starfsreglur norðurlandaráðs - diva...

24
Starfsreglur Norðurlandaráðs Norðurlandaráð ÍSLENSKA / 2017

Upload: others

Post on 29-Jun-2020

8 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

1

Starfsreglur Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð

ÍSLENSKA / 2017

Page 2: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

Starfsreglur Norðurlandaráðs

ISBN 978-92-893-4781-5 (PRINT)ISBN 978-92-893-4782-2 (PDF)http://dx.doi.org/10.6027/ANP2016-785ANP 2016:785

© Norðurlandaráð 2017

Umbrot: Mette Agger TangPrentun: RosendahlsUpplag: 200

Printed in Denmark

Norrænt samstarfNorræna samstarfið er eitt umfangsmesta svæðasamstarf í heiminum. Samstarfið nær til Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar auk Álandseyja, Færeyja og Grænlands.

Norræna samstarfið er pólitískt, efnahagslegt og menningarlegt og skiptir miklu í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi. Í norrænu samstarfi er unnið að því að styrkja stöðu Norðurlanda í sterkri Evrópu.

Með norrænu samstarfi er unnið að því að efla norræna og svæðisbundna hagsmuni í alþjóðlegu umhverfi. Sameiginleg gildi landanna styrkja stöðu Norðurlanda og skipa þeim meðal þeirra svæða í heiminum þar sem nýsköpun og samkeppnishæfni er mest.

NorðurlandaráðVed Stranden 18DK-1061 København KSími (+45) 3396 0200

www.norden.org

Page 3: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

Starfsreglur Norðurlandaráðs

ÍSLENSKA / 2017

Page 4: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

4

Starfsreglur Norðurlandaráðs frá 1971 voru felldar úr gildi með nýjum starfsreglum sem samþykktar voru samkvæmt 59. gr. Helsingforssamningsins á þingi Norðurlandaráðs þann 13. nóvember 1996. Þær tóku gildi 1. febrúar 1997.

Starfsreglur Norðurlandaráðs voru endurskoðaðar og samþykktar á 53. þingi ráðsins þann 30. október 2001 og aftur á 57. þingi ráðsins þann 27. október 2005. Endurskoðaðar starfsreglur tóku þegar gildi.

73. grein var breytt eftir ákvörðun þingsins þann 29. október 2008. Breytingin tók gildi 1. janúar 2009.

Starfsreglur Norðurlandaráðs frá 2001 voru felldar úr gildi með nýjum starfsreglum sem samþykktar voru samkvæmt 59. gr. Helsingforssamningsins á þingi Norðurlandaráðs þann 2. nóvember 2011. Þær tóku gildi 1. janúar 2012.

Starfsreglur Norðurlandaráðs frá 2012 voru felldar úr gildi með nýjum starfsreglum sem samþykktar voru samkvæmt 59. gr. Helsingforssamningsins á þingi Norðurlandaráðs þann 3. nóvember 2016. Þær tóku gildi 1. janúar 2017.

Page 5: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

5

EFNISYFIRLIT

6 Skipulag ráðsins og þing

8 Þingið

10 Forsætisnefnd

12 Nefndir

14 Eftirlitsnefnd

15 Undirbúningur mála fyrir lokaafgreiðslu

17 Umræður og ákvarðanir á þingi

19 Kosningar

22 Önnur ákvæði

Page 6: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

6

1. gr. Stofnanir ráðsinsStofnanir ráðsins samkvæmt Helsingforssamningnum eru þing, forsætisnefnd og nefndir. Einnig er kosin eftirlitsnefnd og kjörnefnd.

2. gr. ÞingfundirReglulegt þing er haldið a.m.k. einu sinni á ári. Þingið ákveður stað og stund fyrir næsta þing. Forsætisnefnd er heimilt að breyta þeirri ákvörðun ef sérstakar aðstæður koma upp.

Önnur þing eða þemaþing kemur saman ef forsætisnefnd ákveður slíkt‚ eða ef a.m.k. tvær ríkisstjórnir eða tuttugu og fimm fulltrúar óska eftir því. Forsætisnefnd ákveður þá stað og stund.

