eystrahorn 39. tbl. 2011

8
Fimmtudagur 4. nóvember 2011 www.eystrahorn.is Eystrahorn 39. tbl. 29. árgangur www.eystrahorn.is Sunnudaginn 23. október lögðu nokkrir nemendur FAS, ásamt félagsmálafulltrúa skólans, land undir fót. Farið var í hringferð um landið og skoðaðir framhaldsskólar sem svipaðir eru FAS að stærð. Ferðalagið var hluti af verkefninu Sjálfbært og lýðræðislegt félagslíf í FAS en það snýst um, eins og nafnið gefur til kynna, að koma á sjálfbæru og lýðræðislegu félagslífi nemenda. Hópurinn sem hélt í hringferðina saman stóð af fjórum nemendum auk Söndru Bjargar félagsmálafulltrúa, en þeir voru Sigfinnur forseti nemendafélagsins, Símon Rafn varaforseti nemendafélagsins, Róslín Alma fulltrúi ljósmynda- og leiklistarklúbbs og Sólveig Valgerður fulltrúi heilsu- og skemmtanaklúbbs. Eins og fram hefur komið var lagt af stað á sunnudegi og gist fyrstu nóttina á Akureyri. Á mánudagsmorgni var haldið yfir til Ólafsfjarðar og Menntaskólinn á Tröllaskaga skoðaður. Sá skóli hefur einungis verið starfræktur í tvö ár og hefur þess vegna unnið samkvæmt nýrri námskrá framhaldsskólanna frá upphafi. Gefur sú námskrá aukna möguleika á fjölbreyttu námi og má nefna sem dæmi að hafi nemendur áhuga á að þróa námskeið eftir kúnstarinnar reglum þá er það mögulegt. Eitt slíkt dæmi er áfangi MTR í kvikmyndagerð en nemendur fundu námsefni og kennara og lögðu fyrir skólameistara sem samþykkti námskeiðið. Kennsla í kvikmyndagerð mun því standa nemendum til boða á næsta skólaári. Að loknum hádegisverði með nemendum Menntaskólans á Tröllaskaga var haldið yfir á Sauðárkrók og Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra heimsóttur. Þar voru nemendur í óða önn að skipuleggja svokallað Menningarkvöld en þar er nemendum jafnt og öðrum íbúum á Sauðárkróki boðið að taka þátt í skemmtidagskrá sem inniheldur að þessu sinni meðal annars keppni í Body-paint, drag-show, tónlistaratriði frá hljómsveitinni Úlfur Úlfur og uppistand Steinda jr. og Bent. Ræddu stjórnir nemendafélaganna saman og voru umræðurnar um margt áhugaverðar og lærdómsríkar að mati FAS nemenda. Eftir stutt stopp í Skaffó og Ólafshúsi lá leiðin á Snæfellsnesið þar sem hópurinn gisti seinni nóttina. Þriðjudagurinn hófst á heimsókn í Fjölbrautarskóla Snæfellinga þar sem hópurinn fékk góða kynningu á skólanum sem og nemendafélagi. Áhugavert var að kynnast fyrirkomulagi kennslu í skólanum en þar eru einungis þrjár eiginlegar kennslustofur, annars er kennt í opnum rýmum þar sem allt að þrír ólíkir áfangar eru kenndir í einu og sama rýminu. Nemendur spjölluðu einnig vel og lengi um félagslíf skólanna og eins og í hinum skólunum voru umræðurnar áhugaverðar og skemmtilegar. Um hádegisbilið lá leiðin aftur heim í Hornafjörðinn. Hópurinn kom því sáttur og sæll heim seint á þriðjudagskvöldi eftir stutt stopp í Borgarnesi, Reykjavík og á Selfossi. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og var bæði lærdómsrík og skemmtileg. Nemendur FAS voru jákvæðir og hressir alla ferðina og voru skólanum svo sannarlega til sóma. Sandra Björg Stefánsdóttir, félagsmálafulltrúi FAS Nemendafélag FAS á ferðinni Vegna frétta um hreindýr á Mýrum í Hornafirði vill bæjarráð Hornfjarðar koma því á framfæri að ríkur vilji er til þess að leita allra leiða til að tryggja velferð dýranna en jafnframt að takmarka eins og kostur er tjón bænda vegna ágangs þeirra. Sú girðing sem hreindýr hafa flækst í nú í haust er frá árinu 2007 og hefur gengið úr lagi vegna ágangs þeirra. Í landi Flateyjar á Mýrum og nærliggjandi svæðum voru að staðaldri 20 – 30 dýr í sumar og á haustdögum um 200 dýr. Það er þekkt að girðingar stöðva ekki dýrin og þau valda oft verulegu tjóni á girðingum og ræktarlandi. Kostnaður sem af þessu hlýst lendir óbættur á landeigendum. Áréttað er að bændur fjarlægi ónýtar girðingar sem ekki gegna lengur sínu hlutverki og að gengið verði þannig frá öðrum girðingum að þær valdi hreindýrum sem minnstri hættu. Hreindýr og girðingar Ljósmynd: Þorri

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 10-Mar-2016

275 views

Category:

