smiÐjur Í norÐlingaskÓla - notendur.hi.is · 6 mynd 1 sýnir dæmigerða stundatöflu og...

13
Ingvar Sigurgeirsson Ágúst Ólason Sif Vígþórsdóttir Áfangaskýrsla um þróunarverkefnið SMIÐJUR Í NORÐLINGASKÓLA Samþætt nám í list- og verkgreinum, náttúrufræði og samfélagsgreinum í 5.10. bekk

Upload: vudat

Post on 07-Apr-2019

219 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Ingvar Sigurgeirsson

Ágúst Ólason

Sif Vígþórsdóttir

Áfangaskýrsla um þróunarverkefnið

SMIÐJUR Í NORÐLINGASKÓLA

Samþætt nám í list- og verkgreinum, náttúrufræði og

samfélagsgreinum í 5.–10. bekk

2

Efnisyfirlit

INNGANGUR .............................................................................................................................. 3

MARKMIÐ VERKEFNISINS ...................................................................................................... 3

UNDIRBÚNINGUR ..................................................................................................................... 4

FRAMKVÆMD ............................................................................................................................ 5

DÆMI UM SMIÐJUR .............................................................................................................. 6

NÁMSMAT Í SMIÐJUM ........................................................................................................... 10

MAT Á STARFINU .................................................................................................................... 11

LOKAORÐ .................................................................................................................................. 12

3

INNGANGUR

Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir þróunarverkefninu Smiðjum í Norðlingaskóla

skólaárið 2008–2009. Smiðjurnar eru nokkurs konar verkstæði þar sem nemendur vinna

að samþættum verkefnum í aldursblönduðum hópum. Verkefnið naut styrks úr

Þróunarsjóði grunnskóla Reykjavíkur. Markmiðum verkefnisins er lýst, fjallað um

undirbúning þess og framkvæmd, gefin eru dæmi um nokkrar smiðjur, gerð grein fyrir

tilhögun námsmats og mat lagt á starfið.

MARKMIÐ VERKEFNISINS

Markmið þróunarverkefnisins Smiðjur í Norðlingaskóla er að móta heildstætt skipulag um

samþættingu verk- og listgreina við samfélags- og náttúrufræði.

Megináhersla hefur verið lögð á verklega og skapandi vinnu þar sem list- og

verkgreinar eru samþættar við aðrar námsgreinar, einkum náttúrufræði og

samfélagsgreinum, en einnig íslensku og stærðfræði og ekki síst lífsleikni.

Hugmyndin að baki smiðjunum byggist m.a. á því að móta samþætt nám sem felur í sér

að nemendur nái markmiðum Aðalnámskrár í þessum greinum á þriggja ára tímabili.

Námið er byggt á námseiningum, í fyrsta lagi fyrir 1. til 4. bekk, í öðru lagi fyrir 5. til 7.

bekk og í þriðja lagi 8. til 10. bekk. Í þessu verkefni er athygli beint að smiðjum á mið-

og unglingastigi. Vert er þó að hafa í huga að vegna aldursblöndunar ná smiðjurnar

fyrir mið- og unglingastig einnig oft til yngstu aldurshópanna.

Smiðjunum er ætlað að styrkja stefnu skólans um einstaklingsmiðað nám en með því er

átt við að starf skólans taki mið af því að börnin eru misjafnlega þroskuð, af

margbreytilegum uppruna og hafa öðlast margháttaða og misjafna leikni, reynslu og

þekkingu áður en þau hefja nám í grunnskóla. Einnig er mjög misjafnt hverjar eru

sterkar og veikar hliðar þeirra. Í Norðlingaskóla er lögð áhersla á að búa nemendum

4

skilyrði til að læra og þroskast á eigin forsendum, veita þeim öryggiskennd, sjálfstraust

og stuðla að því að þeir öðlist jákvæða sjálfsmynd. Sérstök áhersla er lögð á að sérhver

nemandi fái námsaðstæður og viðfangsefni við sitt hæfi. Skólastarfið á að koma til móts

við ólíkar þarfir, getu, námsstíl og áhuga allra nemenda.

