freyja 2-2

36
BÚNAÐARBLAÐIÐ FREYJA SUMAR 2012 2. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR MEÐAL EFNIS: ÚTIVIST SVÍNA LANDBÚNAÐUR Í FÆREYJUM ÞRÓUN SKYLDLEIKA RÆKTAR Í SAUÐFÉ

Upload: sjarminn-utgafufelag

Post on 25-Mar-2016

325 views

Category:

Documents


2 download

DESCRIPTION

Freyja búnaðarblað

TRANSCRIPT

Page 1: Freyja 2-2

BÚNAÐARBLAÐIÐFREYJA

SUMAR20122. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR

MEÐAL EFNIS:

ÚTIVIST SVÍNA

LANDBÚNAÐUR ÍFÆREYJUM

ÞRÓUN SKYLDLEIKA­RÆKTAR Í SAUÐFÉ

Page 2: Freyja 2-2

„Heimskt er heimaalið barn“ -Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir 3Grænfóður -Ríkharð Brynjólfsson 6Þróun skyldleikaræktar í íslenska sauðfjárstofninum ­Eyjólfur Ingvi Bjarnason og Þorvaldur Kristjánsson 9Landbúnaður í Færeyjum ­Rólvur Djurhuss 13Vegslóðar á bújörðum ­Gísli Rafn Guðmundsson 17Mikilvægi heyefnagreininga ­Berglind Ósk Óðinsdóttir 20Útivist svína ­Karvel Lindberg Karvelsson 23Tilvist Grábotna 06­833 ­María Svanþrúður Jónsdóttir og Daði Lange Friðriksson 26Heyskapur, nokkur orð og hugtök sem lýsa gamla verklaginu ­Guðríður B. Helgadóttir 27Rannsóknir á fósturdauða í sauðfé ­Bryndís Pétursdóttir og fleiri 31

Búnaðarblaðið Freyja2. tölublað, 2. árgangurÚtgáfudagur: 10. maí 2012

Ábyrgðarmenn og ritstjórar:Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir (898-4897), Axel Kárason (860-2935)og Eyjólfur Ingvi Bjarnason (862-0384)

ISSN: 1670-8911Höfundur forsíðumyndar: Dagbjört Drífa ThorlaciusÚtgefandi:Útgáfufélagið Sjarminn, Raftahlíð 55, 550 Sauðárkró[email protected]

EFNISYFIRLIT

FREYJA 2-2

Page 3: Freyja 2-2

FREYJA 2-2 2

© Oddný Steina Valsdóttir

Frá ritstjórnNú í sumarbyrjun kemur annað tölublað annars árgangs Freyju út, fjórða blaðið í röðinni oghefur Útgáfufélagið því formlega náð því markmiði sem sett var í upphafi, þ.e. að gefa Freyjuút fjórum sinnum á ári. Það er gaman til þess að hugsa að á sama tíma fyrir ári síðan var Freyjaennþá á hugmyndastigi og margt hefur gerst síðan þá. Þó einhverjum hafi eflaust fundisthugmyndin óraunhæf þá eru þeir mun fleiri sem hafa stutt dyggilega við bakið á okkur þettafyrsta útgáfuár.

Í þessu blaði sem kennt er við sumarið kennir ýmissa grasa. Fjallað er um grænfóðurræktun,mikilvægi heysýnatöku, skyldleikarækt í sauðfjárstofninum, landbúnað í Færeyjum og útivistsvína. Í blaðinu er einnig afar fróðleg grein eftir Guðríði B. Helgadóttur sem segir fráorðanotkun við heyskap, frá hennar uppvaxtar- og búskaparárum. Gaman væri ef fleiri hefðu ísínum fórum slíkan fróðleik um landbúnað frá gamalli tíð og væru tilbúnir að deila honummeð lesendum Freyju.

Þetta fyrsta ár okkar í útgáfubransanum hefur verið okkur lærdómsríkt en um fram allt hefurverkefnið reynst ennþá skemmtilegra en við bjuggumst við. Viðtökur ykkar lesendur góðirhafa verið frábærar, mikið af góðu efni sem við höfum fengið til birtingar og ritnefndin okkarhefur staðið traust við bakið á okkur, ávallt tilbúin með góð ráð og leiðbeiningar. Það er þvíengan bilbug á okkur að finna og með aðstoð góðra manna sjáum við nú fram á að geta bættum betur með því að búa Freyju betri og varanlegri samastað á veraldarvefnum. Betrumbættheimasíða útgáfufélagsins skapar einnig vettvang fyrir frekari miðlun fræðsluefnis til handaþeim sem við landbúnaðinn starfa. Stefnum við að því að opna nýja og betrumbættaheimasíðu útgáfufélagsins í lok sumars.

Eftir langan vetur er loksins komið vor. Í sveitum landsins keppast bændur og búalið nú viðað undirbúa fóðuröflun komandi sumars og uppskeru næsta hausts. Í óða önn eru ær oghuðnur að bera, hryssur að kasta og fuglar að verpa. Eflaust fara einhvers staðar fljótlega aðsjást úti kýr. Við sendum lesendum okkar óskir um gleðilegt og gjöfult sumar meðgóðviðrisdögum og ríkulegri uppskeru.

Butra í Fljótshlíð fyrir miðri mynd. Fjallið Þríhyrningur í bakgrunni.

Page 4: Freyja 2-2

UMRÆÐAN

3 FREYJA 2-2

„Heimskt er heimaalið barn“Eins og lesendur hafa tekið eftir hefur hvert tölublað af Freyju hafist með umræðu umlandbúnaðarmál. Hefur þetta mælst vel fyrir og hafa mörg áhugaverð sjónarmið komið framenda löngu tímabært að opna umræðu um það hvernig við viljum sjá íslenskan landbúnaðþróast inn í framtíðina. Skoðanir eru að sjálfsögðu skiptar og sjónarmið ólík en eitt eigum viðþó líklega öll sameiginlegt, það að við viljum öll efla íslenskan landbúnað og trúum á framtíðhans. Ekki ætla ég í þessum pistli mínum að taka afstöðu til þeirra skoðana sem komið hafafram í fyrri umræðupistlum, en bendi þó á að úr þeim öllum tel ég að lesa megi, á einn eðaannan hátt, að höfundar virðist sammála um að hér skorti okkur tilfinnanlega skýra ogheildstæða landbúnaðarstefnu.

Að marka stefnu fyrir íslenskan landbúnað erekki eitthvað sem hrist verður fram úr erminniá milli mjalta. Fyrsta skrefið er að ræða málinopinskátt og fordómalaust þannig að semflestir fletir málsins séu kannaðir. Síðan þarfað komast að niðurstöðu sem endurspeglarhvort tveggja í senn, raunhæf og framsækinmarkmið fyrir íslenskan landbúnað annarsvegar og vilja þeirra sem í greininni starfa og

samfélagsins, hins vegar. Það er nefnilega ekkinóg að búa til flotta áætlun, það þarf líka að fáfólk til að standa saman um hana og viljafylgja henni eftir.

Eitt af því sem ég tel að þurfi að ræðaopinskátt í tengslum við framtíðarstefnu ííslenskum landbúnaði eru menntamál. Þaðskal viðurkennt að menntun er mér mikiðhjartans mál og ekkert leyndarmál að ég tel aðsýna eigi menntun í landbúnaði mun meirivirðingu en nú er gert. Ég hef reyndar alltafhaft það á tilfinningunni að menntamál í

landbúnaði séu eitthvað sem mennvilja helst ekki ræða. Fáir hafa treystsér til að setja opinberlega fram þáskoðun að gera eigi kröfur ummenntun í landbúnaði en meirahefur heyrst frá þeim sem telja þaðhina mestu fásinnu og tala jafnvel

niður til þeirra sem hafa aflað sér menntunar ásviði landbúnaðar. Það er því best að takastrax af alla vafa um það hér og nú að það ermín staðfasta trú að gera eigi skýra kröfu ummenntun, þekkingu og kunnáttu í landbúnaði.

Að stunda landbúnað er í raun í eðli sínutalsvert flókið verkefni. Sá sem rekur bú ogætlar að gera það vel þarf að kunna skil áýmsum hlutum sem spanna vítt svið og þarsem okkur skortir þekkingu, þurfum við aðvita hvar við eigum að leita eftir henni.Flestir íslenskir bændur bera ábyrgð álifandi skepnum ásamt landi og öðrum

GUNNFRÍÐUR ELÍN HREIÐARSDÓTTIR

Nautgriparæktarráðunautur og kennariBændasamtökum Íslandsgeh@bondi. is

© Áskell Þórisson

Page 5: Freyja 2-2

UMRÆÐAN

4FREYJA 2-2

duglegir að afla sér þekkingar á einn eðaannan hátt. Það er nefnilega einmitt það semmálið snýst um, þekking og hæfni.

Það er útbreiddur misskilningur að nám snúisteingöngu um að sitja á skólabekk, lærastaðreyndir, taka síðan próf, ganga út meðskírteini upp á vasann og halda að þessiþekking dugi að eilífu. Það að afla sérmenntunar innifelur ekki síður það að kynnastnýjum hlutum, hlusta á aðrar skoðanir enmanns sjálfs, læra að afla sér sjálfur þekkingarog takast á við margbreytileg verkefni svo fátt

eitt sé nefnt. Velheppnað nám kennirmanni allt þetta ogsíðast en ekki síst þááttar maður sig á þvíhvað maður kann írauninni lítið. Eðlimálsins samkvæmt

breytast hlutirnir í tímans rás, nýjarstaðreyndir taka við af gömlum og nýjaraðferðir ryðja sér til rúms. Hafi námið skilaðhlutverki sínu, þá kemur það ekki að sök þvíeinstaklingurinn hefur þekkinguna oghæfnina til að laga sig að breytingum og nýtaþessa nýju þekkingu til að styrkja stöðu sína ísamfélaginu.

Í mínum huga er það órjúfanlegur þáttur ímótun landbúnaðarstefnu að ræða hvaðakröfur við viljum gera varðandi kunnáttu oghæfni þeirra sem í greininni starfa og það á viðum alla aðila, bændur, ráðgjafa, kennara ogvísindamenn. Við eigum að sjálfsögðu að setjaokkur markmið um að efla menntunarstig ílandbúnaði og að þeir sem í greininni starfaséu vel í stakk búnir til að takast á við þaumargvíslegu verkefni sem bíða okkar. Viðeigum ekki að gefa neinn afslátt af því og

auðlindum. Þeir hafa til umráða flókin og oftmjög dýr tæki auk þess sem ekki skal gleymarekstrarþættinum því af þessu þarf fólk aðgeta lifað. Bændur eru flestir matvæla-framleiðendur og þar af leiðandi afarmikilvægir hlekkir í samfélaginu og mér finnstþað skjóta dálítið skökku við að í samfélagiokkar menntum við fólk til allra mögulegra ogómögulegra hluta en við teljum ekki endilegaástæðu til að mennta fólkið sem framleiðirmatinn ofan í okkur.

Hvort sem okkur líkar betur eða verr veitamenntun og þekkingforskot í nútíma-samfélagi og ef land-búnaðurinn heltist úrlestinni hvað varðarmenntunarstig, höfumvið skert samkeppnis-stöðu hans verulegagagnvart öðrum atvinnugreinum og þar meðveikt stöðu okkar í samfélaginu. Mér er þaðþví fullkomlega óskiljanlegt hvers vegnagreinin sjálf hefur ekki fyrir löngu sett sérmarkmið um að hækka menntunarstig ílandbúnaði.

Eru lærðir bændur betri bændur?Ég hef, oftar en ég kæri mig um að muna,heyrt setninguna „því gengur nú ekkert betur aðbúa þessu skólagengna fólki“ eða „þeir sem ekkigeta búið verða ráðunautar“. Það er að sjálfsögðurétt að prófskírteini gerir fólk ekki sjálfkrafa aðgóðum bændum en það eru hins vegar allarlíkur á að nám hafi gert menn að betribændum en ella. Það er líka alveg hárrétt aðmargir góðir bændur hafa ekki prófskírteiniupp á vasann en ef grannt er skoðað, þá eigaflestir þeirra það sameiginlegt að hafa verið

© Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir

Page 6: Freyja 2-2

UMRÆÐAN

5 FREYJA 2-2

setningin „þessi er orðinn of mikið menntaður tilað verða bóndi” er líka setning sem hvergi ættiað heyrast. Með því að setja okkur háleitmarkmið hvað þetta varðar erum við að sendasamfélaginu skilaboð um að við berumvirðingu fyrir okkur sjálfum, atvinnu okkar ogað við ætlum okkur stóra hluti.

Þó að við flest sjáum landbúnað fyrir okkursem öfluga atvinnugrein í framtíðinni þágetum við ekki leyftokkur að líta á þaðsem sjálfgefinn hlut.Umræðan um land-búnaðinn síðastliðinmisseri hefur sýntokkur það. Þar hafa menn farið mikinn ogstundum sett fram ómaklegar og jafnvelrangar fullyrðingar um íslenskan landbúnað,því miður oftar en ekki veifandi próf-

skírteinum frá virðulegum menntastofnunumsem sanna eiga afar langa skólagöngu svoenginn fari nú að freistast til að efast umþekkingu þeirra sem fullyrðingarnar erukomnar frá.

Í mínum huga getur verið talsverður munur áskólagöngu og menntun, þó sem betur fer fariþetta tvennt nú oftast saman. Fólk geturgengið lengi í skóla án þess að menntast neitt

að ráði og menn getamenntað sig talsvertán þess að ganga ískóla. Þetta snýst ekkieingöngu um fjöldaprófskírteina í

vasanum, þó samfélagið noti þannmælikvarða til að meta menntunarstig. Þettasnýst um þekkingu, hæfni og samfélagslegafærni og það er þar sem við eigum að setja

okkur háleit markmið. Við þurfumeinfaldlega að vera snjallari, útsjónar-samari, rökfastari, sveigjanlegri, fróðariog skynsamari en hinir, vera feti framar.Þannig tökum við framtíð land-búnaðaðarins í okkar eigin hendur.Skólar og aðrar menntastofnanir komaþarna til sögunnar en við þurfum líka aðmuna að aldagömul þekking og reynslasem landbúnaðurinn býr nú þegar yfirer eitthvað sem oft finnst ekki íhefðbundnum námskrám.

Fyrirsögn þessa pistils segir í raun alltsem segja þarf. Það uppgötvaði ég sjálfþegar ég loksins drattaðist út fyrirtúnfótinn heima hjá mér og fór að„nema“ í orðsins víðustu merkingu.Síðan eru liðin mörg ár, ég er enn aðnema og ætla mér aldrei að hætta því.

