virðing eða vantrú: viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

38
Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir Sagt frá rannsókn á hegðun nemenda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005- 2006

Upload: gaye

Post on 08-Jan-2016

32 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir. Sagt frá rannsókn á hegðun nemenda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005-2006. Rannsóknarskýrsla. Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns „Gullkista við enda regnbogans“ Rannsókn á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með

hegðunarraskanir Sagt frá rannsókn á hegðun nemenda í

grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005-2006

Page 2: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

RannsóknarskýrslaIngvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns

„Gullkista við enda regnbogans“

Rannsókn á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur

skólaárið 2005–2006Skólinn okkar

er gullkistavið enda regnbogans

Við vinnum samanmeð bros á vör

þá blómstrar vináttan

(Úr skólasöng Víkurskóla)

Page 3: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Efni – eftir því sem tíminn leyfir• Um rannsóknina

• Nokkrar meginniðurstöður– Umfang

– Munur eftir skólum ... kynjum ... aldursstigum

• Nokkur einkenni skóla þar sem ekki þurfti að glíma við agavanda

• Um kennsluhætti og hegðun

• Ályktanir og tillögur

Page 4: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Yfirlit um þau gögn sem aflað var

• Megingögn:– Viðtöl við rýnihópa í 35 skólum (alls 40 viðtöl)

skólaárið 2005–2006 (alls 233 viðmælendur)

– Spurningalisti (208 svör)• Önnur gögn

– Viðtöl við starfsfólk tveggja sérkennslustofnana, tveggja þjónustumiðstöðva, starfsmann Fardeildar í Borgarhluta 4 og fulltrúa frá Menntasviði

– Viðbótarupplýsingar frá skólunum, skólareglur, reglur um meðferð agamála, lýsingar á úrræðum, lög, reglugerðir, skýrslur, minnisblöð

Page 5: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Viðmælendur í rýnihópum

Starfshópar viðmælenda Fjöldi viðmælendaSkólastjórar / aðstoðarskólastjórar 35

Deildarstjórar / stigsstjórar 30

Umsjónarkennarar 66

Faggreinakennarar 20

List- og verkgreinakennarar 27

Stuðningsfulltrúar / skólaliðar 17

Sérkennarar / deildarstjórar sérkennslu 22

Þroskaþjálfar / námsráðgjafar / skólasálfræðingar 6

Í öðru starfi 16

239

Page 6: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Spurningar• Hvernig lýsið þið hegðun og framkomu nemenda? • Eru hegðunarvandkvæði í skólanum og hvernig lýsa

þau sér? Hversu þungt brenna þau á ykkur? • Hversu margir nemendur koma við sögu?• Hverjar eru helstu orsakir og áhrifavaldar

hegðunarvanda?• Hvernig er tekið á hegðunarvandkvæðum í skólanum?

Hvaða aðferðum hefur helst verið beitt? Hvernig hafa þessar aðferðir gefist?

• Hvernig gengur samstarf við foreldra? • Hvaðan fá starfsmenn ráðgjöf eða stuðning? • Hvað vantar helst til að starfsfólk skóla nái tökum á

hegðunarmálum? Hugmyndir til úrbóta? 

Page 7: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Fyrirvarar

• Viðtöl – spurningalistar Fáar vettvangsathuganir Hvorki var rætt við nemendur né foreldra

• Skólastjórar völdu viðmælendur

• Annar aðalstjórnenda var viðstaddur flest viðtöl

• Hvenær á barn (hópur) í hegðunarvanda?

• Hegðunarvandi sem vandi starfsmanns?

Page 8: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Á móti má segja ...

• Mjög innihaldsríkar samræður • Aflað var ítarlegra viðbótarupplýsinga af

ýmsu tagi• Farið var í alla (almenna) skóla í Reykjavík

– fjölbreyttar aðstæður – hver skóli er sérstakur!

• Góð / a.m.k. sæmileg heildarmynd• Rannsóknin ætti að skapa forsendur til að

fylgjast með þróun þessara mála• Umræðurgrundvöllur

Page 9: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Einnig þetta

• Hegðunarvandamál eru ákaflega snúin, viðkvæm og vandmeðfarin– Nöfn skóla koma ekki fram nema í

undantekningartilvikum

• Niðurstöður benda til mikillar hreyfingar ... breytileika ... sveiflna ... – Skiptir miklu varðandi ákvarðanir um fyrirkomulag

ráðgjafar- og sérfræðiþjónustu

Page 10: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Nokkrar meginniðurstöður

• Mikill meirihluti nemenda (89%) á yfirleitt góð samskipti við félaga og starfsfólk

• Mikill munur á umfangi mála eftir skólum, kynjum, aldursstigum (?)

• Meirihluti viðmælenda telur að agavandi sé vaxandi!?

