uppskriftir fyrir mötuneyti
DESCRIPTION
Gefið út af Innnes 2012TRANSCRIPT
Innnes ehf | Fossaleyni 21 | 112 Reykjavík
Beinn sími sölu- og þjónustuvers: 530 4020 | www.innnes.is
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Eins og þeir vita sem til þekkja þá er flókið að elda fyrir stóran vinnustað svo öllum líki.
Það getur verið erfitt verkefni að þóknast öllum. Ógerningur segja sumir!
Með gerð þessa uppskriftabæklings langaði okkur hjá Innnes að leggja okkar lóð á
vogarskálarnar og bæta í hugmyndabanka þeirra sem stýra mötuneytum á vinnustöðum,
opinberum stofnunum og í raun hvar sem heitir réttir eru matreiddir.
Jafnframt lögðum við af stað í vegferð okkar með það að leiðarljósi að finna réttar
uppskriftir sem henta mötuneytum kostnaðarlega séð. Krafan um kostnaðarvitund
þeirra sem stýra eldhúsum verður stöðugt meiri og er þeim oft þröngur stakkur sniðinn
við reksturinn.
Við lögðum okkur því fram við að reikna vandlega út kostnaðarverð á öllum réttunum.
Útreikningar okkar voru gerðir í janúar 2012 og miðast verðin við heildsöluverð okkar á
þeim tíma. Verðin geta breyst frá einum tíma til annars en gefa samt nokkuð góða mynd
af kostnaðarverði viðkomandi rétta. Eins er erfitt að áætla sama magnskammt fyrir alla.
Sumir þurfa meira og aðrir minna. Hér er stuðst við algengt meðaltal.
Eins settum við inn greinargóðar upplýsingar um þær vörur sem við notum í réttina sem
ættu að auðvelda öllum að panta.
Við vonum að þessar upplýsingar komi ykkur að gagni og að uppskriftirnar verði ykkur til
ánægju og yndisauka. Verið líka óhrædd að prófa t.d. fisk í staðinn fyrir kjöt í sumum
uppskriftunum eða breyta uppskriftunum alfarið í grænmetisrétti.
Oftast má nota uppskriftirnar nokkuð frjálslega.
Megi þessi þessi bæklingur nýtast ykkur vel og vonandi verða ykkur innblástur í amstri
dagsins og hver veit nema að framhald verði á.
Gerum daginn girnilegan
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 10
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Tipiak Israel Cous Cous með rækjum & chilli
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
VÖRUNR: VARA: MAGN:
195053 Tipiak Israel couscous 1 kg
Grænmetissoð 1 ltr
289002 Fishermans choice tígrisrækjur 31/40 1 kg
196313 Henry lamotte sólþurrkaðir tómatar 2 dl
120033 Paradiso Sólþurrkuð paprika 2 dl
300814 Flanders Best rauð paprika 200 gr
300816 Flanders Best laukur – saxaður 200 gr.
293013 Blue dragon hvítlauksmauk 2 tsk
293014 Blue dragon chilímauk 2 msk
110120 Filippo Berio ólífuolía 1 dl
254880 Durkee Turmeric 2 tsk
Salt og pipar
JÓGURT LIME SÓSA:
Jógúrt hreint 7 dl.
Ferskt Kóríander 1 búnt
Limesafi ½ dl.
110100 Filippo Berio ólífuolía ½ dl.
Setjið sjóðandi grænmetissoðið ásamt túrmerik saman við couscous í skál eða bakka og
lokið vel með filmu. Látið standa í að minnsta kosti 10 mín. Steikið tígrisrækjurnar og setjið
til hliðar. Steikið allt grænmetið ásamt hvítlauknum og chilí.
Hellið olíu saman við heitt couscousið, hrærið í og blandið svo öllu steikta grænmetinu
saman við ásamt rækjunum (einnig má raða rækjunum smekklega yfir couscousið áður en
borið er fram). Salt og pipar eftir smekk. Frábært að bera fram með jógúrt lime sósu
(ekki inni í verðútreikningi).
Verð per disk ca. 305 kr.
