eystrahorn 21. tbl. 2012

6
Fimmtudagur 24. maí 2012 www.eystrahorn.is Eystrahorn 21. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is Að „kunna“ að læra Að ná góðum árangri felst nú helst í því að „kunna“ að læra. Vita hvernig hentar manni best að læra fyrir próf og gera verkefni og svoleiðis. Gera öll verkefni vel og læra svo bara vel fyrir prófin. Mikilvægt er að vera ekki sífellt að vorkenna sjálfum sér þó að þetta sé leiðinlegt. Heldur líta bara á þetta þannig að þetta sé bara eitthvað sem þarf að gera. Ég byrjaði snemma að vinna við bústörfin og þá lærði maður að það er margt sem þarf að gera sem ekki er skemmtilegt og þannig er best að líta á námið, enda er fátt leiðinlegra en að gera heimaverkefni og læra fyrir próf. Já, ég fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í þýsku, raungreinum og stærðfræði. Góður skóli Skólinn er góður. Öll aðstaða er til fyrirmyndar og stór kostur skólans er stærð hans (fámennur skóli) og hversu persónulegt allt er. Ef mann vantar hjálp þá getur maður bara labbað inn á skrifstofu hjá viðkomandi kennara og talað við hann sem er voða einfalt og þægilegt. Einnig hefur skólinn yfir að búa góðum kennurum sem er náttúrulega nauðsynlegt, en hann hefur einnig þurft að sjá á eftir nokkrum góðum kennurum. Kraftur í félagslífinu Í fyrravor var tekið til við að blása krafti í félagslíf skólans sem lá þá eiginlega niðri. Nemendur voru virkjaðir til að taka þátt í félagslífinu og það hefur tekist rosalega vel og lofar góðu í framtíðinni eða svo lengi sem nemendur taka þátt í félagslífinu. Óráðin framtíð Ég er nú ekki búinn að ákveða alveg hvað tekur við. Til að byrja með er það útskriftarferð til Benidorm. Svo fer maður líklegast í háskóla annað hvort nú í haust eða næsta haust og er ég þá mikið að spá í að fara annað hvort í jarðfræði eða jarðeðlisfræði. Sigurði fylgja bestu framtíðaróskir. Hátíðleg útskrift Það er alltaf einstaklega hátíðleg athöfn þegar Framhaldsskólinn útskrifar stúdenta og annað námsfólk, glæsilegan hóp af efnilegum ungmennum. Við þetta tækifæri fyllist ritstjóri alltaf stolti og jafnframt bjartsýni á framtíðina. Á laugardaginn sl. fór fram fjölmennasta útskrift frá skólanum til þessa. Alls voru útskrifaðir 22 stúdentar, einn vélstjóri af A stigi og einn af B stigi, sjö skipstjórar af A stigi, einn húsasmiður og einn leiðbeinandi í leikskóla. Þar að auki fengu 11 nemendur sem hafa stundað nám í fjallamennsku viðurkenningu. Dúx skólans að þessu sinni er Sigurður Ragnarsson í Akurnesi. Meðaleinkunn Sigurðar er 9,66 og er þetta hæsta einkunn á stúdentsprófi í sögu skólans. Blaðamaður hitti Sigurð eftir útskriftina og spurði hann m.a. um lærdóminn, skólann og hvað taki við eftir þennan áfanga. Sigurður Ragnarsson dúx 29 dagar í Humarhátíð á Höfn

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 28-Mar-2016

231 views

Category:

Documents


8 download

DESCRIPTION

Eystrahorn 21. tbl. 2012

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 21. tbl. 2012

Fimmtudagur 24. maí 2012 www.eystrahorn.is

Eystrahorn21. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is

Að „kunna“ að læraAð ná góðum árangri felst nú helst í því að „kunna“ að læra. Vita hvernig hentar manni best að læra fyrir próf og gera verkefni og svoleiðis. Gera öll verkefni vel og læra svo bara vel fyrir prófin. Mikilvægt er að vera ekki sífellt að vorkenna sjálfum sér þó að þetta sé leiðinlegt. Heldur líta bara á þetta þannig að þetta sé bara eitthvað sem þarf að gera. Ég byrjaði snemma að vinna við bústörfin og þá lærði maður að það er margt sem þarf að gera sem ekki er skemmtilegt og þannig er best að líta á námið, enda er fátt leiðinlegra en að gera heimaverkefni og læra fyrir próf. Já, ég fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í þýsku, raungreinum og stærðfræði.