Documents


5 download

DESCRIPTION

Eystrahorn 39. tbl. 2011

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 39. tbl. 2011

Fimmtudagur 4. nóvember 2011 www.eystrahorn.is

Eystrahorn39. tbl. 29. árgangur www.eystrahorn.is

Sunnudaginn 23. október lögðu nokkrir nemendur FAS, ásamt félagsmálafulltrúa skólans, land undir fót. Farið var í hringferð um landið og skoðaðir framhaldsskólar sem svipaðir eru FAS að stærð. Ferðalagið var hluti af verkefninu Sjálfbært og lýðræðislegt félagslíf í FAS en það snýst um, eins og nafnið gefur til kynna, að koma á sjálfbæru og lýðræðislegu félagslífi nemenda. Hópurinn sem hélt í hringferðina saman stóð af fjórum nemendum auk Söndru Bjargar félagsmálafulltrúa, en þeir voru Sigfinnur forseti nemendafélagsins, Símon Rafn varaforseti nemendafélagsins, Róslín Alma fulltrúi ljósmynda- og leiklistarklúbbs og Sólveig Valgerður fulltrúi heilsu- og skemmtanaklúbbs. Eins og fram hefur komið var lagt af stað á sunnudegi og gist fyrstu nóttina á Akureyri. Á mánudagsmorgni var haldið yfir til Ólafsfjarðar og Menntaskólinn á Tröllaskaga skoðaður. Sá skóli hefur einungis verið starfræktur í tvö ár og hefur þess vegna unnið samkvæmt nýrri námskrá framhaldsskólanna frá upphafi. Gefur sú námskrá aukna möguleika á fjölbreyttu námi og má nefna sem dæmi að hafi nemendur áhuga á að þróa námskeið eftir kúnstarinnar reglum þá er það mögulegt. Eitt slíkt dæmi er áfangi MTR í kvikmyndagerð en nemendur fundu námsefni og kennara og lögðu fyrir skólameistara sem samþykkti námskeiðið. Kennsla í kvikmyndagerð mun því standa nemendum til boða á næsta skólaári. Að loknum hádegisverði með nemendum Menntaskólans á Tröllaskaga var haldið yfir á Sauðárkrók og Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra heimsóttur. Þar voru nemendur í

óða önn að skipuleggja svokallað Menningarkvöld en þar er nemendum jafnt og öðrum íbúum á Sauðárkróki boðið að taka þátt í skemmtidagskrá sem inniheldur að þessu sinni meðal annars keppni í Body-paint, drag-show, tónlistaratriði frá hljómsveitinni Úlfur Úlfur og uppistand Steinda jr. og Bent. Ræddu stjórnir nemendafélaganna saman og voru umræðurnar um margt áhugaverðar og lærdómsríkar að mati FAS nemenda. Eftir stutt stopp í Skaffó og Ólafshúsi lá leiðin á Snæfellsnesið þar

sem hópurinn gisti seinni nóttina. Þriðjudagurinn hófst á heimsókn í Fjölbrautarskóla Snæfellinga þar sem hópurinn fékk góða kynningu á skólanum sem og nemendafélagi. Áhugavert var að kynnast fyrirkomulagi kennslu í skólanum en þar eru einungis þrjár eiginlegar kennslustofur, annars er kennt í opnum rýmum þar sem allt að þrír ólíkir áfangar eru kenndir í einu og sama rýminu. Nemendur spjölluðu einnig vel og lengi um félagslíf skólanna og eins og í hinum skólunum voru umræðurnar áhugaverðar og skemmtilegar. Um hádegisbilið lá leiðin aftur heim í Hornafjörðinn. Hópurinn kom því sáttur og sæll heim seint á þriðjudagskvöldi eftir stutt stopp í Borgarnesi, Reykjavík og á Selfossi. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og var bæði lærdómsrík og skemmtileg. Nemendur FAS voru jákvæðir og hressir alla ferðina og voru skólanum svo sannarlega til sóma.

Sandra Björg Stefánsdóttir, félagsmálafulltrúi FAS

Nemendafélag FAS á ferðinni

Vegna frétta um hreindýr á Mýrum í Hornafirði vill bæjarráð Hornfjarðar koma því á framfæri að ríkur vilji er til þess að leita allra leiða til að tryggja velferð dýranna en jafnframt að takmarka eins og kostur er tjón bænda vegna ágangs þeirra. Sú girðing sem hreindýr hafa flækst í nú í haust er frá árinu 2007 og hefur gengið úr lagi vegna ágangs þeirra. Í landi Flateyjar á Mýrum og nærliggjandi svæðum voru að staðaldri 20 – 30 dýr í sumar og á haustdögum um 200 dýr. Það er þekkt að girðingar stöðva ekki dýrin og þau valda oft verulegu tjóni á girðingum og ræktarlandi. Kostnaður sem af þessu hlýst lendir óbættur á landeigendum.Áréttað er að bændur fjarlægi ónýtar girðingar sem ekki gegna lengur sínu hlutverki og að gengið verði þannig frá öðrum girðingum að þær valdi hreindýrum sem minnstri hættu.

