námsvísir fræðslumiðstöðvar vestfjarða 2014 2015

32

Upload: gunnar-bjarni-gudmundsson

Post on 02-Apr-2016

224 views

Category:

Documents


8 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015
Page 2: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar2

- kynntu þér möguleikana

Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni

Verkalýðsfélögin sjá um afgreiðslu einstaklingsstyrkja í umboði sjóðsins

Sjóðurinn styrkir starfsmenntun í fyrirtækjum

Menntun skapar tækifæri

Ofanleiti 2, 5. hæð (A-hús) • 103 Reykjavík • sími: 599 1450 • fax: 599 1401 • www.landsmennt.is • [email protected]

Byrjaðu strax í séreignarsparnaði

islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook

Lífeyrissparnaður

Sparnaður

Page 3: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 3

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Fræðslumiðstöð VestfjarðaVeffang: www.frmst.isKennitala 511199 - 2049

Suðurgata 12400 ÍsafjörðurSími: 456 [email protected]

Höfðagata 3510 HólmavíkSími: 451 [email protected]

Þekkingarsetrið Skor450 PatreksfjörðurSími: 490 [email protected]

Ágæti viðtakandiNámsvísir þessi markar upphaf að sextánda starfsári Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. Í honum eru tilgreind á sjöunda tug stakra námskeiða og námsleiða. Er það svipað og síðast liðið ár.

Námsvísinum er fyrst og fremst ætlað að gefa hugmyndir um það sem í boði er hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða og kynna fólki möguleika á sviði fullorðinsfræðslunnar. Á fjögurra til sex vikna fresti verða svo næstu atburðir auglýstir. Upplýsingar er einnig að finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvarinnar, www.frmst.is.

Í þessum námsvísi eru fleiri námskeið boðin í fjarkennslu eða dreifnámi en verið hefur. Er þetta í samræmi við þá stefnu miðstöðvarinnar að kappkosta að þjóna Vestfirðingum öllum. Netsamband er þó enn ekki komið í það gott horf að hægt sé að treysta á það til að kenna um einmenningstölvur í rauntíma. Þess vegna notar Fræðslumiðstöðin fremur fjarfundabúnaði en tölvur við fjarkennslu.

Framhaldsfræðsla er nám sem sérstaklega er ætlað fullorðnu fólki sem ekki hefur lokið prófum frá framhaldsskólum, eða þarf sérstaka aðstoð við nám, svo sem íslenska fyrir útlendinga. Þessi fræðslugeiri hefur tekið mestum breytingum á síðast liðnum 10 – 12 árum; fyrst með tilkomu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins árið 2002 og síðan með lögum um framhaldsfræðslu árið 2010. Á meðan framhaldsfræðslan var að festa sig í sessi lagði Fræðslumiðstöð Vestfjarða sérstaka áherslu á nám fyrir einstaklinga. Síðast liðin ár hefur verið lögð meiri áhersla á að þjóna atvinnulífinu. Þessa sér stað í námsvísinum, sem og í fræðslugreiningum hjá fyrirtækjum og stofnunum og uppbyggingu sjódeildar. Þá hefur tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi, sem miðstöðin tekur þátt í, þjónað bæði einstaklingum og fyrirtækjum.

Auk þess náms sem kynnt er í þessum námsvísi mun Fræðslumiðstöðin bjóða annað nám ef þess verður óskað. Þá er oft auðvelt að koma upp námi á fleiri stöðum en auglýstir eru. Einnig getur Fræðslumiðstöðin haft milligöngu um að útvega námskeið frá öðrum aðilum, eða tekið að sér að sérsníða námskeið fyrir einstaka hópa eða stofnanir.

Til að kenna námsleiðir Fræðslumiðstöðvar atvinnulífisins fær Fræðslumiðstöðin styrki úr Fræðslusjóði framhaldsfræðslunnar og til að kenna fötluðum fær miðstöðin framlög frá símenntunar og þekkingarmiðstöðinni Fjölmennt. Þátttökugjöld verða að standa undir öðrum námskeiðum.

