námsmat: nýjungar... leiðsagnarmat... spjallað við kennara í ms, 23. ágúst 2011 ingvar...

25
Námsmat: Nýjungar ... Leiðsagnarmat ... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands Sæll og blessaður. Við í MS erum með starfsdag 23. ágúst og ætlum að fjalla um námsmat. Viljum athuga hvort þú ert tilbúinn að koma og halda 1 klst erindi um námsmat, nýjungar, leiðir til að meta vinnu nemenda, leiðsagnarmat, símat etc. Við erum að semja nýja skólanámskrá og viljum leggja áherslu á að kennarar meti vinnuframlag nemenda, virkni og ástundun í samræmi við hugmyndafræði nýrrar aðalnámskrár. Með von um jákvæð viðbrögð. Bestu kveðjur Hjördís

Post on 21-Dec-2015

235 views

Category:

Documents


3 download

TRANSCRIPT

Page 1: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Námsmat: Nýjungar ... Leiðsagnarmat ...Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011

Ingvar SigurgeirssonMenntavísindasviði Háskóla Íslands

Sæll og blessaður.Við í MS erum með starfsdag 23. ágúst og ætlum að fjalla um námsmat. Viljum athuga hvort þú ert

tilbúinn að koma og halda 1 klst erindi um námsmat, nýjungar, leiðir til að meta vinnu

nemenda, leiðsagnarmat, símat etc. Við erum að semja nýja skólanámskrá og viljum leggja áherslu á að kennarar meti vinnuframlag

nemenda, virkni og ástundun í samræmi við hugmyndafræði nýrrar aðalnámskrár.

Með von um jákvæð viðbrögð.Bestu kveðjur

Hjördís 

Page 2: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Efni

1. Staðan (nýjungar (!?)2. Álitamál3. Leiðsagnarmat (e. formative assessment)4. Nokkur dæmi5. Bent á heimildir

Áhugi – gróska – gerjun – þróun

Page 3: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Vandi að

ræða námsm

at í framhaldsskól

um!

• Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í framhaldsskólum hér á landi!

• Raunar er sáralítið vitað um kennsluhætti í framhalds-skólanum yfirleitt!!!

• Þó þetta: – Athugun Rósu M. Grétarsdóttur og Sigurbjargar Einarsdóttur

á námsmati í þremur framhaldsskólum (MH, MA og FG)– Rannsókn Rósu á viðhorfum íslenskukennara til námsmats– Rannsókn Ragnheiðar Hermannsdóttur á viðhorfum nemenda

til námsmats– Verkefni nemenda á námskeiðinu Að vanda til námsmats

Page 4: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Mikilvægar spurningar?• Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í

framhaldsskólum? En í MS?• Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum árangri?• Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á?• Hvað þarf helst að bæta eða þróa í námsmati og

hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat?

• Á hverju á að byggja þróun námsmats?

Rannsóknir NámskráReynsla

Page 5: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Ný námskrá ...• Æskilegt er að í námsmati felist jafnframt leiðsagnarmat, það

er leiðbeining til nemenda um hvernig hann geti með árangursríkustum hætti hagað námi sínu í framhaldinu.

• Mikilvægt er að skólar setji sér stefnu varðandi fjölbreytt námsmat og leiðsögn nemenda.

• Námsmat skal byggja á margvíslegum námsmatsaðferðum og fela í sér traustar heimildir um hæfni nemandans. Þess skal gætt að námsmatið taki til allra þátta námsins þannig að þekking nemandans, leikni og hæfni auk framfara sé metin. Námsmatsaðferðir geta verið verklegar, munnlegar eða skriflegar, falið í sér sjálfsmat, jafningjamat, símat og lokamat.