© Áskell Þórisson

Page 7: Freyja 2-2

JARÐRÆKT

6FREYJA 2-2

GrænfóðurGrænfóður í einhverju formi hefur veriðræktað hér á landi í meira en 100 ár. Lengst afvoru hafrar, og þá stundum með flækjum eðaertum, algengastir, en seinustu áratugina erunær eingöngu ræktuð repja og einært rýgresi.Af hvoru tveggja eru til sumar- ogvetrarafbrigði og margir stofnar hafa verið áboðstólum. Aðrar tegundir, næpa, nepja,mergkál, hafrar, bygg og ertur hafa einnigverið notuð, en í mjög takmörkuðum mæli.Hér á eftir verður eingöngu fjallað um ræktunog nýtingu rýgresis og repju. Í fyrrasamsvaraði innflutningur þessara tegunda tilræktunar repju á 4.000 ha, sumarrýgresis á1.600 ha og vetrarrýgresis á 1.400 ha, miðaðvið ráðlagt sáðmagn af hverri tegund.

SumarrepjaDálítið hefur verið flutt inn af sumarrepju flestár en ekki er hægt að mæla með notkunhennar nema í undantekningartilfellum. Húner fljót af stað, en byrjar strax að undirbúablómgun; stöngullinn lengist og blaðvöxtur ermjög takmarkaður. Eftir að blómgun hefsttrénar stöngullinn hratt. Í tilraunum þar semsumar- og vetrarrepja hafa verið slegnar eftirjafn marga vaxtardaga hefur uppskera viðbyrjandi blómgun sumarrepjunnar verið mjögsvipuð. Fræ af sumarrepju er af einhverjumástæðum mun dýrara en af vetrarrepju.

VetrarrepjaVetrarrepja hefur marga góða kosti, skepnureru sólgnar i hana, orkugildi þurrefnisins erhið sama og í kjarnfóðri, prótein er nokkuðhátt og steinefnamagn, einkum Ca, er hátt. Þaðsem helst spillir ræktun er arfi, kálmaðkur,bórskortur eða njólun. Hið síðastnefndaverður einkum ef kuldahret kemur fljótlegaeftir sáningu. Í versta tilfelli getur vetrarrepja„breyst“ í sumarrepju. Lítið er vitað umbórskort í fóðurkáli, margir kannast við hannúr gulrófum, en í káli lýsir hann sér með þvíað vaxtarbroddurinn hættir að mynda ný blöðog stöngullinn lengist ekki. Bór má bera á sembórax sem áburðarsalar (a.m.k. einhverjir)selja, hvernig sem gengur að dreifa 15-20 kg áha.

GrænfóðurÍ greininni er yfirlit um ræktun repju og rýgresis sem grænfóðurs til beitar og sláttar.Uppskera repju getur orðið mjög mikil en nýtist illa við randbeit mjólkurkúa eða haustlambaþví aðeins blöðin eru étin, Uppskera til þessara nytja er um 350 g þe./m2, afgangurinn treðstniður við randbeit. Rýgresi nýtist ekki að fullu nema frumspretta sé slegin og háin beitt.Rannsóknir hafa þó sýnt að jafnvel úr sér sprottið rýgresi nýtist vel við randbeit mjólkurkúa.

RÍKHARÐ BRYNJÓLFSSON

PrófessorLandbúnaðarháskóla Íslandsrikhard@lbhi. is

Kýr á kálbeit© Ríkharð Brynjólfsson

Page 8: Freyja 2-2

JARÐRÆKT

7 FREYJA 2-2

Lirfur kálflugunnar (kálmaðkur) éta rótar-hálsinn svo enginn vöxtur verður. Kálfluganmagnast upp við endurtekna kálræktun ásama stykki. Helsta ráðið er að flytja akurinn,óvíst er hve langt, en allavega einhverhundruð metra. Annað ráð sem fellur vel aðhaustbeit sláturlamba er að sá ekki fyrr enkálflugan fer að leita að fórnarkáli, sem eruppúr miðjum júní. Ef sáð er umJónsmessuleytið eru flestar flugurnar dauðarþegar kálið hefur spírað og þar með verðurlítill maðkur. Ef ekki er plægt fyrr en rétt fyrirsáningu er arfi, sem aldrei vantar, plægðurniður fyrir blómgun, svo þetta heldur honumlíka í skefjum.

Nýting repjuLengi var talað um repju þannig að uppskerannýttist allt að 100%. Rannsóknir seinustu árasegja allt annað. Kýr á randbeit slafra blöðin ísig en stönglar og blaðstilkar verða eftir aðmestu. Ef rafstrengur er fluttur meira en 1,5-2m hverju sinni verður nýtingin enn lakari þvíblöð troðast niður. Mælingar sýna að blað-uppskera er kringum 3.500 kg þe./ha (350 gþurrefnis á m2) og breytist mjög lítið þó líði ásumarið því fyrir hvert blað sem myndastsölnar annað. Heildaruppskera eins og húnmælist með slætti getur hinsvegar orðið 7.000kg þe/ha. Hugsanlega geta geldneyti eða ærnýtt það sem eftir er, einkum eftir lambabeit.

Það er umhugsunarefni að allt að helminguruppskeru verði eftir við beit; athuganir sýnaað ef repjan er slegin og flutt beint á fóðurgang

(núllbeit) er nýtingin mun betri oggeldneyti nærri til að nýta það semeftir er.

En öll nýting, önnur en beit, hamlastmjög af því gríðarmagni af vatni semfylgir þurrefninu því þurrefnis-prósenta er yfirleitt um 10%.

Ef ætlunin er að beita kúm á repju ogað hver bíti 3,5 kg þarf hver um 6lengdarmetra (10 m2) á randbeit effært er einu sinni. Þá þurfa 40 kýr 240metra langan beitarskára en því styttrisem oftar er fært, sem er trúlegaeinnig betra fóðrunarlega séð.

RepjustofnarStofnar á markaði eru nokkrir, Barcoli er„gamall og góður“, Delta og Hobson eru nýrri.Í rannsóknum á Hvanneyri hefur Hobsonverið blaðmeiri en hinir, en Delta lávaxnarisem getur þýtt minna arfaþol. Veðurfarsíðastliðið vor bauð upp á mikla njólun, enhún varð óveruleg og ekki var munur milliþessara þriggja stofna.

RýgresiLíkt og með repju eru á markaði stofnar afsumar- og vetrarrýgresi. Í flestum tilvikumliggur munurinn í því hvenær grasið skríðurog í hve miklum mæli. Sumarrýgresið byrjarað skríða 50-60 dögum eftir sáningu, fyrstu öxá vetrarrýgresi sjást oft um 10 dögum síðar, enþau eru yfirleitt gisin. Undantekning ervetrarrýgresið Fredrik. Það skríður nær ekkerten er líka mun seinna til en aðrir stofnar en áþað hinsvegar til að lifa af vetur og skríður þámjög snemma. Fredrik hegðar sér semsagt einsog vetrarrýgresi á að hegða sér „eftir bókinni“.

Ef hætt er við arfa í rýgresisflagi munar mikluhve sumarrýgresi er duglegra við að kæfahann; mér hefur sýnst að stofninn Bartigra séöflugastur í þessu sambandi. Af vetrarrýgresier Fredrik langlélegastur í arfaslag.

Auk þeirra stofna sem þegar eru nefndir erufleiri á markaði, en ekki munar miklu á þeim.Þó má nefna þann „gamla og góða“ Dasas.

Leifar eftir kálbeit© Ríkharð Brynjólfsson

Page 9: Freyja 2-2

JARÐRÆKT

8FREYJA 2-2

Hann sker sig frá öðru vetrarrýgresi í því aðvera tvílitna, með mjórri blöð og ljósari enaðrir, en hinsvegar með hærra þurr-efnishlutfall svo þurrefnisuppskeran ersvipuð.

Rýgresi nær að mynda sæmilega rót fram aðslætti, en það er mikilvægt að jörð sé mjög velunnin og hnúskalaus svo ekki berist mold íheyið við múgun og rúllun. Líklega eraffarasælast að slá með knosara og rúlla beintúr skáranum þegar visnað hefur úr honum.

Nýting rýgresisVarla er hægt að hafa full not af rýgresi nemaná af því tveim uppskerum, annað hvort slátvívegis (slátt+slátt) eða slá fyrst og beita síðan(slátt+beit). Kýr fúlsa við há af beittu rýgresien vera má að lömb hafi af því full not.

Beit kúa á rýgresi verður ekkiárangursrík nema með randbeit, ogsú reynsla fékkst á Hvanneyri aðnýtingin væri þá nær 100%, þ.e. efstrengurinn var ekki færður meiraen 1,5-2 m. Þessi nýting hélst alltsumarið jafnvel þó sumarrýgresiværi löngu skriðið og blómgunjafnvel hafin. Sjálfsagt hefur sú beitekki verið mikils virði fóðrunarlegaséð, en kýrnar virtust hamingju-samar með þessa viðbót viðheyfóðrunina.

EndurvöxturEins og áður segir þarf að nýtarýgresið tvisvar svo það njóti sín aðfullu. Þess vegna er mikilvægt að sáþví sem allra fyrst að vori, þvíendurvöxtur eftir slátt fer mikið eftirþví hvenær slegið er. Sem þumal-fingursreglu má miða við að ef slegiðer um 10. júlí má vænta þess að 40dögum seinna sé háin orðin 45-50 hkgþe./ha, en ef fyrri sláttur er um 20. júlímá vænta 35-40 hkg þe./ha eftir 40daga. Þetta er sambland af minniinngeislun og lægri hita eftir því semá líður sumar. Almennt virðistendurvöxtur vetrarrýgresis nokkru

meiri en sumarrýgresis ef fyrri sláttur ersleginn á sama tíma.

Áburður á grænfóðurHefðbundið er að nota mun meiri áburð ágrænfóður en tún. Þetta byggir að mestu ágömlum rannsóknum þar sem grænfóður vargjarnan fyrsta stig nýræktunar. Nú erugrænfóðurakrar gjarnan fyrsta stig endur-ræktar, m.a. vegna þess að næringarlosun jarð-vegsins er of mikil fyrir bygg. Margendur-teknar rannsóknir á endurræktaðri Hvann-eyrarmýri hafa sýnt að N og P skila engu íuppskeru en hinsvegar þarf nokkurt kalí. Eintilraun á Stóra-Ármóti bendir í sömu átt. Þettaværi ástæða til að kanna víðar, eins og raunaráburðarþörf íslenskra túna.

Úr sér sprottið vetrarrýgresi bitið niður í rót 25. ágúst 2005

Sama gildir um sumarrýgresi sama dag,enn meira trénað bitið í rót

© Ríkharð Brynjólfsson

© Ríkharð Brynjólfsson

Page 10: Freyja 2-2

SAUÐFJÁRRÆKT

9 FREYJA 2-2

Þróun skyldleikaræktar ííslenska sauðfjárstofninumSkyldleikarækt fylgir ræktunarstarfi í öllum búfjárkynjum. Skyldleikarækt á sér stað þegareinn eða fleiri forfeður birtast oftar en einu sinni í ættartré viðkomandi grips. Skyldleikaræktsauðfjárstofnsins hefur ekki verið skoðuð núna í nokkur ár en nokkrar slíkar úttektir vorugerðar á ríkisbúunum um og uppúr 1980. Í þessari grein verður varpað ljósi á þróunskyldleikaræktar í sauðfjárstofninum á síðustu árum og framlag helstu ættfeðra skoðað enfyrst beinum við sjónum okkar að fræðunum sem liggja að baki skyldleikarækt.EYJÓLFUR INGVI BJARNASON

SauðfjárræktarráðunauturBændasamtökum Íslands

eyjolfur@bondi. is

ÞORVALDUR KRISTJÁNSSON

DoktorsnemiLandbúnaðarháskóla Íslandsthorvaldurk@lbhi. is

1. tafla. Yfirlit yfir skyldleikaræktarstuðulvið ákveðna pörun gripa

SkyldleikaræktSkyldleikaræktarstuðull er skilgreindur semlíkur á að báðir erfðavísar í tilteknuerfðavísasæti séu upprunalega þeir sömu íákveðnum einstaklingi. Ef til eru góðarættartöflur má reikna skyldleikaræktarstuðul(FX) með eftirfarandi formúlu1:

FX = ∑(1/2)n+1 * (1+FA)þar sem n er fjöldi ættliða frá föður tilsameiginlegs forföður og til baka í móðurviðkomandi grips og FA stendur fyrirskyldleikaræktarstuðul sem sameiginlegurforfaðir hefur. Skyldleikaræktarstuðullinn ertala á bilinu 0 til 1, en oftast er hann þókynntur sem hlutfallstala og er þá á bilinu 0%til 100%.

Skyldleikaræktarstuðullinn einn og sér segirekki allt um hvernig pörun hefur verið háttað,því markviss skyldleikarækt þar sem notaðireru fjarskyldir einstaklingar (sameiginlegurforfaðir 2-4 ættliði aftur) yfir langt tímabilgetur gefið háan skyldleikaræktarstuðul. Þvíþarf að skoða hvernig hann þróast yfir ákveðiðtímabil. Það sem þá er skoðað erskyldleikaræktaraukning í hverri kynslóð ogþá sést oft miklu meiri aukning þar sem fariðer að stunda markvissa skyldleikaræktnáskyldra einstaklinga (1-3 ættliðir).Skyldleikaræktaraukning í hverri kynslóð erfundin með eftirfarandi formúlu2.

Skyldleikaræktaraukning í hverri kynslóð= 1 – (1­∆Fárlega)L

þar sem ∆F er breytingin á skyldleika-ræktarstuðli yfir tímabil metin meðaðhvarfsgreiningu og L er meðalættliðabilþeirra gripa sem til skoðunar eru.

Skyldleikaræktaraukning í hverri kynslóð ermetin í prósentum. Matvæla- og landbúnaðar-stofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) mælirmeð því að þessi aukning sé á bilinu 0,5% -1,0% í hverri kynslóð.

Page 11: Freyja 2-2

SAUÐFJÁRRÆKT

10FREYJA 2-2

1. mynd. Meðalskyldleikaræktarstuðull (FX) ásettra gripa í sauðfjárstofninum 1977-2011,flokkað eftir PEC þéttleikastuðli.

Bogi 04­814, einn af helstu ættfeðrumkollótta fjárins í dag

© Sauðfjársæðingarstöð Suðurlands

Þróun skyldleikaræktar í íslenskasauðfjárstofninumTil skoða þróun skyldleikaræktar í íslenskasauðfjárstofninum voru notuð ætternisgögn úrskýrsluhaldsgagnagrunni BændasamtakaÍslands. Í gagnasafninu voru rúmlega 1.200þúsund einstaklingar fæddir á árunum 1930 til2011. Skráðum gripum fjölgaði mikið þegargæðastýring í sauðfjárrækt var tekin upp árið2003. Gagnasafnið var því hreinsað og slepptupplýsingum frá búum þar sem ættfærslahefur verið lítil sem engin eða mjög stopulundanfarin ár. Til að reikna skyld-leikaræktarstuðul var notað forritið EVA semhefur verið í þróun undanfarin ár í samstarfinorræna búfjárræktarmanna.

