fréttabréf ft - 94. tbl., janúar 2013

4
Janúar 2013 · tölublað 94 Fréttabréf Félags tónlistarskólakennara Tillaga að frumvarpi til laga um tónlistarskóla komin í hendur ráðherra Nefnd um endurskoðun á lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 var upphaflega skipuð 1. mars 2004 en vegna deilna um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitar- félaga lauk nefndin aldrei störfum. Stjórn FT þrýsti reglulega á um að nefndin yrði kölluð saman að nýju og var nefndin endurskipuð 13. desember 2010. Formaður FT átti sæti á báðum nefndum. Stjórn FT fagnar því að nú standi fyrir dyrum að leggja fram frumvarp að heildstæðri löggjöf um starfsemi tónlistarskóla. Margt í tillögunum er til þess fallið að styrkja starfsemi tón- listarskóla og efla tónlistarfræðslu. Lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla ná einungis til stofnunar og reksturs tónlistarskóla en félagið hefur horft til þess í störfum sínum að ný heildarlöggjöf fyrir tónlistarskóla verði bakhjarl við starfsemi tónlistarskóla með mun víðtækari hætti. Félagið sendi frá sér athugasemdir í fjórtán liðum um það sem betur mætti fara í frumvarpsdrögunum fyrir skil til ráðherra. Stjórn fagráðs tónlistarskóla í FT hefur krufið til mergjar með hvaða hætti mætti laga þá annmarka sem við teljum enn vera á frumvarpsdrögunum. Í frumvarpsdrögunum er samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 13. maí 2011 lögfest. Veigamestu athugasemdir félagsins snúa að því að í frumvarpsdrögunum tekst ekki að sníða af þá annmarka sem hafa komið í ljós við framkvæmd samkomulags ríkis og sveitarfélaga undanfarin misseri. Ekki er tryggt í drögunum að eitt meginmarkmið samkomulagsins nái fram að ganga þ.e. um jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, sem er „forsenda fyrir greiðsluþátttöku ríkisins“. Með samkomulaginu „var sveitarfélögum ætlað að tryggja að nemendur sem uppfylltu inntökuskilyrði tónlistarskóla og reglur um námsframvindu gætu stundað hljóðfæranám í fram- haldsnámi og söngnám í mið- og framhaldsnámi án tillits til búsetu“. Ekki er nægjanlega skýrt kveðið á um skyldur sveitar- félaga þar að lútandi í frumvarpsdrögunum. Þá gerir félagið athugasemdir við þá aðferðafræði sem út- hlutunarreglur vegna samkomulagsins eru grundvallaðar á. Félagið mun fylgja eftir athugasemdum sínum með það að leiðarljósi að markmiðum fyrrgreinds samkomulags verði náð og að rekstarskilyrði tónlistarskóla, í tengslum við útfærslu samkomulagsins, verði bætt frá því sem nú er víða. Félag tónlistarskólakennara þakkar fyrir samstarfið á liðnu ári og óskar félagsmönnum sínum farsældar og gleði á nýju ári! VIVA LA MUSICA! Formaður nefndar um endurskoðun laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 afhenti Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, tillögu að frumvarpi til laga um tónlistarskóla þann 23. janúar sl. Frumvarpstillagan var sett í opið samráðsferli á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins þann 25. janúar. Frestur til að skila inn athugasemdum við frumvarps- drögin er til 6. febrúar. Innsendar athugasemdir verða hafðar til hliðsjónar við undirbúning endanlegs frumvarps sem ráðherra mun leggja fyrir Alþingi. Framhald á næstu blaðsíðu

Upload: kennarasamband-islands

Post on 15-Mar-2016

225 views

Category:

Documents


5 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Fréttabréf FT - 94. tbl., janúar 2013

Janúar 2013 · tölublað 94

Fréttabréf

Félags tónlistarskólakennara

Tillaga að frumvarpi til laga um tónlistarskóla

komin í hendur ráðherra

Nefnd um endurskoðun á lögum um fjárhagslegan stuðning

við tónlistarskóla nr. 75/1985 var upphaflega skipuð 1. mars

2004 en vegna deilna um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitar-

félaga lauk nefndin aldrei störfum. Stjórn FT þrýsti reglulega

á um að nefndin yrði kölluð saman að nýju og var nefndin

endurskipuð 13. desember 2010. Formaður FT átti sæti á

báðum nefndum.

