Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · einnig matardagbók og önnur einföld verkefni...

19
Menntaskólinn á Akureyri Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk á skólaárinu 2014 – 2015 Vorönn 2014

Upload: others

Post on 07-Feb-2020

1 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

Menntaskólinn á Akureyri

Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk

á skólaárinu 2014 – 2015

Vorönn 2014

Page 2: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

Valgreinar í boði skólaárið 2014-2015

1

Nemendur í MA þurfa að ljúka samtals 15 einingum í frjálsu vali. Í bæklingnum eru lýsingar á þeim áföngum sem ykkur býðst að taka í frjálsu vali skólaárið 2014 – 2015. Frjálst val gefur nemendum tækifæri til þess að víkka eða dýpka þekkingu sína á ýmsum sviðum. Af þessum sökum hafa sumir áfangar undanfara en aðrir ekki. Mikilvægt er að nemendur kynni sér kröfur um undanfara áður en þeir velja áfanga. Ýmsar reglur sem tengjast vali: Nemendur geta nýtt einingar úr öðrum framhaldsskólum, myndlistarskólum eða tónlistarskólum sem valeiningar. Nemendur sem eiga aukalega einingar fyrir t.d. skólasókn, kór- eða leiklistarstarf, íþróttir utan skóla, skyndihjálp o.fl., geta ekki nýtt sér þessar einingar í staðinn fyrir frjálst val. Í sumum áföngum eru fjöldatakmarkanir. Nemendur með bestu skólasóknina ganga fyrir í þá áfanga. Sama gildir þegar áfangar fyllast, þá ganga fyrir nemendur með bestu skólasóknina. Nemendur sem skila vali of seint lenda á biðlista ef áfangi er orðinn fullur. Bindandi val

1. Sú almenna regla gildir að nemendur eiga að standa við val sitt. 2. Í undantekningartilvikum geta nemendur sótt um til sviðsstjóra að skipta um valgrein í

fyrstu viku annarinnar en þó er einungis tekið tillit til slíkra óska ef hópastærð þeirra valgreina sem um ræðir leyfir.

3. Nemendur geta ekki hætt í valgrein eftir að önn er hafin. Nemandi getur sagt sig úr valgrein áður en önnin hefst, en aðeins ef hópastærð leyfir.

Val á áföngum í Innu – 2. bekkur Nemendur í 2. bekk á raungreinasviði velja einn áfanga í frjálsu vali fyrir haustönn 2014 (20142) úr blokk II. 2. bekkur RGS

Val 2014 á haustönn: Einn áfangi úr blokk II og tveir til vara

Nemendur í 2. bekk á tungumála- og félagsgreinasviði velja einn áfanga í frjálsu vali haustönn 2014 (20142) úr blokk I. 2. bekkur TFS

Val 2014 á haustönn: Einn áfangi úr blokk I og tveir til vara

Val á áföngum í Innu – 3. bekkur

Page 3: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

2

Nemendur í 3. bekk á raungreinasviði velja tvo áfanga í frjálsu vali fyrir haustönn 2014 (20142) og einn áfanga fyrir vorönn 2015 (20151). Valið á haustönn er blokkaskipt og þarf annar áfanginn að vera úr blokk I og hinn úr blokk II. 3. bekkur RGS

Val 2014 á haustönn: Einn áfangi úr blokk I og tveir til vara

Val 2014 á haustönn: Einn áfangi úr blokk II og tveir til vara

Val 2015 á vorönn: Einn áfangi og tveir til vara

Nemendur í 3. bekk á tungumála- og félagsgreinasviði velja einn áfanga í frjálsu vali fyrir vorönn 2015 (20151). 3. bekkur TFS

Val 2015 á vorönn: Einn áfangi og tveir til vara

Page 4: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

3

Leiðbeiningar til nemenda um val á áföngum Munið að alltaf þarf að skrá tvo áfanga til vara

1. Opnaðu Innu með notendanafni þínu og lykilorði.

2. Smelltu á hnapp sem heitir NÁMSFERILL (vinstra megin á síðunni)

3. Smelltu á BREYTA NÁMSFERLI (grár rammi hægra megin)

4. Smelltu á SKRÁ ÁFANGA (grár rammi, ofarlega hægra megin)

5. Staðfestu að önnin sé rétt: 20142 fyrir haustönn 2014 eða 20151, fyrir vorönn 2015. ATH að

ef þú ert að velja valgrein fyrir báðar annar þarftu fyrst að velja fyrir 20142 og fara síðan út,

og skrá því næst fyrir 20151.

6. Skráðu síðan einn áfanga í einu.

*Veldu áfanga af listanum.

* Uppbygging: Breyttu uppbyggingu í val (fyrir valgreinar)

* Val: Áfanginn sem þú velur sem fyrsta val fær nr. 1 í röð vals og hinir tveir fá sjálfkrafa nr.

2 og 3

7. Smelltu á NÝSKRÁ

8. Ef þú gerir villu og þarft að eyða áfanga: Smelltu á áfangann og veldu EYÐA (neðst í

vinstra horni)

Skrá áfanga

Skólaár: 20151

Áfangi Uppbygging Val Forgangur Röð vals Staða

NOG2P050 Val Aðalval Nei 1 Áætlun

LÍF3R050 Val Varaval Nei 2 Áætlun

Áfangi:

Uppbygging:

Val:

Röð vals:

Námsferill

LFF103

Val

Varaval

3

Page 5: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

4

Valgreinar í boði á haustönn 2015 – blokk I (3. bekkur TFS og 4. bekkur RGS)