Samhliða því að reikna skyldleikaræktarstuðulreiknar EVA einnig gæði ætternisgagnannameð þéttleikastuðli, PEC-gildi (Pedigreecompleteness value). Þar sem það er mikilvægtað hafa ítarleg gögn um ætterni gripannaþegar metin eru skyldleikaræktarstuðulleinstaklinga og þróun í skyldleikarækt, þá var

þéttleiki ætternisgagnanna metinn. PEC-gildiðer mat á hlutfalli þekktra forfeðra í hverrikynslóð en gengið er út frá því að til þess aðhægt sé að fanga hugsanlega skyldleikarækt,þá þurfi báðir foreldrar einstaklingsins að veraþekktir og að minnsta kosti einn afi/ein amma(PEC-stuðull sem samsvarar 0,24). PEC-stuðulleinstaklings er því núll ef bæði og/eða annaðforeldri einstaklingsins eru óþekkt, samahversu ítarleg ætternisgögn eru til um hittforeldrið. PEC-gildi eru á bilinu 0–1 og eftirþví sem það er hærra eru fleiri forfeður

Page 12: Freyja 2-2

SAUÐFJÁRRÆKT

11 FREYJA 2-2

3. tafla. Erfðahlutdeild (%) helstu ættfeðra í sauðfjárstofninum á árunum 2006-2011

2. tafla. Búin 60 flokkuð eftir aukningu skyldleikaræktarþekktir. Þetta gildi varreiknað fyrir hvern einstak-ling þar sem teknar vorufyrir 5 kynslóðir aftur. Þegarkannað var hvaða forfeðureiga stærstu erfðahlutdeild ííslenska sauðfjárstofninum ídag var forritið EVA notað3.

Á 1. mynd er þróun skyldleikaræktarstuðulsfyrir sauðfjárstofninn í heild sinni frá 1977sýnd, af henni má sjá að skyldleikaræktinhefur verið að aukast undanfarin 10 ár, þó húnhafi verið nokkur allt frá upphafi tímabilsins.Einnig er rétt að benda á punktalínuna, semsýnir fjölda gripa sem voru teknir með íútreikningana fyrir hvert ár, en af henni má sjáhve skráðum gripum hefur fjölgað hrattundanfarin ár, eftir að gæðastýring var tekinupp og mun betri ætternisupplýsingar umstofninn í heild sinni urðu aðgengilegar.

Þegar aukning í skyldleikarækt var metinsérstaklega fyrir ákveðin bú, voru valin 60 bú íöllum landshlutum, sem áttu það sameiginlegtað eiga sér langa og góða skýrsluhaldssögu.Þau voru síðan flokkuð í bú þar semuppistaðan er annað hvort hyrnt eða kollótt fé.Búin með hyrnt fé voru 40 og ættarskráin þarað baki taldi 117.108 gripi. Búin með kollótt fé

voru 20 og ættarskráin þar að baki taldi 50.898gripi. Aukningin í skyldleikarækt var síðanmetin fyrir yngstu ærnar á hverju búi fyrir sig,fæddar árabilið 2006-2011. Fyrir hyrnda féðvar aukningin í skyldleikarækt á ári metin0,53% og fyrir kollótta féð 0,42%. Tilsamanburðar getum við tekið þau tvö bú semhafa verið helsta uppspretta hrúta ásæðingastöðvar í hvorum flokki og þá eraukningin í hyrndu ánum á Hesti metin 0,13%og í kollóttu ánum á búi Ragnars Bragasonar áHeydalsá 0,22%.

Framlag helstu ættfeðraSamhliða því að reikna skyldleikaræktarstuðulhvers grips, reiknar forritið EVA einnigerfðahlutdeild ákveðinna einstaklinga í ættumásettra gripa hvert ár. Í 3. töflu er má finna þáættfeður sem ná 3% erfðahlutdeild eða meiriárið 2011 og hvernig framlag þeirra hefurverið í hverjum árgangi, árin 2006-2011.

Samkvæmt 3. töflu eru það þeir feðgar Lækur97-843 og Garpur 92-808 frá Lækjarhúsum í

Page 13: Freyja 2-2

SAUÐFJÁRRÆKT

12FREYJA 2-2

eru á stöðvunum hverju sinni. Yngstuhrútarnir sem eru upplýsingar um í 3. töflueru jafnaldrarnir, Kveikur og Raftur frá Hestien samtals voru sæddar rúmlega 15.000 ærmeð sæði úr þeim þau fimm ár sem þeir voru ínotkun á stöð. Hvort kynbótaáhrif þeirra muniaukast áfram eða fara minnkandi, kemur í ljósá komandi árum.

Það atriði sem hefur næstmest áhrif á þaðhvernig skyldleikaræktin þróast er hversulengi hrútar eru notaðir heima á hverju búi. Áflestum þeim búum þar sem aukningin mælistyfir 1% í hverri kynslóð eru hrútarnir notaðirlengi og fáir endurnýjaðir á hverju ári, þannigbú verða því miklu lokaðri einingar en bú þarendurnýjun hrúta er ör. Reiknuð aukning íhyrndu ánum á Hesti er 0,13% þrátt fyrir aðskyldleikaræktarstuðull flestra gripa þar séhærri en á mörgum öðrum búum. Áundanförnum árum hefur nær allurhrútastofninn þar verið endurnýjaður árlegasamhliða því að sæðingar hafa talsvert veriðnotaðar.

Þó skyldleikarækt mælist lítil í íslenskasauðfjárstofninum í dag, þarf að skoða hvortsú skyldleikarækt sem til staðar er hefur leitttil einhverrar skyldleikaræktarhnignunar. Slíkter þekkt í mörgum búfjárkynjum erlendis enhefur ekki verið kannað hér, það verður hinsvegar gert seinna á árinu og þá horft til helstuframleiðslueiginleikanna, þ.e. frjósemi ogmjólkurlagni.

Suðursveit sem eru mestu ættfeðurnir íhyrnda sauðfjárstofninum í dag en í kollóttastofninum er það Þyrill 94-399 frá Heydalsá íTungusveit sem er mesti ættfaðirinn. Einnigmá sjá í töflunni að hlutdeild hinna eldri hrútahelst nokkuð stöðug yfir þetta tímabili meðanhún eykst stöðugt hjá hinum yngri þegar þeireru enn í notkun á sæðingastöð.

Er skyldleikaræktin orðin of mikil?Aukningin í skyldleikarækt í hverri kynslóð erenn lág í íslenska sauðfjárstofninum og innanþeirra marka sem FAO mælir með. Aukninginreiknast talsvert hærri núna en í ásettumgripum á Hvanneyri árin 1968-1974, 0,28%4. Íathugun skyldleikaræktar á fimm ríkisbúum ááttunda áratug síðustu aldar (Hvanneyri,Reykhólum, Skriðuklaustri, Möðruvöllum ogHólum) reiknaðist aukningin í skyldleikaræktá bilinu 0,01% til 0,36%5. Á þeim tíma var þónotuð aðeins önnur reikniaðferð, heldurónákvæmari en sú sem notuð er í dag.

Eins og ræktunarstarfið í sauðfjárrækt erskipulagt á Íslandi í dag er það notkunsæðishrúta sem hefur mest áhrif á það hvernigskyldleikaræktin þróast í stofninum ákomandi árum. Þá er kannski vert að hafa íhuga að Þyrill frá Heydalsá sem hefur stærstaerfðahlutinn í kollótta stofninum í dag varaldrei notaður á sæðingastöð og Garpur fráLækjarhúsum var aðeins tvö ár í notkun ástöð, en fjöldi sona og afkomenda þessarahrúta hefur síðan verið í notkun ásæðingastöðvunum. Til að varast of miklaaukningu í skyldleikarækt sauðfjárstofnsins ákomandi árum þyrfti að stjórna notkuneinstakra hrúta betur en gert er í dag ásamtþví að jafna innbyrðis notkun þeirra hrúta sem

Lækur 97­843, helsti ættfaðir hyrnda fjárins í dag

Heimildir:1 og 2 Falconer, D.S., Mackay, T.F.C., 1996. Introduction to Quantitative Genetics, fourth ed. Longman,Harlow.3 Berg, P. (2004). EVA. Evolutionary Algorithm for Mate Selection. User´s Guide. Draft 26.10.20044 Jón Viðar Jónmundsson, 1975. Athugun á skyldleikarækt hjá sauðfé. Fjölrit Bændaskólans á Hvanneyri.5 Stefán Aðalsteinsson, 1983. Skyldleikarækt í sauðfé á 5 ríkisbúum. Ráðunautafundur, bls. 31-40.Kveikur 05­965, vaxandi ættfaðir í hyrnda fénu?

© Sauðfjársæðingarstöð Suðurlands

© Sauðfjársæðingarstöð Suðurlands

Page 14: Freyja 2-2

NautgriparæktLandnámsmenn höfðu nautgripi með sér viðlandnám og það kyn var við lýði í Færeyjum ínokkrar aldir. Gripirnir líktust þeim íslenskumikið, bæði hvað litasamsetningu og geðslagsnerti. Ræktun þeirra var aldrei mjög skipuleg,það eina sem lögð var áhersla á var að nautinværu nógu spök svo þau gætu gengið úti meðkúnum á sumrin án þess að valda fólki ónæði.Engin áhersla var lögð á eiginleika eins ogjúgurgerð og mjólkurmagn eftir hvern grip.Færeysku kýrnar voru litlar og til eru tölur fráþví um 1940 sem sýna að meðalhæð þeirra var122 cm og brjóstummálið 164 cm.

Þegar mjaltavélin kom fram á sjónarsviðið ásjötta áratug síðustu aldar sáu menn aðfæreyska kýrin hentaði illa til að vera mjólkuðmeð vél. Hún var seinmjólka, júgrin voru síð

og spenarnir útstæðir. Í stað þess að reyna aðkynbæta var versta en einfaldasta leiðin farin,að flytja inn naut af öðrum kynjum til að takasæði úr og svo var farið að sæða um allareyjarnar. Fyrstu árin voru notuð naut afnorskum rauðkollóttum kynjum en árið 1968var farið að nota norska NRF kynið. Sæði úröðrum kynjum hefur verið notað síðan ífæreyskri nautgriparækt en síðustu 20 árinhefur sæði úr dönskum Holsteinnautumfengið vaxandi útbreiðslu og í dag er meira enhelmingur kúnna sæddur með dönskuHolsteinsæði.

UTAN ÚR HEIMI

13 FREYJA 2-2

Færeyjar liggja milli 61. og 62. breiddargráðu norðlægrar breiddar og miðlína þeirra er á 7.lengdargráðu vestur, þ.e.a.s. miðja Færeyja er u.þ.b. 150 kílómetrum sunnar enVestmannaeyjar. Veðurfarið í Færeyjum á sumrin er mjög líkt og á Íslandi en veturnir erutalsvert hlýrri, u.þ.b. +4,5°C í janúar. Í Færeyjum rignir talsvert, á suðurhluta eyjanna þar semer þurrast, er ársúrkoman um 800 mm, meðan ársúrkoma á nyrstu og austustu eyjunumnálgast 3000 mm.Sjávarútvegur og fiskvinnsla eru mikilvægustu framleiðslugreinarnar meðan landbúnaðurhefur minni þýðingu, 1% af vergum þjóðartekjum kemur frá landbúnaði. Sauðfjár­ ognautgriparækt eru þýðingarmestu framleiðslugreinarnar í færeyskum landbúnaði en einniger aðeins framleitt af kartöflum, gulrótum, grænmeti og berjum.

Landbúnaður í Færeyjum

RÓLVUR DJURHUUS

Landbúnaðarfræðingur PhDBúnað[email protected]

Mjólkað með DeLaval mjaltavél í hefðbundnu básafjósi

© Mr Tattie Heid

© Búnaðarstovan

Page 15: Freyja 2-2

UTAN ÚR HEIMI

14FREYJA 2-2

Eftir að sæðingarnar byrjuðu hættu menn aðeiga lifandi naut og smám saman hurfueinkenni færeysku kýrinnar og í dag er hvorkigömlu svipgerðina né litafjölbreytnina aðfinna í nautgripum í eyjunum.

Í Færeyjum eru alls 28 kúabú með alls 950kúm. Meðalbústærðin er 34 kýr. Flest fjósineru gömul básafjós en þó finnast tvölausagöngufjós, þar af annað með tveimurmjaltaþjónum. Það er stærsta fjósið í Færeyjummeð 130 mjólkandi kýr. Nokkrar fjós-byggingar eru í bígerð og stærðin sem verðurmiðað við þar eru 60-70 kýr í fjósi með einummjaltaþjóni í hverju fjósi.

Meðalnytin er um 8.500 lítrar hjá NRF kúnumog um 9.000 lítrar hjá Holsteinkúnum.Hæsta meðalnytin er 11.500 lítrar á einubúi og mesta ársnyt eftir eina kú er19.000 lítrar. Bestu kýrnar eru að mjólkaríflega 60 lítra á dag.

Kýrnar eru fóðraðar á votheyi úr stæðueða rúlluböggum, ásamt kjarnfóðri.Kjarnfóðrið kemur frá Danmörku oghvert fjós fær sína blöndu eftir óskumsem eru byggðar á heyefnagreiningumgróffóðurs. PBV-gildi er oft hátt ífæreysku gróffóðri og algengt að gefakjarnfóður þar sem uppistaðan er rófur,til að lækka PBV gildið. Endurræktun erdýr í Færeyjum og á mörgum búum

næst ekki að afla nægilegsgróffóðurs og því þarf alltaf aðkaupa talsvert af heyi í böggumerlendis frá, mikið hey hefurgegnum tíðina verði keypt fráÍslandi.

Í Færeyjum er engin tollvernd tilað verja innlenda kjötframleiðsluog því er vonlaust fyrirkúabændur að keppa við innfluttnautakjöt. Innflutta kjötið er svoódýrt að færeyska kjötið verðurundir í samkeppninni. Í dag ervarla færeyskt nautakjöt ámarkaðnum því næstum öllumnautkálfum er slátrað skömmueftir fæðingu. Þetta er ekki gott því

gripir af NRF kyninu henta einnig vel tilkjötframleiðslu.

