Íþóttavikan 7-11 október

8

Upload: laufey-rut-gudmundsdottir

Post on 06-Mar-2016

222 views

Category:

Documents


1 download

DESCRIPTION

Íþóttavikan 7-11 október | N.F.V.Í.

TRANSCRIPT

Page 1: Íþóttavikan 7-11 október
Page 2: Íþóttavikan 7-11 október

Kæru Íþróttaálfar!Í hönd fer árleg Íþróttavika Verzló. Þá er tækifæri til að rífa sig upp úr sófanum og láta hendur standa fram úr ermum. Vikuna 7. til 11.október verða íþróttaviðburðir í hverju einasta hléi, sem við í Íþróttanefndinni höfum unnið hörðum höndum við að skipuleggja.

Vikan verður stútfull af skemmtilegum viðburðum, jafnt á skólatíma sem eftir skóla. Við hvetjum ykkur til að vera þátttakendur og/eða styðja við félaga ykkar, ef svo ber undir.

Þið munið t.d. upplifa einstaka tískusýningu frá Adidas, boxmót milli tveggja grjótharðra stúlkna, knattspyrnuleik milli kennara og stjórnar N.F.V.Í og svo mætti lengi telja. Nokkrar nýjungar verða á dagskrá, svo sem Crossfitleikar, „dans battle“, „íþrótta nostalgíukvöld“, limbókeppni o.fl.

Rísið nú á fætur í hléum, farið út úr kennslustofunum, mætið á viðburði vikunnar og við lofum ykkur að það munið skemmta ykkur vel.

Ég vil þakka Íþróttanefndinni vel unnin störf við skipulagningu og undirbúning vikunnar auk þess sem ég vil þakka þeim sem komu að myndatöku og uppsetningu bæklings þessa, en það eru þau Haukur Kristinsson og Laufey Rut Guðmundsdóttir.

Ég vona að þið skemmtið ykkur og njótið vel.

Hugrún ElvarsdóttirFormaður Íþróttafélags Verzlunarskólas ‘13-’14

Hugrún Elvarsdóttir Vilhjálmur Ingi Ingason

“You only live once:

that’s the motto, nigga, YOLO”

Björn Bergsson “Never been arrested... by the fashion police!”

Ragnheiður Bjarnardóttir “I had a dream, I was king. I woke up - still king”

Page 3: Íþóttavikan 7-11 október

• Ólympíugull eru aðallega gerð úr silfri.• Maraþon eru 42,195 km.• Hæstu leikmenn sem að spilað hafa í NBA deildinni í körfubolta eru Man-

ute Bol og Gheorghe Muresan. Þeir voru báðir 231 cm á hæð.• Hraðasta tennisuppgjöf í heimi náði 249 km hraða.• Geimfarinn Alan Shepard spilaði golf á tunglinu eftir að hafa smyglað

golfkylfu og golfkúlu í geimfarið sitt árið 1971.• Flugdrekaflug er atvinnumannaíþrótt í Tælandi.• Reipitog var Ólympíuíþrótt á árunum 1900-1920.• Heimsmetið í limbó er undir 15 cm.• Lengsti tennisleikur frá upphafi átti sér stað

á Wimbeldon mótinu árið 2010 þegar John Isner vann Nicolas Mahut í leik sem tók 11 klukkustundir og 5 mínútur.

• Gulir tennisboltar voru fyrst notaðir á Wimbledon mótinu árið 1986 til að þeir yrðu sýnilegir í sjónvarpinu.

• Stærsti fótboltaleikvangur í heimi er Maracana völlurinn í Rio de Janeiro. Þar fór úrslitaleikur heimsmeistaramótsins 1950 fram fyrir framan 199.854 manns.

• Um 42.000 tennisboltar eru notaðir í u.þ.b. 650 leikjum á Wimbledon mótinu í tennis.

• Fyrsti hokkýpökkurinn sem var notaður í leik var frosinn kúaskítur.