Stjórn FT fagnar því að nú standi fyrir dyrum að leggja fram

frumvarp að heildstæðri löggjöf um starfsemi tónlistarskóla.

Margt í tillögunum er til þess fallið að styrkja starfsemi tón-

listarskóla og efla tónlistarfræðslu. Lög um fjárhagslegan

stuðning við tónlistarskóla ná einungis til stofnunar og

reksturs tónlistarskóla en félagið hefur horft til þess í störfum

sínum að ný heildarlöggjöf fyrir tónlistarskóla verði bakhjarl

við starfsemi tónlistarskóla með mun víðtækari hætti.

Félagið sendi frá sér athugasemdir í fjórtán liðum um það sem

betur mætti fara í frumvarpsdrögunum fyrir skil til ráðherra.

Stjórn fagráðs tónlistarskóla í FT hefur krufið til mergjar með

hvaða hætti mætti laga þá annmarka sem við teljum enn vera á

frumvarpsdrögunum.

Í frumvarpsdrögunum er samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá

13. maí 2011 lögfest. Veigamestu athugasemdir félagsins snúa

að því að í frumvarpsdrögunum tekst ekki að sníða af þá

annmarka sem hafa komið í ljós við framkvæmd samkomulags

ríkis og sveitarfélaga undanfarin misseri. Ekki er tryggt í

drögunum að eitt meginmarkmið samkomulagsins nái fram að

ganga þ.e. um jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms,

sem er „forsenda fyrir greiðsluþátttöku ríkisins“.

Með samkomulaginu „var sveitarfélögum ætlað að tryggja að

nemendur sem uppfylltu inntökuskilyrði tónlistarskóla og

reglur um námsframvindu gætu stundað hljóðfæranám í fram-

haldsnámi og söngnám í mið- og framhaldsnámi án tillits til

búsetu“. Ekki er nægjanlega skýrt kveðið á um skyldur sveitar-

félaga þar að lútandi í frumvarpsdrögunum.

Þá gerir félagið athugasemdir við þá aðferðafræði sem út-

hlutunarreglur vegna samkomulagsins eru grundvallaðar á.

Félagið mun fylgja eftir athugasemdum sínum með það að

leiðarljósi að markmiðum fyrrgreinds samkomulags verði náð

og að rekstarskilyrði tónlistarskóla, í tengslum við útfærslu

samkomulagsins, verði bætt frá því sem nú er víða.

Félag tónlistarskólakennara þakkar fyrir samstarfið

á liðnu ári og óskar félagsmönnum sínum

farsældar og gleði á nýju ári!

VIVA LA MUSICA!

Formaður nefndar um endurskoðun laga um fjárhagslegan

stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 afhenti Katrínu

Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, tillögu

að frumvarpi til laga um tónlistarskóla þann 23. janúar sl.

Frumvarpstillagan var sett í opið samráðsferli á vef

mennta- og menningarmálaráðuneytisins þann 25. janúar.

Frestur til að skila inn athugasemdum við frumvarps-

drögin er til 6. febrúar. Innsendar athugasemdir verða

hafðar til hliðsjónar við undirbúning endanlegs frumvarps

sem ráðherra mun leggja fyrir Alþingi.

Framhald á næstu blaðsíðu

Page 2: Fréttabréf FT - 94. tbl., janúar 2013

Nokkur helstu nýmæli í frumvarpstillögunum frh.

Sigríður Sveinsdóttir, píanókennari, gerð að heiðursfélaga FT

1. Lagt til að sett verði heildstæð löggjöf um starfsemi tón-

listarskóla. 2. Lagt er til að fjallað verði um skipan tónlistarnáms og hlut-

verk ráðuneytisins og sveitarfélaga með nánari hætti en áður.

Einnig verði ábyrgð og skyldur, gagnvart einstökum þáttum

á sviði tónlistarfræðslu, skilgreindar með skýrari hætti en

gert er í gildandi lögum.