(Menntamálaráðuneytið, 2011. bls. 42, leturbr. IS)

Page 6: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Ný námskrá ...Tíuskalinn stendur enn traustum fótum

Niðurstöður námsmats má birta sem einkunnir og/eða umsagnir. Lokavitnisburður sem birtist á útgefnum námsferli og prófskírteinum nemenda, skal vera í heilum tölum á bilinu 1-10 eða í kerfi sem hægt er að tengja við það með skýrum hætti. Sú krafa er sett fram til að auðvelda mat á námi nemenda milli skóla. Að jafnaði skal miða við að 5 sé lágmarkseinkunn til að standast námsáfanga. Frávik frá því skulu skýrð í námsbrautarlýsingu og birtast í skólanámskrá. (Menntamálaráðuneytið, 2011. bls. 42-43)

Page 7: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Ólíkir kvarðar• 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10• 1–6, 1–8• A, B, C, D, F (hvar er E-ið?)• A, Á, B, D, E, Ð (Baldur Sigurðsson)• Dönsku kerfin, sjá hér• Ágætt, gott, sæmilegt, ábótavant, ófullnægjandi• Snjallt, gott, hæft, naumt, bágt (Helgi Hálfdanarson)• Mjög gott, í lagi, ófullnægjandi • Lokið – ólokið

• Hvaða aðferð er heppilegust?

Page 8: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Hvaða hlutverki gegna einkunnir? -

• Rannsóknir Ruth Butler o.fl. frá 1986 og 1988

–Endurgjöf í formi einkunna–Endurgjöf í formi umsagna–Endurgjöf í formi einkunna og umsagna–Engin endurgjöf

Hvaða leið skilaði nemendum bestum árangri?

Page 9: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Vörður –

viðmið við endurgjöf

Mjög gott Vinnubrögð góð, öllum verkefnum skilað. Þátttaka í umræðum og virkni í kennslustundum er mjög góð. Markmiðum áfangans er náð.

Í lagi Vinnubrögð ágæt, verkefnaskil í meðallagi. Þátttaka í umræðum og virkni í kennslustundum í meðallagi. Um helmingi markmiða áfangans er náð.

Ófullnægjandi Vinnubrögð ófullnægjandi. Óvirkur þátttakandi í umræðum og virkni í kennslustundum er lítil sem engin. Uppfyllir ekki markmið áfangans.

Menntaskóli Borgarfjarðar, sjá nánar hér

Page 10: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Leiðandi um leiðsagnarmat

• Menntaskóli Borgarfjarðar• Fjölbrautaskóli Snæfellinga• Framhaldsskólinn í

Mosfellsbæ

Page 11: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Kjarninn í leiðsagnarmati• Nemandinn fær (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt

ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn)

• Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna (2007, um 4000) sýni þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur

• Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati

• Sjálfsmat og jafningjamat eru mikilvægir þættir í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilji markmiðin)

(Sjá um þessar áherslur: Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

Page 12: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Kennslufræði leiðsagnarmats

• Útskýra markmið fyrir nemendum

• Markvissar spurningar

• Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir)

• Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat)

• Jafningjakennsla

(Wiliam 2007: Changing Classroom Practice)

Page 13: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Staða skriflegra lokaprófa

Vaxandi efasemdir um stöðu og vægi skriflegra lokaprófa:

–Prófa aðeins hluta markmiða–Margir nemendur læra fyrst og fremst fyrir prófin–Neikvæð afturvirkni prófa–Próf eru skólaverkefni sem eiga sér fáar

hliðstæður í lífinu sjálfu (námsmat ætti að endurspegla mat á frammistöðu í lífinu sjálfu)

Page 14: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Nemendur sjá þetta ...• Próf eru ekkert skemmtileg en nauðsynleg.• Mér finnst prófaaðferðin vera mjög ósanngjörn.• Próf eru náttúrulega hræðsluáróður til að láta mann

læra.• Mér finnst prófin geta verið svolítið tilgangslaus út

af því stundum lærir maður bara fyrir prófin og gleymir svo öllu þegar það er búið.

• Próf krefst ekki mikils skilnings.Úr rannsókn Ragnheiðar

Hermannsdóttur (2008)

Page 15: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Áhugaverðar tilraunir með óhefðbundin próf

Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn, „svindlpróf“, glósupróf

Heimapróf Prófverkefni gefin upp með fyrirvara Munnleg próf Atrennupróf: Nemendur fá að gera

endurteknar tilraunir við sama próf / sömu próf

Samvinnu- og hóppróf

Page 16: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

… ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum sem þau voru að

læra í þýsku og ég lét þau draga miða með hverjum þau lentu (tveir saman). Þau undirbjuggu sig svo heima. Í prófinu hvísluðust þau á og komu sér saman um svar

og hvert par skilaði einu blaði (hinn aðilinn fékk svo ljósrit af útlausninni seinna). Efnið sem verið var að

prófa hentaði sérlega vel til þessa verkefnis - einkum beyging lýsingarorða þar sem velta þarf fyrir sér kyni orða, falli og endingum veikrar og sterkrar beygingar.