Íþróttir BHB3V050 Betri heilsa – bætt líðan Markmið áfangans er að nemendur byggi sig upp og bæti lífstíl sinn líkamlega og andlega. Nemendur eru hvattir til að efla sig á sem fjölbreyttastan hátt og nýta sér stuðning hver annars. Skipulögð hreyfing er þrisvar sinnum í viku, blandaðir tímar fyrir þol, styrk og liðleika. Hver og einn setur sér markmið hvað varðar heilsu, lífstíl, næringar- og líkamsástand. Líkamsástandsmælingar, einstaklingsviðtöl og ráðleggingar varðandi hreyfingu og mataræði. Unnið er sameiginlega að gagnagrunni eins og að útbúa matseðla og teknar saman einfaldar og hollar uppskriftir. Nemendur æfa sig í að búa sér í haginn og spara þar með peninga og tíma í leiðinni. Lítið hópefli og/eða hópverkefni sem hefur það markmiði að styðja hvert annað og hafa gaman af. Leitast verður við að allir finni sína hreyfingu. Námsefni: Frá kennara og af netinu Námsmat: Mæting og virkni í tímum gildir mest. Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar, spænskar, þýskar) Áfanginn er ætlaður nemendum í 3. og 4. bekk á báðum sviðum. Fjölbreytni evrópskra kvikmynda er mjög mikil og í hverju landi eru mismunandi hefðir og stefnur. Í þessum áfanga er ætlunin að gefa sýnishorn af helstu stefnum og straumum nokkurra landa í kvikmyndagerð og vekja athygli á evrópskri menningu. Hver mynd verður skoðuð sem sjálfstætt listaverk og reynt að varpa ljósi á það hvernig kvikmyndir endurspegla evrópsk samfélög og menningu. Rýnt verður í það meðal annars sem er sameiginlegt með evrópskum kvikmyndum og hvað greinir þær frá t.d. amerískum kvikmyndum. Námsefni: Frá kennara Námsmat: Símat NOG2P05050 Norrænar glæpasögur Áfanginn fjallar um norrænar glæpasögur og þær skoðaðar í samhengi við norræna sögu og menningu. Hvað er það sem einkennir þær, er munur á þeim eftir hvaðan þær koma, endurspegla þær á einhvern hátt menningu landsins? Leitast verður við að skoða hvort þær eiga eitthvað sameiginlegt og þá hvað. Námsefni: Valdar glæpasögur eftir sænska, danska, norska og íslenska höfunda. Athugið að það er möguleiki að lesa sögurnar á frummálinu, en að jöfnu miðað við að lesa íslenskar þýðingar. Ítarefni frá kennara. Námsmat: Símatsáfangi án lokaprófs. ÍSL2K050 Íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsþættir Í þessum áfanga verða íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsþættir teknir til umfjöllunar með hliðsjón af kvikmynda- og bókmenntafræði (klassískar erlendar kvikmyndir munu líka

Page 6: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

5

fljóta með). Í viku hverri verður horft á eina kvikmynd í fullri lengd (eða annað sjónvarpsefni) og hún síðan rædd og um hana ritað. Nemendur fá tækifæri til að vinna að stuttmynd. Lykilspurning: Hvernig hefur umhverfið mótað okkur Íslendinga? Hvaða máli skiptir búseta fyrir okkur sem manneskjur? (Hafið, sveitin, borgin) Sem sagt: Er svara við þessum spurningum að leita í íslenskum kvikmyndum? Aðrar spurningar: Einkenni á íslenskum kvikmyndum? Geta íslenskar kvikmyndir sagt okkur eitthvað um þróun íslensks samfélags? (t.d. er varðar tungumálið, samskipti, hefðir) Sameiginleg einkenni íslenskra kvikmynda? Besta íslenska myndin? Bregða íslenskar myndir upp raunsannri mynd af samfélaginu? Þurfum við á íslenskum kvikmyndum að halda? Eru einhver stef, umfjöllunarefni sem koma fyrir aftur og aftur? Aðalmálið er að skoða íslenskt samfélag og breytingar á því. Stefnt verður að því að fá leikstjóra, handritshöfund eða gagnrýnanda í heimsókn. Að sjálfsögðu verður farið í bíó ef áhugaverða íslenska mynd rekur á fjörurnar. Námsefni: Engar námsbækur liggja til grundvallar en nemendur geri ráð fyrir kostnaði við ca. 2 bíóferðir. Skyldumæting er í þessar ferðir. Ef nemendi kemst ekki með hópnum skal hann fara á eigin vegum við fyrsta tækifæri. Námsmat: Áfanginn er próflaus. Athugið að það er mætingaskylda í áfanganum. ÍSL2Y030 Yndislestur Þessi áfangi byggist á sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda og skipulagshæfni þeirra. Þeir velja sér hver um sig 5 skáldsögur af bókalista, lesa þær sjálfstætt á tilteknum tíma og gera kennara grein fyrir þeim í einkaviðtölum. Þeir þurfa að undirbúa viðtalstímana, skila örstuttum skýrslum daginn fyrir viðtölin og vera tilbúnir að svara fyrirspurnum um sögurnar. Námsefni: Bókalistar sem kennarar leggja fram Námsmat: Fimm munnleg próf og umræður um bækurnar. ÞÝS2B050 Berlínarferð Undanfari: ÞÝS2A050/ÞÝS2A040 Áfanginn er ætlaður nemendum í 3. og 4. bekk sem lært hafa þýsku og hafa áhuga á að fara í sögu- og menningarferð til Berlínar. Hvað er Brandenburgertor, Gedächtniskirche, Berliner Mauer, Alexanderplatz, East Side Gallery, Museumsinsel og Nefertiti? Hvernig breyttist Berlín eftir seinni heimsstyrjöldina? Hvað gerðist 1989 og hvernig er borgin í dag? Hvaða söfn eru spennandi? Hvernig er matargerðarlistin? Hvað laðar ungt fólk að borginni? Hvaða byggingar og hverfi eru spennandi? Þetta ásamt fleiru verður tekið fyrir í áfanganum. Nemendur undirbúa langa helgi í Berlín í lok nóvember eða fyrri hluta desember 2014. Þeir setja sig inn í sögu borgarinnar, samgöngur, áhugaverða staði og annað sem vert er að skoða eða gera og kynna fyrir hópnum. Sameiginlega verður síðan ákveðið hvað á að skoða í Berlín og dagskrá ferðarinnar búin til. Þátttakendur verða að vera tilbúnir að leggja á sig undirbúningsvinnu og taka þátt í skipulagi ferðarinnar. Hópurinn hittist þegar að vori 2014 til að ræða fjármál og dagsetningar. Kostnaður: Hver og einn sér um að greiða sinn ferðakostnað. Námsmat: Nemendur mæta í tvær til þrjár kennslustundir á viku, taka þátt í ferðinni og vinna að undirbúningi og úrvinnslu með ýmis konar verkefnavinnu á þýsku og íslensku. Verkefni verða ýmist hóp- eða einstaklingsverkefni. Til að ljúka áfanganum þarf að taka þátt í ferðinni ásamt þessum verkefnum.