• Erfiðustu málin eru að sliga starfsfólk ... úrræðaleysi ... árekstrar við önnur kerfi

Page 11: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Þreyta og bið ...… allar greiningar og annað eða beiðnir um greiningar fara í gegnum nemendaverndarráðið. Og þar er mættur sálfræðingur skólans sem … tekur við greiningunum og svo fer ákveðinn tími í að fjalla um börnin … það pirraði mig svolítið í fyrra … að þetta bar engan árangur. Við vorum alltaf að tala um sömu börnin … og í einhverju ergelsi mínu því ég er fundaritari taldi ég hve oft ákveðin tvö börn hefðu verið nefnd þennan veturinn á nemendverndararáðsfundi. Þá var annað fimmtán sinnum og hitt sautján sinnum … þetta eru vikulegir fundir … og allir að tala um sömu hlutina vegna þess að það gerðist ekkert. Við erum að kalla á hjálp – við öskrum á hjálp. Og það eru einn og tveir og alveg upp í þrír aðilar frá … [þjónustumiðstöðinni] á fundi hjá okkur. Og það gerðist ekki neitt.

Page 12: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Umfang hegðunarvandans

Greindir með röskun (%) Hlutfall (%) Fjöldi í bekk

Hlutfall drengja (%)

Meðaltal 7,5 11,1 2,6 81Lágmark 1 1 0 40Hámark 22 37,5 8 100

Page 13: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Skólunum má skipta í þrjá meginflokka (?)

• Lítil eða engin vandamál (sjö skólar)

• Nokkur vandi, en starfsfólk telur sig almennt hafa tök á málum (21 skóli)

• Mörg erfið mál sem hvíla þungt á starfsfólki (sjö skólar)

Page 14: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Dæmi um ólíkt ástand

Mér finnst ekki nein sérstök hegðunarvandamál. Mér finnst þetta ganga mjög vel. Kannski hávaði í matsalnum – það eina sem er þreytandi ... Samband kennara og nemenda er einstaklega gott ... nemendur flykkjast að manni í frímínútum til að spjalla ...

Fara ekki að fyrirmælum … hleypa upp … taka alla einbeitingu kennarans … þessi áreiti jafnt og þétt… ógna öðrum nemendum … … leiðinlegar athugasemdir … hnoð og pot … svo er það líka skemmdarverk … reyna að eyðileggja … frammíköll ef kennarinn er að tala … almenn ókurteisi … dagleg vandamál … alla daga … í hverri kennslu-stund.

Page 15: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Fyrst fleiri dæmi um vanda

… eilíf truflun, áhugaleysi, viljaleysi … andfélagslegt atferli …

virðingaleysi, hroki, kjaftbrúk …

Það eru nemendur sem eru mjög ókurteisir við kennara og ókurteisir við alla. Þeir æða um hér ... þeir

sparka hikstalaust í þá sem fyrir eru og þá skiptir engu máli hvort það er fullorðinn maður eða ekki. Þannig

að .. fullorðið fólk sem vinnur hérna getur orðið fyrir barsmíðum.

Page 16: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Lítill eða enginn vandi: Jákvæð viðhorf

Page 17: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Jákvæð viðhorf: Lítill eða enginn vandi:

Þetta byggist á viðhorfum ... Fyrir hvern er skólinn? Hann er fyrir nemendurna ... Við eigum að sníða okkur að þeirra þörfum. Það er ekki þannig að ef þau passa ekki „boxin“ að þau eigi að vera annars staðar. Það er bara ekki þannig ... Þeim er strokið réttsælis og sagt að þau séu frábær. Ekki endalaust verið að pikka í þau fyrir það sem þau geta ekki ... Það geta allir blómstrað einhvers staðar ... Hér er ríkjandi það viðhorf að velferð barnsins sé til grundvallar. Það er það viðhorf sem gerir þennan skóla að því sem hann er.

Í þeim skólum þar sem agavandamál eru minnst eru viðhorf til foreldra mjög jákvæð

og mikil áhersla lögð á öflugt foreldrasamstarf

Page 18: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Jákvæð viðhorf

• Gagnkvæm virðing. Við virðum þau og þau okkur. [Jákvæður skólabragur] helgast af því að þau finna að okkur þykir vænt um þau. Viljum þeim vel, berum virðingu fyrir þeim. Þá verður líka auðveldara að stýra þeim fyrir vikið.

• Við sendum skýr skilaboð og reynum að vera fyrirmyndir. Áhersla á samvinnu og traust. Að þau finni sig örugg í skólanum. Við erum vinir þeirra. Við erum hérna til að vinna með þeim.

Page 19: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Jákvæð viðhorf ... og ...

