lífsmarkþjálfun, arnór már

14
Þú getur lært margt í markþjálfun. Að losa um hæfileika, svo eitthvað sé nefnt … www.markþjálfi.is Framsögn um Lífsmark þjálfun Á fundi Dokkunnar 27. október 2010 Samskiptalausnir og tengslamyndun Arnór Már Másson Associated Certified Coach International Coach Federation Certified DISC Trainer Persolog GmbH

Upload: dokkan

Post on 07-Jul-2015

472 views

Category:

Documents


1 download

DESCRIPTION

Fyrirlestur frá Dokkufundi um lífsmarkþjálfun sem haldinn var í október 2010.

TRANSCRIPT

Þú getur lært margt í markþjálfun. Að losa um hæfileika, svo eitthvað sé nefnt …

www.markþjálfi.is

Framsögn um Lífsmarkþjálfun Á fundi Dokkunnar 27. október 2010 Samskiptalausnir og tengslamyndun

A r n ó r M á r M á s s o n Associated Certified Coach International Coach Federation Certified DISC Trainer Persolog GmbH

Arnór Már Másson Fjölskylda: - Giftur Gerðu Óskarsdóttur, eigum saman fimm börn: Þórunn Lilja 18 ára, Friðrik Már 18 ára, Jóna María 13 ára, Rebekka Rut 9 ára og Arnór Gabríel 3 ára.

Markþjálfun reynsla: - Associated Certified Coach hjá International Coach Federation - Hefur yfir 300 klst reynslu af markþjálfun með einstaklingum og hópum úr atvinnulífinu og í einkalífi. - Starfa eingöngu við markþjálfun og námskeiðshald. - Starfar við þjálfun markþjálfa í samstarfi við Evolvia ehf.

Nám, störf og félagsstörf: - Frumkvöðlanám hjá Keili, HÍ og NMÍ - Hagnýt guðfræði - Hönnun og ráðgjöf hjá Innx innréttingum ehf - Dagskrárstjóri hjá Samhjálp - Varaformaður ADHD samtakanna

Við öðlumst ástina ekki með því að finna fullkomna manneskju, heldur með því að læra að sjá ófullkomna manneskju fullkomlega …

www.markþjálfi.is

Gáta Einu sinni fyrir stuttu síðan voru tveir frændur sem stóðu frammi fyrir því að þurfa að ganga í gegnum miklar breytingar. Þeir voru báðir kenndir við móður. Annar var mjög jákvæður, kraftmikill og skapandi. Hinn var mjög neikvæður, þróttlítill og málglaður. Sá neikvæði nýtti þann litla þrótt sem hann hafði til að tala við sem flesta um það hversu allt væri ömurlegt og vonlaust. Hann var í raun svo hræddur um að ef hann þegði þá myndi hann missa þann litla þrótt sem hann hafði. En svo var það þriðji frændinn. Hann var einnig kenndur við móður. Hann gerði alltaf sitt allra besta, vildi öllum vel og gafst aldrei upp.

Hvað heita þessir þrír frændur?

ENGIN AF ÞESSUM ÞREMUR FRÆNDUM ERU VEIKIR EÐA MEÐ SJÚKDÓM. ALLIR FRÆNDURNIR VILJA FÁ AÐSTOÐ TIL AÐ BÆTA SIG!

- Hvað getur þú gert til þess að hjálpa þeim?

- Hvað getur þú gert til þes að hafa áhrif?

LÍFSMARKÞJÁLFUN VÆRI TILVALINN KOSTUR FYRIR ÞÁ ALLA!

- Hvor af frændunum fær mesta athygli á Íslandi í dag? - Hvor af frændunum getur haft mest áhrif?

Frændurnir eru: Eldmóður, Bölmóður og Þolinmóður!

Hvað er lífsmarkþjálfun?

Marksækið, árangursmiðað og kerfisbundið ferli þar sem einn einstaklingur auðveldar öðrum einstaklingi eða hópi að öðlast varanlega breytingu með því að hlúa að sjálfmiðuðu námi og persónulegum vexti þess sem er í þjálfun. Markþjálfun er viðvarandi samband sem miðar að því að viðskiptavinurinn taki skref sem gera framtíðarsýn, markmið og óskir hans að veruleika.Markþjálfi notar ferli spurninga og persónulegra uppgötvana til að efla vitund og ábyrgð viðskiptavinarins. Hann veitir honum jafnframt aðferðir, stuðning og endurgjöf. Markþjálfunarferlið hjálpar viðskiptavininum bæði að skilgreina og ná faglegum og persónulegum markmiðum hraðar og auðveldar en annars væri möguleg.

SkilgreiningInterna-onalCoachFedera-on

Grunnhæfnisþættir markþjálfunar samkvæmt Skilgreiningu International Coach Federation

1. Siðferði og fagmennska 2. Samningur um markþjálfun 3. Að skapa traust og nálægð 4. Markþjálfunarviðvera 5. Virk hlustun 6. Kröftugar spurningar 7. Bein tjáskipti 8. Vitundarsköpun 9. Mótun aðgerða 10. Skipulagning og markmiðasetning 11. Stjórnun framgangs og ábyrgðar

- Hvað er mikilvægast fyrir þig í dag? - Hvað færir það þér þegar þú ert í góðum tengslum við sjálfa(n) þig? - Hvað breytist þegar þú ert nærverandi og til staðar fyrir þá sem þér standa næst? - Hvað drífur þig áfram? - Hvar ætlar þú að vera eftir 3 – 5 ár? - Hvernig ætlar þú að komast þangað?

