samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

18
Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila samantekt um tilraunaverkefni á vegum félagsmálaráðuneytisins Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri Arnar Pálsson, sérfræðingur

Upload: jalila

Post on 10-Jan-2016

25 views

Category:

Documents


1 download

DESCRIPTION

Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila. — samantekt um tilraunaverkefni á vegum félagsmálaráðuneytisins Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri Arnar Pálsson, sérfræðingur. Upplýsingatækni. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

— samantekt um tilraunaverkefni á vegum félagsmálaráðuneytisins

Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri

Arnar Pálsson, sérfræðingur

Page 2: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Upplýsingatækni

• Upplýsingatækni tengist í auknum mæli starfsemi ráðuneytisins, ráðherra og starfsmönnum. Lykilatriði að sérstakur starfsmaður geti helgað sig þessum verkefnum.

• Upplýsingatækni á að auka þjónustu við almenning og upplýsingagjöf frá ráðuneytinu til fjölmiðla, annarra stjórnvalda og almennings.

• Ráðuneytin eiga að sýna frumkvæði við notkun nýjustu tækni.

• Skylda til þess að sýna frumkvæði og hafa forystu jafnvel enn meiri hjá ráðuneyti sem fer með málefni fatlaðra?

Page 3: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Upplýsingatækni

• Hvetja þarf almenning til að nýta sér nýjar samskiptaleiðir. Grundvöllur þátttöku hins almenna borgara í lýðræðislegu samfélagi.

• Félagsmálaráðuneytið gerði tilraunir árið 2005 til að auka aðgengi að ráðuneytinu og umræðu um þá málaflokka sem ráðuneytið ber ábyrgð á.

• Í framtíðinni mun upplýsingatækni gegna auknu hlutverki við almenna afgreiðslu ráðuneytisins eftir því sem möguleikar á rafrænni afgreiðslu vaxa.

• Aðgengi fyrir alla árið 2009 er markmið sem vinna ber að.

Page 4: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Tilraunaverkefni um samráð og samskipti

Samráð og samskipti

Félagsmálaráðuneytið tók að sér að gera tilraunir árið 2005 í anda stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004–2007.

Þrjú tilraunaverkefni

Verkefnin öll til þess fallin að einfalda aðgengi að ráðuneytinu og auka umræðu um þá málaflokka sem ráðuneytið ber ábyrgð á.

Page 5: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Þrjú verkefni

1. Netspjall félagsmálaráðuneytisins

Almenningi og fyrirtækjum gefinn kostur á því að komast í beint samband við afgreiðslu ráðuneytisins.

2. Umræðutorg um sameiningu sveitarfélaga

Á umræðutorgi ráðuneytisins var rætt um tillögur um sameiningu sveitarfélaga, þá framtíðarsýn sem þar kom fram, kosti hennar og galla.

3. Ráðherraspjall – spjalltorg félagsmálaráðherra

Ráðherraspjall fer þannig fram að almenningi gefst kostur á að ræða fyrirfram ákveðið málefni félagsmálaráðuneytisins við ráðherra á vefnum.

Page 6: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Netspjall félagsmálaráðuneytisins

• Netspjall gefur almenningi og fyrirtækjum kost á því að komast í beint samband við afgreiðslu ráðuneytisins.

• Byggir á nýjum íslenskum hugbúnaði frá Modernus ehf. (Svarbox)

• Beint samband milli þjónustufulltrúa og viðskiptavina – eykur gildi stofnanavefja í þjónustu og kynningu.

• Nýtt samskiptaform sem nýtist heyrnarlausum sérstaklega vel.

Kynningarefni fyrir netspjall – hnappur á forsíðu ráðuneytisins

Page 7: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Netspjall: Innskráning

Page 8: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Netspjall: Samskiptagluggi

Page 9: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Umræðutorg félagsmálaráðuneytisins

• Á umræðutorginu gafst öllum landsmönnum tækifæri á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi þær sameiningartillögur sem lágu fyrir og fá viðbrögð við þeim.

• Markmið umræðutorgsins var að efla umræðu um sveitarstjórnarstigið til framtíðar og hugsanlega nýta þau sjónarmið sem þar myndu koma fram við stefnumótun í málaflokknum.

• 17 málefni voru fyrirfram skilgreind til umræðu sem tengdust öll sameiningarkosningunum, þar undir stofnuðu gestir á vefnum samtals 79 þræði og undir slíkum þráðum voru innsend skeyti samtals 160.

Kynningarefni fyrir netspjall – hnappur fyrir netmiðla

Page 10: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Umræðutorg félagsmálaráðuneytisins

• Umræðutorgið fékk samtals um 2.000 heimsóknir í septembermánuði og samtals voru um 6.000 flettingar á spjallþræði.

• Vettvangurinn var meira nýttur til að koma á framfæri sjónarmiðum og kvörtunum en að taka þátt í umræðum.

• Mikil hætta er á því að þátttökuhópur í umræðutorgum verði einsleitur – sérstaklega þar sem fyrirfram skilgreind málefni eru til umræðu.

• Umræðutorgið var alfarið opið og þátttakendur gátu tekið þátt undir nafnleynd – langflestir fóru eftir þeim reglum sem settar voru fyrir þátttöku.

Kynningarefni fyrir netspjall – hnappur fyrir netmiðla

Page 11: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Umræðutorg félagsmálaráðuneytisins

Page 12: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Umræðutorg félagsmálaráðuneytisins

Page 13: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Ráðherraspjall

• Markmiðið með ráðherraspjallinu var að gefa almenningi kost á því að komast í beint samband við félagsmálaráðherra í gegnum heimasíðu ráðuneytisins.

• Um 600 sóttu heim vef félagsmálaráðuneytins til að fylgjast með ráðherraspjallinu. 16 skráðu sig inn til þátttöku í spjallinu en 8 sendu inn alls 13 spurningar sem ráðherra svaraði á þeirri klukkustund sem ráðherraspjallið stóð yfir.

• Með þessum hætti komu sjónarmið ráðherra skýrt fram og með beinum hætti. Fjölmiðlar fylgdust vel með og gátu nýtt sér umræðuna.

Kynningarefni fyrir ráðherraspjall – hnappur á forsíðu ráðuneytisins

Page 14: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Ráðherraspjall

Page 15: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Ráðherraspjall á Akureyri

Árni Magnússon félagsmálaráðherra spjallar við netverja um sameiningarkosningar 3. október 2005.

Page 16: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Ný þjónusta auglýst – kynningarmál

• Öll verkefnin voru kynnt í fjölmiðlum: Fréttatilkynning frá ráðuneytinu, auglýsingar í útvarpi ásamt auglýsingum í prent- og netmiðlum.

• Það kom í ljós að ekki er einfalt mál að kynna nýja samskiptamöguleika, t.d. ráðherraspjallið – hvað felur hugtakið í sér?

• Ráðherraspjallið fór fram 3. október, þátttakan ágæt og mjög margir fylgdust með spjallinu. Reikna má með að áhugi aukist í næstu skipti á meðan hugmyndin um ráðherraspjall festist í sessi.

Page 17: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Kynning á ráðherraspjalli í prent-/netmiðlum

Page 18: Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Takk fyrir

[email protected]