pipp kremkex
TRANSCRIPT
![Page 1: Pipp Kremkex](https://reader034.vdocuments.pub/reader034/viewer/2022052413/55c6216ebb61ebdd338b4598/html5/thumbnails/1.jpg)
Pipp-kremkex
Stökkar kökur með mjúku Pipp-kremi á milli. Góður kostur fyrir Pipp-aðdáendur.
![Page 2: Pipp Kremkex](https://reader034.vdocuments.pub/reader034/viewer/2022052413/55c6216ebb61ebdd338b4598/html5/thumbnails/2.jpg)
Innihald• 65 g smjör• 55 g sykur• 2 msk. Mjólk• 100 g hveiti• ½ tsk. Lyftiduft• 2 msk. Cadbury’s kakó
Pipp-krem:• 1 eggjahvíta• Grænn matarlitur• 215 g flórsykur• 40 g (1 stykki) Pipp-súkkulaði, smátt saxað
![Page 3: Pipp Kremkex](https://reader034.vdocuments.pub/reader034/viewer/2022052413/55c6216ebb61ebdd338b4598/html5/thumbnails/3.jpg)
Aðferð - kex• Hrærið smjör og sykur saman í skál þar til blandan er orðin ljós
og kremkennd. • Bætið mjólkinni saman við. • Sigtið hveiti, lyftiduft og kakó saman og blandið því varlega
saman við þar til blandan er orðin að mjúku deigi. • Hellið deiginu á hveitistráðan borðflöt og hnoðið það betur
saman. Skiptið deiginu í tvennt.
![Page 4: Pipp Kremkex](https://reader034.vdocuments.pub/reader034/viewer/2022052413/55c6216ebb61ebdd338b4598/html5/thumbnails/4.jpg)
Aðferð - kex
• Fletjið hvorn helming út á milli tveggja arka af bökunarpappír þar til deigið er um 5 mm þykkt.
• Færið deigið yfir á bökunaplötu og kælið í ísskáp í 15 mínútur eða þar til það er stíft viðkomu. Hitið ofninn í 180°C.
• Skerið út kringlóttar kökur (um 4 cm í þvermál) og færið þær yfir á plötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír.
• Bakið kökurnar í 10 mínútur og leyfið þeim að kólna.
![Page 5: Pipp Kremkex](https://reader034.vdocuments.pub/reader034/viewer/2022052413/55c6216ebb61ebdd338b4598/html5/thumbnails/5.jpg)
Aðferð - krem
• Setjið eggjahvítuna í hreina skál ásamt grænum matarlit. Þeytið vel.
• Setjið flórsykurinn út í smátt og smátt, um 2 msk. í senn, og þeytið vel á milli. Bætið við meiri flórsykri ef þarf, þar til úr verður mjúkt krem.
• Blandið súkkulaðinu saman við. • Setjið kremið í sprautupoka með stórum stút, sprautið því á
helminginn af kökunum og leggið kökurnar saman.
Verði ykkur að góðu!