think - innx.is¦klingur-1.pdf · 3 5 hreyfanleiki á nútímalegum vinnustað við höfum aldrei...
TRANSCRIPT
D1223
Farðu á steelcase.com
facebook.com/Steelcase twitter.com/Steelcase youtube.com/SteelcaseTV
Hugmynd og hönnun / Steelcase 15-E0000087 07/16 © 2016 Steelcase Inc. Allur réttur áskilinn. Allar tæknilýsingar geta breyst án fyrirvara.Prentað á minnst 60% endurunninn pappír. Vottorð nr. BV-COC-858659. Prentað í Frakklandi af OTT Imprimeurs – Wasselonne.
ThinkStólar
3 5
Hreyfanleiki á nútímalegum vinnustað
Við höfum aldrei verið hreyfanlegri. Þetta er engin tískubóla.
Hreyfanleikinn felst ekki aðeins í því hvernig við vinnum heldur líka í því hvernig við sitjum. Vinnustaðir samtímans kalla á stól sem skilur og sér fyrir hreyfingar líkamans og breytingar á líkamsstöðu. Stól sem nýtir setutímann okkar sem allra best.
Think er hannaður til að uppfylla allar kröfur samtímans um hreyfanleika. Háþróuð tæknihönnunin veitir fullan stuðning við vinnu hvers starfsmanns, hvar sem er.
8 MÍNÚTUR
C9541 | THINK STÓLL (PM, ÞRÍVÍDDARPRJÓN 01, AT04), B-FREE SKRIFBORÐ (WY), B-FREE SKILRÚM (PRJÓN 73)
Nú á dögum eru allir starfsmenn hreyfanlegir í einhverjum mæli.Meðalstarfsmaður eyðir 8 mínútum hvert skipti sem hann færir sig til við að koma sér fyrir og endurheimta einbeitingu.
Rannsókn framkvæmd frá 2009 til 2011 af Details og IDEO.
5D1016 | THINK TEIKNIBORÐSSTÓLL (SL, AT02), MEDIA:SCAPE BORÐ
Stóll fyrir allt og alla
Think gerir notendum kleift að beita líkamanum á ótal mismunandi vegu með mismunandi sætishæð og hæð kolls. Stóllinn styður fyrirhafnarlaust hvers konar vinnu, allt frá hópastarfi til hnitmiðaðrar einstaklingsvinnu.
Think lagar sig auðveldlega að hvaða vinnustað sem er og notendur hafa fullt frelsi til að velja og stjórna því hvernig og hvar þeir vinna.
6
C9606 | THINK-STÓLL (SL, ÞRÍVÍDDARPRJÓN 01, AT04), OLOGY-SKRIFBORÐ (ZN, AT), PARTITO-SKILRÚM (AT01)
D0987 | THINK-STÓLL (PM, ÞRÍVÍDDARPRJÓN 14, AT15)
BÓLSTRUN SEM LAGAR SIG AÐ LÍKAMANUM
Think er nægilega snjall til að henta bæði fyrir hópvinnu með litlum fyrirvara og þaulskipulagða heilsdagsvinnulotu. Hann bregst ósjálfrátt við hreyfingum notandans og auðveldar honum að byrja fyrr að vinna af krafti.
Snjall
Sætisbríkin er hönnuð til að laga sig sjálfkrafa að hreyfingum og létta álagi af kálfunum.
Sérhönnuð bólstrun í stólsetu tryggir að sætið fellur vel að líkamanum og veitir sveigjanlegan stuðning sem lagar sig sífellt að líkamanum eftir því sem hann hreyfist.
HÁÞRÓAÐUR BÚNAÐUR SEM VIRKJAST VIÐ ÞYNGDARÁLAG
Think er einnig með búnað sem virkjast við þyngdarálag (Advanced Weight-Activated Mechanism) og samstillir halla stólsins og hreyfist jafn hindrunarlaust og mannslíkaminn. Stóllinn veitir hallaviðnám í eðlilegu hlutfalli við líkamsþyngd notandans, sem getur beint allri athyglinni að vinnunni.
SVEIGJANLEG SÆTISBRÍK
98
C9358
D1224
C9356
Think lagar sig auðveldlega að þörfum notandans til að hámarka þægindin, en lágmarka fyrirhöfn.
EinfaldurNotar innbyggðan fjaðurkraft til að fylgja og styðja við eðlilegar hreyfingar hryggsúlunnar.
