Ástin 12 02 2016
DESCRIPTION
Lifestyle, Fréttatíminn, IcelandTRANSCRIPT
Ástinfréttatíminn Helgin 12. febrúar-14. febrúar 2016
geggjaðir ilmir náttúruleg innihaldsefni
veitir vellíðan
paraben frítt silkimjúk áferð gott fyrir h
úðina
Besta ástarsaga íslenskra bókmennta
Pétur Már Ólafsson bókaútgefandi
Ástarsaga Arnasar og Snæfríðar stendur upp úr
„Ástarsaga Arnasar og
Snæfríðar Íslandssólar í Íslands-klukkunni stendur
upp úr. Hún er laus við
alla tilfinninga-semi – og endar að sjálfsögðu illa. Lögmannsdóttirin unga og heimsmaðurinn fella hugi saman. Hann dæmir föður hennar síðar frá æru og embætti en Snæfríður gefst ekki upp heldur knýr málið áfram eftir dauða hans. Heiður ættarinnar krefst þess að Arnasi sé komið á kné, jafnvel þótt hún elski hann, og hefur sigur. En til hvers? Nótt í Kaupmannahöfn tala þau um að ríða um landið á hvítum hestum en í lok bókar sér Jón Hreggviðsson hana ríða af þingi, ásamt gömlum vonbiðli, á svörtum hestum.“
Sunna Dís Másdóttirnemi og gagnrýnandi
Ógleymanleg ástarjátning Jóns Kalmans
„Enginn íslenskur
höfundur skrifar betur um ást en Jón Kalman
Stefánsson og hvergi
hefur hann gert það betur en í Birtan á fjöllunum. Ástarjátning Starkaðar til Elku, með lograuða hárið, er ógleyman-leg.“
Hvað er þessi ást? er hún ómissandi? er hægt að lækna sært hjarta og er okkur ætluð bara ein og aðeins ein? fréttatíminn leitaði á náðir þriggja ástfanginna kvenna og fékk þær til þess að deila með okkur sinni sýn á þessu ógnarsterka afli sem ástin er.
Hvað er ástin?Það er erfitt að skilgreina ástina á einhvern einn máta, hún á sér margar birtingarmyndir. Ástin er þetta mjúka, þetta hlýja, þetta fallega afl sem fær mann til að langa til að verða betri manneskja. Ég skildi orðtakið ást við fyrstu sýn þegar ég sá dóttur okkar í fyrsta skipti og fékk hana í fangið í Kína árið 2005. Þá upplifði ég svo innilega hvernig hjartað mitt opnaðist og þessi litla mannvera eignaði sér stærsta staðinn í því. Stundum spyr ég mig að því þegar ég horfi á hana hvort það sé virki-lega hægt að elska eina manneskju alltaf meira og meira og svarið er alltaf já!
Skiptir ástin máli?Án ástarinnar væri lífið heldur tómlegt. Óhrædd opnum við hjarta okkar og leyfum ástinni að taka völdin vitandi það að þessi dýpsta
sæla getur á einu augnabliki breyst í blæðandi hjartasár og hyldjúpan skerandi sársauka. en það er partur af lífinu því er svo mikilvægt að lifa í þakklæti fyrir það líf sem við höfum fengið og allt það góða fólki sem umlykur okkur og á stóran þátt í að við getum sagst vera hamingjusöm. Ástin er allstaðar og er tungumál sem allur heimurinn skilur, hún auðgar lífið og er hvati til góðra verka.
Er hægt að lækna særða ást?Tíminn læknar öll sár. Það er undir hverjum og einum komið hvort hann vill fyrirgefa og halda áfram og finna sitt jafnvægi lífinu eða dvelja í sársaukanum með til-heyrandi erfiðleikum sem eftirsjá og reiði elur af sér. Stundum þarf einfaldlega að sleppa tökunum og treysta á að sárin grói. láta almættið um stjórnina og halda áfram að róa.
