eystrahorn 7. tbl. 2012

6
Fimmtudagur 16. febrúar 2012 www.eystrahorn.is Eystrahorn 7. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is Íbúðirnar eru allar 133 m2, 4 herbergja með bílskúr Húsið er timbureiningahús klætt að utan með báruáli og timburklæðningu til skrauts Gólfhita- og neysluvatnslagnir verða í gólfum Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar að utan en eftir samkomulagi að innan [email protected] Íbúðir til sölu Hægt er fá teikningar og nánari upplýsingar í síma 846-7272 (Hrafnkell) og 857-8813 (Björgvin) eða á [email protected] • Vefsíða: hthus.123.is HThús ehf er að hefja byggingu á fjögurra íbúða raðhúsi við Álaleiru á Höfn Haghvæmur og góður kostur Á þriðjudaginn á opnum kynningarfundi í Ráðhúsinu var gerð grein fyrir breytingu á deiliskipulagi vegna fjölnota húss sem byggja á yfir gervigrasvöllinn á íþróttasvæðinu. Stjórn Skinneyjar-Þinganess ákvað í tilefni af 60 ára afmæli félagsins að gefa íbúum svona fjölnota hús. Málið fór í bið vegna hrunsins á sínum tíma en nú er fullur hugur í forsvarsmönnum fyrirtækisins að ljúka málinu. Hægt verður að hefja framkvæmdir þegar skipulagsferlinu er lokið en um smávægilega breytingu á deiliskipulagi er að ræða. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. mars nk. Eftir það geta liðið nokkrar vikur þar til framkvæmdaleyfi er afgreitt. Skinney-Þinganes verður framkvæmdaraðili og mun svo afhenda sveitarfélaginu húsið til eignar. Það kom fram í samtali við aðila að hyggilegast væri að nota sumarið til framkvæmda og fá húsið helst í gagnið næsta vetur en allt mun það ráðast af aðstæðum þegar framkvæmdir hefjast. Ljóst er að margir munu fagna þessu framtaki, ekki síst unga fólkið sem fær þarna tækifæri til að stunda íþróttir og heilbrigðar tómstundir við góðar aðstæður hvernig sem viðrar. Ekki má heldur gleyma að svona húsnæði gefur möguleika á fjölbreyttri notkun fyrir unga sem aldna og sýninga- og samkomuhalds. Fjölnotahús - afmælisgjöf Skinneyjar-Þinganess

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 24-Mar-2016

249 views

Category:

Documents


12 download

DESCRIPTION

Eystrahorn 7. tbl. 2012

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 7. tbl. 2012

Fimmtudagur 16. febrúar 2012 www.eystrahorn.is

Eystrahorn7. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is

Íbúðirnar eru allar 133 m2, 4 herbergja með bílskúr

Húsið er timbureiningahús klætt að utan með báruáli og timburklæðningu til skrauts

Gólfhita- og neysluvatnslagnir verða í gólfum

Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar að utan en eftir samkomulagi að innan

[email protected]

Íbúðir til sölu

Hægt er fá teikningar og nánari upplýsingar í síma 846-7272 (Hrafnkell) og 857-8813 (Björgvin) eða á [email protected] • Vefsíða: hthus.123.is

HThús ehf er að hefja byggingu á fjögurra íbúða raðhúsi við Álaleiru á Höfn

Haghvæmur og góður kostur

Á þriðjudaginn á opnum kynningarfundi í Ráðhúsinu var gerð grein fyrir breytingu á deiliskipulagi vegna fjölnota húss sem byggja á yfir gervigrasvöllinn á íþróttasvæðinu. Stjórn Skinneyjar-Þinganess ákvað í tilefni af 60 ára afmæli félagsins að gefa íbúum svona fjölnota hús. Málið fór í bið vegna hrunsins á sínum tíma en nú er fullur hugur í forsvarsmönnum fyrirtækisins að ljúka málinu. Hægt verður að hefja framkvæmdir

