Þjóðlagahátíðin á siglufirði 3. – 7. júlí 2013 · greek folk music and theodorakis...

20
Visit www.folkmusik.is Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 3. – 7. júlí 2013 Spilmenn Ríkínís Fiðlarinn á þakinu Sigvaldi Kaldalóns Leikrit um ævi tónskáldsins Miðalda leikhústónlist Ingried Boussaroque Grikkinn Zorba Ung var ég gefin Njáli Dægurlög í anda Njálu Spænsk og suður-amerísk tónlist fyrir fiðlu og gítar Söngur og sónargaldur Norræna sveitin Tranotra Þið munið hann Jörund? Fjögur á palli Sönghópurinn Kvika Glæstar en gleymdar Huldukonur í íslenskri tónlist Ojba Rasta Norsk-eistneska sveitin ÄIO Hinir ástsælu Spaðar Sá ég og heyrði Tríó Kristjönu Arngrímsdóttur

Upload: others

Post on 31-Jan-2021

2 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

  • Visit www.folkmusik.is

    Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 3. – 7. júlí 2013

    Spilmenn Ríkínís Fiðlarinn á þakinu

    Sigvaldi Kaldalóns Leikrit um ævi tónskáldsins

    Miðalda leikhústónlistIngried Boussaroque

    Grikkinn Zorba Ung var ég gefin NjáliDægurlög í anda Njálu

    Spænsk og suður-amerísk tónlist fyrir fiðlu og gítar

    Söngur og sónargaldur

    Norræna sveitin Tranotra

    Þið munið hann Jörund? Fjögur á palli

    Sönghópurinn Kvika

    Glæstar en gleymdarHuldukonur í íslenskri tónlist

    Ojba Rasta

    Norsk-eistneska sveitin ÄIO

    Hinir ástsælu Spaðar

    Sá ég og heyrði Tríó Kristjönu Arngrímsdóttur

  • 13.00 Ráðhústorgið Gengið á Gróuskarðs hnjúk og Hvanneyrarhyrnu

    Á miðri leið má velja um létta göngu á Gróu-skarðshnjúk eða erfiðari leið á Hvann eyrarhyrnu. Frábært útsýni er yfir Siglufjörð af báðum stöðum. Göngutími 3-4 klst.

    20.00 Siglufjarðarkirkja Spilmenn Ríkínís Marta Guðrún Halldórsdóttir, Örn Magnússon,Sigursveinn Magnússon og Ásta Sigríður Arnardóttir syngja íslensk þjóðlög og leika á langspil, symfón, hörpu, gígju og trumbu

    21.30 Bátahúsið Fiðlarinn á þakinu Tónlistin úr söngleiknum

    Jón Svavar Jósefsson söngurUnnur Birna Björnsdóttir fiðla og söngurHaukur Gröndal klarinettÁsgeir Ásgeirsson gítar og búsúkíÞorgrímur Jónsson bassiCem Misirlioglu slagverk

    23.00 Bræðsluhúsið Grána

    Söngur og sónargaldur Júlía Traustadóttir söngurHildur Heimisdóttir langspil

    13.00 Kirkjuloftið Miðalda leikhústónlist Fyrirlesari: Ingried Boussaroque, Kanada

    17.00 Allinn Bullutröll Barnatónleikar með Aðalsteini Ásbergi Sigurðssyni og Þorgerði Ásu Aðalsteinsdóttur

    20.00 Siglufjarðarkirkja Sönghópurinn Kvika Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópranHildigunnur Einarsdóttir altPétur Húni Björnsson tenórJón Svavar Jósefsson bassi

    21.30 Bátahúsið Grikkinn ZorbaTónlistin úr kvikmyndinni

    Ásgeir Ásgeirsson búsúkíUnnur Birna Björnsdóttir söngur og fiðlaHaukur Gröndal klarinett og píanóÞorgrímur Jónsson bassiCem Misirlioglu slagverk

    23.00 Allinn Hinir ástsælu Spaðar Guðmundur Andri Thorsson gítar og söngurGuðmundur Ingólfsson bassi og söngurAðalgeir Arason mandólín og söngurÞorkell Heiðarsson harmónikka og hljómborðMagnús Haraldsson gítar og söngurGuðmundur Pálsson fiðlaSigurður Valgeirsson trommur

    13.00 Kirkjuloftið Grísk þjóðlagatónlist og Þeódórakis

    Fyrirlesari: Ásgeir Ásgeirsson

    17.00 Ráðhústorgið Sungið og leikið á torginu Bæjarbúar hvattir til að taka þátt

    20.00 Siglufjarðarkirkja Sigvaldi Kaldalóns. Leikrit um ævi tónskáldsins

    Elfar Logi Hannesson leikariDagný Arnalds söngur og píanó

    21.30 Bátahúsið Ung var ég gefin Njáli Dægurlög í anda Njálu

    Jóhanna V. Þórhallsdóttir söngurAðalheiður Þorsteinsdóttir píanóGunnar Hrafnsson bassiKjartan Guðnason trommurÓttar Guðmundsson sögumaður

    23.00 Allinn Norræna þjóðlagasveitin Tranotra

    Benjamin Bøgelund Bech klarinettOlaug Furusæter fiðlaSven Midgren fiðla og víóla

    Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 3. - 7. júlí 2013 - Dagskrá

    Föstudagur 5. júlí

    Miðvikudagur 3. júlí

    Fimmtudagur 4. júlí

  • Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 3. - 7. júlí 2013 - Dagskrá

    10.00-12.00

    Efra skólahús, Hlíðarvegi 18

    Íslenskir þjóðdansarNámskeið opið öllum

    Kennarar: Kolfinna Sigurvinsdóttir og Hulda Sverrisdóttir

    14.00 Siglufjarðarkirkja Glæstar en gleymdar - Huldukonur í íslenskri tónlist

    Sigurlaug Arnardóttir söngurÞóra Björk Þórðardóttir gítar og söngurSólveig Þórðardóttir sellóHildur Björgvinsdóttir lesari