Hvað er ástin?Ástin er svefnleysi. fyrst í upphafi sambands þegar fólk er svo spennt fyrir hvort öðru að það getur ekki sofnað. Svo þegar það heldur vöku fyrir hvort öðru með skemmti-legri næturleikfimi og seinna þegar ávextir ástarinnar vekja foreldra sína ítrekað yfir nóttina og allt of snemma á morgnana. Ég myndi ekki þola svona slitróttan svefn fyrir neitt annað en ástina.
Skiptir ástin máli?Ætli mannkynið væri ekki löngu útdautt ef fólk yrði ekki ástfangið. fyrir mig er líf án ástar frekar bragðlaust. Hún dýpkar og víkkar allar upplifanir og hjálpar mér að forgangsraða. annars er ég frekar ástsjúk og elska manninn minn, strákana mína, vini mína og fjöl-skyldu af öllu hjarta, meðal annars af því að mér finnst svo gott að þau skuli öll elska mig á móti.
Er hægt að lækna særða ást?Móðir mín sagði einu sinni: „Stundum þurfa hlutir að brotna til þess að hægt sé að líma þá aftur saman.“ fólk getur verið í bældum, vansælum samböndum í áratugi án þess að kvarta, en oft er betra að tala út um hlutina og hreinsa loftið, jafnvel þó það sé erfið vinna er gott að leggja hana á sig. Ég held það sé hægt að lækna flest, en svo er annað mál hvort að öll ást sé þess virði að lækna hana.
Hvernig ræktið þið ástina?Sofa saman og tala saman, í góðu jafnvægi. Það segir Kristína berman, vinkona mín, sem er ansi klók kona. Hún sagði líka að þegar hjón ræða saman (rífast) sé best að haldast í hendur eða hafa einhverja líkam-lega snertingu. Það er ómögulegt að segja andstyggilega hluti við makann þegar þú ert nálægt honum og heldur í höndina á honum.
Nauðsynlegt að kunna elska sjálfan sig
Líf án ástar frekar bragðlaust
Valentína Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Móður Náttúru Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur
2 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar-14. febrúar 2016
Anna Lea Friðriksdóttirútgefandi hjá Sölku
Ástarævintýri þriggja barna móður og menntskælings
„Fáir komast með tærnar þar sem Bergsveinn Birgisson er með hælana þegar kemur
að því að skrifa fallegan texta og
Svar við bréfi Helgu hefur allt sem til þarf; forboðna ást, kímni, erótík og að sjálfsögðu trega,“ segir Anna Lea Friðriks-dóttir, útgefandi hjá Sölku sem kveðst líka hrifin af Angantý eftir Elínu Thorarensen. „Angantýr er minningabók um samband Elínar við Jóhann Jónsson skáld. Það telst sannað að ýmsir fjölskyldu-meðlimir og áhrifamenn í íslensku menningarlífi reyndu að koma í veg fyrir útgáfu bókarinnar enda var Elín fráskilin þriggja barna móðir en Jóhann menntskælingur á meðan ástarævintýri þeirra varði. Þema bókarinnar er ekki nýtt af nálinni, sú von að ástin sigri boð og bönn og mótlæti sam-félagsins. Þetta ástarævintýri fékk ekki farsælan enda en texti Elínar er gullfallegur og þessi litla bók á stórt pláss í mínu hjarta.“
Egill Helgason stjórnandi Kiljunnar
Blíðar og óblíðar ástir í Sölku Völku
„Salka Valka. Þar eru blíðar
ástir, óblíðar ástir, svik og harmur og togstreita og bókin hefur verið leið
margra ung-menna inn í verk
Halldórs Laxness.“
Egill örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins
Aldarspegill og saga um ást og harm
„Ég slæ saman í eina, Kar-itas án titils og Óreiðu á striga eftir Krist-
ínu Marju Baldursdóttur.