3. gr. ÞingiðÞingið fer með æðsta ákvörðunarvald ráðsins. Í Helsingfors-samningnum er kveðið á um skipan þingsins‚ og ennfremur að þingið geti samþykkt tilmæli, tekið aðrar ákvarðanir og gefið álit‚ sem beint er til ríkisstjórna‚ einnar eða fleiri‚ eða til ráðherranefndarinnar.

4. gr. ForsætisnefndForsætisnefnd fer með æðsta ákvörðunarvald ráðsins á milli þingfunda og hefur þá sömu heimildir og þingið hefur ella. Nefndin stjórnar starfsemi ráðsins og sér um að samræma hana starfi þjóðþinga og alþjóðastofnana.

5. gr. NefndirStarf ráðsins fer fram í fjórum nefndum: Norrænu þekkingar- og menningarnefndinni, norrænu sjálfbærninefndinni, norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndinni og norrænu velferðarnefndinni. Nefndirnar undirbúa mál hver á sínu sviði áður en þau eru tekin til lokaafgreiðslu á þingi.

1. kafli Skipulag ráðsins og þing

Page 7: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

7

6. gr. EftirlitsnefndEftirlitsnefnd fer með þingbundið eftirlit með þeirri starfsemi sem kostuð er sameiginlega úr norrænum sjóðum‚ og sér einnig um aðrar úttektir sem þingið ákveður.

7. gr. KjörnefndKjörnefnd undirbýr og leggur fram tillögur að kjöri sem fer fram á þinginu.

8. gr. LandsdeildirHelsingforssamningurinn kveður á um hvaða landsdeildir starfi og skipan þeirra.

9. gr. FlokkahóparFulltrúum er heimilt að mynda flokkahópa. Hvern hóp skipi a.m.k. fjórir fulltrúar frá a.m.k. tveimur löndum.

Page 8: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

8

10. gr. FulltrúarVið upphaf þingfundar staðfestir þingheimur skrá yfir viðstadda fulltrúa og varamenn. Þingheimur ákveður breytingar á skránni en þær eru þó ekki heimilar meðan á umræðum eða afgreiðslu stendur.

11. gr. Sætaskipan í þingsalFulltrúar og fulltrúar ríkisstjórna, hvorir um sig, fá þau sæti í þingsalnum‚ sem forsætisnefnd hefur ákveðið.

12. gr. Forseti og varaforsetiForseti og varaforseti næsta almanaksárs eru kjörnir á reglulegu þingi úr röðum fulltrúa þess lands þar sem næsta reglulega þing fer fram.

13. gr. ÁheyrnarfulltrúarSamaþingin í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð hafa með fulltingi Þingmannaráðs Sama stöðu áheyrnarfulltrúa og hafa rétt til að tjá sig í almennum þingumræðum og að öðru leyti samkvæmt ákvörðun forsætisnefndar.

14. gr. BoðsgestirNorðurlandaráði æskunnar er boðið á þing Norðurlandaráðs og er heimilt að tjá sig í almennum þingumræðum og að öðru leyti samkvæmt ákvörðun forsætisnefndar.

Forsætisnefnd er heimilt að bjóða fulltrúum þjóðkjörinna stofnana og öðrum einstaklingum á þingið og ákveður þá hvort þeim skuli veitt málfrelsi.

15. gr. FundarstjórnForseti eða annar fulltrúi forsætisnefndar stjórnar þingfundi. Þátttakendur í umræðu um tiltekið mál geta ekki gegnt fundarstjórn þegar málið er til umræðu.

16. gr. Opnir fundirÞingfundir eru opnir ákveði þingheimur ekki annað af sérstökum ástæðum.

2. kafli Þingið

Page 9: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

9

17. gr. DagskráVið upphaf þingfundar staðfestir þingheimur dagskrártillögu forsætisnefndar þar sem tilgreind eru þau mál sem verða til umfjöllunar á þinginu svo og tímasetningar þingfunda. Heimilt er að breyta henni síðar ef tveir þriðju þingheims ákveða slíkt.