Page 7: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

6

Listir og menning FAG1A05 Fatagerð I Nemendur læra að sníða og sauma einfaldar flíkur af ýmsum gerðum. Nemendur læra að nýta sér þau tæki og þá tækni sem tilheyra slíkri vinnu. Áhersla verður lögð á skapandi og sjálfstæð vinnubrögð þar sem nemendur læra að fylgja eftir hugmynd að fullunnu verki. Saga fatnaðar og tísku verður kynnt og skoðuð í menningarlegu og sögulegu samhengi. Undirstöðuatriði textílfræði (vefjarfræði) verða kennd. Kennslan fer fram bæði í fyrirlestrarformi og sem verkleg kennsla. Athugið að áfanginn er kenndur eftir skóla, tvo seinniparta í vikunni. Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Nemendur þurfa sjálfir að koma með saumavél (en geta geymt hana í skólanum). Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Vinnubók og hugmyndavinna 20%, önnur unnin verkefni 70%, frágangur og umgengni við tæki og verkfæri 10%. MYN1A05 Myndlist I Áhersla er lögð á að nemendur kynnist myndsköpun á sem breiðustum grunni og nái að vinna með sem flesta þætti í eigin myndsköpun á skapandi hátt og sjálfstæðan hátt. Kynning á myndlistarmönnum og myndlistarstefnum verður fléttuð inní kennsluna þar sem við á. Nemendur vinna allmörg smærri verkefni sem byggja á tækni og aðferðum og eitt stærra verkefni í lok annarinnar þar sem hver nemandi velur sér viðfangsefni í samráði við kennara. Kennslan fer fram í fyrirlestraformi, umræðum og sem verkleg kennsla. Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Lokaverkefni 30%, önnur verkefni og hugmyndavinna 60%, frágangur og framsetning á myndverkum og umgengni við þau efni og tæki sem notuð verða 10%. MYN2A05 Myndlist II Innihald áfangans miðast við framhald af því sem unnið var með í MYN1A en áhersla er lögð á aukna leikni, sjálfstæði og valfrelsi nemenda hvað varðar viðfangsefni. Nemendur læra einnig mismunandi aðferðir við gerð þrívíðra myndverka (skúlptúra). Áhersla er lögð á að nemendur þrói með sér tilfinningu fyrir formi, litum og listrænu yfirbragði. Fjallað verður um helstu stefnur myndlistar 19. og 20. aldar. Kennslan fer fram í fyrirlestraformi, umræðum og sem verkleg kennsla. Áfanginn er kenndur tvo seinniparta í vikunni eftir skóla Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Lokaverkefni 30%, önnur verkefni og hugmyndavinna 60%, frágangur og framsetning á myndverkum og umgengni við þau efni og tæki sem notuð verða 10%.

Page 8: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

7

Samfélagsgreinar FÉL 2R050 – kynjafræði Í þessum áfanga fá nemendur kynningu á kynjafræði, jafnréttisbaráttu, rauðsokkum og femínisma. Nemendur fá innsýn í margbreytileika mannlífsins og þjálfast í að skoða heiminn með kynjagleraugun á nefinu. Fjallað verður um sögu jafnréttisbaráttunnar, vinnumarkaðinn, fjölmiðla, ofbeldi og stjórnkerfið út frá kyni. Nemendur munu meðal annars rýna í fjölmiðla, bækur og kvikmyndir. Staðalmyndir, tíska, tónlist, vændi, klám og kynbundið ofbeldi verður meðal annars tekið fyrir. Áfanginn byggir á fyrirlestrum frá kennara og gestafyrirlesurum, fjölbreyttri verkefnavinnu, umræðu og sjáfstæðri vinnu nemenda. Námsmat: Áfanginn er símatsáfangi. MEN2A05 Mentorverkefnið Vinátta Orðið mentor er notað um nokkurs konar leiðbeinanda sem aðstoðar yngri og óreyndari aðila við að víkka sjóndeildarhringinn. Áfanginn er skipulagður á þann hátt að mentorinn (nemandinn) eyðir 2 klukkustundum á viku með grunnskólabarni á aldrinum 9-10 ára. Samverustundirnar eiga fyrst og fremst að vera skemmtilegar og uppbyggjandi og mentor skipuleggur þær í samráði við kennara, barnið og foreldra þess. Vinnulag í áfanganum er á þá leið að nemendur hitta kennara nokkrum sinnum á skólaárinu, skila dagbókum og minningabók og mæta á sameiginlega fundi (upphafsdagur, óvissufundur, lokahátíð). Áfanginn hefst í október, endar í lok apríl og er fyrir utan stundatöflu. Námsefni:Frá kennara Námsmat: Verkefnavinna, ekkert lokapróf. Nánari upplýsingar um áfangann er að finna á vefslóðinni http://www.kvenno.is/vinatta/ SAG3M05 „Sagan okkar“ Í áfanganum eru tekin til skoðunar ýmis atriði og þættir úr okkar eigin sögu,- sögu Menntaskólans á Akureyri 1904 til 2014. Svipmyndir frá ólíkum sviðum skólalífsins verða tvinnaðar saman og fjallað um nemendur, kennara, hús, samfélag, nám og kennslu. Nám og kennsla mun fara fram að mestu leyti utan stundaskrár og dreifist á tvær annir,- þ.e. haustönn 2014 og vorönn 2015. Reiknað er með að nemendur og kennari hittist einu sinni í viku og verður tíminn ákveðinn í samráði við nemendur. Námsefni: Stuðst verður m.a. við útgefið efni sem tengist Menntaskólanum á Akureyri og þau gögn í fórum skólans sem aðgengileg eru. Námsmat: Gert er ráð fyrir að áfanginn verði gerður upp með ráðstefnu i lok annar þar sem nemendur kynna verkefni sín. Verkefnin verða af ýmsum toga s.s. myndbönd og stuttir glærustuddir fyrirlestrar. Áhersla verður lögð á áræði og frumleika nemenda við kynningu á efninu. SÁL3S050 Fjölmiðlar og auglýsingar Í áfanganum verða hlutverk og máttur auglýsinga á einstaklinginn og samfélagið skoðuð. Hlutverk fjölmiðla sem áhrifavald við val og ákvarðanir verður rannsakað. Nemendur greina auglýsingar eftir innihaldi og formgerð, kanna markhópa, neyslustýringu og aðferðir við að hafa áhrif á val og skoðanir. Afþreyingaiðnaðurinn sem auglýsingavettvangur verður krufinn. Skoðað verður hvernig ímynd er byggð upp og að hvaða leyti sjálfsmynd og menning styðst við fjölmiðlun og neyslu. Námsefni frá kennara Námsmat felst í verkefnavinnu og lítið lokapróf.