Í Færeyjum er bara eitt mjólkursamlag ogþangað er öll mjólk seld. Þetta mjólkursamlager einn hluti af samvinnufélaginu MeginfelagBúnaðarmanna (MBM), sem kúabændurnir 28eiga. Samlagið pakkar 4 tegundum af mjólkfyrir neytendur með 0,1 – 0,5 – 1,5 og 3%fituinnihaldi og einnig G-mjólk, kókómjólk ogsúrmjólk ásamt nokkrum tegundum af jógúrtog öðrum drykkjarvörum. Alls eru 50 tegundirmjólkurvara framleiddar hjá samlaginu.Færeyingar eru því sjálfum sér nógir meðþessar vörur og flytja lítið sem ekkert inn afþeim. Lítilsháttar er framleitt af osti íFæreyjum svo hann er nánast allur innfluttur.

Sjálfvirkur fóðurvagn í básafjósi

Hrútar reknir heim að hausti© Búnaðarstovan

© Búnaðarstovan

Page 16: Freyja 2-2

UTAN ÚR HEIMI

15 FREYJA 2-2

SauðfjárræktSauðfé hefur verið í Færeyjum svo lengi semmenn vita en nafn eyjanna er dregið af sauðfé,því þegar Norðmenn námu þar land árið 800var sauðfé útum allt, sem Írar höfðu skilið eftiren þeir bjuggu í eyjunum áður. Fjárkyn þettavar smátt vexti og erfitt í umgengni þvíkindurnar voru styggar og léttar á fæti. Kynþetta er ekki lengur í Færeyjum en seinustugripirnir af þessu kyni voru drepnir um 1850.Til eru uppstoppaðir gripir af kyninu til sýnis ínáttúrgripasafninu í Þórshöfn. Gripirnir erumjög líkir Soya-kyninu sem er upprunnið áSankti Kilda, eyju út af meginlandi Skotlands.

Fjárkynið sem er nú í Færeyjum er stuttrófuféog er útaf fé sem flutt var til eyjanna fyrir um400 árum síðan. Þetta var sama kynið og þávar í Noregi (og einu sinni í Danmörku) ogástæðan fyrir fjárskiptunum var vilji til aðskipta gamla kyninu út fyrir eitthvað nýtt ogbetra. Frá þeim tíma hefur lítið verið flutt innaf öðrum kynjum og í Færeyjum segjum við aðfæreyska sauðkindin sé sérstakt sauðfjárkyn.

Færeyska kynið hefur nokkur litaafbrigði og írannsókn sem var gerð 1988 voru hlutföllin áþessa leið. Hvítar 30%, svartar eða svart-flekkóttar 30%, gráar eða gráflekkóttar 30% ogmórrauðar 10%1. Nær allir hrútar eru hyrndirog um 2/3 ánna eru kollóttar. Ullin skiptist íþel og tog líkt og á íslensku kindinni.Kindurnar ganga úr ullu á sumrin en eruklipptar einu sinni á ári, í júlímánuði.

Færeyska kindin er minni en sú íslenska ogeinnig minni en stuttrófuféð (spælsau) íNoregi. Af fjárkynjum í nágrannalöndunum,

líkist færeyska féð mest Gammelnorskkyninu íNoregi og kindum á North Ronaldsay, einni afOrkneyjum. Einnig líkist það íslenskaforystufénu umtalsvert. Fullorðin kind er ámilli 45 og 50 kíló. Fallþungi lamba er á bilinu15-17 kíló, tvílembingar heldur léttari ogeinlembingar ívið þyngri.

Í Færeyjum eru um 70.000 kindur á u.þ.b. 520búum. Á stærstu búunum eru um 500 fjár eneinnig eru nokkur lítil bú sem hafa aðeins fáagripi. Sauðfé er úti allt árið í Færeyjum ogveturnir eru það hlýir að gras sprettur áláglendi allan veturinn. Á veturna haldakindurar sig á láglendi en leita á góðviðris-dögum uppeftir fjallshlíðum. Þegar fer að vorafikra þær sig ofar og ofar í fjallshlíðum eftirþví sem nýgræðingurinn vex og eru þar á beitallt sumarið uns þær koma heim aftur aðhausti.

Kindurnar eru vanafastar og halda sig á beit ásama stað alla sína ævi. Þær færa sig upp ogniður eftir veðri og vindum en eru lítið á flakkiþvert á þá stefnu. Kindurnar hafa alla þá góðueiginleika sem íslenska forystukindur hafa.Heilsufar þeirra er gott og þær bera úti ánhjálpar ásamt því að hafa góða móður-eiginleika. Þær finna alltaf aftur staðinn þarsem þær langar að vera.

Það er breytilegt eftir svæðum hversu þéttkindurnar eru á beit og fer eftir því hversugott beitilandið er. Gögn sýna að þéttleikikinda á beit er frá 26 til 333 kinda á hvern km2.

Heimildir:1Austrheim, G., L.-J. Asheim, G. Bjarnason, J. Feilberg, A.M. Fosaa, Ø. Holand, K. Høgh, I.S.Jónsdóttir, B. Magnusson, L.E. Mortensen, A. Mysterud, E. Olsen, A. Skonhoft, G. Steinheimand A.G. Þórhallsdóttir. Sheep grazing in the North-Atlantic region – A long term perspectiveon management, ressource economy and ecology. Norges teknisk-naturvitenskapeligeuniversitet. Vitenskapsmuseet. Rapport zoologisk serie 2008-3. 82 s.

© Búnaðarstovan

© Búnaðarstovan

Page 17: Freyja 2-2

16FREYJA 2-2

ættkvíslinni, kláða (Psoroptis), stóru lifrar-iktunni (Fasciola hepatica), fellilús (Bovicolaovis), færilús (Melaphagus ovinus) og gefiðormalyf. Hrútar eru hafðir inni frá október tildesember uns fengitími hefst. Í janúar eru þeirteknir inn aftur. Í mars og apríl fá ærnarkjarnfóður með beitinni ásamt því að bólusetter við lambablóðsótt í apríl og gefið ormalyf.

Eitt bú í Færeyjum er viðurkennt sem lífræntvottað af Vottunarstofunni TÚN og hefur þaðreynst mjög vel. Það þarf ekki mikið til aðbreyta úr hefbundum landbúnaði í lífrænan í

Færeyjum, því venjulegtsauðfjárbú notar hvorkimikinn tilbúinn áburðné kjarnfóður. Álífrænum búum er gerðkrafa um að ekki séunotuð fyrirbyggjandilyf, heldur er lyfja-notkun ákveðin eftirefnainnihaldi taðsins.

Næstum allt kjöt sem fellur til af sauðfé erþurrkað sem ræstkjöt eða skerpukjöt. Þetta ersérstök færeysk hefð þar sem kjötið er þurrkaðí hjalli. Það er saltað og verkað á annan háttfyrir þurrkun. Að tveimur mánuðum liðnumer kjötið klárt til eldunar sem ræstkjöt og efþað hangir nokkra mánuði í viðbót verður tilskerpukjöt sem er borðað eitt og sér eða semálegg á brauð.

Meginreglan í Færeyjum er sú að sauðkindinhefur fyrsta rétt á landið og sá sem vill haldagripum burt frá sínu landi verður sjálfur aðgirða sig af.

Venjulega er eina fóðrun sauðfjár fólgin íkjarnfóðurgjöf síðustu tvo mánuðina fyrirburð. Ef snjór liggur á jörðu í marga daga þarfþó að gefa þeim hey. Hrútar til kynbóta eruvaldir í október og þá teknir inn unsfengitíminn hefst í lok nóvember eða byrjundesember. Þá er þeim sleppt út til ánna og eruþar fram í miðjan janúar að þeir eru teknir innog fóðraðir þar fram ímaíbyrjun. Sauðburðurhefst í lok apríl ogstendur í um einnmánuð. Ærnar berahjálparlaust og þaðheyrir til undantekningaef þarf að hjálpa kindvið burð. Að meðaltalier um eitt lamb eftirhverja kind í Færeyjum.

Færeyskri sauðfjárrækt má lýsa nokkurnveginn svona: Í apríl/maí er sauðburður oghrútum er sleppt út á beit. Í júlí er smalað ogklippt ásamt því að bólusett er með þríþættubóluefni (sjúkdómar af Clostridium ættkvísl,s.s. bráða- og garnapest), einnig gefið ormalyf.Í október er smalað til slátrunar, kynbóta-hrútar valdir og gripir sem eiga að lifameðhöndlaðir gegn sjúkdómum af Clostridium

UTAN ÚR HEIMI

Greinin skrifuð á færeysku en þýdd á íslensku af Eyjólfi Ingva Bjarnasyni og Elínu Nolsøe Grethardsdóttur.

Eflum útbreiðslu Freyju!

Prentað eintak í ársáskrift*

kostar 6.000 krónur

Stakt eintak kostar 2.000 kr.

Freyja er blað sveitafólksins!*Búnaðarblaðið Freyja kemur út fjórum sinnum á ári

Skerpukjöt

Page 18: Freyja 2-2

SKIPULAGSMÁL

17 FREYJA 2-2

Vegslóðar á bújörðumGreinarhöfundur vann síðastliðið sumar verkefnið „Skipulagsferlar og matsskalar vegnavegslóða“ sem var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Umsjónarmaður verkefnisins varAuður Sveinsdóttir, dósent við LbhÍ. Verkefnið fólst í að treysta skipulagsforsendur fyrirákvarðanatöku um framtíð þessa veigamikla hluta vega­ og slóðakerfisins sem enn erósamþykktur og hefur meðal annars orðið til vegna aksturs utan vega.

GÍSLI RAFN GUÐMUNDSSON

Nemi í umhverfisskipulagiLandbúnaðarháskóla Íslandsgisl irafng@gmail .com

Utanvegaakstur er eitt af stærstuvandamálunum er varðar auðlindir Íslands.Landgræðsla ríkisins telur óheftan aksturökutækja utan vega og á vegslóðum Íslandseina alvarlegustu ógn af mannavöldum viðnáttúru- og gróðurfar landsins. Umræddurakstur, utan laga og reglna, hefur valdiðumfangsmiklum skemmdum á landi, bæði íeinkaeign og eigu hins opinbera. Sú staðreyndveldur fordómum, árekstrum og öðrumvandamálum hjá fólki sem stundarfrístundaakstur. Um árabil hefur átt sér staðmikil umræða um málefni utanvegaaksturshér á landi, ekki síst í fjölmiðlum. Ljóst er aðvandamálið er umfangsmikið sem og verkefnivið ákvörðun um framtíðarvegakerfi landsins.

Oft virðist óljóst hvar megi aka og hvar ekki,einnig er fræðsla um skaðsemi utanvega-aksturs og þær reglur sem gilda í umgengnium landið of lítil. Víðáttumikið kerfi vegslóðahefur orðið til án þess að farið hafi verið eftireðlilegum skipulagsferlum, sem fela í sér aðslóðarnir séu samþykktir af til þess ábyrgumaðilum, skipulagsyfirvöldum og land-eigendum. Hefur þetta leitt til þess aðvegslóðar eru birtir í opinberum korta-grunnum opnum almenningi, oft í óþökkbænda og landeigenda.

Allt frá landnámi hafa slóðar myndast þar semumferð er það mikil að för eftir hana myndastí landinu. Lengi voru þessir slóðar aðeinsmyndaðir af gangandi mönnum og búpeningiþeirra. Eftir innflutning fyrstu bifreiðarinnarárið 1904 tóku að myndast vegir fyrirvélknúna umferð og fljótlega fóru menn aðferðast um landið og mynda nýja slóða1.Meðal annars voru frumkvöðlar í akstri á ferðum Þjórsárver á hálendi Íslands í kringum

19502. Á undanförnum áratugumhefur margt breyst. Margvíslegurfrístunda-akstur er vinsæll ogekkert bendir til þess að lát sé áfjölgun áhugamanna um slíkanakstur. Á árum áður var oft lítiðhugsað um áhrif umferðar ánáttúruna, ef til vill vegna þess aðálag bifreiða var á þeim tíma ekkieins mikið og nú er. Á síðari árumhefur utanvegaakstur aukist, meðauknum fjölda ferðamanna ogáhuga á frístundaakstri. Þá erstaðreyndin sú að margirvélhjólaökumenn þræða kinda-stíga og slóða gangandi manna4Hér hafa ferðamenn komist í vandræði og skemmt gróður eftir aðhafa farið inn á viðkvæman vegslóða í of mikilli bleytu.

© Skessuhorn/Kristín Jónsdóttir

Page 19: Freyja 2-2

SKIPULAGSMÁL

18FREYJA 2-2

eldfjallajarðvegar valda því að hann ersérstaklega viðkvæmur fyrir vind- ogvatnsrofi9. Sterk gróðurþekja kemur að stórumhluta í veg fyrir vind- og vatnsrof. Ökutækigeta auðveldlega rofið gróðurþekju, sem oft ermjög viðkvæm eins og áður kom fram, ogþannig hafið feril vind- og vatnsrofs. Þjöppuná einnig stóran þátt í eyðingu gróðurs. Þegarþung ökutæki aka yfir gróðurlendi kremstgróður og rætur hans, jarðvegurinn þjappastog verður ekki eins rakadrægur og holrýmijarðvegsins glatast en gróður þarfnast loft-rýmis í jarðvegi til þess að hann megi þrífast.Einnig ber að nefna að íslensk náttúra er mjögaðgengileg fyrir ökutæki. Hér á landi er lítið aftrjám og öðrum gróðri, auk þess sem stórsvæði landsins eru slétt og auðveld yfirferðarfyrir ökutæki.

Við rannsóknina, sem var hluti af verkefninukom í ljós að oft eru vegir sem aðeins eru færirhluta ársins birtir í opnum kortagrunnum, svosem smala- og veiðivegir. Utanvegaakstur er

og hafa sumir forystumenn torfæru-hjólamanna beinlínis hvatt til slíks aksturs5.Annað vandamál er að enginn greinarmunurer gerður á slóðum, eftir færð, í kortagrunnisem notaður er fyrir GPS leiðsögutæki oghefur það valdið ferðamönnum vandræðumþar sem oft er um mjög torfarnar leiðir aðræða sem birtar eru í umræddum kortagrunnmeð sama tákni og greiðfærari leiðir6. Ljóst erað samstillt átak margra aðila þarf til að snúaþessari þróun í rétta átt.

Ísland hefur sérstætt náttúrufar og ber að takatillit til þess. Íslensk gróðurþekja er á stórumsvæðum mjög viðkvæm, aðallega vegna stuttsvaxtartímabils og lítillar fjölbreytni í flórulandsins. Íslenskur jarðvegur hefur einnigsérstöðu, en hann er að mestu svokallaðureldfjallajarðvegur, sem er aðallega myndaðurúr gosefnum7. Eldfjallajarðvegur hefuröðruvísi eiginleika en annar jarðvegur en hanngetur m.a. bundið mikið af vatni en hefur litlasamloðun8. Þessir sérstöku eiginleikar íslensks

Sem dæmi sést mikið ósamræmi í sveitarfélaginu Borgarbyggð, en þar eru töluvert fleiri vegslóðar birtir íopnum kortagrunni Landmælinga Íslands en á lögbundnu og samþykktu aðalskipulagi Borgarbyggðar. Aðauki er stór hluti göngu­ og reiðstíga Borgarbyggðar birtur sem akvegir í umræddum kortagrunni.Unnið á kortagrunn Landmælinga Íslands af greinarhöfundi.