þegar skipulagsferlinu er lokið en um smávægilega breytingu á deiliskipulagi er að ræða. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. mars nk. Eftir það geta liðið nokkrar vikur þar til framkvæmdaleyfi er afgreitt. Skinney-Þinganes verður framkvæmdaraðili og mun svo afhenda sveitarfélaginu húsið til eignar. Það kom fram í samtali við aðila að hyggilegast væri að nota sumarið til framkvæmda og fá húsið helst í gagnið næsta

vetur en allt mun það ráðast af aðstæðum þegar framkvæmdir hefjast. Ljóst er að margir munu fagna þessu framtaki, ekki síst unga fólkið sem fær þarna tækifæri til að stunda íþróttir og heilbrigðar tómstundir við góðar aðstæður hvernig sem viðrar. Ekki má heldur gleyma að svona húsnæði gefur möguleika á fjölbreyttri notkun fyrir unga sem aldna og sýninga- og samkomuhalds.

Fjölnotahús - afmælisgjöf Skinneyjar-Þinganess

Page 2: Eystrahorn 7. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 16. febrúar 2012

Sala farmiða með strætóSveitarfélagið Hornafjörður hefur tekið að sér að veita þá þjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins og gesti að selja farmiða fyrir Strætó BS. Starfsfólk Sundlaugar Hafnar mun sjá um söluna.

Nánari upplýsingar um leiðarkerfi strætó og annað sem snýr að skipulagi þessarar þjónustu er hægt að sjá á heimasíðunni strætó.is. Einnig má nálgast upplýsingar hjá Sundlaug Hafnar.

Verð á farmiðum:

• Farmiðaspjöld fyrir fullorðna (10 miðar) ..................kr. 3.000.- • Farmiðaspjöld fyrir börn (6 – 11 ára, 20 miðar) ...........kr. 900.- • Farmiðaspjöld fyrir ungmenni (12 – 18 ára, 20 miðar) kr.2.300.- • Farmiðaspjöld fyrir öryrkja og aldraða ( 20 miðar) ..kr. 2.100.-

29 miða þarf til að fara á milli Hafnar og Reykjavíkur

Vildaráskriftina má greiða í LandsbankanumHornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Eystrahorn

Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Síðustu dagar útsölunnar10% aukaafsláttur

Vorum að taka upp nýja skósendingu frá

Tamaris. Einnig nýjar

fatasendingar

Verið velkomin

Opnunartími miðvikudaga 8-12 og 17-20 eða eftir samkomulagi

Katrín Birna • Höfðavegur 1 • 615-1231

Guðrún Hálfdanardóttir fæddist að Bakka á Mýrum í Austur- Skaftafellssýslu 30. janúar 1928. Guðrún lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands 14. febrúar 2012.

Foreldrar Guðrúnar voru hjónin Hálfdan Arason bóndi og vélsmiður og Guðný Einarsdóttir húsfreyja. Systkini Guðrúnar eru: Einar f. 1920 d. 2006, Ari f. 1922 d. 2003, Inga f. 1924 d. 1998, eftirlifandi tvíburabróðir Guðrúnar er Helgi.

Árið 1948 kvæntist Guðrún Svavari Vigfússyni sjómanni frá Vopnafirði og bjuggu þau sín fyrstu búskaparár í Odda á Höfn síðan reistu þau sér íbúðarhús að Miðtúni 8 á Höfn. Svavar lést 14. apríl 1984. Börn Guðrúnar og Svavars eru: Guðný Hafdís f. 1949 gift Ingvari Þórðarsyni búsett á

Höfn, Björg f. 1951 d. 2009 gift Hauki H. Þorvaldssyni, Vigfús f. 1955 kvæntur Sigurlaugu Hauksdóttur búsett í Reykjavík, Snæfríður Hlín Svavarsdóttir f. 1966 gift Stefáni Stefánssyni búsett á Höfn.