Dæmi um kraftmiklar spurningar sem notaðar eru í lífsmarkþjálfun:

Þú getur snúið þér í allar áttir, eða leitað til okkar, til að fá betri sýn…

www.markþjálfi.is

Nútíminn bustar í sér tennurnar í staðinn fyrir að fara með kvöldbæn. Halldór Laxness: KRISTIHALD UNDIR JÖKLI

www.markþjálfi.is

Lífsmarkþjálfar starfa í trausti og nálægð við viðskiptavina sína. Þeir eru jafningjar og nota innæi sitt innan ákveðins ramma og skipulags til að aðstoða viðskiptavini sína við að læra, skynja, uppgötva, skýra og skerpa á viðfangsefnunum til þess að ná sem mestum árangri!

Hvað ef Halldór Laxness væri í markþjálfun t.d. til að víkka út hugsanaferli, læra um íslendinga til að auka sköpunarkraftinn og finna réttu orðin og setja í samhengi?

Dæmi ef Halldór Laxness væri í markþjálfun:

Nútíminn bustar í sér tennurnar í staðinn fyrir að fara með kvöldbæn. Halldór Laxness: KRISTIHALD UNDIR JÖKLI

www.markþjálfi.is

Hlutverk lífsmarkþjálfans er ekki að reyna að skilja hann!Hlutverk lífsmarkþjálfans er fólgið í að nota reynslu sína og færni í lífsmarkþjálfun sem fellst í því að nota , innsæi og kerfisbundið ferli til að leiða hann til aukinnar vitundar eða hverju því sem hann vantar til að ná varanlegum árangri.

Dæmi um spurningar sem lífsmarkþjálfi gæti spurt: - Hvernig bustar(HKL) nútíminn í sér tennurnar? - Hvaða breytingar ertu sjá og tjá? - Hvort er mikilvægara að busta tennurnar eða að að fara með kvöldbæn? - Af hverju gerir nútíminn ekki bara bæði?

Tilfinninguna: “Ég hef minni tíma” Hegðun: “Við aukum hunsun”

- Nútíminn er of upptekinn í aðgerðum!

Hvers vegna er lífsmarkþjálfun mikilvæg í dag?

- Fleiri valkostir í nútímanum ýta undir:

Við erum minna nærverandi, til staðar og meðvituð!

Hvers vegna er lífsmarkþjálfun mikilvæg í dag?

- Aðferðin gefur þér forskot til að komast í enn betri snertingu við sjálfa(n) þig í dag!

-  Eflir þá færni sem þarf til að ná árangri!

-  Einstakt tækifæri til að læra á einstaklingsmiðaðan hátt um okkur sjálf og aðra.

- Kröftug aðferð til að efla samskiptafærni og tjáningu.

-  Opnar fyrir nýjar leiðir og aðferðir til að innleiða og stuðla að varanlegum breytingum í lífi okkar.

Þú getur lært margt af börnum. Hversu mikla þolinmæði þú hefur svo eitthvað sé nefnt …

www.markþjálfi.is

Margir sem leita til lífsmarkþjálfa eru í þeim aðstæðum:

- Að hafa meira val en minni tíma, og finnst stundum eins og þeir taki tvö skref áfram en þrjú aftur á bak. - Hafa meiri vissu og meiri óvissu en vita ekki hvernig best sé að höndla hana. - Flóknari fjölskyldumynstur sem og samskiptamynstur. - Vilja fá aðdáun annarra og viðurkenningu en eru óöruggir að viðurkenna það og sækjast eftir henni? - Eru miklar líkur á því að þú getir skarað fram úr, en veist ekki hvar þú getur skarað fram úr og hvernig?

Hverjar eru helstu ástæður þess að fólk velur að fara í lífsmarkþjálfun?

Þetta eru helstu ástæðurnar, sem oft eru undirliggjandi og ekki augljósar í fyrstu: 1.  Að efla sjálfstraust, sem síðan hefur áhrif á

nánd í samböndum, góð samskipti og skilning. 2.  Að skapa jafnvægi milli vinnu og einkalífs, sem

eflir vellíðan, eykur afköst, gefur raunsæi í markmiðasetningu og að láta draumana rætast.

3.  Að móta framtíðarsýn og ná fókus til að lifa tilgangsríku lífi.

Fólk fer í markþjálfun til

að: 1. Efla sjálfstraust

(79%) 2. Skapa jafnvægi

milli vinnu og einkalífs

(76%)

ICF Global Client Study 2008

Takk fyrir! AM markþjálfun

Arnór Már Másson Associated Certified Coach

International Coach Federation Certified DISC Trainer

Persolog GmbH

Gsm 897-4405 [email protected]

www.markþjálfi.is