Hreindýr og girðingar

Ljósmynd: Þorri

Page 2: Eystrahorn 39. tbl. 2011

2 EystrahornFimmtudagur 4. nóvember 2011

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Sparisjóðurinn á Höfn og Umf. Sindri undirrituðu samstarfssamning þann 27. október 2011. Samningurinn er framhald á eldri samningi og er staðfesting á áframhaldandi farsælu samstarfi Sparisjóðsins og Sindra. Sparisjóðurinn verður aðalstyrktaraðili yngri flokka Knattspyrnudeildar Sindra árin 2012 og 2013 og þar með einn af aðalstyrktaraðilum Umf. Sindra. Yngri flokkar Sindra keppa um allt land og hafa náð góðum árangri, bæði í kvenna og karla flokkum, meðal annars tryggði 4. flokkur stúlkna sér Íslandsmeistaratitil í 7 manna boltanum. Of langt mál er að telja upp öll afrek þessa stóra hóps knattspyrnu- iðkenda en þess skal þó getið að á alþjóðlega Reykcup mótinu unnu 3 lið sinn flokk í 7 manna bolta og auk þess fékk allur hópurinn háttvísisverðlaun mótsins fyrir góða framkomu innan vallar sem utan. Ekki má gleyma því mikla forvarnargildi sem íþróttaiðkanir ungs fólks hefur og leggur Umf. Sindri sífellt meiri áherslu á þau atriði. Íþróttakeppnum fylgir mikill ferðakostnaður og iðkendur leggja sjálfir út fyrir honum og þrátt fyrir góðan stuðning foreldra og annarra við fjáröflun kostar þetta allt það mikla fjármuni að æfingagjöldin duga vart til. Frá árinu 2008 hafa yngri flokkar Sindra frá 7. til 3. flokks verið merktir Sparisjóðnum og einnig þjálfarar þeirra og verður svo áfram. Fjárstyrkur frá Sparisjóðnum næstu 2 árin mun því koma að góðum notum og einnig tryggir Sparisjóðurinn félaginu góða bankaþjónustu og bestu kjör. Sindri lætur Sparisjóðnum í té auglýsingar á heimaleikjum félagsins sem og í símaskrá og víðar. Sparisjóðurinn óskar öllu hornfirsku íþróttafólki góðs gengis í leik og starfi.

Styrkir unga fólkiðEkki tjaldar sorgin til einnar nætur- fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð

Sr. Halldór Reynisson sem leysir af í Bjarnarnesprestakalli í fjarveru sr. Sigurðar Kr. Sigurðssonar heldur fyrirlestur í Hafnarkirkju n.k. þriðjudagskvöld 8. nóvember kl. 20 um sorg og sorgarviðbrögð. Sr. Halldór hefur unnið mikið að sálgæslu og stuðningi við syrgjendur og er formaður Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð.

Til söluDanskt gegnheilt tekk borðstofuborð stærð 1,90x0,90 lengjanlegt í 3 metra. Álíka langan tekk skenk sem gæti farið með eða sér.Þetta kostar pening en sjáfsagt að bjóða sanngjarnt verð.Upplýsingar í síma 8484274 og [email protected]

Bifreiðaskoðun á Höfn 14., 15. og 16. nóvember

Tímapantanir í síma 570 9090 fyrir kl. 16:00 föstudaginn 11. nóvember.

Síðasta skoðun ársins.

Þegar vel er skoðað

Á sunnudagskvöld 6. nóvember kl. 20:00 verður kyrrðarstund í Hafnarkirkju í umsjón

sr. Halldórs Reynissonar en hann sinnir afleysingu fyrir sr. Sigurð Kr. Sigurðsson.

Kyrrðarstund í Hafnarkirkju

Pottofn óskastOkkur vantar gamlan pottofn til að gefa nýtt líf í Kaupfélags/Kaupmannshúsinu. Stærð ca. 1 m á lengd og 80 cm á hæð.Ef einhver á svona kjörgrip vinsamlegasthafið samband við Ara eða Maríu í síma 891-8080 eða 478-1818.

Bæjarmálafundur í Sjálfstæðishúsinu

Mánudaginn 7. nóvember kl 20:00

Boðið verður upp á kaffi og kökur

Allir velkomnir

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokkssins

4.11.2011 til 6.11.2011

Opið frá 18.00 - 21.00

Sim.4781505 /6918502/nova 7761501

4. - 6. nóvember verður opið frá kl. 18:00 - 21:00

Símar: 478 - 1505 • 691 - 8502 • Nova 776 - 1501

Haukur Ingi Einarsson fulltrúi Sindra og Anna Halldórsdóttir frá Sparisjóðnum.

Page 3: Eystrahorn 39. tbl. 2011

3Eystrahorn Fimmtudagur 4. nóvember 2011

Viðburðir á HöfnMikligarður við bryggjunaLaugardagur 5. nóvemberKl. 13:00 – 18:00 Opin vinnustofa. Eyrún Axelsdóttir listakona sýnir sitt lítið af hverju, m.a. olíumyndir, vatnslitamyndir, kort úr endurunnum pappír og þæfð blóm og epli. Gott í gogginn og spjall.KaffihorniðFöstudagur-sunnudagur 4 – 6. nóvemberKl. 13:00 – 18:00 Guðrún Ingólfsdóttir listakona: Fjarlægð af landi Landslagsmyndir, allar málaðar í akríl.Hleinin í PakkhúsinuLaugardagur 5. nóvemberKl. 13:00 – 16:00 Guðrún Ingólfsdóttir listakona: Náttúra. Leikið sér með form úr náttúrunni og sett á striga.Prjónakaffi í NýheimumLaugardagurinn 5. nóvemberKl. 13:00 – 16:00 Prjónakaffi á Bókasafninu og heitt á könnunni.Kaffihornið kaffihúsLaugardagur og sunnudagur 5. og 6. nóvemberKl. 14:00 – 16:00 Kaffihornið við Hafnarbraut. Kaffihlaðborð fyrir alla fjölskyldunaPakkhúsið við bryggjunaLaugardagur 5. nóvemberKl. 13:00– 16:00 Opið í heimamarkaðsbúðinni, sveitaverslun með matvöru úr héraði. Notaleg kaffihúsastemning.Handraðinn við VíkurbrautFöstudagur 4. nóvemberKl. 10:00 – 18:00 Handverk frá heimafólki til sölu.Laugardagur 5. nóvemberKl. 11:00 – 16:00 Handverk frá heimafólki til sölu.Sunnudagur 6. nóvemberKl. 13:00 – 16:00 Handverk frá heimafólki til sölu.Huldusteinn, steinasafn við HafnarbrautLaugardagur 5. nóvember opið frá kl. 13:00 – 17:00Gamlabúð Byggðarsafn við HafnarbrautLaugardagur 5. nóvemberKl. 13:00 – 16:00 Glaumur og gleði í Gömlubúð

Frítt er á alla viðburði á Höfn

Fimmtudagur 27. október 2011 9DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands

Laugardagur 5. nóvemberKl. 11:00 – 16:00 Handverk frá heimafólki til sölu.Sunnudagur 6. nóvemberKl. 13:00 – 16:00 Handverk frá heimafólki til sölu.

