núverandi hringvegur

17

Upload: keaira

Post on 11-Jan-2016

35 views

Category:

Documents


2 download

DESCRIPTION

Núverandi Hringvegur. Unnin hafa verið gróf frumdrög fyrir umferðarskipulag á Kjalarnesi, frá mynni Kollafjarðar að Hvalfjarðargöngum. Um er að ræða skoðun á breikkun Hringvegar eða mögulega færslu, skoðun gatnamóta, bætt umferðaröryggi og hljóðvist. Skýringar Íbúðasvæði - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Núverandi Hringvegur
Page 2: Núverandi Hringvegur

Núverandi Hringvegur

Unnin hafa verið gróf frumdrög fyrir umferðarskipulag á Kjalarnesi, frá mynni Kollafjarðar að Hvalfjarðargöngum. Um er að ræða skoðun á breikkun Hringvegar eða mögulega færslu, skoðun gatnamóta, bætt umferðaröryggi og hljóðvist.

Page 3: Núverandi Hringvegur

Skýringar

Íbúðasvæði

Svæði fyrir þjónustustofnanir

Iðnaðarsvæði

Opin svæði til sérstakra nota

Landbúnaðarsvæði

Úr Aðalskipulagi Reykjavíkur, 2001-2024

Meginvinna við skýrsluna fólst í því að sjá fyrir umferðarskipulag Hringvegar á Kjalarnesi, annars vegar miðað við AR 2001 til 2024 og hins vegar miðað við fullbyggt Kjalarnes, óskilgreint í tíma.

Page 4: Núverandi Hringvegur

Dýpi á fast er víða mikið

Á milli Vallár og Hvamms er núverandi vegur fljótandi á mýri sem er allt að 15 m djúp. Á móts við Hofsvík er fastur botn undir sjávarmáli. Að breikka núverandi veg í 2+1 á þessum kafla er varasamt, hætta er á missigi. Skynsamlegt er að byggja nýjan tveggja akreina veg við hlið þess gamla, 2+2 akreina vegur.

Page 5: Núverandi Hringvegur

Hvassviðri á Kjalarnesi er það mesta sem þekkist á Höfuðborgarsvæðinu.

Truflanir á umferð vegna veðurs eru tíðari á Kjalarnesi en annarstaðar á Höfuðborgar-svæðinu.

Mælingarnar gefa til kynna að sviptivindar séu algengir og að þeir skapi umtalsverða hættu fyrir umferð.

Hvassviðrin eru mest og hviður mestar í áttum sem standa af Esjunni (Móar) og einnig austlægum áttum meðfram hlíðum hennar (Skrauthólar). Áberandi er hversu þröngir áttageirar hvassviðranna eru á hvorum stað um sig.

Áhrifamáttur skjólbelta við vegi er ekki vel þekktur hérlendis, en mælingar í þéttbýli og utan þess, benda þó til þess að áhrif víðáttumikillar byggðar séu umtalsverð (mælingar við Veðurstofuna) og sömuleiðis benda mælingar til þess að hávaxinn gróður dragi einnig úr vindi þó útbreiðsla hans sé ekki mikil (Korpa).

Page 6: Núverandi Hringvegur

Umferðaróhöpp

Samfélagslegur kostnaður vegna umferðarslysa á Kjalarnesi milli Kollafjarðar og Hvalfjarðarganga er um 280 mkr á ári. Alvarlegustu óhöppin eru vegna árekstra þegar bílar mætast.Með aðskilnaði akstursstefna og lagfæringar á hliðarsvæðum má fækka slysum um 50% á vegi samkv. sænskum heimildum. Hvort heldur vegurinn er 2+2 akreinar eða 2+1 akrein.

Page 7: Núverandi Hringvegur

Umferðarspár, skv. AR árið 2024 (svartar tölur)

og skv. fullbyggðu Kjalarnesi (hvítar tölur)

Afköst 2ja akreina vegar er amk. 15 þúsund bílar á sólarhring.

Afköst 4ra akreina vegar er allt að 65 þúsund bílar á sólarhring.

Val á útfærslu ræðst fremur af umferðaröryggi og kostnaði við aðgerðir en umferðarafköstum.