Page 20: Freyja 2-2

Heimildir:1Sigurður Hreiðar Hreiðarsson. (2004). Saga bílsins á Íslandi 1904-2004.Reykjavík.2Loftur Guðmundsson. (1975). Hálendið heillar: þættir af nokkrum helstuöræfabílstjórum. Reykjavík: Bókaútgáfa Þórhalls Bjarnasonar.3Viðtöl skýrsluhöfundar og umsjónarmanna við 16 aðila í maí-ágúst 2011;fulltrúa ráðuneyta, ríkisstofnana, sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka.Áhersla viðtalanna var á umræðu um skipulag vega og slóða á Íslandi.4Gunnþóra Gunnarsdóttir. (2009). „Við þræðum gamla slóða eftir kindur ogveiðimenn“. Fréttablaðið.5Jakob Þór Guðbjartsson. (2007). Iceland overland. Reykjavík: Útivera.6Guðni Einarsson. (29. ágúst 2009). „Ekki fyrir hvern sem er að fara þarna“.Morgunblaðið.7Ólafur Arnalds. (2004). Volcanic soils of Iceland. Catena (56), 3-20.8Wada, K. (1985). The distinctive properties of Andosols. Advances in soilsciences, 2, 173-223.9Ólafur Arnalds, Elín Fjóla Þórarinsdóttir, Sigmar Metúsalemsson, ÁsgeirJónsson, Einar Grétarsson, & Arnór Árnason. (1997). Jarðvegsrof á Íslandi.Reykjavík: Landgræðsla ríkisins og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins.10Switalski, T. A., & Jones, A. (2008). BEST MANAGEMENT PRACTICES FOROFF-ROAD VEHICLE USE ON FORESTLANDS: A Guide for Designating andManaging Off-Road Vehicle Routes. Salt Lake City: Wildlands CPR og WildUtah Project. Sótt 20. ágúst 2011 afhttp://www.wildlandscpr.org/files/ORV_BMP_2008_0.pdf

SKIPULAGSMÁL

19 FREYJA 2-2

sem kunnugt er leyfilegur í landbúnaðarskyni,en flestir bændur og landeigendur eru ábyrgirí umgengni á sínu landi og gæta þess að notaviðkvæma vegslóða ekki á viðkvæmumárstíðum, eins og t.d. í asahláku. Spyrja máhvort bændur kæri sig um að viðkvæmirvegslóðar á landi þeirra og afréttum séu birtir íkortagrunnum og umferð þannig beint inn áþá. Það ætti því að vera æskilegt fyrir bændurað fylgjast með hvort birtir séu vegir ábújörðum þeirra, sem ekki eru á aðalskipulagiviðkomandi sveitarfélags og óæskilegt er aðbeina umferð inn á.

Til viðbótar við fræðslu og eftirlit bænda oglandeigenda eru ýmsar aðgerðir mögulegarvið lokun slóða sem ekki eru í notkun lengureða loka skal af öðrum ástæðum. Í þvísambandi er mikilvægt að afmá sýnilegtyfirborð slóðans, og er það mikilvægast næstþeim stað sem keyrt er inn á slóðann10. Aðgerðsem valin er skal metin í hverju tilviki fyrir sig.Mögulegt er að nota fleiri en eina aðgerð íhverju tilviki. Aðgerðir voru valdar í kjölfarrannsókna og úttektar á innlendum og

erlendum blaða- og vísindagreinum aukviðtala skýrsluhöfundar og umsjónarmannavið 18 aðila í maí-ágúst 2011; fulltrúaráðuneyta, ríkisstofnana, sveitarfélaga ogfrjálsra félagasamtaka þar sem áherslaviðtalanna var á umræðu um skipulag vega ogslóða hér á landi3.

Verkefnið í heild má sjá á eftirfarandi vefslóð:http://issuu.com/gislirafn/docs/skipulagsferlar_og_matsskalar_vegna_vegsl__a

Gerum sæðingaáætlun fyrir kýrnar okkar !Það þarf ekki að kosta mikla fyrirhöfn að gera einfalda sæðingáætlun fyrir kúabú.1. Gerðu lista yfir allar kýr og kvígur búsins (Gripalisti sem Excel skjal beint úr HUPPU)2. Taktu út þá gripi sem ekki á að sæða aftur3. Skiptu þeim gripum sem eftir eru niður í 3 hópa

a. Hópur 1: - Sæddar með nautsfeðrum og reyndum nautumi. Nautsmæður – Merktar með rauðu flaggi í HUPPUii. Aðrir góðir ræktunargripir – Kýr sem flokkast sem gæðagripir í hjörðinniiii. Efnilegar kvígur – Kvígur sem merktar eru með grænu flaggi í HUPPU

b. Hópur 2 – Sæddar með óreyndum nautum án valpörunari. Aðrar kvígur en þær sem eru í hóp 1ii. Kýr sem ekki falla í hóp 1 eða 3

c. Hópur 3 – Sæddar með reyndum nautumi. Gallagripir – Kýr sem hafa áberandi galla sem rækta þarf úr hjörðinni

4. Hópur 2 á að vera um 50% kúnna og hópar 1 og 3 samtals 50%5. Á móti gripum í hóp 1 og 3 þarf að velja naut út frá styrkleikum og veikleikum einstaklingana.Með valpörun gripa í hóp 1 er markmiði að fá fram úrvalsgripi en með valpörun í hóp 3 ermarkmiðið að vega upp á móti þeim göllum sem eru á gripunum í þeim hópi.

Með markvissri notkun sæðinga og pörunaráætlunum er hægt að ná betri árangri íræktunarstarfinu. Rækta fram úrvalsgripi, taka þátt í prófun ungnauta og rækta smátt og smáttút galla sem finnast í gripum innan hjarðarinnar.

/GEH

Page 21: Freyja 2-2

FÓÐRUN

20FREYJA 2-2

hæfilegt magn og heppilega samsetningunæringarefna, sem þýðir einfaldlega heil-brigðari gripi og meiri framleiðslu.Uppistaðan í því fóðri sem notað er tilmjólkur- og kjötframleiðslu (af sauðfé ognautgripum) er gróffóður, því skiptir miklu

máli að vanda vel til verka við framleiðsluþess. Ef gróffóðrið nýtist vel tilframleiðslunnar þarf minna aðkeypt fóður enella, sem gerir fóðrunina hagkvæmari. Til þessað nýta gróffóðrið sem best og velja annaðfóður sem hentar hverju sinni er mikilvægt aðvita næringarefanainnihald gróffóðursins.

Hversu mörg sýni þarf að senda íefnagreiningu?Sýnin þurfa að gefa góða yfirsýn yfir fóðrið, enþað er ekki nauðsynlegt að taka sýni af öllumtúnspildum. Góð regla er að senda sýni úrfyrri slætti og annað úr seinni slætti, sendasýni úr rýgresi eða ef eitthvað sérstakteinkennir hluta fóðursins. Þá er hægt að flokkatúnin niður í nýræktir og gömul tún og svoeftir því hvenær slegið er. Þannig má taka eittsýni úr heyi af nýræktum sem eru slegnar ásama tíma og annað úr heyi af gömlum túnumsem slegin eru á sama tíma. Hey af túnum semeru slegin á þriggja daga tímabili geta flokkastí sama sýnið, en ef lengra er á milli sláttu dagaþarf hugsanlega að fjölga sýnum. Það sem þarfað hafa í huga er að sýnið samanstandi afeinsleitu fóðri þ.e. úr heyi af túnum sem erumeð svipaða tegundasamsetningu og á samaþroskastigi. Þegar taka á eitt sýni sem á aðvera lýsandi fyrir hey af nokkrum túnspildumer mikilvægt að taka sýni af fleiri en einnispildu, blanda þeim svo saman í bala og takasamsýni sem er sent til greiningar.

Mikilvægi heyefnagreiningaGróffóður getur verið mjög mismunandi að gæðum og fer það meðal annars eftir því hvar þaðer ræktað, hvaða tegundir eru notaðar, sláttutíma og fleira. Til þess að gera sér grein fyrirefnainnihaldi þess er nauðsynlegt að láta efnagreina það. Að láta efnagreina gróffóðriðborgar sig þegar mögulegt er að finna það kjarnfóður sem hentar best og gera fóðuráætlunsem miðast við hagkvæmasta fóðurskammtinn ásamt því að halda góðri framleiðslu oggripunum heilbrigðum.

Til þess að fóðrun verði hagkvæm þarf hún aðvera rétt, þannig að þörfum gripanna séfullnægt á sem hagkvæmastan hátt.Vanfóðrun verður þegar gripurinn fær ekkiþau næringarefni sem hann þarf til viðhalds,vaxtar, fósturvaxtar og framleiðslu, og viðsjáum afleiðingarnar í aflögn, smáum gripum,vanhöldum og minni framleiðslu. Offóðrunfelur í sér meira framboð næringarefna engripurinn þarfnast, eða ranga samsetningunæringarefna.Í þessum tilfellum nýtir gripurinn næringar-efnin ekki og við sjáum afleiðingarnar í feitumgripum, háu úrefnisinnihaldi í mjólk ognæringarríkum skít. Rétt fóðrun felur í sér

BERGLIND ÓSK ÓÐINSDÓTTIR

FóðurráðunauturBændasamtökum Íslandsboo@bondi. is

© Áskell Þórisson

Page 22: Freyja 2-2

FÓÐRUN

21 FREYJA 2-2

Hirðingarsýni eða verkuð sýni?Það er algengt að taka hirðingarsýni en þó erusífellt fleiri sem velja að taka verkuð sýni.Hirðingarsýni gefa okkur upplýsingar umfóðrið þegar það er hirt af velli, en verkuð sýnigefa okkur upplýsingar um fóðrið eins og þaðer gefið. Það á ýmislegt eftir að gerast íverkuninni sem við náum ekki höndum yfir eftekin eru hirðingarsýni, en það á sérstaklegavið um votheysverkun og þegar rúllur erumeð lægra en 50-60% þurrefnisinnihaldi.

Þegar tekin eru verkuð sýni þarf fóðrið að hafalegið í sílói eða rúllu í u.þ.b. 6 vikur. Því ermikilvægt að skipuleggja sýnatökuna straxþegar fóðrinu er keyrt heim. Þá er hægt aðtaka frá þær rúllur sem nota á í sýnatökuna oghafa til hliðar, þær eru svo gataðar að 6 vikumliðnum og gefnar í kjölfarið. Við sýnatökuna ergott að miða við að taka úr a.m.k. 2-3rúllum/böggum í hvert sýni og bora á 2-3stöðum í hverja rúllu, bæði ofarlega ogneðarlega. Þessu er svo öllu blandað saman ogsamsýni tekið úr því. Í votheysstæður er borað

5-7 sinnum og heyinu blandað vel saman ogsýni sent úr því. Þá er gott að miða við aðsenda eitt sýni úr hverri stæðu.

Hvað segja efnagreiningarnar okkur?Þegar sýni eru send til efnagreininga á Íslandifást upplýsingar um þurrefnisinnihald,meltanleika, prótein, NDF, steinefni (Ca, Mg,P, K, Na og S) og svo eru reiknuð gildi fyrirAAT, PBV og FEm. Auk þess er núna hægt aðfá viðbótargreiningar á fóðrinu, sem ernauðsynlegt þegar vinna á með NorFor-fóðurmatskerfið, en þá bætast við aska, iNDFog laust prótein. Í 1. töflu koma framútskýringar á þeim þáttum sem fást meðefnagreiningum. Það er einnig möguleiki aðsenda sýni til útlanda til efnagreininga en þáer hægt að fá enn meiri upplýsingar uminnihald fóðursins, eins og gerjunarafurðir(ammoníak, mjólkursýru og ediksýru) ogsykur. Það eru þættir sem vonandi verðureinnig hægt að fá greinda á Íslandi áður enlangt um líður því þegar unnið er með votheyviljum við líka fá gerjunarafurðirnar greindar

1. tafla. Útskýringar á þeim þáttum sem fást með efnagreiningum

Page 23: Freyja 2-2

22FREYJA 2-2

því þær hafa áhrif á átgetuna. Gerjunar-afurðirnar segja okkur hvort verkunin hafiheppnast vel eða ekki. Vel gerjað votheyinniheldur mest af mjólkursýru, lítils háttar afediksýru en enga smjörsýru. Hátt gildi áammoníaki er neikvætt því það þýðir að mikiðprótein hefur brotnað niður strax viðgerjunina. Sykurinnihald fóðursins skiptirfrekar máli þegar unnið er með þurrara fóður,en sykur er auðleyst kolvetni sem nýtast straxí vömb.

Eftir því sem grasið þroskast lækkarmeltanleikinn, próteinið minnkar en tréniðeykst. Í þurrkatíð er sprettan minni enþroskinn heldur áfram, þetta á einnig viðþegar borið er minna á af köfnunarefni.Því er mikilvægt að fylgjast vel meðþroska túngrasa og slá áður ennæringargildi þeirra hafa fallið svo aðfóðrið dugi ekki til þeirrar framleiðslusem við gerum kröfu um. Gæðamat ágróffóðri er þannig í forðagæslunni aðúrvalshey er með meltanleika 74% eðahærra og að lágmarki 0,85 FEm,úrvalshey ætti því að vera með NOMnálægt 6,30 MJ. Næsti flokkur eða gotthey er þegar meltanlegt þurrefni fer ekkiniður fyrir 70% og a.m.k. 0,80 FEm. Efmiðað er við þróun undanfarinna ára séstað eftir 20. júní fellur meltanleikinn niðurfyrir það mark að heyið geti kallastúrvalshey, en fyrstu vikuna í júlí hefur

það ennþá flokkast sem gott hey að meðaltali.Æskilegt er að prótein í gróffóðri sé á bilinu140-160 g/kg þe. sem hefur gjarnan verið íkringum mánaðamótin júní-júlí. En hafa ber íhuga að fóðurgildið lækkar eitthvað viðverkunina. NDF-gildi í fóðri á að vera á bilinu480-520 g/kg þe. og iNDF 80-120 g/kg NDF.NDF hækkar með auknum þroska og þegarvið sjáum hærri gildi en þetta er fóðrið orðiðgrófara og tormeltara, þá brotnar það hægarniður í vömbinni, sem takmarkar át. 2. taflasýnir viðmiðunargildi fyrir gott gróffóður semá að étast vel og inniheldur nægjanlegt magntrefja og próteins.