Fylltar kjúklingabringur með wasabi kartöflumús
Fyrir: 4
VÖRUNR: VARA: MAGN:
309117 Rose poultry kjúklingabringur 4 stk
120027 Paradiso rauð parika með osti 200 gr
300915 Aviko tilbúin frosin kartöflumús 400 gr
293026 Blue dragon wasabi paste 45 gr
259405 Falksalt chilí 20 gr
Berið fram með góðu salati
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Þessar kjúklingabringur geta líka verið frábærar með couscous réttunum okkar.
Prófið t.d Israel couscous réttinn hér að framan en sleppið þá tígrísrækjunum.
Gott að vita
Takið kjúklingabringurnar og þerrið. Skerið vasa í bringurnar og setjið 1 – 2 paprikur inn
í hverja bringu. Lokið vasanum með tannstöngli ef þarf.
Kryddið með svörtum pipar og Falksalt chilíflögum. Brúnið kjúklinginn á pönnu,
báðum megin og bakið síðan 180° C heitum ofni í í ca 25-30 mín.
Kartöflumús: Setjið aviko kartöflumúsina í eldfast form. Hitið í ofni þar til að músin er
heit í gegn. Hrærið wasabi mauki saman við, eftir smekk, ásamt smá olíu eða smjöri.
Berið kjúklingabringurnar fram heilar eða skornar í þunnar sneiðar ásamt kartöflu-
músinni og góðu grænmeti eða fersku salati.
Verð per disk ca. 770 kr.
Kjúklingur Pollueló
Fyrir: 10
VÖRUNR: VARA: MAGN:
309104 Rose poultry kjúklingabringur 1,5 kg
MARINERING:
110120 Filippo Berio ólífuolia 1 dl
110756 Limesafi 1 dl
293014 Blue dragon chilímauk 2 msk
293013 Blue dragon hvítlauksmauk 1 tsk
Í SÓSUNA:
300816 Flanders best laukur saxaður 500 gr
293013 Blue dragon hvítlauksmauk 2 tsk
123100 Ciao saxaðir tómatar 6 dl
120012 Paradiso sólþurrkuð paprika 4 dl
120509 El paradiso kjúklingabaunir 8 dl
259404 Falksalt sítrónu
254680 Durkee svartur pipar
Ferskt basil 1 búnt
Grænn ferskur chilí - fræhreinsaður 2 stk
Kjúklingasoð 2 dl
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Blandið saman ólífuolíu, limesafa, chilímauki og hvítlauksmauki.
Setjið salt og pipar á kjúklinginn, skerið í bita og veltið upp úr marineringunni
og látið marinerast í minnst 2 tíma. Steikið kjúklinginn svo við 225°C
í ca 10 mínútur. Látið standa á meðan sósan er gerð.
Steikið saman allt hráefnið nema paprikuna og kjúklingabaunirnar.
Setjið tómatana og kjúklinginn saman við ásamt soðinu. Látið malla í
ca 20 mín. Bætið við paprikunni og kjúklingabaununum og sjóðið í 10 mín.
til viðbótar. Smakkið til með salti og pipar og bætið basil við í restina.
Berið fram á djúpum diski með nachos og t.d ferskri salsasósu.
Verð per disk ca. 449 kr.
Fyrir: 4
VÖRUNR: VARA: MAGN:
293027 Blue Dragon eggjanúðlur 200 gr
293014 Blue Dragon chilímauk 2 tsk
293013 Blue Dragon hvítlaukur 2 tsk
293015 Blue Dragon pressaður engifer 2 tsk
293086 Blue Dragon baunaspírur 200 gr
293031 Blue Dragon hoisin & garlic stir fry sósa 2 pokar
309104 Rose Poultry kjúklingabringur eldaðar og skornar í bita 400 gr
300815 Flanders Best sveppir í sneiðum 200 gr
Auðvelt Chow Mein
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Svona núðlurétt er líka hægt að nota kaldan og setja í salatbarinn.
Bætið við miklu af fersku grænmeti og t.d. Sweet chilí sósu frá Blue Dragon.