18. gr. ÁlyktunarhæfiÞingið er ákvörðunarbært ef a.m.k. fjörutíu og fjórir þingfulltrúar eða varamenn í þeirra stað eru viðstaddir. Komi aðeins nokkur landanna að ákvörðun í tilteknu máli‚ samkvæmt ákvæðum Helsingforssamningsins‚ skal minnst helmingur fulltrúa viðkomandi landa vera viðstaddur.

19. gr. Krafa um undirbúning málaFjalla ber um hvert mál í forsætisnefnd, fagnefnd eða eftirlits-nefnd áður en það kemur til lokaafgreiðslu á þingfundi. Kjörnefnd undirbýr kosningar.

20. gr. FundargerðÁ hverju þingi er færð fundargerð yfir mál, ummæli og ákvarðanir þar sem tilgreindar eru tillögur, tilmæli, röð ákvarðana, niðurstöður atkvæðagreiðslu og nöfn ræðumanna. Á reglulegum þingum eru allar umræður færðar orðréttar í skriflega gerðabók. Á öðrum þingum gildi hið sama, hafi forsætisnefnd ákveðið slíkt.

Á öðrum þingum geta fundargerðir verið skriflegar eða upptaka hljóðs eða myndar.

21. gr. Sérreglur Við upphaf þingfundar staðfestir þingheimur tillögu forsætis-nefndar um sérreglur fyrir þingfundinn. Heimilt er að breyta þeim síðar ef tveir þriðju þingheims ákveða slíkt að höfðu samráði við forsætisnefnd.

Page 10: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

10

22. gr. NefndarskipanForsætisnefnd er skipuð forseta, varaforseta og allt að fimmtán fulltrúum. Öll lönd og allir flokkahópar skulu eiga þar fulltrúa.

23. gr. Álandseyjar, Færeyjar og GrænlandVið meðferð mála sem varða Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland er fulltrúa þeirra heimilt að sitja fund með málfrelsi og tillögurétt.

24. gr. Réttur til þátttökuNorðurlandaráði æskunnar er heimilt að sitja fundi forsætis-nefndar. Fulltrúinn getur tekið þátt í umræðum forsætisnefndar en ekki ákvörðunum hennar.

25. gr. Fundarboð og fundardagskrá fyrir þinginForsætisnefnd sendir út fundarboð eigi síðar en mánuði fyrir byrjun þings með tillögu um hvaða mál verði þar til umfjöllunar. Við upphaf þingfundar leggur forsætisnefnd fram tillögu að dagskrá þar sem sérstakt tillit er tekið til mála sem eru ofarlega á baugi. Öllum fulltrúum er heimilt að leggja fram tillögu til forsætisnefndar að málum sem skulu sett á dagskrá.

26. gr. Verkaskipting og undirbúningur fundaForsætisnefnd ákveður hvaða nefndir undirbúi tiltekin mál og stuðlar að tilhlýðilegum undirbúningi.

Forsætisnefndin staðfestir árlega fundaáætlun fyrir nefndir ráðsins.

27. gr. Sérstök verkefni Auk þess sem kveðið er á um í 4. gr. ber forsætisnefnd að fjalla um mikilvæg pólitísk og stjórnsýsluleg málefni, þar á meðal fjárhagsáætlanir Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar og öryggis- og utanríkismál.

28. gr. ÁkvarðanirForsætisnefnd er ákvörðunarbær ef minnst helmingur fulltrúa er viðstaddur. Komi aðeins nokkur landanna að ákvörðun í tilteknu

3. kafli Forsætisnefnd

Page 11: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

11

máli‚ samkvæmt ákvæðum Helsingforssamningsins‚ skal a.m.k. helmingur fulltrúa viðkomandi landa vera viðstaddur.

Þegar atkvæði falla jafnt hefur fundarstjóri oddaatkvæði.

Ákvarðanir er heimilt að taka í skriflegri málsmeðferð beri ákvörðunaraðilum saman um það. Skriflegt svar skal liggja fyrir.

29. gr. ÁkvarðanafundargerðirForsætisnefnd, fagnefndir og aðrar nefndir færa ákvarðana-fundargerðir á fundum sínum. Allar ályktanir eru samþykktar á fundinum. Fundargerðir samþykktar af fundarstjóra eru sendar eigi síðar en 14 dögum eftir fund og leiðréttar á næsta fundi.

