samhent samfélag í laugalæk

27
Samhent samfélag í Laugalæk Guðrún Ebba Ólafsdóttir

Upload: ilya

Post on 24-Jan-2016

33 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Samhent samfélag í Laugalæk. Guðrún Ebba Ólafsdóttir. Teymisvinna á unglingastigi. Framgangur þróunarverkefnis í Laugalækjarskóla þar sem allir kennarar í bóklegum greinum tveggja árganga eiga með sér ríkulegt samráð um: skipulag á námi umönnun einstaklinga forfallakennslu - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Samhent samfélag í Laugalæk

Samhent samfélag í Laugalæk

Guðrún Ebba Ólafsdóttir

Page 2: Samhent samfélag í Laugalæk

Teymisvinna á unglingastigi

Framgangur þróunarverkefnis í Laugalækjarskóla þar sem allir kennarar í bóklegum greinum tveggja árganga eiga með sér ríkulegt samráð um:

•skipulag á námi

•umönnun einstaklinga

•forfallakennslu

•uppbrot á skólastarfinu

•þverfagleg verkefni

•stundatöflugerð

Rík áhersla er á að efla forystuhlutverk kennara í skólastarfinu.

Page 3: Samhent samfélag í Laugalæk

Meginmarkmið þróunarverkefnisins

Forysta um fagleg mál og valddreifingAð auka svigrúm kennara til vaxandi og sameiginlegrar forystu um skipulag náms og kennslu.

Samstarf

Að efla samstarf kennara, skapa þeim tækifæri til að deila þekkingu um nám og kennslu og byggja þannig upp samhent samfélag sterkra

fagmanna.

Page 4: Samhent samfélag í Laugalæk

Meginmarkmið þróunarverkefnisins

Einstaklingsmiðun og samvinna nemendaLögð er áhersla á einstaklingsmiðun í smærri hópum, t.d. kynskiptum hópum, hefðbundnum bekkjum en einnig er horft til aukinnar blöndunar hópa bæði innan árgangs og milli árganga t.d. í þemavinnu og smiðjum. Samfara einstaklingsmiðuninni er lögð áhersla á samvinnu meðal nemenda og aukna samkennd þeirra á meðal.

FramtíðarfarvegurSamstarf kennara miði að því að leita að ákjósanlegum farvegi fyrir nám og kennslu og skapa þannig sátt og sameiginlega framtíðarsýn um starfið í 7. og 8. bekk skólans.

Page 5: Samhent samfélag í Laugalæk

Sagan

Þróunarverkefnið hófst haustið 2005 og hefur verið í þróun síðan.

Laugalækjarskóli er unglingaskóli og þar ríkir hefð fyrir fagkennslu. Reynt er að fækka kennurum í hverjum bekk ef kostur er þannig að hver kennari kenni helst tvö fög. Á þann hátt er ætlunin að auka á nánari kynni nemenda og kennara til að stuðla að öryggi og vellíðan ásamt því að skapa þannig grunn fyrir einstaklingsmiðað nám.

Page 6: Samhent samfélag í Laugalæk

Sagan

Skólaárið 2006 – 2007 var kennarastarfið innan teymisins metið sem fullt starf; vikustundir hvers kennara voru færri en kennsluskylda segir til um og meiri tími féll þannig til annarra starfa en allt samkvæmt kjarasamningi og fjármagnað með þróunarstyrk Reykjavíkur.

Í ár eru kennarar í teyminu með hefðbundinn vinnutíma. Gerður er vinnurammi við hvern og einn. Sérstakar aukagreiðslur eru fyrir þátttöku í teyminu sem að stærstum hluta koma til vegna mönnunar forfalla sem eru fyrirframgreidd.

Page 7: Samhent samfélag í Laugalæk

Námsmöppukerfi

Í Laugalækjarskóla er námsmöppukerfi og því fylgir markviss notkun leiðarbókar. Vægi leiðarbókarinnar hefur aukist frá því sem áður hefur verið. Lögð er áhersla á að nemendur séu virkir í persónulegri markmiðssetningu og áætlanagerð ásamt því að gefa þeim svigrúm til að meta eigin frammistöðu.

Leiðarbókin er dæmi um þátt í skólastarfinu sem tekist hefur að þróa betur með teymisstarfi.

Page 8: Samhent samfélag í Laugalæk

Framkvæmd teymisvinnu skólaárið 2007 – 2008

Umsjónarkennarar í 7. og 8. bekk skipa teymið sem hefur það hlutverk að sjá um alla útfærslu og framkvæmd á bóklegu námi.

