duty free brochure gudrun sigridur

2
Pöntunarnúmer MJÖG MIKILVÆGT er að koma með pöntunarnúmerið þitt þegar þú sækir vörurnar þínar. Það eru þrjár leiðir sem þú getur gert þetta: 1) Prentað út tölvupóstinn sem þú fékkst sendan til að taka með þér í Fríhöfnina 2) Sýnt starfsmanni tölvupóstinn í símanum þínum eða 3) Sýnt starfsmanni sms sendingu ef þú hakaðir við að fá staðfestingu í sms-i. Ef það kemur fyrir að þú færð ekki pöntunarstaðfestingu senda í töluvupósti er vissara að hringja í okkur síma 425-6000 á milli 8-16, í síma 425-0414 ef það er utan þess tíma eða senda okkur tölvupóst .á netfangið [email protected] Panta & Sækja Pantaðu hjá okkur á netinu og vörurnar bíða þín tilbúnar þegar þú ferð út eða kemur heim! Ath. Ef vara sem þú pantaðir er ekki á pöntunarstaðfestingunni sem er á pokanum þínum þegar þú sækir hann þá hefur hún ekki verið til þegar pöntunin var tekin saman. Við mælumst hinsvegar til þess að þú spyrjir starfsmann um hvort varan sé komin aftur í sölu. Ath. Verð vöru miðast við verð pöntunardags.

Upload: gettunu-gettunu

Post on 28-Mar-2016

221 views

Category:

Documents


7 download

DESCRIPTION

Duty free brochure in Iceland.

TRANSCRIPT

Page 1: Duty free Brochure Gudrun Sigridur

Pöntunarnúmer

MJÖG MIKILVÆGT er að koma með pöntunarnúmerið þitt þegar þú sækir vörurnar þínar. Það eru þrjár leiðir sem þú getur gert þetta:1) Prentað út tölvupóstinn sem þú fékkst sendan til að taka með þér í Fríhöfnina2) Sýnt starfsmanni tölvupóstinn í símanum þínum eða3) Sýnt starfsmanni sms sendingu ef þú hakaðir við að fá staðfestingu í sms-i. Ef það kemur fyrir að þú færð ekki pöntunarstaðfestingu senda í töluvupósti er vissara að hringja í okkur síma 425-6000 á milli 8-16, í síma 425-0414 ef það er utan þess tíma eða senda okkur tölvupóst .á netfangið [email protected]

Panta &Sækja

Pantaðu hjá okkur á netinu og vörurnar bíða þín tilbúnar þegar þú ferð út eða kemur heim!

Ath. Ef vara sem þú pantaðir erekki á pöntunarstaðfestingunni sem er á pokanum þínum þegar þú sækir hann þá hefur hún ekki verið til þegar pöntunin var tekin saman. Við mælumst hinsvegar til þess að þú spyrjir starfsmann um hvort varan sé komin aftur í sölu. Ath. Verð vöru miðast við verð pöntunardags.

Page 2: Duty free Brochure Gudrun Sigridur

Pöntunarform

Hér er mjög mikilvægt að velja hvar þú ætlar að sækja vörurnar þínar, um tvennt er að velja: • Brottfararverslun • Komuverslun

Þegar þú hefur valið verslun þarf að fylla út restina af upplýsingunum. Vinsamlega fyllið út í alla reiti pöntunarformsins til að tryggja að pöntunin sé rétt. Ath. Þú sérð vörurnar sem þú ætlar að panta hægra megin við pöntunarformið. Þannig að hér er hægt að bæta við magni eða hætta við vöru áður en pöntun er send. Þegar þú hefur fyllt út í alla reiti pöntunarformsins og ert fullviss um að allt sé rétt, þá er smellt áhnappinn „Panta vörur“. Nú er pöntunin þín farin til okkar og staðfesting og pöntunarnúmer sendist með tölvupósti til þín.

Velkomin

Nú er hægt að panta vörur af heimasíðu Fríhafnarinnar. Þær bíða þín tilbúnar í poka þegar þú mætir annað hvort í brottfarar- eða komuverslun Fríhafnarinnar. Panta verður vörurnar með að lágmarki sólarhrings fyrirvara. Þú greiðir fyrir vörurnar þegar þú sækir þær.

Ath. Ekki er mælt með því að panta vörur með meiri

en viku fyrirvara.

Ferlið:

Þú velur þær vörur sem þú vilt panta og setur í körfu. Það er gert með því að smella á hnappinn „Panta“ sem er við hverja vöru. Þegar þú ert tilbúin að senda pöntunina þá smellir þú á körfuna efst hægra megin og velur „Skoða körfu“. Hér sérðu lista yfi r þær vörur sem þú hefur pantað og getur valið annað hvort að ganga frá pöntun eða að halda áfram að versla.