3. Í frumvarpinu er lagt til að öllum, sem uppfylla skilyrði lag-

anna, verði heimilt að stofna tónlistarskóla. Tónlistarskólar

eigi þó ekki sjálfkrafa kröfu á framlög úr hendi sveitarfélaga

eða styrkjum af almannafé.

4. Lagt er til að fjallað verði um starfsgengisskilyrði skóla-

stjóra og kennara. Jafnframt að óheimilt verði að ráða ein-

stakling til starfa við tónlistarskóla sem hlotið hefur refsi-

dóm fyrir brot gegn ákvæðum XXII. kafla almennra

hegningarlaga.

5. Lagðar eru til breytingar á fjárstuðningi og kostnaðarþátt-

töku hins opinbera frá gildandi lögum. Í þeim felst að ríkis-

sjóður veiti árlega fjárveitingu á fjárlögum til sveitarfélaga

sem renni til kennslukostnaðar sveitarfélaga vegna mið- og

framhaldsnáms í söng og framhaldsnáms í hljóðfæraleik sem

fram fer samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla.

6. Mælt er fyrir um fjárstuðning nemenda til tónlistarnáms utan

lögheimilissveitarfélags síns. Slíkur réttur nemenda til tón-

listarnáms, utan lögheimilissveitarfélags, skal háður samn-

ingi þess við hlutaðeigandi tónlistarskóla eða reglum skv.

17. gr. frumvarpsins.

7. Mælt er fyrir um að nánar verði kveðið á um skyldur ein-

stakra tónlistarskóla um innritun nemenda og þær reglur sem

skóli hyggst leggja til grundvallar innritun nemenda í

þjónustusamningi skv. 8. gr. frumvarpsins.

8. Gert er ráð fyrir að tónlistarskólar eigi rétt á framlögum úr

sameiginlegum sprotasjóði skóla, sem hefur fram til þessa

verið starfræktur í þágu leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Hlutverk sjóðsins hefur, m.a. verið að styðja við þróunarstarf

og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og

er lagt til að sjóðurinn styðji einnig við skólastarf í tónlistar-

skólum.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér drög að frumvarpi til

laga um tónlistarskóla á vefsíðu mennta- og menningarmála-

ráðuneytisins.

Í frétt á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins

eru tilgreind nokkur helstu nýmæli sem felast í frum-

varpstillögu nefndar um endurskoðun á lögum um

fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla:

Sigríður Sveinsdóttir, píanókennari og fyrrverandi formaður

Félags tónlistarskólakennara, var gerð að heiðursfélaga Félags

tónlistarskólakennara á afmælisársfundi FT 24. nóvember sl. á

Grand Hóteli. Á heiðursskjali sem Sigríði var afhent segir:

„Sigríður Sveinsdóttir, píanókennari, var formaður Félags tón-

listarskólakennara frá árinu 1988 til 1999. Á þeim ellefu árum

sinnti hún formannsstarfinu af alúð og hugsjón. Hún leiddi

félagið farsællega þar sem áhugi á faginu, réttsýni og umhyggja

fyrir félagsmönnum var í fyrirrúmi. Sigga gaf sig af lífi og sál í

starfið og var persónuleg þjónusta hennar einkenni. Sigga á

stóran þátt í þróun farsæls starfs Félags tónlistarskólakennara og

framlag hennar í þágu stéttarinnar er stórt.“

Nýverið var Halldór Haraldsson, píanóleikari, einnig gerður að

heiðursfélaga FT á sérstökum tónleikum sem haldnir voru

honum til heiðurs. Halldór var einn af stofnendum Félags píanó-

kennara árið1970 en nafni félagsins var breytt í Félag tónlistar-

kennara árið 1973. Halldór var formaður þessara félaga árin

1970-1975 og svo aftur 1977-1982. Þessi félög eru fyrirrennarar

Félags tónlistarskólakennara. Halldór Haraldsson var, auk Sig-

ríðar Sveinsdóttur, sérstakur heiðursgestur á ársfundinum.

