pillar iii ákvæði –opinber upplýsingagjöf halldóra elín Ólafsdóttir 14. febrúar 2008

9
Pillar III ákvæði – Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir 14. febrúar 2008 lánamarka ður verðbréfa- markaður lífeyris- markaður vátryggin ga- markaður

Upload: redford

Post on 25-Jan-2016

51 views

Category:

Documents


4 download

DESCRIPTION

verðbréfa- markaður. lánamarkaður. vátrygginga- markaður. lífeyris- markaður. Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir 14. febrúar 2008. Pillar III ákvæði:Opinber upplýsingagjöf (gr.50-55). Innihald upplýsinga um gjaldþol og fjárhagslega stöðu. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöfHalldóra Elín Ólafsdóttir 14. febrúar 2008

lánamarkaður

verðbréfa-markaður

lífeyris-markaður

vátrygginga-

markaður

Page 2: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

2

Pillar III ákvæði:Opinber upplýsingagjöf (gr.50-55)

Page 3: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

3

Innihald upplýsinga um gjaldþol og fjárhagslega stöðu

Félög skulu árlega birta skýrslu um fjárhagslega stöðu og gjaldþol og hafa til hliðsjónar grein 35 í tilskipuninni

Upplýsingar þessara skýrslna skulu a.m.k. innihalda: lýsingu á félaginu og frammistöðu þess lýsingu á stjórnkerfi félagsins og hæfni félagsins til að stýra áhættu sinni lýsingu á hverri áhættu fyrir sig, áhættustigi félagsins (risk exposure),

næmni félagsins fyrir áhættu, samþjöppun og áhættustýringu lýsingu á eignum, skuldum og vátryggingaskuld, hvaða matsaðferðir eru

notaðar og tilgreina um frávik í öðrum matsaðferðum lýsingu á fjárhagslegri stjórnun t.d. uppbyggingu á eiginfjárgrunni (own

funds) og gæði eiginfjárliða og breytingar og flytjanleika (transferability) SCR og MCR útskýringar á muninum á milli staðalformúlunnar (standard formula) og

innra módels við útreikning á gjaldþoli

Page 4: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

4

Innihald upplýsinga um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (2)

upphæð gjaldþols samkvæmt þeirri aðferð sem félagið notar tilgreina ef viðbótargjaldþolskrafa (capital add on) er til staðar tilkynna ef á einhverjum tímapunkti félagið uppfyllti ekki

lágmarksgjaldþol eða gjaldþolshlutfall, ástæður þess og hvað var gert til að uppfylla gjaldþolið

Allar aðrar upplýsingar skal birta opinberlega í samræmi við önnur lög eða til að uppfylla eftirlit

Félag skal upplýsa sérstaklega ef að gjaldþol þess er til matsmeðferðar hjá Fjármálaeftirlitinu

Page 5: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

5

Upplýsingar til CEIOPS og skýrslur gerðar af CEIOPS

Fjármálaeftirlitið skal útvega árlega upplýsingar um meðal viðbótargjaldþolskröfu (capital add on) hvers félags og dreifingu þess sýnt sem hlutfall af gjaldþoli fyrir öll vátryggingafélög. Þessar upplýsingar skal senda til CEIOPS

CEIOPS skal árlega birta opinberlega upplýsingar um heildar dreifingu viðbótargjaldþolskrafna fyrir öll aðildarríki, og fyrir hvert og eitt aðildarríki, sýnt sem hlutfall af gjaldþoli fyrir öll vátryggingafélög

CEIOPS skal senda fyrrnefndar upplýsingar til framkvæmdastjórnarinnar auk skýrslu um samleitni í eftirliti á viðbótargjaldþolskröfum hjá fjármálaeftirlitum í hverju aðildarríki

Page 6: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

6

Viðeigandi meginreglur sem viðhafðar eru við upplýsingagjöf um gjaldþol og fjárhagslega stöðu