Gott að vita
Eldið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka og kælið. Hitið olíu á wok pönnu
(eða stórri pönnu við mikinn hita), setjið hvítlauk, chilí og engifer á pönnuna og steikið
lítillega. Setjið sveppina og kjúklinginn saman við, steikið og bætið svo sósunni
saman við og látið suðuna kom upp.
Bætið þá baunaspírunum saman við og að endingu núðlunum. Berið fram heitt.
Gott er bæta við ferskum vorlauk og setja hann yfir réttinn þegar hann er borinn fram.
Eins má breyta þessu í grænmetisrétt og nota þá mikið af grænmeti en sleppa kjöti.
Verð per disk ca. 474 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 10
VÖRUNR: VARA: MAGN:
195050 Tipiak heilhveiti couscous 8 dl
Grænmetissoð 8 dl
196313 Henry lamotte sólþurrkaðir tómatar 100 gr
120033 Paradiso sólþurrkuð paprika 200 gr
120030 Paradiso grillaðir sveppir 200 gr
120006 Paradiso Grillaðir ætiþistlar 200 gr
300814 Flanders Best rauð paprika 200 gr
300816 Flanders Best laukur - saxaður 200 gr
293013 Blue Dragon hvítlauksmauk 2 tsk
293014 Blue Dragon chilímauk 2 msk.
110120 Filippo Berio ólífuolía 1 dl
Salt og pipar eftir smekk
Rucola salat eða góð salatblanda
302153 Miðjarðarhafsbrauð
JÓGURT LIME SÓSA:
Jógúrt hreint 7 dl
Ferskt kóríander 1 búnt
Limesafi ½ dl
Jómfrúarólífuolía ½ dl
Tipiak heilhveiti couscous með grilluðu grænmeti
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Setjið sjóðandi grænmetissoðið saman við couscous í skál eða bakka og lokið vel
með filmu. Látið standa í minnst 10 mín. og kælið. Steikið laukinn og paprikuna
ásamt hvítlauknum og chilí í ólífuolíu. Blandið saman við couscous og hrærið í.
Grillaða grænmetinu er síðan blandað saman við (skerið grænmetið niður ef ykkur
finnst þurfa). Smakkið til með salti og pipar og berið fram með góðu salati og brauði.
Verð per disk
ca. 285 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 4
VÖRUNR: VARA: MAGN:
291019 Patak´s Korma Paste 80 gr
120509 El paradiso kjúklingabaunir 410 gr
289025 Fishermans Choice surimi krabbakjöt – saxað smátt 375 gr
254190 Durkee Chives vorlaukur 2 msk
254227 Durkee kóríander 1 msk
293014 Blue Dragon chilímauk 1-2 msk
Egg – slegið 1 stk
Fínskrældur börkur af 2 sítrónum
FYRIR HRÍSGRJÓNIN
195762 Tilda basmati grjón 410 gr
Ferskt kóríander saxað 1 lítið búnt
Grænn chilí fræhreinsaður og niður saxaður 1 stk
Þurrkaðar apríkósur (ef þú vilt frábær öðruvísi grjón) 175 gr
Krabba kökur
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Prófið að blanda þessu mauki saman við fiskfars til helminga
og búið til öðruvísi fiskibollur.
Gott að vita
Setjið kjúklingabaunirnar í matvinnsluvél og maukið vel. Setjið í skál og blandið
saman krabbakjötinu, vorlauknum, kryddmaukinu, sítrónuberkinum,
saxaða kóríandernum, chilíi og egginu. Blandið vel saman. Búið til bollur úr deiginu
og fletjið aðeins út þannig að þær líti út eins og litlir hamborgarar. Steikið á pönnu
eða grilli í 5-10 mínútur eða þar til að hvor hlið er orðin gullinbrún. Berið fram með
hrísgrjónunum og góðu salati.