Huldusteinn, steinasafn við HafnarbrautLaugardagur 5. nóvember opið frá kl. 13:00 – 17:00

Gamlabúð Byggðarsafn við HafnarbrautLaugardagur 5. nóvemberKl. 13:00 – 16:00 glaumur og gleði í Gömlubúð

Frítt er á alla viðburði á Höfn

Múlakotsskóli á SíðuFöstudagur 4. nóvemberKl. 20:30-22:00 Opið hús í Múlakotsskóla og heitt á könnunni.

Félagsheimilið Kirkjuhvoll á Kirkjubæjarklaustri Laugardagur 5. nóvemberKl. 16:00-18:00 Opið í Skaftárstofu, myndir á tjaldi og blaðað í bókum.

Veitingastaðurinn Ströndin við VíkurskálaLaugardagur 5. nóvember kl. 20:00 Fýlaveisla. Fýll var áður mikil búbót. Í dag er hátíð þegar fjölskyldur og vinir koma saman að snæða fýl. Fýlaveislan er hugsuð til að fá heimamenn, brottfluttir, vinir og vandamenn hittast til að snæða fýl sem er sérstakt mýrdælskt fyrirbæri. Á borðum verður fýll, kartöflur og rófur og mikið af smjöri, einnig hangikjöt og uppstúfur til tilbreytingar.Miðapantanir og upplýsingar í síma 896 0360, [email protected], www. http://strondin.is/

SkógasafnLaugardagur og sunnudagur 5.-6. nóvember. kl. 11:00-16:00 Byggðasafnið og Samgöngusafnið eru opin. Aðgangur ó[email protected], www.skogasafn.is

Gestastofan ÞorvaldseyriLaugardagur og sunnudagur 5.-6. nóvember. kl: 10:00 – 17:00 Gestastofan verður opin, þar sem m.a. er sýning um gosið í Eyjafjallajökli 2010 og 20

Safnahelgi á Suðurlandi

Ingólfshöf›i

SkaftafellÖræfajökull

HÖFN

Kirkjubæjarklaustur

Lakagígar

Landmannalaugar

Vei›ivötn Lang

isjór

?órisvatn

M‡rdals-Eyjafjallajökull jökull

?órsmörk

Hekla

Vík

SELFOSS

Hella

Hvolsvöllur

Stokkseyri

VESTMANNNAEYJA

Surtsey

?orlákshöfnEyrabakki

HVERAGER‹I

GAR‹ABÆRKÓPAVOGUR

?ingvalla-

vatnMOSFELLSBÆR

Geysir Gullfoss

Hvalfjör›ur

HAFNARFJÖR‹UR

REYKJAVÍK

GRINDAVÍK

KEFLAVÍK

AKRANES

FAXAFLÓI

BORGARNES

Grundarfjör›urHellissandur

ÓLAFSVÍKSnæfellsjökull

BREI‹AFJÖR‹UR

STYKKISHÓLMUR Hvammsfjör›urBú›ardalur

Hvammstangi

Arnarvatnshei›i

Lang

jökull

BLÖNDUÓS

Hólmavík

LátrabjargPatreksfjör›ur

Bíldudalur

Su›ureyri

Flateyri

?ingeyri

Gláma

ÍSAFJÖR‹UR

BOLUNGARVÍK

Ísafjar›ardjúp

Drangajökull

Hornbjarg

HÚNAFLÓI

Gjögur

SAU‹ÁRKRÓKUR

Skagafjör›ur

Hofsós

DALVÍK

AKUREYR

Eyjafjör›ur

Grímsey

M‡vat

ÁsbyrgiHÚSAVÍK

Kópasker

Raufarhöfn

Dettifoss

?istilfjör›ur

?órshöfn

Borgarfjör›ur

Vopnafjör›ur

Bakkafjör›ur

SEY‹ISFJÖR‹UR

Snæfell

Fáskrú›sfjör›ur

Rey›arfjör›ur ESKIFJÖR‹UR

EGILSSTA‹IR

NESKAUPSTA‹UR

Stö›varfjör›ur

Brei›dalsvík

Her›ubrei›

Djúpivogur

Sprengisandur

Askja

Grímsvötn

VATNAJÖKULL

Kverkfjöll

Hveravellir

Kerlingarfjöll

Kjölur Hofsjökull

Gerpir

Versalir

Húsafell

Sjá nánari upplýsingar á www.sunnanmenning.is

4. - 6. nóvember 2011Matur og menning úr héraði

OPNUNARHÁTÍÐSAFNAHELGAR

UNDIR EYJAFJÖLLUM

mín. löng kvikmynd um gosið og lífið á bænum. Í tilefni safnahelgar er aðgangur 500 kr. Ýmsar vörur til sölu beint frá býli, s.s. bygg, hveiti, morgunkorn, sápur og nuddolíur úr repjuolíunni. [email protected], www.icelanderupts.is

Gamla Fjósið Steinum Laugardagur 5. nóvember kl. 11:00 til 23:00 Opið hús - MyndlistasýningGamla fjósið verður opið. Myndlistasýning með verkum Ásmundar Friðrikssonar af þekktum Vest-manna eyingum. Veitingar af matseðli - Kaffi, kökur, nautakjöt og fiskur dagsins. Sími 697 9202 og 487 7788, Netfang: [email protected],

Sögusetrið Hvolsvelli Laugardagur og sunnudagur 5.-6. nóvember. Kl. 10:00-17:00 Opið hús. Frítt inn fyrir [email protected], www.njala.is

Mikligarður við bryggjunaLaugardagur 5. nóvember Kl. 13:00 – 18:00 Opin vinnustofa. Eyrún Axelsdóttir listakona sýnir sitt lítið af hverju, m.a. olíumyndir, vatnslitamyndir, kort úr endurunnum pappír og þæfð blóm og epli. Gott í gogginn og spjall.