    14.00 Allinn Norsk-eistneska þjóðlagasveitin ÄIO

    Katariin Raska söngur, eistneskar sekkjapípur, sópran sax, flautur og gyðingahörpurAnders Hefre írsk flauta, bassaklarinett og söngurJon Hjellum Brodal harðangursfiðla, fiðla og söngurChristian Meaas Svendsen kontrabassi og söngur

    15.00 Þjóðlagasetrið Kvæðamannakaffi Kvæðamenn hittast og kveða hver fyrir annan. Stjórnandi: Þórarinn Hjartarson kvæðamaður. Heitt á könnunni og bakkelsi í boði

    15.30 Siglufjarðarkirkja Sá ég og heyrði - Tríó Kristjönu Arngrímsdóttur

    Kristjana Arngrímsdóttir söngurÖrn Eldjárn gítarJón Rafnsson bassi

    15.30 Allinn Miðaldaleikhús, tónlist og dans

    Ingried Boussaroque, Kanada

    17.00 Siglufjarðarkirkja Spænsk og suður-amerísk tónlist fyrir fiðlu og gítar

    Páll Palomares fiðlaÖgmundur Þór Jóhannesson gítar

    17.00 Síldarminja-safnið

    Þið munið hann Jörund?Fjögur á palli

    Edda Þórarinsdóttir söngurKristján Hrannar Pálsson píanóMagnús Pálsson klarinettPáll Einarsson bassi

    20.30 Bátahúsið Uppskeruhátíð Listamenn af hátíðinni koma fram.Sérstakir gestir: Hafsteinn Sigurðsson sög og Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir harmónikka

    23.00 Allinn Dansleikur Ojba Rasta

    14.00 Siglufjarðarkirkja Sinfóníuhljómsveit unga fólksins

    Hugi Guðmundsson: Minningarbrot. Frumflutn.W. A. Mozart: Fiðlukonsert í A-dúrPjotr Tjækovský: Hnotubrjóturinn (svíta)Einleikari: Gróa Margrét Valdimarsdóttir fiðlaStjórnandi: Gunnsteinn Ólafsson

    16.00 Bjarnatorg við Siglufjarðar-kirkju

    Vígsla brjóstmyndar af sr. Bjarna Þorsteinssyni þjóðlagasafnara

    Brjóstmynd eftir Ragnhildi Stefánsdóttur

    Laugardagur 6. júlí

    Sunnudagur 7. júlí

    RADDIR ÍSLANDSMynddiskur með einstökum upptökum úr Þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteinssonar til sölu á hátíðinni. Fróðlegur bæklingur á átta tungumálum. Verð kr. 2.500

  • 16.00 -17.00

    20.00 -24.00

    Háskólanámskeið um íslenska þjóðlagatónlist, opið öllum almenningi. Það verður að þessu sinni haldið á ensku.

    Umsjónarkennarar: Örn Magnússon og Marta G. Halldórsdóttir.

    Í Þjóðlagaakademíunni verða kennd íslensk þjóð-lög, þ.á.m. rímnalög, tvísöngslög, sálmalög og druslur. Þá verða dansaðir þjóðdansar og kennt

    að leika á langspil og íslenska fiðlu. Einnig verða haldin erindi um erlenda þjóðlaga- og miðald a-tónlist.

    Kennslan fer fram í Siglufjarðarkirkju, nánar tiltekið á kirkjuloftinu.

    Þjóðlagaakademían er haldin með styrk frá Norræna menningarsjóðnum.

    Miðvikudagur 3. júlí

    Þjóðlagaakademían 3.-7. júlí 2013 - 7. starfsár

    Fimmtudagur 4. júlí

    9.00 - 11.00

    11.00 -12.00

    13.00 -14.00

    14.00 -15.00

    15.00 -16.00

    20.00 -24.00

    TvísöngurÖrn Magnússon

    Sálmalög sem þjóðlögMarta G. Halldórsdóttir

    Grísk þjóðlagatónlist og Þeódórakis Ásgeir Ásgeirsson

    Tónlistariðkun kvenna í Ghana Guðrún Ingimundardóttir

    Langspil og íslensk fi ðlaÖrn Magnússon

    Tónleikar á Þjóðlagahátíð

    10.00 -11.00

    11.00 -12.00

    13.00 -14.00

    14.00 -15.00

    15.00 -16.00

    20.00 -24.00

    Föstudagur 5. júlí

    Útsetningar á þjóðlögumÖrn Magnússon og Marta G. Halldórsdóttir

    Tónleikar á Þjóðlagahátíð

    10.00 -12.00

    14.00 - 24.00

    Laugardagur 6. júlí

    Tónleikar á Þjóðlagahátíð14.00 - 16.00

    Sunnudagur 7. júlí

    Sjá nánar um dagskrá Þjóðlagahátíðar 2013 www.folkmusik.is/is/page/thjodlagaakademia-2013

    Móttaka í Þjóðlagasetri sr. Bjarna ÞorsteinssonarSagt frá þjóðlagasöfnun sr. Bjarna Þorsteinssonar. Gunnsteinn Ólafsson

    Tónleikar á Þjóðlagahátíð

    RímnalögGunnsteinn Ólafsson

    Íslenskir þjóðdansarKolfinna Sigurvinsdóttir

    Miðalda leikhústónlist Ingried Boussaroque, Kanada

    Flamenkótónlist – Söngur þjáningar Guðrún Ingimundardóttir

    Íslensk þjóðlögMarta G. Halldórsdóttir

    Tónleikar á Þjóðlagahátíð

  • Reception at the Folk Music Centre in Siglufj ordFolk Music Collector Bjarni Þorsteins-son and his work introduced. Gunnsteinn Ólafsson

    Concerts

    16.00 -17.00

    20.00 -24.00

    Course in English on Icelandic folk music. Tutors: Örn Magnússon and Marta G. Halldórsdóttir

    The main topics of the Folk Music Academy in Siglufjord will be the different types of Icelandic folk music, including ordinary folk songs, rímur songs, tvísöngur (two part organum), folk dances, psalms and folk music arrangements.

