kynnningarbæklingur um stoðþjónustu norðlingaskóla
DESCRIPTION
Kynnningarbæklingur um stoðþjónustu NorðlingaskólaTRANSCRIPT
Sveitarfélög skulu tryggja að sérfræðiþjónusta sé veitt í
grunnskólum, ákveða fyrirkomulag hennar og stuðla
að því að hún fari fram innan grunnskóla. Í
sérfræðiþjónustu felst annars vegar stuðningur við
nemendur og fjölskyldur þeirra og hins vegar
stuðningur við starfsemi grunnskóla og starfsfólk
þeirra.
Í grunnskólum skal frá upphafi skólagöngu nemenda
unnið að forvarnastarfi með skimunum og athugunum
á nemendum til að tryggja þeim kennslu og
námsaðstoð við hæfi. Auk þess skal fara fram greining
á nemendum sem eiga í sálrænum eða félagslegum
erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra. Allar
athuganir á vegum skóla sem varða einstaka nemendur
skulu gerðar í samráði við og með samþykki foreldra
og óheimilt er að taka gjald fyrir slíkar athuganir.
Greina skal foreldrum frá niðurstöðum slíkra
athugana. Lög um grunnskóla,
Menntamálaráðuneytið 2008
Sími: 411-7640
Netfang:
Heimasíða:
http://www.nordlingaskoli.is
Samstarf við foreldra
Í Norðlingaskóla er litið svo á að vinna með
nemendur sé sameiginlegt viðfangsefni foreldra og
starfsfólks skólans enda eru foreldrar sérfræðingar í
börnum sínum og starfsfólkið í námi og kennslu. Því
er gert ráð fyrir því að foreldrar hafi sem mest um
nám og umhverfi barna sinna í skólanum að segja og
að samstarf þessara aðila sé sem allra best. norðlingaskóli
norðlingaskóli
Gert í ágúst 2012
Um stoðþjónustu í grunnskólum
St
oð
þjó
nu
st
a
Í Norðlingaskóla eru það aðstoðar-
skólastjóri, sérkennari og umsjónar-
kennari nemandans sem eru í
móttökuteymi skólans.
Þeir kennarar sem koma til með að
koma á einhvern hátt að skólagöngu
nemandans bera ábyrgð á því að kynna sér og undirbúa
komu nemandans.
Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu skólans.
stuðnings - og sérkennsla
Í Norðlingaskóla er litið svo á að öll
kennsla eigi að vera sérkennsla, enda
skuli reynt eftir fremsta megni að
tryggja að námsaðstæður og
námsefni henti ávallt getu og áhuga
hvers og eins nemanda. Í þessu tilliti
eru því allir kennarar „sér“
kennarar.
Lögð er áhersla á að þekking og
færni nemandans verði til við vinnu
hans og að útkoman úr námsferlinu
geti verið breytileg, einstaklings-
bundin og ekki alltaf fyrirsjáanleg.
Til að ná því markmiði að veita
hverjum og einum nemanda kennslu
við hæfi leggur skólinn metnað sinn í
að hafa yfir að ráða góðum og
breiðum hópi fagfólks. Hlutverk
þessa fólks er að taka þátt í
teymisvinnu og vera þátttakendur í að lögun n ámsaðs tæðna og
námsefnis fyrir hvern og einn
nemanda eða nemendahópa.
Fimm sérkennarar starfa við
Norðlingaskóla og bera ábyrgð á að
framfylgja stefnu Norðlingaskóla í
sérkennslumálum og sjá um ráðgjöf
til nemenda, aðstandenda og
starfsfólks.
móttaka nemenda af erlendum uppruna
Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf er í eðli sínu
forvarnarstarf og meginmarkmið er
að veita nemendum faglega þjónustu
og ráðgjöf í málum sem tengjast
námi þeirra, framtíðaráformum og
samskiptum og líðan í skólanum.
Allir nemendur og foreldrar þeirra
eiga kost á að snúa sér til náms- og
starfsráðgjafa og geta komið eða
hringt milliliðalaust eða beðið fyrir
skilaboð á skrifstofu skólans.
Náms- og starfsráðgjafi heldur utan
um samstarf við næsta skólastig og
vinnur að því að flutningur milli
skólastiga sé vel undirbúinn.
Stefnt er að því að allir nemendur
eigi greiðan aðgang að náms- og
starfsráðgjafa sem er trúnaðarmaður þeirra og málsvari.
Náms- og starfsráðgjafi í Norðlingaskóla er Guðrún Helga
Kristinsdóttir.
skólaheilsugæsla
Heilsugæsla í Norðlingaskóla
heyrir undir Heilsugæsluna Árbæ.
Viðverutími í skólahjúkrunar-
f ræðings í skó lanum er
sveigjanlegur eftir þeim verkefnum sem í gangi eru hverju
sinni en ritari skólans hefur upplýsingar um viðverutíma og
tekur skilaboð til hjúkrunarfræðings ef hann er ekki við.
E i n n i g e r hæg t að s enda tö l v upós t á
Meginmarkmið skólaheilsugæslu er að stuðla að því að börn
fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu,
líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.
Heilsugæsla skólabarna er framhald af ung- og
smábarnavernd. Skólaheilsugæslan leitast við að efla
heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk
skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra/
forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma
að málefnum nemenda. Farið er með allar upplýsingar sem
trúnaðarmál.
Skólahjúkrunarfræðingur í Norðlingaskóla er Þorbjörg Edda Björnsdóttir.
Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts
Þjónustumiðstöðin er fyrir íbúa
Árbæjar og Grafarholts og er í
samstarfi við Norðlingaskóla.
Starfsfólk þjónustumiðstöðvar-
innar leggur áherslu á að styrkja hvers kyns hverfastarf og
forvarnarstarf í samvinnu við íbúa, félagasamtök og aðra þá
sem vilja láta til sín taka.
Á þjónustumiðstöðinni eru veittar upplýsingar um þjónustu
Reykjavíkurborgar en meðal þjónustu sem veitt er má nefna
sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, ferðaþjónustu
fatlaðra og félagslega ráðgjöf. Þar er einnig hægt að sækja um
ýmis úrræði sem Reykjavíkurborg býður upp og má t.d.
nefna liðveislu, tilsjón, stuðningsfjölskyldur, unglingasmiðjur
o.fl.
Hægt er að skila öllum umsóknum um þjónustu borgarinnar
til þjónustumiðstöðvarinnar sem ber ábyrgð á því að koma
þeim í réttar hendur innan borgarkerfisins.
Þjónustumiðstöðin er staðsett á Hraunbæ 115, 110
Reykjavík og er opin kl. 8:20-16:00 alla virka daga.
Sími: 411-1200 Netfang: [email protected]
Heimasíða: http://www.arbaer.is.
Viðbragðsáætlanir í norðlingaskóla
Markmið viðbragðsáætlana eru að tryggja skipulögð og samræmd
viðbrögð þegar til nauðsyn krefur. Frekari upplýsingar má nálgast
á heimasíðu skólans.
Viðbragðsáætlanir í Norðlingskóla eru:
Viðbrögð við einelti.
Viðbrögð við áföllum og slysum.
Viðbragðsáætlun vegna veðurs.
Viðbragðsáætlanir vegna
öskufalls.