1976 sveitarstjórnarmál ssh stofnað
DESCRIPTION
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu stofnuð 4. apríl 1976 Grein úr Sveitarstjórnarmálum 1. október 1976TRANSCRIPT
SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
„Um alllangt skeið hafa verið uppi raddir um nauðsyn þess, að sveitar-félögin á höfuðborgarsvæðinu hefðu með sér skipuleg samtök. Ástæða til þess var m.a. sú, að hverfi þessara sveitarfélaga hafa óðum færzt saman og mörkin milli þeirra smám saman verið að hverfa. Sveitarfélögin eru orðin eitt atvinnusvæði og hafa í sívaxandi mæli tekið upp samstarf sín á milli, eftir því, sem þörfin hefur kallað á í hverju tilviki. Þetta er nú hugmyndin, sem liggur að baki stofnun þessara samtaka", sagði Stefán Jónsson, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði og formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru stofnuð á fundi sveitar-stjórnarmanna úr 9 sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, sem haldinn var að Hlégarði i Mosfellshreppi þriðjudaginn 4. apríl 1976.
„Það, sem einkum var haft i huga i þessu sambandi , voru skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins, en þau verða ekki leyst svo vel sé, nema í nánu samstarfi allra þessara sveitarfélaga. Einnig má nefna samgönguæðarnar og samgöngumálin yfirleitt og annað það, sem skipt getur máli varðandi hagkvæmustu þróun þessa fjölmenna byggðasvæðis. 1 framhaldi af þessu umtali , sem lengi hefur verið uppi meðal sveitarstjórnarmanna, var síðan boðað til fundarins í apríl-mánuði , eins og- áður segir. Á fundin-um voru flestir sveitarstjórnarmenn i níu sveitarfélögum á höfuðborgar-svæðinu, og þeir samþykktu einróma að stofna til samtakanna. Á fundin-um var gengið frá samþykktum fyrir samtökin og þeim kosin níu manna
stjórn. Heiti þeirra er Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu."
Áður hafði bæjarstjórn Kópavogs einróma gert ályktun, þar sem hvatt var til stofnunar slíkra samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgar-svæðinu.
Stefán Jónsson, formaður samtakanna.
í samþykktum hinna nýju samtaka segir svo í 2. grein, að tilgangur þeirra sé að beita sér fyrir samstarfi um skipulag og þróun byggðarinnar á höfuðborgarsvæðinu og að vinna að öðrum sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaganna.
Að stofnun samtakanna stóðu Bessastaðahreppur, Garðabær, Hafnarfjörður, Kjalarneshreppur, Kópavogur, Mosfellshreppur, Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaup-staður og Kjósarhreppur.
Fyrstu stjórn samtakanna skipa: Stefán Jónsson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, formaður, Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi í
Kópavogi, varaform, Markús ö r n Antonsson, borg-
arfulltrúi í Reykjavík, ritari, Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri,
Seltjarnarnesi, vararitari, Kristján Benediktsson, borgar-
fulltrúi i Reykjavík, gjaldkeri, dr. Kjartan Jóhannsson, bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, varagjaldkeri og aðrir í stjórn Richard Björgvinsson, bæjarfull-
trúi i Kópavogi, Þorbjörn Broddason, borgar-
fulltrúi í Reykjavík og J ó n Guðmundsson, oddviti
Mosfellshrepps. 1 varastjórn samtakanna eiga sæti:
Elin Pálmadóttir , Reykjavík, Vil-hjálmur G. Skúlason, Hafnarfirði, Einar Ólafsson, Bessastaðahreppi, Ágúst Þorsteinsson, Garðabæ, Bjarni Þorvarðarson, Kjalarneshreppi, Hilmar Ingólfsson, Garðabæ, Jóhann H. Jónsson, Kópavogi, Ægi r Sigur-geirsson, Hafnarfirði og Ólafur Haraldsson, Kópavogi.
Stjómin hefur ákveðið, að sveitar-félögin greiði samtökunum árgjald, sem nemur 5 krónum á hvern íbúa sveitarfélaganna á þessu ári.
Fyrsta umræðuefni stjórnarinnar var bundið skipulagsmálum höfuð-borgarsvæðisins, að sögn Stefáns Jónssonar, og hefur stjórnin nú gert tillögu að samningi milli sveitar-félaganna um skipulagsmál. Uppkast þetta hefur nú verið sent sveitar-stjórnunum til a thugunar ." 237
SVEITARSTJÓRNARMÁL