagsins
eða hvort flugan réði úrslitum, ekki vildi
ég storka örlögunum með að skipta
um flugu og fá heim um það sanninn.
Í mínum huga er Alexandra stundum
algjör galdrafluga.“
Yngri veiðimenn sem við heyrðum í
höfðu í einstöku tilvikum eitthvað um
fluguna að segja. T.d. hafði einn hnýtari
okkar Veiðislóðarmanna, Sigurberg
Guðbrandsson þetta að segja: „Hef ekki
mikla reynslu af notkun á Alexöndru
en hef þó gert fína veiði með henni.
Alexandra hefur reynst mér best sem
straumfluga, hnýtt með augum til
þyngingar. Set hana ekki oft undir en
hún hefur gefið mér vel þegar ég hef
Alexandrafluguboxið
Hægt er að sérpanta
flugur hjá Sigurberg
Guðbrandssyni hnýtara
í síma 696 1139.
27
Af þessu má ráða, að hér er um marg-
slungna flugu að ræða. Eina af mörgum
gömlum klassískum flugum sem eru
alveg hreint jafn góðar í dag og þær
voru í gær. Menn eru bara hættir að
nota þessar gömlu góðu. Ekki er vafi
að það kryddar tilveruna á bökkum
vatnanna að tína til af og til þessar eldri
gersemar og athuga hvort þær gefi ekki
enn fiska.
taugarnar á mér. Minntu á slý, engu var
líkara en að slýhattur héngi á þessari
flugu í hverju kasti. Ég sleit því væng-
ina af flugunni, kastaði henni og fékk
strax nokkrar bleikjur. Seinna fékk ég
líka góða sjóbleikjuveiði á vængslitna
Alexöndru í Hrolleifsdalsá í Skagafirði.
Og það merkilega er, að þegar við
gerðum fyrirspurnir til veiðimanna um
reynslu þeirra af Alexöndru, fengum við
m.a. þetta svar frá Erni I. Jóhannssyni:
„Ég er búinn að nota hana í Þíngvalla-
vatni í mörg ár, en byrja á að klippa
megnið af vængjunum af, hef fengið
allt uppí 6 punda bleikjur þannig.“
00000
Veiðikortið37 vötnEitt kort6.000 kr. www.veidikortid.is
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
28 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
skroppa með purpuralitað selshár þegar
hann var að hnýta uppáhaldsfluguna
sína, Teal and Red. Af þeim sökum varð
rauði bolurinn undir gráyrjótta urtand-
arvængnum allt of stuttur og ekki nema
svo sem 1/3 af lengd silfraða leggsins.
En við þessu var bara ekkert að gera, og
þegar hann reyndi svo þessa vanbúnu
flugu um kvöldið, þá tóku silungarnir
hana svo grimmt að hann hafði bara
aldrei vitað annað eins. Það voru nú
meiri ósköpin.
Í predikuninni daginn eftir lagði hann
svo út af ritningargreininni þar sem
segir frá því þegar Jesús hitti Pétur og
áhöfn hans við netabætinguna hjá
Genesaretvatni og bað þá að hætta nú
að veiða fiska og koma heldur með sér
að veiða menn. “Og þeir gerðu það og
fylgdu honum.Hóseanna!” sagði séra
Peter Ross. Svo kom löng þögn inn-
blásinnar undrunar sem lauk með
andköfum, og hann bætti við: “En þeir
voru reyndar ekki fluguveiðimenn!”
Þetta er náttúrulega með alskemmti-
legustu forsögum af nokkurri flugu, þó
En hér er um stórmerkilega flugu að
ræða. Þetta er ein þekktasta silunga-
fluga allra tíma og menn hafa líka veitt
lax á hana. Ef hún væri notuð reglulega
sem laxafluga þá væri hún eflaust hátt
skrifuð, enda hefur hún alla burði til að
vera slík veiðikló. En sum sé, þá er hún
fyrst og fremst silungafluga og með
stóraukningu í notkun á kúlupúpum hin
seinni ár, hefur hún einnig skotið upp
kollinum sem afburðafluga af því tagi.
Peter Ross er gömul fluga og á sér
skemmtilega forsögu. Þá forsögu rakst
ritstjóri á í bókinni “Lífsgleði á tréfæti”,
eftir Stefán heitinn Jónsson frétta-
mann. Sú bók er afburðagóð lesning
fyrir alla veiðimenn hvort heldur er
skot- eða stangaveiðimenn. Hann
fjallar m.a. um uppruna Peters Ross, þar
stendur:
-Í þessum orðum skrifuðum rifjast upp
fyrir mér rétt einu sinni sagan um skír-
dagspredikun skoska prestsins, séra
Peters gamla Ross, sem lenti í því fyrir
150 árum (skrifað 1998-99) á miðviku-
daginn í dymbilvikunni að verða uppi-
Séra Peter Ross og selshárinÞá er ekki síður skemmtileg forsaga hinnar þekktu flugu Peter Ross, sem er
betur þekkt fyrir aflasæld heldur en Alexandra. Enn í dag nota margir Peter Ross
í silunginn og einkannlega er púpuafbrigði af henni veiðisælt í andstreymisveiði,
sérstaklega með lítilli kúlu framan á.
Peter Rossfluguboxið
29
viðstöðulaust og við reyndum hverja
fluguna af annarri, en þetta var bara
sýning. Loks var félagi minn kominn
með lúið eintak af Peter Ross, tvíkrækju
númer 12 sem þótti smátt á þeim
árum. Skyndilega lyfti sér lax nokkuð
á skjön við hástökk allra hinna. Þetta
var fyrir ofan félagann og hreyfing
laxins minnti meira á uppítöku silungs
heldur en laxastökk eða þegar þeir kafa
upp með haus, bak og sporð. Félagi
minn var í miðju bakkasti, en vatt uppá
sig og sendi fluguna upp eftir, sum
sé andstreymis, Peter Ross paddan
lenti beinlínis í svelgnum eftir fiskinn,
sem enn var stór á yfirborðinu, og var
soginn ofan í kok á 8 punda hæng í
sömu andrá. Eftir á að hyggja var þessi
lax nokkuð sérkennilegur, því hann
var mjög þéttdílóttur og meira að segja
nokkuð sjóbirtingslegur. Þetta var þó
lax við nákvæma skoðun, engin spurn-
ing um það..
eiga þær sér margar skemmtilegt upp-
haf og feril. Sá er þetta ritar hefur lítið
haft af Peter Ross að segja.
Tók einu sinni þó tæplega 4 punda urr-
iða á hana í snarbrjáluðu veðri frá engj-
unum gegnt Elliðavatnsbænum. Mörg
ár síðan. Veðurhamurinn var slíkur að
það var enginn annar nógu vitlaus til að
vera úti við í veiðiskap. Og rokið beint í
fangið. Þessi veiði var mér líka minni-
stæð fyrir þær sakir að einhverju sinni
var bíl ekið frá Elliðavatnsbænum og
var skyndilega stöðvaður. Út úr honum
vatt sér maður sem öskraði undan vindi
svo undir tók í fjöllunum, “Er einhver
veiððððiiiiiii......” Endurtók síðan öskrið
enn hærra. Á móti snarvitlausu slag-
veðrinu datt mér ekki til hugar að reyna
að öskra á móti og maðurinn hristi
hausinn, gafst þá upp, stökk inn í bíl og
ók burt, eflaust veltandi fyrir sér hvaða
helv... fýlupoki þetta væri.
Þá var ég eitt sinn, einnig fyrir mörgum
árum, í Elliðaánum og félagi minn
og ég gátum ekki slitið okkur frá lax-
atorfunni í Kistunum. Laxar stukku
Peter Ross, hefðbundin og sem púpa en þannig hnýtt er hún alvarlega banvæn silungum. Mynd: Heimir Óskarsson.
30 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Sjávarfoss í Straumfjarðará. Myndir eru úr safni Ástþórs Jóhannssonar og Katrínar Ævarsdóttur.
31
veiðistaðurinn
Ástþór Jóhannsson
Straumfjarðaráperla á Snæfellsnesinu
32 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
síður þá en nú myndaði talsverð verð-
mæti og mundi reynast þung refsing
eignalitlum bónda; á núvirði, sekt sem
nemur vel á aðra milljón.
Í bókinni Rivers of Iceland sem skrifuð
var af Major General R. N Stewart rétt
fyrir miðja síðustu öld lýsir hann dvöl
sinni við Straumfjarðará, en þessi
veiðimaður sem ættaður var frá Skot-
landi heimsótti ána í fyrsta sinn árið
1912 og síðan í einhver skipti næstu
áratugina, allt fram yfir seinni heims-
styrjöld. Lýsingar hans eru stór-
skemmtilegar og fróðlegar, ekki síður
lýsingar hans á mannlífinu, en lýsingar
á veiðiskapnum. Áin var þýdd yfir á
íslensku af Einari Fal Ingólfssyni ljós-
myndara og blaðamanni fyrir síðustu
jól og er skyldueign stangaveiðimanna
fyrir allan þann fróðleik sem þar er að
finna.
Sérstakt veiðifélag var stofnað við ána
árið 1938 og að stofnun þess stóðu
landeigendur. Þegar komið var fram
á þennan tíma hafði áhugi fjölmargra
Íslendinga vaknað fyrir stangveiði og
Veiði í Straumfjarðará er fyrst getið
meðal annarra stórkostlegra eigna
Helgafellsklausturs. Það kemur fram í
máldagabók klaustursins frá 1378 og
einnig í Vilkinsmáldaga frá 1397. En
þar sem búið hefur verið við ána frá
miðri 9. öld má búast við því að þar
hafi veiðar verið stundaðar frá upphafi
Íslandsbyggðar, á meðal írskra íbúa
er þarna bjuggu fyrstir og hafa eflaust
verið kunnugir handtökum við veiðar
heiman að frá sér á Írlandi. En Straum-
fjarðará rennur einmitt um Dufgusdal
sem heitir eftir írskum landnámsmanni
er þar bjó og getið er um í Eyrbyggju.
Helgafellsklaustur hefur að öllum lík-
indum haldið eignaréttinum frá miðri
13. öld. Í fornri dómabók er heimild frá
1351 um málarekstur Þorsteins ábóta
Snorrasonar í Helgafellsklaustri og Ara
Grímssonar, bónda nokkurs er bjó á bæ
einum nærri ánni. Hafði sá síðarnefndi
orðið uppvís að því að laumast í óleyfi
í ána. Ekki var tekið mjúklega á þessari
yfirsjón Ara bónda, því honum var gert
að greiða klaustrinu sekt sem nam tíu
kýrverðum. Það er upphæð sem ekkert
Við stöldrum að þessu sinni við á bökkum Straumfjarðarár sem rennur til
sjávar á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hún er vestust hinna þekktu laxveiðiáa
sem falla til sjávar á nesinu, allt frá Mýrum og út á nesið. Áin er í leigu
hjónanna Ástþórs Jóhannssonar og Katrínar Ævarsdóttur í Dal og Konráðs
Inga Jónssonar sem kenndur er við Litróf. Straumfjarðará er miðlungs stór á
í smærri kantinu ef þannig mætti að orði komast, hún er veidd með fjórum
dagsstöngum og er „minnsta“ áin í þeim skilningi þar sem þjónusta er höfð
í veiðihúsi. Þau halda úti veglegri heimasíðu um ána, www.straumfjardara.
is og styðst þessi texti að hluta við eitt og annað sem þar er að finna, að öðru
leyti eftir samtölum við hinn margfróða Ástþór.
veiðistaðurinnStraumfjarðará
áin þá þegar orðin eftirsótt til veiða. Í
upphafi síðari heimstyrjaldarinnar tók
að mestu leyti fyrir heimsóknir erlendra
veiðimanna, en á sama tíma jókst áhugi
heimamanna og fyrsta byggingin sem
sérstaklega var byggð fyrir veiðimenn
reis við ána. Um tíma voru tvö hús.
Annað þeirra stóð nærri gamla brúar-
stæðinu, en hitt og það sem síðar varð
helsta aðsetur veiðimanna um áratuga
skeið stóð á svonefndum Hólavelli,
sem hafði verið bæjarstæði á Dalsjörð-
inni um aldir. Á þessum árum deildu
veiðimenn húsrými með ábúendum
jarðarinnar Dals, sem á veiðitímanum
flutti með sitt heimilishald út í hlöðu
yfir sumartímann. Var sá háttur hafður
á fram á sjötta áratug síðustu aldar.
Árið 1975 fengu veiðimenn aðstöðu í
nýbyggðu veiðihúsi, er reyst var nærri
grunni þess gamla.
Sumardag einn árið 1962 hóf Spánverji
nokkur að venja komur sínar í ána og
hann ásamt félögum sínum dvaldi þar
við veiðar frá fyrstu viku í júlí og fram
undir lok ágústmánaðar, ár hvert, allt
fram til þess tíma að hann dró sig í hlé
fyrir aldurs sakir árið 1995. Félagi hans
einn Juan Palao er lengst af dvaldi með
honum hélt út fram á nítugasta og
sjötta aldursár sitt, en hann veiddi í síð-
asta sinn í ánni sumarið 2004 og hafði
þá stundað veiði í ánni hvert sumar í
nærri hálfa öld. Síðustu árin lét hann sér
nægja að kasta flugu sinni fyrir laxana
er safnast fyrir í Húshyl þegar líður á
sumarið. Enn er hópur spánskra veiði-
manna er dvelur hér við veiðar ár hvert
og því má segja að „spánska öldin“ hafi
ríkt hér við ána í fimm áratugi.