Skemmtilegar Íþróttastaðreyndir Ragnheiður Bjarnardóttir “I had a dream, I was king. I woke up - still king”

Arnar Freyr Dagbjartsson “When life gives you lemons, make lemonade”

Eyþór Ingi Einarsson

“Hard work beats talent”

Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir “i’m bringing sexy back”

Hildur Gunnarsdóttir

“KHAAAAAN!!!”

3.

Page 4: Íþóttavikan 7-11 október

Þriðjudagur

20 mín

Hádegi

Eftir skóla

Mánudagur

Íþróvikan

Bekkpressukeppni Hvaða strákur tekur 60 kg

oftast og hvaða stelpa tekur 40 kg oftast?

Jóga Kósý með Ingveldi á

marmaranum

Crossfittleikar Tímataka í hörðustu crossfitæfingunum

Stjórnarbolti Stjórnin vs Kennarar

Íþrótta Nostalgíu kvöld

Gamlar klassískar myndir sýndar

Borðtennismót Sumir vilja meina að þú verðir kóngur Verzló ef

þú sigrar Borðtennismót Verzlunarskólans ’13.

4.

Page 5: Íþóttavikan 7-11 október

Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur

Pógó Sívinsæll boltaleikur sem verður á marmaranum alla vikuna en sérstök keppni

fer fram á miðvikudag

Stinger þið kunnið þetta..

Limbókeppni Getur einhver sigrað

Unni Andreu?

Box Skyldumæting á þennan

viðburð!

Tískusýning Árleg tískusýning frá

Adidas

Dans battleErtu tilíetta?

FIFA 14 MÓT Tvíliðaleikur í FIFA 14,

hverjir verða FIFA meistarar Verzló!?

Pókermót Stokkið spilin því það

verður póker!

DISKÓKEILATaktu fram keiluskóna og

diskódressið og settu þig í stellingar

Marmarinn

Íþróttasalur

Blái salur

5.

Page 6: Íþóttavikan 7-11 október

Nafn/bekkur: Svana Katla Þorsteinsdóttir 6-S

BoxmótiðHvað tekurðu í bekk:

Ég veit það ekki

Hæð: 160 cm (lítil en snögg)

Reynslan: 2 ár í kungfu og 9 ár í karate þar sem

ég er í landsliðinu núna. . Hjátrú:

Verð að borða kjúkling í kvöldmat daginn fyrir mót

Hvað hefur þú fram yfir Ingibjörg:

Spurningin er, hvað

hef ég EKKI fram yfir Ingib-

jörg.

Lífsmottó: Everything

you can do I can do better!

Nafn/bekkur: Ingibjörg Ásta 6-T

Hvað tekurðu í bekk: Bekk, of létt - Tek hlaupabretti í bekk (og já það var manneskja á því!)

Hæð: 63,4 tommur (eða 900 nígerískar naglþjalir)

Reynslan: Ég hef kveikt varðeld með því að nudda tveimur ísmolum saman

Hjátrú: Gúgla alltaf cute kittens fyrir hverju einustu boxkeppni - og þær eru ekki fáar!

Hvað hefur þú fram yfir Svönu: Alltaf þegar ég geri armbeygjur þá lyftist ég ekki frá jörðinni - ég ýti jörðinni niður

Lífsmottó: Death solves all problems. No man, no problem. -Stalin

6.