Fjármáleftirlitið á að leyfa vátryggingafélögum að upplýsa ekki opinberlega um atriði sem: gefa samkeppnisaðila mikið forskot fela í sér að skuldbinding til vátryggingataka eða til annarra mótaðila

felur í sér trúnað eða þagmælsku af hálfu félagsins Fjármáleftirlitið hefur samþykkt sérstaklega að ekki eigi að birta og

ástæða þess skal getið í uppgjöri og gjaldþolsskýrslu félagsins undanþága á opinberri upplýsingagjöf á ekki við um atriði sem fjalla

um fjármálastjórnun félags (capital management) Fjármálaeftirlitið getur leyft vátryggingafélögum að vísa í eða nota eldri

opinbera tilkynningu ef sú upplýsingagjöf er fullnægjandi fyrir efnisatriðið sem á að upplýsa um

Í þessari grein (nr.52) er meðalhófsreglunni t.d. beitt, þar sem ekki telst nauðsynlegt að birta fyrrgreindar upplýsingar

Page 7: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

7

Uppfærslur og viðbótarupplýsingar sem gera þarf opinberar varðandi gjaldþol og fjárhagslega stöðu Upplýsa skal um allar meiriháttar breytingar á fjárhag eða gjaldþoli

félags og skal meta hversu miklar upplýsingar skal gefa eftir eðli og áhrifum breytingarinnar

Það sem telst a.m.k meiriháttar breyting er þegar lágmarksgjaldþol (MCR) er ekki uppfyllt og fjármálaeftirlitið telur að félagið muni ekki ná að leggja fram raunhæfa endurbótaáætlun innan eins mánaðar. Félaginu ber að upplýsa strax um upphæðina, útskýra ástæðu þessarar breytingar, afleiðingar og áætlaðar endurbætur. Ef félag leggur fram raunhæfa endurbótaáætlun sem það hefur ekki getað uppfyllt tveim mánuðum síðar skal upplýsa um það opinberlega í lok þessara 2ja mánaða.

Einnig telst það meiriháttar breyting þegar félag uppfyllir ekki gjaldþolskröfu (SCR) og Fjármálaeftirlitið telur að félagið muni ekki ná að leggja fram raunhæfa endurbótaáætlun innan 2ja mánaða. Félaginu ber að upplýsa strax um upphæðina, útskýra ástæðu þessarar breytingar, afleiðingar og áætlaðar endurbætur. Ef félag leggur fram raunhæfa endurbótaáætlun sem það hefur ekki getað uppfyllt fjórum mánuðum síðar skal upplýsa um það opinberlega í lok þessara 4ja mánaða.

Page 8: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

8

Stefna og samþykki á upplýsingum um gjaldþol og fjárhagslega stöðu

Aðildarríki skulu gera kröfur á vátryggingafélög um að kerfi og uppbygging í hverju félagi fyrir sig uppfylli fyrrgreind ákvæði, auk þess að hafa skriflega stefnu sem tryggir áframhaldandi viðeigandi upplýsingagjöf

Skýrslur um fjárhagslega stöðu og gjaldþol félaga skulu vera samþykktar af stjórnendum/stjórn félaga og skulu ekki vera birtar opinberlega fyrr en eftir fyrrnefnt samþykki

Page 9: Pillar III ákvæði –Opinber upplýsingagjöf Halldóra Elín Ólafsdóttir  14. febrúar 2008

9

Útfærsluatriði (implementing measures) á tilskipuninni varðandi upplýsingagjöf um gjaldþol og fjárhagslega stöðu

Framkvæmdastjórnin skal útfæra einstök atriði í tilskipuninni er varða hvaða upplýsingar er nauðsynlegt að birta opinberlega og helstu leiðir til þess

CEIOPS telur að til þess að veita aðilum markaðsaðhald þá skuli reglur um opinbera upplýsingagjöf gilda bæði fyrir lítil og stór vátryggingafélög

Tekið verður hins vegar tillit til meðalhófsreglunnar og verður því stundum ekki viðeigandi að upplýsa opinberlega um ákveðin tilvik (sbr. 52.gr). Þetta er metið á grundvelli eðlis tilviksins og hvort upplýsingar séu efnislega viðeigandi