Kaffihornið Föstudagur-sunnudagur 4 – 6. nóvember Kl. 13:00 – 18:00 Guðrún Ingólfsdóttir listakona: Fjarlægð af landiLandslagsmyndir, allar málaðar í akríl.

Hleinin í PakkhúsinuLaugardagur 5. nóvember Kl. 13:00 – 16:00 Guðrún Ingólfsdóttir listakona: Náttúra.Leikið sér með form úr náttúrunni og sett á striga.

Prjónakaffi í NýheimumLaugardagurinn 5. nóvemberKl. 13:00 – 16:00. Prjónakaffi á Bókasafninu og heitt á könnunni.

Kaffihornið kaffihúsLaugardagur og sunnudagur 5. og 6. nóvember Kl. 14:00 – 16:00 Kaffihornið við Hafnarbraut.Kaffihlaðborð fyrir alla fjölskylduna

Pakkhúsið við bryggjunaLaugardagur 5. nóvemberKl. 13:00– 16:00 Opið í heimamarkaðsbúðinni, sveita-verslun með matvöru úr héraði. Notaleg kaffihúsa-stemning.

Handraðinn við VíkurbrautFöstudagur 4. nóvember Kl. 10:00 – 18:00. Handverk frá heimafólki til sölu.

HÖFN Í HORNAFIRÐI

KIRKJUBÆJARKLAUSTUR

VÍK Í MÝRDAL

Sögusetrinu HvolsvelliFimmtudaginn 3. nóvember kl. 16:30

Að afloknu Geopark málþingi, opnar Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands Safnahelgi á Suðurlandi.Flutt verða ávörp og tónlistaratriði og boðið upp á léttar veitingar.

Geymið fram á

næstu helgi

Landeyjahöfn

Jólahlaðborð á Hótel Höfn

laugardaginn 10. desember

Verð 6.900,- Nánari upplýsingar og miðapantanir

á Hótel Höfn í síma 478-1240

Forréttir:Síld á fjóra vegu með rúgbrauðsrandalíniVillibráðarsúpaHeitreykt gæsabringa með appelsínu og kanilgljáaConfit elduð gæsalæri með stjörnuanísHreindýrapatéSítrusgrafinn LaxReyktur LaxPipargrafinn lambavöðvi með sætri engifer vinaigretteReykt NautatungaDönsk lifrarkæfa með stökku beikoni Aðalréttir:HangikjötHamborgarhryggurKalkúnabringur með fyllinguHægelduð lamba innanlæriGrísapurusteikAndarbringurHreindýrabollur í villibráðarsósu Meðlæti:Brauð, viðeigandi sósur. uppstúf, kartöflur, sætar kartöflur, rauðvínssósa, villisveppasósa, heimalagað rauðkál,sykurbrúnaðar kartöflur Eftirréttir:Frönsk súkkulaðiakak, skyrkaka, Ris á la mande, smákökur og ostar

Áskorun Sporthallarinnar 2011Minnkaðu sentímetrana og taktu þátt í „peningapotti“

Keppnin stendur frá 7. nóvember til 19. desember

Þú setur 5.000 kr í pottinn

Sá sem missir flestu sentrímetrana vinnur pottinn

Nánar í síma 478-2221 eða á www.sporthollin.is

Jóla-tónlistardagskrá á vegum Hornfirska skemmtifélagsins

Page 4: Eystrahorn 39. tbl. 2011

4 EystrahornFimmtudagur 4. nóvember 2011

Úthlutar styrkjum

Þann 27. október 2011 úthlutaði Sparisjóðurinn á Höfn, Djúpavogi og Breiðdalsvík. í fjórða skipti, úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Athöfnin fór fram í Sparisjóðnum á Höfn. Áætlað er að úthlutun þessi fari fram árlega, í byrjun vetrar, en þess má geta að þetta er tuttugasta og fjórða árið sem úthlutað er úr sjóðnum. Þeir aðilar sem hlutu styrki árið 2011 eru: Huldusteinn steinasafn, Fuglaathugunarstöð Suðausturlands og Arfleið Ágústa Arnardóttir.

Samverustund verður í Ekru föstudaginn 4. nóvember kl. 17:00.

Þorvarður Árnason sýnir myndir og segir frá ferð Karlakórsins Jökuls

til Canada.

Félag eldri Hornfirðinga

Samverustund

Sviðaveisla Lionsklúbbs Hornafjarðar

verður á Kaffihorninu miðvikudaginn 9. nóvember kl. 18:00 - 21:00

eða meðan birgðir endast.

Verð kr. 2000,-

Allur aðgangseyrir rennur til líknarmála

Þökkum styrktaraðilum:

Norðlenska • SeljavallabúiðAllir velkmomnir

Lionsklúbbur Hornafjarðar

Fundarboð173. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar verður haldinn í Ráðhúsinu 3. nóvember 2011 og hefst kl. 16:15.