Frá 1997 hefur eingöngu verið leyfð
fluguveiði í ánni og Straumfjarðará var
fyrst í hópi þeirra áa sem síðan hafa
veiðistaðurinnStraumfjarðará
Húshylur að ofan, Nýja brú að neðan.
35
Af hverju Winston?Einstakur karakter
Einstök gæði
Grænu stangirnar “Green Sticks”eru framleiddar í Bandaríkjunum
Allar með lífstíðarábyrgð frá framleiðanda
STRANDGATA 49 - 220 HAFNARFIRÐI - SÍMI 555 6226 - VEIDIBUD@VEIDIBUD.IS
Best geymda leyndarmálið?
Það má segja að Winston sé eitt best geymda leyndarmálið í fluguveiði á Íslandi því svo lítið hefur farið fyrir þessu frábæra bandaríska merki sem á sér þó hóp harðra aðdáenda.Winston hefur lengi farið sínar eigin leiðir í efnisvali en þekktastar eru Winston flugustangir fyrir Boron stangarefnið.Winston flugustangir hafa sinn einstakakarakter sem engir líkja eftir en svo margir eru hrifnir af.Hefur þú prófað Winston? Ef ekki er svo sannarlega kominn tími til.
9,5 kg. ÞingvallaurriðiLandað á Winston Boron IIIx #6 í maí 2012
36 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Best er að koma ofan frá fossinum og niður
í gljúfrið að austan, enda keyrt að ánni þeim
megin. Fiskur getur legið og tekið í strengjun-
um þar sem gljúfrið er þrengst og alveg niður
á brotin þar sem breiðan endar. Í litlu vatni er
betra að veiðastrenginn vestan frá. Hefur gefið
upp í 61 lax og alltaf minnst tveggja stafa tölu
síðustu árin, utan að 2009 veiddust þar aðeins
þrír laxar!
Grænibakki
Fallegur strengur með breiðu. Lax liggur gjarn-
an við klöppina efst í strengnum sem skiptir
ánni og síðan alla leið niður á brotin, allt eftir
vatnsmagni. Þarna veiðist lax upp úr júlí og
síðan út veiðitímann ef vatn er í góðu meðal-
lagi. Getur verið drjúgur og hefur komist í 19
laxa síðustu sumur, en líka dottið niður í 1-2
fiska.
Hýrupollur
Djúpur stuttur hylur rétt ofan við veiðihúsið,
þar sem áin fellur um klapparþrengingu. Þarna
er straumiða mikil og erfitt að ná flugunni
niður. Í dýpinu safnast laxinn fyrir og tekur
fluguna þegar hún dansar í fryssinu. Í litlu
vatni liggur lax í strengnum ofan við þreng-
inguna. Þessi staður gefur oftast dálítinn slatta
af laxi, algengt 10 til 20 yfir sumarið.
tekið upp slíkt veiðifyrirkomulag. Árið
2001 var byggður laxastigi í ána þar
sem hafði verið nokkur hindrun fyrir
göngufisk og við það dreifðist lax sér
betur um ána. Næstu árin á eftir veidd-
ist talsvert meira af laxi og á sama tíma
jókst hrygning í ánni. Sumarið 2006 var
tekið í notkun glæsilegt veiðihús sem
vakið hefur athygli fyrir góða hönnun
og staðsetningu.
En skoðum nú helstu veiðistaði árinnar.
Við stoppum ekki við þá alla, því veiði-
skýrslur gefa skýrt til kynna hvar er
góður staður og hvar ekki. Þó geta víða
leynst laxar eins og þekkt er og Ástþór
sagði okkur þegar við veiddum í ánni
hjá honum s.l. haust að þegar vatns-
magnið væri vel yfir meðallagi, líkt og
var seint í september í fyrra, þá mætti
heita að áin væri einn óslitinn veið-
staður því nánast alls staðar mætti finna
heppilegan stein, straumbrot eða pytt
þar sem lax gæti unað sér. Við byrjum
efst í ánni og það er Ástþór sem lýsir
þessu í öllum aðalatriðum
Rjúkandi
Efsti laxgengi veiðistaður árinnar. Hér safnast
lax saman í kerinu undir fossinum. Best er
að kasta á hann uppstreymis og draga línuna
hratt að sér þegar hún berst með straumnum
yfir fiskinn sem þarna liggur. Með þeirri aðferð
er minni hætta á að styggja laxinn. Í góðu vatni
liggur lax í strengnum rétt fyrir neðan fossinn.
Þar getur komið styggð að honum ef ekki er
varlega farið því nálægðin við laxinn er mikil.
Þetta er góður staður og hefur gefið upp í 40
laxa á sumri og alltaf að minnsta kosti tveggja
stafa tölu
Gíslakvörn
Einn gjöfulasti veiðistaðurinn í efri hluta
árinnar. Eins og víðar um ána þarf að gæta að
sér því auðvelt er að styggja laxinn í hyljunum.
veiðistaðurinnStraumfjarðará
Dalsfoss
Veiðistaðurinn er rétt neðan við veiðihúsið
og er fosshylur eins og nafnið ber með sér, að
mestu umkringdur lágum hömrum. Í kverk-
inni framan við fossinn er laxastigi er byggður
var 2001 til þess að bæta göngur fisks upp á
efra svæði árinnar.
Lygnihylur
Einnig nefndur PresidentFraman við klettana
sem skipta Lygnahyl frá Litlafossi breiðir áin
úr sér í fallegt ker sem rennur á klöpp með
skessukötlum og þar liggur laxinn þegar
árvatnið er í kjöraðstæðum. Veiðiskilin eru
oft ógreinileg á milli Lygnahyls og Litlafoss,
því fiskurinn sakkar sér úr stokknum niður á
brotin og í strenginn þar fyrir ofan, eftir því
sem vatnshæð árinnar eykst. Staðurinn er
kjörinn í miklu vatni og heldur fiski frá upphafi
vertíðar og fram í lok veiðitímans. Helsti töku-
staður er út af klapparhorninu vestan megin
árinnar. Þegar vatnsstaða er óvenju há leggst
lax og tekur við bakkann austan megin, niður
á brotinu. Í miklu vatni, sérstaklega ef fiskur er
í göngu fyrri hluta sumars myndast strengur
út af eyri er skiptir ánni rétt neðan við flúðina
sem markar veiðistaðinn. Í vatnavöxtum getur
myndast þar góður veiðistaður sem nefnist
Þvottastrengur, þegar lax flýr ólguna sem
myndast neðan við Dalsfoss og í stokknum
neðan við hann. Þrátt fyrir allt þá er staðurinn
mishittur milli ára, hefur gefið frá 1 laxi upp
í 54 og heldur virðist hann hafa dalað allra
síðustu sumur.
Bænhúshylur
Neðan við túnið hjá veiðihúsinu rennur áin
í löngum klapparstokki, sem má þekkja af
símalínu sem strengd er á milli staura um
miðjan hylinn. Undir línunni er einmitt töku-
staður, en lax færist upp eða niður strenginn
eftir vatnshæð og straumþunga. Það er eitt af
einkennum Straumfjarðarár að í rigningartíð
getur hún bætt við sig miklu vatni og því er
fiskur sífellt að færa sig í breytilegri vatnshæð,
ekki síst á veiðistöðum eins og þessum. Um
miðjan hylinn marar langur klettur í kafi og
í straumnum vestan við hann tekur laxinn
á milli hamranna sem skipta hylnum frá
breiðunni fyrir neðan. Þar liggur síðan laxinn
þegar vatn vex og þá liggur hann og tekur
fluguna alveg niður á brotin og enn neðar í
strengjunum þar fyrir neðan sem myndast
þegar áin flæðir. Bænhúshylur er að öllu jöfnu
virkur upp úr mánaðarmótum júní/júlí og helst
virkur fram í lok veiðitíma. Hann er með betri
veiðistöðum og fer ekki undir tveggja stafa
veiðitölu. Hefur mest gefið 41 lax hin seinni ár.
Svartibakki
Hér fellur áin litlu neðar um grjótþrengingar
eða smáflúðir og breiðir síðan úr sér neðan
þeirra. Út af klöppunum er myndarlegur steinn
sem þrengir að staumnum. Neðan við hann og
alla leið niður breiðuna er tökustaður laxa og
ræður vatn hversu ofarlega laxinn tekur. Í miklu
vatni tekur hann út frá steininum neðarlega
á breiðunni og í verulega kröftugu veiðivatni
verður til annar strengur nokkru neðar, rétt ofan
við holtið þar sem áin beygir til vesturs. Svarti-
bakki er í góðu vatni fallegur og gjöfull staður,
en heldur illa fiski þegar vatnsstaða í ánni er lág.
Í gegnum árin hefur hann reynst drjúgur og
gefið upp í 73 laxa í besta ári (2008)
Nýja brú
Á þessum veiðistað þar sem þjóðvegurinn
vestur á nes þverar ána er auðvelt að fylgjast
með laxagengdinni og þegar komir eru laxar í
brúarhylinn í upphafi vertíðar er ljóst að fiskur
er genginn á fleiri staði. Þegar líður á sum-
arið geta laxar legið í tugatali í hylnum undir
brúnni og þar veiðist lax alla vertíðina. En þeir
37
Við Rjúkanda.
38 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
vestri á eftirmiðdögum. Í miklu vatni verður
til annar strengur utan við megin veiðistaðinn
og þá er veitt af klöppunum sem mara í kafi
austan við strenginn. Þetta er líklega besti
veiðistaður árinnar þó hann sé ekki jafngjöfull
alla vertíðina. Hefur komist í 118 og 119 laxa
allra síðustu sumur.
Snasi
Niður með holtinu austan og neðan við Sjávar-
foss liggur löng breiða sem endar í nokkuð
djúpum hyl neðst við holtsendann. Út frá
klöppinni sem þar skagar út í hylinn er helsti
tökustaðurinn í Snasa. En auk þess geta fiskar
tekið þar sem þeir leynast upp eftir strengnum
við grjótin. Er afar mishittur, 0 til 98 er sveiflan.
Neðri Nethamar
Langur strengur sem rennur með lágu mýrar-
holti. Þarna gætir sjávarfalla í stórstreymis-
flóði. Nokkuð er af bleikju í strengum stuttu
eftir að fer að falla aftur út og enn frekar neðst
við klappirnar þar sem hylurinn er dýpstur.
Þegar lax er að ganga er ágæt laxavon víða
um strenginn. En það ræðst af því hvernig
staðurinn mótast um veturinn. Þarna rennur
áin á nokkuð skriðulli möl sem á það til að
fletja út staðinn og þá stoppar laxinn þar síður.
Allra síðustu sumur hefur mölin skemmt veiði-
staðinn, en hann hefur þó verið gjöfull, t.d.
veiddust þar 59 laxar 2003 og 24 laxar 2004.
Sökkur
Í beygjunni neðan við eyrina hjá Nethamr-
inum neðri rennur áin við holtið sem nær
niður í ósasvæði árinnar, þar getur safnast upp
bleikja og einn og einn lax veiðist þar. Þó ekki
árlega. Fyrst og fremst er þetta silungastaður
sem gaman er að kasta í. Á flóði hverfur veiði-
staðurinn og kemur ekki í ljós aftur fyrr en að
fellur út á ný. Á meðan flæðir er veiðistaðurinn
ónýtur. Sumarið 2004 veiddust þarna 32 laxar
og 2005 18 stykki. Annars hafa fáir laxar veiðst,
aðallega bleikja sem fyrr segir.
Og hér lýkur Straumfjarðará för sinni til sjávar.
Lesendur geta skoðað meira tæmandi lesningu
um veiðistaði árinnar með því að fara á:
www.straumfjardara.is
taka illa í litlu vatni. Í slíkum skilyrðum eru
meiri líkur á að hann taki fáeina metra ofan
við eystri brúarstólpann. Í góðu vatni dreifir
fiskurinn sér betur og leggst niður á breiðuna
neðan brúarinnar, allt niður undir flúðirnar.
Einnig getur lax legið í strengjunum sem
myndast í miklu vatni ofan við brúareyrina
og í strengjum þar enn ofar. Brúarhylurinn
er veiddur beggja vegna allt eftir skilyrðum á
hverjum tíma. Í góðu vatni er Brúarhylurinn
gjöfull staður og einn sá besti og jafnasti í ánni,
iðulega að gefa 40 til 50 laxa..
Húshylur (Hylstapakvörn)
Einn fengsælasti veiðistaðurinn í ánni. Í
meðalvatni tekur laxinn niður af grjótunum
sem raðað hefur verið við bakkan til þreng-
ingar, efst í strengnum. Í góðu vatni myndast
fleiri strengir niður breiðuna og laxinn dreifist
betur um hylinn og fer að taka út af klöpp-
unum sem skaga út úr holtinu á bakkanum-
veiðihúsamegin. Í miklu vatni liggur laxinn
mjög neðarlega. Skemmtilega fjölbreyttur
staður sem gefur þetta 30 til 70 fiska á sumri og
margur byrjandinn hefur sett þar í lax, svo hæg
eru heimatökin.