Útkoman var mjög góð og nemendur ánægðir. Þeir hafa spurt hvort þeir megi ekki gera svona aftur. Einn

nemandi sagði við samstarfskonu mína að maður lærði svo vel fyrir þessa könnun því maður vildi ekki valda

samstarfsaðila sínum vonbrigðum! Kv. Ásta

Ásta Emilsdóttir, Kvennaskólanum

Page 17: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda sem

undirbjó sig samviskusamlega fyrir prófið. Þeir sem ekki undirbjuggu sig fyrir prófið gekk

yfirleitt illa. Þeir nemendur sem stóðu sig vel töluðu um að ég hefði platað þau. Þau sögðu að

þau hefðu þurft að lesa heilmikið þegar þau voru að búa til svindlmiðann. Skemmtilegt að

prófa eitthvað nýtt í skyndiprófumkv. þsig

Þórður Sigurðsson, FÁ

Page 18: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Fjölbreytt námsmat!

Mat á frammistöðu Námsmöppur / sýnismöppur

(„Portfolio assessment“) Greining og mat á

verkefnum / úrlausnum Dagbækur, leiðarbækur,

blogg Sjálfstæð verkefni Sjálfsmat nemenda Jafningjamat

Umræður – einstaklingsviðtöl – fundir

Viðhorfakannanir Próf og kannanir Óhefðbundin próf Sýningar, námshátíðir,

uppskeruhátíðir,

Page 20: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Dæmi um leiðarbókarverkefni„Ef þú hugsar til baka til þess tíma er þú varst að læra sögu í fyrsta skipti (5.–6. bekk í grunnskóla), eftir hverju mannstu? Eru það einhver lönd, manneskjur eða atburðir sem þú mannst ennþá eftir frá þessum árum? En hvað með framhaldið? Hvað situr eftir af þeirri sögukennslu sem þú hefur hlotið? Er það bara vitleysa að kenna sögu eða á hún rétt á sér? Á þessari önn könnum við ótrúlega tíma, einveldi, byltingar, lýðveldi, myndun stjórnmálaflokka, styrjaldir, stofnun verkalýðshreyfinga, iðnbyltinguna og svo mætti lengi telja. Er það eitthvað sérstakt sem þú vildir kynna þér vel á önninni? Hvaða væntingar hefur þú til áfangans. Ég veit að þetta eru ótal margar spurningar, en það að ég setji þær hér þýðir ekki endilega að þú þurfir að svara þeim öllum eins og þú værir á prófi, heldur eru þær settar fram til að kveikja í þér, vekja upp minningar og fá þig til að skoða væntingar þínar. Mundu að þú hefur frjálsar hendur hvað uppsetningu leiðarbókar varðar, það eina sem þú þarft að gera er að vanda þig.“

(Sólrún Guðjónsdóttir, FSn)

Page 21: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Dæmi um mat á leiðar-bókum

(frá Þórði Ásgeirssyni, FÁ)

Page 22: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Marklistar (sóknarkvarðar)

Á ensku: Scoring Rubrics– Tæki sem nota má bæði við mat á frammistöðu (flutning,

verkefnaskil) og afrakstri (skýrslum, ritgerðum, myndverkum, úrlausnum)

– Henta í öllum námsgreinum, á öllum skólastigum– Auka líkur á nákvæmni, óhlutdrægni– Nemendur fá glöggar upplýsingar um til hvers er ætlast

Page 23: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Sjálfsmat

Page 24: Námsmat: Nýjungar... Leiðsagnarmat... Spjallað við kennara í MS, 23. ágúst 2011 Ingvar Sigurgeirsson Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Kannani

r• Heildstæðar kannanir• Einstök námskeið eða áfangar, dæmi• Leiðsagnarkannanir, dæmi (lífsleikni, MS)