Barnabörnin eru 15 og barnabarnabörnin eru 11.

Hún vann alla tíð af natni við heimili sitt og bar það vitni hagleiks og hugkvæmni.

Guðrún hafði yndi af hverskonar hannyrðum og að rækta garðinn sinn í óeiginlegri og eiginlegri merkingu. Hin seinni ár hafði hún þann starfa að heimsækja vistfólk á hjúkrunarheimilinu og las sögur, aðstoðaði við hannyrðir ásamt því að halda uppi skemmtilegum og fræðandi samræðum við það.

Útför Guðrúnar fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 18. febrúar og hefst athöfnin kl. 14:00.

Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Guðrúnar er góðfúslega bent á að láta Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og Bergmál, vina – og líknarfélag njóta þess. Símanúmer Bergmáls er 587-5566 og 845-3313.

Andlát

sandbakkavegurUm er að ræða 3ra herbergja vel skipulagða 91,6 m² íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi byggðu árið árið 1991. Íbúðin er laus 1.ágúst 2012

sandbakkavegurUm er að ræða 4ra herbergja vel skipulagða 99,2 m² íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsi byggðu árið árið 1991. Íbúðin er laus 1.ágúst 2012

tjarnarbrúSkemmtileg og rúmgóð 74,4 m² 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í þríbýli. Sérinngangur og 28 m² bílskúr.

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821www.inni.is

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík

Sigríður Kristinsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

NÝTT Á SKRÁLÆKKAÐ VERÐ! • TIL SÖLU OG LEIGU

NÝTT Á SKRÁ

Guðrún Hálfdanardóttir

Page 3: Eystrahorn 7. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 16. febrúar 2012

Óskum eftir íbúð til leigu á HöfnUnga konu með 4 börn bráðvantar heimili.Reglusöm, skilvísum greiðslum heitið.Vinsamlega hafið samband í síma 892-9708(Gauti)

Bollu- og konudagshelgiBollur alla helgina, frá föstudegi til sunnudags

Einnig konudagstertan sem slegið hefur í gegn!Opið

Laugardag 09:00 - 16:00 Sunnudag 09:00 - 15:00

Verið velkomin

Starfsfólk Jóns bakara

Nýverið luku starfsmenn Áhaldahúss ferð sinni um alla sýsluna þar sem þeir sóttu spilliefni á lögbýlum þ.e. rafgeyma, afgangssmurolíur og annað smotterí. Í þessari ferð söfnuðust u.þ.b 2,500 kg af rafgeymum og nálægt 1000 lítrum af olíu. Fyrir tveimur árum í samskonar ferð söfnuðust nálægt 8.000 kg af geymum og 3000 lítrum af olíu. Funi fer þrisvar til fjórum sinnum á ári á alla sveitabæi sem þess óska og tekur landbúnaðarplast sem kemur utan af heyrúllum og fer með til endurvinnslu til Reykjavíkur. Við síðustu áramót fluttist móttaka á skilagjaldsskildum umbúðum til Áhaldahúss þ.e. dósir og flöskur og til að gera grein fyrir umfangi á því starfi er útgreitt þennan eina og hálfa mánuð að nálgast 900,000 kr. Móttakan er opin alla daga frá 13:00 til 17:00 þannig að fólk getur losnað við allt endurvinnanlegt í einni ferð, þó svo móttakan sé ekki nákvæmlega á sama stað. Móttaka fyrir dósir og flöskur er í Áhaldahúsinu sjálfu. Á næstu dögum verður dreift til allra heimila efni til að halda betur utan um blöð og tímarit ásamt endurútgefnum upplýsingabæklingi um sorpmál. Höldum áfram að flokka fyrir okkur.