Page 9: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

8

Raungreinar CSI3A050 Réttarvísindi (glæparannsóknir) Undanfarar: EFN2A eða EVI2A. Réttarvísindi er vítt hugtak sem nær yfir fjölmargar greinar innan vísindanna sem aðstoða réttvísina við lausn sakamála. Dæmi um undirgreinar réttavísinda er t.d. réttarefnafræði, réttartannlæknisfræði, réttarlæknisfræði og réttarsálfræði. Í áfangunum verður farið yfir grunnatriði nokkurra undirgreina réttarvísindanna og raunveruleg atvík skoðuð sem ýmist leiddu til sýknu eða dóms sakbornings á grunni vísindanna. Sérstök áhersla á fingrafaragreiningu, eiturefnagreiningu, líkamsgreiningu, skotvopnagreiningu. Þá verður jafnframt farið yfir vinnulag á vettfangi glæpa. Námsefni: Frá kennara Námsmat: Annareinkunn 40%, lokapróf 60% EÐL3Y010 Eðlisfræðiþrautir Undanfari: EÐL3A050 Lögð er áhersla á þjálfun í því að leysa þrautir líkt og eru í eðlisfræðikeppni fyrir framhaldsskóla. Helstu atriði sem þar koma fyrir eru úr hreyfifræði, varmafræði, bylgjufræði og rafmagnsfræði. Leyst verða nokkur verkefni úr keppnum sem hafa verið haldnar og byggir þessi áfangi mest á því að nemendur vinni að lausnum með hjálp kennara. Þessi áfangi er fyrir nemendur á þriðja og fjórða ári á raungreinasviði. Áfanginn er utan stundaskrár og er kenndur rúmlega einn tími á viku að meðaltali. Kennslutími verður í samráði við nemendur en til greina kemur að kenna fleiri tíma sumar vikur og svo ekkert aðrar. Námsefni: Frá kennara Námsmat: Þátttaka í tímum gefur áfanganum lokið LÍF3R050 Verkleg líffræði Undanfarar: LÍF2A05 eða LÍF2B04 Í áfanganum verða í boði yfir 20 fjölbreytt verkefni þar sem unnið er að rannsóknum er varða bakteríur, frumdýr, plöntur, dýr og menn. Verkefnin byggjast m.a. á ræktunarferlum, smásjárskoðun, eftirfylgni, lífeðlisfræðilegum breytingum, efnarannsóknum og ýmis konar meðhöndlun baktería. Hver nemandi getur sjálfur eða saman með öðrum valið hvaða verkefni hann/þau taka hverju sinni. Að auki vinna nemendur saman að stærra rannsóknarverkefni þar sem nemendur fá sjálfir að ákveða rannsóknarverkefnið. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og skýrslugerð. Námsefni: Mismunandi eftir því hvaða rannsóknir nemendur vinna. Námsmat: 100% símat – vinnubrögð og skýrslur

Page 10: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

9

Page 11: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

10

Valgreinar í boði á haustönn 2014 – blokk II 3. og 4. bekkur RGS

Íþróttir ÍÞR3R040 Íþróttir í 4. bekk Gefa nemendum kost á að hreyfa sig sér til heilsubótar bæði líkamlega og andlega. Hreyfing tvisvar sinnum í viku, tvær kennslustundir í senn. Annan daginn í íþróttahúsi og hinn í ræktinni. Gott þrek, jóga og boltaleikir. Nemendum er gert kleift að vinna sjálfstætt eftir fyrirfram ákveðinni áætlun í ræktinni. Að hausti verður farin ein lengri fjallganga eða tvær styttri fjallgöngur saman svo hægt er að njóta útivistar í góðra félaga hópi og auka þar með hreysti sitt og auðga andann. Námsmat: Gerðar eru kröfur um lágmarksmætingu og gildir mæting helming á móti vinnusemi og ástundun í tímum. Engar afkastamælingar munu fara fram sem yrðu metnar til einkunna en nemendum þó gefinn kostur á að taka mælingar ef þeir óska þess. Tungumál ÍSL2Y030 Yndislestur Þessi áfangi byggist á sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda og skipulagshæfni þeirra. Þeir velja sér hver um sig 5 skáldsögur af bókalista, lesa þær sjálfstætt á tilteknum tíma og gera kennara grein fyrir þeim í einkaviðtölum. Þeir þurfa að undirbúa viðtalstímana, skila örstuttum skýrslum daginn fyrir viðtölin og vera tilbúnir að svara fyrirspurnum um sögurnar. Námsefni: Bókalistar sem kennarar leggja fram Námsmat: Fimm munnleg próf og umræður um bækurnar. Listir og menning FAG1A05 Fatagerð I Nemendur læra að sníða og sauma einfaldar flíkur af ýmsum gerðum. Nemendur læra að nýta sér þau tæki og þá tækni sem tilheyra slíkri vinnu. Áhersla verður lögð á skapandi og sjálfstæð vinnubrögð þar sem nemendur læra að fylgja eftir hugmynd að fullunnu verki. Saga fatnaðar og tísku verður kynnt og skoðuð í menningarlegu og sögulegu samhengi. Undirstöðuatriði textílfræði (vefjarfræði) verða kennd. Kennslan fer fram bæði í fyrirlestrarformi og sem verkleg kennsla. Athugið að áfanginn er kenndur eftir skóla, tvo seinniparta í vikunni. Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Nemendur þurfa sjálfir að koma með saumavél (en geta geymt hana í skólanum). Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Vinnubók og hugmyndavinna 20%, önnur unnin verkefni 70%, frágangur og umgengni við tæki og verkfæri 10%.