Bækurnar eru fyrst og fremst stórbrotin og kröft-ug þroskasaga konu sem fer sínar eigin leiðir, en frásögnin um ástir Karitasar og Sigmars er eins og
Besta ástarsaga íslenskra bókmennta
Hvað er ástin?Ástin er stórhættuleg, lífsnauð-synleg, yndisleg og stundum hinn mesti vandræðagripur! Ástæðan fyrir því að sumt fólk forðast ástina er áhættan, það er svo vont ef ástin bregst – þess vegna er hún svo hættuleg. Ég lenti í því um daginn að fá magnað hræðslukast við tilhugsunina um hvernig lífið yrði ef ég missti ástina mína. Þetta er auðvitað eðlilegur fylgifiskur þessa góða fyrirbæris. Sá sem elskar óttast ekkert meira en að missa ástina sína – en óttinn má að mínu mati ekki standa í vegi fyrir því að fólk elski og sækist eftir ástinni!
Skiptir ástin máli?Það er ekkert fyrir ást og ekkert eftir ást þannig að ástin er allt sem skiptir máli. Ástin sigrar allt!
Er hægt að laga særða ást?ef ég skil þessa spurningu rétt þá fjallar hún um það hvort sá sem er svikinn af ástinni sinni geti rétt úr kútnum aftur, jafnvel fundið nýja ást og kannski gleymt þessari gömlu. Ég hef séð þetta gerast en það getur tekið langan tíma. eða stuttan. Það er misjafnt. en ég held að það sé alltaf hægt. Kannski helst ef viðkomandi særð ást reynir ekki of mikið til að af-
særast. bara er og reynir að vera róleg.
Hvernig ræktið þið ástina?er þetta blað bannað innan 18 ára? Ég veit það ekki hreinlega, við horfum t.d. ekki á sjónvarp, tölum saman í tíma og ótíma um allt og ekkert, dáumst að börnunum okkar saman en reynum líka að eiga okkar prívatstundir. Við kunnum að meta hvunndaginn og gerum okkur far um að láta ekki smáatriði pirra okkur. Svo styttist í fyrsta fullorð-insfríið í langan tíma og slíkt „trít“ er afskaplega gott fyrir ástina!
Heldurðu að allir geti fundið hina einu sönnu ást – og er hún til?Það er auðvitað fáránlegt að halda því fram að fyrir mig eða aðra sé bara til ein sönn ást í öllum heiminum. Hvílík tilviljun að ramba á hana! Hvað ef mér hefði verið rænt í la árið 1984 (sem hefði getað gerst, skv. ömmu)? Þá væri ég kannski viss um að rapparinn eða kvikmyndamógúllinn væri sá eini sanni, grunlaus um að á Íslandi biði hann og biði, ástin mín eina, aleinn á Ölstofunni. Sá þyrfti að bíða lengi! Ég held að á hverjum stað og á hverjum tíma sé þessa einu sönnu ást að finna. Það þarf bara að hitta á mómentið og finna hana. Og hún er þarna – treystu mér!
Kunnum að meta hvunndaginn
Áslaug Guðrúnardóttir, kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur og höfundur bókarinnar Mínímalískur lífsstíll
Opið virka daga frá 11:00 -19:00 og laugardaga 12 - 18
Í Ostaskóla Búrsins eru bara ostar á námsskránni. Engar frímínútur og heldur engin heimavinna. Afþreying fyrir ostelskandi einstaklinga.
Ostaást?Búrið er troðfullt af ótrúlega girnilegu
ostagóðgæti og öðru gúmmulaði.
Komin tími til að kíkja í Búrið?