Neðri Ármót
Þarna bætast árnar Fáskrúðarbakkaá og Grímsá
við vatnakerfi Straumfjarðarár. Rétt neðan við
útfall þeirra er klöpp sem skagar út í ána og í
strengnum þar niður af er helsti tökustaðurinn.
Hinsvegar getur lax legið ofan við klöppina
og einnig nokkuð langt niður eftir breiðunni,
ekki síst þega líður á vertíðina, því staumurinn
nær langt niður úr veiðistaðnum. Þennan stað
þarf að veiða frá báðum bökkum árinnar, til að
hann sé fullreyndur. Oftast drjúgur, en þolir illa
lítið vatn. Hefur oft skilað um Sjávarfoss
Fyrri hluta sumars er mikið líf í þessum
veiðistað þar sem nánast hver einasti lax sem
gengur í ána og veiðast ekki á svæðunum þar
fyrir neðan, fer um fossinn. Best er að veiða
staðinn af rauðamölshellu sem gengur inn
undir fossinn, eða af eyrinni neðan við. Laxinn
tekur í hvítfryssinu neðarlega og niður alla
fossbreiðuna að broti. Þarna getur lax verið að
taka á mjög grunnu vatni, en varast þarf að láta
ekki skugga falla á hylinn þegar sólin skín úr
veiðistaðurinnStraumfjarðará
39
Lax-, silungs- og skotveiði
Hrútafjarðará, Breiðdalsá, Jökla,
Minnivallalækur og Fögruhlíðará
www.strengir.is
fjölskylduveiði
Algert lykilvatn og hentar öllumVífilstaðavatn er eins og vasaútgáfa af Elliðavatni og eykur
vatnið fjölbreytnina á höfuðborgarsvæðinu svo um munar.
Þetta er lítið vatn, aðeins um 0,27 ferkm að flatarmáli og
er jafnvel vorveiðivatn númer eitt á Íslandi, því þar má
hefja veiðiskap 1. apríl núorðið á meðan menn þurfa að
bíða lengur eftir Elliðavatni. Það er ekki þar með sagt að
það leysist einhver svaka veiði úr læðingi, en ef það vorar
sæmilega þá er von og auk þess fara þangað margir nánast
gagngert til að liðka kasthöndina og fá útrásina og útiveruna
sem blundað hefur allt of lengi yfir skammdegismánuðina.
Það er bæði urriði í vatninu og bleikja.
Bleikjan var aðalfiskurinn og algengust
er hún frá tæpu pundi upp í 1,5 pund,
en af og til, sérstaklega tímabundið á
vorin, er eins og einhver lokuð klíka
af vænni bleikjum geri vart við sig og
þá er gaman að vera við vatnið með
rétt agn á endanum. Slíkar bleikjur
eru í kringum 2 til 2,5 pund og ein og
ein slefar í 3 pund. Svona uppákoma
var í vatninu rétt eftir miðjan apríl nú
í vor og þetta er vel þekkt. En bleikjan
hefur þó dalað í vatninu eins og víðar
og urriðinn tekið meira við. Urriðinn
er mest 1 til 1,5 pund og hann hrygnir í
Vífilstaðalæknum sem fellur úr vatninu
og rennur til sjávar í Arnarvogi.
Leyfilegt er að veiða í öllu vatninu, en
það má kannski útlista það sem galla
við vatnið, af því að það er svo lítið,
að veiðin er best á tiltölulega afmörk-
uðum svæðum. Það eru grasbakkarnir
að sunnanverðu og svo ströndin undir
hlíðinni að norðaustan. Menn veiða
á báðum svæðum frá landi og svo er
vaðið út. Vatnið er ekki ýkja djúpt og
hægt að vaða víða og sums staðar langt.
Það er mál manna sem þekkja Vífil-
staðavatn, að þar sé veiði best snemma.
Apríl getur þó verið brokkgengur, en
þegar líður á mai fer að glæðast veru-
lega. Mai hefur að vísu verið svellkaldur
þetta árið og því hefur mánuðurinn
verið brokkgengur líka, en júní verður
þá bara betri. Júní er alltaf góður,
sérlega fyrri hlutinn. Menn hafa talið að
júlí sé daufari, en síðan fari hrygningar-
bleikjan að hlaðast upp “undir hlíðinni”
40 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Vífilstaðavatn
Frá Vífilstaðavatni. Mynd Jón Eyfjörð.
42 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
er líður fram í ágúst og þá sé iðulega
góð veiði. Í ágúst eru margir hins vegar
hættir að eiga við vötnin í nágrenn-
inu, farnir annað. Það er algengt að
menn séu í vötnunum á vorin og fram
í sumarbyrjun á meðan að beðið er eftir
“alvöru” veiðiferðunum.
Eins og víðar, veiða fluguveiðispekúlantar
oftast best í vatninu og í frábærum bókar-
flokki Eiríks St. Eiríkssonar, Stangaveiði-
handbókin, er í fyrsta bindi greint frá
vatninu og í spjalli við Þór Nielsen, sem
gjörþekkir vatnið eftir að hafa stundað
það um langt árabil, kemur fram að bestu
flugurnar eru að hans dómi Peter Ross,
Vífó grá(eftir Þór sjálfan), Engjaflugan
(eftir Jón Petersen), Herdís (eftir Jón
Sigurðs son) og svo Tailor, sem telst meiri
almannaeign líkt og Pétur Ross.
En það geta fleiri veitt en sérfræðing-
arnir og þetta er frábær staður fyrir
krakka og byrjendur. Mikill fiskur á ferð
og stutt að fara. Ef ekki eru flugustangir
með í för þá hafa margir veitt vel með
flugu í flotkúlu. Hafa tauminn eins
langan og viðkomandi ræður við og
draga lúshægt. Einnig gefur maðkur
í flotkúlu á tíðum. Beita lítið á smáan
öngul og hylja öngulinn vel. Það er
einmitt algeng mistök sem menn gera,
að hafa of stóran öngul og beita of
glannalega. Bleikjan er afar háttvís og er
ekki fyrir stóra bita, a.m.k. ekki í þessu
vatni og mörgum öðrum. Það sama
gildir um urriðann á þessari veiðislóð.
Það gilda strangari reglur um um-
gengni við Vífilstaðavatn en víðast
hvar, þó svo að góð umgengi eigi að
vera regla alls staðar, því vatnið nýtur
ákvæða vatnsverndar. Hundar eru
bannaðir og einnig er bannað að tjalda,
svo og notkun vélbáta.
Garðabær á vatnið, en hægt er að kaupa
veiðileyfi í Golfskála GKG við Vífilstaða-
veg. Einnig skal á það bent að hand-
hafar Veiðikortsins, www.veidikortid.
is mega veiða frítt í vatninu eins oft
og þá lystir, þess vegna allan daginn
alla daga fram á haust. Dorgveiði er
einnig leyfð hér og hún getur verið
skemmtileg, sá er þetta ritar ólst upp í
Garðabænum og lærði til veiðimennsku
við Vífilstaðavatn og Vífilstaðalæk. Þá
fórum við félagarnir oft og iðulega að
vökunum í norðausturhorninu, hirtum
ekki um að bora göt heldur köstuðum
spón yfir vakirnar, drógum þá af ísnum
og létum þá falla ofaní. Vorum svo
á skaki og fengum fallegar bleikjur.
Menn eiga þó auðvitað að vara sig á
þessum vökum, sem stafa af kalda-
vermslum og uppsprettum. Stundum
sátu norskir gráhegrar í grenitoppum
sumarbústaðar sem þarna er og biðu
þess að við hættum og hypjuðum okkur
heim til að þeir gætu sem fyrr setið
einir að veiðiskapnum, en af verksum-
merkjum leyndi sér ekki að þeir notuðu
vakirnar til að veiða. Það gerðu einnig
minkar, ummerkin um það leyndu sér
ekki, traðk í snjó, lítil vel „negld“ spor
og síðan blóðblettir við vakarbrún og
síðan slóð eftir mink með dauða bleikju
sem rekja mátti langar leiðir að bælum
minkanna. Nú orðið halda hegrarnir þó
meira til við Urriðakotsvatnið og mink
hefur fækkað mikið þarna.
Umsjónarmenn Veiðislóðar líta á Vífil-
staðavatn sem algert lykilvatn. Það er
frábært fyrir alla, kunnuga sem ókunn-
uga, reynda sem óreynda, unga sem
gamla og alla þar á milli.
fjölskylduveiðiVífilstaðavatn
43
ÓDÝRA VEIÐIBÚÐIN
BEITAN Í VEIÐIFERÐINA
ORMAR OG MAKRÍLL
· ÓDÝRAR FLUGUR· ÓDÝRIR SPÚNAR· ÓDÝRAR VÖÐLUR· ÓDÝRIR JAKKAR· ÓDÝR HJÓL· ÓDÝRAR STANGIR· ÓDÝRA VEIÐIBÚÐIN
KRÓKHÁLSI 4 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050
MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 10 TIL 16
Í leiðinni úr bænum
SAVAGE GEAR SÍLIKONBEITAN ER AÐ GERA ALLT VITLAUST Í URRIÐAVEIÐINNI
SAVAGE GEAR 4PLAY SÍLIN ERU ÓTRÚLEGA EÐLILEG Í VATNI OG VEIÐA VEL
44 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Torfavatn á Lýsusvæðinu. Mynd gg.
45
Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi er paradís fjölskyldunnarVatnasvæði Lýsu er á framfæri Gunnars Jónassonar í Lýsudal.
Gunnar hefur komið á fót hressilegri ferðaþjónustu í Lýsudal
og hefur Lýsuvötnin á kantinum fyrir gesti og gangandi.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur svæðið í umboðssölu að
auki, þannig að leyfi á svæðið eru aðgengileg.
fjölskylduveiði
FyrirsögnFyrirsögnInngangur
46 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
1
2 3
4
Vatnasvæði Lýsu er vestur á Snæfells-
nesi og samanstendur af nokkrum
vötnum, sprænum á milli þeirra og
síðan efsta hluta af þeirri á sem fær
nafnið Vatnsholtsá áður en yfir lýkur.
Svæðið sem um ræðir klárast hins vegar
í svokölluðum Kistuhyl efst í Netá, sem
rennur úr Lýsuvatni sem er stærsta og
neðsta aðalvatn Lýsuvatna. Þar fyrir
neðan er Vatnsholtsá og Hópið sem er
leigt út sér og kemur ekki hér við sögu.
Efst á þessu svæði eru tvö smávötn sem
koma lítt við sögu. Í þeim er þó fiskur
og úr þeim renna lækir í Torfavatn.
Úr Torfavatni rennur síðan stubbur
yfir í Reyðarvatn sem er ögn vestar.
Stubburinn stuttur. Í Reyðarvatn að
austan kemur einnig annar lækur.
Við þessa lækjarósa eru góðir veiði-
staðir. Úr Reyðarvatni rennur síðan
Króká/Miðá, stæðileg lækjarspræna
sem fellur út í Lýsuvatn. Lýsuvatn er
stærst vatnanna þriggja og líklega það
vatn sem mest veiðist í.
Samkvæmt Gunnari, og fleirum sem
veitt hafa reglulega í vötnum þessum
og stubbum, þá er hér að finna flesta þá
fiska sem prýða íslensk veiðivötn og ár.
Mest er af bleikju, en einnig er drjúgt
af urriða. Sjógengnir fiskar af báðum
tegundum ganga einnig inn á svæðið
en stundum vita menn ekki hvort að
bleikjur sem veiðast eru staðbundar
eða sjógengnar og þá fyrir nokkru
komnar úr saltinu. Auðveldara er að
greina birtinginn. Síðan er talsvert af
laxi í vötnunum og einnig í spræn-
unum þegar vætutíð er þar vestra, sem
er oftast á haustin hin seinni ár. Svo eru
auðvitað hér álar og hornsíli, en stanga-
veiðimenn vilja sem minnst vita af
þeim félögum. Laxinn er að uppistöðu
eins árs lax úr sjó, mest 4 til 6 pund. En
stærri veiðast af og til og laxar allt að
18 pundum hafa veiðst hér. Bleikjan er
af ýmsum stærðum, mikið af henni er
smá, en það er líka talsvert af 1-2 punda
fiski. Urriðinn er jafn vænni en bleikjan,
mikið 1 til 2 pund og stærri fiskar veiðast
af og til. Birtingurinn er af svipaðri
stærð og staðbundni urriðinn.
Ef við skoðum svæðið sem slíkt, þá
veiðist mest af laxinum í vötnunum.
Það eru ákveðnir blettir í þeim öllum,
en Lýsuvatnið er þó þeirra best. Þar
veiðist laxinn í Kistuhyl, þ.e.a.s. í út-
fallinu vestast og einnig er gott að vaða
frá suðurbakkanum í átt að stórum
steini sem stendur upp úr vatninu mjög
austarlega, út af ósi Krókár/Miðár. Frá
suðurbakkanum er fyrst grunnt, en
síðan dýpkar og þarna er áll og í honum
bæði bleikja og lax. Oft stekkur hann
þarna. Stundum vaða menn líka út frá
ósi Krókár/Miðár ef þeir koma þar að
eftir að hafa farið með henni og veitt.
Það er talsvert að vaða, en auðvelt.
Króká/Miðá er oft og tíðum afar veiði-
sæl. Hún er vatnsmesta sprænan á
svæðinu að Vatnsholtsánni undan-
skilinni, og í henni eru nokkrir hyljir.