Í upphafi komu stjórnendur meira að teymisstarfinu en eftir því sem það hefur þróast hefur kennarahópurinn orðið sjálfstæðari. Stjórnendur sjá um skipulagningu stundatöflu í upphafi skólaárs en sérstök frávik frá henni v/ uppbrots eru alfarið á höndum teymisins.

Vettvangur samstarfsins eru fyrst og fremst hefðbundnir fag- og skipulagsfundir ásamt fundum þar sem fjallað er um einstaka nemendur s.s. vegna hegðunar- og námsörðugleika. Fastur fundartími er á mánudögum kl. 14 – 16.

Page 9: Samhent samfélag í Laugalæk

Framkvæmd teymisvinnu skólaárið 2007 – 2008

Teymið hefur orðið að samvinnuverkefni allra sem í teyminu starfa. Forysta og öll útfærsla náms og kennslu hefur færst yfir á kennara eftir því sem aðstæður leyfa með fullri vitund stjórnenda. Sem dæmi má nefna þróun og reglulega endurskoðun námskrár og kennsluáætlana og alla hefðbundna umsjón með nemendum 7. og 8. bekkjar.

Litið er á að umsjón nemenda sé sameignleg ábyrgð teymisins þó nemendum sé skipt í umsjónarbekki. Gæsla í frímínútum og matartímum er hluti af umsjónarhlutverkinu en greidd sem yfirvinna. Þó er engum kennara skylt að vera með gæslu.

Page 10: Samhent samfélag í Laugalæk

Framkvæmd teymisvinnu skólaárið 2007 – 2008

Teymið sér alfarið um að manna skammtímaforföll og koma stjórnendur skólans hvergi þar nærri. Einn aðili innan teymisins hefur það hlutverk að halda utan um forföllin. Ef um langtímaforföll er að ræða eða þegar nauðsyn krefur sjá stjórnendur um að manna forföll. Lengri forföll teljast þau sem eru í viku eða lengur.

Á hverjum föstudegi er umsjónartími þar sem umsjónarkennari er með sínum umsjónarbekk. Síðasti föstudagur hvers mánaðar eru sameiginlegir umsjónartímar á milli árganga. T.d. bauð 8. bekkur 7. bekk til sín í september og fyrirhugað er að 7. bekkur endurgjaldi boðið í október. Einnig eru sameiginlegir tímar innan árganga. Nemendur sjá alfarið um skipulagningu á sameiginlegum umsjónartímum. Allir umsjónarkennarar kenna auk þess lífsleikni.

Page 11: Samhent samfélag í Laugalæk

Á höndum teymisins eru einnig eftirfarandi þættir:

dagskrár funda fundarritun kynning á starfinu til annarra starfsmanna skólans verkaskipting innan teymisins, t.d. stundatöflugerð, finna efni, hringja

í söfn og aðila eftir því sem við á gerð vinnuskipulags, uppbrot á stundatöflu ýmis konar samstarf við list- og verkgreinakennara, íþrótta- og

sundkennara, sérkennara, stuðningsfulltrúa, námsráðgjafa, skólahjúkrun, upplýsingaver og skólamötuneyti,

regluleg kynning á starfinu til foreldra og heimsóknir foreldra í skólann

upplýsingamiðlun til foreldra um ástundun

Page 12: Samhent samfélag í Laugalæk

Samantekt á því sem teymið skipulagði og framkvæmdi á skólaárinu 2006 - 2007

Óhefðbundnir dagar í upphafi skólaárs (markmiðssetning, möppukerfið, bekkjarreglur, hópefli o.fl.)

Hreyfingarvika (veggspjöld, skólahlaup, eróbikk og jóga á sal, leikfimiæfingar á ensku, heilsuakademía/herþjálfun og dansatriði frá nemendum á sal)

Alviðra 7. og. 8. bekkur Dagur íslenskrar tungu (nýorðasmíði) Fjöltefli og myndband með Jóni Sigurðssyni Jólaföndur og spil Skautaferð Árbæjarsafn (diskó/punk) Lestur fyrir eldri borgara

Page 13: Samhent samfélag í Laugalæk

Samantekt á því sem teymið skipulagði og framkvæmdi á skólaárinu 2006 - 2007

Lestur fyrir leikskólabörn Smiðjur (árgangablandað – myndbandsgerð, framsögn og

tjáning, heimspeki, saga og enska, stærðfræði) Dagblöð í skólum 7.b. Upplestrarkeppni í 7. b. Ýmiss námsgreinabundin verkefni Reyklaus bekkur Vordagar – þemadagar Kjalnesingaslóðir