Auk framlaga til kennslu veitir Fræðslusjóður framhaldsfræðslunnar styrki til að bjóða fólki í markhópi framhaldsfræðslunnar, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat fólki að kostnaðarlausu. Er fólk hvatt til að nýta sér þá þjónustu.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða er með EQM gæðavottun sem fræðsluaðili, auk þess sem miðstöðin er viðurkenndur fræðsluaðili af mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Fræðslusjóði framhaldsfræðslunnar.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða leggur kapp á að þjóna öllum Vestfirðingum sem búa á Vestfjörðum. Námsframboðið á að vera skemmtilegt, skapandi og fræðandi. Það á að taka vel á móti fólki sem leitar til miðstöðvarinnar, það á að finna að það sé velkomið, því á að líða vel og vera öruggt og afslappað. Einungis með þessu móti nær fullorðið fólk árangri og nýtur námsins.

Með ósk um góðan námsvetur.Smári Haraldsson, forstöðumaður.

Ísafjörður Hólmavík Patreksfjörður

Vinnsla bæklings: Starfsfólk Fræðslumiðstöðvar VestfjarðaÁbyrgðarmaður: Smári Haraldsson

Umbrot: Pixel ehf / Gunnar BjarniPrentun: Gúttó ehf.

Ágúst 2014 1. tbl. 15. árg.

Page 4: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar4

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða fyrir veturinn 2009-2010

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 13

orkubú vestfjarða1/2 síða

Beislað náttúruafl

Stakkanesi 1 ∙ 400 ÍsafirðiSími 450 3211 ∙ Fax 456 3204

Veffang: www.ov.is

SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA

Sjómennt – Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins – Skólavörðuholti – 101 Reykjavík – sími 514 9000

Átt þú rétt á styrk?Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfyrirtækja. Félagsmaður,

sem hefur unnið í a.m.k 12 mánuði skv. kjarasamningi SA/LÍU við Sjómanna-

samband Íslands hjá útgerðum innan LÍU og greitt til aðildarfélags Sjó-

menntar á þeim tíma, á rétt á stuðningi til starfsnáms.

Samtök atvinnulífsins (SA), Landsamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og

Sjómannasamband Íslands (SSÍ) standa að Sjómennt.

Nánari upplýsingar á www.sjomennt.is og á [email protected]

Ertu búinn að vera á sjónum í eitt ár eða meira?Langar þig að fara á námskeið eða í skóla?

Styrkur þinn til náms

Ofanleiti 2, 5. hæð (A-hús) • 103 Reykjavík • sími: 599 1450 • fax: 599 1401 • www.sveitamennt.is • [email protected]

Sjóðurinn styrkir starfsmenntun innan sveita-félaga og stofnana þeirra á landsbyggðinni

Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna

Sjóðurinn fjármagnar þau verkefni sem sjóðsstjórn skipuleggur

Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar

Page 5: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 5

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Efnisyfirlit námskeiða

Mikilvægt að skrá sig!Fræðslumiðstöð Vestfjarða brýnir fyrir fólki mikilvægi þess að skrá sig hafi það áhuga á að sækja námskeið. Við skipulagningu námskeiða er gert ráð fyrir lágmarksfjölda þátttakenda til þess að námskeið standi undir sér. Ef annað er ekki tekið fram er miðað

við að lágmarki átta þátttakendur og að þeim lágmarksfjölda sé náð þremur til sjö virkum dögum áður en fyrirhugað námskeið hefst. Náist ekki lágmarksfjöldi er námskeiðinu frestað eða því aflýst og þeir sem skráðir eru látnir vita.

Miðstöðin vill koma þessu á framfæri til að koma í veg fyrir að námskeið séu felld niður vegna dræmrar þátttöku en síðan komi í ljós að mun fleiri höfðu áhuga og

mættu á staðinn án skráningar. Einnig vill miðstöðin koma í veg fyrir að fólk fari fýluferð ef einhverjar breytingar hafa orðið á tímasetningu eða námskeið fellt niður, en Fræðslumiðstöðin getur aðeins komið þeim upplýsingum til þeirra sem skráðir eru.