Verð per disk
ca. 346 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 10
VÖRUNR: VARA. Magn:
309104 Rose Poultry kjúklingabringur skornar í bita 1 kg
300816 Flanders Best laukur 500 gr
300814 Flanders Best paprikustrimlar 200 gr
293013 Blue Dragon hvítlauksmauk 2 tsk
291005 Patak´s madras paste 350 gr
123100 Ciao hakkaðir tómatar í dós 500 gr
293002 Blue dragon kókosmjólk 1 ltr
291060 Patak´s Naan brauð 5 stk
291070 Patak´s Sweet Mangó Chutney 200 gr
“Vindaloo Fire” Kjúklingur
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Þessum rétti er auðvelt að breyta í grænmetisrétt. Skiptið út kjúkling fyrir kjúklinga-
baunir og bætið við rótargrænmeti. T.d. gulrótum, sætum kartöflum eða rófuteningum.
Gott að vita
Steikið kjúklinginn á pönnu ásamt lauknum, hvítlauknum og paprikunni þar til það
er orðið gullin brúnt. Bætið karrímaukinu út í og steikið svolítið lengur eða þar til að
maukið hefur blandast vel saman við. Setjið kókosmjólkina og tómatana saman við
og látið sjóða við vægan hita í ca 20 mínútur. Skreytið með söxuðu fersku kóríander
eða steinselju.
Berið fram með hrísgjónum. Það er frábært að bera fram Patak´s naan brauð með
þessu, Sweet Mangó Chutney og t.d. jógúrtsósu.
Verð per disk ca. 434 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 4
VÖRUNR: VARA: MAGN:
309104 Rose poultry kjúklingabringur 600 gr
153670 La Choy sojasósa 2 msk
110756 Sicilia Lime safi 1 msk
293044 Blue Dragon Satay sósa 300 ml
293027 Blue Dragon eggjanúðlur 200 gr
293033 Blue Dragon Sweet chilí 6 msk
Rucola salat 50 gr
Vorlaukur 1 stk
Grillpinnar (má sleppa) 12 stk
Satay kjúklingur með núðlusalati
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Skerið kjúklingabringurnar í strimla eða notið lundir. Blandið saman sojasósu
og sítrónusafa og leggið kjúklinginn í. Látið standa í minnst 30 mín.
Þræðið kjúklinginn á spjót og pennslið með satay sósunni.
Eldið í ofni við 250°C þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Eldið núðlurnar
samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Skerið vorlaukinn í strimla og steikið á
pönnu ásamt núðlunum og bætið síðan sweet chilí sósunni saman við.
Blandið salatinu saman við núðlurnar og berið fram með spjótinu.
Það má sleppa því að setja kjúklinginn á spjót ef vill og bera hann bara
fram með núðlusalatinu.
Verð per disk ca. 511 kr.
Fyrir: 10
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Tikka masala Kjúklingur
VÖRUNR: VARA: MAGN:
291073 Patak´s Tikka masala sósa 1 ltr
309104 Rose Poultry kjúklingabringur 1,5 kg
123100 Ciao Crust tómatar / dós 500 gr
300816 Flanders Best sneiddur laukur 200 gr
293013 Blue Dragon hvítlauksmauk 10 gr (1-2 tsk)
293015 Blue Dragon pressað engifer 10 gr (1-2 tsk)
254227 Durkee cilantro 1 msk (2-3gr)
169032 Wesson Corn olía 1 dl
195762 Tilda Basmati grjón 1 kg
291060 Patak´s Naan brauð 5 stk
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Fljótgerð raita sósa.
Grískt jógúrt eða sýrður rjómi, agúrkur, mynta og lime safi.
Skerið agúrkurnar í tvennt og fjarlægið kjarnann, rífið niður með grófu rifjárni. Látið leka af
þeim. Blandið svo saman við jógúrt/sýrðan rjóma ásamt saxaðri ferskri myntu og svolitlu af
límesafa. Berist fram ísköld.
Gott að vita
Hitið olíuna á pönnu. Steikið saman laukinn, engifer og hvítlauk, bætið
kjúklingnum út í og steikið í ca. 15 mín. og hrærið stöku sinnum í á meðan.