Fundargerðir eru birtar á heimasíðu Norðurlandaráðs.

30. gr. FundirÁkveði forsætisnefnd ekki annað eru fundir hennar ekki opnir. Fulltrúum frá skrifstofum landsdeilda og flokkahópa er heimilt að sitja fundi mæli sérstakar aðstæður ekki gegn því. Þá er forsætisnefnd heimilt að bjóða öðrum einstaklingum á fundi og veita þeim málfrelsi.

31. gr. VerkaskiptingForsætisnefnd er heimilt að framselja ákvörðunarrétt sinn í einu eða fleiri málum til ýmist annarra nefnda ráðsins, eins eða fleiri fulltrúa í forsætisnefnd eða framkvæmdastjóra ráðsins.

32. gr. Starfshópar og aðrar undirbúningsnefndir Forsætisnefnd er heimilt að fela starfshópum að vinna tiltekin verkefni. Nefndin skipar starfshópinn og veitir honum umboð þar sem tilgreind eru viðfangsefni hans, heimildir og tímaáætlun. Það breytir ekki almennum undirbúningi mála sem kveðið er á um í 19. gr.

33. gr. ÁrsskýrslurForsætisnefnd gefur þinginu árlega skýrslu um öll starfssvið ráðsins.

Page 12: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

12

34. gr. NefndaskipanHverja nefnd skipa 16–18 fulltrúar. Allar nefndir skulu hafa formann og varaformann. Þing kýs nefndarmenn, formenn og varaformenn. Í forföllum formanns og varaformanns velja nefndarmenn fundarstjóra.

35. gr. Réttur til þátttökuFulltrúar ríkisstjórna‚ landsstjórna og Naalakkersuisat geta tekið þátt í umræðum nefnda en ekki ákvörðunum þeirra.

Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er fulltrúa þeirra heimilt að taka þátt í nefndarstarfi. Að höfðu samráði við danska eða finnska nefndarmenn getur slíkur fulltrúi komið að ákvörðunum í stað þeirra.

Norðurlandaráði æskunnar er heimilt að sitja fundi nefndanna. Fulltrúinn getur tekið þátt í umræðum nefndanna en ekki ákvörðunum þeirra.

36. gr. Rýmkuð staða áheyrnarfulltrúaSamaþingin í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð hafa með fulltingi Þingmannaráðs Sama rýmkaða stöðu áheyrnarfulltrúa með rétt til þátttöku á nefndarfundum þegar fjallað er um mál sem varða hagsmuni Sama. Nefndirnar skera úr um hvaða fundi og málefni boðið varðar. Réttur til þátttöku nær ekki til atkvæðisréttar.

37. gr. ÁkvarðanirÁkvæði 28. og 29. gr. eiga hér við að breyttu breytanda.

38. gr. Fundir og opinbert aðgengi að þeimNefndirnar funda samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 26 gr. Nefndarformenn geta ákveðið að efna til aukafundar og skal boða til hans ef fjórðungur aðalmanna fer fram á það.

Fundir fara fram fyrir luktum dyrum ef nefndin hefur ekki ákveðið annað í sérstöku tilviki. Að öðru leyti eiga ákvæði 30. gr. við.

4. kafli Nefndir

Page 13: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

13

39. gr. FundargögnFundarboð ber að senda út með mánaðar fyrirvara. Fundardagskrá og fundargögn berist öllum hlutaðeigandi aðilum eigi síðar en viku fyrir byrjun fundar.

40. gr. SendinefndirSendinefndum er heimilt að kynna sjónarmið sín á nefndarfundum í samræmi við reglur sem forsætisnefnd setur.

41. gr. VerkefniNefndirnar undirbúa mál‚ sem forsætisnefnd felur þeim og fylgjast með þróun mála á sínu sviði.

Allar nefndir skulu setja sér uppfærða starfsáætlun.

42. gr. Samstarf við þingnefndir og alþjóðlegar nefndirNefndirnar skulu leita eftir samstarfi við hliðstæðar nefndir þjóðþinga og hjá alþjóðastofnunum.

43. gr. ViðbótarreglurForsætisnefnd er heimilt að setja starfsreglur fyrir nefndirnar.