Page 6: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar6

FyrirvariAllar upplýsingar í þessum námsvísi, þar með taldar upplýsingar um verð, eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Tekið er við skráningum á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti á netfangið [email protected] og á heimasíðu Fræðslumiðstöðvarinnar www.frmst.is. Skráningarfrestur á námskeið rennur að jafnaði út þremur til sjö virkum dögum áður en námskeið hefst. Mörg námskeið eru ekki dagsett en geta hafist þegar lágmarksþátttöku er náð. Náist ekki lágmarksfjöldi er námskeiðinu frestað eða því aflýst og þeir sem skráðir eru látnir vita.

Námskeiðsgjöld eru innheimt með greiðsluseðli eftir að námskeið hefst. Fræðslumiðstöðin er sveigjanleg í samningum um greiðslu námskeiðsgjalda.

Skráning

Allir sem greiða í stéttarfélag og hafa unnið fullt starf í a.m.k. 12 mánuði eiga rétt á stuðningi til starfsnáms og í sumum tilfellum til tómstundanáms. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum. Styrkurinn er mishár eftir félögum en getur numið allt frá 50% og upp í 75% af kostnaði. Hægt er að fá upplýsingar um styrkhlutfall hjá viðkomandi stéttarfélagi og einnig getur Fræðslumiðstöðin aðstoðað við öflun upplýsinga þar að lútandi.

Fólk er hvatt til að kanna möguleika sína á styrkjum til menntunar.

Fræðslumiðstöðin skipuleggur námskeið en getur jafnframt haft milligöngu um að útvega námskeið frá öðrum. Ef þú hefur hugmynd að námskeiði sem er ekki í þessum bæklingi, hafðu samband og við skoðum málið. Öllum hugmyndum er vel tekið.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða veitir náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum samkvæmt samningi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Í því skyni heimsækir ráðgjafi miðstöðvarinnar vinnustaði vítt og breitt um Vestfirði. Áhugasamir geta pantað einstaklingsviðtöl hjá ráðgjafanum í vinnustaðaheimsóknunum, með því að hafa samband við Fræðslumiðstöðina í síma 456 5025 eða með tölvupósti [email protected]. Viðtal við náms- og starfsráðgjafa er fólki að kostnaðarlausu.

Náms- og starfsráðgjafi getur m.a.:

• Veitt upplýsingar um nám og störf.

• Aðstoðað við að kanna áhugasvið og hæfni.

• Veitt upplýsingar um mögulegar námsleiðir og styrki.

• Aðstoðað við að setja markmið og útbúa námsáætlun.

• Veitt tækifæri til að setjast niður með hlutlausum aðila og skoða stöðu sína almennt.

Haustið 2014 verður Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi Fræðslumiðstöðvarinnar til viðtals dagana 18.-20. september, 2.-4. og 23.-25. október, 6.-8. nóvember og 4.-6. desember.

Styrkir vegna íslenskunáms

Styrkir stéttarfélaga vegna endurgreiðslu á námskeiðsgjaldi

Óskir um námskeið

Náms- og starfsráðgjöf

Page 7: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 7

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Tungumál

Mikilvægt að skrá sig!

Page 8: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar8

Tungumál

Mikilvægt að skrá sig!

Page 9: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 9

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Tungumál Tölvur

Page 10: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar10

Tölvur

atHUgiðFlest námskeiðin í námsvísinum eru auglýst á Ísafirði. Stafar það af því að

óskir, fyrirspurnir eða ábendingar um þau hafa komið af norðursvæðinu. Fólk annars staðar á Vestfjörðum er eindregið hvatt til að koma óskum sínum á framfæri við Fræðslumiðstöðina. Oft er hægt að setja námskeið upp hvar sem er á Vestfjöðrum og í mörgum tilfellum er unnt að fjarkenna námskeið, þótt þau séu auglýst í staðkennslu.

Page 11: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 11

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Tölvur

Page 12: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Sjómennt – fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga

styrk?

