fjarnám og fjarkennsla

14
Fjarnám og fjarkennsla Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu 3f og HR 17. október 2008 Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjarnámsstjóri VÍ

Upload: waite

Post on 20-Jan-2016

43 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Fjarnám og fjarkennsla. Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu 3f og HR 17. október 2008 Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjarnámsstjóri VÍ. Skóli og fjarkennsla. Skólinn þarf að hafa skýr markmið með fjarkennslu Leiðirnar að markmiðunum þurfa að vera ljósar - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Fjarnám og fjarkennsla

Fjarnám og fjarkennsla

Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu 3f og HR 17. október 2008

Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjarnámsstjóri VÍ

Page 2: Fjarnám og fjarkennsla

Skóli og fjarkennsla

• Skólinn þarf að hafa skýr markmið með fjarkennslu• Leiðirnar að markmiðunum þurfa að vera ljósar• Verkefnið þarf að vera í sterkum tengslum við skólann og

– byggjast á hefðum hans og venjum– vera sýnilegt í skólanum– sem flestir starfsmenn þurfa að taka þátt

• Fjarnemandi er hluti af skólanum og hann þarf að finna fyrir því, skólabragurinn þarf að smitast út í fjarnámið

• Stoðkerfi skólans þurfa að vera tiltæk fjarnemendum – Bókasafn– Námsráðgjöf– Tækniaðstoð

Sigurlaug Kristmannsdóttir 2

Page 3: Fjarnám og fjarkennsla

Skipulag fjarnáms í VÍ

• Þrjár annir á ári og hverri önn skipt í 10 vikur• Um 130 áfangar í boði og áfangi kenndur fyrir einn nemanda• Í hverjum áfanga er námsáætlun og þar er gerð grein fyrir

– markmiðum– efnisatriðum– námsefni– verkefnum– námsmati– vikuáætlunum

• Kennslukerfið (WebCT/Blackboard) er skóli í netheimum með– skólastofum fyrir hvern áfanga– miðrými þar sem nemendur hittast í frímínútum - Marmarinn– gagnasmiðju fyrir kennara

• Í kennslukerfinu er– námsefni og möguleiki á samskiptum– reynt að búa til námssamfélag (bekk) nemenda

Sigurlaug Kristmannsdóttir 3

Page 4: Fjarnám og fjarkennsla

Fjarnemendur á haustönn 2008

• 810 nemendur í fjarnámi á haustönn 2008– 6% einnig í dagskóla VÍ– 18% í grunnskólum landsins

• 64% konur og 36% karlar• Meðalaldur 23,9 ár

– Sá elsti fæddur 1930– Þau yngstu fædd 1996

• Fjölmennustu árgangar– 1989, þau eru á 4. ári í framhaldsskóla– 1993, þau eru í 10. bekk grunnskóla

• 65% nemenda býr á Stór-Reykjavíkursvæðinu, flestir í pnr 220• Hver nemandi tekur að meðaltali 6 einingar• Sundurleitur hópur nemenda

– Vanir námsmenn með langa skólagöngu að baki– Óöruggir nemendur eftir langt námshlé

Sigurlaug Kristmannsdóttir 4

Page 5: Fjarnám og fjarkennsla

Aldursdreifing fjarnemenda á haustönn 2008

• Sjá nánar http://www.verslo.is/fjarnam/flytivisanir/nemendur/

Sigurlaug Kristmannsdóttir 5

Page 6: Fjarnám og fjarkennsla

Hópar fjarnemenda

• Grunnskólanemendur• Nemendur VÍ og annarra framhaldsskóla• Nemendur sem hætt hafa námi og eru að safna einingum til

lokaprófs• Nemendur með stúdentspróf sem eru að bæta við sig áföngum

vegna framhaldsnáms• Nemendur háskóla sem eru að styrkja undirstöður sínar• Nemendur sem eru að bæta við sig vegna vinnu sinnar• Nemendur sem eru að læra sér til ánægju

Sigurlaug Kristmannsdóttir 6

Page 7: Fjarnám og fjarkennsla

Mæting í próf

Sigurlaug Kristmannsdóttir 7

• Meðalmæting í próf á önn: 61,4 %. Tölur miðast við einingar.