TVÖFALDUR MJÓHRYGGSSTUÐNINGUR
LiveBack-kerfið frá Think samanstendur af traustbyggðri, sveigjanlegri bakgrind, samþættum belg og hæðarstillanlegum mjóhryggsstuðningi með sveigjuörmum sem bregðast við náttúrulegum hreyfingum notandans.
SAMÞÆTT LIVEBACK-KERFI
1110
D1017
1312
C9336
C9349
D0983
D0986
D3553
C9366 D2810
Think hefur lengi verið táknmynd sjálfbærrar hönnunar og sett ný viðmið fyrir aðra á sama sviði.Think var fyrsta varan í heiminum sem hlaut Cradle to-Cradle-vottun, auk vottunar frá Indoor Air Quality Gold og NF Environnement.
Þessi nýja útfærsla af Think setur ný viðmið um sjálfbærni í hönnun, með því að auka enn notkun endurunnins efnis, einkum fyrir plastfæturna og bakstoðargrindina, sem er úr PA6-glertrefjum.
Þetta nýtilkomna endurunna efni minnkar útblástur kolefna umtalsvert. Í Bandaríkjunum einum saman jafngildir minnkun útblásturs 4,9 milljón eknum kílómetrum*.
*miðað við vöru framleidda í Bandaríkjunum og sölumagn yfir eitt ár í Bandaríkjunum. Frekari upplýsingar um kolefnisspor er að finna á: http://www.basecarbone.fr
Sjálfbær
1312
C9336
C9349
D0983
D0986
D3553
C9366 D2810
Think státar af fágaðri fegurð þar sem saman koma glæsileiki og gæði. Margs konar tilbrigði af yfirborðsefnum og fjöldi valkosta fyrir útfærslur gera notendum auðvelt að samþætta Think við hvaða aðstæður og búnað sem vera skal.
Fágaður
Höfuðpúði, valbúnaður
Herðatré, valbúnaður
1716
D0985
D0984
STILLANLEGIR ARMARArmar með stillanlegri hæð, breidd, snúningsás og dýpt eru festir á búnaðinn til að hægt sé að halda handleggjastöðu notandans beinni, jafnvel þegar hann hallar sér aftur. Það auðveldar notandanum að laga sig að mismunandi vinnustellingum.
SAMÞÆTT LIVEBACK-KERFISveigjubúnaður í baki er tengdur saman til að samræma og fínstilla hreyfingarnar. Stólarnir skynja hreyfingar í bakinu og laga sig sjálfir að þeim til að tryggja hámarksstuðning og fylgja náttúrulegri lögun hryggsúlunnar.
TVÖFALDUR MJÓHRYGGSSTUÐNINGURTvöfaldur mjóhryggsstuðningur (Dual Energy Lumbar) notar innbyggðan fjaðurkraft til að veita gagnvirkan mjóhryggsstuðning þegar skipt er um líkamsstöðu.
Aðalsmerki Think eru látlausar línur og snjallbúnaður sem miðar að því einu að auka þægindin.
Þægindi og afköst
SÆTISDÝPTStillanleg sætisdýpt sem er stillt ýmist fram á við eða aftur á bak gerir notendum af öllum stærðum og gerðum kleift að njóta þæginda í lengri tíma.
HANDHÆG SNÚNINGSSKÍFANotandinn getur valið eina þessara fjögurra þægindastillinga:• Upprétt baklæsing
• Halli með miðjustoppi
• Hallanlegur að fullu, með þyngdarstýrðri spennu + 20% aukaafl
• Hallanlegur að fullu, með þyngdarstýrðri spennu
BÓLSTRUN SEM LAGAR SIG AÐ LÍKAMANUMSérhönnuð bólstrun í stólsetu tryggir að sætið fellur vel að líkamanum og veitir sveigjanlegan stuðning sem lagar sig sífellt að líkamanum eftir því sem hann hreyfist.
SVEIGJANLEG SÆTISBRÍKSveigjanleg sætisbrík er hönnuð til að laga sig sjálfkrafa að hreyfingum og létta álagi af kálfunum.