Ágrip af sögu FT

Félag tónlistarskólakennara var stofnað 21. nóvember árið 1982

og fagnaði því 30 ára afmæli á ársfundinum. 24. nóv. sl. Í tilefni

af þessum tímamótum var ákveðið að láta taka saman ágrip af

sögu félagsins. Það er gaman frá því að segja og vel við hæfi að

Sigríður Sveinsdóttir hefur tekið verkefnið að sér.

Á myndinni eru: Sigrún Grendal, formaður FT, Sigríður

Sveinsdóttir, fyrrverandi formaður FT og Jón Hrólfur

Sigurjónsson, varaformaður FT.

Page 3: Fréttabréf FT - 94. tbl., janúar 2013

Umræðunum var ætlað að varpa ljósi á

hvaða viðfangsefni eru kennurum og

skólastjórnendum hugleikin um þessar

mundir. Hér á eftir birtum við saman-

tekt niðurstaðna og það er von okkar að

þær nýtist sem efniviður í fagumræðu

inn í tónlistarskólunum. Niðurstöðurnar

endurspegla áherslur félagsmanna og

munu gagnast félaginu sem leiðarvísir í

starfseminni bæði á sviði fag- og kjara-

mála.

Niðurstöðunum úr hópumræðunum

má skipta niður í átta aðalflokka:

1. Kjaramál

2. Samstarf

3. Samspil

4. Námsmat

5. Námskrá

6. Símenntun ( og kennaramenntun)

7. Kennslufyrirkomulag

8. Tónfræðigreinar.

Þegar niðurstöðurnar voru skoðaðar

eftir landsvæðum kom í ljós að það eru

mikið til sömu málaflokkarnir sem eru

fólki hugleiknir. Vægi þeirra innbyrðis,

þ.e. hvaða málaflokkar voru tilteknir

oftast, er ennfremur mjög jafnt. Kjara-

málin trónuðu þó efst, málaflokkar nr.

2-6 voru jafnir, kennslufyrirkomulag

hafði aðeins minna vægi en fyrri mál-

efni og tónfræðagreinar ráku lestina.

Niðurstöður hópumræðna á svæðisþingum haustið 2012

Hér á eftir hafa þau atriði sem þátttak-

endur nefndu undir hverjum málaflokki

verið dregin saman í nokkra punkta. Þá

fylgir hverjum málaflokki smá skýringar-

texti, einnig í punktaformi.

1. Kjaramál – helstu áhersluatriði:

Hærri laun, fólk lifir ekki af laununum

sömu laun og sambærilegar stéttir -

kennarastarfið er sérfræðistarf

auka vægi hópkennslu í launum

meira gagnsæi í framkvæmd launapotts

meira fjármagn í símenntun

bætt starfsöryggi kennara (óvissa að

hausti)

ferðakostnaður greiddur í meira mæli

(sumir keyra langan veg til vinnu).

Lág laun kalla á mikla vinnu kennara, þeir

eiga ekkert aflögu. Hærri laun auka starfs-

ánægju kennara og gera kennarastarfið

aðlaðandi. Skilgreina skýrar hvað er sam-

spil og hvað er hópkennsla. Auka þarf

fjármagn símenntunar sem og til kaupa á

tölvum og hugbúnaði.

2. Samstarf – helstu áhersluatriði:

Aukið samstarf milli tónlistarskóla

meira samstarf milli kennara (innan

skóla og milli skóla)

sameiginleg meistaranámskeið (master

Myndir frá afmælisársfundi Félags tónlistarskólakennara 24. nóvember 2012 á Grand Hótel Reykjavík.

„Hvað liggur þér á hjarta?“ var yfirskrift hópumræðna á svæðisþingum

tónlistarskóla síðast liðið haust. Stuðst var við fyrirkomulag

„þjóðfundarformsins“ þar sem þátttakendum var skipt upp í hópa og

öllum gefið færi á að greina frá málaflokkum eða málefnum í okkar

starfsumhverfi sem þeir töldu mikilvægt að lögð yrði áhersla á. Niður-

stöðurnar voru kynntar á ársfundi Félags tónlistarskólakennara þann 24.

nóvember síðastliðinn.

class) og tónleikar

meira samstarf við foreldra

(upplýsingar og ábyrgð)

aukið samstarf við önnur skólastig

aukin tengsl við nærsamfélagið.

