eystrahorn 8. tbl. 2016

6
Fimmtudagur 25. febrúar 2016 www.eystrahorn.is Eystrahorn 8. tbl. 34. árgangur www.eystrahorn.is Mikið var um dýrðir þegar árshátíð ferðaþjónustunnar á Suðurlandi var haldin að Hótel Vatnsholti í Flóa þann 19. febrúar síðastliðinn. Um var að ræða síðbúna uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar þar sem þátttaka var opin öllum ferðaþjónustuaðilum á Suðurlandi og því kjörinn vettvangur til að gera upp árið 2015 og stilla saman strengi fyrir nýbyrjað ár. Met þátttaka var á viðburðinn sem menn voru sammála um að heppnaðist mjög vel í alla staði. Dagskráin hófst á málþingi þar sem áhugaverð erindi komu fram. Dagný H. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands opnaði þingið sem bar heitið „Saman erum við sterkari“ og um fundarstjórn sá Eydís Indriðadóttir, sveitarstjóri Flóahrepps. Fyrstur á mælendaskrá var Hörður Þórhallsson, nýráðinn framkvæmdastjóri stjórnstöðvar ferðamála þar sem hann fór yfir stöðu mála og verkefnin framundan. Þá fóru þær Ingunn Jónsdóttir, verkefnastjóri Háskólafélags Suðurlands og Sandra D. Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Fræðslunets Suðurlands yfir mikilvægi menntunar í ferðaþjónustu og kynntu m.a. nýja ferðamálabrú sem er í undirbúningi í erindi sem þær nefndu „Að græða á fræðslu og fingri“. Sævar Freyr Sigurðsson, eigandi Saga Travel á Akureyri sagði svo frá vexti og árangri sem hann hefur náð með sitt fyrirtæki og mikilvægi samvinnu og samstöðu í þeim árangri. Að lokum steig Anna Steinsen, stjórnenda- og heilsumarkþjálfi í pontu og flutti frábært erindi sem bar heitið „Þú getur haft áhrif“. Að málþingi loknu var boðið uppá örferð um Flóann þar sem gestum gafst kostur á að heimsækja aðila í ferðaþjónustu á svæðinu og kynna sér gistingu, afþreyingu, handverk og menningu í Flóanum. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir góðar móttökur. Um kvöldið var svo boðið uppá flotta dagskrá með bjórkynningu frá Ölvisholti Brugghúsi í Flóa, kvöldverði, happdrætti og skemmtun þar sem veislustjórinn, Kári Viðarsson leikari, fór á kostum. Heiðursgestur kvöldsins var Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála. Ragnheiður Elín afhenti viðurkenningar Markaðsstofunnar, en viðurkenninguna „Sproti ársins 2015“ hlaut Gamla Laugin á Flúðum fyrir metnaðarfulla og flotta uppbyggingu og tók Björn Kjartansson, eigandi Gömlu Laugarinnar, ásamt unnustu sinni við viðurkenningunni. Viðurkenninguna „Framlag til ferðaþjónustunnar“ hlaut fjölskyldan á Geysi fyrir sitt ötula starf, fagmennsku og óeigingjarnt framlag í þágu ferðaþjónustunnar á svæðinu í gegnum árin. Má með sanni segja að störf þeirra hafi endurspeglað þema dagsins „saman erum við sterkari“. Mábil G. Másdóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd fjölskyldunnar. Kvöldið endaði svo á léttum nótum og dansi þar sem Sunnlendingurinn Ingó hélt uppi stemningunni með gítar og söng. Vel heppnuð árshátíð ferðaþjónustunnar á Suðurlandi Frá vinstri: Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, Dagný H. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands, Mábil G. Másdóttir frá Hótel Geysi, Björn Kjartansson, eigandi Gömlu Laugarinnar ásamt unnustu sinni og Valgerður Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá Markaðsstofunni. Stórtónleikar í Pakkhúsinu kl. 21:00 Fram koma: Jasscombo Hornfjarðar með Dixielandhljómsveit. • Sönghópurinn Sex í stuði flytur nokkur lög. BigBand Hornafjarðar leikur viðeigandi tónlist. Óskar Guðjónsson saxafónleikari gestaspilari. Aðgangseyrir 1.000- kr. Hátíðin heldur svo áfram 11. – 12. mars facebook.com/hornablues