Sá mikilvægasti er um miðbik spræn-
unnar þar sem kemur fremur kröpp
beygja. Þarna sýður stundum og
kraumar vatnið af bleikju og sá er þetta
ritar hefur oftar en einu sinni komið
þarna að og bókstaflega mokað upp
fiski. Eitt sinn kraumaði hylurinn og við
sátum tveir, hvor á sínum bakkanum
og skiptumst á að kasta litlum dökkum
flugum, líklega Tiel and Black, og það
var á í hverju kasti hjá okkur báðum uns
við bara hættum, búnir að landa fimm-
tíu bleikjum. Og ekkert lát á tökum og sá
ekki högg á vatni í bleikjutorfunni!
1 Sprænunrar á milli vatnanna eru yfirleitt fullar af silungi.
2 Hér hefur urriði gripið fluguna, en bleikjan er tíðari.
3 Hin nýja aðstaða fyrir ferðamenn í Lýsudal.
4 Gunnar í Lýsudal.
47
FyrirsögnFyrirsögnInngangur
48 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Og um alla Króká/Miðá er veiðivon,
með bökkum, í kringum steina hér og
þar og þar sem áin breiðir úr sér rétt
ofan óssins. Oft er talsvert af fiskinum
smátt, en oft, oft eru vænir fiskar í bland
og jafnvel talsvert af þeim. Erum við þá
að tala um 1,5 til 2 punda bleikjur sem
eru náttúrulega frábærir fiskar að kljást
við á léttar stangir. Þegar vatnsgusur
hlaupa í svæðið í rigningum er oft hægt
að hitta á lax í Króká/Miðá, sérstaklega í
nefndum hyl um miðbikið. En það má
ekki gleyma því að þetta er bara lækur
og viðkvæmur samkvæmt því. Það þarf
að fara varlega að ánni. Jafnvel krjúpa
eða sitja þegar veitt er.
Í Reyðarvatni eru laxablettir, einkum
vestarlega nálægt ósi Krókár/Miðár, en
silungavon alls staðar nánast. Einna
veiðilegast í Reyðarvatni er þó þar sem
lækirnir renna í vatnið austast. Sérstak-
lega sá efri, sem fer í vatnið í tveimur
strengjum og er nokkurt dýpi í vatninu
þar framan við. Þarna fá menn oft góð
bleikjuskot og fyrir kemur að laxinn er
líka að snuðra að lækjarósunum. Enda
fer hann upp í Torfavatn, sem er reynd-
ar austan við neðri lækinn. Stundum er
svart af bleikju niður af ræsinu á þeim
læk, en fregnir herma að erfitt sé að
koma agni að þeim fiskum og þeir taki í
samræmi við það mjög illa.
Torfavatn er gott silungsvatn og sumir
segja að eftir því sem austar dregur á
svæðið aukist urriðaveiðin. Það eru
líka laxablettir í Torfavatni, einkum
vestarlega á suðurbakkanum. Gunnar
er til reiðu að leiðbeina gestum hvar
laxinn liggur helst. Hann segir að fyrir
nokkrum árum hafi laxveiðin fyrst og
fremst verið á maðk þar sem menn
hentu út maðki með flotkúlu og biðu
svo rólegir þar sem agnið lá í vatninu.
Það gat tekið mislanga stund, en svo
tók fiskur og þá ruku menn til að tóku
stöngina og lönduðu feng sínum.
„Seinni árin eru menn að veiða meira og
meira með flugu og það er að skila sínu
líka. Greinilega vel hægt að nota það
agn,“ segir Gunnar. Og þar sem spónn
er leyfilegur þá tekur fiskur líka það agn.
Hitt er svo annað mál, að spónveiði er
kannski sú aðferð sem mest er krefjandi
á þessum slóðum sökum þess að vötnin
eru ekki sérlega djúp og þau eru auk
þess töluvert gróðurmikil. Þeir sem nota
spón verða því að búa sig undir að eyða
nokkrum tíma í að slíta slý af önglunum.
Þetta er fjölskylduparadís. Aðgengi að
veiðisvæðinu er auðvelt og þægilegt.
Hvergi langt að ganga nema að menn
taki sig til og rölti upp í smávötnin fyrir
austan Torfavatnið. En það er þó engin
svakaleg vegalengd! Engin þörf á jeppa.
Hægt að kaupa gistingu í Lýsudal hjá
Gunnari eða slá tjaldi eða tjaldvagni á
skipulögðum svæðum til slíks á sama
stað. Þetta er hættulítið umhverfi fyrir
t.d. smáfólkið og fyrir hina þá er fjalla-
hringurinn svo feiknalegur, með
Snæfellsjökul og Stapafell í öndvegi, svo
tilkomumikill að það er augnayndi að
líta uppúr veiðiskapnum, hvort heldur
vel gengur eða verr.
Það er ekkert á vísan að róa á þessu
svæði frekar en öðrum, en eitt geta
gestir svæðisins verið full vissir um, og
það er að það er allt morandi í fiski.
fjölskylduveiðiVatnasvæði Lýsu
LAXVEIÐITÍMABILIÐ ER AÐ HEFJAST!
Kynntu þér málið á www.svfr.is – stærsta veiðileyfasöluvef landsins.
Á heimasíðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur er að finna laus veiðileyfi í mörgum af bestu laxveiðiám landsins.
Norðurá í Borgarfirði, Langá á Mýum, Laxá í Dölum og Laxá í Aðaldal eru aðeins nokkrar af þeim frábæru
veiðiám sem félagið hefur upp á að bjóða.
50 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
gat á skóna. Hægt er að laga skóna með
því að setja hælfóður í þá og koma þá í
veg fyrir að þeir geri gat á sokkana. Ef
svo illa vill til að sokkarnir eru skemmd-
ir þá er hægt að laga þá, en einng er
hægt að skipta um sokka á flestum
vöðlum og eigum við hjá Skóstofuni þá
á lager núna.
Þó nokkuð hefur borið á því að vöðlur
koma í viðgerð eftir veiði síðasta sumars
og er sorglet að sjá að vöðlurnar eru
orðnar stífar á utanverðum lærum
eftir að menn þurrka hendurnar utan
í þær og skylja eftir sig beituslím sem
skemmir vöðlurnar mjög fljótt.
Þó nokkuð er orðið um öndunarvöðlur
með rennilás að framan og er rétt að
minna á að renna nú lástnum alveg
niður áður en farið er í eða úr vöðl-
unum. Rennarinn getur skemmst og
þá lokast lásinn ekki alveg eins og til
er ætlast og er í sumum tilfellum ekki
nokkur möguleiki að laga það, lásinn
er vatnsheldur í upphafi en tiltölulega
viðkvæmur fyir álagi svo rétt er að passa
Hvar eru þær eiginlega? Skyldu þær
leka já, eru skórnir slitnir? Gott er að
fara yfir vöðlurnar og skoða hvort ekki
var gat á þeim síðan í fyrra. Nú þegar
margir hafa komið með vöðlurnar í við-
gerð til okkar á Skóstofuna þá er ekki úr
vegi að fara yfir þær og meta hvort ekki
þurfi að laga þær.
Flestar öndunarvöðlur mega fara í
þvottavél á hita 30 og hefði verið gott
að gera það í haust. Mold og önnur
óhreinindi sem komu á vöðlurnar í
fyrra eru líklega búin að gera gat á þær
, það gerist þegar vöðlurnar eru blautar
og vatnið gufar upp og óhreinindin sitja
eftir. Þegar þú svo tekur vöðlurnar og
ferð í þær í næsta veiðitúr þá er hætta
á að það komi sprungur í textílinn að
utan og þær fara að leka.
Einnig er nauðsynlegt að skoða sokk-
ana og athuga hvort þeir eru ekki farnir
að nuddast við hælinn. Ef svo er þá er
nauðsynlegt að skoða vöðluskóna og ef
það eru skemmdir innan í hælnum við
hælkappann þá er öruggt að það geri
Tímabært að huga að vöðlum og vöðluskónum
Nú þegar veiðitímabilið er um það bil að fara af stað á Íslandi og margir búnir að umraða í fluguboxinu og athuga hvort stöngin sé ekki á réttum stað er ekki úr vegi að fara yfir vöðlurnar.
eitt og annaðVöðlur
Söluvefursem aldrei
sefurBestu verðin - Sértilboð í hverri viku
- fjöldi veiðsvæða um land allt
51
að smyrja hann eilítið. Gott er að nota
kerti til að renna upp og niður þá verður
hann liprari, nú eða bara þvo hann með
sápu og skola vel. Lásarnir eru enn
mjög dýrir og ekki enn hægt að skipta
um þá svo muna nú að nota tippið eins
og sumir vilja segja.
Oft er hægt að endurnýja filltið á skón-
um svo þar getur maður sparað og látið
skóna endast lengur. Einnig er hægt að
sauma slitna sauma og láta þá endast
lengur. Vöðlur með áföstum skóm eða
stígvélum er einnig hægt að endur-
nýja og laga svo gott er að skoða það vel
hvort ekki þurfi að laga eða skipta um
fyrir næsta veiðitímabil.
Lárus Gunnsteinsson
Skóstofan efh. www.skostofan.com
Veiðislóð er með heppnina með sér enn eina ferðina í þessum fjölbreyttu og
fallegu ljósmyndasöfnum. Það er gaman að því að hafa getað verið með átta jafn
frábrugðin og að sama skapi frábær gallerí og eins og sjá má á næstu síðum þá er
enginn aukvisi hér á ferð. Ljósmyndarinn að þessu sinni er hinn breski Matt Harris
sem er með þekktari fluguveiðiljósmyndurum heims.
Matt hefur veitt og myndað um allan heim, allt frá „Regnskógunum í Amazon
að Norður heimsskautinu,“ eins og hann segir sjálfur. Hann nefnir staðarnöfn
og þau eru, auk Íslands, Alaska, Argentína, Ástralía, Bahamas, Brasilía, Skotland,
Kúba, Guatemala, Mongolía og...og...og...mörg önnur. „Eftirlætisfiskar mínir eru
stórir Atlantshafslaxar og heitsjávarfiskurinn Permit. Ég elska þó alla veiði af mikilli
ástríðu,“ segir Matt, en myndir hans hafa birst víða, svo og greinar sem hann skrifar
gjarnan, auk þess sem þær hafa unnið tilverðlauna, m.a. hjá Fuji, Kodak, Polaroid og
Alþjóðasamtökum ljósmyndara svo eitthvað sé nefnt. Hann hefur starfað við gerð
veiðiljósmynda í 15 ár og unnið fyrir marga, m.a. Frontiers, Hardy s, Rio, Patagonia,
Orvis, Airflo, Aardwark McCleod, The Fly Fisher Group o.fl.
Gefum Matt aðeins orðið: „Ég nota mest myndavélar og linsur frá Canon. Fyrst
og fremst nota ég EOS 1Ds Mk3 og EOS 5dMk2 og ég er að vonast eftir því að
koma höndum yfir hinar nýju EOS 1Ds X og 5D Mk3 á næstunni, en mér líst afar vel
á þær. Ég nota margar gerðir af linsum, m.a.: 14mm f2.8 16-35mm f2.8, 24-70 f2.8,
100mm f2.8 macro og 70-200 f2.8, með 2X millistykki þegar þörf krefur. Auk þess
að taka myndir þá skrifa ég mikið um veiði og hafa greinar eftir mig birst m.a. í
The International Game Fishing Association Magazine, Esquire, GQ Magazine,
Conde Naste Travel, The Sunday Times Travel Magazine, This is Fly, Catch
Magazine, The Atlantic Salmon Journal, Trout and Salmon, Fieldsports Magazine,
Trout Fisherman, Adventure Fishing, Flugfiske-feber og The Farlows Magazine.
Ég vil líka nefna það að ég leyfi NASF oft að nota myndir mínar endurgjaldslaust
og hvet alla þá sem vilja kynna sér velferð hins stórkostlega Atlantshafslax, að
heimmsækja www.nasfworldwide.com
Hægt er að sjá meira af afurðum Matts Harris hér: www.mattharrisflyfishing.com
Ég elska alla veiði af ástríðu
52 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
ljósmyndunMatt Harris
Ég elska alla veiði af ástríðu
53
54 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
55
Kunnuglegt umhverfi við Norðurá í Borgarfirði.
56 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
ljósmyndunMatt Harris
57
58 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Bjargstrengur í Langá.
ljósmyndunMatt Harris
59
60 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
61
Undurfagurt umhverfi Hítarár.
62 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
ljósmyndunMatt Harris
63
64 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Grímulaus gleði á bökkum vatnanna.
Sviflétt kría á ferðinni.
65
....og setti fljótlega í
stóran kolmórauðan dólg
Kristján var líka frægur fyrir reykhúsið
sem margir heimsóttu með feng sinn.
Þaðan kom sá brimsaltaði taðreykti
lax sem svo margir tóku ástfóstri við.
Kristján var með hrikalegar krumlur eitt
sinn er ritstjóri sá hann svipta upp á
borðið 15 punda laxi til flökunnar, virtist
stórlaxinn hreinlega tínast í frumskógi
risavaxinna fingra og breiðra lófa! Síðan
gerðist allt nánast á hraða ljóssins og
mest varð maður undrandi að fingur
flakarans skyldu ekki skola niður af
borðinu með slóginu.