Page 14: Samhent samfélag í Laugalæk

Það sem þegar er ákveðið fyrir skólaárið 2007 – 2008

Óhefðbundnir dagar í upphafi skólaárs Þemavika Fjaran og hafið (fjöruferð, krufning,

þjóðsagnagerð, tónlist, foreldrar komu í skólann o.fl.) Kynjaskipt hópaskipting í 7. bekk 15. – 31. október Sameiginlegir umsjónartímar innan árganga og þvert á

árganga Námsmat í lok annar Möppudagur og nemendaviðtöl Staða nemenda skoðuð– nemendur bjóða foreldrum og

ræða stöðu sína í námi

Page 15: Samhent samfélag í Laugalæk

Það sem þegar er ákveðið fyrir skólaárið 2007 – 2008

Lífsleikni, vinnum saman undirbúning og efni Samþætting námsgreina (samfélagsfræði, íslenska og

upplýsingaverið í 7. bekk, náttúrufræði og upplýsingaver) Ýmiss námsgreinabundin verkefni Fræðsla frá Blátt áfram Kynning frá Rauða krossinum Skáldakynning Heilsuvika/hreyfingarvika Smiðjur

Page 16: Samhent samfélag í Laugalæk

Ávinningur af teymisstarfinu

Aukin samkennd innan teymisins Sameiginlegur undirbúningur t.d. fyrir skólasetningu,

umsjónartíma, lífsleikni, námskynningu og fundi með foreldrum

Sameiginleg ábyrgð gagnvart nemendum Aukið sjálfstæði í starfi Mikilvægur stuðningur fyrir nýliða Vinnuhagræðing Hærra kaup Skemmtilegra!

Page 17: Samhent samfélag í Laugalæk

Dæmi frá teymisfundi

Fundur í teymi 8. október 2007 kl. 14:00.1.  Rætt um umgengni og agavandamál, einnig rætt um einstaka bekki og nemendur. Reglur

skólans eru ekki virtar nægilega og sérstaklega er 1. reglan brotin um að virða skuli vinnufrið í kennslustundum og að hegðun sem valdi truflun sé óleyfileg. Mikið er um að nemendur komi ekki með gögn í tíma. Teymið og Ingibjörg sammála um að stöðva verði óæskilega hegðun og truflun í tímum. Kennarar noti mentor.is og merki við truflun, umsjónarkennari ræði einslega við nemendur og hafi samband heim. Einnig að óska eftir því að stjórnendur ræði við nemendur sem valda mikilli truflun og láta ekki segjast.

2.  Ákveðið að kynjaskipta 7. bekk 15. – 31. okt., þ.e. fram að vetrarleyfi. Hafa 2 strákabekki og 1 stelpubekk. Hópar í list- og verkgreinum, íþróttum og sundi halda sér. Umsjónarkennarar skipti strákunum í sínum bekk í tvennt, reynt verði að láta vini halda sér. Láta Önnu Guðnýju og Óla fá skiptinguna sem síðan sjá um frekari skipulagningu. Nikulás ætlar að kanna efni í kynjafræðslu.

Page 18: Samhent samfélag í Laugalæk

Dæmi frá teymisfundi

3. Samþykkt að þiggja boð frá Rauða krossinum um fræðslu fyrir 8. bekk. Anna Guðný hefur samband og óskar eftir að fá fræðsluna á föstudegi, 8.U kl. 9:50, 8.A kl. 10:30 og 8.L kl. 11:40.

4.  Fræðslan frá Blátt áfram var frábær. Teymið hvetur til þess að 9. og 10. bekkur fái líka svona fræðslu.

5. Kennaranemi kemur í áheyrn hjá Önnu Guðnýju og Guðrúnu Ebba 15. – 19. október.

6.  Á málþingi KHÍ 18. – 19. okt. munu Anna Guðný, Guðrún Ebba og Jón Páll kynna þróunarverkefnið, teymið. Allir sammála um ágæti þess að taka þátt í teyminu og að það sé mikill stuðningur fyrir nýja kennara.

7. Samræmd próf í 7. bekk verða í næstu viku8. Skólahlaup fyrirhugað fimmtudaginn 11. október.

Fundi slitið kl. 15:30

Page 19: Samhent samfélag í Laugalæk

Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur

08:1008:50

Mæting í umsjónarstofuKvikmynd á sal

Foreldrakynning hjá 8. bekkingum

Stofa 11Ritun

Báran

BókasafnUnnur

Stofa 11Ritun

Aldan

08:5009:30

Kvikmynd á salLagt af stað í fjöruferð

kl.