Mikil áhersla var lögð á aukið samstarf af

ýmsu tagi á öllum svæðisþingunum. Hér

fylgja nánari skýringar á helstu þáttunum:

Samstarf tónlistarskóla á viðkomandi

landsvæði; samvinna í hljómsveitar-

og lúðrasveitarstarfi, tónleikaferða-

lögum

samstarf/samtal milli kennara

(hljóðfærakennara og tónfræðigreina-

kennara), miðlun þekkingar og

reynslu, við vinnum öll að sama

markmiði. Samstarf er hvetjandi og

hlúa þarf mun betur að þeim þætti í

skólastarfinu. Sérstaklega var kallað

eftir samvinnu í tónfræðigreinum og

að fjarnám yrði í boði á því sviði

kennsla á skólatíma grunnskólanna

þótti jákvæð en einnig var lögð á-

hersla á víðtækara samstarf s.s. í

tengslum við kórastarf, uppsetningu

sýninga, söngleiki, þemaverkefni o.fl.

Fram kom að efla ætti tónlist í

tengslum við valfög á unglingastigi og

framhaldsskólastigi og að samstarf við

aðrar skólagerðir þyrfti að vera á jafn-

ingjagrundvelli

mjög mikil áhersla var lögð á að tón-

listarskólarnir þyrftu að vera sýnilegri,

þeir þóttu of einangraðir, og að rödd

okkar þyrfti að heyrast betur. Nótan

var nefnd sem dæmi um gott framtak.

Page 4: Fréttabréf FT - 94. tbl., janúar 2013

Félag tónlistarskólakennara

Laufásvegi 81,

101 Reykjavík.

Heimasíða á www.ki.is.

Skrifstofa félagsins er opin milli

kl. 9.00 og 13.00 alla virka daga.

Sími: 595-1111 og fax: 595-1112.

Netfang: [email protected].

Ábyrgð og umsjón fréttabréfsins:

Sigrún Grendal, formaður

Félags tónlistarskólakennara

Niðurstöður hópumræðna á

svæðisþingum – framhald

3. Samspil – helstu áhersluatriði:

Allir nemendur eiga að hafa kost á

samspili (líka píanónemendur)

fjölbreytni í samspili, samspil mis-

munandi hljóðfæra

samstarf skóla um samspil, heim-

sóknir/mót

kennarar deili efni og útsetningum

hver með öðrum

samspil sé fastur liður í tónlistarnám-

inu

gert sé ráð fyrir samspili í vinnutíma

kennara (kennsluskyldu)

aðstaða til samspils þarf að vera góð.

Mikil áhersla var lögð á gildi samspils í

tónlistarnáminu, það örvar nemendur, er

nærandi og skemmtilegt, hefur félagslegt

gildi, þjálfar nemendur í að koma fram,

nemendur læra að njóta tónlistar með

öðrum, stuðlar að hagnýtingu námsins og

skilur eftir sig góðar minningar. Bent var

á að kennarar þurfi að vinnan meira

saman að þessum þætti tónlistarnámsins.

4. Námsmat – helstu áhersluatriði:

Bætt samskipti við prófanefnd

einfalda fyrirkomulag áfangaprófa,

gera það skilvirkara og ódýrara

meiri samræmingu í námsmati í

áfangaprófum

fagprófdómara alltaf, faglegri próf-

dæmingu í áfangaprófum

fjölbreyttara og einstaklingsmiðaðra

námsmat

upplýsingar um blaðlestur á vef

Prófanefndar

upplýsingar um dagsetningar áfanga-

prófa berist fyrr.

Kallað var eftir „gildu“ námsmati fyrir þá

sem ekki taka áfangapróf. Formleg próf

eru ekki fyrir alla. Gera þarf athuga-

semdir við áfangapróf fyrir prófin (ef

þörf er á), fólk er óöruggt við val á verk-

efnum, hrætt við að mistök bitni á nem-

endum.