Page 12: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

11

MYN2A05 Myndlist II Innihald áfangans miðast við framhald af því sem unnið var með í MYN1A en áhersla er lögð á aukna leikni, sjálfstæði og valfrelsi nemenda hvað varðar viðfangsefni. Nemendur læra einnig mismunandi aðferðir við gerð þrívíðra myndverka (skúlptúra). Áhersla er lögð á að nemendur þrói með sér tilfinningu fyrir formi, litum og listrænu yfirbragði. Fjallað verður um helstu stefnur myndlistar 19. og 20. aldar. Kennslan fer fram í fyrirlestraformi, umræðum og sem verkleg kennsla. Áfanginn er kenndur tvo seinniparta í vikunni eftir skóla Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Lokaverkefni 30%, önnur verkefni og hugmyndavinna 60%, frágangur og framsetning á myndverkum og umgengni við þau efni og tæki sem notuð verða 10%. THL1A05 Textílhönnun Kenndar verða mismunandi aðferðir textílvinnslu s.s. prjón, hekl, þæfing. Einnig verður kennd yfirborðsmeðferð vefjarefna s.s. útsaumur, þrykk og málun. Skoðað verður hvernig þessir þættir tengjast handverkshefð okkar og nútíma hönnun. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þessa skoðun á skapandi og listrænan hátt við gerð eigin verka. Nemendur vinna síðan nytjahluti eða myndverk með þessum aðferðum. Fjallað verður um vinnsluaðferðir, eiginleika og meðferð ullar og annarra vefjarefna. Nemendur fá innsýn í mynsturgerð og vinna eigin mynstur. Kennslan fer fram bæði í fyrirlestraformi og sem verkleg kennsla. Áfanginn er kenndur eftir skóla, tvo seinniparta í viku. Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Prufur 30%, vinnubók/ hugmyndavinna 20%, önnur verkefni 40%, frágangur og framsetning 10%. Samfélagsgreinar SÁL3I050 Þroskasálfræði Hugað verður að þætti fjölskyldu og umhverfis í mótun og þroska barnsins. Fjallað verður um helstu kenningar 20. aldarinnar um bernsku og þroska. Sérstaklega verða til umfjöllunar vitsmunaþroski, félags-, tilfinninga- og málþroski, geðtengslamyndun og mótun sjálfsmyndar. Litið verður lauslega á rannsóknaraðferðir þroskasálfræðinnar og nemendur kynna sér helstu þroskafrávik og þroskahamlanir. Námsefni: Þroskasálfræði, lengi býr að fyrstu gerð, Aldís Unnur Guðmundsdóttir. Námsmat er próf, ritgerð, þroskaathugun og tímaverkefni. VÍM2A05 Víman, listin, lífið Hér skoðum við djammið og dópið frá ýmsum hliðum. Fjallað verður um vímuefni og tengsl við tónlist, bíómyndir, bókmenntir og lífið sjálft. Auk þess verður farið í hvers konar fíkn og öfgar, áhættuhegðun, meðvirkni, meðferðarúrræði og lífsstíl af ýmsum toga. Markmiðið er að upplýsa, efla gagnrýna hugsun, hlýða á sjónarmið nemenda, styrkja sjálfsmynd þeirra og gera þá hæfari til að takast á við áskoranir og valkosti í lífinu. Námsefni: Efna á moodle, myndbönd, kvikmyndir, tónlist Námsmat: Ögrandi og skapandi verkefni, ekkert lokapróf.

Page 13: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

12

VÍS3A050 Vísindi, rök og saga Fjallað verður um helstu kenningar vísindaheimspekinnar um hlutverk, eðli, flokkun og aðferðir vísindanna. Nokkur frumhugtök heimspekilegra fræða verða kynnt, svo sem rök, sannindi, ályktun, skilgreining og þekking. Áhersla er lögð á rökfræði daglegs máls og greiningu hugtaka, þar sem nemendur vinna að verkefnum og leysa dæmi. Fjallað verður um tengsl vísinda, sögu og samfélags í fornöld, á miðöldum og nýjöld, þróun vísindanna og breytilega stöðu þeirra í samfélagi manna. Námsefni: Fjölritað kver úr fórum kennara. Námsmat: 70% próf, 30% verkefni. Raungreinar EÐL3X050 Varma- og straumfræði Þessi áfangi er fyrir nemendur á fjórða ári á raungreinasviði. Áhersluatriði eru varmafræði og straumfræði. Helstu atriði sem farið verður í eru, a) upprifjun á vinnu og orkuhugtakinu og ýmis dæmi sem það varðar, b) fasaskipti, kjörgas og ástandsjafnan, c) fyrsta lögmál varmafræðinnar og nokkrir varmafræðilegir ferlar, d) eðlisvarmi, bræðsluvarmi og gufunarvarmi, e) varmaburður, varmaleiðni og varmageislun, f) kynning á öðru lögmáli varmafræðinnar, g) varmadælur og ísskápar, h) nokkrir eiginleikar straumefnis og lögmál Bernoullis, i) nokkur dæmi um notkun framangreindra atriða og hugsanlega annarra úr eðlisfræðinni eftir því sem tími vinnst til. Gerðar verða verklegar tilraunir úr efninu. Námsefni: Physics for Scientists and Engineers Námsmat: Skriflegt lokapróf, tímapróf, skýrslur og önnur verkefni sem verða lögð fyrir EFN3G050 Komplex efnasambönd og efnagreiningar Undanfari: EFN3A05 Í áfanganum er fjallað um hraða efnahvarfa, jónunarorku, rafsækni og myndun komplex efnasambanda. Skoðað er gaumgæfilega samband staðsetningar efna og efnaflokka í lotukerfinu við eiginleika þeirra. Í framhaldi af því fylgir dýpri umfjöllun um valin frumefni úr hópi málma og málmleysingja þar sem krafist er rannsóknar- og verkefnavinnu nemenda. Þar eru framkvæmdar tegundagreiningar efna. Mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar í efnagreiningum. Námsefni: Frá kennara Námsmat: Annareinkunn 30%, Verklegt próf 30% og lokapróf 40% Stærðfræði STÆ3L050 Línuleg algebra Undanfari: STÆ3D050 Áfanginn er ætlaður nemendum í 4. bekk á raungreinasviði. Mjög góður undirbúningur undir frekara nám í raungreinum, verkfræði og stærðfræði fyrir þá sem vilja standa vel að vígi þegar á hólminn er komið. Farið verður í fylkjareikning, lausnir línulegra jöfnuhneppa, ákveður, vigra og vigurrúm, eigingildi, eiginvigra og hornalínugerning. Námsefni: Stuðst er við bókina Introductory Linear Algebra: An Applied First Course (8. útg.) eftir Bernard Kolman og David R. Hill. Námsmat: Verkefni á önninni og lokapróf.