• Hlustað eftir röddum nemenda

• Nemendasamtöl (sbr. starfsmannasamtöl)

• Bekkjarfundir

• Nemendum falin ábyrgð

• Hlýlegt og fallegt umhverfi

• Söngur

• Vinaverkefni

• Samverustundir, samkomur, uppákomur

Page 20: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

... og ...

• Jafningjakennsla, „meistarakerfi“

• Unglingar aðstoða við gæslu eða kenna leiki (frímínútnavinir)

• Öflug lífsleiknikennsla

• Námsefni um samskipti

• Blöndun innan árgangs eða aldurhópa

• Samstaða kennara

Page 21: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Dæmi: Öflug samstaða kennaraVið höldum fundi tvisvar sinnum í viku – alltaf. Allt árið í kring. Og þar tökum við bara fyrir allt sem brennur á kennurum bæði sem við kemur nemendum og öllu því … sem hugsast getur. Þannig að við vitum nákvæmlega hvað er að gerast hjá öðrum kennurum og allir taka eins á öllum málum og við ákveðum nákvæmar leiðir… Sérgreinakennarar koma þarna inn líka þannig að það eru allir … meðvitaðir um vandamálin … það er alveg útilokað, til dæmis, að það gerist að einhver einn kennari lendi í einhverjum algjörum ógöngum sem enginn fréttir neitt af eða er kominn út í móa með málið. Kominn í einhverjar ógöngur með foreldra eða eitthvað slíkt … við bara gerum þetta í sameiningu. Gjörsamlega. Leggjum sameiginlegar línur sem við stöndum saman um algjörlega. Og ef að eitthvað gengur ekki upp þá ræðum við það og finnum einhverja aðra lausn. Þetta er team-vinna algjörlega.

Page 22: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Hvernig byrjar skóladagurinn?(Athyglisverðar hliðarniðurstöður!)

Það er eitt sem að mér hefur fundist breyta heilmiklu … einhvern tímann voru krakkar settir í röð fyrir utan skólann áður en skólinn byrjaði ... þar skapaðist ægilegur hiti oft og æsingur og læti … á morgnana þá opnum við húsið korteri áður en tíminn byrjar … nemendur mega fara inn … í kennslustofu og bíða eftir kennaranum. Þetta breytti alveg rosalega miklu. Þau spjalla saman, setjast inn í heimakrók, spila.

Page 23: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Framganga stjórnenda• Taka á móti nemendum og foreldrum í upphafi dags

• Fylgjast með í mötuneyti eða borða með nemendum

• Hitta nemendur reglulega– Kenna öllum nemendum nokkra tíma í viku

– Stýra reglulegum samkomum með nemendum

– Halda reglulega fundi með nemendum

• Koma við á öllum starfsstöðum daglega / vikulega

• Einföld (og snjöll) hugmynd:

– Aðstoðarskólastjóri kennir nokkra tíma í 1. bekk

Page 24: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Til umhugsunar

Krakkarnir hringja sjálfir heim ... í einstaka tilvikum reyna foreldrar að verja ... yfirleitt er þessu tekið vel ... hefur gríðarlega góð áhrif vegna þess að það eru foreldrarnir sem skamma krakkana en ekki við stjórnendurnir ... þannig að krakkarnir fara ekki út með neikvæða skoðun á okkur ... þau geta heldur ekki breytt sögunni ... þau segja sannleikann þegar þau eru fyrir framan okkur

Page 25: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Munur eftir aldursstigum

• Yngsta stigið: Erfiðari eða kotrosknari?– Sex ára stjórnunarreynsla!

• Miðstigið: Oft erfiðustu málin – oftast drengir – Óþekkt, vesen og vandamál. Þar er fimmti til

sjöundi bekkurinn algjörlega afgerandi. Það er þessi aldurshópur sem ekki er að höndla Ísland í dag … Þessi hópur er ekki að höndla tölvutæknina, msn-ið. sms-ið og …

• Unglingastigið: Öðruvísi vandi

Page 26: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

... öðruvísi vandi hjá unglingunum

Það er allt of mikil vinna hjá unglingum utan skóla … skelfilegt hvað þau vinna mikið. Þau eru grútsyfjuð, áhugalaus, en hafa nóg af peningum. Kaupa kók og gotterí, endalaus velmegunarneysla … og viðhorfið er þannig að þau segja kennaranum að hann megi ekki hafa próf af því þau séu að vinna … tilætlunarsemin ótrúleg.

Page 27: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Á þetta við rök að styðjast?