Page 14: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

14

44. gr. NefndaskipanÞingið kýs formann, varaformann og fimm almenna fulltrúa í eftirlitsnefnd auk fimm varafulltrúa þeirra. Enginn þeirra má hafa verið fulltrúi eða varamaður í forsætisnefnd á undangengnu almanaksári. Öll lönd skulu eiga fulltrúa í nefndinni.

Ákvæði 23. og 30. gr. eiga hér við að breyttu breytanda. Formenn geta ákveðið að efna til aukafundar og skal boða til hans ef þrír nefndarmenn fara fram á það.

Í forföllum formanns og varaformanns velja nefndarmenn fundarstjóra.

45. gr. ÁkvarðanirEftirlitsnefnd er ákvörðunarbær þegar fjórir nefndarmanna eru viðstaddir. Ákvæði 2. og 3. mgr. 28. gr. og 29. gr. eiga einnig við að breyttu breytanda.

46. gr. Sérstök verkefniEftirlitsnefnd getur lagt ályktun fyrir forsætisnefnd um túlkun Helsingforssamningsins og annarra samninga um norrænt samstarf, starfsreglur þessar og aðrar ákvarðanir um innri málefni.

5. kafli Eftirlitsnefnd

Page 15: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

15

47. gr. TillöguflutningurÖll mál skulu flutt skriflega og innihalda tillögugrein. Sú stofnun eða þeir fulltrúar‚ sem flytja tillögu‚ geta einnig afturkallað hana.

Varamanni‚ sem hefur ekki komið í stað aðalmanns‚ er heimilt að undirrita þingmannatillögu‚ en hann getur ekki sjálfur verið flutningsmaður hennar.

48. gr. Samráð og álitVarði mál fleiri en eina nefnd skulu nefndirnar hafa með sér samráð. Forsætisnefnd, fagnefndir og eftirlitsnefnd geta leitað álits annarra nefnda ráðsins á málum sem eru til meðferðar.

49. gr. NefndarálitNefnd, sem fjallar um ákveðið mál‚ semur nefndarálit með rökstuddri tillögu um ákvörðun þeirrar stofnunar ráðsins sem annast lokaafgreiðslu málsins.

Nefndarfulltrúa er heimilt að bóka fyrirvara við nefndarálit samkvæmt 48. gr. Feli fyrirvari í sér tillögur um ákvörðun skulu þær settar fram í sömu röð og í nefndarálitinu.

50. gr. Tímasetning lokaafgreiðsluÓheimilt er að afgreiða nefndarálit á þingfundi fyrr en daginn eftir að það var lagt fyrir þingið‚ nema tveir þriðju þingheims samþykki slíkt.

51. gr. Tóm til umræðnaÁður en þing tekur ákvörðun um mál ber að gefa þingheimi kost á umræðum.

52. gr. Vísað aftur til nefndarÞingi er heimilt að vísa áliti aftur til nefndar. Komi slík tillaga fram í umræðum skal gera hlé til að gefa fulltrúum kost á að tjá sig og taka ákvörðun um tillöguna. Hljóti hún samþykki er afgreiðsla málsins stöðvuð. Að öðrum kosti halda umræður áfram þar sem

6. kafli Undirbúningur mála fyrir lokaafgreiðslu

Page 16: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

16

frá var horfið. Ný tillaga um hvort vísa beri tillögu aftur til nefndar er tekin fyrir að loknum umræðum.

53. gr. Frestun málsÞingið getur frestað afgreiðslu máls á sama þingi eða til síðara þings. Seinni kosturinn krefst tveggja þriðju atkvæða og að málið verði tekið til nýrrar meðferðar. Að öðru leyti gilda ákvæði 52. gr.

54. gr. Ný tillögugreinÓski fulltrúi eftir að leggja fram aðra tillögugrein á máli en þá sem fram kemur í nefndaráliti skal gera það skriflega og dreifa til fulltrúa ef ekki er augljóst hvað í henni felst. Standi umræður yfir er fulltrúanum heimilt að fá orðið án tafar og leggja fram tillögu sína án rökstuðnings. Fresta ber málinu á þinginu ef þriðjungi viðstaddra fulltrúa ber saman um það.