Page 14: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

13

Valgreinar í boði á vorönn 2015 4. bekkur RGS og TFS

Tungumál ENS3M050 Current affairs and debate – Málefni líðandi stundar Kennt verður á ensku Current Affairs is a course for the fourth year providing students with basic factual knowledge in the current developments of political, economic, and social issues during the period in which the course is offered. The aim of this course is to raise students’ awareness of current political, social and economic issues, in addition to other subject matter that students consider controversial. The course will focus on honing the two skills of writing and oral fluency. It is hoped that participants will develop critical thinking strategies and debating skills. Course material: There is no text-book and the course will be taught from current publications available at the library such as Time and Newsweek, as well as a number of reliable online news sites. Assessment: There is no final examination. Assessment is based on students’ active participation in class debates, their input on Moodle, writing tasks and oral presentations. ENS4P040 Pleasure Reading Yndislestur Þessi áfangi hentar vel nemendum sem vilja lesa sér til ánægju og um leið breikka orðaforða sinn og dýpka skilning sinn á ritaðri ensku með því að lesa lengri samfellda texta. Í þessum áfanga er krafist afar agaðra vinnubragða og skipulagshæfni því áfanginn byggist á sjálfstæðum lestri bókmennta á ensku án reglulegrar leiðsagnar kennara. Nemendur velja sér fimm bækur af bókalista í samráði við kennara til að lesa yfir önnina. Listinn er byggður upp af skáldsögum sem almennt eru talin tímamótaverk á enskri tungu, bækur sem oft er vísað til. Á tveggja til þriggja vikna fresti hittir nemandinn kennarann og fjallar munnlega, á ensku, um skáldverkið sem hann hefur lesið hverju sinni. Námsefni: Nemendur velja sér fimm skáldverk af bókalista í samráði við kennara til að lesa yfir önnina. Námsmat: Fimm viðtöl, eins konar munnleg próf dreift yfir önnina. FRA2P050 París Áfanginn er fyrir nemendur sem hafa lært frönsku. Viðfangsefni áfangans er París, saga hennar, mannlif, og menning í víðustu merkingu. Nemendur afla sér þekkingar um borgina og sögu hennar frá upphafi til samtímans. Þeir vinna verkefni um ýmis þekkt minnismerki og kennileiti borgarinnar og kynna síðan niðurstöður sínar fyrir öðrum í hópnum á frönsku eða íslensku. Nemendur kynna sér meðal annars almenningssamgöngur í borginni, daglegt líf íbúanna og hverfi borgarinnar. Nemendur lesa heimildarefni um París, horfa á kvikmyndir sem tengjast borginni og hlusta á tónlist sem tengist henni. Eftir nokkurra vikna vinnu er farið í vikuferð til Parísar þar sem nemendur afla sér efnis til kynningar. Eftir heimkomuna vinna nemendur með þetta efni og semja fyrirlestra um niðurstöður sínar. Áfanganum líkur svo með skriflegri frásögn af ferðinni og munnlegu prófi.Nemendur bera sjálfir allan kostnað af Parísarferðinni. Námsefni: Frá kennara. Námsmat: Símat (ýmis konar verkefnavinna), Parísarferð.

Page 15: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

14

ÍSL1C050 Lesa hratt – lesa mikið Nám, próf og æfingar í hraðlestri og kapplestur 10-15 skáldsagna. Takmark að tvöfalda eða þrefalda leshraða sinn og aukið með því bæði afköst og árangur í námi. Áfangalýsing á Vef MA (Námið, Áfangar og kennsluáætlanir, ÍSL1C050). Námsefni: Kennslubækur í eigu skólans Námsmat: Símat ÍSL2Y030 Yndislestur Þessi áfangi byggist á sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda og skipulagshæfni þeirra. Þeir velja sér hver um sig 5 skáldsögur af bókalista, lesa þær sjálfstætt á tilteknum tíma og gera kennara grein fyrir þeim í einkaviðtölum. Þeir þurfa að undirbúa viðtalstímana, skila örstuttum skýrslum daginn fyrir viðtölin og vera tilbúnir að svara fyrirspurnum um sögurnar. Námsefni: Bókalistar sem kennarar leggja fram Námsmat: Fimm munnleg próf og umræður um bækurnar. ÍSL3P050 Barnabókmenntir Í áfanganum kynnast nemendur sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabókmennta og fræðast um mál og menningarheim barna; máltöku, málþroska og ritun. Grúskað verður í bókum, gömlum og nýjum. Nemendur fá þjálfun í lestri fræðigreina um efnið og gera grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega. Einnig er stefnt að vettvangsferðum og/eða gestaheimsóknum. Námsmat: Fyrirlestrar, rannsóknarverkefni, skapandi verkefni, próf LAT2L050 Latína Í áfanganum verður latína kynnt á áhugaverðan hátt út frá ýmsum hliðum. Fjallað verður um mikilvæga kafla úr sögu Rómarveldis og áhrif þess. Þekktum persónum og tímabilum verður gerð skil. Farið verður í uppbyggingu latínunnar og kenndir grunnþættir málfræðinnar. Léttir latneskir verða textar bornir saman við mál eins og ensku, frönsku, spænsku og íslensku eða eftir því sem við á. Kynnt verða latnesk hugtök sem tengjast til dæmis fræðigreinum eins og læknisfræði og lögfræði sem enn eru í fullu gildi innan þessara fræðigreina. Nokkrar frægar tilvitnanir verða kenndar. Kennslan byggist meðal annars á fyrirlestrum, sjálfstæðri vinnu nemenda þar sem þeir nýta sér ýmsar heimildir í náminu svo sem bækur, veraldarvefinn og kvikmyndir. Námsefni: Frá kennara Námsmat: Símat og lokapróf NOS1A050 Norska og sænska Í áfanganum verður farið í bæði norsku og sænsku. Gert er ráð fyrir að nemendur byggi á dönskugrunni og því er ekki um eiginlegan byrjunaráfanga að ræða. Lögð verður áhersla á að skoða muninn á tungumálunum og læra að þekkja í hverju sá munur er fólginn. Lesnir verða einfaldir textar á báðum tungumálum, bæði úr fjölmiðlum en einnig smásögur. Að auki verður hlustun æfð, fyrst og fremst með sjónvarpsefni. Markmiðið er að nemendur nái að auka skilning sinn á „hefðbundinni“ norsku og sænsku. Námsefni: Efni úr smiðju kennara. Námsmat: Símatsáfangi án lokaprófs.