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 26-Jul-2016

253 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 8. tbl. 2016

Fimmtudagur 25. febrúar 2016 www.eystrahorn.is

Eystrahorn8. tbl. 34. árgangur www.eystrahorn.is

Mikið var um dýrðir þegar árshátíð ferðaþjónustunnar á Suðurlandi var haldin að Hótel Vatnsholti í Flóa þann 19. febrúar síðastliðinn. Um var að ræða síðbúna uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar þar sem þátttaka var opin öllum ferðaþjónustuaðilum á Suðurlandi og því kjörinn vettvangur til að gera upp árið 2015 og stilla saman strengi fyrir nýbyrjað ár. Met þátttaka var á viðburðinn sem menn voru sammála um að heppnaðist mjög vel í alla staði. Dagskráin hófst á málþingi þar sem áhugaverð erindi komu fram. Dagný H. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands opnaði þingið sem bar heitið „Saman erum við sterkari“ og um fundarstjórn sá Eydís Indriðadóttir, sveitarstjóri Flóahrepps. Fyrstur á mælendaskrá var Hörður Þórhallsson, nýráðinn framkvæmdastjóri stjórnstöðvar ferðamála þar sem hann fór yfir stöðu mála og verkefnin framundan. Þá fóru þær Ingunn Jónsdóttir, verkefnastjóri Háskólafélags Suðurlands og Sandra D. Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Fræðslunets Suðurlands yfir mikilvægi menntunar í ferðaþjónustu og kynntu m.a. nýja ferðamálabrú sem er í undirbúningi í erindi sem þær nefndu „Að græða á fræðslu og fingri“. Sævar Freyr Sigurðsson, eigandi Saga Travel á Akureyri sagði svo frá vexti og árangri sem hann hefur náð með sitt fyrirtæki og mikilvægi samvinnu og samstöðu í þeim árangri. Að lokum steig Anna Steinsen, stjórnenda- og heilsumarkþjálfi í pontu og flutti frábært erindi sem bar heitið „Þú getur

haft áhrif“. Að málþingi loknu var boðið uppá örferð um Flóann þar sem gestum gafst kostur á að heimsækja aðila í ferðaþjónustu á svæðinu og kynna sér gistingu, afþreyingu, handverk og menningu í Flóanum. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir góðar móttökur. Um kvöldið var svo boðið uppá flotta dagskrá með bjórkynningu frá Ölvisholti Brugghúsi í Flóa, kvöldverði, happdrætti og skemmtun þar sem veislustjórinn, Kári Viðarsson leikari, fór á kostum. Heiðursgestur kvöldsins var Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála. Ragnheiður Elín afhenti viðurkenningar Markaðsstofunnar, en viðurkenninguna „Sproti ársins 2015“ hlaut

Gamla Laugin á Flúðum fyrir metnaðarfulla og flotta uppbyggingu og tók Björn Kjartansson, eigandi Gömlu Laugarinnar, ásamt unnustu sinni við viðurkenningunni. Viðurkenninguna „Framlag til ferðaþjónustunnar“ hlaut fjölskyldan á Geysi fyrir sitt ötula starf, fagmennsku og óeigingjarnt framlag í þágu ferðaþjónustunnar á svæðinu í gegnum árin. Má með sanni segja að störf þeirra hafi endurspeglað þema dagsins „saman erum við sterkari“. Mábil G. Másdóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd fjölskyldunnar.Kvöldið endaði svo á léttum nótum og dansi þar sem Sunnlendingurinn Ingó hélt uppi stemningunni með gítar og söng.

Vel heppnuð árshátíð ferðaþjónustunnar á Suðurlandi

Frá vinstri: Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, Dagný H. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands, Mábil G. Másdóttir frá Hótel Geysi, Björn Kjartansson, eigandi Gömlu Laugarinnar ásamt unnustu sinni og Valgerður Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá Markaðsstofunni.

Stórtónleikar í Pakkhúsinu

kl. 21:00

Fram koma:• Jasscombo Hornfjarðar með

Dixielandhljómsveit.• SönghópurinnSexístuðiflyturnokkurlög.• BigBand Hornafjarðar leikur viðeigandi tónlist.

Óskar Guðjónsson saxafónleikari gestaspilari.