Page 8: Núverandi Hringvegur

Hljóðstig miðað við núverandi ástand og 6.500 bíla á sólarhring ÁDU.

Hljóðstig við íbúðarhús næst þjóðveginum og á skólalóðinni er yfir 60 dB(A) í dag.

Page 9: Núverandi Hringvegur

Hljóðstig miðað við 13.000 bíla á sólarhring, ÁDU árið 2024.

Óæskilegur umferðarhávaði, 55 - 60 dB(A), teygir sig innar í íbúðarhverfið og lengra inn á skólalóðina.Samfara breikkun vegarins er nauðsynlegt að huga að mótvægisaðgerðum vegna hljóðvistar við íbúðarhús og á skólalóð.

Page 10: Núverandi Hringvegur

Valkostir fyrir færslu Hringvegar

Sveigja má Hringveginn þar sem Sundbraut kemur að landi við Leiðhamra. Með því fæst: •Betri hæðarlega og núverandi vegur nýtist sem tengibraut í Kollafjörð. •Betra er að koma fyrir mislægum gatnamótum vegna Kollafjarðarvegar. •Kostnaðurinn er álíka mikill og ef farið er beint yfir Kollafjörð inn í legu núverandi Þjóðvegar. •500-600 metrar af núverandi Hringvegi ónýtist vegna skeringa ef fylgt er núverandi legu. •Ef hæðarlega á veginum er með það að markmiði að nýta núverandi Hringveg sem mest verða miklar fyllingar þar sem Sundabrautin kemur að landi og sjónræn áhrif vegna fyllinga í fjörunni verða mikil.

Möguleiki er að leggja nýjan Hringveg niður við ströndina milli Kollafjarðar og Brimness. Þannig nýtist landið betur, landið er ekki sundurskorið af Hringveginum. Núverandi vegur nýtist sem tengibraut innansveitar.

Valkostur er að færa Hringveginn vegna nálægðar við byggð í Grundarhverfi, þannig batnar hljóðvist í hverfinu og meira rými fæst fyrir mótvægisaðgerðir vegna umferðahávaða.

Page 11: Núverandi Hringvegur

Eignamörk á Kjalarnesi.

Myndin er birt með fyrirvara frá Landupplýsingadeild Reykjavíkurborgar.

Semja þarf við fjölda landeigenda áður en ráðist er í framkvæmdir við breikkun Vesturlandsvegar og gerð hliðarvega.

Page 12: Núverandi Hringvegur

Tillaga.

Gatnamót í plani, þrenn hringtorg og tvö T gatnamót.

2+1 vegur

2+2 vegur og hliðarvegir

Ný heimreið að Bakka Lagfæring

Brautarholtsvegar

Aðkoma að Skógarási verði frá Hvalfjarðarvegi

Page 13: Núverandi Hringvegur

Tillaga.

Skipting kostnaðar eftir verkhlutum.

Einingaverð:

2 + 2 vegur 200 mkr/km

2 + 1 vegur 80 mkr/km

Page 14: Núverandi Hringvegur

Tillögur að endurbótum við Grundarhverfi.

Æskilegar fyrstu aðgerðir.

Undirgöng fyrir gangandi og ríðandi.

Hringtorg við Brautarholtsveg

Tengingu Vallargrundar við Vesturlandsveg lokað

Lagfæring á Brautarholtsvegi

Page 15: Núverandi Hringvegur

Framtíðarumferðarskipulag fyrir Kjalarnes, valkostur 1

2+2 vegur og hliðarvegir2+2

vegur

Þrenn mislæg gatnamót

Við Hvalfjarðarveg

Við Brautarholtsveg

Við Brimnes

Page 16: Núverandi Hringvegur

Framtíðarumferðarskipulag fyrir Kjalarnes, valkostur 2

Þrenn mislæg gatnamót

Við Hvalfjarðarveg

Við Brautarholtsveg

Við minni KollafjarðarUndirgön

g f. akandi

Page 17: Núverandi Hringvegur

Framtíðarumferðarskipulag fyrir Kjalarnes, valkostur 3

Fern mislæg gatnamót

Við Hvalfjarðarveg

Við Brautarholtsveg

Við BrimnesVið minni Kollafjarðar