Grandagarður 35 · 101 Reykjavík · Sími 551 8400 www.burid.is
AG_Iceland_210x219.indd 1 18/11/2015 12:23
ILMURINN KOMINN AFTUR Á ÚTSÖLUSTAÐI
4 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar-14. febrúar 2016
rauður þráður í gegn um bókina. Persónusköpunin er mögnuð, mannlífið fjölbreytt. Þetta er allt í senn, aldarspegill, saga þjóðfélags í mótun, saga kvenna og frelsis-baráttu, saga um ást og harm.“
Nanna Rögnvaldardóttir ritstjóri
Saga af venjulegu fólki með raunsann-ar tilfinningar
„Dalalíf Guð-rúnar frá Lundi stendur upp úr. Vel sögð og blátt áfram saga
af venjulegu fólki með raun-
sannar tilfinning-ar, bæði staðfastar og hverfular. Rómantíkin er til staðar, meló-dramatíkin líka, en sagan er aldrei velluleg og Guðrún, þessi frábæri sögumaður sem sjálf sagðist vera hvergi í íslenskum bókmenntum en er kannski frekar alls staðar, fléttar svo dásamlega vel saman dramatík og hversdagslíf og sýnir svo margar hliðar ástarinnar.“
Kolbrún Bergþórsdóttir ritstjóri:
Tímaþjófur Stein-unnar sú besta
„Laxdæla er hugs-anlega besta ástarsagan og Salka Valka þar á eftir, en þær bækur
flokkast varla undir hreinar
ástarsögur þar sem höfundarnir eru að segja
fleiri sögur en bara ástarsöguna og lá svo miklu meira á hjarta en að fjalla bara um ástir. Ef við erum að tala um ekta ástarsögu þá hlýtur Piltur og stúlka eftir Jón Thorodd-sen að vera ofarlega á blaði. Afar vel skrifuð saga með geðþekkum elskendum sem þurfa að hafa mikið fyrir ást sinni og mæta alls kyns mótlæti. Allt fer þó vel að lokum eins og á að vera í alvöru ástarsögu. Sérlega eftirminnilegar aukapersónur krydda söguna, eins og til dæmis Gróa á Leiti. Þarna er dregin upp góð mynd af íslensku þjóðlífi og dásamleg kvæði í sögunni gleðja svo lesandann. Tímalaus klassík. Það mætti alveg eins nefna Mann og konu eftir sama höfund, en Piltur og stúlka skal það vera!“ segir Kolbrún.„Tímaþjófurinn eftir Steinunni Sigurðardóttur er sennilega besta ástarsaga seinni tíma þegar við miðum við íslenskar bókmenntir. Sterk saga um það hvernig er að vera heltekin af ást.“
Besta ástarsaga íslenskra bókmennta
guðjón friðriksson sagnfræðingur þekkir vel til sögu reykjavíkur. Hann segir að á fyrri hluta 20. aldar hafi nokkrir staðir haft á sér rómantískan blæ.
„Suðurgatan var oft kölluð ástarbraut og þangað fóru ungir elskendur, eða fólk sem var að draga sig saman. Það gekk gjarnan þarna um og fór inn í kirkjugarðinn sem þá var kannski fegursti bletturinn í borginni. Hólavallakirkjugarður var bæði gróðursæll og friðsæll á þeim tíma,“ segir guðjón.
„Svo fór nú orð af því að stelpur sem voru að slá sér upp með sjó-liðum, sem komu oft hingað á þessum tíma, færu vestur á mela með þeim. fólk fór mikið út í Örfirisey. Þá var ekki bílfært þangað og gengið var eftir mjóum hafnar-garði til að komast í lautir og hóla sem þótti rómantískt. Þegar ég var á menntaskólaaldri fór fólk á bílum út í Örfirisey og síðan var bílunum lagt og fólk fór eitthvað í kelerí. Ég man alltaf eftir því að einn bekkjarbróðir minn í menntaskóla fékk lánaðan bíl pabba síns og við fórum stundum í gamni þangað. Þá slökkti hann á ljós-unum og ók hægt upp að bílunum sem fólk var að kela í og kveikti svo skyndilega á háu ljósunum. Þá varð auðvitað uppi fótur og fit í bílunum!“
guðjón segir að á þessum tíma hafi verið þrengra um fólk og stórar
fjölskyldur voru kannski saman í tveimur herbergjum. „Áður en fólk eignaðist bíla var ekki um annað að ræða en fara eitthvert.
