hvatakerfiÐ og merkin Í...

38
HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUM Ath. drög – gætu breyst aðeins

Upload: others

Post on 19-Aug-2020

17 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMAth. drög – gætu breyst aðeins

Page 2: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Flokksverkefnamerkin

Flokksverkefnamerkin eru fimm, eitt fyrir hvern verkefnaflokk.

Hjálpsemi og samfélagsþátttaka

Útilíf og umhverfisvernd

Listir og menning

Íþróttir og heilsurækt

Tækni og vísindi

Skátarnir í flokknum fá verkefnamerki fyrir hvert flokksverkefni sem flokkurinn vinnur að sameiginlega.

Page 3: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Flokksverkefnamerkin

Val flokksverkefna fer alltaf fram á flokksþingum að lokinni umræðu á flokksfundum.

Flokksverkefnið þarf að vera valið af flokknum og samþykkt af flokknum og sveitarforingja.

Flokksverkefnið þarf að vera undirbúið, framkvæmt og endurmetið af flokknum í sameiningu.

Skátarnir í flokknum fá verkefnamerki fyrir hvert flokksverkefni sem flokkurinn vinnur að sameiginlega.

Undirbúningur og mat verkefna fer oftast fram á flokksfundum, en verkefnið getur verið unnið á fundum, í ferðum eða útilegum flokksins.

Page 4: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Flokksverkefnin

Undirbúningur og mat verkefna fer oftast fram á flokksfundum, en verkefnið getur verið unnið á fundum, í ferðum eða útilegum flokksins.

Vinna við flokksverkefni frá því að það er valið og þar til það er endurmetið getur tekið hluta tveggja til fjögurra flokksfunda og jafnvel eina ferð eða hluta úr útilegu.

Ef flokksverkefnið er stórt og tekur lengri tíma fellur það oft undir tvo eða fleiri verkefnaflokka. Sveitarráð skátasveitarinnar getur samþykkt að skátarnir fái fleiri en eitt flokksverkefnamerki fyrir þannig verkefni.

Page 5: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Flokksverkefnamerkin

Flokksverkefnamerkin eru límd á:

Merkjasíðurnar í leiðarbók skátans

Framfaratöflu flokksins eða sveitarinnar í skátaheimilinu

Merkjakort skátans heima hjá honum

Page 6: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Flokksverkefnaperlurnar

Flokksverkefnaperlurnar eru þræddar upp á skátareim skátans. Hver skáti fær eina flokksverkefnaperlu á skátareimina sína fyrir hver þrjú flokksverkefni.

Flokksverkefnin þurfa að:

Vera úr þremur ólíkum verkefnaflokkum.

Vera valin, undirbúin, framkvæmd og metin af skátaflokknum í sameiningu.

Þegar skátinn hefur unnið sér fimm flokksverkefnaperlur getur hann skipt á þeim og einni gullverkefnaperlu.

Flokksverkefnaperlurnar fylgja skátanum ekki úr fálkaskáta-starfi í dróttskátastarf, þá fær skátinn– dróttskátareimina.

Page 7: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Verkefnaperlur

Gullverkefna perlan

Flokksverkefna

perlurnar

Page 8: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sveitarverkefnamerkin

Sveitarverkefnamerkin eru fimm, eitt fyrir hvern verkefnaflokk

Hjálpsemi og samfélagsþátttaka

Útilíf og umhverfisvernd

Listir og menning

Íþróttir og heilsurækt

Tækni og vísindi

Skátarnir í sveitinni fá verkefnamerki fyrir hvert sveitarverkefni sem flokkurinn vinnur að sameiginlega með sveitinni sinni.

Page 9: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sveitarverkefnamerkin

Sveitarverkefnið þarf að vera valið og samþykkt af skátunum í sveitinni á sveitarþingi.

Sveitarverkefnið þarf að vera valið og samþykkt af

skátunum í sveitinni á sveitarþingi.

Sveitarverkefnið þarf að vera undirbúið,

framkvæmt og endurmetið af skátunum í sveitinni

og sveitarráðinu.

Val sveitarverkefna fer alltaf fram á sveitarþingum að lokinni umræðu á flokksfundum og einhverskonar atkvæðagreiðslu á sveitarþingi.

Page 10: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sveitarverkefnamerkin

Sveitarverkefnið getur verið unnið á fundum, í ferðum eða útilegum skátasveitarinnar.

Vinna við sveitarverkefni frá því að það er valið og þar til það er endurmetið getur tekið hluta tveggja til fjögurra sveitar og sveitarráðsfunda og jafnvel eina ferð eða hluta úr útilegu.