Page 7: Íþóttavikan 7-11 október

Tengið íþróttamann við réttu íþróttina

Magic Johnson

Maria Sharapova

Mikkel Hansen

Lionel Messi

Shawn Johnson

Usain Bolt

Yelena Isinbayeva

Hvenær byrjaðir þú að æfa karate og af hverju? Ég byrjaði að æfa karate þegar ég var 6 ára gamall. Ég og tveir bestu vinir mínir fórum saman á æfingu og það átti strax vel við mig.Hversu oft æfir þú í viku og í hversu marga tíma í senn?Ég reyni að æfa 5-6 sinnum í viku, einn og hálfan – tvo tíma í senn.Hvað er stærsta mót sem þú hefur keppt á?Norðurlandamót 2013Hefur þú hugsað um að æfa hlaup, eftir góðan árangur í Reykjavíkur Maraþoninu?Já, mér finnst góð tilbreyting að æfa annað sport á sumrin og hef gert það síðastliðin þrjú ár. Hlaup hentar mér mjög vel þar sem þol er mikilvægur þáttur til að ná árangri í karate.Á hvaða stórmótum hefur þú keppt? Swedish Karate Open 2012 og Norðurlandamótinu 2013 en mín stærsta keppni mun vera á heimsmeistaramótinu núna í nóvember.Þú kepptir nú á dögunum á Norðurlandamótinu, hvernig var árangurinn þar?Silfur.Hver eru framtíðarplön þín?Taka eitt skref í einu og akkúrat núna er mitt framtíðarplan að ná sem lengst á heimsmeistarmótinu.

Viðtal við Sindra Pétursson 4-H7.

Page 8: Íþóttavikan 7-11 október

Martin Hermannson er 19 ára Vesturbæingur og fengum við hann í stutt viðtal.Hvenær byrjaðir þú að æfa? 6 ára.

Hvað hefur þú spilað marga landsleiki? Ég hef spilað um 40 yngriflokkalandsleiki en 15 A-landsleiki.

Hvenær spilaðir þú fyrsta landsleikinn þinn? Ég var 14 ára gamall þegar að ég spilaði minn fyrsta landsleik með u-15 ára landsliðinu, en ég spilaði minn fyrsta A-landsleik núna í sumar 18 ára gamall.

Hvað hefur þú unnið marga titla? Í yngri flokkum hef ég unnið um 10 Íslands- meistaratitla og 3 bikarmeistaratitla. En í meistaraflokki hef ég unnið 1 Íslandsmeistaratitil og 1 bikarmeistaratitil.

Þar sem þú varst landsliðsmaður í bæði körfu og fótbolta þá hlaut að vera erfitt að velja á milli, hvað var það sem gerði útslagið? Já það var mjög erfitt á sínum tíma…ég var alltaf staðráðinn í að verða fótboltamaður en eftir að við urðum Norðurlandameistarar í u16 ára í körfuboltanum og ég valinn besti leikmaður mótsins þá var þetta aldrei spurning!

Nú er atvinnumennskan á næsta leiti hjá þér, ertu eitthvað farinn að hugsa hvert þig langar að fara? Já ég er ennþá að velta því fyrir mér hvort ég ætti að taka nokkur ár í háskóla í Bandaríkjunum áður en haldið verður í atvinnu- mennskuna. En Spánn, Þýskaland, Frakkland og Ítalía hljóma svona mest spennandi.

Hvernig er það að vera í A landsliðinu en vera samt bara næst bestur i bekknum þínum? (Fyrir þá sem ekki vita er Róbert Úlfarsson bekkjarfélagi Martins)? Það er bara sannur heiður að fá að þekkja þennan mann og geta lært af honum. Hann hefur kennt mér mikið og hjálpað mér að bæta minn leik. Ég er hættur að reyna að bera mig saman við hann því hann er einfaldlega bara í allt öðrum styrkleikaflokki en flestir leikmenn hér á landi.

Hvað er leyndarmálið á bakvið velgengi Martins hins mikla Hermannssonar? Það er bara eintóm vinna og hollt mataræði….neinei, ætli það séu bara ekki aukaæfingarnar og eitthvað af hæfileikum.

Þurfa menn eins og þú nokkuð að eiga einhverjar fyrimyndir? Jájá auðvitað, ég get einfaldlega ekki gert upp á milli Róberts Úlfarssonar og Michael Jordan.

Nú fórst þú fyrir bekknum þínum þegar þið unnuð körfuboltamót Versló hérna í fyrra, finnurðu fyrir einhverri pressu að vinna mótið í ár? Þetta er hrikalega sterkt mót og margir góðir leikmenn og því erfitt að neita því að það sé ekki mikil pressa á okkar bekk. Bekkurinn hóf æfingar strax í byrjun júlí og ég hef fulla trú á back to back titli hjá okkur.

Viðtal við Martin Hermanssson8.