Góður skóliSkólinn er góður. Öll aðstaða er til fyrirmyndar og stór kostur skólans er stærð hans (fámennur skóli) og hversu persónulegt allt er. Ef mann vantar hjálp þá getur maður bara labbað inn á skrifstofu

hjá viðkomandi kennara og talað við hann sem er voða einfalt og þægilegt. Einnig hefur skólinn yfir að búa góðum kennurum sem er náttúrulega nauðsynlegt, en hann hefur einnig þurft að sjá á eftir nokkrum góðum kennurum.

Kraftur í félagslífinuÍ fyrravor var tekið til við að blása krafti í félagslíf skólans sem lá þá eiginlega niðri. Nemendur voru virkjaðir til að taka þátt í félagslífinu og það hefur tekist rosalega vel og lofar góðu í framtíðinni eða svo lengi sem nemendur taka þátt í félagslífinu.

Óráðin framtíðÉg er nú ekki búinn að ákveða alveg hvað tekur við. Til að byrja með er það útskriftarferð til Benidorm. Svo fer maður líklegast í háskóla annað hvort nú í haust eða næsta haust og er ég þá mikið að spá í að fara annað hvort í jarðfræði eða jarðeðlisfræði. Sigurði fylgja bestu framtíðaróskir.

Hátíðleg útskriftÞað er alltaf einstaklega hátíðleg athöfn þegar Framhaldsskólinn útskrifar stúdenta og annað námsfólk, glæsilegan hóp af efnilegum ungmennum. Við þetta tækifæri fyllist ritstjóri alltaf stolti og jafnframt bjartsýni á framtíðina. Á laugardaginn sl. fór fram fjölmennasta útskrift frá skólanum til þessa. Alls voru útskrifaðir 22 stúdentar, einn vélstjóri af A stigi og einn af B stigi, sjö skipstjórar af A stigi, einn húsasmiður og einn leiðbeinandi í leikskóla. Þar að auki fengu 11 nemendur sem hafa stundað nám í fjallamennsku viðurkenningu. Dúx skólans að þessu sinni er Sigurður Ragnarsson í Akurnesi. Meðaleinkunn Sigurðar er 9,66 og er þetta hæsta einkunn á stúdentsprófi í sögu skólans. Blaðamaður hitti Sigurð eftir útskriftina og spurði hann m.a. um lærdóminn, skólann og hvað taki við eftir þennan áfanga.

Sigurður Ragnarsson dúx

29 dagar í Humarhátíð á Höfn

Page 2: Eystrahorn 21. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 24. maí 2012

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Húsgagnaval

Úrval af fallegum útskriftar- og fermingargjöfum

Verið velkomin

Rúm og dýnur í öllum stærðum og gerðum

Til söluLítið notað 21 gíra stelpuhjól fyrir ca. 11 - 15 ára. Mjög góð dekk. Selst ódýrt.Upplýsingar í síma 862-1675 eftir hádegi.

Hafnarkirkja sunnudaginn 27. maí

hvítasunnudag Messa kl. 11:00 - ferming

Sóknarprestur

Garðplöntur, gróðurmold, garðáburður, kalk, þurrkaður hænsnaskítur, pottar, ker o.fl.

opnunartilboð30% afsláttur af ilmreyni, úlfareyni og koparreyni

Gróðrarstöðin DilksnesiOpið virka daga kl. 13:00 - 18:00

laugardaga og annan í hvítasunnu kl. 11:00 - 15:00Sími 849-1920

allar plöntur eru ræktaðar

í Dilksnesi

Gleðigjafar

Kór eldri Hornfirðinga syngur í Hofgarði Öræfum kl. 16:00 28. maí

annan í hvítasunnu.

Allir velkomnir

Menningarmiðstöð Hornafjarðar opnar nýja sýningu í Listasafni Hornafjarðar föstudaginn 25. maí. Sýningin er sumarsýning á verkum Svavars Guðnasonar listmálara og mun standa til 28. september. Á sýningunni gefur að líta hluta þeirra málverka sem Ásta Eiríksdóttir, kona Svavars færði Sveitarfélaginu Hornafirði að gjöf. Sýningin ber heitið Til Ástu minnar en Ásta stóð alltaf dyggilega við bakið á manni sínum. Sýningin er opin alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30. Aðgangur að safninu er ókeypis.