Aðgangseyrir1.000-kr.Hátíðinheldursvoáfram11.–12.mars

facebook.com/hornablues

Page 2: Eystrahorn 8. tbl. 2016

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 25. febrúar 2016

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Aðalsafnaðarfundur Hafnarsóknar og kirkjugarðanna á Höfn og StafafelliFundurinn verður haldinn á Hótel Höfn eftir

messu sunnudaginn 6. mars nk. kl. 12:00.Venjuleg aðalfundarstörf

og umræða um 50 ára vígsluafmælisár Hafnarkirkju

Boðið verður upp á súpu, kaffi og meðlætiSóknarnefnd

Til sölu á HöfnFord Explorer árgerð 2006, ekinn

141.000 km.Verð 1.300.000,00

Sími 846-4420 Pawel

Kvenfélagið TíbráAðalfundur kvenfélagsins Tíbrár verður í Ekrunni miðvikudaginn

2. mars klukkan 20:00.

Starfsemi félagsins undanfarin ár hefur verið lítil og því er stefnt að því

að félagið fari aftur í hvíld.

Stjórn kvenfélagsins Tíbrár

HafnarkirkjaKyrrðarstund á föstu

kl. 18:15 alla miðvikudaga fram að páskum.

Prestarnir

Hafnarkirkja

50 ára

Kaþólska kirkjanSunnudagur 28. febrúar.Heilög messa kl. 12:00þriðja sunnudag í föstu.

Pétur

Félagsstarf í EKRUNNI

FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR KL. 17:00 SAMVERUSTUND Í EKRUNNIÞjóðgarðurinn og samfélagið Helga Árnadóttir sérfræðingur hjá Vatnajökulsþjóðgarði verður með skemmtilegt erindi ásamt myndasýningu.

RjóMAVÖFFLUBALLRjómavöffluball í Ekrunni sunnudaginn 28. febrúar kl. 16:00-17:30. Það eru Hilmar og fuglarnir sem leika fyrir dansi og þeir halda vel takti.Kostar 500 kr. inn. Komið og fáið ykkur snúning. Eru ekki allir í stuði !!

Dansnefndin

FéLAGSVISTÞriggja kvölda félagsvistin byrjar fimmtudaginn 3. mars kl. 20:00.

Spilanefndin

AtvinnaStarfsmann vantar til sumarafleysinga frá 15. maí til 31. ágúst hjá Eimskip á Höfn. Meirapróf og lyftararéttindi æskileg.

Upplýsingar veitir Heimir í síma 894-4107.

Page 3: Eystrahorn 8. tbl. 2016

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 25. febrúar 2016

AtvINNAMig vantar manneskju í hlutastarf við umbúnað og þrif o.fl. í apríl og maí.

Einnig er laust starf í sumar.

Upplýsingar í síma 478-1550 og 896-6412.

Félagsvist í EkruÞriðja og síðasta spilakvöldið verður fimmtudagskvöldið 25. febrúar kl. 20:00 í Ekrusalnum.

Verðlaun verða veitt fyrir hvert kvöld og síðan heildarverðlaun fyrir öll kvöldin.

Aðgangseyrir 1000 kr. Kaffiveitingar innifaldar.

Allir velkomnir

Fjáröflun 8. bekkjar vegna skíðaferðar í Oddskarð.

Deiliskipulag Útbæ Höfn

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur unnið að deiliskipulagi fyrir Útbæ á Höfn í Hornafirði.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti tillöguna á fundi sínum þann 11. febrúar 2016. Skipulagsnefnd fjallaði um tillöguna á fundi sínum þann 3. febrúar 2016.

Tillagan var kynnt í samræmi við 30-31. gr. Skipulagslaga.

Tillagan var kynnt á tímabilinu 11. desember 2015 til og með 23. janúar 2016. Athugasemdafrestur rann út þann 23. janúar. Alls bárust þrjár athugasemdir sem leiddu til breytinga á tillögunni. Helstu ákvæði friðlýsingar svæðisins var bætt á skipulagsuppdrátt, kvöðum vegna grundunnar var bætt á skipulagsuppdrátt og hámarksmænishæð var lækkuð í 7,5 m. Ofangreindar athugasemdir hafa ekki áhrif á megin markmið eða forsendur deiliskipulagsins og breyta því ekki tillögunni í grundvallaratriðum.