Page 16: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

15

Samfélagsgreinar FÉL3A050 Afbrotafræði Áfanginn er ætlaður öllum nemendum í 4. bekk nema þeim sem velja félagsfræðikjörsvið Af hverju fremur fólk afbrot? Hvaða afbrot eru alvarleg? Hvaða áhrif hafa refsingar? Hvað kosta afbrot ríkið? Hvað eru hvítflibbabrot? Þessar spurningar ásamt mörgum fleirum verða ræddar í áfanganum, í samhengi við kenningar í afbrotafræði. Fjallað verður um eðli afbrota á Íslandi og viðhorf Íslendinga til afbrota. Ýmsir brotaflokkar verða teknir fyrir, s.s. ofbeldisbrot, vændi, mansal, hvítflibbabrot auk þess sem farið verður yfir vímuefni og fíkniefnalöggjöfina. Viðhorfð til refsinga og refsiaðferða og félagslegt umhverfi fanga verður tekið fyrir. Farið verður í vettvangsheimsókn á lögreglustöðina á Akureyri og í Héraðsdóm Norðurlands eystra. Námsefni: Bókin Afbrot á Íslandi og efni frá kennara Námsmat: Byggir á verkefnavinnu og lokaprófi. SAG3T050 Heimsstyrjöldin síðari í máli og myndum Fjallað verður um síðari heimsstyrjöld í víðu samhengi. Reynt verður að grafast fyrir um orsakir og aðdraganda þessa mikla ófriðar sem átti eftir að gerbreyta ásýnd Evrópu allrar. Fjallað verður um atburðarás átakanna og áhrif þeirra í þeim löndum sem styrjöldin snerti, bæði beint og óbeint. Þá verður miklu púðri eytt í eftirköst styrjaldarinnar, s.s. réttarhöld yfir stríðsglæpamönnum, endurbyggingu þjóðfélaga og pólitíska skipan mála. Kastljósið beinist óhjákvæmilega að þýsku samfélagi frá lokum fyrri heimsstyrjaldar og fram á sjötta áratug 20. aldar. Námsefni:Stuðst verður við myndefni að stórum hluta, enda um auðugan garð að gresja þar sem gríðarlega mikið er til af heimildarmyndum, áróðursmyndum og bíómyndum um þessar hörmungar. Námsmat: Verður í formi símats á önninni, þ.e. án lokaprófs. SÁL3F050 Félagssálfræði Í áfanganum verður m.a. fjallað um hvað það er sem mótar persónuleika fólks og viðhorf. Hver eru áhrif fjölmiðla, áróðurs, félagslegrar hegðunar, áhrif hópa og hópþrýsings. Lögð verður áhersla á að skoða fordóma og staðalmyndir og leiðir til að draga úr þeim. Áhersla verður lögð á að nemendur kynnist vísindalegum vinnubrögðum og vinni að rannsókn eða ritgerð. Frumkvæði nemenda við efnisval er mikilvægt og áhersla verður á gagnrýna hugsun, öguð og sjálfstæð vinnubrögð, umræður og úrvinnslu upplýsinga. Námsefni: Frá kennara, Námsmat: Lokapróf, rannsókn og tímaverkefni. Íþróttir ÍÞR3V040 Íþróttir í 4. bekk Áfanginn gefur nemendum kost á að hreyfa sig sér til heilsubótar bæði líkamlega og andlega. Hreyfing tvisvar sinnum í viku, tvær kennslustundir í senn. Annan daginn í íþróttahúsi og hinn í ræktinni. Gott þrek, jóga og boltaleikir. Nemendum er gert kleift að vinna sjálfstætt eftir fyrirfram ákveðinni áætlun í ræktinni. Að vori verður farin ein lengri fjallganga eða tvær styttri fjallgöngur saman svo hægt er að njóta útivistar í góðra félaga hópi og auka þar með hreysti sitt og auðga andann. Námsefni: Verkleg kennsla Námsmat: Gerðar eru kröfur um lágmarksmætingu og gildir mæting helming á móti

Page 17: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

16

vinnusemi og ástundun í tímum. Engar afkastamælingar munu fara fram sem yrðu metnar til einkunna en nemendum þó gefinn kostur á að taka mælingar ef þeir óska þess. Listir og menning FAG1A05 Fatagerð I Nemendur læra að sníða og sauma einfaldar flíkur af ýmsum gerðum. Nemendur læra að nýta sér þau tæki og þá tækni sem tilheyra slíkri vinnu. Áhersla verður lögð á skapandi og sjálfstæð vinnubrögð þar sem nemendur læra að fylgja eftir hugmynd að fullunnu verki. Saga fatnaðar og tísku verður kynnt og skoðuð í menningarlegu og sögulegu samhengi. Undirstöðuatriði textílfræði (vefjarfræði) verða kennd. Kennslan fer fram bæði í fyrirlestrarformi og sem verkleg kennsla. Athugið að áfanginn er kenndur eftir skóla, tvo seinniparta í vikunni. Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Nemendur þurfa sjálfir að koma með saumavél (en geta geymt hana í skólanum). Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Vinnubók og hugmyndavinna 20%, önnur unnin verkefni 70%, frágangur og umgengni við tæki og verkfæri 10%. FAG2A05 Fatagerð II Lögð er áhersla á aukna færni nemenda í þeim þáttum sem unnið var með í FAG1A. Nemendur sníða og sauma flíkur að eigin vali. Aukin áhersla verður lögð á skapandi og sjálfstæð vinnubrögð og að nemendur þrói með sér tilfinningu fyrir formi, litum og listrænu yfirbragði. Saga fatnaðar og tísku verður skoðuð í tengslum við nútímahönnun og áhersla lögð á að nemendur nýti sér hana við eigin vinnu. Undirstöðuatriði fatahönnunar verða kynnt þar sem lögð verður áhersla á línur, form og liti. Kennslan fer fram bæði í fyrirlestraformi og sem verkleg kennsla. Kennslustundir í áfanganum eru tvisvar í viku, eftir að hefðbundinni kennslu lýkur. Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Nemendur þurfa sjálfir að koma með saumavél (en geta geymt hans í skólanum). Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Vinnubók og hugmyndavinna 20%, önnur unnin verkefni 70%, frágangur og umgengni við tæki og verkfæri 10%.