FÓÐRUN

© Bjarni Ingvar Bergsson

2. tafla. Viðmiðunargildi fyrir gott gróffóður

Page 24: Freyja 2-2

SVÍNARÆKT

23 FREYJA 2-2

Útivist svínaSvínabúskapur sem byggir á því að hafa svínin úti hefur aukist verulega í hinum vestrænaheimi á síðustu árum. Með þessu er að vissu leyti verið að fara til baka til þess tíma þegarsvínabúskapur var dreifðari og í minni einingum. Krafan um aukna hollustu og ódýrarimatvæli gerði það að verkum að búin stækkuðu og smitvarnir voru auknar. Með aukinnialmennri velmegun er aftur farið að horfa til gömlu eininganna þar sem aukin áhersla er lögðá rými og útivist dýranna.Í raun er ekki verið að snúa aftur til þess tíma sem áður var þótt formið sé svipað. Eins ogsvínabú erlendis, þar sem svín eru höfð úti, hafa þróast þurfa þau að uppfylla margs konargæðakröfur og ekkert er slakað á kröfum um gæði og hreinleika afurðanna. Í þessari grein erætlunin að gefa lesendum örlitla innsýn í hvað útivist svína snýst um.

Aðstæður hér á landi hvað veðurfar snertir erunokkuð ólíkar þeim sem finnast á þeimstöðum þar sem útivist á svínum er hvað meststunduð. Þó er hægt að miða sig við aðstæðurá Norðurlöndunum en þar hefur útivist svínaverið í nokkrum vexti og þróun síðustu ár.Nútíma svín eru ekki vel undir það búin aðtakast á við slæma veðráttu sökum þess aðþau eru illa hærð og hlutfall fitu er lágt. Þaueru einnig illa varin fyrir sólarljósi og getasólbrunnið, sérstaklega á það við hvítu kynin.Þrátt fyrir að í gegnum árin hafi náttúrulegvörn þeirra gegn umhverfisþáttum minnkað,

þá hefur gengið nokkuð vel að hafa svínúti á Norðurlöndunum.

Í útivist eru svínunum skapaðar aðstæðursem henta þeim og reynt er að uppfyllanáttúrulegar þarfir þeirra. Sýnt hefur

verið fram á, í atferlisrannsóknum bæði íhefðbundnu eldi á húsi og úti, að ræktun ogumhverfisbreytingar hafa lítið breyttnáttúrulegu hegðunarmynstri svína.

Þegar talað er um „outdoor pig production“eða eins og ég kýs að kalla það, útivist svína,þá er verið að vísa til aðstæðna þar sem svínineru höfð úti allt árið eða hluta úr ári. Svínineru úti í afgirtum hólfum, þeim er gefið út,bæði vatn og kjarnfóður. Gróffóður er oftastgefið með en þau eru líka höfð á beit þar semaðstæður eru til þess. Svínin eiga alltaf að hafagott skjól og algengast er að notaðir séu

braggar sem dýrin hafast við í en í þeimþarf að vera þurr og góður undirburðurtil þess að halda hita á dýrunum. Þaðgefur auga leið að aðstæður geta veriðerfiðar, svað getur myndast á svæðinu ogsnjór og frost gert fóðrun erfiða. Vegnaþessa þarf öll aðstaða, fóðrunarbúnaður,aðkoma og staðsetning dýranna miðaðvið gothring að vera vel skipulögð.

Smitvarnir eru ekki síður mikilvægar íútivist en innifóðrun, þótt ekki sé verið aðtala um hefðbundnar smitvarnir.

©

KARVEL LINDBERG KARVELSSON

Svína- og alifuglaráðunauturBændasamtökum Íslandsklk@bondi. is

Útivist svína

Page 25: Freyja 2-2

SVÍNARÆKT

24FREYJA 2-2

virðist gera það að verkum að smitálagið erminna og því eiga grísirnir betri möguleika áað komast á legg. Gylturnar mjólka betur semmá rekja til meiri hreyfingar og minni hættu ásýkingu í kringum got. Helstu vandamálineru; meindýr sem komast inn á svæðið,ofkæling grísa, gyltan leggst á grísina inni íbröggunum og móðureiginleikar gyltunnargeta verið litlir sem gerir það að verkum aðhún sinnir ekki grísunum.

Grísirnir eru í flestum tilfellum teknir inn eftirfráfærur og þá hafðir við góðar aðstæður meðundirburði og aðgang að útisvæði. Þeir eruteknir inn til þess að hagkvæmni náist íeldinu. Grísir sem eru hafðir úti allaneldistímann þurfa mikið pláss (ef 10 gyltur eruað gjóta í einu þá geta þetta verið um 120grísir). Þeir róta mikið þannig að svæðið veðstfljótt upp og þá verður annaðhvort að færagrísina til, eða bera undir þá. Ef um minni búer að ræða, þá eru grísir stundum hafðir útiallan eldistímann, er það yfirleitt gert vegnaþess að reglur (lífræn ræktun, vistvæn ræktun)eða reglugerðir krefjast þess. Veðurfar hér álandi hentar varla til þess að hafa grísi úti alltárið.

Á myndinni má sjá einfalt dæmi um þaðhvernig svona kerfi eru sett upp. Ytri girðinginer þétt til varnar utanaðkomandi dýrum eninnri girðingin er til þess að skipta svínunumniður í hópa, á milli er svo aðgengi fyrir tæki.

Reglugerðir varð-andi svínahald utan-dyra eru mismun-andi eftir löndum.Bændur eða félags-skapur á þeirravegum setur séreinnig reglur umaðbúnað. Hér á landier mjög lítil reynslaaf því að halda svínutandyra í einhverjumæli og því lítið semhægt er að hafa tilviðmiðunar annað enreynsla annarraþjóða.

Vargfuglar geta verið vandamál því þeir leita ífóðrið og eru fljótir að læra á það hvenær gjafireru. Fóðurútbúnaður fyrir kjarnfóðurgjöfhefur því verið hannaður þannig að semminnst fari til spillis. Það minnkar ásókn fuglaog músa að fóðurdöllunum. Utanaðkomandimeindýr mega ekki komast inn á svæðið ogþrátt fyrir að okkar fána sé blessunarlega rýr íþeim efnum þá gætu refir og minkar drepiðnýfædda grísi. Það má því segja að útivistsvína geri ekki minni kröfur til stjórnunar-hæfileika bóndans en hefðbundinn búskapur.

Meðgöngugyltur (geldgyltur) sem hafa veriðsæddar (hleypt til) á sama tíma eru hafðarsaman rétt eins og í hefðbundnu kerfi. Þær eruþá ýmist hafðar úti eða inni alla meðgönguna,það fer eftir stærð búsins, regluforms ogaðstæðum hvaða kerfi er valið. Ef gylturnareru teknar inn, þá eru þær í lausagöngu ogmeð aðgang að útisvæði sem oft er skyggniyfir og steypt gólf til þess að auðvelda þrif ogkoma í veg fyrir að jarðvegur verði eitt svað.Gyltunum er hleypt út að lágmarki viku fyriráætlað got til að þær venjist nýju aðstæðunum.

Gylturnar gjóta venjulega í bröggunum, það erallavega æskilegast og yfirleitt er ein gylta íhverjum bragga. Grísirnir ganga undirgyltunni í 5 vikur og eru þá teknir undan. Þaðhefur gefist nokkuð vel að láta gotgylturnargjóta úti, árangurinn er oft á tíðum betri en efþær gjóta inni. Minni þéttleiki á dýrunum

Dæmi um skipulag fyrir útivist svína

Page 26: Freyja 2-2

25 FREYJA 2-2

Tilraunaverkefni Svínaræktarfélags Íslandsvarðandi eldi á grísum í frjálsu umhverfi hefurvakið nokkra athygli. Svínabændur eru meðþessu að þreifa sig áfram með „nýtt“framleiðsluform til viðbótar við hefðbundinnbúskap.

Sú leið sem hefur verið valin í verkefniSvínaræktarfélagsins er að ala grísi í litlumhópum frá 6 vikna aldri til slátrunar.Forráðamenn dýranna verða valdir úr hópiumsækjenda og Svínaræktarfélagið mun sjáum að afhenda dýrin. Grísirnir verða hafðir í

húsi en hafa aðgang að útisvæði og ætlast er tilað þeim sé hleypt út þegar vel viðrar.Grísirnir verða það stálpaðir við afhendinguað viðkvæmasti hluti eldistímans er að baki ogeldið fer að mestu leyti fram yfirsumartímann. Engu að síður verður fróðlegtað fylgjast með hvernig til tekst og verkefniðer mikilvægur liður í því að safna þekkinguvarðandi útivist svína hér á landi.

Þeir bændur sem hafa áhuga á að prófa aðvera með svín í útivist ættu að kynna sér vel tilhvers er ætlast og byrja smátt á meðanreynslan er að byggjast upp.

SVÍNARÆKT

© Sugar Mountain Farm / www.sugarmtnfarm.com

Leiðbeiningar við sýnatökuHirðingarsýni

Sýni er tekið við hirðingu og á að gefa þverskurð af heyinu á spildunni t.d með því að fara eftirhornalínu spildunar og hey tekið hér og þar. Ef senda á samsýni til efnagreininga er sturtað úrpokunum af viðeigandi spildum í bala, því blandað vel saman og sett í einn poka.

Verkuð sýniFóðrið þarf að hafa verkast í u.þ.b. 6 vikur. Sýni úr stæðum er best að taka þegar stæðan eropnuð. Borað skal 5-7 sinnum, þversnið af stæðunni og því blandað vel saman. Við sýnatöku úrrúllum þarf að bora í 2-3 rúllur fyrir eitt samsýni, 2-3 sinnum í hverri rúllu, bæði ofarlega ogneðarlega. Öllu blandað saman í bala og sýni tekið í poka. Gott er að huga að sýnatökunni straxþegar rúllum er keyrt heim á sumrin og þær rúllur sem eiga að fara í sýnatökuna settar til hliðarog gefnar strax og búið er að gata þær.

Meðferð sýnaÞegar tekin eru hirðingarsýni þarf að koma þeim strax í frystikistu og geyma þar til þau eru öllsend til efnagreiningar. Verkuðu sýnin eru send strax eftir að þau eru tekin.

Merking sýnaMikilvægt er að merkja sýnin vel. Það sem þarf að koma fram er nafn bónda og býlis,sláttudagur, hirðingadagur, 1. eða 2. sláttur, hvort um sé að ræða grassýni, hirðingarsýni eðaverkaðsýni. Einnig verkunaraðferð, rúllur, þurrhey, vothey o.s.frv. Er þetta gras eða grænfóðurog þá hvað. Æskilegt er að tilgreina spildu eða auðkenna sýnið á einhvern hátt sem og hvað á aðláta efnagreina.

/BÓÓ

Page 27: Freyja 2-2

AFREKSGRIPIR

26FREYJA 2-2

Undanfarin þrjú ár hefur sæðingastöðvahrúturinn Grábotni 06-833 fengið mikla og útbreiddanotkun á landsvísu. Í þessum greinarstúf skal þvi aðeins sagt frá móður hans og systkinum.

Móðir hans, Grábotna 04-364 var sett á sem smálamb haustið 2004. Af þeim sökum bar hún ekkivorið 2005 en þótti svo falleg það haust að hún var sett á. Á fengitíð það haust var hún samstilltog sædd með Grím 01-928 í þeirri von að hún skilaði mislitum lömbum og um vorið var húntvílembd, átti gimbur sem sett var á þá um haustið en hrútnum Grábotna var bjargað fyrirtilviljun úr sláturlambahópnum skömmu áður en fjárflutningabíllinn renndi í hlaðið.

Þar voru komnir Reynihlíðarbændur í leit að þokkalegum mislitum hrút til að bjóða mislituánum upp á, á komandi fengitíð en þeir höfðu þá víða leitað að gráum hrút. Systir Grábotnahlaut nafni Kólga og hefur alltaf verið tvílembd, utan gemlingsárið er hún var einlembd.Grábotna er eins og sjá má á myndinni enn við ágætis heilsu, en hún var tekin í fjárhúsunum hjáEyþóri í Baldursheimi nú í desember áður en henni var haldið undir kynbótahrútinn SælaSokkason.

Hún þykir mikill og skemmtilegur karakter, gríðarlega löng og virkjamikil. Hún hefur veriðsædd tvisvar en hélt bara í annað skiptið. Búið er að keyra hana fjórum sinnum á bæi undirmerkishrúta að meðtaldri þessari Baldursheimsferð. Grábotna hefur alls átt 13 lömb og níuþeirra hafa verið sett á, 7 ær og 2 hrútar. Allar þessar ær hafa yfirburða kynbótaspá fyrir allaeiginleika og skilað ágætis afurðum.

Faðir Grábotnu, Spakur 02-725 var nærri því á sínum tíma að komast á sæðingastöð, en hann áttisíðast afkvæmi árið 2009 og var felldur eftir fengitíð það ár. Hann á fjölda dætra í Vogum 2 ogmargar hafa reynst með ágætum. Móðir hennar, Branda 00-170 var felld 2005 og var Grábotnaeina kindin sem sett var á undan henni.

Tilviljun réði því að ekki var búið að gelda Grábotna áður en ljóst var að hann var að skilaprýðisföllum í sláturhúsi með vænleika vel yfir meðallagi – nokkuð sem varð til þess að athyglinbeindist að hrútnum. Áður en hann kom til notkunar á sæðingastöð var mikið búið að notakappann og talsverð reynsla komin á hann víðar en á heimabúi. Hrútar undan honum hafareynst misjafnlega þegar horft er til vöðvaflokkunar, en dætur hans almennt frjósamar ogmjólkurlagnar svo sem sjá má úr uppgjörum á landsvísu.

María Svanþrúður Jónsdóttir, héraðsráðunauturDaði Lange Friðriksson, fyrrum eigandi

Tilvist Grábotna 06­833

© Eyþór Pétursson © Sauðfjársæðingarstöð Vesturlands

Page 28: Freyja 2-2

SAGAN

27 FREYJA 2-2

HEYSKAPURNokkur orð og hugtök sem lýsa gamla verklaginuÞað er kunnara en frá þurfi að segja, að verklag og orðnotkun þjóðarinnar hefur breyst ístökkum og bylgjum í takt við seinni tíma vélvæðingu og umbrot í þjóðfélagsgerðinni, úrrótgrónu bændasamfélagi í borgríkistilburðir og stórbænda hjarðbúskap.Höfundur þessarar greinar er fædd 1921 og ólst upp í Núpsöxl á Laxárdal fremri, AusturHúnavatnssýslu til 14 ára aldurs, 1935.

Það fer því hver að verða síðastur að safnasaman lifandi frásögnum þeirra sem enn eruuppi og tóku þátt í daglegum störfumhorfinna tíma. Hér verður reynt að bregðaupp mynd af aðferð við heyöflun á fyrri hlutasíðustu aldar.