Bréf hefur verið sent til þeirra sem gerðu athugasemdir og þeim kynnt afgreiðsla bæjarstjórnar og svör athugasemda.

Deiliskipulagstillagan verður send til Skipulagsstofnunar til staðfestingar.

Þeir sem óska upplýsinga geta snúið sér til skipulagsstjóra sveitarfélagsins.

Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Auglýsing um framkvæmdaleyfi

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti að veita framkvæmdaleyfi fyrir olíuskilju við Olís á Höfn og að verkið skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/ 2000. Ákvörðunin liggur frammi hjá Sveitarfélaginu Hornafirði á heimasíðu sveitarfélagsins. Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til 24. mars 2016.

Höfn í Hornafirði 19. febrúar. 2016 F.h. bæjarstjórnar, Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsstjóri

- Föstudagshádegi í Nýheimum -

matur og heilsa í NýheimumVantar þig orku? Kíktu á Nýtorg í föstudagshádegi kl. 12:15. Heilsusamlegur hádegisverður í teríunni,

reynslusögur, smakk á hollari sætindum og kynning á vörum úr heilsuganginum í Nettó

Allir velkomnir!

Page 4: Eystrahorn 8. tbl. 2016

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 25. febrúar 2016

Sími 455 54 00

Fax 455 54 99

[email protected]

byggdastofnun.is

Hefur þú rétt á styrk til jöfnunar flutningskostnaðar?

Þeir sem geta sótt um styrk eru einstaklingar og lögaðilar sem:

� stunda framleiðslu á vörum sem falla undir c-bálk íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar ÍSAT2008. Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.

� flytja þurfa framleiðsluvöru sína meira en 245 km frá framleiðslustað á innanlandsmarkað.

Opnað verður fyrir umsóknir 1. mars og er umsóknafrestur til og með 31. mars.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Byggðastofnunar og í síma 455-5400.

Styrkir

Lionsklúbbur Hornafjarðar færði Skjólgarði píanó fyrir skömmu. Lengi hefur verið píanó á heimilinu sem hefur ekki verið nægilega gott en á Skjólgarði eru reglulega haldnir tónleikar, nemendur Tónskólans spila fyrir íbúa og íbúar spila hver fyrir annan. Einnig eru haldin þorrablót, jólasamvera, afmæli og fleira þar sem píanóið er notað. Starfsfólk vill nota tækifærið og þakka kærlega fyrir þessa góðu gjöf sem mun nýtast vel fyrir íbúa heimilisins.

Lionsmenn gefa píanóAuglýsing vegna breytingar á deiliskipulagi við Skaftafell

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum þann 12. febrúar að auglýsa breytingu á deiliskipulagi við Skaftafell.

Markmið deiliskipulagstillögunar er að bregðast við aukinni aðsókn akandi ferðamanna með því að fjölga bílastæðum á svæðinu og auka umferðarstýringu. Aðlaga staðsetningu byggingarreita að breyttri staðsetningu bílastæða. Einnig að aðgreina tjaldsvæðisumferð frá annarri umferð á svæðinu.

Deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð verður til kynningar í ráðhúsi sveitarfélagsins Hafnarbraut 27, 780 Höfn á opnunartíma frá og með 22. febrúar til og með 4. apríl 2016 og á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila athugasemd er til 5. apríl 2016 og skal skilað skriflega á bæjarskrifstofur Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið [email protected]

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsstjóri

KnattspyrnuskóliSindraogJako áHornafirði4.-6.mars2016

Fyrir stelpur og stráka í 5., 4.og 3.flokki. Verð kr. 12.500 Skráning í Nóra (hornafjordur.felog.is) eða [email protected]ð verður yfir öll helstu atriði knattspyrnunnar með æfingum og fyrirlestrum. Boðið verður uppá úrvals dagskrá sem inniheldur m.a æfingar, fyrirlestra, mat, sund og afþreyingu. Skólagisting í boði. Sérmerktur Jako bolur fylgir námskeiðinu Kennarar og fyrirlesarar:• Heimir Hallgrímsson A-landsliðsþjálfari, • Auðun Helgason þjálfari Sindra• og fyrrum landsliðsmaður• Greta Mjöll Samúelsdóttir fyrrum landliðskona • Þrándur Sigurðsson þjálfari hjá Víking RVK• Sævar Gylfason þjálfari hjá FH• Ólafur Jónsson markmannsþjálfari Sindra• Seval Zahirovic þjálfari Sindra• Nihad Cober Hasecic þjálfari hjá Grindavík• Jóna Benný Kristjánsdóttir þjálfari• og fleiriAllar nánari upplýsingar gefur Valdemar í síma 868-6865