Ef sveitarverkefnið er stórt og tekur lengri tíma fellur það oft undir tvo eða fleiri verkefnaflokka. Sveitarráð skátasveitarinnar getur samþykkt að skátarnir fái fleiri en eitt sveitarverkefnamerki fyrir þannig verkefni.

Page 11: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sveitarverkefnamerkin

Sveitarverkefnamerkin eru límd á:

Merkjasíðurnar í leiðarbók skátans

Framfaratöflu flokksins eða sveitarinnar í

skátaheimilinu

Merkjakort skátans heima hjá honum

Page 12: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sveitarverkefnaperlurnar

Sveitarverkefnaperlurnar eru þræddar upp á skátareim skátans. Hver skáti fær eina sveitarverkefnaperlu á skátareimina sína fyrir hver fjögur sveitarverkefni.

Sveitarverkefnin þurfa að:

vera úr fjórum ólíkum verkefnaflokkum.

vera valin, undirbúin, framkvæmd og metin af

skátaflokkunum og sveitarráði skátasveitarinnar.

Sveitarverkefnaperlurnar fylgja skátanum ekki úr fálkaskátasveitinni í dróttskátasveitina, þá fær skátinn nýja skátareim – dróttskátareimina.

Page 13: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Verkefnaperlur

Sveitarverkefna

perlurnar

Page 14: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Útilífsmerkin

Útilífsmerkin eru í þremur flokkum:

Dagsferðir

Útilegur

Skátamót

Útilífsmerkin eru veitt fyrir þátttöku í útivistarverkefnum skátaflokka og skátasveita.

Page 15: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Útilífsmerkin

Útivistarverkefnið getur tengst eða verið hluti af öðrum flokks- og sveitarverkefnum í skátastarfinu.

Ef skátaflokkur fer í dagsferð til að vinna að flokksverkefni, t.d. í verkefnaflokknum „Hjálpsemi og samfélagsþátttaka“ getur skátinn fengið bæði „Dagsferðamerki“ og „Flokksverkefnamerki“ fyrir sama verkefnið.

Útivistarverkefnið þarf að vera með undirbúið með dagskrá, framkvæmt og endurmetið.

Page 16: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Útilífsmerkin

Útilífsmerkin eru límd á:

Merkjasíðurnar í leiðarbók skátans

Framfaratöflu flokksins eða sveitarinnar í skátaheimilinu

Merkjakort skátans heima hjá honum

Page 17: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Útilífsperlurnar

Útilífsperlurnar eru þræddar upp á skátareim skátans:

Hver skáti fær útilífsperlu á skátareimina sína fyrir þátttöku í útivistarverkefnum:

Eina „dagsferðaperlu“ fyrir þátttöku í hverjum þremur dagsferðum með skátaflokk eða skátasveit.

Eina „útileguperlu“ fyrir þátttöku í hverjum tveimur útilegum með skátaflokk eða skátasveit.

Eina „skátamótaperlu“ fyrir þátttöku í hverju skátamóti sem skátinn tekur þátt í.

Útilífsperlurnar fylgja skátanum ekki úr fálkaskátastarfi í dróttskátastarf, þá fær skátinn nýja skátareim –dróttskátareimina.

Page 18: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Dagferðaperlur

Útilífs perlurnar

Útileguperlur

Skátamóta perlur

Page 19: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sérkunnáttumerkin

Sérkunnáttumerkin eru í fimm flokkum:

Útilíf og náttúruvernd

Íþróttir og heilsurækt

Hjálpsemi og samfélag

Tækni og vísindi

Listir og menning

Sérkunnáttuverkefnin eru einstaklingsverkefni og tengjast ekki beint starfi skátaflokka og skátasveita.

Page 20: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sérkunnáttumerkin

Hver skáti velur og mótar sitt sérkunnáttuverkefni í samráði sveitarforingja eða sérkunnáttuforingja í skátafélaginu. Verkefnin og þær kröfur sem þau gera til skátans geta því verið mjög mismunandi og ólíkar á milli skáta, jafnvel þó að verkefnin beri sama heiti og tilheyri sama sérkunnáttuflokki.

Sem dæmi getum við skoðað sérkunnáttuverkefni tveggja skáta, bæði verkefnin heita „Gítarspil“ og tilheyra flokknum“Listir og menning“

Page 21: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sérkunnáttumerkin

Vinna við sérkunnáttuverkefni frá því að það er valið og þar til það er endurmetið getur tekið allt frá nokkrum vikum upp í nokkra mánuði.

Sérkunnáttuverkefnið þarf að vera valið af skátanum og samþykkt af sveitarforingja eða sérkunnáttuforingja.