8

14

21

41

16

0 20 40 60 80 100

Mun færri tilvik en áður

Nokkur færri tilvik en áður

Engin breyting í heildina litið

Nokkuð fleiri tilvik en áður

Mun fleiri tilvik en áður

Page 28: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Er þetta náttúrulögmál ...?Yfirgnæfandi meirihluti erfiðra nemenda eru

drengir (81%)

Stúlkur Drengir

Yngsta stig 16% 84%

Miðstig 17% 83%

Unglingastig 23% 77%

Page 29: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar sammála

8

11

12

16

20

26

28

29

31

34

51

51

51

59

64

65

70

81

0 20 40 60 80 100

Fíkniefnavandi nemenda

Veik stjórnun agamála

Skortur á samstöðu starfsfólks

Einhæfar kennsluaðferðir

Starfsmenn kunna ekki nægilega vel til verka

Slæmur félagsskapur

Erfitt samstarf við foreldra þeirra barna sem um ræðir

Röng stefna í skólamálum (t.d. Skóli án aðgreiningar)

Fjölbreytni nemendahópsins

Húsnæði ábótavant

Of mörg börn í bekk/rymi

Skortur á sérhæfðu starfsfólki

Óheppilegar uppeldisaðferðir foreldra

Slæmur félagslegur aðbúnaður (erf iðleikar heima fyrir)

Skortur á úrræðum

Skortur á utanaðkomandi stuðningi sérfræðinga

Geðræn vandamál nemenda

Skortur á f járveitingum

Skýringar á vanda

skólanna

Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar sammmála

Page 30: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Kennsluhættir og hegðun

• Hegðunarvandi var yfirleitt ekki tengdur kennsluháttum

• Aðeins 16% svarenda taldi einhæfa kennsluhætti skýra hegðunarvanda

• Áhugaverðar undantekningar

Page 31: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Kennsluhættir og hegðun!?V1: Ekki spurning. V2: Ég sé gjörbreytingu á miðstigi. Breyttum kennsluháttum …Sp: … hvaða breytingar voru þið að gera á kennsluháttum?V2: Þá vorum við meira með einstaklingsmiðað nám. Tókum … verkefni þannig að hver og einn … gat unnið verkefnið út frá eigin forsendum. Og þá sáum við agamálin eins flugu út um gluggann … …Nei, ég segi það ekki alveg en við sáum mikinn mun.

Page 32: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Efling list og verkgreina… við kennum meiri list og verkgreinar en nokkur annar skóli í borginni, … þegar við fórum yfir í það þá fannst mér agamál minnka til muna … þegar við fengum allar þessar stofur þá bara ákváðum við að demba okkur í að kenna svona mikið list og verkgreinar, mér finnst það skipta miklu máli. Það skiptir miklu máli fyrir þessa krakka ... Enda kemur það líka í ljós að … nemendur sem eiga við hegðunarerfiðleika að stríða … eru oft að plumma sig rosalega vel í svona greinum.

Page 33: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Hér talar skólastjóri

Hver segir að þessi skóladagur þurfi að vera jafn brjálæðislega vitlaus og hann er ... við erum búin að bæta við þremur árum ... Hvað gerðum við við þessi þrjú ár ... getum við ekki aðeins slakað á og sagt að yfir daginn hef ég tíma til að gera miklu meira en áður og ef ég bara brýt það upp með hreyfingu og léttleika ... þá líður öllum betur og við komum miklu meira í verk ...

Page 34: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Það var líka einn um daginn sem … sem stóð fyrir smá ólátum hérna út á skólalóð og þegar hann var spurður þá sagði hann: „Ég bara réði ekki við þetta - ég er í ofvirknisathyglisbrestsæði!“

Og svo eru það greiningarnar ...

Page 35: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Viðhorf til ofvirkra barna

Það er eins og það er svona með þessa ofvirku nemendur. Þeir skemma alltaf út frá sér.

Page 36: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Ályktanir• Sveigjanleiki er meginatriði!• Hegðunarvandi er ekki nýr af nálinni!• Engin ástæða er til að vænta annars en að við

getum náð enn betri tökum á þessum málum • Jákvæð viðhorf – trú á nemendum og virðing

draga langt – svo langt að við hljótum að undrast það!

• Lausnir á erfiðustu málunum verða að hafa forgang

Page 37: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Tillögur• Áríðandi er að prófa ólíkar leiðir og miðla reynslu á

milli skóla• Koma þarf á fót sérfræðingateymum (sbr. fardeild í

Grafarvogi)• Huga þarf sérstaklega að samhengi starfs- og

kennsluhátta og hegðunarvanda• Leita þarf nýrra leiða til að reikna sérkennsluþörf • Breyta þarf kennaramenntun• Huga þarf að forvörnum• Efla rannsóknir

Page 38: Virðing eða vantrú:  Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir

Að lokum ... VíkurskólasöngurinnSkólinn okkarer gullkistavið enda regnbogans.Við vinnum samanmeð bros á vör,þá blómstrar vináttan.

Vináttan vex í Víkurskólavináttan vex þar.Vináttan vex í Víkurskólaþví við erum þar.

Takk fyrir!