Starfsmenn Áhaldahússins og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Lúðrasveitin með kaffihúsaskemmtunN.k. sunnudag ætla nemendur í lúðrasveit tónskólans að selja kaffi og vöfflur í Sindrabæ og bjóða upp á létta skemmtun þar sem þau leika einleik auk þess sem lúðrasveitin spilar tvö lög. Húsið er opið frá kl. 14:30 til kl.16:00. Lúðrasveitin fer á landsmót til Akureyrar 27. apríl, auk þess sem hún stefnir að utanlandsferð vorið 2013. Er þetta liður í fjáröflun sveitarinnar.

Dagur tónlistarskólanna Laugardaginn 25. febrúar á degi tónlistarskólanna verður opið hús í Sindrabæ. Dagur tónlistarskólanna hefur verið haldinn í mörg ár en við hjá Tónskóla A-Skaft. höfum ekki haldið sérstaklega upp á hann áður. Núna ætlum við hinsvegar að opna tónskólann og gefa fólki færi á að skoða sig um í húsinu, auk þess sem tónleikar verða stanslaust á meðan húsið er opið. Einnig verður boðið upp á að skoða námsefni auk þess sem nemendur kynna hluta af því sem þau eru að gera. Fyrirhugað er að húsið opni kl. 11:00 og verði opið til kl. 15:00.

Við hvetjum bæjarbúa að kom þessar helgar, en fyrirkomulagið verður þannig að hver og einn ræður hvenær á opnunatímanum hann kemur og hvað hann vill staldra lengi við.

Jóhann Morávek, skólastjóri Tónskóla A-Skaft.

Líf og fjör í Tónskólanum

Vel heppnuð spilliefnasöfnun Áhaldahússins

Aðalfundur Framsóknarfélags Austur Skaftfel l inga

verður haldinn í Ásgarði á Höfn, þriðjudaginn 21. febrúar n.k. klukkan 20:00.

• Venjuleg aðalfundarstörf

• Önnur mál

Þingmennirnir Sigurður Ingi Jóhannsson og Ásmundur Einar Daðason mæta á fundinn.

Stjórnin

Opinn súpufundur FramsóknarEygló Harðardóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson verða með opinn súpufund, miðvikudaginn 22. febrúar n.k. klukkan 12:00Fundurinn verður á Hótel Höfn.

Þingmenn Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi

Page 4: Eystrahorn 7. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 16. febrúar 2012

Frá því að sala og dreifing á rafmagni var aðskilin hefur kostnaður vegna raforkudreifingar í dreifbýli aukist til mikilla muna, mun meira en í þéttbýli. Sá munur nemur nú 2.10 - 2.50 kr./kwh. með 25,5% vsk. samkvæmt verðskrá Rarik, eftir að styrkur ríkisins uppá 0,55 kr./kwh. hefur verið tekinn inn í. Þar að auki er svokallað fastagjald u.þ.b. 40% hærra í dreifbýlinu samkvæmt sömu verðskrá. Þessi mismunur skekkir samkeppnishæfni fyrirtækja í dreifbýli. Rafmagnið er eitt af grunnþörfum samfélagsins óháð búsetu. Veltum fyrir okkur þessu óréttlæti, því hér eru um verulega miklar fjárhæðir að ræða. Hvað rök liggja að baki þessari verðlagningu? Raforkunni er dreift út um landið af Landsneti. RARIK kaupir orkuna við aðveitustöð. Aðveitustöðvar eru oft staðsettar í dreifbýli, á bújörðum. Getur verið sanngirni að bújarðir í næsta nágrenni aðveitustöðvarinnar borgi hærra gjald en í þéttbýlinu sem stendur fjarri aðveitustöðinni? Einnig má spyrja sig að því hvort menn telji það réttlæti að þeir bóndabæir sem standa í nágrenni virkjana borgi hærra gjald en fyrirtæki í þéttbýli sem standi fjær þeim? Rétt er að minna á að raflínur liggja víðast hvar um eignarlönd bænda sem nú greiða hæsta gjald fyrir dreifingu á orkunni. Flutningskostnaður á raforku hefur hækkað langt um fram flutningskostnað á ýmsum öðrum rekstrarvörum. Ennfremur er mikill ójöfnuður fólginn í þeim aðstöðumun sem íbúar og fyrirtæki á köldum svæðum búa við í samanburði við íbúa og fyrirtæki þar sem