Dagskrá:

Fundargerðir til staðfestingar

1. Bæjarráð Hornafjarðar - 561

2. Bæjarráð Hornafjarðar - 562

3. Bæjarráð Hornafjarðar - 563

4. Bæjarráð Hornafjarðar - 564

Almenn mál

5. Fjárhagsáætlun 2012 - fyrri umræða

6. Grenndarkynning vegna lóðarinnar Hagatún 16

7. Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum – fyrri umræða

8. Fyrirspurnir - bæjarstjórn

31. október 2011 Hjalti Þór Vignisson

Brynjúlfur Brynjólfsson, Björn Arnarson, Ásbjörn Þórarinsson, Vigdís Vigfúsdóttir, Ágústa Arnardóttir og Anna Halldórsdóttir.

HúsgagnavalOpið 13 - 18 virka daga og 13 - 15 laugardaga

Úrval af hægindastólum

Nú styttist til jólaNæsta fimmtudagskvöld 10. nóvember

kl. 20:00 höldum við hið árlega konukvöld

Eigum notalega og gleðilega kvöldstund saman

Bjóðum upp á léttar veitingar Ýmis tilboð í gangi

N4 kynnir SuðurlandiðN4 sjónvarpsstöð í samvinnu við Markaðsstofu Suðurlands og Kjörís hefur unnið að þáttum sem eru að öllu leyti tileinkaðir Suðurlandinu. Þættirnir nefnast Áttavitinn og eru sýndir á hverjum miðvikuegi á N4. Í fyrsta þættinum, sem fór í loftið 20.október síðastliðinn, og er aðgengilegur á heimasíðu

stöðvarinnar www.n4.is, var Árnessýslan tekin fyrir. Í þættinum er ferðaþjónustu og menningu á Suðurlandi gerð góð skil. Þættirnir verða á dagskrá vikulega í allan vetur þar sem hin ýmsu svæði verða heimsótt allt frá Hellisheiði og austur að Höfn.

Page 5: Eystrahorn 39. tbl. 2011

5Eystrahorn Fimmtudagur 4. nóvember 2011

Á opnum fundi í Nýheimum þann 26. október sl. kynntu skólastjórar Grunnskóla Hornafjarðar ytra og innra mat skólans. Sl. haust var skólinn tekinn út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu að ósk bæjarráðs og í kjölfarið var unnin umbótaáætlun á vegum grunnskólans. Umbótaáætlunina og niðurstöður innra og ytra mats má finna á vef skólans.

Einnig fór Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs yfir niðurstöður könnunar sem gerð var hjá starfsfólki og foreldrum leikskólabarna sl. vetur. Þar kom fram almenn ánægja meðal foreldra með leikskóla barna sinna og líðan þeirra í skólunum. Hins vegar voru skiptar skoðanir um skipan leikskólamála. Skýrslu um könnunina má finna á vef sveitarfélagsins.

Að lokum fór undirrituð yfir þær framkvæmdir sem fjallað hefur verið um í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd undanfarin misseri.

Hepppuskóli kominn á tíma

Ákveðið hefur verið að ráðast í gagngerar endurbætur á Heppuskóla. Fyrsta skrefið var stigið í sumar þegar ráðist var í viðhald utanhúss. Hægt væri að stoppa hér, búið að koma í veg fyrir leka, auka einangrun og klæða húsið. Það er hins vegar skýrt í huga undirritaðrar að nauðsynlegt sé að sinna húsinu betur. Að innan er viðhaldsþörfin orðin mjög brýn. Vinnuaðstöðu bæði nemenda og kennara þarf að bæta, aðgengi að skólaritara, aðstöðu bókasafns og skortur er á aðstöðu fyrir vinnu með smærri hópa.

Margt hefur breyst í skipulagningu skólahúsnæðis og skólastarfs frá því að skólinn var tekinn í notkun fyrir tæpum 40 árum eins og eðlilegt er og í gegnum tíðina hafa önnur og

brýnni verkefni sveitarfélagsins setið fyrir í forgangsröðinni.

Heppuskóli er annað af tveimur lykilhúsum í skólastarfi 6-16 ára barna á Hornafirði. Fyrirhugaðar framkvæmdir hafa verið gagnrýndar þar sem talið er að nemendum muni fækka á komandi árum. En eitt er víst að þó að nemendum fækki og sjöundi bekkur fari aftur í Hafnarskóla, þá er viðhald skólans löngu tímabært og þarf vinnuaðstaða að færast í betra horf svo það fé sem lagt verður í bygginguna er langt í frá glatað fé. Í framtíðinni má til dæmis nýta rými sem kunna að verða óþörf til hefðbundins skólahalds til bættrar mataraðstöðu nemenda.

Þetta er stór framkvæmd sem skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hefur undirbúið. Þar eiga fulltrúar allra framboða sæti auk þess eiga foreldrar, stjórnendur og kennarar áheyrnarfulltrúa. Málið hefur auk þess verið rætt í skólasamfélaginu, í skólaráði þar sem bæði nemendur og foreldrar eiga fulltrúa. Foreldrum gafst tækifæri á að koma með ábendingar og tillögur í byrjun ferlisins sl. haust og hafa áheyrnarfulltrúar þeirra í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd komið að vinnunni með okkur. Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun byggist á markmiði meirihlutans í bæjarstjórn að dreifa valdi og hafa samráð um þau verkefni sem ráðist er í. Til marks um þetta er t.d. íbúaþingið.

