einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir í melaskóla

16
Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir í Melaskóla Ingvar Sigurgeirsson – Melaskóli mars 2007

Upload: orly

Post on 20-Jan-2016

56 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir í Melaskóla. Ingvar Sigurgeirsson – Melaskóli mars 2007. Hvaðan kemur einstaklingsmiðað nám?. Stefnumörkun fræðsluyfirvalda í Reykjavík: - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir í Melaskóla

Ingvar Sigurgeirsson – Melaskóli mars 2007

Page 2: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Hvaðan kemur einstaklingsmiðað nám?

Stefnumörkun fræðsluyfirvalda í Reykjavík:

... á næstu árum verði unnið að þróun kennsluhátta þannig að skipulag námsins verði einstaklingsmiðaðra en nú er og aukin áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti, s.s. með auknu vali, samkennslu árganga, aukunni hóp- og þemavinnu og nýtingu netsins ... (Starfsáætlun fræðslumála í Reykjavík 2004)

Sjá m.a. í bæklingi Gerðar G. Óskars-dóttur (2003): Skólastarf á nýrri öld.

Page 3: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Gamalt vín á nýjum belg

Hugmyndir um einstaklingsmiðun hafa lengi verið uppi og gengið undir ýmsum nöfnum:

– Opinn skóli, opin skólastofa, sveigjanlegir kennsluhættir, virkir kennsluhættir, nemendamiðað nám, námsaðlögun, námsaðgreining. Fleiri skyld hugtök: Samkennsla, fjölgreindakennsla, fjölmenningarleg kennsla, skóli fyrir alla

– Ensk heiti: T.d. individualized instruction, differentiation, open school, open classroom, responsive learning, personalized instruction ...

Page 4: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Rök fyrir einstaklingsmiðuðu námi hér á landi má sækja í löggjöf og námskrá:

Lög um grunnskóla og Aðalnámskrá grunnskóla mæla fyrir um að skólum sé skylt að leitast við að koma sem best til móts við þarfir hvers og eins

Slík ákvæði hefur verið að finna í lögum og námskrám fá því er grunnskólalög voru fyrst sett árið 1974

Page 5: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Markmið grunnskólans 2. grein Hlutverk ... er að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Starfshættir ... skulu því mótast af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á kjörum fólks og umhverfi, á íslensku þjóðfélagi, sögu þess og sérkennum og á skyldum einstaklingsins við samfélagið. Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins (leturbr. mín). Grunnskólinn skal veita nemendum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni og temja sér vinnubrögð sem stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal því leggja grundvöll að sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra.

Page 6: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Aðalnámskrá grunnskóla 1999

• Það er skylda hvers skóla að laga námið sem best að nemendum hverju sinni. Nemendur eiga rétt að viðfangsefnum sem henta námsgetu þeirra og hæfni. (Aðalnámskrá grunnskóla. 2006:11)

• Val á kennsluaðferðum og skipulag skólastarfs verður að miðast við þá skyldu grunnskóla að sjá hverjum nemanda fyrir bestu tækifærum til náms og þroska. Kennslan verður að taka mið af þörfum og reynslu einstakra nemenda og efla með nemendum námfýsi og vinnugleði. (Aðalnámskrá grunnskóla. 2006:15)

Page 7: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Einstaklingsmiðað nám merkir oftast að kennarar reyni, eftir því sem unnt er, að koma til móts við hvern nemanda með

hliðsjón af ...

Getu, kunnáttu og aðstæðum hvers og eins

Hæfileikum ÁhugaHvernig nemendum hentar

best að læra (námstíl þeirra)Framtíðaráformum

Page 8: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Rök fyrir breyttum kennsluháttum

• Samfélagsbreytingar

• Hnattvæðing

• Ör tækniþróun

• Þróun miðla

• Nýjar (?) kröfur í atvinnulífi

• Nemendahópurinn verður stöðugt fjölbreyttari (skóli fyrir alla, fjölmenningarsamfélagið)

• Kennslufræðileg rök

Page 9: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Hvaða markmið skipta mestu?

• Tjáning (ritfærni, munnleg tjáning)• Samstarfshæfni• Þekking – eða hæfni í þekkingarleit -

upplýsingalæsi• Gagnrýnin hugsun• Sköpun• Frumkvæði, áræðni• Dugnaður

Hversu þungt eiga þessi markmið að vega í skólastarfi?