heitt vatn hefur fundist. Hér er þörf á leiðréttingu, auknu átaki til jarðhitaleitar eða leit að nýjum og hagkvæmari orkugjöfum með það að markmiði að lækka orkukostnað íbúa og fyrirtækja þar sem orkukostnaður er kominn yfir þolmörkin. Sveitastjórnir, Alþingi og ríkisstjórn hljóta að taka þetta upp á sína arma enda um mikið hagsmunamál landsbyggðarinnar að ræða og ekki síst fyrirtækja í sveitum landsins.

Úrbóta er þörfÖllum hlýtur að vera ljóst að þessum mismun verður að eyða svo allir greiði sama verð fyrir dreifinguna. Það er mikill misskilningur hjá þeim sem halda að rafmagnið verði til í þéttbýlinu. Á fundi ríkistjórnarinnar sem haldinn var á Ísafirði 5. apríl 2011 var fjallað um húshitunarkostnað á köldum svæðum. Í framhaldi af þeim fundi var skipaður starfshópur sem hefur gert tillögu til úrbóta til að jafna húshitunarkostnað á köldum svæðum. Hann gerir tillögur um að tekið verði á dreifingarþættinum varðandi húshitunina en ekki á allri raforkudreifingunni enda átti umræddur starfshópur fyrst og fremst að fjalla um leiðir til lækkunar á húshitunarkostnaði. Nauðsynlegt er að taka á dreifingarþættinum í heildarraforkuverði í dreifbýlinu. Að lokum vil ég skora á Bændasamtökin, sveitarstjórnir og þingmenn að vinna að þessu máli þannig að raforkudreifing í dreifbýli lækki í samræmi við það sem hún er í þéttbýli.

Eiríkur Egilsson

Mismunandi dreifingarkostnaður á raforku

Neðangreindar upplýsingar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.

Hvanney SF 51 .................... net .........7......... 75,7 ..þorskur 73,7Sigurður Ólafsson SF 44 .... net .........2......... 26,2 ..þorskur 25,1Skinney SF 20 ..................... net .........6......... 49,2 ..þorskur 46,9Þórir SF 77 .......................... net .........7......... 96,6 ..þorskur 93,9Steinunn SF 10 .................... botnv .....2....... 141,3 ..blandaður afliBenni SU 65 ........................ lína .........2......... 14,6 ..þorskur 11,0Beta VE 36 .......................... lína .........2........... 7,1 ..ýsa/þorskur Dögg SU 118 ....................... lína .........5......... 39,2 ..þorskur 25,9Guðmundur Sig SU 650 ..... lína .........1........... 5,8 ..ýsa/þorskurRagnar SF 550 ..................... lína .........1........... 7,7 ..ýsa/þorskur Siggi Bessa SF 97 ............... lína .........1........... 6,4 ..þorskur/ýsaÁsgrímur Halldórsson SF 250 ...........3...................4.280 tonn loðnaJóna Eðvalds SF 200...........................5...................2.650 tonn loðna

Heimild: www.fiskistofa.is

Aflabrögð 30. janúar - 12. febrúar (2 vikur)

Fiskirí og vinnslaÞær upplýsingar fengust hjá Skinney-Þinganesi að loðnuveiðar hafa gengið vel undanfarnar vikur. Búið er að veiða yfir 25.000 tonn af 47.000 tonna kvóta. Verið er að frysta stærstu loðnuna á Rússlands- og Kínamarkað. Mjög góð netaveiði hefur verið undanfarið þrátt fyrir misjafna tíð og hafa bátar verið að fá allt uppí 42 tonn í róðri.