Kynntu þér

rétt þinn á

sjomennt.is

starfstengt nám eða námskeið • tómstundastyrkir • meirapróf kaup á hjálpartækjum vegna lestrar- eða ritörðugleika

PIPAR\TBW

A • SÍA

• 131721

Átt þú rétt á

Félagsmenn Sjómenntar sem unnið hafa í að minnsta kosti sex mánuði á síðastliðnum tólf mánuðum geta sótt um styrk til félagsins:

SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA

sjomennt.is • [email protected] • sími: 514 9601

Page 13: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 13

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Tómstundir

Mikilvægt að skrá sig!

Page 14: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar14

Tómstundir

75%NámsmatTil þess að ljúka námskeiðum hjá Fræðslumiðstöðinni með viðurkenningu er almennt miðað við að þátttakendur mæti í að minnsta kosti 75% kennslustunda og séu virkir á námskeiðinu. Þetta á við um tómstundanámskeið, tungumálanámskeið, tölvunámskeið og flest endurmenntunarnámskeið. Ef viðmiðið er annað er það sérstaklega tekið fram í námskeiðslýsingu.

Í námsleiðum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins er gert ráð fyrir 80% mætingu og virkri þátttöku nemenda. Í ákveðnum námsleiðum, til dæmis Námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum og Skrifstofuskólanum, er gert ráð fyrir verkefnavinnu bæði í kennslustundum og á milli tíma. Í Menntastoðum eru próf.

Í réttindanámi má gera ráð fyrir að nemendur þurfi að standast próf með tilskilinni lágmarkseinkunn til þess að ljúka náminu. Þar má einnig gera ráð fyrir verkefnavinnu á milli kennslustunda.

Page 15: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 15

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Tómstundir

Mikilvægt að skrá sig!

Page 16: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Sjóðurinn styrkir starfsmenntun innan stofnana ríkisins á landsbyggðinni

Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna

Sjóðurinn fjármagnar þau verkefni sem sjóðsstjórn skipuleggur

Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Ríkismenntar

Þín leið til fræðslu

Ofanleiti 2, 5. hæð (A-hús) • 103 Reykjavík • sími: 599 1450 • fax: 599 1401 • www.rikismennt.is • [email protected]

Page 17: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 17

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Tómstundir

Endur- og símenntun

Page 18: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

svæðisleiðsögunámtækifæri fyrir fólk í ferðaþjónustu

KYNNING á NámI:

Fræðslumiðstöðin stefnir að því að fara af stað með svæðis leiðsögunám á Vestfjörðum nú í haust í samvinnu við Leiðsöguskólann í Kópavogi. Þetta er í fjórða sinn sem boðið er upp á slíkt nám hjá miðstöðinni en fjölmennir hópar hafa útskrifast og margir svæðisleiðsögumenn starfa við ferðaþjónustu í dag.

Svæðisleiðsögunám er kjörið tækifæri fyrir fólk sem hefur áhuga á að starfa innan ferðaþjónustunnar og er einnig tilvalið fyrir þá sem nú þegar starfa innan greinarinnar en vilja byggja ofan á þekkingu sína.

Svæðisleiðsögunámið miðar að því að þjálfa færni og hæfni nemenda til þess að standast kröfur ferðaþjónustunnar hverju sinni um áreiðanleika og fagleg vinnubrögð. Námið er víðfeðmt og fjölbreytt, fjallað er um jarðfræði Íslands, sögu og menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi, íslenskt samfélag, bókmenntir og listir. Nemendur eru fræddir um helstu ferðamannastaði á Vestfjörðum, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál og leiðsögutækni.

Námið er 22 einingar og skiptist niður á þrjár annir, hefst á haustönn 2014 og lýkur á haustönn 2015. Um er að ræða fjarnám í gegnum fjarfundabúnað og staðnám í helgarlotum. Gert er ráð fyrir 5 staðlotum um helgar á tímabilinu, víðsvegar um Vestfirði auk prófalotu í lokin. Námið fer fram á íslensku fyrir utan að nemendur geta valið ensku (eða annað tungumál ef næg þátttaka fæst) og fá þá þjálfun í leiðsögn á því máli.