Bensi, Benedikt Kristjánsson, sonur
Kristjáns, hélt hefðinni gangandi árum
saman eftir dag föður hans, en síðan
mátti eigi drepa laxa úr Laxá lengur og
reykhúsið gat ekki staðið undir silungi
einum saman og laxi úr öðrum ám.
Ritstjóri þessa blaðs var svo heppinn að
hitta Kristján Benediktsson á Hólma-
vaði nokkrum sinnum. Fyrsta skiptið var
snemma vors 1983, nánar tiltekið í mai og
það var kalt vor líkt og nú, frost um nætur
og lágar hitatölur á daginn. Kristján mátti
varla vera að því að tala við mig, var á kafi
í sauðburði, en vegna þess að eiginkona
mín var með í för, dóttir Benedikts heitins
Jónssonar, eins af upphafsmönnum
Húsavíkurdeildar Laxárfélagsins og
mikill vinur Kristjáns, þá gaf hann sig í
klukkustund og viðtalið var tekið í skjóli
og sólskini undir húsvegg á Hólmavaði.
Kristján byrjaði viðtalið reyndar á því að
rifja upp hversu gaman það hefði verið á
yngri árum, að bjóða upp í dans tengda-
móður minni Önnu Soffíu. En það er
önnur saga og allt er þetta fólk látið í dag.
Sumt er geymt á prenti sem betur fer og
þó viðtalið við kristján væri stutt þá er það
eigi að síður mikils virði. Viðtalið birtist
í bókinni Varstu að fá’ann? sem út kom
snemma vetrar 1983. Ekki er ætlunin að
birta það allt hér, frekar nokkur valin brot
og við bara byrjum:
– Einn eftirminnilegasti veiðidagur
minn í Laxá var einmitt daginn eftir
66 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011
Í dag er það Bensi á Hólmavaði, en áður var það Kristján á Hólmavaði, karl faðir Bensa. Við erum að tala um Hólmavað í Aðaldal, á bökkum Laxár í Aðaldal. Kristján gamli er látinn fyrir all nokkrum árum, en hann var goðsögn þar nyrðra og einn slyngasti stangaveiðimaður sinnar sam-tíðar. Sem bóndi á Hólmavaði var Laxá að sjálfsögðu hans á.
einu sinni varKristján Benediktsson á Hólmavaði
Kristján á Hólmavaði afgreiðir viðskiptavin við eldgamla reykhúsið. Myndina tók hinn fallni höfðingi Rafn Hafnfjörð.
67
að Heimir (á Tjörn) hafði átt sextugsaf-
mæli. Hann bauð mér og fleiri vinum
sínum til kvöldverðar í tilefni dagsins
og á eftir fengum við okkur einn lítinn.
Ég átti veiðileyfi daginn eftir og var
með hugann meira við það en veisluna,
en það var ekki við það komandi að ég
fengi að fara snemma heim – um það
var ekki að ræða.
En þegar ég var að fara heim, kvaddi
karlinn mig með þeim orðum, að ég
myndi veiða í fyrramálið, en ég yrði að
vera kominn að ánni klukkan sjö. Ég fór
um morguninn upp á Óseyri og ætlaði
að byrja þar, en þá voru þegar komnir
menn efst í hana og farnir að veiða. Ég
byrjaði því neðar og setti fljótlega í 13
punda lax. Vart var hann kominn á land,
er ég setti í annan og var sá mun stærri.
Mátti ég gera svo vel og elta þann fisk
alveg niður á Suðureyri áður en ég
hafði hann á land. Þetta var 20 punda
hængur og ég hugsaði með mér að ég
skyldi geyma hann í klakið og tjóðraði
hann því á Suðureyrinni. Síðan hélt ég
aftur upp eftir. Mennirnir, sem þar voru,
virtust eitthvað óvanir og reyndi ég því
að segja þeim til, fór svo aftur að renna
og setti strax í þriðja laxinn, 13 punda
fisk. Á meðan settu hinir loks í fisk og
engan smágolla, það var greinilega
stórlax mikill og þeim gekk illa að eiga
við hann, náðu honum m.a. einu sinni
á land en misstu hann út aftur. „Ætliði
virkilega að missa þennan bolta?“, kall-
aði ég til þeirra, en auðvitað ætluðu þeir
ekki að gera það.
Ég renndi aftur og setti í stórlax, missti
tökin á honum og mátti elta hann niður
á Suðureyri, í annað skiptið á þessum
veiðidegi. Þegar á Suðureyrina kom,
mundi ég allt í einu eftir tjóðraða lax-
inum, en sá sem ég var með á nú, var
mjög sprækur og engu munaði að hann
flækti sig í þeim tjóðraða og frelsaði þá
báða. Mér tókst þó að koma í veg fyrir
það og náði fiskinum loks, hann var 17
punda. Þá ákvað ég að tjórða aldrei lax í
klak þar sem ég kynni að þurfa að landa
öðrum fiski. Dró ég því 20 pundarann
upp úr og slátraði báðum. Það var
skemmtilegt upplitið á hinum, er ég
kom arkandi upp með ánni með tvo
stórlaxa, þeir vissu ekki betur en að ég
hefði verið með aðeins einn á. En þeir
voru búnir að ná sínum fiski, hann var
23 pund og stórfallegur....“
Og Kristján hélt áfram á öðrum stað:
– Maður lendir stundum í meiri háttar
átökum við stóru laxana í Laxá og það
er ekkert langt síðan að ég lenti síðast
í slíku. Það var á lokadegi veiðitímans
1981 og ég var að veiða í klak með Pétri
Fornasyni. Ég fór á Stífluna, setti á Black
Doctor nr 8, og setti fljótlega í stóran
kolmórauðan dólg. Þessi fiskur lét aldrei
mjög illa, en sparaði kraftana og seig
verulega í. Ég átti fyrst lengi við hann
á Stíflunni, en síðan seig hann af stað
niður ána og ég elti með háf, plastpoka
og mikið slý á línunni. Þegar við vorum
staddir rétt fyrir ofan Grástraum sá ég
fram á erfiðleika vegna Hrúthólmans.
Laxinn mjakaði sér þarna til og frá, en
á meðan kom Pétur í Laxárnesi til mín.
Hann tók háfinn og var lengi að vaða
fram og til baka á eftir laxinum, en svo
fór að lokum að hann náði honum.
Þetta var 22 punda fiskur og hann
var ekki fyrr kominn á land, en Pétur
Fornason kom af efra svæðinu og hafði
hann fengið 24 punda lax.“
Loks skulum við rifja upp þessa litlu
skemmtilegu veiðisögu í viðtalinu við
kristján á Hólmavaði: -Áður en við
látum þetta gott heita, vildi ég gjarnan
rifja upp merkilega veiðisögu sem gerð-
ist fyrir neðan Æðarfossa. Það var hann
Einar í Hjarðarhaga sem var að veiða og
setti í lax sem æddi suður alla á. Einar
komst í klípu og óð á eftir laxinum,
komst loks út á grjóteyri sem er útií
miðri á. Laxinn var þá tekinn að spek-
jast og Einar náði smám saman yfir-
höndinni. Við Björn á Laxamýri höfðum
fylgst með leiknum ofan af bjarginu og
þar sem Einar stóð á eyrinni og glímdi
við laxinn, tókum við eftir því að ein-
hver umgangur var í ánni talsvert ofar
en við vissum að laxinn hans Einars var
á ferðinni. Sáum við busl og sporðaköst.
Það skýrðist fljótt hvað um var að vera.
Laxinn hjá Einari hafði ætt með línuna
á aðra línu sem lá í ánni. Annar lax
var með hana í eftirdragi og hafði sá
slitið sig af öngli einhvern tímann fyrr.
Línurnar höfðu flækst saman og Einar
landaði fyrst öðrum laxinum, síðan
hinum. Hann kom svo gleiðbrosandi
upp á bjargið til okkar með tvo 15 punda
laxa.“
68 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011
einu sinni varKristján Benediktsson á Hólmavaði
69
70 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Seiðandi laxasúpa með sítruskeimi
Forréttur fyrir 8 eða aðalréttur fyrir 4
Við förum í smiðju til Björgvins Mýrdal sem þá var
og er kannski enn kokkur í Þrándargili, veiðihúsinu
við Laxá í Dölum. Það var erfitt að velja rétti úr heilli
bók af þessu tagi, en sá fyrsti sem kom úr pottinum
var það sem Björgvin nefnir seiðandi laxasúpu.
Ljósmyndir eru eftir Lárus Karl Ingason og það voru
blaðamennirnir Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli
Eiríksson sem voru fengnir til að rekja garnirnar
úr kokkunum, kynna þá og fá þá til að töfra fram
eitthvað dásamlegt.
Laxasoð. Notað í súpuna,
gott að gera daginn áður!
• Beinúreinumlaxi,hausogsporður með fylgja með. Hreinsað vel
• 2lítrarvatn
• ½lítriþurrthvítvín
• 3knippiafsítrónugrasi, marin og hökkuð
• 4skalottulaukar,grófskornir
• 10hvítlauksgeirar,marðir
• 20stkhvítpiparkorn,heil.
Allt sett í pott og soðið við vægan hita í um 30 mínútur. Siktað. Vökvinn er síðan soðinn niður um helming.
Súpan• 1lítrilaxasoð(hértilvinstri)
• 2lítrarrjómi
• 25gr.smjör
• Límónusafieftirsmekk
• Sjávarsaltognýmulinnhvíturpipareftirsmekk
• 3vorlaukar,fínsaxaðir
• ½knippikóríander,fínsaxað
Soð, smjör og rjómi sett í pott og soðið saman við vægan hita í um eina klukkustund eða þar til vökvinn byrjar að þykkna. Saltað og piprað eftri smekk og bragðstyrkur aukinn hæfilega með límónusafa.
Vorlauk og kóríander er bætt út í skömmu áður en súpan er borin fram.
Þaðvaktiathygliokkaraðhvergivarminnstáhversumikiðaflaxiferísúpunna.Hefurlíklegagleymstmiðaðviðaðmyndinsýnirlaxabita.Ætlimennveljiekkimagniðsjálfirísúpuna,eftirþvíhvorthúnáaðveraforrétturfyrirfleiri,eðaaðalrétturfyrirfærriogþáerbestaðsetjabitanaútískömmuáðurensúpanerborinfram.
villibráðareldhúsiðÚr bókinni „Spriklandi lax í boði veiðikokka“
Björgvin segist í bókinni ekki vera
mikill veiðimaður sjálfur þó að hann
hafi iðulega reynt í Laxá og beri henni
vel söguna. Um eftirlætisflugur sínar
segir hann: Ég hef stundum notað
gárubragðið á efsta svæðinu þar sem
áin fellur í gljúfrum fyrir neðan Sól-
heimafoss, það er mjög skemmtilegt.
Annars fer ég yfirleitt með mér reyndari
mönnum og veiði frekar á uppáhalds-
flugur þeirra en mínar.“
Björgvin, Þrándargil við Laxá í Dölum og súpan góða.Ljósmyndir: Lárus Karl Ingason
Strandveiðikappi á góðum degi. Mynd úr safni Þorsteins Geirssonar.
73
„Ég fór í strandveiði af því að ég hafði
séð fólk víða við strendur að veiða og
fannst þetta spennandi, svo skemmir
ekki að það þarf ekki að fara langt til
að kasta út önglinum og víðast hvar
er hægt að stunda þetta frítt. Eins er
áhugavert að stunda veiði þar sem
fiskiflóran er með eindæmum breið og
ekki er ólíklegt að þú fáir 5+ tegundir í
einni og sömu ferðinni.“
Hvernig hefur þér gengið veiðin og hvað færðu út úr strandveiði?„Veiðin hefur gengið svona upp og ofan
eins og með aðra veiði. En það hafa
verið mjög fáar ferðirnar sem ég hef
ekki dregið eitthvað að landi. Það helsta
sem ég hef fengið útúr strandveiðinni
hingað til hefur verið útiveran og spjall
með veiðifélögunum.“
Strandveiði er ansi breiður vegur. Um er
að ræða allt frá gutli með nettum spinn-
stöngum og spúnum/spinnerum sem
notast er við á silungsveiðum í fersku
vatni og upp í að menn eru að grýta út
óhemjuþungum lóðum og beitu með
enn hrikalegri stöngum sem geta verið
allt að 20 feta langar! Bara hvað viltu?
Sumir eru meira að segja með flugu-
stöngina sína.
En til marks um að þetta er veiðiskapur
sem á vaxandi vinsældum að fagna
þá höfum við nú fundið vandaða
vefsíðu, www.strandveidi.is og þegar
við höfðum samband þá varð á vegi
okkar Oddgeir Guðmundson strand-
veiðiáhugamaður og umsjónarmaður
vefsins. Okkur langaði í smá vitneskju
og spurðum hann fyrst hvernig það bar
til að hann fór að stunda strandveiði.
