velferðin í öndvegi
DESCRIPTION
Velferðin í öndvegi. Umræðustjóri: Björk Vilhelmsdóttir Aðalritari: Tryggvi Þórhallsson. Fræðslu- og uppeldismál. Börn fái hagnýta menntun og sýni árangur sem stenst alþjóðlegan samanburð Lestrarfærni og lesskilningur barna efldur og áhersla á náið samstarf skólastiga þar um - PowerPoint PPT PresentationTRANSCRIPT
Velferðin í öndvegiUmræðustjóri: Björk Vilhelmsdóttir
Aðalritari: Tryggvi Þórhallsson
Fræðslu- og uppeldismál
• Börn fái hagnýta menntun og sýni árangur sem stenst alþjóðlegan samanburð
• Lestrarfærni og lesskilningur barna efldur og áhersla á náið samstarf skólastiga þar um
• Skólastarf miðað við styrkleika, áhugasvið og færni nemenda með auknu valfrelsi, ábyrgð og sjálfræði þeirra
• Vægi verk-, tækni- og listgreina aukið
• Nýtt námsefni fylgi nýjum námskrám
• Lenging kennaranáms verði nemendum og skólastarfi til hagsbóta með aukinni áherslu á vettvangsnám og hagnýtingu í starfi
• Starfsþróun starfsmanna skóla verði forgangsverkefni
Fræðslu- og uppeldismál
• Menntun barna til 18 ára aldurs verði á hendi sveitarfélaga
• Leikskólinn - sem fyrsta skólastigið - verði lögbundið verkefni sveitarfélaga og möguleiki á leikskóla að loknu fæðingarorlofi, sem verði 12 mánuðir
• Að sveitarfélög hafi svigrúm til fjölbreytni og sveigjanleika við útfærslu skólastarfs
• Skerpa á ábyrgð og skyldum ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við börn sem búa við fötlun, sjúkdóma eða aðrar sérstakar aðstæður
• Hagræðing í opinberum rekstri búi ekki til grá svæði í þjónustu við börn
• Aukin svæðasamvinna sveitarfélaga um sérfræðiþjónustu, ráðgjöf og úrræði
• Skóla- og fræðslunefndir fylgi eftir niðurstöðum ytra mats
Fjárhagsaðstoð og atvinnumál
• Lagavinnan: Félagslegur stuðningur sé skilgreindur út frá þörfum
• Skerpa á að fjárhagsaðstoð sé skilgreind sem neyðaraðstoð
• Sveitarfélög taki yfir alfarið yfir verkefni Vinnumálastofnunar á sviði vinnumiðlunar og úrræða fyrir atvinnuleitendur - tekjustofn verði tryggður
• Sveitarfélögin eru best til þess fallin að koma fólki aftur út á vinnumarkaðinn
• „Grá svæði“ - Skilgreina þarf betur hvaða þjónustu ríki og sveitarfélög eiga að veita
Málefni fatlaðs fólks og aldraðra
• Málefni fatlaðs fólks: Eignarhald á málaflokknum / fræðsla til kjörinna fulltrúa
• Endurmatið taki tillit til nýrra laga og hugmyndafræðilegra breytinga sem átt hafa sér stað
• Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
• Fjármögnun búsetuuppbyggingar og tengdrar þjónustu njóti forgangs
• Efla innra og ytra mat á gæðum þjónustunnar
• Þjónusta við aldraða: Áhersla á að ríkið sé stefnumótunaraðili. Stefnumótun og skýrar línur fyrst af hálfu ríkisins og síðan tekin afstaða til yfirfærslu
Húsnæðismál og velferðartækni
• Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna félagslegra aðstæðna (annarra en lágra tekna) verði áfram á hendi sveitarfélaga
• Sérstaklega skoðað að hlutverk sveitarfélaga verði að veita stofnframlög
• Stuðla að lækkun byggingakostnaðar í gegnum verð á landi og kostnað við úthlutun lóða
• Stuðla að þróun velferðartækni í félagsþjónustu sveitarfélaga, fyrir þá sem þurfa aðstoð í daglegu lífi
Jafnréttis- og mannréttindamál
• Aðgerðir gegn kynbundnum launamun
• Nýtt markmið um að sporna gegn neikvæðum áhrifum staðalmynda, klámvæðingu og vændi og alvarlegum samfélagslegum áhrifum þess
• Lögbundinn stuðningur Fjölmenningarseturs í málefnum innflytjenda áréttaður
• Tekin út hugtök um „Nýja“ íbúa
• Markmið 3.3.28, 3.3.29 og 3.3.30 (innflytjendamál) felld út
Menningarmál
• Sambandið skal vinna að því að jafnræðis sé gætt við útdeilingu ríkisvaldsins á fjármunum til menningarmála
Æskulýðs- og íþróttamál
• Sambandið móti stefnu um sameiginlegar áherslur sveitarfélaganna á sviði æskulýðs-, íþrótta- og menningarmála
• Áskorun til stjórnar um að sambandið geri þá kröfu til sérsambanda að þau kostnaðarmeti tillögur sínar sem leiði til fjárútláta af hálfu sveitarfélaga
• Sveitarfélög fái stuðning ríkis til aðgerða vegna lögfestingar Barnasáttmálans
• Sveitarfélög vinni eftir uppleggi ráðuneyta og Embættis landlæknis í þágu lýðheilsu gegnum heilsueflingu og forvarnastarf