Sérkunnáttuverkefnið þarf að vera með fyrirfram skilgreint markmið, undirbúið, framkvæmt og endurmetið af skátanum.

Page 22: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sérkunnáttumerkin

Sérkunnáttumerkin eru límd á:

Merkjasíðurnar í leiðarbók skátans

Framfaratöflu flokksins eða sveitarinnar í skátaheimilinu

Merkjakort skátans heima hjá honum

Page 23: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sérkunnáttuperlurnar

Sérkunnáttuperlurnar eru þræddar upp á skátareim skátans. Hver skáti fær eina sérkunnáttuperlu á skátareimina sína fyrir hver þrjú sérkunnáttuverkefni.

Sérkunnáttuverkefnin þurfa að:

Vera úr að minnsta kosti tveimur ólíkum verkefnaflokkum.

Vera valin, undirbúin, framkvæmd og metin af skátanum.

Sérkunnáttuperlurnar fylgja skátanum ekki úr fálkaskátastarfi í dróttskátastarf, þá fær skátinn nýja skátareim – dróttskátareimina.

Page 24: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Sérkunnáttu

perlurnar

Sérkunnáttu perlur

Page 25: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Markmiðamerkin

Markmiðamerkin eru í sex flokkum:

Heilbrigði og hollusta

Skynsemi og sköpunarþrá

Vilji og persónuleiki

Tilfinningar og skoðanir

Vinir og samfélag

Lífsgildi og tilgangur lífsins

Markmiðamerkin eru veitt fyrir vinnu hvers skáta að persónulegum áskorunum sínum, þær eru einstaklingsverkefni og tengjast ekki beint starfi skátaflokka og skátasveita.

Page 26: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

HVATAKERFI OG ÞROSKASVIÐ

Baheera

Líkams-þroski

Kaa

Vitsmuna-þroski

Baloo

Persónu-þroski

RikkiTikkiTavi

Tilfinninga-þroski

Kotic

Félags-þroski

Frans frá Assisi-

Andlegur þroski

Í drekaskátum eru markmiðamerkin tengd táknrænum fyrirmyndum úr Skógarlífi Kiplings

Í öðrum eldri aldursbilum eru notaðir sömu litir í markmiðamerkin en önnur grafískari tákn

Page 27: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Markmiðamerkin

Við upphaf hvers dagskrárhrings velur hver skáti sér áfangamarkmið að vinna að og setur sér persónulega áskorun sem leið til að vinna að því áfangamarkmiði.

Skátinn skrifar áskorunina í leiðarbókina sína og kynnir hana og ræðir við sveitarforingja eða umsjónarforingja sinn.

Við lok dagskrárhringsins hittast skátinn og sveitarforinginn eða umsjónarforinginn aftur og ræða hvernig tekist hefur að vinna að áskoruninni.

Áskoranir hvers skáta geta því verið mjög mismunandi og ólíkar áskorunum annarra skáta í flokknum eða sveitinni jafnvel þó að þeir séu að vinna að sömu áfangamarkmiðum.

Page 28: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Markmiðamerkin

Skátinn velur sér sjálfur fjögur til sex áfangamarkmið að vinna að hverju sinni, æskilegt er að markmiðin séu úr ólíkum markmiðaflokkum.

Skátinn setur sér sjálfur persónulegar áskoranir við þau markmið sem hann valdi og kynnir þau og ræðir við sveitar- eða umsjónarforingjann við upphaf hvers dagskrárhrings sveitarinnar.

Markmið og persónulegar áskoranir hvers einstaks skáta hafa ekki áhrif á verkefnaval skátaflokka og sveitarinnar.

Page 29: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Markmiðamerkin

Skátinn fær markmiðamerki í leiðarbókina sína þegar hann er búinn að skrifa áskorun sína í bókina og kynna hana og ræða við sveitar- eða umsjónarforingja sinn. Merkið er þannig tákn um að skátinn sé að vinna að markmiðinu með áskorun sinni.

Sveitar- eða umsjónarforinginn stimpla eða árita áskorunina í leiðarbókinni í viðtali við skátann við lok dagskrárhringsins sem áskorunin tilheyrði.

Tímarammi vinnu að hverri áskorun miðast við tímalengd hvers dagskrárhrings skátasveitarinnar, þó svo að hver skáti vinni auðvitað áfram að áskorunum sínum alla ævi.

Page 30: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Markmiðamerkin

Markmiðamerkin eru límd á:

Markmiðasíðurnar í leiðarbók skátans

Framfaratöflu flokksins eða sveitarinnar í skátaheimilinu

Merkjakort skátans heima hjá honum

Page 31: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Markmiðaperlurnar

Markmiðaperlurnar eru þræddar upp á skátareim skátans.