Þriðjudaginn 9. september verður haldinn opinn kynningarfundur um námið í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar á Ísafirði og í fjarfundi til annarra staða þar sem slíkur búnaður er. Þar verður farið yfir skipulag námsins og eru áhugasamir hvattir til að mæta.

Umsóknir um svæðisleiðsögunám þurfa að berast Fræðslumiðstöðinni fyrir 15. september 2014.

Umsjón með náminu hefur Sólveig Bessa Magnúsdóttir verkefnastjóri hjá Fræðslu mið-stöð Vestfjarða og svæðisleiðsögumaður.

Page 19: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 19

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Endur- og símenntun

Page 20: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar20

Endur- og símenntun

Mikilvægt að skrá sig!

Page 21: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 21

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Endur- og símenntun

Réttindanám og starfstengt nám

Page 22: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar22

Réttindanám og starfstengt nám

Fjórðungs­samband Vestfirðinga

Bolungarvíkurkaupstaður

HeilbrigðisstofnuninPatreksfirði

Page 23: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 23

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Réttindanám og starfstengt nám

Góuholt 14 • 400 Ísafjörður • Sími: 456 3710 • Fax: 456 5157 • [email protected] • www.gamarvest.is • Kt. 570192-2139

Strandabyggð

Hólmavík

Page 24: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

sjódeildFræðslumiðstöðvar Vestfjarða

KYNNING á NámI:

Eitt af markmiðum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða er að bjóða upp á nám sem getur stutt við atvinnulífið á svæðinu. Liður í því hefur verið uppbygging hinnar svokölluðu sjódeildar innan miðstöðvarinnar en hún sér um fræðslu þeirra sem vilja ná sér í réttindi til skipstjórnar og vélgæslu. Þessi áhersla skapar Fræðslumiðstöðinni nokkra sérstöðu í flóru símenntunarmiðstöðva á landinu.

Eftir breytingar um stjórn og siglingar skipa fyrir nokkrum árum var hætt að tala um rúmlestir en réttindi miðast nú við lengd skipa. Hjá Fræðslumiðstöðinni er á hverju ári boðið upp á 12 metra réttindanám, svokallað smáskipanám, sem gildir á báta sem stunda fiskveiðar. Námið hefur alla tíð verið vel sótt. Síðasta vetur tók miðstöðin einnig að sér að kenna smáskipanámið sem valgrein fyrir elstu nemendur grunnskólanna á Ísafirði og í Bolungarvík.

Hjá Fræðslumiðstöðinni er einnig boðið

upp á 24 metra skemmtibátapróf og nám til undirbúnings þess. Þá hefur Fræðslumiðstöðin alla tíð staðið fyrir vélgæslunámskeiðum í samstarfi við Guðmund Einarsson vél-stjórnarkennara. Síðastliðið ár hefur miðstöðin einnig rekið viðbótarnám í vélgæslu í samstarfi við Menntaskólann á Ísafirði.

Yfir sumartímann er megin verkefni sjódeildarinnar að prófa erlenda ferðamenn sem koma á svæðið til þess að stunda sjóstangaveiði og hafa ekki tilskilin réttindi til siglinga. Það verkefni er unnið í náinni samvinnu við ferðaþjónustufyrirtækin sem bjóða upp á slíkar ferðir og hefur gengið vonum framar.

Þá hefur sjódeildin ásamt öðrum símenntunar-miðstöðvum unnið að því að koma á námi fyrir háseta á frystitogurum. Loks má nefna að Fræðslumiðstöðin tók mikinn þátt í því að koma á 24 metra réttindanámi sem hefst við Menntaskólann á Ísafirði í haust og sér um raunfærnimat í skipstjórn fyrir þá sem við á.

