hallgrímur pétursson slideshow
TRANSCRIPT
Hallgrímur Pétursson
Eftir Alexander
í 7.AJ í Ölduselssk
óla
Fæðingarár og staðurHallgrímur Pétursson fæddist 1614 í Gröf á Höfðaströnd
Sonur hjónanna Péturs Guðmundssonar og konu hans Solveigar Jónsdóttur
UppvaxtarárHann flutti að Hólum í Hjaltadal mjög ungur því pabbi hans fékk vinnu þar
Hann var góður námsmaður, en það hamlaði honum að hann var óþekkur og erfiður í æsku, svo að erfitt var að hemja hann
Þess vegna var honum komið í nám úti í Gluckstadt, sem þá var í Danmörku en nú í Þýskaland aðeins 15 ára gamall
Lærlingur í járnsmíðiHann fór að læra í járnsmíði í Kaupmannahöfn en líkaði það ekki vel því það var erfið vinna
Þar hitti hann Brynjólf Sveinsson, síðar biskup Hallgrím og kom honum í nám í Frúarskóla í Kaupmannahöfn og var Hallgrímur þar við nám í nokkur ár og gekk það vel og var kominn í efsta bekk árið 1636 um haustið
Námsárin í Kaupmannahöfn
• Þá bar svo til, að þetta haust komu til Kaupmannahafnar nokkrir Íslendingar sem höfðu lent í Tyrkjaráninu 1627 og verið úti í Alsír í 9 ár
• Var talið að þeir væru farnir að ryðga í kristinni trú og jafnvel í móðurmálinu. Hallgrímur þurfti þá að kenna þeim aftur móðurmálið og trúna
• Í þessum hópi var kona nokkur frá Vestmannaeyjum sem hét Guðríður Símonardóttir húm gift kona en maður hennar Eyjólfur Sólmundarson hafði sloppið við að vera rænt en dó samt 1636
Hjónaband og barnaeignir
Urðu þau ástfangin Guðríður og Hallgrímur og æxluðust mál þannig að hann yfirgaf námið í Danmörku og fór til Íslands með Guðríði
Komu þau til Íslands í Keflavík snemma vors 1637 og Guðríður var þá ólétt að fyrsta barni þeirra sem varð skírður Eyjólfur Hallgrímsson í höfuð á gamla eyginmanni Guðríðar (Eyjólfi Sölmundarsyni)
Guðríður var allnokkru eldri en Hallgrímur
Starf hans sem prestur
Árið 1644 losnaði embætti prests á Hvalsnesi. Þá ákvað Brynjólfur Sveinsson, biskup í Skálholti, að vígja Hallgrím til þessa embættis, þrátt fyrir það að hann hafði ekki lokið prófi
Hann mun samt hafa verið fyllilega jafn vel menntaður og flestir þeir sem voru vígðir prestar á Íslandi þá síðan flutti hann til Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
LjóðFrægasta ljóð Hallgríms eru Passíusálmarnir þau eru 50 alls sem hann var á að gera í 3 ár (1656-1659)
Sem dæmi um önnur verk hans má nefna sálminn um dauðans óvissan tíma
ÆvilokHallgrímur Pétursson dó 27.október 1674 á Hvalfjörðum út af holdsveiki