Þróunarverkefninu er ætlað að renna styrkari stoðum undir smiðjurnar, skapa ráðrúm

til að útfæra þær betur og tengja þær markmiðum aðalnámskrár. Þá er stefnt að því að

taka saman lýsingar á sem flestum smiðjum með markmiðum, skipulagi, kennslu-

aðferðum, verkefnum og mati. Þegar hefur verið hafist handa við að birta þetta efni á

heimasíðu skólans, bæði til almennrar kynningar fyrir foreldra og skólafólk, en eins svo

efnið geti nýst kennurum í öðrum skólum sem áhuga kunna að hafa á að þróa þessi

vinnubrögð.

UNDIRBÚNINGUR

Skipaður var hópur (stefnumörkunarteymi) til að leggja drög að þessari vinnu. Í

teyminu voru Arna Gná Gunnarsdóttir, Birna Hjaltadóttir, Elvar Þór Friðriksson, Hanna

Mjöll Káradóttir, Íris Eva Backmann og Kolbrún Kristleifsdóttir.

Stefnumörkunarteymið skilaði af sér tillögum og var þar m.a. var miðað við að hverri

smiðju yrði lýst með eftirfarandi hætti:

1. Tímafjöldi

2. Innihaldslýsing

a. Hvert er þemað?

b. Tenging við námsefni

c. Tenging við Aðalnámskrá grunnskóla

d. Markmið

e. Kennsluaðferðir

f. Þverfaglegar tengingar

g. Þáttur verkgreina

3. Gögn

5

a. Efni og áhöld

4. Mat á smiðjum

a. Hvað skal meta?

b. Nemendur v.s. smiðjan sjálf

c. Hvernig verður nám nemenda metið, t.d.

i. einstaklingsmat

ii. námsmappa

iii. jafningjamat

iv. sjálfsmat

Teymið lagði til að gögnum um smiðjurnar yrði safnað saman í lok hvers

smiðjutímabils í gagnagrunn eða hugmyndabanka sem skyldi vera öllum

starfsmönnum aðgengilegur, bæði í áþreifanlegu og rafrænu formi. Þá var hugmyndin

að skipaðir yrðu sérstakir smiðjustjórar til að halda utan um þessi verkefni og mat á

þeim. Þeirri skipan var frestað en að öðru leyti farið að tillögum hópsins.

Ákvarðanir um hvaða smiðjur eru í boði eru teknar af öllum starfshópnum

sameiginlega. Kennarar setja fram hugmyndir, þær eru ræddar og lokaákvarðanir

teknar. Hópar kennara taka síðan að sér útfærslu á hverri smiðju. Verkefni þeirra er að

setja smiðjunum markmið, ákveða inntak þeirra og fyrirkomulag og huga að námsmati

í samræmi við þá forskrift sem mótuð var (sjá hér á undan). Sérstaklega er gætt að

tengslum hverrar smiðju við Aðalnámskrá grunnskóla. Þá skoðar teymið hvernig

smiðjan getur t.d. tengst útikennslu, tónlist, myndlist, leiklist, lífsleikni, heimilisfræði,

kvikmyndagerð, upplýsinga- og tæknimennt, hönnun, dansi og íþróttum.

FRAMKVÆMD

Skólaárinu er skipt niður í sex til átta tímabil sem starfsmenn í Norðlingaskóla kalla sín

á milli smiðjutímabil. Hvert smiðjutímabil spannar fjórar til sex vikur og í hverri viku eru

smiðjur í boði í tvo daga, tvær sjötíu mínútna kennslulotur hvorn dag, eða sem

jafngildir sjö kennslustundum á viku. Rök fyrir því að hafa loturnar 70 mínútna langar

eru einkum að það eykur líkur á því að nemendur geti sökkt sér niður í viðfangsefni sín.

6

Mynd 1 sýnir dæmigerða stundatöflu og staðsetningu smiðjanna í henni.

Mynd 1 Stundatafla 6. bekkjar (vika í janúar 2009)

Smiðjurnar eru alltaf aldursblandaðar en misjafnt er eftir tímabilum hvaða árgangar

vinna saman hverju sinni. Þá er mismunandi eftir tímabilum hversu margar smiðjur eru

í boði hverju sinni. Þó er ekki fjarri lagi að ætla að nemandi fari á hverju skólaári í um 30

ólíkar smiðjur.