Page 25: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 25

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Námsleiðir Fræðslumiðstöðvar atvinnu lífsins Athugið að verð á þessum námsskrám getur breyst lítillega árið 2015

Page 26: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar26

Námsleiðir Fræðslumiðstöðvar atvinnu lífsins Athugið að verð á þessum námsskrám getur breyst lítillega árið 2015

Page 27: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 27

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Námsleiðir Fræðslumiðstöðvar atvinnu lífsins Athugið að verð á þessum námsskrám getur breyst lítillega árið 2015

Mikilvægt að skrá sig!Fræðslumiðstöð Vestfjarða brýnir fyrir fólki mikilvægi þess að skrá sig hafi það áhuga á að sækja námskeið. Við skipulagningu námskeiða er gert ráð fyrir lágmarksfjölda þátttakenda til þess að námskeið standi undir sér. Ef annað er ekki tekið fram er miðað við að lágmarki átta þátttakendur og að þeim lágmarksfjölda sé náð þremur til sjö virkum dögum áður en fyrirhugað námskeið hefst. Náist ekki lágmarksfjöldi er námskeiðinu frestað eða því aflýst og þeir sem skráðir eru látnir vita.

Page 28: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

tilraunaverkefnium hækkun menntunarstigs í Norðvesturkjördæmi

KYNNING á NámI:

Undanfarið rúmt ár hefur Fræðslumiðstöð Vestfjarða verið þátttakandi í tilrauna­verkefni um hækkun menntunarstigs í Norðvesturkjördæmi en það er annað af tveimur slíkum verkefnum sem mennta­ og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir. Hitt verkefnið er í Breiðholti. Verkefnin hófust árið 2013 og þeim á að ljúka í febrúar 2015.

Háskólinn á Bifröst sér um framkvæmd verkefnisins í kjördæminu og vinnur það í samstarfi við fræðsluaðila, einkum símenntunar-miðstöðvarnar.

Sumarið 2013 var safnað upplýsingum um menntunarstig og menntunarþarfir í kjördæminu og hvers konar nám einstaklingar kysu helst. Einnig var kannað hverjar væru helstu hindranir í námi. Megin niðurstöður voru að samanborið við landsmeðaltal er menntunarstig fremur lágt í kjördæminu og að einstaklingar og forsvarsmenn fyrirtækja telja mikla þörf fyrir aukna menntun. Mestur áhugi var fyrir námi í iðn- og tæknigreinum, en einnig námi í tengslum við opinber störf, svo sem við umönnun, skrifstofu- og viðskiptagreinum, tölvumálum og ferðaþjónustu. Fjölskyldu- og fjárhagástæður voru oftast nefndar sem helstu hindranir í námi.

Í framhaldi af þessum niðurstöðum hefur verið

lögð áhersla á að efla ráðgjöf til fyrirtækja um

nám á vinnustað, auka samstarf atvinnulífs og

fræðsluaðila í kjördæminu um starfstengt nám,

fjölga einstaklingum sem ljúka iðnnámi og efla

íslenskukunnáttu innflytjenda.

Hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða stýrir Sigurborg

Þorkelsdóttir verkefninu. Undanfarna mánuði

hefur hún heimsótt fjölmörg fyrirtæki og

stofnanir og rætt um menntun starfsfólks.

Afrakstur vinnu hennar má meðal annars sjá

á framboði af starfstengdum námsleiðum

hjá Fræðslumiðstöðinni en nú í vetur

verður til dæmis í fyrsta skipti boðið upp á

þjónustuliðanám, nám í meðferð matvæla og

nám fyrir starfsfólk á samgangna-, umhverfis-

og framkvæmdasviði. Auk þess er lögð áhersla

á að fólk sem ekki hefur lokið framhaldsskóla

geti styrkt sig í grunngreinum eins og íslensku,

stærðfræði og ensku með því að sækja

Grunnmenntaskóla eða Nám og þjálfun í

almennum bóklegum greinum. Þetta nám er

allt kennt eftir námsskrám frá Fræðslumiðstöð

atvinnulífsins og hefur verið vottað af mennta-

og menningarmálaráðuneytinu.

Page 29: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 29

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Námskeið kennd í samvinnu við Fjölmennt – fullorðinsfræðslu fatlaðra

SundleikfimiÍsafjörður

Styrkjandi og liðkandi æfingar í vatni.