Víðast hvar er hægt að stunda þetta fríttÞað er mikið talað um strandveiði í seinni tíð og þá ekki
endilega hinar umdeildu strandveiðar smærri fiskibáta,
heldur strandveiði með stöng í hönd sem er óðum að bæta
við vinsældum. Og ekki að undra, því þetta er sport sem
hefur allt til brunns að bera sem sóst er eftir, útiveru, einveru
eða veiði í hópi vina og fjölskyldu, spennuna við tökuna og
veiðina og ekki hvað síst að möguleiki er að veiða vel í soðið
fyrir miklu minni pening heldur en það kostar að koma sér í
lax- eða silungsveiði.
strandveiðiOddgeir Guðmundsson
74 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
ýmsu sveitarfélög en fékk áhugasöm
viðbrögð frá flestum þeirra. En þegar
kom að því að upplýsa um mögulega
veiðistaði innan viðkomandi sveitar-
félaga þá gátu þau litla hjálp veitt. Ég
tel að strandveiði geti vaxið gríðarlega
á Íslandi eins og í öðrum löndum, en
strandveiðin er líklegast lang umfangs-
mesta stangveiðin í heiminum. Ég hef
til að mynda fengið þó nokkrar fyrir-
spurnir frá erlendum veiðimönnum um
hvar hægt sé að komast í strandveiði á
Íslandi.“
Er dýrt að koma sér af stað? „Líkt og með allar tómstundir þá getur
maður hagað segli eftir vindum. Það
er hægt að kaupa ágætis sjóstang-
veiðistangir í til að mynda Europris. Og
ef viðkomandi er að fíla sig í sportinu þá
er hægt að fara yfir í stærri og vígalegri
búnað. Ég veit um marga sem nota
gömlu vatnastangirnar sínar í sjóveið-
ina og passa bara skola búnaðinn vel
eftir hverja veiðiferð, í flestum tilfellum
ná viðkomandi aðilar að halda búnað-
inum sínum í tiltölulega góðu ástandi
þrátt fyrir saltið.“
Er hægt að fara bara hvert sem er og kasta út? „Það er hægt að fara mjög víða og kasta
út, en réttast er að fá leyfi hjá eigendum
þess lands sem kastað er útfrá, í all
flestum tilfellum má búast við mjög
jákvæðum og áhugasömum svörum.“
Svo mörg voru þau orð Oddgeirs, en
ein lítil veiðisaga hér til að ljúka þessu.
Eins og fram kemur í máli Oddgeirs
þá geta menn farið að strandveiðinni
frá báðum áttum og fyrir þá sem hafa
áhuga á því að prófa þá væri ekki úr
vegi að faa bara fyrst með kastsstöng,
beita spinner og finna sér einhverjar
Menn horfa gjarnan á risastangir ....er þetta þá jafn skemmtilegt og að veiða laxfiska á léttar græjur?„Það má segja að stangirnar stækki í
samræmi við væntanlega fiskiþyngd.
En fiskar sem koma úr sjónum geta
verið hressilega stórir og er þá ekki
síður gaman að takast á við þá eins og
laxfiska með léttum græjum. Hinsvegar
eiga sjávarfiskar það til að gleypa all
hressilega og verður þá oft minna um
löndunartækni en í laxfiskveiði.“
Nú hefur þú sett á laggirnar strand-veiðivef, hver er tilgangur vefsins.... og hefur hann þjónað tilgangi sínum?„Tilgangur vefsins var að mestu leiti til
að reyna sjá hve víðtækur áhugi er fyrir
strandveiðinni og ef hægt væri að fá
veiðimenn til að pósta inn mögulegum
veiðistöðum. Ég byrjaði það verk með
því að skrá alla veiðistaði sem ég vissi
um á þeim tíma á Google Map sem er
aðgengilegt hverjum sem áhuga hefur.
Það kort fékk strax gríðarlega mikla
athygli, og reiknast mér til með það
séu hátt í 2.000 skoðanir á því korti á
mánuði frá því að ég setti það inn. Það
má því segja í ljós hafi komið að áhug-
inn er sannarlega til staðar, en eins og
í annarri veiði þá reyndist takmarkaður
áhugi fyrir því að deila veiðistöðum.“
Hvað stendur strandveiði helst fyrir þrifum á Íslandi....og er hann með mikinn vaxtarbrodd til framtíðar?„Ég myndi telja að það helsta sem þyrfti
að koma til er að birta áhugaverða
strandveiðistaði. En lykilatriði í því að
þetta sport nái að vaxa er að þeir sem
vilja prófa geti fengið vitneskju um
áhugaverða staði og hvernig skuli haga
veiðinni á viðkomandi stöðum. Ég gerði
tilraun til að nálgast meiri upplýsingar
um staði með að senda tölvupósta á hin
strandveiðiOddgeir Guðmundsson
75
klappir sem eru ekkert allt of langt frá
einhverjum árósi. Nógu langt frá samt
til að veiðin sé lögleg. Maður einn sem
við þekktum eitt sinn fór eitt sinn með
fjölskylduna í orlofshús á Akureyri. Ekki
stóð til að veiða og því enginn bún-
aður tekinn með. Okkar manni fór þó
að leiðast og langaði að bleyta færi, en
engin var stöngin í skottinu og auk þess
var uppselt í árnar í nágrenninu. Kunn-
ingi hans einn á Akureyri sagði þá við
hann: „Prófaðu bara í sjónum, ég skal
lána þér stöng.“
Með 7 feta kasstöng og nokkrar Lippur
í farteskinu fór okkar maður fyrst, að
leiðsögn kunningja síns, út á einhverjar
klappir að austanverðu í Eyjafirði, ekki
langt frá þeim stað er ekið er upp á
Vaðlaheiði. Þar landaði hann nokkrum
sjóbleikjum, auk nokkurra ufsa og
smáþorska, en ufsarnir voru allt að 5-6
pund og það var eins og að kljást við
áramótaflugelda. Bleikjurnar voru líka
skemmtilegar og voru allt að 3 punda.
Þetta kom veiðimanni skemmtilega á
óvart og það rann upp fyrir honum að
þetta var veiðidagur með skemmtana-
gildi í hæsta gæðaflokki.
Daginn eftir var farið á einhverjar
klappir að vestan, nærri Krosseyrarfa-
brikkunni. Þar endurtók þetta sig, sjó-
bleikjur, ufsar og þyrsklingar. Ekki var
þessi veiðidagur lakari og þegar vikan
í orlofshúsinu var liðin og vinur vor
sagði frá ferð sinni norður í vinahópi
þegar heim á Suðurnesin var komið, var
frásögnin líkt og um veiðitúr hafi verið
að ræða.
Ufsinn er gírugur að taka flugu og berst af ógnarkrafti fyrir lífi sínu.
veiðihundar
Öryggi hunda í bílum
Inngangur
76 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Veiðihundar
Um öryggi hunda í bílum
Þaðerafaralgengtaðsjáhundalausaíbílumásamatímaogmennskirfarþegareruólaðirniðuríbakogfyrir.Ólarnarbjargamannslífum,enhundursemerlausíbílerístórhættuogþarfekkimikiðumferðaróhapptilaðdýriðkastisttilogfáiafþvíþungthögg.Afhverjuættiekkiaðgætaaðöryggihundaíbílumalvegeinsoghugaðeraðöryggimanna.Þaðerbeinlínislögbrotaðmennfestiekkiumsigsætisbelti,enskíttmeðhundinnogerhannþóaðöllujöfnuekkilítilsmetinnfjölskyldumeðlimur.
Eitt sinn ræddum við þessi mál við
Ásgeir Heiðar veiðimann og mikinn
hundamann. Það er all langt síðan
og hann tók undir að það væri allt of
algengt að hundar væru lausir í bílum.
Sagði hann það stafa af því að menn
vissu hreinlega ekki að hægt væri að
gera ýmislegt til að auka á öruggi þeirra.
Nefndi hann sem dæmi að sjálfur
boltaði hann hundabúrið sitt á palli síns
bíls, en ÁH ók á þeim tíma palljeppa.
Að sjálfsögðu var eitthvað um að menn
gerðu slíkt hið sama í skottum venju-
legra jeppa eða skutbíla.
Við ræddum síðan í framhaldi af þess-
um vangaveltum í vikunni við Einar Pál
Garðarsson hjá Hundabúðinni Bendir
og sagði hann að það færðist mjög í
vöxt að hundaeigendur gerðu viðeig-
andi ráðstafanir. „Það er engin vafi á því
að nauðsynlegt er að huga að þessum
öryggismálum. Ekki aðeins hundsins
vegna heldur ekki síður fyrir aðra í bíln-
um. Bíllinn þarf ekki að vera nema á 30
km hraða í árekstri til að 30 kg hundur
kastist af 3 tonna afli í hnakkann á þeim
sem situr fyrir framan hann í fram-
sætinu. Sumir nota ákveðin bílbelti sem
fara í öryggisfestingar í aftursætunum
og þau duga fyrir hunda frá 20 kg og
uppúr. Það eru einnig til beisli sem
krækjast í aftursætisfestingar. Eig-
endur þessara stærri hunda eru oftast
á skutbílum, jeppum eða pallbílum og í
skutbíl er oft svo þéttraðað af farangri,
að það er hægt að skorða búr ansi
vel. En það eitt dugar þó kannski ekki
alltaf og betra er að strappa yfir búrin
ólar sem festast í þar til gerða króka.
Sumir bílar, t.d. pallbílar og jeppar eru
flestir með þessa króka. Búrin eru ýmist
plastbúr eða grindarbúr og er nauðsyn-
legt gagnvart tryggingarfélögum sem
bjóða gæludýratryggingar að ganga úr
skugga um hvaða búr eru viðurkennd
veiðihundar
77
BendirVERSLUN MEÐ HUNDAVÖRUR
511-4444 www.bendir.is
og hver ekki. Og það er margt hægt að
skoða og spekúlera í þessum efnum, t.d.
að búrin taka mikið pláss í bílunum og
við vitum það öll sem erum í þessum
veiðitúrum og ferðalögum að það liggur
við að það sé alveg sama hversu stór
bíllinn er, það virðist aldrei vera nóg
pláss. Margir grípa þá til þess ráðs að fá
útbúinn svokallaðan falskan botn undir
búrið því það má smeygja ýmsu þar
undir, byssum, stangarhólkum og fleira.
En þessi búnaður er allur til í búðinni
og menn ættu bara að kynna sér hvað
í boði er og þiggja ráðgjöf í leiðinni og
hún kostar þó ekkert,“ sagði Einar Páll.
Hægt er að kaupa tryggingar fyrir
hunda, t.d. hjá VÍS, en huga ber að smá-
aletrinu þar eins og víðar. T.d. stendur
eftirfarandi í skilmálum VÍS: „Sé ferðast
með hundinn í farartæki skal hann vera
í þar til gerðu búri eða hundabelti sem
er tryggilega fest niður í farartækinu.“
Staðalbúnaður í samræmi við efni greinarinnar. Þetta og fleira má sjá á heimasíðu Bendis, www.bendir.is
78 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Vinur okkur var á gæs einhvers staðar
á Suðurlandi í októbermánuði og átti
gistingu vísa á sveitabæ einum þar sem
hann þekkti nokkuð til fólks. Bóndinn
á bænum var áhugasamur og sérvitur
veiðimaður bæði með byssu og stöng
og þegar okkar mann bar að var bóndi
nýkominn heim úr Vatnamótunum í
Vestur Skaftafellssýslu þar sem hann
hafði fengið góða veiði. Þeir tóku
eðlilega tal saman og okkar kunningi
spurði bónda út í gang mála í hinum
víðfeðmu Vatnamótum. Fyrir þá sem
kannski vita það ekki, þá eru Vatnamót-
in þar sem Geirlandsá ásamt Hörgsá og
Fossálar renna út í Skaftá. Þetta er mikið
bergvatn sem sameinast grugginu í
Skaftá og er veiðisvæðið bæði langt og
margslungið. Iðulega lenda menn í því
að leita vel og lengi uns þeir finna hvar
fiskurinn liggur hverju sinni, en hann
færir sig til, svæðið breytist og þetta er
því talsvert krefjandi veiðiskapur. Það
kann að vera að þarna sé aðeins veitt á
flugu í dag, en þegar þessi saga gerðist,
fyrir fáum árum, var spónveiði leyfð,
a.m.k. í haustveiðinni, og spónn kom
hér skemmtilega við sögu.
Bóndi þessi er mikið fyrir fluguveiðina,
en þegar hann fór í Vatnamótin var
spúnstöngin alltaf skammt undan
og hann hafði gaman að því að kasta
spæninum í lok vaktanna, eða þegar
einstaklega erfitt reyndist að finna
fisk, þá notaði hann Tóbíinn sinn til að
leita. Að þessu sinni var mikið vatn á
svæðinu og eftir nokkurt árangurslaust
puð með fluguna fór sá svarti að kafa
um ála og sund í leit að birtingi. Og það
var ekki sökum að spyrja, svarti Tóbías
er magnaður eins og menn vita og
Við veltum nokkrum nýlegum veiðisögum fyrir okkur til að fylla
þennan efnisflokk í 8. tölublaði. Fannst þær einhvern vegin ekki
alveg nógu hressilegar og spennandi þó góðar væru. Þá rifjaðist upp
ein örfárra ára gömul. Okkur rekur ekki minni til að hafa skráð hana
nema á enska vefnum okkar. Við ætlum því að renna henni hérna
og vonandi eru sem flestir að heyra hana í fyrsta sinn. Í okkar huga
eru fáar sem við höfum heyrt óborganlegri.