Til þess að túngrös spryttu fljótt og vel þurftiað bera á túnin, en það tilheyrði vorverkunumog verður ekki tekið fyrir hér. Það er efni íannan þátt, ef bera á saman vinnubrögð fyrrog nú. Um það mætti fjalla með mörgumorðum sem orðin eru lítt skiljanleg yngra fólki.En hér verður aðeins sagt frá orðnotkun viðheyskap í því umhverfi sem höfundur ólstupp í á síðustu öld. Þá var engjaheyskapurmeiri og tímafrekari hluti heyaflans, áður envélar til túnræktar komu, um og upp úr miðriöldinni og breyttu verklaginu.

Fyrir sumarið þurfti að huga að amboðunum,tinda hrífur ef brotnað hafði eða smognað úrtindur, þá þurfti að kljúfa Brúnbrísinn og tálgatil í sívalning efst, sem passaði og fyllti vel út ígatið á hausnum á hrífunni, stinga tindinumniður í gegnum gatið á steðjanum og hnoðaendann sem upp úr stóð af tindinum svo hannfestist í. Eins gat hrífan hafa losnað upp á viðað gisna í geymslunni uppi á bitum eða bakvið sperrur í skemmunni yfir veturinn. Þáþurfti að þétta skaftið í auganu á hausnum oghyggja að klónni svo hún hlökti ekki áfestingunni.

Það fylgdi föstum vorverkum að búa fólki íhendurnar fyrir sláttinn svo allt væri tiltæktþegar kaupafólkið kæmi í heyskapinn. Orfinþurfti einnig að yfirfara, huga að lausumhælum og hólkum, dengja ljái, draga á, eðaleggja á hverfisteininn eftir að Eylandsljáirnirleystu Bakkaljáina af hólmi og þar meðklöppuna og litla, ferkantaða klöppusteðjann,sem rekinn var ofan í þúfu í slægjunni og setiðvið, flötum beinum, meðan dengt var, þ.e.ljárinn klappaður. Brýni mátti ekki gleyma aðkaupa þegar farið var með ullina íkaupstaðinn að vorinu. Þá varð að birgjaheimilið upp með allt sem nota þurfti yfirsumarið, jafnt matvöru sem smáhluti og svovar farið að bera niður eða bera ljá í gras, oft í11.viku sumars. Byrjað á að „slá frá bænum“slá bæjarhólinn, helst á „laugardegi til lukku“,svo allt gengi að óskum með heyskapinn yfirsumarið. Ekki þótti ráðlegt að slá torfþakið ábænum um leið, „því það hrekst oftastbæjartaðan“ og enginn vildi fá óþurrka íbyrjun sláttar og grasið á bæjarþekjunni hlífðitorfinu við ofþornun yfir sumarið svo ekkert lá

GUÐRÍÐUR B . HELGADÓTTIR

fv. húsmóðir Austurhlíð,Bólstaðarhlíðarhreppigudridurbh@gmail .com

SKIPULAGSMÁL

27 FREYJA 2-2

SAGAN

27 FREYJA 2-2

Núpsöxl 1935 að hausti, uppborin og þakin hey© Guðríður B. Helgadóttir, saumuð mynd

Page 29: Freyja 2-2

SAGAN

28FREYJA 2-2

unnið með handverkfærum og heyfengurinnyfir sumarið var frumskilyrði fyrir arðsömumskepnum og afkomu búsins þar sem hvaðleiddi af öðru um sameiginlega velferð.

En það var ekki nóg að vera flummur að slá ogflæmast yfir engi og tún, það þurfti líka aðraka, rifja, sæta og binda, reiða heim, farameð og koma fyrir í heygarði, tóft eða hlöðu.Loðin tún breiddu á sig, svo ekki þurfti annaðen slá úr múgum, sumstaðar var minna á ognáði ekki saman í mátulega þykkan flekk, þávar rakað utanað eða rakað úr nærliggjandiþúfum inn á og borið í flekk eins oghaganlegast var. Þá var flekkurinn lagður ígarða og rifjaður aftur og aftur í þurrki,þannig að heyinu var snúið við, tekið hreintupp úr götunni svo ekki yrðu eftir lyskrur ogblautar tuggur við jörðina, látið þorna á það

á að slá það strax. Þegar allt var komið í gangskáruðu sláttumennirnir á greiðfæru, hjugguog kroppuðu af þúfunum, urguðu og börðu afþurrum harðbalahólum og reyndu að notarekjuna snemma á morgnana.Menn voru mislagnir við að láta bíta hjá sér.Lyginn maður brýnir best segir máltækið, þóþað sé órannsakað mál. En staðreynd er aðsumum beit eins og að bregða í vatn, meðanaðrir náðu aldrei egg í ljá, börðust um, nöguðutoppótt, skáru ljámýs og tóku aldrei hreint úrhöggi, meðan hinir, sem kunnu að búa sér íhendurnar, sveifluðu orfinu léttilega, tókubreiðan skára og mikið fyrir í hverju ljáfari,slógu jafnt og vel í þéttan, beinan múga, þarsem skárað var úr og í eins og oft var gert ásléttum engjum. Þannig múga þurfti ekki aðsaxa í fang þó að bera þyrfti til í ljánni, aðeinsýta saman frá endanum og þá lá grasið eins ogsaxað eftir hvert ljáfar. Þetta kom sér einkarvel þar sem þurfti að vaga á heysleða semdráttarhesti var beitt fyrir eða bera á vögumþegar dregið var upp úr bleytu á þurrari jaðratil þurrkunar, t.d. úr forarflóum og kílum, líkaþekktist að binda votaband.Ef margir stóðu við slátt samtímis á greiðfærukom fyrir að þeir röðuðu sér á teiginn, ogkallaðist það að slá þrælaslátt, skáraði hver áeftir öðrum þvert á spilduna sem tekin varfyrir. Ef einhver hólmaði sig af, var hann þákallaður hólmaskítur, eða sagt að skrattinnskeit á eggina hjá honum ef hann lauk ekkihólmanum í einni lotu. Sláttumönnum varekkert um að rakstrarkonur rökuðu þá upp aðrassi, geltu þá eða hefðu vel á eftir að komaljánni í flekk til þurrkunar. Góðursláttumaður og dugleg „kaupakona“ vorugullsígildi fyrir bóndann, á meðan allt var

Núpsöxl 1935, teikning af bæjarhúsum og gólffleti.

Hey sett upp í fúlgu

Page 30: Freyja 2-2

SAGAN

29 FREYJA 2-2

sem upp sneri á milli rifjinga þar til heyið varorðið nægilega þurrt til að raka saman. Þá varfarið að taka saman, sæta, eða bólstra afmiklu kappi. Allir sem vettlingi gátu valdiðröðuðu sér í flekkina að drífasaman heyið. Byrjað var á þvíað raka utan með, 2-3 hrífuförþar til kominn var þykkur garðisem saxaður var í föng og oftastvar það hlutverk húsbóndanseða einhvers karlmannsins aðbera saman og sæta, en konurog liðléttingar rökuðu dreifina,drógu í garða og söxuðumúgana, allt eftir kunnáttu oggetu hvers og eins. Ef mikið hey var undir ásamfelldu svæði var sett í tvísett sæti þannigað föngin voru lögð í beina röð, látin aðeinsskarast, endi við enda, svo langt sem sætið áttiað vera, síðan var lögð önnur röð samhliða,jafnlöng þeirri fyrri sem undirstaða að sætinuog ofan á þessar raðir jafnlengd á hliðarnar tilskiptis, þannig að brún seinni raðar namaðeins inn á jaðar fangsins á móti og battþannig saman sætið svo það gliðnaði ekki ísundur en þyldi veður. Stafnarnir áttu að veralóðréttir og þéttir. Öll föng voru dregin þéttsaman og þjappað í sætið, hlaðið jafnt, ekkimeð gúlum og geilum sem drap í, í rigningu.Þannig var sætið hlaðið upp í hæfilega hæð,t.d. 6 fangaraðir á hvorri hlið og aðeins dregiðað sér eftir því sem ofar dró, þar tilmænisfangið lokaði samskeytunum eftirendilangri miðju sætisins. Þá var sætið kembt,rakað frá og byrjað á næsta sæti á sama hátt.

Ef sætt var í lanir eða sátur sem stundum vargert við linþurt hey svo það gæti blásið og

þornað frekar, þá var sætt í einfalda fangaröð,7-9 föng í undirstöðu, þar ofan á jafnbreiðfangaröð, en aðeins dregið að sér jafnt frábáðum endum, þar til eitt fang lokaði í

toppinn, þá var komin sáta, enætti að búa til lön þá varhlaðinn fótur við miðjusátunnar, jafnarma, með samalagi og sátan, upp með hliðsátunnar og lokað með einumænisfangi á miðju. Krosslön(sjá mynd) fékk annan fót eins ámiðri hlið á móti, svolýsingarorðið fékk gegnsæjamerkingu og auðskilda.

Í skúrasamri óþurrkatíð var oft gripið til þessráðs að raka í föng eða fanga hálfþurra flekki.Það gat blásið í föngin, ef þau voru þétt dreginsaman og vel reist upp í miðju, hliðinni snúið ívindáttina, svo golan blési í gegn. Oft þurfti þáekki annað en botna föngin með því aðsmeygja hendi undir annan enda þess ogvenda því langs aftur yfir sig, þannig aðtognaði úr því á lengdina meðan þaðumsnerist í fallinu. Þetta var gert létt ogliðlega svo fangið lá sem saxað og mátti þáaftur draga saman og sæta úr því eða fanga áný, en stundum þurfti að dreifa og slá úr ogþurrka betur.

Bindingsdagar voru svo annar kapítuli ogþeim fylgdi mikið umstang. Þá var vaknaðsnemma, hestarnir sóttir, bandbeisli lagt í flýti,við þá sem áttu að vera undir böggum, lagðurá þá reiðingurinn og allt gert klárt fyrirkappsfullan dag. Þá var betra að allt væri ígóðu lagi, reiðingar, beisli, reipi, tögl oghagldir. Því ekki borgaði sig að leggja niðureða setja á slitin og léleg reipi, sem slitnuðuþegar reyrt var að sátunni svo allt fór úrböndunum, tafði og ergði bindingsfólkið ogkaupakonan varð að leggja niður annað reipiog setja á aftur sömu föngin, sem komin voruí kássu svo saxa þurfti upp á nýtt. Alltaf þurftihún að passa að leggja ekki niður í hliðarhallaeða setja skakkt á reipin því skakkar sáturreyrðust illa og fóru illa á klakk og hesti, fórujafnvel úr böndunum, ef ekki strax þá áleiðinni heim ef hestar tróðust fram með íGuðmundur Márusson ásamt höfundi

að binda sátu í Glaumbæ 1997

Page 31: Freyja 2-2

SAGAN

30FREYJA 2-2

reiðingshestana, þ.e. setti á klakk, ogliðléttingurinn, sem fór með eða tók rökin,stóð undir fyrri sátunni meðan hinni varsveiflað á klakkinn á móti. Vel þurfti að jafnasaman sátum á hvern hest svo ekki hallaðistá, á leiðinni heim, eða færi um hrygg, sem varhámark vandamála þess sem fór á milli meðlestina. En oft var hægt að smeygja steiniundir band á léttari bagganum til þess að ríðabaggamuninn svo allt kæmist heilt heim.Þegar heim að heystæðinu kom, hvort semþað var hlaða, tóft eða heygarður, var tekiðofan af hestunum, annar gangur af reipumhengdur á klakkana og milliferðaknapinnsneri snöggt við í næstu ferð, en sá sem tók ámóti fór að koma fyrir, leysa úr reipunum oggera þau upp aftur klár til næstu ferðar. Efhlaðið var upp hey í tóft, varð að gera það afkunnáttu og vandvirkni, svo heyið verði sig,en lægi ekki í lautum og bollum undir torfinu,sem vatn safnaðist í. Væri svo um búið gatheyið botndrepið og stórskemmst í tóftinni þóvel væri verkað að sumrinu. Svo var heyiðþakið og gert í kring og gengið frá fyrirveturinn. Þetta gerðu margir af slíkri snilld aðorð fór af, en hjá öðrum verkaðist illa hey ítóftum, ef þeim var ekki lagið að koma velfyrir.Hér að framan er aðeins stiklað á stóru ogmörgu sleppt, sem æskilegt væri að bæta inn í.Verður það e.t.v. gert síðar. Og alltaf erufjölbreytileg orðatiltæki og orð um samaverknað eða áhald, eftir landshlutum. Gamanværi að skoða það nánar.

lestinni eða baggar nudduðust utan í. Oftvoru margir hestar í lest, bundnir hver aftan íannan, ýmist var þá taumurinn bundinn ummiðjan klifberabogann eða þeir voru hnýttir ítaglið á næsta hesti fyrir framan, voru þeir þáorðnir taglhnýtingar, sem var helst ekki gertnema þegar flutt var heytorf úr flagi tilþurrkunar á vorin. (En þá voru torfurnarlagðar þvert yfir bert bak hestanna og enginnklifberi til að festa taum í).

Konan lagði niður reipin og setti á.Aðalatriðið að það sé gert rétt, jafnt og vel. Þáer raðað fyrst þrem föngum þétt enda við endaá reipin frá högldum, passa að föngin standijafnt út af reipum báðum megin, þar ofan áaftur 3 föng aðeins minni og síðan 2 föng efstsvo sátan dragist að sér til endanna ogþjappist betur saman þegar reyrt er að. Mikiðatriði að setja sem jafnast á svo vel fari áhestunum þegar á klakk er komið.Karlmaðurinn batt sátuna stundum einn.Lagði reipin upp á, dró í hagldir og reyrði að,sté sátuna og hafði bæði tögl og hagldir,reyrði enn fastar, sveiflaði sátunni á hlið, gerðiað og tók utan úr, allt með snöggum, liprumog fumlausum handtökum. En sumstaðartíðkaðist að tvö byndu saman, sem var léttarahjá samhentu fólki. Þá dró konan reipin íhagldir, lagði þau upp á sátuna á mótikarlinum sem tók við endum, dró sátunasaman, sté hana og reyrði fast, konan stóðáfram við enda sátunnar hagldamegin, héltum reiptöglin og hjálpaði þannig til við aðreyra að og sveifla sátunni til að gera að ogtaka utan úr. En karlmaðurinn lét upp á

Heybandslest

Page 32: Freyja 2-2

SAUÐFJÁRRÆKT

31 FREYJA 2-2

Þættir sem hafa mögulegaáhrif á fósturdauðaMargt hefur verið skoðað tengt áhrifumfóðrunar og fóðrunaraðferða á frjósemi áa oglifun lamba (hvort talin fóstur fæðast lifandi).Meðal annars hefur verið horft til fóðrunar ábætiefnum og snefilefnum, þá ekki síst selenisem þekkt er að er mikilvægt m.a. þegarkemur að frjósemi og lifun ungviðis. Einnighafa ýmsir þættir tengdir meðferð fjárins veriðrannsakaðir og margt fleira. Rafmagn ografgæðamál hafa verið skoðuð talsvert ígegnum tíðina en markviss kortlagning áhrifaá heilsufar búfjár hefur ekki farið fram.