DÆMI UM SMIÐJUR

Á síðasta skólaári voru eftirfarandi smiðjur í boði.

Fyrir 5. –7. bekk:

Ævintýrasmiðja

Jólasmiðja (1. – 10. bekkur)

Árshátíðin - Eniga Meniga

Landnámssmiðja

7

Landafræði Íslands

Jafnréttissmiðja (1. – 10. bekkur)

o Jafnrétti kynja

o Jafnrétti kynþátta

o Jafnrétti með tilliti til fötlunar

Fyrir 8.–10. bekk:

Sjálfsþekkingar- og samskiptasmiðja

Samfélagsfræðismiðja

Skapandi hugur og hönd:

o Tálgun og útskurður

o Prjón og hekl

o Ljósmyndun

o Tónsmíðar og upptaka

o Kvikmyndagerð

o Textíl

Jólasmiðja (1.–10. bekkur)

Ritunarsmiðja

Jafnréttissmiðjur (1.–10. bekkur)

Til að gefa gleggri hugmynd um uppbyggingu smiðjanna verða hér tekin tvö dæmi:

Landnámssmiðja (5. - 7. bekkur)

Meginmarkmið landnámssmiðjunnar, sem tók fimm vikur, var að kenna nemendum um landnám Íslands

samkvæmt markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla. Að smiðjunni komu bæði umsjónarkennarar nemenda

og list- og verkgreinakennarar. Meðan á smiðjuvinnunni stóð var sagan Vítahringur eftir Kristínu

Steinsdóttur lesin fyrir nemendur í sérstökum bókmenntatímum.

Með hliðsjón af Aðalnámskrá var efninu skipt í fjóra flokka: Stjórnarfar, daglegt líf, vopn og deilur, og trú

og tákn. Nemendum var skipt í fjóra aldursblandaða hópa. Hver smiðjueining var tvískipt. Í fyrri hluta var

fyrirlestur og umræður, en í þeim seinni var fengist við fjölbreytt verkefni.

8

Stjórnarfar

Áhersla var m.a. lögð á frásagnir af landnámi Ingólfs Arnarsonar, stéttaskiptingu í landinu, skiptingu

landsins í goðorð, hvernig Alþingi kom til sögunnar og hvernig Alþingi var stjórnað. Mikil áhersla var lögð

á að tengja fræðsluna og umræðuna við stétt og stöðu sögupersóna í bókinni Vítahring sem lesin var

samhliða smiðjunum. Í seinni hlutanum unnu nemendur stóra veggmynd af sögupersónum úr Vítahring og

var áhersla lögð á að nemendur notuðu eigin stærð sem viðmið. Nemendum voru kenndar nýjar aðferðir

við notkun lita oghvernig verklag á við þegar stór veggmynd er búin til.

Vopn og deilur

Rætt var um landnámið – af hverju landnámsmenn komu hingað og hvaðan. Hvernig menn helguðu sér

land hvernig menn leystu ýmis mál sín á milli, um Alþingi og Lögréttu. Nemendur lærðu um fóstbræðra-

lagið (lýsing í Gíslasögu) og nokkrir nemendur voru fengnir til að leika það. Því næst var talað um hefndir

og sagan Hvalrekinn lesin fyrir nemendur. Eftir umræðurnar kynnti smíðakennari þau verkefni sem í boði

voru. Gátu nemendur valið um að smíða sverð eða skjöld. Þeir sem völdu að búa til skjöld lærðu aðferð

við að teikna hring með bandspotta og nagla en hún var notuð fyrr á öldum. Sverðið var svo búið til úr

tveimur bútum, límt saman og bundið. Vopnin voru skreytt með brennipenna og nýttu nemendur vitneskju

sína um rúnaletur sem þeir höfðu lært í smiðjunni um Trú og tákn.