Page 10: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Einstaklingsmiðun – dæmi um áherslur• Nemendur taka aukna ábyrgð á eigin námi (námsáætlanir,

námsamningar, sjálfstæð viðfangsefni, þátttaka í mati)• Sveigjanlegir námshópar, aldursblöndun, samvinnunám• Leitast er við að koma til móts við áhuga nemenda (val,

áhugahópar, frjáls verkefni)• Áhersla á að nemendur séu virkir í náminu• Tjáning, samræða• Unnið með fjölbreytta miðla• Skapandi viðfangsefni, listiðkun• Hugsun, skilningur, lausnaleit• Hvetjandi, hlýlegt námsumhverfi• Markvisst samstarf við foreldra• Öflug tengsl við umhverfið

Page 11: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Melaskóli• Móðurskóli í náttúrufræði• Forystuskóli í tölvu- og

upplýsingatækni• Leiðandi í stærðfræðikennslu• Þróunarverkefni: Fjölbreyttir

kennsluhættir • Samvinnuverkefni kennara um

fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám:– Kennarar skipuðu sér í teymi og

unnu með nemendum fjölbreytt verkefni af ýmsu tagi

Page 12: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Verkefnin í Melaskóla1. bekkur: Stærðfræðihringekja – stöðvaverkefni

2. bekkur: Þróunarverkefni í stærðfræði (þrautalausnir, samvinnunám o.fl.)

3. bekkur: Risaeðlur: Söguaðferðarverkefni (með áherslu á fjölgreindakenninguna)

4. bekkur: Ísland áður fyrr: Samþætt verkefni með áherslu á fjölbreyttar kennsluaðferðir

5. bekkur: Landnám Íslands: Söguaðferð – með skilum á vef

6. bekkur: Hvalir: Kennsluáætlun í anda fjölgreindakenningar Gardners

7. bekkur: Vættir við sjó og vötn (þjóðsöguverkefni)

8. Sérkennsluteymi: Verkmappa með leiðbeiningum til starfsfólks um úrræði vegna nemenda með sérþarfir

Page 13: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Áhersla var m.a. lögð á

• Samþættingu námsgreina• Hópvinnu• Skapandi starf

(leikræn tjáning, ritun, málun,líkön, )

• Vettvangsferðir• Tölvuvinnu (upplýsingaleit,

vefsíðugerð)• Tjáningu, flutning• Lausnaleit (mælingar, heimildavinna,

rannsóknir)

Page 14: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Dæmi um mat kennaraVerkefnið tókst vel í alla staði. Nemendur fengu fjölbreytt viðfangsefni og

tileinkuði sér nýja þekkingu.Þau urðu meðvitaðri um lífshætti fólks um aldamótin 1900 og jafnvel orðfæri þess, því tókum við eftir í frásögnum þeirra. Það er óhætt að segja að allir hafi notið sín í þeim fjölbreyttu verkefnum sem boðið var uppá. Hópvinna efldist og okkur fannst tillitsemi í garð hvers annars aukast.  Verkefnið var fjölbreytt

og bauð uppá líflega kennsluhætti. Í okkar huga skiptir mjög miklu máli að ná til nemenda með kennslunni, og að

haft verði í huga að nám er leikur og leikur er nám. Að nemendur læri að koma fram og njóti þess að tjá sig á skapandi hátt er mikilvægur hlekkur í námi barna. Eflum hlustun nemenda, tal og tjáningu,

sáum frjókorni sköpunar; sáum og uppskerum.  Með þessu verkefni var einkar auðvelt að sá frjókorni sköpunnar, börnin nutu sín í öllum þeim fjölbreyttu

verkefnum sem þau fengust við.Börnin erfa landið og hjá þeim liggur framtíðin; við getum ekki gefið þeim

framtíðina en við getum gefið þeim núið og kennt þeim eins vel og við getum til þess að framtíðin verði þeim björt og gjöful.

Page 15: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Heimasíða verkefnisins

http://www.melaskoli.is/fjolbreyttirkennsluh/fjolbreyttirkennsluhaettir.htm

Fjölbreyttir kennsluhættir: Þróunarverkefni skólaárið 2004 – 2005

Page 16: Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir  kennsluhættir í Melaskóla

Auðvelt er að finna heimildir um einstaklingsmiðað nám á Netinu:

http://starfsfolk.khi.is/ingvar/

Kennsluaðferðavefurinn

Skref í átt til einstaklingsmiðaðs náms

Hvað er einstaklingsmiðað

nám?

Einstaklingsmiðað nám í grunnskólum

Reykjavíkur