Leitað í smiðju til
Andrésar andar
veiðisagan
79
innan stundar var bóndi búinn að landa
5 punda birtingi. En okkar maður var
með kænskubragð í kollinum og hann
sagði kunningja okkar svo frá að í stað
þess að rota fiskinn og pakka honum
í plast, þá hafi hann „riggað hann“. Í
vasa sínum geymdi hann nokkurn
taumbút. Á öðrum endanum var smár
og hárbeittur öngull, á hinum endanum
lítið rautt kúluflotholt, líkt og börn nota
gjarnan á bensínstöðvarsettum sínum.
Hann smeygði önglinum í gegnum
rótina á veiðiugga birtingsins og sleppti
honum síðan.
Bóndi vissi nefnilega sem var, að birt-
ingarnir liggja þarna gjarnan nokkrir/
margir saman og að þessi fiskur myndi
vitja félaga sinna. Þá myndi hann vita
eins og skot hvar torfan væri með því að
fylgjast vel með rauðu kúlunni. Og þetta
gekk eftir. Það sem eftir lifði túrsins var
bóndi í fiski og landaði góðum slatta.
Notaði þá aðeins fluguna. Í lokin sótti
hann kaststöngina á nýjan leik og náði
að koma spæninum yfir flotholtið í
fjórða kasti, dró þá „riggaða“ birtinginn
til sín, losaði öngulinn úr veiðiuggan-
um, klappaði honum á kollinn og þakk-
aði honum fyrir daginn og samstarfið.
Ýtti honum síðan út í á þannig að hann
gæti synt til eftirlifandi félaga sinna!
Gæsaskyttan vinur okkar hlýddi í for-
undran á þessa frásögn og átti varla til
orð. En þegar hann mátti mæla á ný,
spurði hann vitaskuld hvernig í ósköp-
unum bónda hefði dottið þetta í hug.
Og bóndi svaraði: „Ég hef gert þetta
áður, ég las um þetta í Andrésar andar
blaði fyrir nokkrum árum.“
Vatnamótin. Mynd Axel Óskarsson.
Brúsar, og þar með lómur,eru svo snjall-
ir kafarar að sagt er að aðeins mörgæsir
standi þeim á sporði í þeim efnum.
Himbriminn er sagður geta farið niður
á 80 metra dýpi og verið í kafi í 8 mín-
útur, en svoleiðis útreikningar eru ekki
fyrir hendi um lómin þó að vitað sé að
hann geti synt allt að 800 metra í einum
rykk í kafi. Þetta eru því mikil sundtök
og skrokkurinn einstaklega vel lagaður
til slíks, straumlínulagaður, sterkur og
með stóra sundfætur aftast á búknum.
Svo aftarlega að brúsar geti ekki gengið
á þurru landi, enda verpa þeir fremst á
vatnsbakka þar sem þeir geta bókstaf-
lega rennt sér á maganum af hreiðrinu
þegar þess gerist þörf.
Veiðimenn eru oft með horn í síðu
þessara fugla, en hvað lóminn varðar,
þá er hann ekki talinn gera neinn usla
að ráði í fersku vatni. Ef usla skyldi kalla
þegar fugl er að veiða ofan í sig og unga
sína. Lómar verpa við smærri vötn og
tjarnir en himbrimar og oft eru varptj-
arnir lóma fisklausar með öllu. Þeir eru
nefnilega svo duglegir að sækja sér fisk
út á sjó og fljúga til þess langar leiðir ef
þurfa þykir. Þeir eru að vísu stundum
að veiða á fersku vatni og derra sig ef
veiðimenn eða aðrir koma nærri. Eitt
sinn var ritstjóri að veiða í Straumunum
og lómar tveir urðu afar reiðir þegar
veiðisvæðin sköruðust og syntu ógn-
andi í áttina að tvífætlingnum.
Á meðan stóri frændi himbriminn
hefur yfir sér áru fugls sem aðrir óttast
og virða, þá er meira grínast með lóm-
inn og talað um að vera með barlóm
eða að berja lóminn ef verið er að kvarta
og það þarf ekkert að fara út í hvað það
Til er ætt fugla sem kallaðir eru brúsar. Fjórar tegundir brúsa finnast
á norðurhveli jarðar og eru þetta fornir fuglar og gríðarlega aðlagaðir
umhverfi sínu og brýnustu þörfum. Tveir brúsar eru í íslenska náttúruríkinu,
himbrimi og lómur. Báðir tveir stórir og einstaklega litskrúðugir og fallegir
fuglar. Lómurinn er smærri tegundin, en stór fugl samt sem áður. Hann er
algengari en himbriminn og með meiri útbreiðslu. Himbriminn er tegund
sem finnst hvergi í Evrópu nema á Íslandi. Er svokölluð Amerísk tegund.
Hann er jafn framt stærri og skrautlegri og til eru af honum miklu fleiri
sögur sem sumar hverjar eru ævintýralegar. Við eigum hann eftir í þessum
pistlum, því við ætlum hér að segja aðeins frá lómnum.
Mikill veiðifugl sem getur kafað 800 metra í einum spretti
80 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
lífríkiðLómurinn
þýðir að vera álitinn hrekkjalómur. Í
ensku er nafn lómsins einnig teygt og
togað, „loon“ gjarnan notað yfir óþokka
eða vitleysing.
Óðalssöngur lómsins er hljómmikill,
sérstakur og sterkur líkt og hjá him-
brima. Hljóð þeirra frænda þykja
mörgum ómissandi raddir sumarsins
og víst má taka undir það. Það eru þó
ekki allir jafn hrifnir og Guðmundur
Páll Ólafsson náttúrufræðingur segir
frá því í fuglabók sinni, þeirri stóru, að
bóndi einn á Vesturlandi, hafi skotið alla
lóma á landareign sinni vegna þess að
hljóðin í þeim fóru í taugarnar á hon-
um. Guðmundur Páll segir líka frá því
hvernig alþýðan forðum daga reyndi að
rýna í spádómsgáfu lómsins, reyndi að
lesa úr hljóðum hans og kallaði hann
þerrikráku þar sem gólið benti til þurrks,
en jóðlið sem hann gefur einnig frá sér
vissi á vætu. En þar sem hann jóðlaði í
tíma og ótíma, þá var í raun ekkert að
marka lóminn sem þar með var talinn
hrekkjalómur. Hitt er svo annað mál,
að hin hljómmikla rödd brúsanna allra
er aðeins sumargaman, eftir varptíma
þagna þeir og ekki heyrist til þeirra aftur
fyrr en vorar á ný.
Sem fyrr segir er lómurinn mikill
kafariog veiðigarpur. Oftast veiðir
hann í söltum sjó, en auðvitað í fersku
vatni líka. Fyrir utan að vera veiðinn
að eðlisfari, þá er hann einnig klókur
tækifærissinni. Eitt sinn sat ritstjóri upp
í brekku við Vífilstaðavatn og fylgdist í
sjónauka með skemmtilegri uppákomu
þar sem fjórar toppendur unnu saman
að því að smala smásilungum í þéttan
hnapp og tína þá síðan upp á örgrunnu
vatni við vatnsbakkann. Það eitt og sér
var afar skemmtilegt að horfa á, en enn
skemmtilegra bættist við, er tveir lómar
komu fljúgandi og settust á vatnið rétt
utan við toppendurnar. Þar sveimuðu
þeir um og veiddu hvern tittinn af
öðrum sem voru að sleppa burt úr her-
kví toppandanna.
Eitt og annað um lóminn svona að
lokum. Hann er auðþekkjanlegur eins
og myndin gefur til kynna. Og hann
er stór fugl þó að smár sé í samanburði
við himbrimann. Vænghafið nær allt að
1,17 metrum. Eggin eru tvö og algengt
mun vera að aðeins einn ungi komist á
legg, því foreldrarnir veiða ofan í þá og
þá er oft annar frekari en hinn, fær þar
af leiðandi meira og þá er lífskrafturinn
ekki lengi að fjara úr hinum skapminni.
Ungarnir eru sex vikur að komast á flug
og þá er stutt í að lómarnir yfirgefi land-
ið. Þeir fljúga til hafs og sjást stundum á
vetrum, aðallega við sunnanvert landið.
En megnið af stofninum fer ugglaust
eitthvað lengra.
81
Lómar á Laxá í Kjós. Mynd Ásdís Guðmundsdóttir.
græjur ofl.
Nýja Exceed stangalínan frá Guideline
82 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Guideline hefur sent frá sér nýja stangalínu sem er sam-starfsverkefni Leifs Stavmo og Klaus Frimor. Þykja þetta vera afburðagóðar stangir. Í fréttatil-kynningu frá Veiðiflugum, sem eru umboðsaðilar fyrir Guideline á Íslandi segir eftirfarandi: „Með þvi að kafa í okkar eigin auðlindir mátum við hvaða stangir hafa verið vinsælastar hjá Guideline síðasta áratuginn, og hönnuðum úr því nýja stöng í mið verðflokki, allra besta stöng í þessum verð-flokki sem við höfum gert. Mikið úrval af mismunandi lengdum stanga fyrir margar mismunandi línuþyngdir eru í boði, ellefu ein-hendur, þrjár “switch” stangir og fjórar tvíhendur. Í hverja stöng notum við einstaka blöndu af japönsku grafíti sem skilar sér í frábærri vinnslu í stönginni. Hin geysimikla reynsla sem Leif Stavmo og Klaus Frimor hafa sem stangarhönnuðir, ásamt samstarfi við frábæra verksmiðju skilar okkur stöng sem á efir að færa bros yfir andlit margra veiðimanna um allan heim. Eftir mikla þróunarvinnu og margar prufustangir var stöngin að lokum orðin þannig að hún kom starfsfólki Guideline skemmti-lega á óvart og fór langt fram úr væntingum. Þannig hlaut hún nafnið Exceed - ”exceeding all expectations”
Léttari útgáfurnar af einhend-unni eru gerðar eftir innblæstri frá vinnslunni í okkar vinsælu Fario stöngum, mjúk en kraft-mikil vinnsla sem býður upp á mjög margar mismunandi aðferðir og útfærslur á köstum. 9´6 og 10´ stangirnar hafa þró-ast frá allnokrum prufuútgáfum. Loka niðurstaðan eru stangir sem hafa sinn eigin persónu-leika, hraðar stangir sem hafa þennan eftirsótta “slingshot effect” í kastinu. Af þeim sökum eru þetta stangir sem henta alveg sérlega vel í öll speyköst. Exceed Switch stangirnar koma fyrir þrjár mismunandi línu-þyngdir og eru frábær kostur í Switch stöngum. Vinnslan í Exceed Switch stöngunum er í grunninn byggð á LPXe stöng-unum með smá breytingum hér og þar. Það sem gerir Exceed Switch stangirnar frábærar er hversu léttar þær eru. Exceed Switch er með örlítið minni handföngum en LPXe stang-irnar. Svona náum við fram því allra besta úr stönginni, hvort heldur hún er notuð sem ein-henda eða tvíhenda. Þetta gerir þessar stangir svo einstakar og skemmtilegar í notkum, í þeim er svo mikið líf og persónuleiki, annað en í svo mörgum öðrum switch stöngum á markaðnum sem eru þyngri og annað hvort allt of mjúkar (regressed action) eða allt of stífar.
Fjórar Exceed tvíhendur sækja innblástur sinn frá hinum geysi-vinsælu LeCie stöngum. 12’ og 12’9 eru kærkomin nýjung í viðbót við lengdirnar á stöngum sem í boði eru frá Guideline og henta mjög vel í mörgum ám í Evrópu og á Íslandi. Tvær lengri útfærslurnar af Exceed tvíhendunum henta vel til veiða í stærri ám á Íslandi, Noregi, Skotlandi og víðar. Þessar tví-hendur hafa mjög svipaða hraða og kraftmikla vinnslu og “stóru bræðurnir”, LPXe og LeCie og eru besti kosturinn fyrir þá sem vilja spara aðeins við sig en fá það allra besta sem völ er á fyrir peninginn.
Exceed stangirnar eru sérstalega styrktar á álagspunktum, en styrkingin kemur á engann hátt niður á vinnslu stanganna. Stangirnar eru djúpgrænar að lit með dökkgráum vafningum við lykkjur og samsetningar. Allar stangirnar eru með PB dökkgra-áum “stripper” lykkjum og léttum snákalykkjum. Exceed stangirnar eru gerðar með það í huga að minna er meira - “less is more”. Hjólsætin eru mjög sterk, einhendur upp í línu 6 eru með fallegum við í hjólsæti en einhendur fyrir línu 7 og upp úr eru með málmi í stað viðarsæta. Öll handföng eru með hágæða portúgölskum korki.
Veiðiflugur á Langholtsveginum hafa farið þá leið í vörukynningu að gefa út vandaðan vörulista á Netinu. Þar er vöruúrval sett upp með snyrtilegum hætti í flettifor-rit með sama hætti og Veiðislóð.
Flaggskip Veiðiflugna eru Guideline fluguveiðivörurnar og Patagonia útivistar- og veiðifatnaður, en litrófið er þarna allt að finna, m.a. hin frábæru Vestfirsku Einarsson fluguveiðihjól. Auk vörulista er ýmis konar afþreyignarefni í blaðinu og ekki annað en að opna, fletta og njóta. Blaðið er aðgengilegt á heimasíðu Veiði-flugna, www.veidiflugur.is
Blað Veiðiflugna á Netinu
græjur ofl.