Page 18: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

17

MYN1A05 Myndlist I Áhersla er lögð á að nemendur kynnist myndsköpun á sem breiðustum grunni og nái að vinna með sem flesta þætti í eigin myndsköpun á skapandi hátt og sjálfstæðan hátt. Kynning á myndlistarmönnum og myndlistarstefnum verður fléttuð inní kennsluna þar sem við á. Nemendur vinna allmörg smærri verkefni sem byggja á tækni og aðferðum og eitt stærra verkefni í lok annarinnar þar sem hver nemandi velur sér viðfangsefni í samráði við kennara. Kennslan fer fram í fyrirlestraformi, umræðum og sem verkleg kennsla. Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn. Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Lokaverkefni 30%, önnur verkefni og hugmyndavinna 60%, frágangur og framsetning á myndverkum og umgengni við þau efni og tæki sem notuð verða 10%. Raungreinar EFN4A050 Lífefnafræði II Undanfarar: EFN3C og LÍF3B Áfanginn er er að stærstum hluta verklegur þar sem framkvæmdar verða tilraunir og mælingar á lífefnum. Meðal annars verður farið í aðferðir við mælingar á próteinum og virkni ensíma sem nemendur einangra sjálfir auk þess sem hvötunarvirkni ensíma verður mæld við ólíkar aðstæður s.s. pH og í viðurvist hindra. Jafnframt verður farið yfir ólíkar skiljunaraðferðir á próteinum, sykrum og lípíðum. Massagreiningar kynntar og farið yfir ólíkar aðferðir við greiningu lífefna með þeirri tækni. Unnið verður með raunveruleg massagreiningargögn þar sem framkvæmdar eru samanburðarleitir við erlenda gagnabanka. Námsefni: Frá kennara Námsmat: 100% símat með verklegu prófi LÍF2U050 Dýrafræði Í áfanganum verður stiklað á stóru í þróun lífs á jörðinni. Teknar verða fyrir helstu fylkingar dýraríkisins frá svömpum til spendýra. Farið verður í grunngerðir æxlunar, skyldleika tegunda og aðferðum til að meta hann. Hver fylking verður skoðuð með tilliti til útbreiðslu, búsvæðis, líkamsbyggingar, lífshátta, aðlögunar og æxlunar. Kennsla fer fram með stuttum fyrirlestrum, hópavinnu og myndböndum. Námsefni: Bæklingur í dýrafræði útbúinn af kennara. Stuðst verður einnig við bækur af bókasafni skólans og námsefni á netinu. Námsmat: Lokapróf gildir 50% og verkefnavinna 50%. Nemendur munu skila einu stóru lokaverkefni og nokkrum smærri verkefnum. Í lokaverkefninu velja nemendur eina lífveru og halda um hana kynningu eða sýna myndband. Lokaverkefnið má vinna sem einstaklingsverkefni eða í hóp. NÆR3U050 Næringarfræði Undanfarar: LÍF2A05 eða LÍFB04. Athugið að áfanginn er kenndur á þjálfunarlínu og er því ekki fyrir nemendur sem eru á þeirri línu. Markmið áfangans er að nemendur öðlist þekkingu á grundvallarþáttum næringarfræðinnar, verði færir um að draga sjálfstæðar ályktanir um hvað sé hollt og hvað óhollt og verði meðvitaðir um eigin ábyrgð á góðri næringu og heilsu. Að áfanganum loknum ætti nemendum að vera ljóst hvers virði góðar neysluvenjur eru fyrir heilbrigða einstaklinga. Nemendur eiga að loknu námskeiðinu að vera færir um að mynda sér

Page 19: Áfangar í frjálsu vali fyrir 3. og 4. bekk · Einnig matardagbók og önnur einföld verkefni sem lögð verða fyrir. Tungumál EVR2E050 Evrópskar kvikmyndir (danskar, franskar,

18

skoðanir á næringu og lífsstíl og hvernig nýta megi ráðleggingar Lýðheilsustöðvar. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, hóp- og rannsóknarvinnu. Námsefni: Lífsþróttur, næringarfræði fróðleiksfúsra e. Ólaf Gunnar Sæmundsson. Einnig mun kennari benda nemendum á gagnlegan fróðleik og greinar á ýmsum netsíðum og í tímaritum. Námsmat: Verkefni unnin um veturinn og lokapróf. STE4A05 Stjarneðlisfræði Undanfari: STJ3A05 Í áfanganum er ætlunin að kynna nútíma stjarneðlisfræði, en í fáum vísindagreinum hafa framfarir orðið jafn miklar (og jafnvel byltingakenndar) síðustu fáeina áratugina. Eru þær framfarir einkum til komnar vegna öflugra mælitækja, jafnt á jörðu niðri og í geimnum, og hraðvirks tölvubúnaðar. Markmið áfangans er: 1. Að hagnýta eðlis- og stærðfræðiþekkingu nemenda til að lýsa eðli, skipan og hreyfingu sólstjarna. Gerð verður grein fyrir kenningum um myndun þeirra, þróun og endalok sem koma mjög heim og saman við mæliniðurstöður. Helstu hugtök í þessum þætti: HR-línurit, stjörnuþokur, risastjörnur, dvergstjörnur, breytistjörnur, hvítir dvergar, nifteindastjörnur, svarthol. Nauðsynleg eðlisfræði rifjuð upp eða kynnt til sögunnar. 2. Að lýsa Vetrarbrautinni og öðrum vetrarbrautum, skipan þeirra og hreyfingu. Helstu hugtök: Okkar vetrarbraut, stjörnuþyrpingar, flokkun vetrarbrauta, grannhópurinn, þróun vetrarbrauta, kvasar, ofursvarthol. 3. Að kynna nútíma heimsfræði um upphaf og framvindu rúms og tíma. Helstu hugtök: Lögmál Hubbles, útþensla alheims, Miklihvellur, ofurþensla, örbylgjukliður, almenna afstæðiskenningin, heimslíkön, heimsstikar, opinn, flatur og lokaður alheimur, hulduefni, hulduorka, gammablossar. Námsmat verður í formi ritgerðar, tímaritsútdráttar og prófs. Stærðfræði STÆ3P050 Tölvustærðfræði og forritun Undanfari: STÆ3C050 Áfanginn er ætlaður nemendum í 4. bekk á raungreinasviði. Undirstöðuatriði og helstu hugtök forritunar verða kynnt með hjálp táknreiknisins Octave eða annarra forritunarmála. Nokkur stærri forritunarverkefni verða leyst á önninni. Umbrotsforritið TeX ásamt merkjamálinu LaTeX verður kynnt fyrir nemendum og það notað til útbúa sniðmát fyrir skýrslu eða ritgerð sem nýtist í framhaldsnámi. Námsefni: Efni frá kennara Námsmat: Verkefni á önninni og lokapróf