Þetta er allt öðruvísi nú þegar fólk hefur eigin herbergi og nóg er af vistarverum. Í dag eru líka allir þessir barir og veitingahús. Það breyttist margt þegar bílarnir komu – um allan heim. bílarnir gáfu fólkinu frelsi. Þá fór fólk að fara út úr bænum, upp að Kolviðarhóli, að lögbergi eða geithálsi. gjarnan þar sem voru veitingastaðir.“ -hdm
Ást í Reykjavíkfyrr á tímum gengu pör gjarnan út fyrir miðbæ reykjavíkur til að fá næði.
Guðjón Friðriksson.
Á fyrri hluta 20. aldar var Suður-
gatan kölluð Ástar-braut og kirkju-
garðurinn var vinsæll staður hjá
elskendum.Ljósmyndir | Hari
Fallegur undirfatnaður er persónuleg og falleg ValentínusargjöfÍ versluninni Mary Carmen í lágmúla 7 er mikið úrval af nærfatnaði, korse-lettum, náttkjólum og fleiru.
ef kaupa á brjóstahaldara er sniðugt að kíkja á stærðarmiðana heima áður og fá svo hjálp frá starfsfólkinu í Mary Carmen.
Brjóstahaldari á mynd kostar 7.995 krónur.
Skemmtileg nýjungKanínueggið er vatnshelt sílikonegg með sjö mismunandi púls-stillingum. Það kostar 7.995 krónur og fæst í adam og evu, Kleppsvegi 150 og á akureyri.Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is
VALENTÍNUSARDAGURINN
FIMM RÉTTAÁSTAR-REMEDÍA
FRÁ KL. 17FORDRYKKURCodorníu Cava
FORRÉTTIR
TÚNFISKURLéttgrillaður túnfiskur, avókadómauk, engifer, sesamfræ, sýrð vatnsmelóna
BLEIKJA Á SALTBLOKK FRÁ HIMALAYAHægelduð bleikja, yuzu mayo, tru�u mayo, stökkt quinoa, epli
ÖND & VAFFLAHægeldað andalæri „pulled“, karamelluseruð epli, belgísk va�a, maltsósa
ÞÚ VELUR AÐALRÉTTINN ...
KOLAGRILLUÐ NAUTALUNDSveppir, pönnusteiktar kartöflur, bjór-HollandaiseEÐA
LAXKolagrillaður lax, bok choy, sveppir, barbecuesósa tónuð með íslensku, lífrænu svörtu tei
EFTIRRÉTTUR
SÚKKULAÐIRÓSSúkkulaðimousse, hindberjahlaup, Sacherbotn
7.990 kr.
Bókaðu borð562 [email protected]
Stefán Elí Stefánsson sigraði matreiðslukeppnina BragðFrakklands árið 2014, og hefur starfað á Domain deClairefontaine (1 Michelin stjörnur) í Frakklandi, Hibiscus(2 Michelin stjörnur) í London, verið gestakokkur á EdAuberg (3 Michelin stjörnur) og fékk heiðursverðlaun semútskriftarnemi ársins í Hótel og veitingaskóla Íslands.
Eigðu yndislega kvöldstund í Perlunni með fjögurra rétta seðlimatreiddum af margverðlaunuðum matreiðslumeisturum.
www.gudjono.is · Sími 511 1234
4ra rétta matseðlar
GjafabréfPerlunnarGóð gjöf viðöll tækifæri!