Ný tækni gerir frábærar línur enn betri
Sportbúðin er flutt
TreaZure er nýjasta afurð Maxima í Þýskalandi en þennan virta framleiðanda af nælon-línum og taumaefni þarf ekki að kynna fyrir íslenskum veiði-mönnum. Maxima er það taumaefni sem notið hefur hvað mestrar útbreiðslu hér á landi og má fullyrða að sé í veiðitöskum flestra íslenskra veiðimanna enda löngu þekkt fyrir styrk og viðnám gegn hnjaski.
Maxima TreaZure er ólíkt öðru nælonefni í allri uppbyggingu. Ef hefðbundnar nælonlínur og taumaefni er skoðað í sterkri smásjá sést lagskifting. Helsti styrkur nælonefnis liggur í ysta byrðinu. Þegar efnið verður fyrir hnjaski t.d. dregst eftir stórgrýti og klöppum, minnkar slit-styrkur efnisins mikið og hætta á að taumurinn eða línan slitni eykst mikið.
Sportbúðin sem starfrækt hefur verið frá mars 2007 er flutt. Ekki var farið langt því innréttuð hefur verið ný Sportbúð rétt hinumeg-in við götuna, í Harðviðarvals-húsinu að Krókhálsi númer 4.
Við skelltum gömlu búðinni í lás í febrúar og hófum flutninga yfir götuna og svona hálfopnuðum í mars á ný. Við erum svona að ljúka við að koma okkur fyrir þó enn eigi eftir að merkja búðina endanlega að utan og innan.
Einhver hafði á orði um daginn að búðin hefði minnkað mikið en það getum við ekki tekið undir. Sportbúðin er jú á mun færri fermetrum en áður en það er jafnmikið af vörum í nýju Sport-búðinni og var í þeirri gömlu ef undan eru skyldir kayakarnir sem eru á leiðinni á ný.
Með nýrri tækni hefur Maxima tekist að blanda þessum styrktarþáttum ekki bara í ysta byrði línunnar heldur er efninu blandað inn í kjarna nælonsins. Maxima TreaZure línan hefur það því framyfir hefðbundið nælon að slitstyrkur minnkar ekki eins mikið þó línan rispist. Þá er Maxima Treazure mýkra efni en annað frá Maxima og nánast alveg minnislaust. Við í Veiðihorninu mælum sérstaklega með Maxima TreaZure fyrir silungsveiðimenn. Sjá nánar á slóðinni hér að neðan:
maximalines.blogspot.com
Úr fróðleikshorni Veiðihornsins
Sportbúðin er vel staðsett, í leiðinni úr bænum, hvort heldur sem farið er vestur og norður eða suður og austur. Sportbúðin leggur mikla áherslu á ódýrari veiðibúnað fyrir fjölskyldufólk. Mikið úrval er af ódýrum stöngum, hjólum, vöðlum og veiðifatnaði er í Sportbúðinni. Úrval af ódýrum spúnum svo og beitan í veiðiferðina er á staðnum. Gott aðgengi er að Sportbúðinni og næg bílastæði.
83
græjur ofl.
84 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012
Orvis Zeiss Polycarbonate Acklins veiðigleraugu
Savage Gear beita sem slær í gegn
Vesturröst býður þessa dagana upp á nýja línu í veiðigler-augum frá Orvis. Um er að ræða hágæða veiðigleraugu, sólgleraugu með nettri og léttri umgjörð ,gúmmí við eyru og nef til að tryggja stöðugleika .
Polycarbonate linsurnar hafa filmu sem hrinda frá vatni og móðu og 3 laga filter í linsu sem varnar því að útfjólubláir
Nú í vor hófum við í Veiðihorn-inu og Sportbúðinni sölu á beitu frá Savage Gear í Danmörku. Fyrirtækið hefur fyrst og fremst sérhæft sig í beitu og búnaði fyrir geddu og aðra ránfiska sem finnast í Evrópu en einnig fyrir sjóveiði.
Við heyrðum í fyrra af hópi veiði-manna frá austurhluta Evrópu sem veiddu vel á Savage Gear beituna bæði í Þingvallavatni en einnig í Veiðivötnum. Þá fréttum við einnig af hópi íslendinga sem voru að moka upp stórum urriðum í veiðivötnum en þeir félagarnir höfðu fest kaup á Savage Gear í Noregi og Svíþjóð og fóru vægast sagt leynt með.
Um tvennskonar beitu er að ræða. Annars vegar eru það hörð síli með liðamótum og hins vegar er það mjúk sílikonbeita einnig með liðum. Hvort tveggja dregur að sér stóra fiska enda er þessi nýja beita ótrúlega eðlileg í vatni eins og sést á meðfylgjandi myndskeiðum:
geislar og glampi nái í gegn. 100% UVA og UVB vörn. Optical gæða linsur, 99% Polarization skilvirkni. Þessar linsur, sem eru frá Zeiss, þola vel högg og eru með rispuvörn. Gæða hulstur og silkipoki fylgja. Þetta hljómar eins og eitthvað til að kynna sér betur.
Savage Gear 4-Play Soft Bait var valið besta nýja agnið á Efttex sýningunni sem haldin var í júní 2011. Hér er vöruþrónunarstjóri Savage Gear, Mads Grosell með verðlaunagripinn.
Savage Gear beitan fæst í Sportbúðinni Krókhálsi 4.
http://savage-gear.com/PLayYouTube.asp?id=cS-Cfh9s_wI.asp
http://savage-gear.com/PLayYouTube.asp?id=Ua8iIHCnQJY.asp
græjur ofl.
Sage ONE bætir enn við sig
Bandaríski flugustangafram-leiðandinn SAGE kemur enn á ný með stórkostlega nýjung fram á sjónarsviðið. Sage ONE. Margir hafa fullyrt að Sage ONE sé merkasta nýjung í flugu-stöngum frá því grafítið kom til sögunnar. Við í Veiðihorninu tökum undir það. Sage ONE er afsprengi þriggja ára þróunar-vinnu hjá Sage á Bainbridge eyju utan við Seattle í Banda-ríkjunum. Jerry Siem, yfirhönn-uður og þróunarstjóri hjá Sage sagði þegar Sage ONE var kynnt að það réði ekki úrslitum hvað sett væri í stöngina heldur hvað hægt er að taka úr henni.
Stangarefni allra flugustanga er rúllað upp úr grafítmottum. Motturnar eru gerðar úr grafítt-refjum sem límdar eru saman með sérstöku bindiefni. Þróun í grafítmottum undanfarin ár hefur að mestu legið í því að gera motturnar úr fínlegri en fleiri trefjum. Með því móti er hægt að gera stangir enn léttari og sterkari enda hafa margir framleiðendur komið með „enn léttari“, „enn hraðari“ og „enn sterkari“ stangir á hverju ári.
Í þróun á Sage ONE var farin önnur leið. Horft var til bindi-efnisins sem heldur trefj-unum saman í þeim tilgangi að
lágmarka notkun þess. Afrakstur áralangrar þróunarvinnu leit svo dagsins ljós um mitt sumar 2011 þegar Sage ONE var kynnt. Sage ONE er „enn léttari“, reyndar sú léttasta á markaðnum, „enn hraðari“ og „enn sterkari“ en aðrar stangir.
„Blankið“ eða sjálft stangarefnið er grennra en á sambærilegum stöngum en síðast en ekki síst er Sage ONE nákvæmasta stöngin á markaðnum og hægt er að punkt-kasta með henni á löngum færum.
Með tilkomu nýja bindisefnisins og framleiðsluferli sem gerir það að verkum að hægt er að pressa límið eða bindiefnið út úr mott-unni liggja grafíttrefjarnar þétt saman og vísa í sömu átt. Með þessu móti flyst kraftur kastsins jafnar frá handfangi fram í topp auk þess sem allur titringur í stangarefninu minnkar til muna og flugan lendir á nákvæmlega þeim stað sem hún á að lenda á.
Sage ONE er því einstök stöng og allir þeir sem fengið hafa að prófa lofa stöngina í hástert. Sage ONE hefur hlotið margar viðurkenningar og verðlaun á öllum sýningum og viðburðum þar sem hún hefur verið kynnt sbr. hér.
Best Freshwater Rod
International Dealer Show í New Orleans 2011
Best Saltwater Rod
International Dealer Show í New Orleans 2011
Best Fly Rod
Efttex 2011
Best Allround Rod
Fly Fishermena Gear Guide 2012
Best New Flyrod
Field & Stream feb 2012
Fyrstu Sage ONE í Evrópu birtust í flugustangarekka Veiðihornsins í Síðumúla um miðjan ágúst í fyrra og voru strax rifnar út enda hafði eftirvæntingin verið mikil. Til þessa hefur Sage ONE ein-ungis verið fáanleg í einhendum frá línuþyngd 3 til 9 en nú um miðjan júní koma á markaðinn fyrstu tvíhendurnar og „switch“ stangirnar í ONE línunni.
Allar Sage flugustangir eru hand-gerðar hjá Sage á Bainbridge fyrir utan Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna, ólíkt flestum flugustöngum á markaðnum sem framleiddar eru í stórum verksmiðjum í Kína og Kóreu undir ýmsum merkjum. All grafitið er búið til í Bandaríkj-unum. Sage framleiðir einungis flugustangir undir sínu merki og Sage flugustangir eru ekki búnar til annarsstaðar. Grafítið sem notað er í Sage flugustangir er ekki notað í aðrar flugustangir.
Úr fróðleikshorni Veiðihornsins
85
græjur ofl.
Simms dagar Veiðihornsins 2.-3. júní n.k.
Simms sumardagar hjá Veiðivon
Það verður sannkölluð veiðihátíð í Veiðihorninu Síðumúla 8 helgina 2. og 3. júní næstkom-andi en þá heimsækja okkur Tim Malyurek og Nick Simmons frá Simms í Bandaríkjunum og þeir Jon Anders Walle, Tom Roger Bekkeli og Bent-Ove Ulsaker frá Simms í Evrópu.
Við viljum hvetja alla áhuga-sama veiðimenn að heimsækja Veiðihornið þessa helgi og hitta sérfræðingana sem svara meðal annars spurningunni um afhverju Simms er það besta í vöðlum og veiðifatnaði. Tom Roger og Bent-Ove eru sér-fræðingar í Gore-tex fatnaði, meðferð og viðgerðum enda veita þeir forstöðu viðgerðamið-stöð Simms í Evrópu.
Margt fleira verður brallað þessa helgi en meðal þess helsta má segja frá því að fulltrúar frá
Helgina 2. - 3. júní stöndum við fyrir Simms sumardögum í Veiðivon, Mörkinni 6 í samstarfi við Flyfish Europe, dreifingaraðila Simms í Evrópu. Það verður heil-mikið um að vera þessa helgi í búðinni en til landsins koma sér-fræðingar Simms í vöðlum, sem munu halda kynningar á viðhaldi og viðgerðum á vöðlum ásamt því að kynna vörurnar frá Simms.
Við munum leggja undir okkur búðina og sal Ferðafélags Íslands sem er í sama húsi og búðin svo það verður nægt pláss fyrir allar uppákomurnar sem verða meðal annar:
Strengjum, Lax-á og SVFR verða með veiðileyfakynningar að ógleymdu Veiðikortinu. Einar Guðnason frá Fluguveiðiskólan-um kynnir starfsemina í sumar, Steingrímur Einarsson kynnir Einarsson fluguhjólið báða dagana. Nils Folmer Jörgensen ætlar að hnýta flugurnar sem draga að stóru fiskana auk þess sem hægt verður að prófa allar helstu flugustangir Veiðihorns-ins á kastsvæðinu við búðina. Allir sem koma fá happdrætt-ismiða en dregið verður eftir helgina og vinningarnir verða ekki af verri sortinni eða Simms vöðlur, Sage ONE, Einarsson fluguhjól og fleira.
Auk kynninga verða ýmis tilboð í gangi alla helgina en nánari dag-skrá liggur fyrir í Veiðihorninu og á Facebook síðu Veiðimannsins síðustu vikuna í maí.
• Hreggnasiverðurmeðkynn-ingu á sínum veiðisvæðum.
• IcelandAnglingTravelverðurmeð kynningu á ferðum til Mexíkó.
• LeigutakarLitluárverðameðkynningu á ánni.
• BjörnK.Rúnarssonhnýtirlaxa-flugur og ræðir við veiðimenn um laxveiðina.
• Happdrættiogmargtfleirasem verður auglýst síðar.
Afgreiðslutími þessa helgina verður sem hér segir:
Laugardagur 2. júní: 10 - 16 Sunnudagur 3. júní: 12 – 16
Sjá nánar á www.veidivon.is
86 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 2. tbl. 2012Gleraugað • Bláu húsin við Faxafen • 108 Reykjavík • Sími 568 1800 • gleraugad.is
8787Gleraugað • Bláu húsin við Faxafen • 108 Reykjavík • Sími 568 1800 • gleraugad.is
Sjón er sögu ríkari!
Polarized veiðigleraugumeð gulgrænum litúr gæða gleri
Fáanleg í þínum styrkog mörgum litum
VEIÐISLÓÐtímarit um sportveiði og tengt efni
Útgefandi:GHJ útgáfa ehf.
Ritstjórn:Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrotJón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif
Netfang: veidislod@veidislod.is
top related