Skipan leikskólamála

Frá árinu 2006 hafa báðir leikskólarnir á Hornafirði tekið við börnum frá eins árs aldri. Þessar breytingar áttu að tryggja samfellu í leikskólastarfi auk vals á milli áhersla í skólastarfi. Þá voru samt ekki gerðar breytingar á húsnæði Krakkakots til að koma til móts við breytta aldursdreifingu í skólanum. Þetta hefur skapað bæði erfiðleika og óánægju hjá starfsfólki skólans eins og sjá má í áður nefndri skýrslu um leikskólamál. Staðan er því þannig að á Hornafirði höfum við tvo heildstæða leikskóla með sitt hvora stefnuna en í áður nefndri skýrslu kemur fram að foreldrar upplifa sig ekki hafa val um leikskóla þar sem biðlistinn setji þeim skorður og taka þurfi fyrsta lausa plássi.

Þá stóðum við frammi fyrir því vandamáli í vetur að mikill skortur var á dagvistunarúrræðum á Höfn. Brugðið var á það ráð að auglýsa eftir áhugasömum dagforeldrum en engin viðbrögð voru við þeirri auglýsingu. Ungu fólki með börn sem var að flytjast til staðarins stóð ekki til boða vistun fyrir börn sín sem er mjög slæmt í samfélagi sem þarf á vexti og fólksfjölgun að halda.

Sú staðreynd að engin viðbrögð voru við auglýsingu félagsmálaráðs eftir dagforeldrum vekur upp þá spurningu hvort að eins frábært dagvistunarúrræði og dagforeldrar eru, sé á undanhaldi og hvort við verðum að gera ráð fyrir að öll börn eins árs og eldri komist á leikskóla.

Til þess að losa um biðlista eftir leikskólaplássum var brugðið á það ráð í haust að bæta við þriðju deildinni á Krakkakoti í sal leikskólans. Það er aðeins tímabundið úrræði en næsta vor mun stór árgangur flytjast milli skólastiga og þá verður aftur rýmra um í leikskólunum.

En hjá því verður ekki komist að skilgreina í hvernig samfélagi við viljum búa?

Í fjölskyldustefnu sveitar-• félagsins kemur fram að við viljum bjóða leikskólapláss fyrir börn frá 1. árs aldri.

Við viljum geta tekið á móti • fjölskyldum með börn til Hornafjarðar.

Við viljum að foreldrar hafi val • um leikskóla

Síðast en ekki síst viljum við • að starfsfólk og nemendur í

leikskólum bæjarins hafi góða vinnuaðstöðu og rými til leiks og starfa.

Ný deild við Krakkakot er því á teikniborðinu en með henni teljum við að ofangreindum þáttum sé náð.

Mikilvægi list- og verkgreina

Bæjarstjórn er einnig að skoða uppbyggingu til list- og verkgreina í samvinnu við Grunnskóla Hornafjarðar og FAS. Það er sérstakt markmið menntamálayfirvalda að minnka brottfall úr framhaldsskóla. Það verður sennilega ekki gert nema með nýjum leiðum í námi og mun þá vægi list – og verkgreina aukast til muna. Auk þess er það mikilvægt til að tryggja uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra sem byggja á hönnun, framleiðslu minjagripa, handverks ýmisskonar og fleira í þeim dúr.

Millibygging milli sundlaugar og íþróttahúss er einnig inní þeirri skipulagsvinnu sem er í gangi í tengslum við Heppuskóla og í þeirri umræðu hefur bætt mataraðstaða í Heppuskóla komið upp, aðstaða til félags-starfs, líkamsræktaraðstaða, aðstaða til dansleikjahalds í íþróttahúsi og ýmislegt fleira.

Það er því af nógu að taka. Verkefnin eru fjölmörg og skemmtileg og til þess fallin, að mínu mati, að efla hér samfélagið til skemmtri eða lengri tíma litið.

Ásgerður K. Gylfadóttir Formaður skóla-, íþrótta- og

tómstundanefndar.

Vagnaleikfimilíkamsræktarnámskeið fyrir foreldra og börn þeirra í vögnum eða kerrum

Er að byrja með fyrsta námskeiðið hér á Höfn í vagnaleikfimi mánudaginn 7.nóvember. Leikfimin fer fram utandyra tvisvar í viku klukkutíma í senn. Námskeiðið er byggt upp þannig að lögð er áhersla á þol- og styrktarþjálfun fyrir mæður eftir barnsburð. Sérstaklega er einblínt á þá vöðvahópa sem eru veikastir eftir barnsburð svo sem maga-, bak- og grindarbotnsvöðva. Allar konur eru velkomnar og reynt er að hafa æfingarnar einstaklingsmiðaðar eftir líkamlegu formi hverju sinni. Sérstakt kynningarverð fyrir 4 vikna námskeið er 6900 krónur. Tímarnir verða á mánudögum og miðvikudögum kl. 9:30 á morgnana. Skráning fer fram í síma: 692-9015 eða í tölvupósti [email protected].

Matthildur Ásmundardóttir sjúkraþjálfari og master í íþrótta- og heilsufræði

Opinn fundur um skólamál

Page 6: Eystrahorn 39. tbl. 2011

6 EystrahornFimmtudagur 4. nóvember 2011

Neðangreindar upplýsingar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.