Setjið ca 100-200 ml af vatni á pönnuna og svo Tikka masala sósuna ásamt
tómötunum. Látið sjóða í ca 15 mín. til viðbótar eða þar til að kjúklingurinn
er fulleldaður. Setjið cilantro yfir og berið fram með basmati grjónum og
naan brauði. Frábært að hafa með raita sósu og Patak´s Mangó chutney.
Verð per disk
ca. 602 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 4-5
VÖRUNR: VARA: MAGN:
111810 Spigadoro penne pasta 500 gr
309117 Rose Poultry kjúklingabringur 4-500 gr
300802 Flanders Best brokkolí 300 gr
293013 Blue dragon hvítlaukur 1 tsk
123100 Ciao chopped tomatoes 1/2 dós
110690 Filippo Berio grænt pestó 1 msk
115053 Grana Padano 60 gr
300815 Wesson Corn olía 1 dl
254680 Durkee svartur pipar
Kjúklingur með brokkolí og tómat í penne pasta
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Sjóðið vatn með salti í fyrir pastað. Alls ekki setja pastað út í fyrr en vatnið fer að
sjóða. Sjóðið pastað og farið eftir leiðbeiningum á pakkningu varðandi suðutímann
til að ofsjóða það ekki.
Hitið pott og steikið kjúklinginn upp úr olíu þar til hann er létt brúnaður.
Setjið hvítlaukinn saman við og því næst tómatana.
Látið sjóða í ca 10-15 mín. og bætið þá brokkolí saman við. Smakkið sósuna til
og bætið í salti og svörtum pipar eftir smekk. Sigtið pastað og hrærið saman við
sósuna. Setjið á fat og stráið yfir grænu pestói og ferskum rifnum parmesanosti.
Berið fram með t.d. hvítlauksbrauði og góðu salati.
Verð per disk ca. 428 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 4
VÖRUNR: VARA: MAGN:
293027 Blue Dragon eggjanúðlur 1 pakki
300814 Flanders best rauð paprika 200 gr
300816 Flanders best laukur í sneiðum 200 gr
300802 Flanders Best brokkolí 200 gr
293111 Blue Dragon red curry paste 400 gr
293002 Blue Dragon kókos mjólk 400 ml
293052 Blue Dragon fiskisósa 50 ml
293008 Blue Dragon sesamolía 40 ml
289002 Fishermans choice tígrisrækjur 360 gr
Thai Stir fry með Rauðu karrýi og tígrisrækjum
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Fiskisósa er saltkenndur brúnleitur vökvi og er mikilvægasta hráefnið í taílenska eldhúsinu.
Fiskisósa er salt Taílendinga líkt og sojasósa er salt Kínverja. Ekki er hægt að nota neitt annað
hráefni í staðinn fyrir fiskisósu. Án hennar væri taílensk matargerð ekki söm. Hún er unnin úr
söltuðum og gerjuðum fiski, yfirleitt ansjósum og er oftast seld í flöskum.
Fiskisósa fæst í flestum matvöruverslunum og hefur gott geymsluþol.
Gott að vita
Sjóðið núðlurnar samkvæmt uppskrift á pakka og kælið. Hitið olíu á pönnu og steikið
grænmetið og rækjurnar við mikinn hita í stuttan tíma. Hrærið í allan tímann.
Bætið smá vatni á pönnuna og setjið svo karrýmaukið út í og hrærið vel saman.
Bætið því næst kókosmjólkinni, fiskisósunni og ögn af sykri saman við og látið malla
við vægan hita í ca 4-5 mín. Blandið núðlunum saman við og berið fram.
Gott er að setja smávegis af kreystum sítrónusafa yfir réttinn rétt áður en hann er
borinn fram.
