heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

24
Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir Lektor í næringarfræði Kennaraháskóla Íslands

Upload: hollye

Post on 12-Jan-2016

41 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum. Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir Lektor í næringarfræði Kennaraháskóla Íslands. Hvert skal stefna í matvælaframleiðslu á Íslandi?. Hvaða möguleika höfum við? Hver er sérstaða landsins? Hefðir → vörur sem ekki fást annars staðar - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir

Lektor í næringarfræði

Kennaraháskóla Íslands

Page 2: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Hvert skal stefna í matvælaframleiðslu á Íslandi?

• Hvaða möguleika höfum við?

• Hver er sérstaða landsins?– Hefðir → vörur sem ekki fást annars staðar– Hreinleiki → ímynd landsins – Hollusta– Hæfni → sértæk þekking

• Matvælaframleiðsla snýst um fleira en að metta svanga munna.

Page 3: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

Norræn matargerð - Nýsköpunarverkefni

• Norræna nýsköpunarmiðstöðin hefur ákveðið að styðja þróun og nýsköpun í matargerð sem byggir á norrænu hráefni, hefðum og menningu.

• Sérstaklega er leitast við að styrkja samstarf á milli aðila innan matvæla-, ferðamála- og afþreyingariðnaðarins.

http://www.nordicinnovation.net Íslenskar upplýsingar af vef Rannís

Page 4: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

frh.• Norðurlöndin eru þekkt fyrir hreinleika,

ferskleika og einfaldleika.

• Alþjóðlega er stóraukin áhugi á meðal neytenda og aðila í veitingaiðnaði á mat með þessum eiginleikum sem opnar möguleika á nýjum mörkuðum.

• Norræn matvælaframleiðsla er í mörgum tilfellum svæðisbundin og í litlu magni. Þetta er styrkur en um leið veikleiki.

• Vilji til að auka samkeppnishæfni sem byggir á sérstöðu landanna - svæðisbundna verðmætasköpun.

Page 5: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Matur og menning – fara saman• Matarmenning hvers lands er líklega einn

sá sterkasti þáttur sem tengist ímynd landsins ásamt náttúrunni!

Page 6: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Matarsetur félagsins Matur-Saga-Menning

• Tilgangur félagsins er að efla þekkingu á íslenskum mat og vekja áhuga á þeim menningararfi sem felst í matarhefðum.

• Á heimasíðu félagsins er bent á að mikill og almennur áhugi ríki á þjóðlegri matargerð um þessar mundir...

• ...og að enn sem komið er hafi íslenskri matarmenningu ekki verið gerð nógu góð skil. www.matarsetur.is

Meðal styrktaraðila Matarsetursins eru Bændasamtök Íslands.

Page 7: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Hlutverk Matarseturs

• kynna íslensk matvæli, hráefni, geymsluaðferðir og matargerð

• sýna áhöld, gripi og annað sem mótaði íslenska matarhefð

• sýningar, kynningar og fræðslufundir um íslenskan mat í nútíð og fortíð

• vettvangur til að kynna nýjungar í matvælaframleiðslu úr íslensku hráefni

• þekkingarmiðstöð um íslenskan mat og hefðir• viðkomustaður (ísl + erl) – smakk o.fl.

Page 8: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

• Íslensk náttúra ber ímynd hreinleikans.

• Hreinleiki íslenska vatnsins.

• Hreinleikinn er í sjálfu sér söluvara.

Hreint skal það vera!

Page 9: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Hreinleiki íslenskra landbúnaðarafurða

• Verkefni hjá Matra/ITI 2000-2001.

• Styrkur ólífrænna snefilefna, þrávirkra lífrænna efna og geislavirkra efna með því lægsta sem mælist í nálægum löndum.

• Lítil notkun á þrávirkum efnum hér á landi en þó berst eitthvað hingað með loftstraumum og greinist því í íslensku vistkerfi.

Page 10: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Ný verkefni – ný mið

• EuroFIR – evrópskt verkefni um gagnagrunna fyrir efnainnihald matvæla

• Þar fer m.a. fram vinna við matarhefðir og lífvirk efni sem getur varpað ljósi á sérstöðu íslenskra matvæla– er matur af heimaslóðum etv hið mesta

heilsufæði?

Page 11: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Sérstaða íslensku mjólkurinnar

• Rannsóknir og þróunarstarf RÍN*– Prótein sem talin eru geta valdið sykursýki eru

í minna magni í íslenskri kúamjólk en í mjólk stórra erlendra kúakynja.

– Prótein tengd ofnæmi eru einnig í minna mæli– Fitusýrusamsetningin er æskilegri en í erlendri

mjólk (meira af ómega-3 og CLA)

Rannsóknastofa í næringarfræði við HÍ og LSH

Page 12: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Íslenskir neytendur kjósa íslenskar vörur

• Dæmi: Grænmetið sem fólkið vill.• Tómataframleiðsla hefur aukist eftir að tollavernd

var lögð af, úr 900 tonnum árlega í 1500 tonn. • Það sýnir glögglega mikilvæga ímynd íslensku

sérstöðunnar að sumt innflutt grænmeti hefur verið merkt sem íslenskt þótt vörunni sé aðeins pakkað hér – til að viðhalda og varðveita ímyndina þarf að gæta þess að slíkir siðir séu ekki viðhafðir.