Einstakir4ra rétta matseðlar
Matreiðslumeistari
Stefán Elí
VEGANRauðrófu-carpaccio
með piparrot, furuhnetum,rauðrofum og fennikkusalati
Sveppaseyðimeð seljuro tar-ravioli
Hnetusteikmeð jarðskokkum, rauðka li
og klettasalati
Döðlukakameð hindberjasultu og sítronukrapi
KJÖT OG FISKURNauta-carpaccio
með parmesan, furuhnetum, rauðrofum,sveppum og klettasalati
HumarsúpaRjomaloguð með Madeiraog grilluðum humarho lum
Fiskur dagsinsferskasti hverju sinni utfærður
af matreiðslumonnum Perlunnar
~ eða ~
Andarbringameð andarlæri, eggaldinmauki, gulro tum,
kartoflum og larviðar-soðglja a
Mjólkursúkkulaðimúsmeð mandarinum og dokkum sukkulaðiís
Með hverjum 4ra rétta seðlifylgir frír fordrykkur — og rós fyrir
dömuna á Valentínusardag!
6 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar-14. febrúar 2016
Kynningar | Veislur AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | [email protected]
Unnið í samstarfi við Blómaval
Íslendingar eru farnir að tileinka sér Valentínusardaginn í auknum mæli og ófáir sem nýta hann til þess að gleðja ástina, ekki síst með blómum. Dagurinn er einn af stærstu dögum ársins í blómavali. að sögn Díönu allansdóttur, deildar-stjóra blómaskreytinga, höfðar dagurinn frekar til unga fólksins en þeirra sem eldri eru. Þó sé einn-ig nokkuð um að eldri kynslóðir noti þennan dag til þess að gleðja makann eða þann sem verið er að gera hosur sínar grænar fyrir. „Val-entínusardagurinn er líka alþjóðlegri en þessir dagar sem við erum með í okkar menningu þannig að við fáum líka mikið af fólki af öllu þjóðerni til okkar,“ bætir Díana við.
rauðar rósir eru lang vinsælastar þennan dag og almennt er rautt ríkjandi litur í skreytingum um þetta leyti í blómavali, enda rauður óumdeilanlega litur ástarinnar. „Þetta er eini dagurinn á árinu sem við þurfum að panta rósir að utan, íslenskir bændur ná ekki að anna eftirspurninni. Við reynum að eiga eins mikið af rauðum túlípönum og hægt er en unga fólkið virðist bara vilja rósirnar,“ segir Díana og bætir
við að salan á dögum eins konudeg-inum sé hins vegar töluvert ólík, þá seljist blandaðir vendir og túlipanar til jafns við rósirnar.
Díana segir vinsælt að fólk grípi einhverja litla gjöf með blómunum, til dæmis súkkulaði eða snyrtivörur og er úrval af slíku mikið í blóma-vali.
allar upplýsingar um úrvalið í blómavali má finna á www.bloma-val.is.
Þurfa að panta rósir að utanrauðar rósir ótvíræður sigurvegari Valentínusardagsins í blómavali.
7.790 kr.
• Túnfisk tataki með spínat purée, steiktum edamame baunum, ristuðu gulrótarmauki og ylliblómageli
• Humarvindill með chorizo, döðlum og chilisultu
• Surf´n turf rúlla með avókadó, humar tempura, nauta-carpaccio, teriyaki, spicy mayo og chili crumble
Nigiri• Túnfiskur með jalapeno mayo og kimchee• Lax með jalapeno mayo og wakame
• Nautalund með sellerýrótarmayo og kardimommugljáa
EFTIRRÉTTIR
• Grænt te og yuzu með græn-te mús, yuzu randalínu, yuzu sykurpúðum, græn-te „crumble“ og yuzu-sorbet
• Súkkulaði fudge með blönduðum ávöxtum, karamellusósu og mjólkursorbet
FORDRYKKUR – Glas af Codorníu Cava
Sushi SambaÞingholtsstræti 5 • 101 Reykjavík
sími 568 6600 • sushisamba.is
alentínusarmatseðill Sushi Samba
V
FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í DAG?