Kennslustaður: Ísafjörður.Leiðbeinandi: Svala Sif SigurgeirsdóttirLengd: 20 kennslustundir (10 skipti).Kennslutími: September – október 2014.Verð: Kr. 3.500.

Matreiðsla og heimilisstörfÍsafjörður

Þátttakendur taka þátt í matargerð, borðhaldi og frágangi eftir máltíð. Kennt að nota einfaldar, myndrænar uppskriftir. Lögð áhersla á þátttöku, virkni og frumkvæði þátttakenda.

Kennslustaður: Ísafjörður.Leiðbeinandi: Elín Ólafsdóttir.Lengd: 18 kennslustundir (6 skipti).Kennslutími: Október – nóvember 2014.Verð: Kr. 3.800.

JólaföndurÍsafjörður

Föndrað skemmtilegt jólaskraut og jólagjafir.

Kennslustaður: Ísafjörður.Leiðbeinandi: Sigríður Magnúsdóttir.Lengd: 9 kennslustundir (3 skipti).Kennslutími: Nóvember 2014.Verð: Kr. 2.200.

JólalöginÍsafjörður

Sungin vinsæl jólalög. Áhersla lögð á texta, takt, hrynjanda og hreyfingu.

Kennslustaður: Ísafjörður.Leiðbeinandi: Benedikt Sigurðsson.Lengd: 12 kennslustundir (6 skipti).Kennslutími: Nóvember - desember 2014.Verð: Kr. 2.200.

DansÍsafjörður

Kenndir ýmsir dansar, svo sem línudans og salsa og hvernig á að þekkja tónlistina við þá. Þátttakendur fá tækifæri til að læra dansa við uppáhaldslögin sín.

Kennslustaður: Ísafjörður.Leiðbeinandi: Eva Friðþjófsdóttir.Lengd: 12 kennslustundir (8 skipti).Kennslutími: Vorönn 2015.Verð: Kr. 2.200.

SaumanámskeiðÍsafjörður

Saumuð einföld flík.

Kennslustaður: Ísafjörður.Leiðbeinendur: Anna Jakobína Hinriksdóttir og Halldóra Norðdahl.Lengd: 12 kennslustundir (4 skipti).Kennslutími: Vorönn 2015.Verð: Auglýst síðar.

PáskaföndurÍsafjörður

Föndrað ýmislegt skemmtilegt fyrir páskana.

Kennslustaður: Ísafjörður.Leiðbeinandi: Sigríður Magnúsdóttir.Lengd: 9 kennslustundir (3 skipti).Kennslutími: Mars 2015.Verð: Kr. 2.200.

Tónlist, söngur og spilÍsafjörður

Sungin vinsæl sönglög. Áhersla á texta, takt, hrynjanda og hreyfingu. Undirstöðuatriði í tónfræði.

Kennslustaður: Ísafjörður.Leiðbeinandi: Auglýst síðar.Lengd: 12 kennslustundir (8 skipti).Kennslutími: Maí- júní 2015.Verð: Kr. 2.200.

Page 30: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

Birt með fyrirvara um villur, lágmarksfjölda þátttakenda og ófyrirséðar breytingar30

Fræðslumiðstöð VestfjarðaFræðslumiðstöð Vestfjarða var stofnuð haustið 1999. Markmið með stofnun hennar var að auðvelda íbúum á Vestfjörðum símenntun og þátttöku í námi af ýmsu tagi í formi styttri almennra námskeiða, endurmenntunarnámskeiða og starfstengdra námskeiða.

Fræðslumiðstöðin er sjálfseignarstofnun sem starfar á grundvelli laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1998. Aðilar að Fræðslumiðstöðinni eru; Alþýðusamband Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Byggðasamlag Vestfjarða, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Fjórðungssamband Vestfirðinga, Menntaskólinn á Ísafirði, Náttúrustofa Vestfjarða, Útvegsmannafélag Vestfjarða og Vinnuveitendasamband Vestfjarða.