    The course also includes lectures on folk music from other countries, given by artists visiting the Folk Music Festival in Siglufjord which will take place at the same time.

    Location: Church of Siglufjörður, 3rd floor.

    The Folk Music Academy is sponsored by the Nordic Culture Fund.

    Wednesday July 3rd

    The Folk Music Academy - July 3rd - July 7th 2013

    Thursday July 4th

    Rímur songsGunnsteinn Ólafsson

    Icelandic Folk DancesKolfinna Sigurvinsdóttir

    Medieval Music Theatre Ingried Boussaroque, Canada

    Flamenco - Song of sufferingGuðrún Ingimundardóttir

    Icelandic folk songsMarta G. Halldórsdóttir

    Concerts

    9.00 - 11.00

    11.00 -12.00

    13.00 -14.00

    14.00 -15.00

    15.00 -16.00

    20.00 -24.00

    Tvísöngur (Two part Organum)Örn Magnússon

    Psalms as folk songsMarta G. Halldórsdóttir

    Greek folk music and Theodorakis Ásgeir Ásgeirsson

    Musical practices of Ashanti women, Ghana Guðrún Ingimundardóttir

    Langspil and Icelandic fi ðlaÖrn Magnússon

    Concerts

    10.00 -11.00

    11.00 -12.00

    13.00 -14.00

    14.00 -15.00

    15.00 -16.00

    20.00 -24.00

    Friday July 5th

    Folk Music ArrangementsÖrn Magnússon and Marta G. Halldórsdóttir

    Concerts

    10.00 -12.00

    14.00 - 24.00

    Saturday July 6th

    Concerts14.00 - 16.00

    Sunday July 7th

    For more information on The Folk Music Academy 2013 please visit www.folkmusik.is/is/page/thjodlagaakademia-2013

  • Tvísöngur Kennari: Guðrún Ingimundardóttir Efra skólahús, Hlíðarvegi 18SalsanámskeiðKennarar: Jóhannes Agnar Kristins-son og Jóhanna Hildur JónsdóttirEfra skólahús, Hlíðarvegi 18Grísk tónlistKennari: Ásgeir ÁsgeirssonEfra skólahús, Hlíðarvegi 18

    Hljómheimur íslenskra þjóðlagaKennari: Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Efra skólahús, Hlíðarvegi 18Geðveiki í íslenskum fornsögumKennari: Óttar GuðmundssonEfra skólahús, Hlíðarvegi 18

    Netfang: [email protected]íða: www.folkmusik.isFramkvæmdastjóri: Mónika Dís Árnadóttir 661 7801Hjálparhella: María Rún Vilhelmsdóttir 663 0302Umsjón með upptöku og hljóðkerfi: Sveinn Kjartansson 897 2222

    Hátíðin þakkar þeim fjölmörgu sem styrkja hana með fjárframlögum eða eigin vinnuframlagi. Sérstakar þakkir fá Guðný Róbertsdóttir og Sigurður HlöðvessonÞjóðlagahátíðin á Siglufirði 2013 er sú fjórtánda sem Félag um Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteins-sonar stendur fyrir á SiglufirðiListrænn stjórnandi hátíðarinnar er Gunnsteinn Ólafsson

    Seeing Sigló - myndir frá SiglufirðiMálverkasýning Marc Dettmanns í Bláa húsinu.

    Sýningaropnun fimmtudaginn 4. júlí 2013 kl. 17.00.

    Ljóðasetur Íslands er opið alla daga kl. 14.00 - 17.30 að Túngötu 5. Lifandi viðburðir kl. 16.00.

    Í setrinu er sögu íslenskrar ljóðlistar gerð skil.

    SagnanámskeiðKennarar: Sigurborg Kr. Hannes-dóttir og Ingi Hans JónssonEfra skólahús, Hlíðarvegi 18 UllarþæfingKennari: Margrét SteingrímsdóttirEfra skólahús, Hlíðarvegi 18Útskurðarnámskeið Kennari: Constantin BorsEfra skólahús, Hlíðarvegi 18Stokkar og steinar. Unglinga-námskeið 12-16 áraKennari: Arnljótur SigurðssonTónlistarskólinn, Aðalgötu 27

    Leikið og skapað. Barnanámskeið fyrir börn 5 til 11 áraKennari: Björk SigurðardóttirNeðra skólahús við Norðurgötu

    9.00 -12.00

    14.00 -17.00

    9.00 -12.00

    14.00 -17.00

    9.00 -12.00

    14.00 -17.00

    9.00 -12.00

    9.00 -12.00 og

    14.00 -17.009.00 -12.00

    og 14.00 -17.00

    9.00 -12.00 og

    14.00 -17.00

    Námskeið 4. og 5. júlí

    Almennar upplýsingar

    Málverkasýning Ljóðasetur Íslands

    Laugardaginn 6. júlí kl. 15.00 verður kvæðamannakaffi í Þjóðlagasetrinu. Kvæðamenn hittast og kveða hver fyrir annan. Stjórnandi er Þórarinn Hjartarson kvæðamaður. Í Þjóðlagasetrinu er einnig boðið upp á

    myndbönd af fólki á öllum aldri sem syngur, kveður eða leikur á hljóðfæri.