HAFÐU ÞÁ SAMBAND VIÐ [email protected]
| 7fréttatíminn | Helgin 12. febrúar-14. febrúar 2016
Kynningar | Veislur AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | [email protected]
Töfrar við rætur SnæfellsjökulsUnnið í samstarfi við Hótel Búðir
Við rætur Snæfellsjökuls standa Hótel búðir í öllu sínu veldi í um-hverfi sem ekki er hægt annað en að heillast af. andinn sem svífur þar yfir vötnum er einstaklega ljúfur og flestir sem eyða þar tíma koma aftur. Staðurinn til dæmis einstak-lega vinsæll þegar kemur að brúð-kaupum og þá gildir einu hvort um sé að ræða stórar veislur eða bara brúðhjónin. Það sem fáir vita er að um 80% brúðhjóna sem gifta sig á Hótel búðum eru erlendir ferða-menn sem koma til landsins gagn-gert til þess að upplifa einstakan anda hótelsins og umhverfisins. „Þá erum við að tala um stórar veislur þar sem brúðhjónin leigja allt hót-elið en segja má að það gisti hér ný-gift hjón nánast hverja nótt,“ segir Daði Jörgensson hótelstjóri. Hann segir hverja einustu helgi sum-arsins upppantaða fyrir brúðkaup í sumar og nú þegar séu komnar margar pantanir fyrir sumarið 2017 þannig að fólk í brúðkaupshug-leiðingum sem hefur augastað á Hóteli búðum þarf að hafa hraðar hendur. en ekki er alveg öll nótt úti enn með sumarið. „núna erum við hins að fara að ganga á eftir því að staðfesta og svona, stundum eru breyttar aðstæður hjá fólki og þá opnast eitthvað og þá eru það Íslendingarnir sem oft nýta sér það,“ segir Daði. Hann leggur áherslu á að Hótel búðir sé ekki stórt hótel og alltaf sé reynt að uppfylla kröfur gesta. ekki er bara vinsælt að halda brúðkaup þar heldur er einnig vel búinn ráðstefnusalur sem hentar vel fyrir 20-30 manns. „fyrirtækin hafa líka verið að koma hingað í hópefli og þeir hópar hafa fengið að dreifa úr sér hérna á hótelinu og hafa al-gerlega sína hentisemi,“ segir Daði.
gjafabréfin hafa fest sig í sessi á Hótel búðum og margir sem nýta sér gott úrval þeirra. eitt þeirra, sem nú er á sérstöku tilboðsverði, er Vetrarbréfið sem felur í sér gistingu fyrir tvo í tveggja manna herbergi og þriggja rétta málsverð „eftir
Hótel búðir hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir gæði og þjónustu.kenjum kokksins“. Þá er boðið upp á allt það besta og ferskasta hverju sinni úr eldhúsinu og gesta bíður óvæntur glaðningur á herberginu. nú kostar pakki af þessu tagi 34.900 krónur. Þetta bréf gildir frá október-desember og frá janúar-apríl.
gjafabréfin Dekurdagur eru með vinsælustu gjafabréfunum og gildir þá einu hvort fólk vill gleðja elskuna sína eða gefa einhverjum sem því þykir vænt um gjöf sem skilur eftir sig dásamlega minningar. „Þetta hefur verið mjög vinsæl gjöf hvort sem það er handa ástvini eða í
afmælisgjafir eða aðrar tækifæris-gjafir. fyrirtæki hafa einnig verið dugleg við að kaupa Dekurdaga sem gjöf fyrir starfsmenn sína við sér-stök tilefni og það hefur vakið mikla lukku,“ segir Daði.
Stærsta ferðatímarit heims, hið virta Condé nast, kaus Hótel búðir sem eitt af þrjátíu bestu hótelum norður-evrópu árin 2014 og 2015 og nú árið 2016 var hótelið valið eitt af 100 bestu hótelum í heimi. „Þetta eru mjög stór verðlaun í þessum heimi svo þetta er mikill heiður, “ segir Daði.
Hótel Búðir er vinsæll staður fyrir veislur. Búðir henta vel fyrir brúðkaupsveislur, ráð-stefnur og algengt er að fyrirtæki komi með starfsfólk þangað í hópefli.