5. Námskrá – helstu áhersluatriði:

Samræma greinanámskrár

Samræma/tengja klassíska námskrá

og rytmíska

vantar „popp“ námskrá

skilgreina betur valþáttinn

fjölbreyttari námskrá, nemenda-

miðaðri

kennarar/skólar móti sínar eigin

námskrár

endurskoðun aðalnámskrár

skýrari og meira leiðbeinandi verk-

efnalista.

Tónstigahlutinn var tilgreindur sérstak-

lega varðandi þörf á samræmingu. Nám-

skrá fyrir rytmíska tónlist þótti óhentug.

6. Símenntun / (og kennaramenntun) –

helstu áhersluatriði:

Meiri áherslu á símenntun

LHÍ ætti að sjá um og skipuleggja

símenntun

regluleg námskeið innan skólanna og

í samstarfi við aðra skóla

notkun nýrrar tækni og miðla

meira fjármagn í símenntun

oftar möguleiki á námsleyfi

námskeið sem gefa einingar.

Kallað var eftir reglulegu og fjölbreyttu

námskeiðahaldi, sumarnámskeið voru

tilgreind og framboð fyrri skóla út á

landi. Skólana vantar fjármagn til að geta

sinnt þörf fyrir símenntun.

Eftirfarandi atriði voru nefnd í tengslum

við menntun hljóðfæra- og söngkennara;

Ástand tónlistarkennaramenntunar í

landinu, er alvarlegt

meistaranám í kennslufræðum í LHÍ

fjarnám í kennslufræði og fagkennslu-

fræði

löggilding starfsheitis tónlistarskóla-

kennara

menntun tónfræðikennara

stofnun tónlistarkennaradeildar við

HA.

7. Kennslufyrirkomulag – helstu á-

hersluatriði:

Hér mátti greina tvo póla í umræðunni

sbr. I og II:

I)

Kerfið er of stýrandi, meiri sveigjan-

leika vantar

hvernig ráðstöfum við kennslu-

tímanum, hvert er markmiðið?

einstaklingsmiðaðra nám

skapandi kennsluhættir

hugsa út fyrir rammann

lengri tíma fyrir lengra komna nem-

endur.

II)

Standa vörð um 60 mínútna kennslu-

stund

kennslukerfi okkar er gott í saman-

burði við önnur lönd

tveir hálftímar á viku mikilvægir

lengri tíma fyrir lengra komna nem-

endur.

Spurt var um fagmennsku stéttarinnar í

þeim tilfellum sem byrjendum er boðið

upp á 20 mínútna kennslu á viku. „Hálft

nám“ þótti ekki boðlegt. Áhersla var lögð

á sveigjanleika, við erum að mennta alls

konar fólk, kennarinn þarf að hafa frelsi

til að stýra kennslunni. Lengd kennslu-

stunda getur verið mismunandi, við

eigum að hugsa um innihaldið og mæta

hverjum nemanda þar sem hann er

staddur. Nemendur með sérþarfir voru

nefndir sérstaklega.

8. Tónfræðigreinar – helstu áherslu-

atriði:

Koma á fjarnámi í tónfræðigreinum

vinna saman í dreifðari byggðum

heildstætt námsefni í samræmi við

námskrá, hafa það aðgengilegt

spuni og tjáning í tónfræðikennslu

samhæfa hljóðfærakennslu og tón-

fræði

meiri áherslu á tónheyrn

miklu meiri áherslu á tónmennta-

kennslu.

Hér má greina þörf fyrir samvinnu utan

höfuðborgarsvæðisins. Einnig er kallað

eftir að fjarnám standi til boða (fámennir

tímar, hagræði í samnýtingu). Kallað er

eftir aukinni virkni í tónfræðakennslu

sbr. hreyfingu, spuna, sköpun. Nokkur

áhersla var lögð á mikilvægi tónheyrnar

umfram tónfræði. Lokatónleikar

Fékkst þú nýtt rafrænt fréttabréf

FT í síðustu viku?

Ef ekki, þá endilega sendu okkur þitt

rétta netfang á [email protected].

Stjórn FT hefur ákveðið að hefja út-

gáfu á rafrænu fréttabréfi sem verða

m.a. vettvangur fyrir styttri tilkynn-

ingar frá félaginu og félagsmönnum.