Sumarsýning á verkum Svavars

SSalon SúaFram að sjómannadegi

fylgir djúpnæring öllum litunum

10% afsláttur af klippingum til sjómanna

Hárgreiðslur á kr. 3.500 laugardaginn 2. júní

Pantið tímanlega í síma 478-2221

Bílstjóra með meirapróf og lyftararéttindi vantar til starfa í sumar hjá Eimskip á

Höfn, þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Upplýsingar í síma 894-4107 Heimir

Page 3: Eystrahorn 21. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 24. maí 2012

Dagana 30. maí til 1. júní verður boðið uppá golfkennslu á Silfurnesvelli. Kennari verður Andrea Ásgrímsdóttir, PGA kennari. Um er að ræða fjögur námskeið og hægt verður að fara á fleiri en eitt. Hvert námskeið er 1 klst. á dag þessa þrjá daga. Gert er ráð fyrir að á hverju námskeiði séu 3-5 manns.

Lýsing á námskeiðunum:

Sveiflunámskeið

Farið verður yfir alla þætti golfsveiflunnar. Gott fyrir þá sem hafa áhuga á að bæta sveifluna sína og skilja betur hvaða mismunandi aðferðum er hægt að beita við mismunandi aðstæður með mismunandi höggum.Tekið verður myndband af nemendum og farið yfir í síðasta tímanum.

Stutta spilið

Farið verður yfir grunnatriðin í stutta spilinu þ.e. púttunum og stuttu höggunum í kringum flötina. Lögð verður áhersla á að nota mismunandi kylfur sem þjóna ólíkum tilgangi og reynt að víkka út sjóndeildarhring nemenda hvað það varðar að nota ekki alltaf sömu kylfurnar í vippunum.

Sitt lítið af hverju

Í fyrsta tímanum verður farið yfir sveifluna, öðrum tímanum í pútt og vipp og í þeim þriðja upprifjun. Reynt verður að stikla á stóru um helstu atriði í hverju og einu.

Byrjendanámskeið

Gott fyrir byrjendur og einnig þá sem vilja skerpa á undirstöðu-atriðunum. Farið verður yfir grunnatriði golfsveiflunnar, s.s. grip, líkamsstöðu, sveifluferil og aðeins í stutta spilið.

Einkakennsla og barnanámskeið

Einnig verður boðið upp á barna- og unglinganámskeið ef áhugi er fyrir því.Einkakennsla er líka í boði og geta tveir komið saman í hana.30 mínútur kosta 4.000 kr.60 mínútur kosta 8.000 kr.Ofangreint er beinagrind en allar séróskir verða skoðaðar og breytingar verða í takt við áhuga og aðstæður.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Halldóru í síma: 897-5690

Golfkennsla

ATVINNAStarfsmann vantar í fullt starf

hjá Olís Höfn • Vaktavinna

Þarf að vera 18 ára eða eldri

Uplýsingar gefur Haukur í síma 840-1718

Sigur í fyrsta leikMeistaraflokkur kvenna byrjar vel og sigraði Fjölni 2 – 1 í Reykjavík. Mörkin skorðuðu Íris Ösp Aðalsteinsdóttir og María Selma Haseta en nú í vor var María einmitt valin í unglingalandslið stúlkna og lék með því. Fyrsti heimaleikur er gegn Þrótti Reykjavík nk. mánudag 28. maí kl. 14:00.

Jafntefli í fyrsta leikÞað gekk á ýmsu hjá meistaraflokki karla á undirbúningstímabilinu og bikarleikur gegn Fjarðabyggð tapaðist 4 – 2. Það voru aftur á móti góð úrslit að gera jafntefli á útivelli gegn sterku liði Árborgar. Leikurinn endaði 1 – 1 og markið skoraði nýr leikmaður Anel Beslija. Næsti leikur á laugardaginn gegn Ægi og fer fram í Þorlákshöfn. Fyrsti heimaleikur verður gegn Létti 2. júní.

Fótboltinn fer vel af stað

María Selma með landsliðinu

SINdrAVellIr1. deild kvenna

Sindri - Þróttur reykjavíkMánudaginn 28. maí kl. 14:00

Allir á völlinnStyðjum

stúlkurnar okkar

Stuðningsfólk - munið ársmiðann

Foreldrar eru hvattir til að mæta á æfingar og sýna

þátttöku barna sinna áhuga

Knattspyrnudeild Sindra

Golfklúbbur Hornafjarðar

Page 4: Eystrahorn 21. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 24. maí 2012

SjómannadagSráð auglýSir

Skráning í kappróður hjá jóhönnu í síma 868-5313

Forsala aðgöngumiða á Sjómannadagsball

dagana 29. og 30. maí kl. 18:00 - 21:00

á Víkinni Sími 478-2300

Innritun í Grunnskóla Hornafjarðar fyrir skólaárið 2012 – 2013

Innritun nýrra nemenda í Grunnskóla Hornafjarðar fyrir skólaárðið 2012 – 2013 fer fram í skólanum 23. – 25. og 29. – 31. maí nk. Foreldrar og forráðamenn barna sem fædd eru árið 2006 eru beðnir um að hringja í skólann í síma 470 8400 eða koma í Hafnarskóla og innrita börn sín hjá skólaritara.