Verð per disk ca. 510 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 8
VÖRUNR: VARA: MAGN:
169032 Wesson vegetables olía 2 msk
300816 Flanders Best saxaður laukur 100 gr
300817 Flanders Best rauð paprika 180 gr
300814 Flanders Best græn paprika 180 gr
293013 Blue Dragon hvítlauksmauk 50 gr
123100 Ciao tómatar/ dós 300 gr
309104 Rose Poultry kjúklingur / eldaður og rifinn í strimla 400 gr
195830 Princes mais baunir 400 gr
254280 Durkee cumin 10 gr
254680 Durkee svartur pipar mulinn 10 gr
120525 Wanted Nachos flögur 200 gr
Kjúklingasoð 1 ltr
Grænn chilí saxaður og fræhreinsaður 1 stk
Salt ¼ tsk
Tortilla og kjúklingasúpa
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Hitið olíu á djúpri pönnu eða í potti. Setjið laukinn, paprikurnar og
hvítlaukinn út í og steikið lítillega (ca. 5 mín). Bætið kjúklingasoði,
tómötum og chilíi út í. Látið suðuna koma upp og lækkið svo hitann.
Bætið kjúklingi, maís og kryddum saman við og sjóðið í ca 10 mín.
Berið fram á djúpum diski og setjið mulið nachos yfir og gott er að
toppa með sýrðum rjóma.
Verð per disk ca. 210 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 4
VÖRUNR: VARA: MAGN:
310305 Mission hveititortillur 25 cm 10” 4 stk
255650 Durkee steinselja söxuð 2 msk
254405 Durkee Italian seasoning 1 msk
110120 Filippo Berio ólífuolía 2 msk
110670 Filippo Berio balsamik edik 2 msk
293013 Blue dragon hvítlauksmauk 1 tsk
259400 Falk salt Natural ½ tsk
309117 Rose poultry kjúklingabringur 600 gr
Pam spray olía
115053 Grana Padano rifinn 50 gr
Salat blanda
Tómatar ½ bolli
Rauðlaukur 1 stk
Salat, rifið 1 bolli
Paprika skorin í strimla ½ bolli
Kjúklingavefjur með balsamik
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Blandið saman í skál steinselju, kyddum, olíu, ediki, salti og hvítlauk.
Skiptið salatsósunni í tvennt. Setjið helming af henni yfir kjúklinginn
í bakka eða poka og geymið hinn helminginn. Marinerið í minnst 2 tíma.
Takið kjúklinginn úr marineringu og steikið eða grillið á báðum hliðum.
Steikið betur í ofni ef þarf og kælið.
Blandið saman í stóra skál öllu grænmetinu og setjið salatsósuna sem
geymd var saman við.Skerið kjúklinginn í strimla. Hitið tortillurnar og
skiptið grænmetinu, kjúklingastrimlunum og parmesan ostinum niður
á hverja tortillu. Rúllið þétt saman og berið þannig fram.
Verð per disk ca. 423 kr.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Fyrir: 6
VÖRUNR: VARA: MAGN:
139061 Hunts tomato sauce 500 ml
254170 Durkee chilí duft 2 tsk
309128 Rose Poultry eldaður kjúklingur 300 gr
300816 Flanders Best saxaður laukur ½ bolli
310308 Mission tortillur 6” 12 stk
112001 Whitehall rifinn ostur 300 gr
Auðvelt Osta-kjúklinga
Enchiladas
(Verðútreikningur miðast við að keyptar séu vörur hér að ofan)
Sjóðið saman tómatsósuna og 1 bolla af vatni ásamt chilíduftinu.
Steikið saman á pönnu kjúklinginn, laukinn og pínulítið vatn.
Látið malla á pönnunni þar til laukurinn er orðinn meir.
Hitið tortillurnar í ofni annað hvort við smá gufu eða vefjið röku
stykki yfir tortillurnar til að þær þorni ekki og harðni.
Setjið svolítið af osti og kjúklingablöndu á hverja tortillu, vefjið þétt
saman eða leggið saman í hálfmána. Setjið í ofnskúffu eða annað
eldfast mót. Setjið tómat-chilísósuna yfir og svo restina af rifna
ostinum. Bakið við ca 175°C í 30 mín. eða þar til að osturinn
er vel bráðnaður. Berið fram með góðu salati, guacamole og nachos.
Verð per disk ca. 473 kr.
Innnes ehf | Fossaleyni 21 | 112 Reykjavík
Beinn sími sölu- og þjónustuvers: 530 4020 | www.innnes.is