    Kvæðamannakaffi í Þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteinssonar

    Raddir Íslands kr. 2.500

    Eldhugi við ysta haf Ævisaga sr. Bjarna Þorsteinssonar

    kr. 2.500

    Saman á kr. 4.000 Bolur Þjóðlagahátíðar kr. 2.013

    Þjóðlagahátíðin á Sigluf irði

  • Skráning á [email protected]. Námskeiðsgjald greiðist inn á reikning 1102-26-57, kt. 621299-2719hjá Sparisjóði Siglufjarðar með nafni og/eða kennitölu greiðanda.

    Ábendingar um gististaði veitir framkvæmdastjóri hátíðar í síma 661 7801. Upplýsingamiðstöð ferðamanna er á bókasafni Siglufjarðar. Opið virka daga frá 13:30-17:00.

    Tjaldstæði SiglufirðiTjaldsvæði Siglufjarðar er staðsett í miðbænum við torgið og smábátabryggjuna. Öll þjónusta, afþreying og söfn eru í 5-10 mínútna göngufæri. Sunnan við snjóflóðavarnagarðinn (Stóra bola) er annað svæði fyrir þá sem kjósa ró og frið og þaðan er stutt á golfvöllinn, í hesthúsabyggð og fuglavarp. Um 10 mínútna gangur er niður í miðbæ og þar er hús með salernum og aðstöðu fyrir ferðamenn.

    Tjaldstæði ÓlafsfirðiTjaldsvæðið í Ólafsfirði er við Íþróttamiðstöðina. Þar er lítil tjörn með miklu fuglalífi og smásílum sem yngri krökkum þykir gaman að veiða.

    Skrifstofa Þjóðlagahátíðar er í Þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteinssonar, Norðurgötu 1. Opnunartími 3. - 5. júlí 9.00 - 21.00, 6. júlí 10.00 - 18.00 og 7. júlí 12.00 - 18.00. Sími 467 2300. Þar eru seldir miðar á tónleika og námskeið sem og veittar upplýsingar um hátíðina.

    Námskeið:Námskeið hálfsdags með tónleikaskírteini: 19.500/16.500*Námskeið hálfsdags án tónleikaskírteinis: 12.500/10.500*Námskeið heilsdags með tónleikaskírteini: 25.500/22.500*Námskeið heilsdags án tónleikaskírteinis: 19.500/16.500*Tvö hálfsdags námskeið á sama nafni með tónleikaskírteini: kr. 25.500/22.500*Tvö hálfsdagsnámskeið á sama nafni án tónleikaskírteinis: 19.500/16.500*

    Tónleikaskírteini: Einstaklingsskírteini: 12.500/10.500*Hjónaskírteini: 19.500/15.000*

    Þjóðlagaakademían: 25.500/8.500*

    Stakir miðar á tónleika: 2.500/2.000* nema á Þið munið hann Jörund?Miðar á Þið munið hann Jörund? 3.500/2.500*

    * Námsmenn í fullu námi (16 ára og eldri), atvinnulausir, öryrkjar og 67 ára og eldri.Ókeypis er fyrir börn 15 ára og yngri á alla tónleika hátíðarinnar.

    Börn þátttakenda á námskeiðum 15 ára og yngri fá ókeypis aðgang að barna- og unglinganámskeiðum. Önnur börn greiða kr. 7.000 fyrir námskeiðið.

    Skráning og upplýsingar um þátttöku

    Skrifstofa

    Aðgangseyrir

    Gisting á Siglufirði

    Styrktaraðilar:

    Allinn Andrés Stefánsson, rafverktaki Ágúst og Hjálmar byggingamennBás ehf.Billinn. Bar og PoolstofaByggingarfélagið BergEfnalaugin LindEgils sjávarafurðir ehf.

    Fiskbúð SiglufjarðarHrímnir, hár og skeggsnyrtistofa Hvanndalir, bókhalds þjónusta JE vélaverkstæðiKLMMálaraverkstæðið ehf.MerkismennOlís

    RaffóRARIKSiglunes ehfSimVerk.isSiglósportSíldarvinnslan hfSjóváSR - Vélaverkstæði

    Tannlæknastofur FjallabyggðarTunnanValló, leigumiðlun Verkfræðistofa SiglufjarðarVideoval ehfÞrír Frakkar - hjá Úlfari

  • Spilmenn Ríkínís er hópur tónlistarmanna sem hefur leikið og sungið saman í 8 ár. Meginverkefni Spilmanna hefur verið að fl ytja íslenskan tónlistararf úr handritum og af gömlum sálmabókum sem prentaðar voru á Hólum í Hjaltadal á fyrstu öldum prentlistar á Íslandi. Hljómsveitin leikur á hljóðfæri sem heimildir eru um að hafi verið til hér á landi á þessum tíma.

    Á tónleikunum verða fl utt lög úr safni Bjarna Þorsteinssonar, útsett af hópnum.

    Meðlimir Spilmanna Ríkínís á Þjóðlagahátíð 2013 eru:Ásta Sigríður Arnardóttir sem syngur og leikur á gígju og symfónMarta Guðrún Halldórsdóttir sem syngur og leikur á langspil, symfón og hörpuSigursveinn Magnússon sem syngur og leikur á symfón og trumbuÖrn Magnússon sem syngur og leikur á symfón, langspil, hörpu og gígju

    Fiðlarinn á þakinu er einn kunnasti söngleikur allra tíma. Hann byggir á bókinni Tevje og dætur hans eftir Sholem Aleichem en söngleikinn sömdu þeir Jerry Bock og Sheldon Harnick. Tónlistin var gerð fyrir Broadway en í henni gætir áhrifa klezmertónlistar gyðinga. Sagan gerist í Rússlandi í upphafi 20. aldar á tímum rússneska keisarans. Tevje og fj ölskylda hans eru gyðingar en fj ölskylduföðurnum þykir dæturnar full frjálslegar í trúnni og ekki vanda val sitt á eiginmönnum. Hann óttast að gyðinglegur uppruni fj öl skyldunnar muni þynnast út með tíð og tíma. Ekki bætir úr skák þegar keisarinn tekur að hrekja gyðinga burt úr þorpum sínum. Fiðlarinn á þakinu hefur farið sigurför um heiminn frá því hann var frumfl uttur árið 1964. Róbert Arnfi nnsson og Jóhann Sigurðarson hafa báðir farið með hlutverk Tevjes á eftirminnilegan hátt. Hér syngja Jón Svavar Jósefsson og Unnur Birna Björnsdóttir lögin úr söngleiknum.