Daglegt líf

Eftir samræður var verkum skipt. Nemendur tóku til við byggingarvinnu annarsvegar og eldamennsku

hinsvegar. Sá hópur sem eldaði hlóð hlóðir og kveikti eld. Á stórri pönnu steikti hópurinn brauðmeti og í

keðju hékk ketill sem í var soðið vatn. Byggingarhópurinn safnaði timbri og þurfti sjálfur að finna leiðar til

að flytja það á staðinn. Reyndi það mjög á útsjónarsemi. Sumir hópar báru níðþunga stofna í fanginu og

hjálpuðust þá allir að, aðrir drógu timbrið með köðlum og einn hópur fleytti því áfram á tilhöggnum bútum.

Því næst súrraði hópurinn saman þrjá og þrjá stofna og reisti turna. Utan á turnana voru súrraðar

þverspýtur og utan á allt settur strigi.

Trú og tákn

Fyrstu tvær loturnar voru teknar undir trúarbrögð á landnámsöld. Notast var við myndir úr bókinni Huginn

og Muninn sem settar höfðu verið á glærur var varpað upp á vegg og kennari sagði sögur af ásunum út

frá hverri mynd fyrir sig. Miklar umræður sköpuðust og var mikið lagt upp úr að nemendur tækju þátt í

frásögninni. Í lok seinni lotunnar fengu nemendur kynningu á rúnaletrinu Fúþark og kynningu á verklega

þættinum en hann fólst í því að búa til merkispjald úr tré með nafninu sínu á Fúþark og venjulegum

stöfum. Einnig var spjaldið skreytt með táknum og myndum í víkingaaldarstíl. Þeir sem kláruðu snemma

gátu unnið skartgripi í anda víkinga úr vír, leðri, perlum og fleira tilfallandi efni.

9

Námsmat byggði á mati á skrifum nemenda, virkni, sjálfstæði í vinnubrögðum og hópvinnu (sjálfsmat,

kennaramat). Þá var farið í spurningaleik (Landnámsleik) í Björnslundi sem einnig gilti til mats.

Sjá nánar um þetta verkefni á þessari slóð:

http://www.nordlingaskoli.is/images/stories/pdf/starfshaettir/smidjur/landnamssmidja.pdf

Ritunarsmiðja (8.–10. bekkur)

Markmið: Að nemendur efli færni í ritun á fjölbreyttan hátt. Nemendur kynnist kvikmyndarýni, túlkun á

myndlist, þjálfist í skapandi skrifum og bréfaskrifum (bæði formlegum og persónulegum). Auk þess eiga

nemendur að skrifa um eigin upplifun á kvikmynd, gera teiknimyndasögur og búa til bók fyrir sín verkefni.

Nemendum er skipt í fjóra hópa, tvo stelpuhópa og tvo strákahópa og hver hópur fer einu sinni á hverja

stöð. Að auki eru þrjú verkefni sem allir nemendurnir vinna saman á sama tíma. Þeir færniþættir sem

smiðjan tekur á eru skynjun með hlustun og áhorfi, tjáningu með ritun, gagnrýn hugsun, ögun, vandvirkni,

handverk o.fl. Kennt verður á miðvikudögum í 2. og 3. lotu og á fimmtudögum í 2. og 3. lotu.

Í boði eru eftirfarandi stöðvar:

Bíóhúsið: Kennari kynnir ákveðin kvikmyndarýni- og bókmenntahugtök fyrir nemendum og þeir horfa

síðan á kvikmynd með þessi hugtök í huga. Úrvinnsla er í þriðja tíma þar sem nemendur gagnrýna

kvikmyndina sem horft var á.

Listasafnið: Nemendur fara í vettvangsferð og skoða myndlistarsýningu. Þeir nýta fimmtudagstímann til

úrvinnslu á ferðinni og skrifa um eigin upplifun á sýningunni í heild, um listamanninn eða eitthvað ákveðið

verk sem hafði áhrif á þá.

Hús skáldsins: Nemendur æfa skapandi skrif og skrifa smásögu eða örsögu. Stefnt er að því að hafa

samkeppni með verðlaunum og fá starfandi rithöfunda til að dæma.

Pósthúsið: Nemendur læra um bréfaskriftir og skrifa ýmsar gerðir af bréfum; formleg bréf, mótmælabréf,

persónuleg bréf o.fl. Nemendur kynnist bréfum Vestur Íslendinga, skoði vef Vesturfarasetursins og skoði

bókina Bréf Vestur–Íslendinga eftir Böðvar Guðmundsson.