Page 8: Fjarnám og fjarkennsla

Einkunnadreifing fjarnemenda

• Einkunnadreifing á árunum 2006 og 2007• 67,6% prófa lýkur með einkunn sem er stærri eða jafnt og 5

Sigurlaug Kristmannsdóttir 8

Page 9: Fjarnám og fjarkennsla

Mæting í próf eftir aldri nemenda

Sigurlaug Kristmannsdóttir 9

• % mæting í próf eftir aldri nemenda á haustönn 2007

Page 10: Fjarnám og fjarkennsla

Fjarnám

• Fjarnám gerir kröfur til nemandans varðandi– ábyrgð á eigin námi– námstækni– sjálfsaga– sjálfstæði– skipulagningu náms og tíma

• Einn nemandi orðaði þetta svona:– Munurinn á fjarnámi og dagskóla er í sjálfu sér ekki mjög mikill. Þú

ert í skóla til þess að ná árangri og þeim árangri nærðu bara með stöðugri vinnu og aga. Dagskólinn er auðvitað félagslegri og þar er skyldumæting. Þar finnst mér reginmunurinn liggja. Í dagskóla er maður skyldugur til að mæta í tíma. Tíma sem manni finnst kannski betur nýttur í þau fög sem maður er slakur í. Þarna nýtist fjarnámið hrikalega vel. Ég á t.d. mjög auðvelt með lestur. Ég get lesið bók daginn fyrir próf og náð mjög góðum árangri. Annað gildir um stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði. Þar af leiðandi gat ég nýtt meiri tíma í raungreinarnar og skipulagt tíma minn þannig.

Sveinn Óskar Hafliðason

Sigurlaug Kristmannsdóttir 10

Page 11: Fjarnám og fjarkennsla

Námsefni

• Námsefni í samræmi við Aðalnámskrá framhaldsskóla• Námsgögn

– Bækur og tímarit– Rafræn námsgögn á netinu

• Vefsíður með efni sem öllum er frjálst að nota• Rafrænt námsefni framleitt í VÍ og vistað í kennslukerfinu

• Dæmi um rafræn námsgögn á neti framleidd í VÍ– Ritvinnsluskjöl: Word, Excel, Power Point– Töflukennsla (Smartboard), stærðfræði – Talglærur (Articulate), jarðfræði– Hljóðskrár (Audacity), spænska– Kvikmyndir, setningarávarp skólastjóra– Upptaka úr tölvu (Camtasia), upplýsingar fyrir nýnema

– Vélritunarforrit

Sigurlaug Kristmannsdóttir 11

Page 12: Fjarnám og fjarkennsla

Kröfur og gæði

• Sömu námskröfur í fjarnámi og dagskóla– Sama námsefni – Sams konar verkefni– Sambærileg próf– Sami matskvarði

• Deildir bera ábyrgð á innihaldi áfanga, prófum, námsmati• Sömu kennarar í fjarkennslu og dagskólakennslu• Skólinn ber faglegt traust til kennara, þeir eru fagmenn og

tryggja gæðin• Áhersla lögð á að efla fagmennsku kennara

– Tölvunámskeið– Fyrirlestrar um fjarkennslu– Samræður um fjarkennslu– Kennslureynsla – Vettvangsheimsóknir og jafningjamat

Sigurlaug Kristmannsdóttir 12

Page 13: Fjarnám og fjarkennsla

Jafningjamat byggt á vettvangsheimsóknum

• Fjarkennarar gestir í áföngum hverra annarra, í þeim tilgangi að – læra af því sem þar er vel gert– benda á það sem betur mætti fara

• Fjarkennarar fengu– gátlista, þar sem bent var á ýmis atriði sem betur mættu fara í

kennslukerfinu– matsblað sem nota átti við úttektina á áföngum

• Vinnunni var skipt í þrjá fasa– Tiltektarfasi, hver kennari lagaði til í sínum áfanga með gátlistann

og matsblöðin til hliðsjónar – Matsfasi, kennarar fengu aðgang að áföngum annarra og

framkvæmdu matið með því að fylla út matsblöð – Úrvinnslufasi, kennarar fengu matsblöð sinna áfanga í hendurnar

og betrumbættu þá eftir því sem við átti. Fjarnámsstjóri fékk matsblöðin og vann úr þeim skýrslu sem allir fengu

Sigurlaug Kristmannsdóttir 13

Page 14: Fjarnám og fjarkennsla

Jafningjamat

• Jafningjamatið var tilraun til að auka umræðu um fjarkennslu og fjarnám innan Verzlunarskóla Íslands

• Áfangar eru mismunandi og þeir eiga að vera þannig– Þeir fjalla um mismunandi efni

– Þeir eru misefnismiklir

– Kennarar eru ólíkir og þeim lætur misvel að skipuleggja efnið sem þeir setja fram og þeir eru mislagnir við að „performera“ í kennslukerfinu

• Fjarkennarar eru að læra að tileinka sér þá tækni sem felst í fjarkennslu og þurfa tíma til að ná tökum á henni. Allir leggja sig fram við að gera sitt besta og vinna sitt starf af fagmennsku

• Á einu matsblaðinu kom fram þessi setning– Þegar ég opnaði viku eitt, leið mér eins og kennarinn væri við hliðina á mér!

• Það ætti að vera markmið hvers fjarkennara að búa áfangann sinn þannig úr garði að nemanda finnist kennarinn standa við hlið sér þegar hann er í kennslukerfinu

Sigurlaug Kristmannsdóttir 14