flokkun til framtíðar vesturbyggð og tálknafjörður

8
FLOKKUN TIL FRAMTÍÐAR í Vesturbyggð og Tálknafirði Tálknafjörður

Upload: magnus-havardarson

Post on 29-Mar-2016

228 views

Category:

Documents


7 download

DESCRIPTION

Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

TRANSCRIPT

Page 1: Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

FLOKKUN TIL FRAMTÍÐARí Vesturbyggð og Tálknafirði

Tálknafjörður

Page 2: Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

2 3

Tálknafjarðarskóli hefur sett sér umhverf-ismarkmið að keppa að og átti frumkvæði að því að Tálknfirðingar gerðu með sér umhverfissáttmála fyrir nokkrum árum í tengslum við grænfánastarf skólans. Mark-miðin og sáttmálin ríma vel við þær áherslur sem Gámaþjónustan kynnir í þessum bækl-ingi. Í tilefni af nýju fyrirkomulagi sorphirðu á svæðinu langar nemendur aðkynna umhverfismarkmiðin (og sáttmál-ann).

Umhverfismarkmið Tálknafjarðar- skóla miða að því að nemendur:

• læri um gildi þess að ganga vel um nátt úruna og umhverfi sitt• tileinki sér góða umgengni við nátt úruna og umhverfi sitt• geri sér grein fyrir gildi umhverfis- verndar• átti sig á hve mikið rusl fellur til daglega• stundi flokkun á sorpi og meti gildi endurnýtingar og endurvinnslu þess sem ella færi í súginn• þekki viðurkenndar merkingar fyrir umhverfisvænar vörur• vinni að því með heimilum og skóla að efla ábyrga umgengni um

Kveðja frá Grunn- og leikskólumVesturbyggðar og TálknafjarðarKæru íbúar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps!

Í Grunn- og leikskóla Vesturbyggðar er unnið markvisst að umhverfisvernd með Grænfánaverkefninu. Við viljum leggja okkar af mörkum til að vernda umhverfi okkar með því að flokka og endurnýta. Samvinna við heimilin er ákaflega mikilvæg í þessu verkefni þar sem megináherslan er lýðheilsa, endurvinnsla og verndun um-hverfisins.

Page 3: Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

Til íhugunar

2 3

• Um 91% Íslendinga flokka úrgang til endurvinnslu

19% flokka alltaf 37% flokka oft 35% flokka stundum eða sjaldan (Úr könnun Capacent Gallup fyrir úrvinnslusjóð í sept

2008)

• Endurvinnsla á 20 tveggja lítra gos- drykkjarflöskum úr plasti dugar til fram- leiðslu á einni meðalflíspeysu.

• Urðun á hverju tonni af pappír krefst tveggja til þriggja rúmmetra rýmis á urð-unarstað og veldur miklum gróðurhúsa-lofttegundum.

• Það berast um 100 kg af dagblöðum og fjölpósti inn á hvert heimili að jafnaði á Íslandi. (Heimild: Skýrslan „Pappírsfjallið” frá árinu

2003)

• Gott líf felst í því að gera þá hluti vel sem maður getur gert vel.

(Aristóteles)

nánasta umhverfi og náttúru landsins

Við, nemendur og starfsfólk Tálknafjarðarskóla og íbúar Tálkna-fjarðarhrepps höfum gert með okkur sáttmála þar sem við leitumst við að:

• Flokka allt rusl og allan lífrænan úrgang sem mögulegt er.• Endurnýta endurvinnanlegt efni sem best eins og pappír og umbúðir.• Kaupa helst vörur sem eru í endurunn um eða endurvinnanlegum umbúðum.• Ferðast sem oftast á umhverfisvænan hátt, s.s. með því að ganga eða hjóla innanbæjar.• Ganga vel um bæinn okkar og henda rusli í ruslafötur.Það er von okkar að nýtt fyrirkomulag sorphirðu gefist vel og að flokkun og endurvinnsla sorps á svæðinu fari vaxandi með ári hverju.

