tengja eintök eintakaþáttur

20
Tengja eintök Eintakaþáttur Október 2004 Harpa Rós Jónsdóttir Kerfisbókasafnsfræðingur

Upload: lita

Post on 19-Jan-2016

47 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Tengja eintök Eintakaþáttur. Október 2004 Harpa Rós Jónsdóttir Kerfisbókasafnsfræðingur. Yfirlit kynningar. Eintök og eintakaþáttur Tækjastika eintakaþáttar Að velja rétta færslu Að finna færslu í eintakaþætti Að velja færslu Leiðsögugluggi og eintakalisti Að tengja færslu - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Tengja eintök Eintakaþáttur

Tengja eintökEintakaþáttur

Október 2004Harpa Rós Jónsdóttir

Kerfisbókasafnsfræðingur

Page 2: Tengja eintök Eintakaþáttur

Yfirlit kynningar

• Eintök og eintakaþáttur

• Tækjastika eintakaþáttar

• Að velja rétta færslu

• Að finna færslu í eintakaþætti

• Að velja færslu

• Leiðsögugluggi og eintakalisti

• Að tengja færslu

• Eintaksglugginn

• Vista eintaksupplýsingarnar

• Að breyta eintaki

• Að eyða eintaki

• Að vista sjálfgildi

• Hjálp

Page 3: Tengja eintök Eintakaþáttur

Eintök og eintakaþáttur

• Tenging eintaka fer fram í Eintakaþætti (Items)

• Þegar eintak er tengt bókfræðifærslu er verið að segja til um að safn eigi eintak af tilteknu verki

• Hverju eintaki í kerfinu er úthlutað einkvæmu eintaksnúmeri (=strikamerki)

• Eintök eru m.a. forsenda fyrir útlánum í kerfinu

Start > Programs > Aleph 500 > Items

Page 4: Tengja eintök Eintakaþáttur

Tækjastika eintakaþáttar

Leit eftir eintaksnúmeri, háð stjórnunareiningu (Ctrl+B)

Finna færslu með orðaleit (Ctrl+F)

Finna færslu með flettileit (Ctrl+S)

Hætta í eintakaþætti

Page 5: Tengja eintök Eintakaþáttur

Að velja rétta færslu

• Þegar tengja á eintak skiptir öllu máli að rétt bókfræðifærsla sé valin

• Eintak sem hefur verið tengt við ranga bókfræðifærslu jafngildir því að vera týnt auk þess að gefa rangar upplýsingar um safnkost tiltekins safns

• Nákvæmni við leit og val á bókfræðifærslu til að tengja við er því mikilvæg

Page 6: Tengja eintök Eintakaþáttur

Að finna færslu í eintakaþætti

• Leita að færslu eftir ISBN / ISSN:Notið Flettileit (Skúffan), leitarsvið ISBN eða ISSN

• Leita að færslu eftir titli:Notið Leit (Kíkirinn), leitarsvið TitleHægt er að slá inn orð úr titli, t.d. undað hné og bókin “Heygðu mitt hjarta við undað hné” finnst

• Leita að færslu eftir höfundi:Notið Flettileit, leitarsvið AuthorFyrir erlenda höfunda skal slá inn eftirnafn fyrst, t.d. Blixen Karen. Fyrir íslenska höfunda með millinafn skal flytja það aftast, t.d. Einar Guðmundsson Már

Page 7: Tengja eintök Eintakaþáttur

Að velja færslu• Ef fleiri en ein færsla samræmast leitarniðurstöðum (t.d. verk sem til er í

fleiri en einni útgáfu) birtist list með stuttum færslum.

• Uppljómið tiltekna færslu og notið hnappinn Birta fulla til að fá nánari upplýsingar um verkið. Þegar rétta færslan er fundin skal smella á hnappinn Velja

Page 8: Tengja eintök Eintakaþáttur

Leiðsögugluggi og eintakslisti

• Ef aðeins ein færsla samræmist innslegnum upplýsingum birtist eintakslistinn ásamt leiðsöguglugganum um leið og leit hefur verið gerð

Í leiðsöguglugganum má skoða bókfræðifærslu verksins.

Eintakalistinn birtir lista yfir þau eintök sem til eru í stjórnunareiningu / safni.