Page 13: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Íslenskt grænmeti er einstakt

• Grænmeti ræktað á norðlægum slóðum getur haft aðra samsetningu en það sem ræktar er sunnar á hnettinum

• hægur vöxtur í langan tíma gæti aukið styrk heilsusamlegra virkra efna í jurtunum

• Önnur áhrif draga þó úr þessari myndun– lítið sólarljós– lágt hitastig

Page 14: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

frh.

• Í skýrslu MATRA 2001 kemur fram – ekki minna β-karóten í íslenskum gulrótum en

innfluttum– lýkópen í tómötum jafnvel heldur meira ef ísl.– lítil þörf á varnarefnum því færri skordýr og

skaðvaldar

“grænmetis verksmiðjur” Lífræn ræktun

Virk efni í grænmeti og ávöxtum. Ólafur Reykdal, 2001.

Page 15: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Lífræn ræktun og lífrænn landbúnaður

• Einn af þeim jákvæðu möguleikum sem landbúnaðinum býðst til að nýta möguleika Íslands í að þróa verðmeiri gæðavöru fyrir innanlands og etv einnig heimsmarkað.

• Ekki síst eru tækifæri í að byggja á vistvænni framleiðslu ef hlúð er að náttúru Íslands.

• Markaður fyrir lífrænar afurðir í vexti – >10 % af landbúnaðarframleiðslunni í Austurríki og Svíþjóð.– Spáð hraðri þróun vegna eftirspurnar neytenda – Breytingar í landbúnaðarstefnu ýmissa landa, ekki síst í

Evrópusambandinu, sýna að stefnt er að áframhaldandi eflingu lífrænna búskaparhátta.

• Etv besta leiðin til að hlúa að vistvernd að velja íslenskt!

www.bondi.is

Page 16: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

“Öflugur matvælaiðnaður í stöðugri framþróun”

• Árlegur matvæladagur Matvæla- og næringarfræðingafélags Íslands

• Erindin spönnuðu hín víðustu svið íslenskrar matvælaframleiðslu, s.s. mjólkuriðnað, brauðgerð, sjávarútveg, grænmetisrækt sælgætisgerð og lýsisframleiðslu – ljóst að mikil gróska er í matvælaiðnaði hér á landi– mikið verðmæti býr í fólkinu og þekkingunni sem býr

að baki ekki síður en afurðunum.

Page 17: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Sélkeramenning

• Dæmi: Food and fun hátíðin

• Gott fyrir – Ferðaþjónustu– ímynd landsins – Útrásarmöguleika

• Grunnurinn er þekking Íslendinga á mörgum afbrigðum ,,gourmet” eða nautnamenningar og markaðssetningar.

Page 18: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Framtíð íslensks landbúnaðar

• Ekki bara hráefnið– íslenskar aðstæður

– þekking til að markaðssetja einstæða vöru• Sérvörur með ákveðnum gæðastimpli fyrir

innlendan og erlendan markað• Sérfræðiþekkingu tengda framleiðslunni

Page 19: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Áhersla á gæðin!

• Aukin verðmæti í að leggja áherslu á – Gæði– Hollustu

• Hærra verð sem neytendur vilja þó greiða• Hollustan vegur þyngra en verðið

Hugsanlega leið til sparnaðar....Meiri gæði minni mat?

Page 20: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Skiptir það þig máli að maturinn sé hollur?

Landskönnun 2002, Lýðheilsustöð.

Page 21: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Skiptir það þig máli að maturinn sé ódýr?

Landskönnun 2002, Lýðheilsustöð.

Page 22: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Burt frá skyndibita og “skyndiiðnaði”

• Slow Food samtökin (1986) eru alþjóðleg hreyfing um matarmenningu.

• Vegsama fjölbreytni og sjálfbærni.

• Berst gegn verksmiðjubúskap og einhæfni í framleiðslu og dreifingu matvæla.

Page 23: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Matvælaöryggi

• Matvælaframleiðsla hérlendis er upp að vissu marki nauðsynleg öryggisins vegna– Dæmi: Chernobyl– Fuglaflensa

eða aðrir vágestir geta valdið innflutningshöftum.

Page 24: Heilsusamleg matvæli af heimaslóðum

ASÓ 2006

Hvað vilt þú sjá á diskinum þínum í framtíðinni?

• Sérstaða okkar með tilliti til legu landsins, hráefnis og þekkingar vegur þungt

• Tækifærin eru mörg – það þarf bara að opna augun fyrir þeim

• Stuðlum að hollustu og gæðum af heimaslóðum!