Stjórn Knattspyrnudeildar Sindra

Page 5: Eystrahorn 8. tbl. 2016

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 25. febrúar 2016

Nytjamarkaðurinn Hirðingjar afhenti 1.710 þúsund krónur árið 2015.Tekjur af búðinni voru 1.200 þúsund og nokkur fyrirtæki gáfu 410 þúsund í verkefni okkar í október sl. Einnig voru gefnir munir að verðmæti um 100 þúsund, en þetta verkefni var tileinkað Dagvist fatlaðra á Höfn. Og nú er komið árið 2016 og vonum við að það gangi jafn vel og síðastliðið ár. Síðasta opnun í Miklagarði er fimmtudaginn 25. febrúar og er opið frá kl. 16:30 til 18:30 og verður bara eitt verð, 500 kr. Spurningin er: Hvað getur þú fengið fyrir 500 kall? Svo minnum við enn og aftur á markaðinn í Verslun Steingríms og gula kassann fyrir utan. Munið að dótið sem þið ætlið að henda og eruð orðin leið á geta nýst öðrum og peningarnir sem koma inn í markaðinn fara í góð málefni.

Með kveðju, Hirðingjarnir

Gerð víravirkisNemendur fá grunnkennslu í gerð víravirkis og læra meðhöndlun áhalda og efna. Gert er eitt prufustykki sem leiðbeinandi setur fyrir en síðan vinna nemendur verkefni t.d. millusett eða annað sambærilegt. Efni í prufustykki er innifalið en annað efni er til sölu í Annríki. Hver nemandi fær lánaðan nauðsynlegan verkfærapakka meðan á námskeiðinu stendur. Gera þarf ráð fyrir einhverri heimavinnu.Tími: Laugardagar og sunnudagar helgarnar 2. - 3. apríl og 15. - 16. apríl kl. 10:00 - 14:30Lengd: 18 stundirStaður: Vöruhúsið, HöfnLeiðbeinandi: Ásmundur Kristjánsson, gullsmiðurVerð: 76.000Fjöldi: Lágmark 10

Skráning fer fram hjá Möggu Gauju í síma 664-5551, [email protected] og á facebook.

Ungmennafélagið Sindri leitar að FRAMKVÆMDASTJÓRA

Ungmennafélagið Sindri leitar eftir öflugum og kraftmiklum einstaklingi til að gegna starfi

framkvæmdastjóra hjá félaginu.Við leitum að einstaklingi með góða

samskiptahæfni, óbilandi áhuga á íþróttum, góða tölvukunnáttu og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Gott væri að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.Nánari upplýsingar gefur Valdemar

í síma 868-6865.Umsóknir og ferilskrá berist á netfangið

[email protected] fyrir 4. mars n.k.

1.200 - 410 - 100

Hirðingjarnir og Kiwanisklúbburinn Ós gáfu íbúum Mjallhvítar nýtt sjónvarpstæki fyrir síðustu jól.

Leikfélag Hornafjarðar og Framhaldsskóli Austur Skaftafellssýslu

sýna leikritin

P e r f e c t eftir Hlín Agnarsdóttur

og

t j a l d i ðeftir Hallgrím Helgason

í MánagarðiLeikstjóri Jón Stefán Kristjánsson

Frumsýning 4. mars kl. 19:00.Önnur sýning 5. mars kl. 19:00.Þriðja sýning 6. mars kl. 19:00.

Takmarkaður sýningafjöldi.Miðaverð 2.500 kr. (tökum ekki kort).

Miðpantanir hjá Ingólfi í síma 892 9354 eða [email protected].

Page 6: Eystrahorn 8. tbl. 2016

Viltu

öðla

st sj

álfst

raus

t og

læra

fara

út

fyrir

kas

sann

og

vera

þú

sjálfu

r?

Skrá

ning

fer

fram

hjá

Mög

gu G

auju

í sím

a 66

4555

1, g

auja

@fas

.is o

g á

face

book