Page 17: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

17

55. gr. Mælendaskrá Forsætisnefnd er heimilt að setja reglur um röð ræðumanna á mælendaskrá. Liggi slíkar reglur ekki fyrir fá fulltrúar orðið í þeirri röð sem þeir tilkynna sig á mælendaskrá.

56. gr. Réttur til andsvaraFulltrúi‚ sem efni framsöguræðu varðar beint‚ á rétt á tveimur tækifærum til andsvara óháð mælendaskrá. Ef ekki er annað ákveðið samkvæmt reglum 21. gr. getur fundarstjóri einnig gefið öðrum fulltrúa tækifæri á andsvari í hæsta lagi tvisvar sinnum.

Efni andsvars má eingöngu varða upplýsingar, leiðréttingu eða svar og má það ekki vera lengra en tvær mínútur‚ ef annað er ekki ákveðið samkvæmt reglum 21. gr.

57. gr. RæðutímiÞingið getur að tillögu forsætisnefndar eða fundarstjóra takmarkað lengd ræðutíma við umræðu eða við hluta þingfundar. Heimilt er að ákveða slíkt á meðan umræður standa yfir.

58. gr. Lok umræðuAð tillögu fundarstjóra eða fimm fulltrúa geta tveir þriðju þingheims tekið ákvörðun um að ljúka umræðu um ákveðið mál. Óheimilt er að efna til umræðna um slíka tillögu.

59. gr. ÁkvarðanirAð umræðum loknum tekur þingheimur ákvörðun. Öll mál eru útkljáð í atkvæðagreiðslu.

60. gr. Innri ákvarðanirInnri ákvarðanir eru skráðar í ársskýrslu Norðurlandaráðs samkvæmt 33 gr.

61. gr. AtkvæðagreiðslaAtkvæðagreiðsla er opinber og fer fram með nafnakalli eða rafeindabúnaði. Hægt er að greiða atkvæði með eða á móti ellegar sitja hjá. Falli atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

7. kafli Umræður og ákvarðanir á þingi

Page 18: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

18

Atkvæðagreiðsla hefst á því að greidd eru atkvæði um breytinga-tillögur sem eru ósamræmanlegar aðaltillögunni þar til aðeins ein þeirra stendur eftir. Að lokum stendur valið um hana eða aðaltillöguna.

62. gr. FyrirspurnirFulltrúar geta lagt fram fyrirspurnir til ríkisstjórna, landsstjórna‚ Naalakkersuisut eða ráðherranefndarinnar. Munnleg fyrirspurn skal lögð fram og henni svarað í sérstökum fyrirspurnatíma‚ sem fram fer að tillögu forsætisnefndar‚ samkvæmt ákvæðum 17. gr. Skriflegri fyrirspurn ber að svara eigi síðar en sex vikum eftir að hún berst viðtakanda.

Page 19: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

19

63. gr. KjörnefndKjörnefnd skipa sjö fulltrúar. Þingið kýs nefndarmenn. Kjörnefnd velur sér formann og varaformann úr eigin röðum.

64. gr. ÁkvarðanirKjörnefnd er ákvörðunarbær þegar fjórir nefndarmanna eru viðstaddir. Ákvæði 2. og 3. mgr. 28. gr. og 29. gr. eiga einnig við að breyttu breytanda.

65. gr. ÚtnefningarFlokkahópar og fulltrúar sem standa utan flokkahópa fá frest‚ sem kjörnefnd ákveður‚ til að útnefna frambjóðendur til kosninga sem fram fara á þingfundi. Landsdeildirnar tilnefna þó frambjóðendur til forseta og varaforseta sem og fulltrúa í eftirlitsnefnd Norræna fjárfestingarbankans og stjórn Norræna menningarsjóðsins.

Við útnefningar ber að gæta jafnvægis milli landa og kynja, ennfremur nefndarsetu á þjóðþingum ef unnt er.

66. gr. KjörtímabilKjörtímabil er næsta almanaksár ef ekki er kveðið á um annað.

67. gr. Tillögur kjörnefndarKjörnefnd leggur fram tillögur að nöfnum og einnig fjölda fulltrúa ef þörf krefur. Í því sambandi ber að virða 2. mgr. 65. gr.