    Jón Svavar Jósefsson söngurUnnur Birna Björnsdóttir fi ðla og söngurHaukur Gröndal klarinettÁsgeir Ásgeirsson gítar og búsúkíÞorgrímur Jónsson bassiCem Misirlioglu slagverk

    Spilmenn Ríkínís

    EFNISSKRÁ

    Siglufj arðarkirkja Miðvikudaginn 3. júlí kl. 20.00

    Fiðlarinn á þakinu

    Bátahúsið Miðvikudaginn 3. júlí kl. 21.30

  • Á tónleikunum verða leikin gömul og ný barnalög úr smiðju Aðalsteins Ásbergs Sigurðs-sonar sem hefur samið fj ölmörg vinsæl lög og ljóð, m.a. á plötunum Berrössuð á tánum og Bullutröll. Hér kemur hann fram ásamt dóttur sinni, Þorgerði Ásu, og þau feðgin fl ytja í tali og tónum efni sem á sér oftar en ekki þjóðlegar rætur og hefur oft á tíðum heillað bæði börn og fullorðna.

    BullutröllBarnatónleikar

    Grána Miðvikudaginn 3. júlí kl. 23.00

    Allinn Fimmtudaginn 4. júlí kl. 17.00

    Á tónleikunum verða fl utt þjóðlög og verk sem sækja innblástur í íslenskan tónlistararf. Þær Hildur og Júlía útsetja lögin. Þau eru valin með það í huga að viðkvæmur og fágætur tónn langspilsins fái notið sín til fulls.

    Júlía Traustadóttir hóf söngnám við Tónlistar-skólann í Reykjavík árið 2004, fyrst hjá Elísabetu Erlingsdóttur og síðar hjá Hlín Pétursdóttur. Í lok árs 2006 hlaut Júlía inngöngu í Royal College of Music í Lundúnum, þar sem hún hóf söngnám haustið 2007 undir handleiðslu Jennifer Smith. Þaðan útskrifaðist hún sumarið 2011. Á námsárunum í London sótti Júlía meistaranámskeið hjá Patriciu Rozario, Roger Vignoles, Stephen Varcoe og Sally Burgess. Einnig kom hún fram sem einsöngvari í Cambridge, Bath og í útvarpsþætti á BBC Radio 3.

    Hildur Heimisdóttir langspilsleikari stundaði sellónám við Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Kennarar hennar voru Gunnar Kvaran og Sigurgeir Agnarsson. Hildur var einnig um skeið við nám hjá Errki Lahesmaa í Turku í Finnlandi. Að loknu prófi við LHÍ hóf hún nám við Tónlistarháskólann í Árósum í Danmörku hjá Henrik Brendstrup og lauk því árið 2012. Í fyrra vann Hildur keppni um stöðu lærlings við Sinfóníuhljómsveit Álaborgar og nýlega hlaut hún styrk úr Sjóði dansk- íslenskrar samvinnu (FDIS). Undanfarin misseri hefur Hildur snúið sér í auknum mæli að langspilsleik. Hún leikur á langspil sem Jón Sigurðsson á Þingeyri smíðaði 2011.

    Júlía Traustadóttir söngkonaHildur Heimisdóttir langspil

    Söngur og sónargaldur

  • Tónlistin í kvikmyndinni Grikkinn Zorba gerði tónskáldið Mikis Þeódórakis heims -frægan á einni nóttu. Hann varð samnefnari grískrar þjóðlagatónlistar og einkennishljóðfæri Grikkja, búsúkí, varð víðfrægt. Kvikmyndin byggir á samnefndri sögu Nikos Kazantzakis þar sem Anthony Quinn fór með aðal hlutverkið.

    Á tónleikunum verður leikin tónlist úr kvikmyndinni auk þess sem fl utt verða

    fj ölmörg lög eftir Þeódórakis sem og klassísk lög fyrir búsúkí. Búsúkí-tónlistin er stundum kölluð blústónlist Grikkja; hún getur bæði verið afar tilfi nningarík en engu að síður fj örug og dansvæn.

    Ásgeir Ásgeirsson búsúkíUnnur Birna Björnsdóttir fi ðla og söngurHaukur Gröndal klarinettÞorgrímur Jónsson bassiCem Misirliouglu slagverk

    Grikkinn Zorba

    Bátahúsið Fimmtudaginn 4. júlí kl. 21.30

    Kvartettinn Kvika er ungur sönghópur, stofnaður haustið 2011. Kvika syngur einkum íslensk þjóðlög og innlend og erlend dægurlög auk rammíslensks tvísöngs og rímnakveðskapar. Lögð er áhersla á að blanda saman tónlist sem allir þekkja og tónlist sem fólk á síður von á að heyra sungna af blönduðum kvartett.

    Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópranHildigunnur Einarsdóttir altPétur Húni Björnsson tenórJón Svavar Jósefsson bassi

    Sönghópurinn Kvika

    Siglufj arðarkirkja Fimmtudaginn 4. júlí kl. 20.00

  • Spaðar eru kunnir fyrir eldfj örug böll, lífl eg lög og sniðuga texta. Lögin þeirra hljóma eins og gömul dægurlög þó að þau séu fl est eftir þá sjálfa, enda nota þeir hljóðfæri á borð við harmonikku, fi ðlu og mandólín. Tónlistin er undir áhrifum frá þjóðlaga-tónlist úr ýmsum áttum og textarnir fj alla um allt milli himins og jarðar: þjóðar blómið, kreppuna, Íslendinga-sögurnar, Þorláks messu, listina að yrkja, gleðina, drykkjuna og auðvitað ástina.

    Guðmundur Andri Thorsson gítar og söngurGuðmundur Ingólfsson bassi og söngurAðalgeir Arason mandólín og söngurÞorkell Heiðarsson harmónikka og hljómborðMagnús Haraldsson gítar og söngurGuðmundur Pálsson fi ðlaSigurður Valgeirsson trommur

    Hinir ástsælu Spaðar

    Tónskáldið og læknirinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan, skammt frá Kaldalóni við Ísafj arðar djúp. Víst var

    lífi ð þar ekki eins og í einföldum söngleik. Þrátt fyrir það samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglaga-perlum á Kaldalónsárunum. Rakin verður þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og helstu lög hans fl éttuð inn í leikgerðina.

    Elfar Logi Hannesson ólst upp á Bíldudal og stundaði leiklistarnám í Danmörku. Árið sem hann lauk námi stofnaði hann Kómedíuleikhúsið þar sem hann hefur verið aðalleikari frá upphafi . Elfar Logi hefur samið fj ölmörg leikverk, leikstýrt sýningum um land allt, leikið í sjónvarpi og kvikmyndum, gert útvarpsþætti og lesið inná hljóðbækur. Á meðal leikrita sem Elfar Logi hefur samið og sett á svið er Gísli Súrsson, en það hefur hann m.a. leikið í Geirþjófsfi rði þar sem sagan gerist að hluta.

    Dagný Arnalds stundaði nám við píanókennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík og framhaldsnám í píanóleik í Frakklandi hjá Jacques Chapuis. Hún starfaði um skeið sem píanókennari í Granada á Spáni en réðst síðan við Tónlistarskóla Ísafj arðar sem píanókennari og stjórnandi Sunnukórsins, organisti og kórstjóri í Önundarfi rði og á Suðureyri auk þess að stýra tónlistarhátíðinni Við Djúpið.

    Elfar Logi Hannesson höfundur og leikariDagný Arnalds píanó og söngurMarsibil G. Kristjánsdóttir leikmynd, búningar og leikstjórn

    Sigvaldi KaldalónsLeikrit um ævi tónskáldsins

    Allinn Fimmtudaginn 4. júlí kl. 23.00

    Siglufj arðarkirkja Föstudaginn 5. júlí kl. 20.00

  • Tranotra er skipuð tónlistarmönnum frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Í tónlist sveitarinnar mætast mis-munandi þjóðlagahefðir og úr verður nýr bræðingur. Hefðbundin danstónlist blandast við þrástef og einradda lög eru sett í fl ókna hljóma klasa. Klarinett, fi ðla og víóla leitast við að búa til tónlist sem fellur í kramið en er engu að síður krefj andi fyrir hlustandann og þann sem stígur dansinn.

    Benjamin Bøgelund Bech klarinett og bassaklarinettOlaug Furusæter fi ðlaSven Midgren fi ðla og víóla

    Norræna þjóðlagasveitin

    Tranotra

    AllinnFöstudaginn 5. júlí kl. 23.00

    Á tónleikum sínum munu Jóhanna Þórhallsdóttir og félagar fl ytja dægurlög sem varpa ljósi á helstu persónur Njálu. Söguþráðurinn er rakinn í tali og tónum þannig að lifandi nútíð og myrk fortíð sögualdar renna saman í eina heild. Óttar Guðmundsson geðlæknir mun á tónleikunum sýna fram á að Shady Owens og Trúbrot sungu um Hallgerði langbrók, Bubbi Morthens um Gunnar á Hlíðarenda og Facó frá Bíldudal um Kára Sólmundarson. En um hvað sungu brennumenn á Bergþórhsvoli? Og hvað kyrjuðu heimamenn á meðan? Tónleikarnir varpa nýju og óvæntu ljósi á þekktasta og dýrmætasta rit íslenskra fornbókmennta, sjálfa Njálssögu.

    Jóhanna V. Þórhallsdóttir söngurAðalheiður Þorsteinsdóttir píanóGunnar Hrafnsson bassiKjartan Guðnason trommurÓttar Guðmundsson sögumaður

    Ung var ég gefi n Njáli Dægurlög í anda Njálu

    Bátahúsið Föstudaginn 5. júlí kl. 21.30

  • Fyrir og eftir aldamótin 1900 létu nokkrar konur til sín taka í tónlistarlífi landsmanna. Þær sömdu lög og jafnvel heilu tónverkin sem tekin voru til fl utnings. Hér verður sagt frá lífi og starfi fj ögurra íslenskra kventónskálda og tónlist þeirra fl utt. Tónskáldin eru Olufa Finsen, Guðmunda Nielsen, Ingunn Bjarna-dóttir og María Brynjólfsdóttir. Þær settu allar mark sitt á tónlistarsögu landsmanna en eru að mestu gleymdar. Hér verður gerð bragarbót þar á.

    Sigurlaug Arnardóttir söngur Sólveig Þórðardóttir selló Þóra Björk Þórðardóttir gítar og söngurHildur Björgvinsdóttir lesari

    Siglufj arðarkirkja Laugardaginn 6. júlí kl. 14.00

    ÄIO er norsk-eistnesk hljómsveit sem byggir tónlist sína á þjóðlagatónlist beggja landa. Sveitin spinnur lög frjálslega út frá þjóðlegum efniviði og úr verður skemmtileg blanda af nýrri og gamalli tónlist. Hljóðfærin eru fengin bæði úr norskri og eistneskri þjóðlagahefð.