Nemendur Tálknafjarðarskóla

Page 4: Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

4 5

Gámavellirverða á eftirtöldum stöðum

BíldudalurOpnunartími:Þriðjud. 15:00–17:00Laugard. 10:00–12:00

PatreksfjörðurOpnunartími:Mánud. 15:00–17:00Fimmtud. 15:00–17:00Laugard. 15:00–17:00

TálknafjörðurOpnunartími:Miðvikud. 15:00–17:00Laugard. 12:30–14:30

Verði breytingar á ofangreindum opnunartímum eða gjaldskrá má finna upplýsingar á: www.vesturbyggd.is, www.talknafjordur.is, www.gamarvest.is

Page 5: Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

4 5

Á gámavöllum er tekið er á móti eftirtöldum flokkum til förgunar og endurvinnslu.

Tekið er á móti eftirtöldum endurvinnsluefnum án endurgjalds: Bylgjupappa og sléttum pappa, blöðum, tímaritum, skrifstofupappír, fernum, plasti og málmum.

Einnig verður íbúum frjálst að losa sig við almennan heimilisúrgang, allt að 1m3 í hverri ferð án gjaldtöku á opnunartíma. Íbúar sem standa í framkvæmdum, breytingum á eigin hús-næði eða byggingum greiða fyrir þann úrgang sem þeir skila inn á gámavellina.

Rekstraraðilar, fyrirtæki og stofnanir sem koma með gjaldskyldan úrgang á gámavelli greiða samkvæmt gjaldskrá.

Hjólbarðar

Raftæki/rafeindatæki

Kælitæki

Ómálað timbur

Málað timbur

Óendurvinnanlegt (Óflokkað til urðunar)

Grófur úrgangur

Gler, postulín og flísar

Grjót og jarðvegur

Garðaúrgangur

Gras

Bylgjupappi

Sléttur pappi

Dagblöð og tímarit

Skrifstofupappír

Fernur

Plastílát

Filmuplast

Rafhlöður

Málmar

Spilliefni

Rafgeymar

*

*

*

*

*

*

*

*

*

*

*

*

*

* Eingöngu hægt að skila á gámavelli á opnunartíma.

*

Page 6: Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

Í almennu tunnuna með gráa lokinu má setja:Allan almennan heimilisúrgang svo sem matarleifar, kaffikorg, matarsmitaðan pappír og plast, samsett-ar umbúðir (áleggsbréf, ostabox, tannkremstúpur og fleira). Einnig glerílát, ryksugupoka, bleiur og úrgang

tengdan gæludýrahaldi.

Íbúar eru hvattir til að fara með hreinar pappa- og plastumbúðir ásamt dagblöðum og öðrum pappír á gámavöll. Almenna tunnan verður losuð á tveggja

vikna fresti.

Sjá sorphirðudagatal á www.vesturbyggð.is, www.talknafjordur.is og www.gamarvest.is.

Hafa ber í huga að staðsetja tunnur sem næst lóðarmörkum á losunardegi svo starfs-menn Gámaþjónustu Vestfjarða ehf hafi greiðan aðgang að tunnunum og geti dregið þær að bíl án hindrunar. Íbúar þurfa að moka snjó frá tunnum og halda slóð greiðfærri að lóðarmörkum.

6 7

Almennt heimilissorp

Page 7: Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

6 7

Skápalausnir • Söfnunarílát

ÁSINN

2x10 l. á sleða + karfaMál: 25 x 38/35 cm.

TVISTURINN

2x18 l. á sleðaMál: 31 x 46/36 cm.

ÞRISTURINN

2 x 14 l. + 1 x 8l. á sleðaMál: 31 x 46/36 cm.

FJARKINN

4 x 10 l. á 2 sleðumMál: 50 x 38/35 cm.

2 x 60l.

Tvær 60 l. tunnur á hjólavagni.

2 x 40l.

2 x tvær 40 l. tunnurá hjólavögnum.

Passarfyrir körfu

Góuholt 14 • 400 Ísafjörður • Sími: 456 3710 • [email protected] • www.gamarvest.is

JARÐGERÐARTANKURTUNNUSKÝLI

Page 8: Flokkun til framtíðar Vesturbyggð og Tálknafjörður

Góuholt 14 • 400 ÍsafjörðurSími: 456 3710 • Fax: 456 5157

[email protected] www.gamarvest.is

Aðalstræti 63 • 450 PatreksfjörðurSími: 450-2300 • Fax: 456-1142

[email protected] www.vesturbyggd.is

Setjum umhverfið í fyrsta sæti!

Tálknafjarðarhreppur Miðtúni 1 • Tálknafirði

Sími: 456 2539 • Fax: 456 2589 [email protected]

www.talknafjordur.is