Þingfundurinn getur fellt tillögu nefndarinnar en ekki gert breytingar á henni. Verði tillagan felld fer fram leynileg kosning eins og kveðið er á um í 68. eða 69. gr.

68. gr. Kjör einstaklingsNú skal aðeins kjósa einn einstakling og fer þá fram leynileg kosning ef fulltrúi óskar þess.

8. kafli Kosningar

Page 20: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

20

69. gr. HlutfallskosningNú skal kjósa tvo einstaklinga eða fleiri og fer þá fram leynileg hlutfallskosning ef þess er óskað af fjölda fulltrúa sem samsvarar fjölda viðstaddra fulltrúa‚ deilt með fjölda þeirra sem kosnir eru‚ að viðbættum einum.

70. gr. FramboðslistarVið hlutfallskosningu ber að gera nauðsynlegt hlé á þingstörfum svo hægt verði að setja saman framboðslista. Nöfn á framboðslista skulu aldrei vera fleiri en fjöldi þeirra sem kjósa skal og skulu nöfn frambjóðenda standa í þeirri röð sem óskað er eftir að þeir verði kjörnir. Framboðslista undirriti ekki færri en tveir fulltrúar og skulu þeir afhentir skrifstofunni áður en sá frestur sem fundarstjóri ákveður rennur út. Listarnir eru tölusettir í þeirri röð sem þeir berast. Við atkvæðagreiðslu rita kjósendur tölu framboðslistans á kjörseðilinn.

71. gr. KosningaaðferðÚrslit hlutfallskosningar ráðast af deilireglu sem kennd er við d’Hondt. Í hverri umferð atkvæðagreiðslu nær kjöri einstaklingur af þeim lista sem hlýtur hæsta tölu. Viðmiðunartala lista er sú sama og fjöldi atkvæða svo fremi sem enginn á listanum hefur enn verið kjörinn. Þegar einn nær kjöri er þeirri tölu deilt með tveimur, þegar tveir hafa náð kjöri er henni deilt með þremur og þar fram eftir götunum. Falli atkvæði jöfn eða viðmiðunartölur eru jafnar ræður hlutkesti. Frambjóðendur ná kjöri í þeirri röð sem þeim er stillt upp á framboðslista.

72. gr. AukakosningEf þörf er á aukakosningu á milli tveggja þinga efnir forsætisnefnd til hennar þegar borist hafa útnefningar samkvæmt 65. gr. fyrir þann skilafrest sem forsætisnefnd ákveður og að fenginni tillögu kjörnefndar.

73. gr. StaðgenglarÍ forföllum fulltrúa á vettvangi annarrar stofnunar ráðsins en þingi eða eftirlitsnefnd velja flokkahóparnir staðgengil fulltrúa úr hópi

Page 21: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

21

fulltrúa eða staðgengla í ráðinu. Flokkar sem standa utan flokkahópa tilnefna þó staðgengla fulltrúa sinna. Fulltrúar Álandseyja‚ Færeyja og Grænlands tilnefna varamann í forföllum aðalmanna. Um staðgengla gilda allar sömu reglur og um fulltrúa í öllum nefndum ráðsins.

Page 22: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

22

74. gr. TungumálTungumál norrænu ríkjanna eru talin jafngild á fundum Norður-landaráðs. Vinnutungumálin eru danska, norska og sænska. Túlkað er á og úr finnsku og íslensku eftir þörfum. Þýða ber mikilvæg skjöl á tungumál norrænu ríkjanna.

75. gr. Hlutverk í nefndum ráðsins Fulltrúa er skylt, ef sérstakar ástæður mæla ekki gegn því, að eiga sæti í forsætisnefnd, fagnefnd eða eftirlitsnefnd.

76. gr. VanhæfiEngum er heimilt að taka þátt í meðferð mála sem beinlínis snerta hann eða hana eða nána venslamenn.

77. gr. ReglurÁ fundum er engum heimilt að tala ótilhlýðilega um aðra, nota móðgandi orðbragð eða á annan hátt tjá sig með orðum og gerðum sem stríða gegn góðri reglu. Trufli áheyrendur fund með framkomu sinni er heimilt að vísa þeim á dyr. Myndist ókyrrð er fundarstjóra heimilt að vísa öllum áheyrendum á dyr.