Sameiginleg verkefni unnin í lok apríl og í maí.

Bókargerð: Allir nemendur vinna að bókargerð á síðasta vetrardag (22/4). Unnið verður í flæði í fjórum

kennslustofum.

Teiknimyndasögur: Nemendur 8. og 9. bekkjar vinna teiknimyndasöguverkefni meðan 10. bekkingar

þreyta samræmd próf.

Draumalandið: Allir nemendur fara að sjá kvikmyndina Draumalandið og skrifa um kvikmyndina og hvaða

áhrif hún hafði á þá.

10

Fyrir 1.–4. bekk voru eftirfarandi smiðjur í boði á síðasta skólaári:

Vísindasmiðja

o Vatn – Tilraunir

o Vatn - Bátagerð

o Loft - Flugdrekar

o Loft - Svif

o Land - Myndlist

o Land - Smíði

Enskusmiðja

Vináttan

Jólasmiðja (1. – 10. bekkur)

Heimilisfræði

Leiklist - Rauðhetta

Tákn með tali

Páskasmiðja

Umhverfis- og ferðasmiðja

Jafnréttissmiðja (1. – 10. bekkur)

o Jafnrétti kynja

o Jafnrétti kynþátta

o Jafnrétti með tilliti til fötlunar

Lýsingar á smiðjum er að finna á heimasíðu Norðlingaskóla á þessari slóð:

http://www.nordlingaskoli.is/index.php?option=com_content&view=article&id=54&Itemid=107

NÁMSMAT Í SMIÐJUM

Mikil umræða hefur verið um fyrirkomulag námsmats í smiðjum. Afar áríðandi er að

þannig sé hugað að námsmati í smiðjum þannig að það sé fjölbreytt og áreiðanlegt. Í

upphafi var leitast við að samræma námsmatið en fljótlega kom í ljós að þær voru

innbyrðis svo ólíkar að það reyndist erfitt og óæskilegt. Því var farin sú leið að þróa

hugmyndabanka með fjölbreyttum námsmatsaðferðum sem henta ólíkum smiðjum.

11

Dæmi um fyrirkomulag námsmats í smiðjum er að finna á heimasíðu skólans á þessari

slóð: www.nordlingaskoli.is

MAT Á STARFINU

Mat okkar af námi og starfi í smiðjum er í heild mjög jákvætt. Mikil ánægja er með

hvernig til hefur tekist. Ekki verður um villst að smiðjurnar veita nemendum kærkomið

tækifæri til að nálgast námsefni á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt og vekja þannig

áhuga þeirra. Smiðjurnar eru að verða einn af meginþáttum skólastarfsins og hafa vakið

athygli utan skólans.

Benda má á að námið í smiðjunum höfðar til mismunandi greinda og færni nemenda og

oft hefur mátt sjá nemendur verða gagntekna af viðfangsefnum sínum og gleyma stund

og stað.

Aldursblöndunin sem byggt er á í smiðjunum hefur sérstakt gildi. Hún hefur félagslegt

gildi í þá veru að nemendur kynnast vel þvert á aldurshópa. Þá má oft sjá nemendur á

mismunandi aldri læra hver af öðrum, þeir eldri kenna þeim yngri og öfugt. Í þessu

felst vitaskuld mikil lífsleikni, en í skólanum er lögð áhersla á að hún sé samofin öllu

starfi.

Starfsmenn hafa verið beðnir um að leggja mat á hvernig til hefur tekist við þróun

smiðjanna og er afstaða þeirra mjög jákvæð. Jákvætt mat kennara á smiðjum felst m.a. í

því að í smiðjunum kynnast þeir mjög mörgum nemendum og hitta jafnvel alla

nemendur skólans. Ekki fer á milli mála að þetta hefur jákvæð áhrif á skólabrag.