Page 9: Tengja eintök Eintakaþáttur

Að tengja færslu

• Vinstra megin á eintakalistanum eru hnapparnir:

Bæta við – búa til nýtt eintak

Afrita – búa til nýtt eintak með því að afrita annað sem fyrir er. Aðeins þarf að setja inn nýtt eintaksnúmer

• Ef hnapparnir Bæta við eða Afrita eru valdir birtist eintaksglugginn

Page 10: Tengja eintök Eintakaþáttur

Eintakslugginn1. Almennar upplýsingar

Page 11: Tengja eintök Eintakaþáttur

Eintakslugginn1. Almennar upplýsingar

Fylla þarf út eftirfarandi:

• Strikamerki, hvert tengt eintak hefur strikamerki (=eintaksnúmeri)

• Safn, það safn sem eintak tilheyrir

• Tegund staðsetningar, hvaða flokkunarkerfi er notað

• Staðsetning, raðtákn. T.d Row Har B

• Efnistegund, formgreina hið fýsíska eintak

• Eintakastaða, segir til um hvort lána má eintakið og þá hversu lengi

Page 12: Tengja eintök Eintakaþáttur

Eintakslugginn1. Almennar upplýsingar

Einnig má nota möguleikana:

• Safndeildir, hægt er að skipta söfnun upp í safndeildir til þess að gefa til kynna staðsetningu rits til viðbótar við raðtákn. Hentar vel ef notaðar eru geymslur eða söfn á fleiri en einni hæð. Vinsamlega sendið beiðnir um safndeildir á [email protected]

• Lýsing, stuttar og hnitmiðaðar upplýsingar sem birtast í eintakalista á vefnum. Einkum notað fyrir tímarit

Page 13: Tengja eintök Eintakaþáttur

Eintakslugginn2. Almennar upplýsingar

Page 14: Tengja eintök Eintakaþáttur

Eintakslugginn2. Almennar upplýsingar

Athugið einnig:

• Leit – nánari upplýsingar, birtist í nánari upplýsingum um eintak á gegnir.is

• Útlán, nánari upplýsingar, birtist í sérstökum glugga sem popar upp í hvert sinn sem lána á eða skila eintaki í útlánaþætti

• Innri athugasemd, þessar upplýsingar birtast aðeins í þessum glugga og hvergi annars staðar

Page 15: Tengja eintök Eintakaþáttur

Vista upplýsingarnar

• Þegar búið er að fylla út viðeigandi upplýsingar í eintaksglugganum er hnappurinn Staðfesta valin til að vista upplýsingarnar

• Að því lokun ætti að bætast við lína í eintakalistanum, það er fyrir nýja eintakið sem nú er orðið til

Page 16: Tengja eintök Eintakaþáttur

Að breyta eintaki

• Ef breyta á eintaksupplýsingum er það gert í eintakaþætti á sama hátt og eintak er tengt, nema að í stað þess að velja Bæta við eða Afrita í eintakalistanum er hnappurinn Breyta valinn. Opnast þá eintaksglugginn og hægt er að gera þær breytingar sem þörf er og að lokum velja Breyta til að vista upplýsingarnar

• Ef breyta á upplýsingum fyrir mörg eintök í einu þannig að þau fái sama gildi fyrir tiltekið atriði skal opna Útlánaþátt og velja fellivalmynd Eintök > Breyta eintaksupplýsingum (sjá nánar skjal á Þjónsutuvef landskerfi.is)

Page 17: Tengja eintök Eintakaþáttur

Að eyða eintaki

• Ef afskifa á eintak er hnappurinn Eyða í eintakalistanum valinn

• Þegar eintaki er eitt er aðeins verið að segja að tiltekið safn eigi ekki lengur eintak af tilteknu verki en bókfræðifærslan stendur eftir sem áður

Page 18: Tengja eintök Eintakaþáttur

Að vista sjálfgildi

• Hægt er að auðvelda lífið með því að vista sjálfgildi í eintaksglugga, en það eru þá upplýsingar sem koma sjálfkrafa upp í hvert sinn fyrir tiltekið safn, þegar tengja á eintak með hnappnum Bæta við í eintakalista

• Fyllið út þær upplýsingar sem þið teljið að séu oftast eins (t.d. tegund staðsetningar og efnistegund) og smellið á hnappinn Vista sjálfgildi. Næst þegar Bæta við hnappurinn er valin koma þessar upplýsingar sjálfkrafa upp

Page 19: Tengja eintök Eintakaþáttur

Hjálp

• Hjálp úr fellivalmynd

• Hjálp úr einstaka aðgerðagluggum

• Þjónustuvefur á landskerfi.is hafið samband á [email protected] til að fá aðgangsorð

Page 20: Tengja eintök Eintakaþáttur

Orðalisti

• Eintak: Item

• Eintakalisti: Item list

• Eintaksstaða: Item status

• Ferilstaða: Item process status

• Forðaupplýsingar: Holdings

• Leiðsögugluggi: Navigation window

• Safn: Sub-library

• Safndeild: Collection