Hver skáti fær afhenta markmiðaperlu á skátareimina sína fyrir að standast áskoranir sínar.

Fyrstu markmiðaperluna fyrir fyrstu tvær til þrjár áskoranir úr hverjum markmiðaflokki.

Aðra markmiðaperluna fyrir að standast fjórar til fimm áskoranir úr hverjum markmiðaflokki.

...

Áttundu markmiðaperluna fyrir að standast 15-18 áskoranir úr að minnsta kosti tveimur markmiðaflokkum.

Page 32: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Markmiða

perlurnar

Markmiða perlur

Page 33: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Skátamerkin

Skátamerki aldursstiganna eru 15, þrjú fyrir hvert aldursstiganna fimm.

Drekaskátamerkin – Brons-, silfur- og gulldrekinn

Fálkaskátamerkin – Brons-, silfur- og gullfálkinn

Dróttskátamerkin – Brons-, silfur- og gullrúnin

Rekkaskátamerkin ...

Róverskátamerkin ...

Skátamerkin eru borin á skátaklút skátans sem tákn um aldur hans og þátttöku í skátastarfi viðkomandi aldursstigs.

Page 34: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Skátamerkin

Bronsmerkið fær skátinn afhent á sveitarfundi eða við merkisathöfn þegar hann er vígður inn í skátasveitina.

Silfurmerkið fær skátinn afhent á fyrsta sveitarfundi eða við fyrstu merkisathöfn þegar hann er á öðru aldursári aldursstigsins.

Gullmerkið fær skátinn afhent á fyrsta sveitarfundi eða við fyrstu merkisathöfn þegar hann er á þriðja aldursári aldursstigsins.

Sem dæmi fær fálkaskáti sem gengur í fálkaskátasveit haustið eða veturinn þegar hann er tólf ára eða á tólfta aldursári afhentan gullfálkann við inngöngu í skátasveitina og dróttskáti sem gengur í dróttskátasveit haustið eða veturinn þegar hann er fjórtán ára eða á fjórtánda aldurstári afhenta silfurrúnina við inngöngu í skátasveitina.

Page 35: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Könnuðamerkin

Könnuðamerkin eru fimm:

Skógarmerki drekaskáta

Landnámsmerki fálkaskáta

Leiðangursmerki dróttskáta

Forsetamerki rekkaskáta

Heimsfriðarmerki róverskáta

Könnuðamerkin eru æðsta merkjaviðurkenning hvers skáta á hverju aldursstigi skátastarfsins.

Skátinn vinnur að könnuðamerkinu á lokaári hvers aldursstigs í skátastarfi sínu. Áætlað er að vinna að könnuðamerkinu taki 6 til 12 mánuði hjá hverjum skáta.

Page 36: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Könnuðamerkin

Könnuðamerkin eru viðurkenning á að skátinn vilji og leitist við að verða „leiðtogi í eigin lífi“ og byggja bæði á þátttöku hans og framlagi í flokks- og sveitarstarfi og metnaði hans og vinnu við að þroskast og stækka sem

sjálfstæður, virkur og ábyrgur

einstaklingur.

Page 37: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Könnuðamerkin

Til að hljóta könnuðamerki fálka og dróttskáta þarf skátinn að hafa unnið sér inn:

Eina til tvær Flokksverkefnaperlur

Eina til tvær Sveitarverkefnaperlur

Eina til tvær Sérkunnáttuperlur

Eina til tvær Markmiðaperlur

Tvær til þrjár Útilífsperlur

Sveitarforingi og sveitarforingjaflokkur skátasveitarinnar leggja mat á framlag skátans og ákvarða hvort hann fær könnuðamerkið afhent.

Page 38: HVATAKERFIÐ OG MERKIN Í SKÁTUNUMskatamal.is/wp-content/uploads/2013/12/7.-HVATAKERFID-OG...2013/12/07  · Rikki Tikki Tavi Tilfinninga-þroski Kotic Félags-þroski Frans frá

Könnuðamerkin

Skátinn fær merki til staðfestingar á að hann sé að vinna að könnuðamerkinu í leiðarbókina sína, á framfaratöfluna og á merkjakortið sitt.

Könnuðamerkið sjálft er ofið merki og er afhent við hátíðarathöfn skátasveitarinnar undir lok síðasta starfsárs skátans með skátasveitinni sinni.

Könnuðamerkið fylgir skátanum úr fálkaskátastarfi í dróttskátastarf og á milli annarra aldursstiga.