Aðalfundur Samkórs Hornafjarðar verður haldinn 21.febrúar í safnaðarheimili Hafnarkirkju kl 21:00.Dagskrá:• Venjuleg aðalfundarstörf• Önnurmál

Stjórnin

Aðalfundur Handraðansverður haldinn

þriðjudaginn 28. febrúar 2012 kl. 20:30 í húsi AFLs

Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórnin

Page 5: Eystrahorn 7. tbl. 2012

Auglýsing um skipulag • Sveitafélagið Hornafjörður

Tillaga að deiliskipulagi þjónustusvæðis Skaftafells ÖræfumBæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Deiliskipulagssvæðið nær til:

þjónustuhlaðs í Skaftafelli, •

þjónustumiðstöðvar, gistiflata og Sandasels á aurnum framan við Bæjarsker og Bölta, •

syðsta hluta Skaftafellsheiðar,•

bæjarhlaða Hæða, Sels og Bölta og brekkufótarins og giljanna austan og sunnan við þau.•

Deiliskipulag og greinargerð verður til sýnis á bæjarskrifstofu Hornafjarðar Hafnarbraut 27 á venjulegum opnunartíma frá og með mánudeginum 20. febrúar 2012 til og með þriðjudagarins 10. apríl 2012.

Breytingartillagan og greinargerð er einnig til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 10. apríl 2012 og skal senda þær á netfangið [email protected] eða skila þeim á bæjarskrifstofur Hornafjarðar Hafnarbraut 27 780 Höfn.

Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests telst henni samþykkur.

F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar 16. febrúar 2012 Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, yfirmaður umhverfis- og skipulagsmála

Spánn sumarið 2012

Kæru FossfélagarNú er íbúðin á Spáni laus til umsóknar

Sótt er um á orlofsvef Foss

umsóknarfrestur er til 5. mars 2012Íbúðin er leigð út í 2 vikur í senn og er skiptidagur þriðjudagur

Leigutími byrjar 15. maí 2012 Nánari upplýsingar á www.foss.bsrb.is

Page 6: Eystrahorn 7. tbl. 2012

SPRENGIDAGUR NÁLGAST!

mar

khon

nun.

is

Skráðu þig á póstlistann á www.netto.isMjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær - Borgarnes

Tilboðin gilda 16. - 19. febrúar eða meðan birgðir endast

1.689kr/kg

áður 1.898 kr/kg

798kr/pk.

áður 998 kr/pk.

799kr/pk.

áður 898 kr/pk.

ÞORSKHNAKKARLÉTTSALTAÐIRBLÁMAR

STEINBÍTUROKKAR - ROÐ OG BEINL.800 G

HEILSUFISKIBOLLUR800 GEKTAFISKUR

1.439kr/kg

áður 2.398 kr/kg

NAUTAGÚLLASFERSKT

BACON

1.391kr/kg

áður 1.529 kr/kg

Birt

með

fyrir

vara

um pr

entv

illur o

g myn

davíx

l.

EPLIPINK LADY2KG KASSI

34%afsláttur

40%afsláttur

398kr/pk.

áður 498 kr/pk.

DR PEPPER6X330 ML

39kr/stk.

áður 59 kr/stk.

SALTKJÖT

SÍÐUBITAR 40%afsláttur

Kræsingar & kostakjör

298kr/kg

áður 497 kr/kg

SALTKJÖTÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

558kr/kg

áður 698 kr/kg

399kr/pk.

áður 467 kr/pk.

68 KR

399kr/pk.

áður 487 kr/pk.

88 KR

399kr/pk.

áður 489 kr/pk.

90 KR

BROWNIEGULRÓTARKAKADJÖFLATERTA SPLASH SAFIEPLA, APPELSÍNU EÐA SÓLBERJA200 ML

798kr/pk.

GJAFAPOKIFYLGIR FRÍTT MEÐ!