78. gr. Skrifstofa ráðsinsSkrifstofa ráðsins sér um framkvæmd funda í samstarfi við skrifstofu landsdeildar í því landi sem fundir fara fram.

Forsætisnefnd ræður starfsfólk og setur starfsreglur fyrir skrifstofu ráðsins. Skrifstofan undirbýr mál sem eru til meðferðar á vettvangi stofnana ráðsins og skal það gert í samstarfi við skrifstofur landsdeilda og flokkahópa.

79. gr. LandsdeildirLandsdeildirnar velja sér formann og varaformann úr eigin röðum.

Hverri landsdeild ber að fylgjast með því að ákvörðunum verði fylgt eftir í heimalandi hennar.

9. kafli Önnur ákvæði

Page 23: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

23

80. gr. Skráning flokkahópaForsætisnefnd setur reglur um skráningu flokkahópa og fulltrúa þeirra.

81. gr. Fjárveitingar til flokkahópaFlokkahópar fá fjárveitingu til starfsemi sinnar frá ráðinu að því tilskildu að þeir hafi skilað skýrslu til skrifstofunnar sem sýnir að þeir hafi uppfyllt ákvæði 9. gr. á undangengnu ári. Verði breytingar á flokkahópi‚ sem gera það að verkum að ákvæðunum er ekki full-nægt‚ fær hann á næsta ári aðeins fjárveitingu‚ sem samsvarar fjölda þeirra fulltrúa sem eftir sitja.

Fjárveitingar miðast við sömu grunnupphæð fyrir alla hópana og ákveðna jafnaðargreiðslu á hvern fulltrúa. Forsætisnefnd ákveður upphæðina við gerð fjárhagsáætlunar fyrir tiltekið ár.

Forsætisnefndin staðfestir sérreglur um fjárveitingar til flokkahópa.

82. gr. Fjárveiting til fulltrúa Fulltrúi sem stendur utan við flokkahópa fær sams konar jafnaðargreiðslu að því tilskildu að enginn flokkahópanna fái jafnaðargreiðslu fyrir sama fulltrúa samkvæmt 81. gr.

83. gr. ReikningsskilHafi flokkahópar og fulltrúar sem standa utan við flokkahópa fengið fjárveitingu samkvæmt 81. eða 82. gr. ber þeim, ekki síðar en 15. maí, að skila ársreikningum fyrir undangengið ár. Forsætisnefnd fer yfir reikningana á fyrsta fundi sínum eftir 15. maí og er henni þá heimilt að setja nánari reglur um reikningsskil.

84. gr. Frávik frá starfsreglumÞingið getur í sérstökum tilvikum vikið frá starfsreglum að tillögu forsætisnefndar og með tveimur þriðju atkvæða.

Starfsreglur þessar taka gildi 1. janúar 2017.

Page 24: Starfsreglur Norðurlandaráðs - DiVA portalnorden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1068400/FULLTEXT01.pdf · Eigi Álandseyjar, Færeyjar eða Grænland ekki fulltrúa í nefnd er

24

NorðurlandaráðVed Stranden 18DK-1061 København Kwww.norden.org

ANP 2016:785ISBN 978-92-893-4781-5 (PRINT)ISBN 978-92-893-4782-2 (PDF)

Norðurlandaráð var stofnað 1952 sem samstarfsvettvangur þjóðþinga og ríkisstjórna Danmerkur‚ Íslands‚ Noregs og Svíþjóðar. Finnland gerðist aðili að samstarfinu 1955. Þegar Norræna ráðherranefndin var stofnuð 1971 var ráðinubreytt í samstarfsvettvang þjóðþinganna.

Norðurlandaráð skipa 87 þingmenn sem þjóðþingin tilnefna. Landsdeildir Álandseyja‚ Færeyja og Grænlands eru hlutar af landsdeildum Finnlands og Danmerkur. Norðurlandaráð tekur frumkvæði‚ veitir umsögn og hefur eftirlit með framgangi verkefna í norrænu samstarfi. Stofnanir Norðurlandaráðs eru þingið, forsætisnefnd og nefndirnar.