    Katariin Raska söngur, eistneskar sekkjapípur, sópran sax, fl autur og gyðingahörpur Anders Hefre írsk fl auta, bassaklarinett og söngur Jon Hjellum Brodal harðangursfi ðla, fi ðla og söngur Christian Meaas Svendsen kontrabassi og söngur

    Norsk-eistneska þjóðlagasveitin

    ÄIO

    Glæstar en gleymdarHuldukonur í íslenskri tónlistTónlist eftir Olufu Finsen, Guðmundu Nielsen, Ingunni Bjarnadóttur og Maríu Brynjólfsdóttur

    Allinn Laugardaginn 6. júlí kl. 14.00

    Guðmunda Nielsen1885-1936

    María Brynjólfsdóttir1919-2004

    Olufa Finsen 1835-1908

    Ingunn Bjarnadóttir1905-1972

  • Ingried Boussaroque er söngvari, hljóðfæraleikari og leikkona frá Montreal í Kanada. Sem leikkona hefur hún starfað við götuleikhús og sjónvarp og unnið með leikhópi sem sérhæfi r sig í Commedia dell’ Arte og leikhúsi fáránleikans í anda „slapstick“-leikhússins. Sem tónlistarmaður hefur hún helgað sig heimstónlist og tónlist miðalda. Hún er listrænn stjórnandi La Mandragore-fl okksins sem nýlega gaf út diskinn Convivencia, en hann var tilnefndur sem besti diskur í fl okki heimstónlistar í Quebec árið 2011. Ingried hefur einnig fengist við raftónlist.

    Á tónleikum sínum mun hún varpa ljósi á leikhústónlist frá miðöldum sem og þjóðlagatónlist frá Kanada. Að endingu kennir hún tónleikagestum nokkur spor í miðaldadönsum.

    Listráð Kanada styrkir tónleika Ingried Boussaroque á Þjóðlagahátíðinni á Siglufi rði.

    Miðaldaleikhús, tónlist og dans Ingried Boussaroque, Kanada

    Allinn Laugardaginn 6. júlí kl. 15.30

    Á tónleikunum syngur Kristjana Arngríms-dóttir lög eftir sjálfa sig við ljóð Davíðs Stefánssonar, Jakobínu Sigurðardóttur og Kristbjörgu og Jóhönnu Steingrímsdætur. Einnig syngur hún þekktar ballöður og vísur frá ýmsum löndum. Kristjana Arngrímsdóttir söngkona er búsett í Svarfaðardal. Hún hóf söngferil sinn í Tjarnarkvartettinum ásamt Kristjáni Eldjárn Hjartarsyni, eiginmanni sínum, Hjörleifi Hjartarsyni og Rósu Kristínu Baldursdóttur. Eftir að kvartettinn leystist upp hóf Kristjana sólóferil og hefur haldið ótal tónleika og gefi ð út hljómdiska í samstarfi við fj ölmarga tónlistarmenn. Kristjana Arngrímsdóttir söngurÖrn Eldjárn gítarJón Rafnsson bassi

    Sá ég og heyrði Tríó Kristjönu Arngrímsdóttur

    Siglufj arðarkirkja Laugardaginn 6. júlí kl. 15.30

  • Suður-Evrópsk og Suður-Amerísk tónlist hefur lengi heillað með seiðandi blæ sínum. Manuel de Falla leitaði í spænskan þjóðlagaarf í verkum sínum, Ravel samdi tónlist í stíl við spænska dansinn Habanera og Astor Piazolla gerði argentínska tangóinn ódauðlegan í tónlist sinni. Þessi tónskáld verða í brennidepli á tónleikum tveggja bráðefnilegra tónlistarmanna á Þjóðlagahátíðinni, þeirra Páls Palomares fi ðluleikara og Ögmundar Þórs Jóhannessonar gítarleikara. Páll Palomares stundaði fi ðlunám hjá foreldrum sínum Unni Pálsdóttur og Joaquin Palomares og síðar við Tónlistarskólann í Kópavogi og við Listaháskóla Íslands hjá Auði Hafsteinsdóttur. Hann lauk í febrúar sl. námi frá tónlistarháskólanum sem kenndur er við Hanns Eisler í Berlín og er nú leiðari 2. fi ðlu í Kammersveit Randers- borgar í Danmörku. Páll hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníu-hljómsveitinni á Alicante á Spáni. Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari stundaði nám við Tónlistarskóla Kópavogs og síðar í Barcelona og Salzburg. Hann er nú búsettur í Berlín. Ögmundur hefur unnið til margvíslegra verðlauna fyrir gítarleik sinn, þar á meðal í hinni alþjóðlegu Agustin Barrios-gítarkeppni í Lambesc í Suður-Frakklandi. Báðir hafa Páll og Ögmundur haldið tónleika á Íslandi og erlendis og komið fram á virtum tónlistarhátíðum.

    Páll Palomares fi ðlaÖgmundur Þór Jóhannesson gítar

    Spænsk og suður-amerísk tónlist fyrir fi ðlu og gítar

    Siglufj arðarkirkja Laugardaginn 6. júlí kl. 17.00

    Jörundur hundadagakonungur hefur alla tíð verið okkur Íslendingum hjartfólginn. Árið 1809 kom hann til landsins með ensku skipi og steypti dönskum yfi rvöldum; tilkynnti að „allur danskur myndugleiki væri upphafi nn á Íslandi“ og boðaði „frið og fullsælu“ í landinu. Byltingin rann út í sandinn en skáld og rithöfundar hafa gert sér mat úr sögu Jörundar alla tíð síðan. Jónas Árnason samdi leikritið Þið munið hann Jörund árið 1970 og fl éttaði breskum þjóðlögum í leikinn. Um tónlistarfl utning sá tríóið Þrjú á palli með Eddu Þórarinsdóttur leik- og söngkonu í fararbroddi. Hún fl ytur hér lögin úr leikritinu ásamt félögum sínum í nýrri hljómsveit sem nefnist Fjögur á palli.