Sérstaklega hefur verið horft til jarðtengingaútihúsa sem víða hafa reynst í miklum ólestriog margir hafa lagt í kostnaðarsamar aðgerðirsem skilað hafa misjöfnum árangri sé horft tilfósturdauða.

Jarðfræðileg streitusvæðiog mögulegar mótvægisaðgerðirSumarið 2009 hóf Bryndís Pétursdóttir aðkanna áhrif er tengjast jarðfræðilegumstreitusvæðum (geopathic stress), á heilsufarbúfjár, en þau lýsa sér sem einskonarsegulóreiða sem myndast ofan við stærrisprungur og vatnsæðar í jarðskorpunni

(http://www.bryndis.is/). Áhrif slíkrarsegulóreiðu á heilsufarstengda þætti hjáfólki hafa verið rannsökuð frá því snemmaá 20 öld. Þar sem fólk býr við slíkaraðstæður virðist m.a. skapast meiri hættaá krabbameini og öðrum alvarlegumsjúkdómum4. Ýmislegt í þessumrannsóknum bendir til þess að neikvæðáhrif streitusvæðanna á menn og dýr séusvipuð áhrifum rafsegulsviðs í húsum.Rannsóknir á fósturdauða í sauðfé bendaennfremur til þess að rafmagn getimagnað upp neikvæð áhrif slíkrastreitusvæða, sér í lagi þar semjarðtengingar eru lélegar og rafmengun erfrá biluðum raftækjum1.

Rannsóknir á fósturdauða í sauðféFósturdauði í sauðfé er fyrirbæri sem er fjarri því nýtt af nálinni en tækifæri til að skoðahann nánar skapaðist þegar tækni til fósturtalninga varð til. Slík þjónusta var almennt ekki íboði hérlendis fyrr en upp úr 2003 en síðan þá hefur skapast mikil reynsla í að greinasnemmbúinn fósturdauða í bæði fullorðnum og veturgömlum ám (gemlingum) sem áðurhefðu talist geldar eða einlembdar. Gunnar Björnsson í Sandfellshaga er meðal frumkvöðla ífósturvísatalningum hérlendis og vakti umfang fósturdauða á talningarsvæði hansvangaveltur hans um ástæður og var upphafið að þeim rannsóknum sem hér er fjallað um.

Gunnar Björnsson, bóndi og fósturtalningamaðurBryndís Pétursdóttir, jarðstraumakönnuðurValdemar Gísl i Valdemarsson, rafeindavirkjameistaridr. Rannveig Björnsdóttir, dósent við Háskólann á AkureyriMaría Svanþrúður Jónsdóttir, héraðsráðunautur

© María Svanþrúður Jónsdóttir

Page 33: Freyja 2-2

SAUÐFJÁRRÆKT

32FREYJA 2-2

Einnig hafa áhrif sólgosa á jarðstreitusvæðiverið rannsökuð og þekkt er að þau eruumtalsverð þegar stóru krónugosin eiga sérstað2.

Jarðfræðileg streitusvæði mælir Bryndís meðprjónum, eða svokölluðum dowsing-mælingum en þau má einnig mæla meðviðnámsmælingum, segulmælingum og fleiriaðferðum sem að sama skapi eru mun dýrariog umfangsmeiri. Kannanir Bryndísar leiddutil þróunar svokallaðs mótvægiskubbs ísamstarfi við Garðar Héðinsson rafvirkja ogvélvirkja. Kubburinn er sérhannaður fyrir slíkjarðstreitusvæði og hefur þau áhrif að dragaúr óróa og spennu á þessum svæðum í yfir 100m radíus út frá þeim stað sem hann er settur á.Mælingar jarðfræðilegra streitusvæða á býlumþar sem umfangsmikils fósturdauða varð vartí sauðfé urðu kveikjan að samstarfi umrannsóknir á mögulegum tengslum þarna ámilli.

Rannsóknir á fósturdauða 2010Haustið 2009 hafði mótvægiskubbum veriðkomið fyrir á allnokkrum bæjum, m.a. þar semfósturdauða hafði orðið vart árin á undan. Íbyrjun árs 2010 komu í ljós merki þess aðmótvægiskubburinn drægi úr fósturdauða ogvar í framhaldinu ákveðið að skoðasérstaklega níu bæi. Jarðstreitusvæði vorukortlögð og nákvæm úttekt gerð ájarðtengingum og rafmagnsgæðum auk þesssem helstu upplýsingar úr sauðfjárskýrslum ábæjunum voru teknar saman fimm ár aftur ítímann. Þessir níu bæir voru valdir þannig aðábúendur á 3 þeirra höfðu nýlega látið yfirfarajarðtengingar og rafmagn hjá sér og sett uppmótvægiskubb, 3 ábúendur höfðu einungisfengið kubbinn og 3 höfðu ekki aðhafst neitt.

Rafmagnsmælingarnar framkvæmdiValdemar Gísli Valdemarsson rafeindavirkja-meistari og lögð var áhersla á að fá semgleggsta mynd af rafgæðum á hverjum bæ.Mælt var rafsegulsvið, rafsvið og stöðurafsvið(Combinova FD1) og samhliða skoðuð rafgæðiog hvort óeðlileg THD bjögun leyndist inni árafkerfum, þ.e. hvort tíðnir í réttu margfeldi af50 riðum séu inni í rafkerfinu (Fluke 46 PowerAnalyzer). Gæði jarðskauta voru einnig mæld

(Eurotester 61557 Metrel) svo og snertispennaog skrefspenna (10 MOhm AVO­mælir) oghátíðni í rafkerfum (Grahams Stetzer meter).Niðurstöður mælinga Valdemars sýndu aðekki var að finna rafmengun sem gæti talistalvarleg þar sem sáralítil geislun fannst á þeimníu bæjum sem tóku þátt í rannsókninni3. Ísumum tilfellum var veruleg þörf á að bætajarðtengingar og í öllum tilvikum var þaðmögulegt án stórvægilegra fjárútláta.

Þessi forathugun vorið 2010 gaf sterkarvísbendingar um að mótvægiskubburinn hefðijákvæð áhrif á lifun fósturvísa, jafnvel ábæjum þar sem jarðtengingum var verulegaábótavant. Niðurstöður rannsóknarinnar íheild sinni er að finna í skýrslu tilVaxtarsamnings Norðausturlands1.

Rannsóknir á fósturdauða 2011Í framhaldi af rannsókninni 2010 var ákveðiðað ráðast í umfangsmeira verkefni en skoðajafnframt aðeins fósturdauða í gemlingum semvirtust sérstaklega viðkvæmir fyrirfósturdauða. Til skoðunar voru teknir 30 bæirþar sem fósturvísatalningar árin á undansýndu að fósturdauði var umtalsvertvandamál. Á 13 bæjanna hafði ekkert veriðaðhafst (flokkur A), á 10 bæjanna höfðujarðtengingar verið yfirfarnar og jarðskautumkomið fyrir (flokkur B) og á 6 bæjum hafði

Bryndís Pétursdóttir, jarðstraumakönnuður© Guðbergur Davíðsson

Page 34: Freyja 2-2

33 FREYJA 2-2

jarðskautum og mótvægiskubbum veriðkomið fyrir (flokkur C).

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna umfangs-mikinn fósturdauða í gemlingum á einstakabæjum, bæði þar sem fósturdauða hafði áðurorðið vart en einnig á bæjum þar semvandamálsins hafði ekki áður orðið vart fráþví fósturvísatalningar hófust þar. Fóstur-dauðinn reyndist ekki svæðisbundinn og voruþessir bæir dreifðir um svæðið fráHúnavatnssýslu austur á Fljótsdalshérað.

Fjöldi dauðra fósturvísa sem greindust viðtalningar var afar mismunandi á bæjunum enyfir 10% talinna fósturvísa reyndust misfarast

á um 50% bæja í flokki A (engaraðgerðir), yfir 10% fósturdauði vará 40% bæja í flokki B (jarðskaut)en ekki á neinu þeirra 6 býla íflokki C (jarðskaut og mótvægis-kubbur)sem tóku þátt írannsókninni. Niðurstöður bendaþví til aukins jafnvægis og minnifósturdauða með auknumaðgerðum til úrbóta, annars vegarmeð fullnægjandi frágangijarðskauta og hins vegar meðinnsetningu mótvægiskubbs aukjarðskauta.Við talningar sínar hefur Gunnarorðið þess var að fósturvísar ígemlingum eru frá 3 og upp í 6

vikur að eyðast þannig að leifa verði ekki vartvið talningar. Hátt hlutfall geldra gemlinga áhluta bæjanna í rannsókninni gæti þannigskýrst af dauða fósturvísa nokkru áður entalningar fóru fram þar. Þó ber að geta þess aðeðlilegt má teljast að ákveðinn hluti gemlingasé ekki með lambi. Fósturvísar geta einnigmisfarist eftir að talningar fara fram ábæjunum og lifandi fædd lömb sem hlutfall afheildarfjölda talinna fósturvísa getur gefiðákveðnar vísbendingar þar um. Á bilinu 93-100% talinna fósturvísa skiluðu sér sem lifandifædd lömb á bæjunum í flokki C en einungis47% á einum af bæjunum 13 í flokki A ogmældist mikil segulóreiða á þeim bæ (70%).

Hlutfall dauðra fósturvísa af töldum fóstrum. Myndin sýnir fjölda dauðra fósturvísa sem hlutfall (%) afheildarfjölda talinna fóstra í gemlingum á þeim bæjum sem tóku þátt í rannsókninni. Hver súla sýnirhlutfallið á einstökum bæjum í rannsókninni.

Gunnar Björnsson, bóndi og fósturtalningarmaður

SAUÐFJÁRRÆKT

© Sigrún Franzdóttir

Page 35: Freyja 2-2

34FREYJA 2-2

þær lagfæringar og aðgerðir sem ráðist hefurverið í til úrbóta á nokkrum tugum bæja áþessu svæði skila áfram jákvæðumniðurstöðum varðandi fósturdauða ígemlingum. Þegar á heildina er litið virðastþessar aðgerðir hafa skilað sér í um 60% minnifósturdauða í gemlingum á svæðinusamanborið við árin 2005-2006 og um 95%minni fósturdauða á rannsóknarbæjunum þarsem aðgerðir til úrbóta höfðu farið fram.Greinarhöfundar hvetja bændur þar semfósturdauða verður vart til þess að athugameð jarðskaut útihúsa sinna svo ogjarðfræðileg streitusvæði, þvímótvægisaðgerðir hafa skilað verulegumárangri. Ljóst er þó að þessar aðgerðir hafaekki í öllum tilvikum reynst fullnægjandi ogþví augljóslega aðrir áhrifavaldar umfósturdauða. Það er því krefjandi verkefniframtíðarinnar að finna þessa áhrifavalda ogmikilvægt að þar taki höndum samansérfræðingar svo og framleiðendur ogfjármögnunaraðilar.

Greinarhöfundar vilja koma á framfærisérstöku þakklæti til forráðamannaVaxtarsamnings Norðausturlands því ánstuðnings þeirra í upphafi hefði þetta verkefniekki komist jafn langt og raun ber vitni. Einnigviljum við þakka Fagráði í sauðfjárræktstuðning þess og ekki síst öllum þeimbændum sem tekið hafa þátt í rannsókninni.

Í flokki B skiluðu einungis um 80% talinnafósturvísa sér sem lifandi fædd lömb átveimur bæjanna en segulóreiða mældist ekkiá þessum bæjum. Munur á milli flokkanna varekki marktækur (p=0.079-0.396) en niður-stöður gefa ákveðnar vísbendingar um jákvæðáhrif jarðbindinga og innsetningarmótvægiskubbs á lifun fósturvísa í sauðfé.

Umfangsmiklar mælingar á rafmagni ografmengun voru gerðar á bæjunum aukmælinga Bryndísar. Á aðeins einum bæ íúrtakinu mældust verulega há gildirafsegulsviðs og rafsviðs en það varviðmiðunarbú með litlum vanhöldum. Þarmeð er ekki hægt að álykta að rafmengun frámanngerðu rafmagni sé orsakavaldur ívanhöldum fósturvísa, nema þá að sauðfé séofurnæmt fyrir slíku. Hins vegar er ljóst aðáhrif bættra jarðtenginga eru ótvíræð en meðgóðum jarðskautum er viðnám minnkað ografstraum beint rakleiðis í jarðveg en ekki umjárnabindingar og vatnsrör útihúsa. Hin hliðiná áhrifum jarðtenginga tengist jónajafnvægilofts en jónahvolfið er mjög rafhlaðið og togartil sín rafeindir frá jörðu, einnig byggingum.Hús verða þá jákvætt hlaðin og draga þá til sínneikvætt hlaðnar loftagnir. Andrúmsloftið íhúsunum verður því sneytt neikvæðumjónum sem m.a. hefur reynst trufla framleiðsluá serótóníni í heila manna en einstaklings-bundið er hve umfangsmikil áhrif þessa eru ámenn. Áhrif á dýr hafa enn ekki veriðrannsökuð.

Fósturdauði í ársbyrjun 2012Nýafstaðnar fósturvísatalningar leiddu íljós að fósturdauði í gemlingum er meðallra minnsta móti á Norður- ogAusturlandi þó svo að umfangvandamálsins sé enn umtalsvert. Athyglivekur að fósturdauði er nú mikill ánokkrum bæjum þar sem hans hefur ekkiorðið vart áður. Enn fremur er ljóst að

Heimildir:1Bryndís Pétursdóttir, Gunnar Björnsson, María Svanþrúður Jónsdóttir, RannveigBjörnsdóttir (2011). “Frjósemi búfjár – falinn áhrifavaldur?”. Skýrsla tilVaxtarsamnings Norðausturlands 2011.2Phillips T (2010). „NASA science news” (http://science.nasa.gov/science-news/science-at-nasa/2010/16jul_ilws/).3Valdemar Gísli Valdemarsson (2011). „Frjósemi búfjár – falinn áhrifavaldur?Mælingar á rafmengun”. Skýrsla til Vaxtarsamnings Norðausturlands 2011.4Valdemar Gísli Valdemarsson (2003). „Rafsegulsvið ? Hætta eða hugarvíl?“ 133bls. (kaflar 6:1, 9:2, 9:7 og 9:8).

SAUÐFJÁRRÆKT