Hvanney SF 51 .................... net ............. 9 .. 103,0 ufsi 50,6Sigurður Ólafsson SF 44 .... humarv ..... 3 .... 12,8 humar 4,3 (halar)Skinney SF 20 ..................... humarv ..... 3 .... 73,2 humar 10,1Þórir SF 77 .......................... humarv ..... 3 .... 48,5 humar 11,9Steinunn SF 10 .................... botnv ......... 1 .... 21,1 þorskur 10,7Benni SU 65 ........................ lína ............. 3 .... 20,8 þorskur 12,5Beta VE 36 .......................... lína ............. 2 .... 10,9 þorskur 6,5Dögg SU 118 ....................... lína ............. 9 .. 124,0 þorskur 116,2Guðmundur Sig SU 650 ..... lína ............. 7 .... 53,2 þorskur 43,0Ragnar SF 550 ..................... lína ............. 7 .... 53,2 þorskur 43,0Siggi Bessa SF 97 ............... lína ............. 8 .... 39,9 þorskur 24,7Húni SF 17 .......................... handf ......... 1 ...... 0,6 þorskur 0,5Kalli SF 144 ......................... handf ......... 3 ...... 1,2 þorskur 0,8 Stígandi SF 72 ..................... handf ......... 3 ...... 1,7 þorskur 1,3Sævar SF 271 ...................... handf ......... 2 ...... 2,9 ufsi/þorskurUggi SF 47 .......................... handf ......... 2 ...... 0,7 þorskur 0,5Jóna Eðvalds SF 200........... nót/botnv .. 2 ............ 940 síldÞrír sunnanbátar á humarveiðum lönduðu hér á Hornafirði rúmum 40 tonnum og þar af rúmlega 12 tonnum af humri.

Heimild: www.fiskistofa.is

Aflabrögð 17. – 30. október (2 vikur)

Á dögunum lét Ólafur Einir Einarsson af störfum sem hafnsögumaður við Hornafjarðarhöfn eftir nær aldarfjórðungs starf við höfnina. Hafnarstjóri, hafnarnefnd og samstarfsmenn Óla kvöddu hann í smá samsæti í Pakkhúsinu. Þar voru honum færðar þakkir fyrir vel unnin störf. Óli sagðist vera ánægður og þakklátur á þessum tímamótum. Starfið hefi verið skemmtilegt og farsælt þrátt fyrir ýmsa erfiðleika eins og í kringum 1990 þegar rof var við ósinn og lóðsbátar sukku. Það var mikil bylting þegar nýi báturinn Björn lóðs kom og mikil öryggistilfinning að sem fylgdi honum sagði Óli.

Óli lóðs kvaddur

Allir lóðsarnir, Sigfús Harðarson, Sigurður Guðmundsson, Ólafur, Torfi Friðfinnsson og Vignir Júlíusson.

Lokahóf

Mfl. karlaLeikmaður ársins ................ Sinisa KekicEfnilegastur.......................... Ingvi IngólfssonMestar framfarir .................. Sverrir Brimar BirkissonMarkahæstur ....................... Sinisa Kekic

Mfl. kvennaLeikmaður ársins ................ Lejla CardaklijaEfnilegust ............................. Maria Selma HasetaMestu framfarir ................... Mist GrétarsdóttirMarkahæst ........................... María Selma Haseta

2.fl. karlaLeikmaður ársins ................ Alex HilmarssonMikilvægastur...................... Ingvi IngólfssonMestar framfarir .................. Reynir ÁsgeirssonMarkahæstur ....................... Alex Hilmarsson

2.fl. kvennaLeikmaður ársins ................ Karen HalldórsdóttirMikilvægust ......................... Árdís Drífa BirgisdóttirMestu framfarir ................... Sólveig SveinbjörnsdóttirMarkahæst ........................... María Selma Haseta

Lokahóf knattspyrnufólks Sindra fór fram í Pakkhúsinu. Hátíðin fór vel fram og góð stemning. Að venju voru margir heiðraðir fyrir góðan árangur og störf.

Kristján formaður Knattspyrnudeilar og Sævar Þór þjálfari kokkuðu ofaní allan hópinn á Víkinni.

Karen, Alex, María Selma, Sólveig, Reynir og Ingvi.

María Selma, Mist, Lejla og Sindri þjálfari.

Sverrir Brimar, Sinisa, Ingvi og Óli Stefán þjálfari.

Page 7: Eystrahorn 39. tbl. 2011

Nánar á frostrosir.is

...færa þér jólin

Page 8: Eystrahorn 39. tbl. 2011

SEIÐANDI KRÆKLINGASÚPA

mar

khon

nun.

is

KALKÚNASTEIKREYKT FULLELDUÐ

BLÁSKEL FERSK FRÁ HRÍSEY

1.889kr/kg

áður 2.698 kr/kg

1.749kr/kg

áður 2.498 kr/kg

HANGIFRAMPARTURSAGAÐUR

Skráðu þig á póstlistann á www.netto.isMjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær - Borgarnes

1.199kr/kg

áður 1.998 kr/kg

1.799kr/kg

áður 2.998 kr/kg

LAMBAHAMBORGAR- HRYGGUR

Tilboðin gilda 3. - 6. nóvember eða meðan birgðir endast

REYKTUR LAX½ FLAK

Kræsingar & kostakjör

GRAFLAX½ FLAK

1.799kr/kg

áður 2.998 kr/kg

25%afsláttur

239kr/pk.

áður 397 kr/pk.

SMÁRÉTTA BLINI 16 STK/PK. 135 G

HUMAR 1 KG SKELBROT

*GIL

DIR

EKKI

UM

NET

TÓ S

ALAV

EGI

779kr/kg

áður 1.298 kr/kg

BIRT

MEÐ

FYR

IRVA

RA U

M P

RENT

VILL

UR O

G M

YNDA

VÍXL

1.998kr/kg

Tilboðsverð!

40%afsláttur

30%afsláttur 30%

afsláttur 40%afsláttur

40%afsláttur

HUMAR1 KG SKELFLETTUR

2.998kr/kg

áður 4.980 kr/kg

40%afsláttur

40%afsláttur

199kr/stk.

áður 398 kr/stk.

BAQUETTEBAKAÐ Á STAÐNUM*

440 G