    Edda Þórarinsdóttir söngurKristján Hrannar Pálsson píanóMagnús Pálsson klarinettPáll Einarsson bassiSöngtextar eftir Jónas Árnason

    Þið munið hann Jörund?Fjögur á palli

    Síldarminjasafnið Laugardaginn 6. júlí kl. 17.00

  • Sinfóníuhljómsveit unga fólksins frumfl ytur nýtt verk eftir Huga Guðmundsson sem nefnist Minningarbrot – Glimpsed Memories. Þá leikur Gróa Margrét Valdimarsdóttir fi ðlukonsert í A-dúr eftir Mozart og loks leikur hljómsveitin svítu úr Hnotubrjótnum eftir Tjækovský. Hugi er meðal fremstu tónskáld okkar af yngri kynslóðinni. Hann er búsettur í Danmörku og verk eftir hann eru leikin víða um heim. Gróa Margrét stundaði fi ðlunám hér heima, í Þýskalandi og síðast í Bandaríkjunum, þar sem hún lauk nýlega námi frá The Hartt School í Hartford. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð árið 2004 og hefur haldið tónleika víða um land. Hljómsveitina skipa tónlistarnemendur á aldrinum 13-25 ára. Hljómsveitin hefur frumfl utt ný verk eftir íslensk tónskáld auk þess að takast á við mörg helstu meistaraverk tónbókmenntanna. Aðalstjórnandi hljómsveitarinnar og stofnandi er Gunnsteinn Ólafsson. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins er styrkt af Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg.

    Hugi Guðmundsson: Minningarbrot. Frumfl utningurW.A.Mozart: Fiðlukonsert í A-dúrPjotr Tjækovský: Hnoturbrjóturinn (svíta)Einleikari: Gróa Margrét Valdimarsdóttir fi ðlaStjórnandi: Gunnsteinn Ólafsson

    Sinfóníuhljómsveit unga fólksinsHnotubrjóturinn

    StjórnandiGunnsteinn Ólafsson

    Gróa Margrét Valdimarsdóttirfi ðluleikari

    Hljómsveitin Ojba Rasta var stofnuð árið 2009 og er skipuð ellefu ungum tónlistarmönnum. Hljóm s-veitin spilar reggí músík og sækir áhrif sín víða; svo sem til heimstónlistar, kvikmyndatónlistar og kvæðalaga. Í fyrra gaf hljómsveitin út sína fyrstu breiðskífu sem innihélt átta frumsamin lög. Þar má heyra sungið um örlög, ástir og ævintýri nokkurra peða á plánetunni jörð.

    Dansleikur Ojba Rasta

    Allinn Laugardaginn 6. júlí kl. 23.00

    Siglufj arðarkirkja Sunnudaginn 7. júlí kl. 14.00

    Hrafnkell Gauti Sigurðarson gítarTeitur Magnússon söngur og gítarUnnur Malín Sigurðardóttir euphonium og söngurValgerður Freeland Sigurðardóttir klarinett og melódíka

    Arnljótur Sigurðsson söngur og rafbassiDaníel Þröstur Sigurðsson trompetGylfi Freeland Sigurðsson trommurHjálmur Ragnarsson dubmaster

  • Vígsla brjóstmyndar af sr. Bjarna Þorsteinssyni þjóðlagasafnara Höfundur brjóstmyndar:Ragnhildur Stefánsdóttir

    Bjarnatorg við Siglufj arðarkirkju Sunnudaginn 7. júlí kl. 16.00

  • Bylgjubyggð 2 | 625 Ólafsfjörður | Tel. 466 2400 | [email protected] | www.brimnes.is

    We offer en-suite rooms and Cabins by Lake Ólafsfjörður. Rent a bike or a kayak and explore the scenic surroundings in this beautiful fjord. You can go whale watching, hike or just relax and play golf.

    Visit our website for more information: www.brimnes.is

    We offer en-suite rooms and Cabins byW ff it d C bi b

    Brimnes Hotel & Cabins

    Opið á virkum dögum frá 07:00 -17:00 Laugardaga frá 09:00 -14:00 Aðalgötu 28 580 Siglufirði S: 467 1720

    Aðalbakarinn býður gesti Þjóðlagahátíðar velkomna

    Nýbakað brauð og bakkelsi alla daga.

    Léttir réttir í hádeginu á virkum dögum.

    Veitingastaðurinn Torgið auglýsirVið bjóðum gesti Þjóðlagahátíðar velkomna í bæinn og tökum vel á

    móti þeim í mat og drykk eftir þörfum.

    Verðum með súpu og salatbar í hádeginu frá miðvikudegi til föstudags og grillið er opið fram á kvöld alla hátíðina

    Kvæðamenn velkomnir á Torginu – kveðum saman

    Verið velkomin á Torgið – sími 467 2323

  • Aðalgötu 34 580 Siglufi rði Sími 467-2222 Fax 467-1905

    Húsabakki í Svarfaðardal Sýningin Friðland fuglanna

    Tjaldstæði - Gisting

    sími: 466 1551 / 859 7811 www.husabakki.is www.birdland.is

    Gagnvirkur flórgoði?Tásustígur??

    Júrólóa???

    FRIÐLAND FUGLANNA SVARFAÐARDAL