Foreldrakynning hjá 8. bekkingum

Stofa 11Ritun

Unnur

BókasafnUnnur

Stofa 11Aldan

09:5010:30

Fjöruferð Stofa 11Ritun

Mávur

Stofa 11Aldan

10:3011:10

Fjöruferð Stofa 11Ritun

Mávur

Stofa 11Aldan

11:4012:20

Fara í umsjónarstofu - flokkun

BókasafnKrían

Kynning á verkum nemenda

12:2013:00

Fara í umsjónarstofu - flokkun

BókasafnKrían

Kynning á verkum nemenda

13:1013:50

Stofa 11Ritun

Unnur

13:5014:30

Stofa 11Ritun

Báran

Stofa 11Veggspjald

Svala

Stofa 11Ritun

Aldan 26 kennslustundir

Anna Guðný Hafið og fjaran 24. -28. september

Page 20: Samhent samfélag í Laugalæk

Mávur Hafið og fjaran 24. -28. september

Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur

08:1008:50

Mæting í umsjónarstofu

Kvikmynd á sal

Stofa 10Veggspjald

Guðrún

Stofa 17Mengun í sjó

Óli

Stofa 14Nikulás

08:5009:30

Kvikmynd á salLagt af stað í fjöruferð

kl. 9:30

Stofa 12Óli

Stofa 15Stærðfræði

Hildur

Stofa 14Saga

Nikulás

Stofa 14Nikulás

09:5010:30

Fjöruferð NáttúrugripasafnNikulás

Stofa 11Ritun

Anna

Verk- og listgreinar Stofa 14Nikulás

10:3011:10

Fjöruferð Heimilisfræðistofa Kryfja fisk Margrét

Stofa 11Ritun

Anna

Verk- og listgreinar Stofa 14Nikulás

11:4012:20

Fara í umsjónarstofu - flokkun

Stofa 16Búa til líkanSoffía

HeimilisfræðiHelga

Verk- og listgreinar Kynning á verkum nemenda

12:2013:00

Fara í umsjónarstofu - flokkun

Stofa 16Búa til líkanSoffía

Stofa 16Búa til líkan-klára

Soffía

Verk- og listgreinar Kynning á verkum nemenda

13:1013:50

BókasafnGuðrún

TónmenntKim

13:5014:30

BókasafnGuðrún

TónmenntKim

Page 21: Samhent samfélag í Laugalæk

Kannski ekkert nýtt en nýtt fyrir okkur unglingaskólann

Lærdómsríkt að hafa farið í gegnum ferlið og fundið hvernig styrkur teymis eykst

Hlutverkaskipting mikilvæg t.d. að einhver stjórni fundadagskrá

Page 22: Samhent samfélag í Laugalæk

Markmið

Valddreifing og aukin forysta kennara um þau mál sem þeir þekkja best

Aukin samvinna, betri árangur og sterkari liðsheild sem nýtir þekkingu allra

Page 23: Samhent samfélag í Laugalæk

Faglegur grunnur

Valddreifing, forysta og eignarhald– Umræða um Teacher leadership

Samvinna– The learning school/organization

Skapar fjölda sóknarfæra að öðrum faglegum málum

Page 24: Samhent samfélag í Laugalæk

Praktískar lausnir

Heilir árgangar í íþróttir og verkgreinar í einu – losar fleiri bóklega kennara saman

Lengri kennslulotur Stuðningur við stundatöflubreytingar v/

uppbrota Sameiginleg lausn forfalla

Page 25: Samhent samfélag í Laugalæk

Forföllin

Kennarar sjá lausnir sem stjórnendur sjá ekki Getur aukið svigrúm kennara Ein leið til að ná fólki meira saman Ein leið til að auka greiðslur

Page 26: Samhent samfélag í Laugalæk

Ávinningur

Skapar farveg fyrir ýmsa þróun t.d. einstaklingsmiðun

Einstakur samvinnuandi, metnaður, skilvirkni og aukin starfsánægja almennt

Meðlimir teymis hafa jákvæð áhrif í öðru þróunarstarfi

Page 27: Samhent samfélag í Laugalæk

Ávinningur II

Sameiginlegur metnaður og trú Kennarar finna lausnir sem stjórnendur sjá

ekki Einstakt við stuðning við nýliða Góð yfirsýn yfir nemendur og sérþarfir