Ekki verður vorskóli með sama sniði og verið hefur undanfarin ár þar sem verðandi nemendur hafa verið í mánaðarlegum skólaheimsóknum síðan í janúar.

Skólastjórnendur

AtvinnaAuglýst er eftir sundlaugarverði við Íþróttamiðstöð Hornafjarðar.

Um er að ræða hlutastarf til framtíðar. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf strax.Starfstími er í samræmi við vaktatöflu.Helstu verkefni eru vaktir, þrif og almennt eftirlit með húsinu. Æskilegt að umsækjandi hafi sótt námskeið í skyndihjálp og björgun.Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.Frekari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Ingi Valgeirsson, sími 899-1968, [email protected] Umsóknarfrestur er til 31. maí 2012 og skal stíla umsókn á:Gunnar Ingi Valgeirsson Forstöðumaður Íþróttamannvirkja Hornafjarðar Hafnarbraut 27 780 Höfn

Samkór Hornafjarðar er um þessar mundir að ljúka vetrarstarfinu. Síðasta æfing starfsárins verður þriðjudaginn 29. maí. Hún hefst kl. 20:00 og er öllum opin. Þar gefst fólki tækifæri á að kynna sér starfsemi kórsins og hvernig æfingar hans ganga fyrir sig. Kórinn hefur starfað í þessari mynd frá árinu 1998. Á þessum árum hefur verið farið í fimm utanlandsferðir og nokkrar ferðir innanlands. Í kórnum eru nú 33 félagar. Kórinn kemur að jafnaði fram á tveimur aðventukvöldum í desember og heldur vortónleika. Auk þess gengst hann fyrir einu til tveimur skemmtikvöldum á ári þar sem tekin eru fyrir ákveðin viðfangsefni hverju sinni og gjarnan slegið á létta strengi. Þeir kórfélagar sem þess óska fá raddþjálfun hvort sem er í einkatímum eða hóptímum og er þar gengið út frá því að upplifa upptök hljóms í eigin líkama. Ef einhverjir vilja fá nánari upplýsingar er þeim bent á að hafa samband við söngstjórann, Kristínu Jóhannesdóttur, í síma 860 2814. Það eru allir velkomnir á æfingu í Hafnarkirkju þriðjudaginn 29. maí kl. 20:00 – 21:00. Boðið verður upp á veitingar.

Langar þig í kór?

Page 5: Eystrahorn 21. tbl. 2012

ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI SÍÐAN 1956

FIMMTUDAGINN 24. MAÍOPIÐ TIL 21:00 UM LAND ALLT

*GILDIR EKKI AF VÖRUM Í TIMBURSÖLU *GILDIR EKKI AF WEBER GRILLUM

ALLAR VÖRUR*

TAXFREE

Tax free gildir ekki af vörum merktum „Lægsta lága ver› Húsasmi›junnar“ enda er fla› lægsta ver› sem vi› bjó›um á hverjum tíma.Tax free tilbo› jafngildir 20,32% afslætti. A› sjálfsög›u stendur Húsasmi›jan skil á vir›isaukaskatti til ríkissjó›s.

LÆGSTALÁGA VERÐ HÚSASMIÐJUNNAR

HLUTI AF BYGMA

RISA

Page 6: Eystrahorn 21. tbl. 2012

AFL

Frá og með 1. júní n.k. mun AFL Starfsgreinafélag taka yfir þjónustu við þá atvinnuleitendur á Austurlandi sem eru félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ.

Við höfum áhuga á að nýta alla möguleika sem í boði eru til að auka þjónustu við atvinnuleitendur og sporna þannig gegn atvinnuleysi.

Nánari upplýsinar á www.asa.is/atvinna

Ráða fólk í vinnu

Gera starfsþjálfunarsamning

Hrinda af stað átaksverkefni

Fá fólk í vinnustaðaþjálfun

Fyrirtæki, stofnanir og félög á Austurlandi sem hafa áhuga á að:

Ha�ð samband:

Stöndum vörð um velferð

Stuðlum að því, að allir hafi atvinnu við sitt hæfi.

Ka� á könnunnispjöllum saman