1918
YFIRLIT LÍNUNNAR
Þrívíddarprjónaefni á baki með bólstraðri stólsetu (stóll)
SKRIFBORÐSSTÓLL TEIKNIBORÐSSTÓLL
Bólstrað bak og sæti (stóll)
Þrívíddarprjónaefni á baki með bólstraðri stólsetu (stóll)
Bólstrað bak og sæti (stóll)
MÁL (mm)
Skrifborðsstóll með/án arma
Teikniborðsstóll með/án arma
Heildarlengd 970 1130
Heildarbreidd 520/730 520/730
Heildardýpt 580 580
Þvermál undirstöðu 660 660
ÍHLUTIR
ArmalausFastir armarArmar með stillanlegri hæðArmar með stillanlegri hæð, dýpt, breidd og snúningsás
HöfuðpúðiHerðatréFægðir álfæturLakkaðir álfæturRennur
Sætisarmar Viðbótarvalkostir
YFIRBORÐSEFNI
Frágangsefni hér á eftir eru þau sem sýnd eru í bæklingnum:
Svartur
Mávahvítur
Platínugrár málmlitur
Frágangsefni á grind
01 svartur
02 kókoshvítur
10 ljósbrúnn
12 eplagrænn
13 appelsínugulur
14 skarlatsrauður
15 heiðblár
17 nikkelgrár
Þrívíddarprjónaefni
Litir eru birtir til hliðsjónar og kunna að vera örlítið frábrugðnir raunverulegum áklæðislitum.
Fleiri litir og efni eru í boði. Frekari upplýsingar fást hjá söluaðila.
SJÁLFBÆRNI
VISTFERILLÍ vöruþróunarferli okkar tökum við til ítarlegrar athugunar hvern einasta áfanga vistferilsins: frá öflun efna yfir í framleiðslu, flutninga, notkun og endurnotkun, þangað til endingartíma vörunnar lýkur.
HÖNNUN Í SÁTT VIÐ UMHVERFIÐ KREFST FRAMSÆKINNAR HUGSUNAR OG SNJALLRA LAUSNA.
VOTTANIR
Til að sýna fram á síaukinn árangur í umhverfismálum setjum við að eigin frumkvæði umhverfismerki og yfirlýsingar á Think-stóla okkar með upplýsingum um vistvænleika þeirra.Aðgerðir til að auka sjálfbærni og árangur þeirra aðgerða eru tíunduð í árlegri skýrslu Steelcase Corporate um ábyrga starfshætti.
EFNI
Þessi nýja útfærsla af Think setur ný viðmið um sjálfbærni í hönnun, með því að auka enn notkun endurunnins efnis, einkum fyrir plastfæturna og bakstoðargrindina, sem er úr PA6-glertrefjum.
Þetta nýtilkomna endurunna efni minnkar útblástur kolefna umtalsvert. Í Bandaríkjunum einum saman jafngildir minnkun útblásturs 4,9 milljón eknum kílómetrum.
FRAMLEIÐSLA
Framleitt af Steelcase í Sarrebourg
Notast er við dufthúðun sem er: án lífrænna rokefna (VOC) og þungmálma.
FLUTNINGUR
Framleitt í Evrópu, nálægt kaupendum vörunnar.
Sérhannaðar umbúðir í fjórum hlutum draga úr umfangi pakkninganna eins og hægt er og bæta fyllingarhlutfall.
Þessi nýja útfærsla Think tekur 32% minna pláss við flutninga, þökk sé nýju Ecosmart-umbúðunum.
NOTKUN
Varan er hönnuð til að endast og hægt er að skipta út íhlutum hennar.
Framleiðsluefni uppfylla ýtrustu kröfur um heilbrigði og loftgæði innandyra.
Viðhaldsleiðbeiningar eru fáanlegar ef þess er óskað.
LOK LÍFTÍMA
Fljótlegt og einfalt er að taka vöruna í sundur.
Plasthlutar eru skýrt auðkenndir til að auðvelt sé að flokka þá og endurvinna.
Varan er hönnuð með sjálfbærni í huga við lok líftíma hennar – með endurnýjun, gjöf til góðs málefnis eða endurvinnslu.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Farðu á steelcase.com til að fá frekari upplýsingar um einstaka og umhverfisvæna hönnunarstefnu Steelcase.
VERKSMIÐJUR
ISO 14001 – umhverfisstjórnunarkerfi
OHSAS 18001 – mat á heilbrigði og öryggi starfsmanna
EFNI
OekoTex 100 – örugg textílefni
European Eco-Label – fyrir textílefni
Cradle-to-Cradle – fyrir textílefni
VARA
EPD – umhverfisyfirlýsing vöru
PEP – umhverfislýsing vöru
NF Environnement – í vinnslu
NF Office Excellence Certifié – í vinnslu
Indoor Advantage Gold