Fyrirkomulagið leiðir til þess að á einu skólaári fá starfsmenn skólans tækifæri til að

vinna í smiðju með öllum öðrum. Þessi samvinna er líka þýðingarmikil fyrir

skólamenninguna. Þá eru starfsmenn í smiðjunum oft að fást við viðfangsefni sem þeir

12

hafa sjálfir mikinn áhuga á sem vitaskuld er smitandi. Sem dæmi um viðhorf kennara til

smiðjanna má nefna þessi:

Sú djörfung að leggja fimmtung kennsluvikunnar í Norðlingaskóla undir smiðjur, allt árið, finnst

mér aðdáunarverð og er ein aðalástæða þess hvað mér finnst gaman að vinna í þessum skóla.

Mér hefur virst starfsfólki skólans vaxa ásmegin með hverju árinu sem líður að skipuleggja

skemmtilegar, markvissar og árangursríkar smiðjur. Að sama skapi uppfylla smiðjurnar fleiri og

fleiri markmið aðalnámskrár með hverju árinu. Í unglingadeild hefur orðið kúvending á viðhorfi

nemenda til smiðjuvinnunnar. Fyrir aðeins tveimur árum var ríkjandi sú skoðun að smiðjur væru

ekki „alvöru" kennslustundir heldur frekar eins konar leikur, uppbrot eða tilbreyting. Þetta hefur nú

breyst og má sjá mikinn metnað lagðan í alla vinnu nemenda í smiðjutímum á þessum vetri.

Mín skoðun er sú að smiðjur bæti skólastarfið, þær bjóða upp á meiri fjölbreytileika í námi.

Nemendur sýna jákvætt viðhorf og áhuga á náminu. Smiðjur er skemmtileg vinna þar sem mikið,

fjölbreytt, faglegt og gott nám fer fram.

Viðhorf nemenda til smiðjanna eru mjög jákvæð. Haldnir hafa verið fundir með öllum

aldurshópum þar sem þeir hafa verið beðnir um að leggja mat á smiðjurnar. Nemendur

í öllum árgöngum voru sammála um að smiðjurnar væru sérstaklega skemmtilegar og

gæfu þeim tækifæri til að læra á annan hátt en úr bókunum. Ráðgjafi verkefnisins hefur

spurt nemendur um uppáhalds viðfangsefni þeirra í Norðlingaskóla og eru smiðjurnar

lang oftast nefndar. Kemur fram í svörum þeirra að verkefnin séu áhugavekjandi og að

þau fái svo mikið „skemmtilegt að gera“.

Mat foreldra hefur einnig verið mjög jákvætt og þeir látið í ljós ánægju sína með ýmsum

hætti bæði í samtölum og í tölvupósti.

LOKAORÐ

Eins og fram hefur komið í þessari skýrslu eru starfsmenn og nemendur Norðlingaskóla

mjög sáttir við hvernig til hefur tekist við smiðjurnar á þessu skólaári. Erfitt er að taka

eitt atriði fram yfir annað þegar litið er til þeirra þátta sem jákvæðir eru en nefna má

13

mikla fjölbreytni, sköpun, virkni og áhuga nemenda og samstarf starfsfólks við

undirbúning og framkvæmd smiðjanna. Það sem helst má betur fara er að gögnum sé

haldið betur til haga ekki síst lýsingum og skýrslum um hverja smiðju sem og öll gögn

(skjásýningar, verkefni, leiðbeiningar, námsmatsgögn, eyðublöð).

Á næsta skólaári verður skipaður sérstakur smiðjustjóri til að halda betur utan um

starfið og þá sérstaklega lýsingar og mat á smiðjunum.

Skólaárinu 2009–2010 verður skipt niður í fjögur aðaltímabil. Í hinu fyrsta verður

umhverfið aðalþema, annað tímabilið verður opið, þ.e. ekki verður eitt ákveðið

heildarþema, á því þriðja verður leiklist rauður þráður í öllum smiðjum og í því síðasta

verður lífríkið aðal þema.

Þá verður leitast við að kynna smiðjustarfið betur fyrir foreldrum, t.d. með

kynningarbæklingum, með því að bjóða þeim að koma í skólann og fylgst með starfinu,

með því að hluti af smiðjuvinnunni fari fram á heimilunum og með sýningu.

Loks verður stefnt að fjölbreyttara námsmati í smiðjunum.

Stefnt er að því að sækja um styrk í Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla en

hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.