Þjónusta Fræðslumiðstöðvar VestfjarðaFræðslumiðstöð Vestfjarða þjónustar einstaklinga, hópa, fyrirtæki og stofnanir hvar sem er á Vestfjörðum. Miðstöðin er með skrifstofur á Ísafirði, Hólmavík og Patreksfirði en býður upp á námskeið þar sem þörf er á og þátttaka fæst. Meðal þess sem Fræðslumiðstöðin býður upp á er:

• Námskeið við allra hæfi. Fræðslumiðstöðin býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða; starfstengd námskeið, tómstundanámskeið og réttindanám.

• Sérsniðin námskeið. Fræðslumiðstöðin vinnur með fyrirtækjum, stofnunum eða hópum að því að koma á fót sérsniðnum námskeiðum eða námskeiðspökkum.

• Lengra nám. Fræðslumiðstöðin býður upp á nám samkvæmt námsskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Um er að ræða 40-300 kennslustunda nám á ýmsum sviðum ætlað fullorðnu fólki sem ekki hefur lokið framhaldsskólaprófi.

• Náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum. Ráðgjafi á vegum Fræðslumiðstöðvarinnar heimsækir vinnustaði vítt og breitt á Vestfjörðum og veitir einnig einstaklingsviðtöl.

• Raunfærnimat. Fræðslumiðstöðin hefur milligöngu um að koma á raunfærnimati fyrir fólk sem ekki hefur lokið iðnnámi.

• Fjarkennt nám frá öðrum fræðsluaðilum. Fræðslumiðstöðin vinnur með ýmsum aðilum sem bjóða upp á fjarkennd námskeið, miðlar námi og veitir nemendum í fjarnámi þjónustu.

Frekari upplýsingar um þjónustu Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða er að finna á heimasíðunni www.frmst.is.

Starfsmenn Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

Dagný Sveinbjörnsdóttirumsjón með nám­skeiðum, nemenda­bókhaldi og gæða­málum.

Björn Hafbergnáms­ og starfsráðgjafi.

Anna Vilborg Rúnarsdóttirumsjón með nám skeiðum í Vesturbyggð og Tálknafirði.

Guðbjörn Sölvason umsjón með sjódeild.

Smári Haraldssonforstöðumaður.

Elzbieta Pawluczuk ræsting.

Sólveig Bessa Magnúsdóttirumsjón með námskeiðum, einkum námi fyrir fatlaða.

Þuríður Sigurðardóttirbókhald, umsjón með námskeiðum.

Sigurborg Þorkelsdóttirumsjón með tilrauna­verkefni um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi.

Page 31: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015

Skráning á námskeið í síma 456 5025, með tölvupósti [email protected] eða á netinu www.frmst.is 31

Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2014-2015

GETUR ÞÚ HJÁLPAÐ ÞEGAR Á REYNIR? Stutt skyndihjálparnámskeið gæti gert þér kleift að bjarga mannslífi þegar mínútur skipta máli. Markmið námskeiðsins eru: að þátttakendur geri sér grein fyrir því hversu mikilvæg kunnátta í skyndihjálp er; viti í hvaða tilfellum nauðsynlegt er að hringja í 112; öðlist grunnfærni í að sinna neyðartilfellum s.s. slysum, bráðum veikindum eða öðrum viðlíka uppákomum þar til sérhæfð aðstoð berst. Útbreiðsla skyndihjálparþekkingar hefur verið eitt af meginverkefnum Rauða kross Íslands í meira en 80 ár og á hverju ári sækja um 5000 manns skyndihjálparnámskeið á hans vegum. Nánari upplýsingar um skyndihjálparnámskeið veitir svæðisskrifstofa Rauða krossins á Vestfjörðum í síma 456 3180.

Snjallgreiðslur

Betri netbanki á L.is

Hagnýtar upplýsingar

Fyrir flesta nettengda síma

Enginn auð-kennislykill

Aukakrónur

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

Hafðu bankann í vasanum

Á L.is kemstu alltaf í bankann. Allar

helstu aðgerðir í netbanka – millifærslur,

yfirlit bankareikninga, greiðsla reikninga

og margt fleira – eru aðgengilegar á L.is,

auk upplýsinga um markaði, gjaldmiðla

og stöðu Aukakróna.

Page 32: Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2014 2015