2.2 menntun

30
2.2 Menntun 2. hluti – Réttindi og skyldur

Upload: emma

Post on 14-Jan-2016

32 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

2.2 Menntun. 2. hluti – Réttindi og skyldur. Menntun ( bls . 75). Öllum börnum á aldrinum 6-16 ára er skylt að sækja grunnskóla . Ríkið og sveitarfélögin eru skyldug til að halda skóla fyrir öll börn og unglinga á þessum aldri . - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: 2.2  Menntun

2.2 Menntun

2. hluti – Réttindi og skyldur

Page 2: 2.2  Menntun

Menntun (bls. 75)

• Öllum börnum á aldrinum 6-16 ára er skylt að sækja grunnskóla.

• Ríkið og sveitarfélögin eru skyldug til að halda skóla fyrir öll börn og unglinga á þessum aldri.

• Foreldrar bera ábyrgð á að börn þeirra gangi í skóla og hægt er að sekta þá sem senda börnin sín ekki í skóla.

Page 3: 2.2  Menntun

Menntun (bls. 76)

• Um allan heim fara milljónir barna á mis við skólagöngu, meðal annars vegna fátæktar eða annarra félagslegra vandamála. Stór hluti jarðarbúa lítur á skólagöngu sem réttindi. Heldur þú að börn og unglingar hér á landi líti á skólagönguna sem réttindi eða kvöð? Af hverju?

Page 4: 2.2  Menntun

Menntun (bls. 76-77)

• Samkvæmt íslenskum lögum eiga allir rétt á framhaldsskólanámi.

• Samkvæmt lögum stóð til að stytta framhaldsskólann úr 4 árum í 3 á árinu 2011. Þetta stóðst ekki og nú er búið að fresta gildistöku laganna til í það minnsta ársins 2015.

Page 5: 2.2  Menntun

Menntun (bls. 77)

• Langflestir grunnskólanemendur hefja nám í framhaldsskóla eða um 95% árgangsins (2010).

Margir nemendur ná ekki að ljúka stúdentsprófi á 4 árum. Af þeim sem eru tvítugir útskrifast um 60% með stúdentspróf, um 44% stráka og 77% stelpna.

Page 6: 2.2  Menntun

Menntun (bls. 77)

• Brottfall stráka úr framhaldsskóla (þeir sem hætta án þess að ljúka skóla) er mikið áhyggjuefni.

• Stúlkur sigla hraðbyri fram úr piltum í námi á öllum skólastigum í 43 iðnríkjum heims (OECD).

Page 7: 2.2  Menntun

Menntun (bls. 77)

• Stelpur hafa verið að sækja í sig veðrið þar sem þær stóðu verr að vígi en strákar, t.d. í stærðfræði og fleiri raungreinum.

• Strákarnir hafa ekki verið að bæta sig í þeim greinum sem þeir stóðu verr að vígi en stelpurnar, t.d. í lestri og öðrum lesfögum.

Page 8: 2.2  Menntun

Menntun (bls. 77)

• Rannsóknir sýna að strákum líður í fleiri tilfellum verr í skólanum en stelpum. Þeir eiga frekar í útistöðum við aðra og þjást frekar af námsleiða. Af hverju heldur þú að strákum líði verr í skólanum en stelpum? Hvernig myndir þú vilja breyta skólanum þannig að strákum liði betur þar?

Page 9: 2.2  Menntun

Ný samfélagsgerð (bls. 77)

• Kannanir gefa til kynna að:

Strákar fái ekki jafn mikinn stuðning og stelpur heima fyrir, t.d. við heimanám.

Foreldrar virðist almennt hafa minna eftirlit með strákum en stelpum.

Foreldrar þekki síður vini sona sinna en dætra.

Page 10: 2.2  Menntun

Ný samfélagsgerð (bls. 77)

• Flestar konur eru útivinnandi nú á dögum.

• Skilnuðum hefur fjölgað og einstæðir foreldrar með börn eru orðin algeng fjölskyldugerð.

• Breytingar á fjölskyldugerð virðast koma verr við strákana en stelpurnar – oft er eins og þá skorti tilfinnanlega fyrirmyndir.

Page 11: 2.2  Menntun

Menntun á 21. öld (bls. 78)

• Á Íslandi velja langflestir grunnskóla-nemendur að hefja nám í framhaldsskóla.

• Örlítið fleiri stelpur en strákar fara í framhaldsskóla að loknum grunnskóla.

Page 12: 2.2  Menntun

Framhaldsmenntun (bls. 79)

• Allir nemendur sem hafa lokið grunnskóla-prófi eiga rétt á að hefja nám í framhalds-skóla.

Framhaldsskólar setja inntökuskilyrði – þú verður að hafa náð tilteknum lágmarksárangri til að geta innritast á aðrar brautir en almenna braut.

Page 13: 2.2  Menntun

Framhaldsmenntun (bls. 79)

• Starfsnámsbrautir eru mjög fjölbreyttar en þeim má skipta í tvo flokka:

Nám sem leiðir til lögverndaðra starfsréttinda. Dæmi: Læknar, sjúkraliðar.

Nám sem veitir undirbúning til skilgreindra starfa án þess að um sé að ræða lögverndað starfsheiti. Dæmi: Skrifstofubraut undirbýr nemendur undir störf á skrifstofu.

Page 14: 2.2  Menntun

Menntun og vinnumarkaður (bls. 79)

• Þekking og menntun er mikilvæg – hún er ein af meginstoðum lýðræðis, almennrar velferðar og menningar.

Reyndu að finna rök með fullyrðingunni hér að ofan.

Page 15: 2.2  Menntun

Menntun og vinnumarkaður (bls. 80)

• Skólum ber að gæta jafnréttis nemenda til náms – það er að bjóða öllum nemendum nám og kennslu við hæfi.

• Það er erfitt að uppfylla öll markmið um jafnrétti til náms þó þau séu bundin í lög. Af hverju heldur þú að svo sé?

Page 16: 2.2  Menntun

Menntun og vinnumarkaður (bls. 80)

• Rannsóknir sýna að mörg atriði skipta máli um möguleika fólks til að afla sér menntunar, til dæmis: Kyn

Efnahagur

Búseta

Bakrunnur fjölskyldunnar / menntun fjölskyldunnar

Page 17: 2.2  Menntun

Vinnumarkaður breytist(bls. 80)

• Iðnbylting hófst í Bretlandi um 1750 (það var fyrsta landið til að iðnvæðast).

• Iðnbylting varð á Íslandi um 150 árum síðar eða í byrjun 20. aldar.

• Í hverju fólst iðnbyltingin?

Page 18: 2.2  Menntun

Iðnbyltingin (bls. 80)

• Nýjar vélar fundnar upp.

• Nýting áður ónýttra orkulinda s.s. olíu og rafmagns.

• Verksmiðjur – fjöldaframleiðsla.

• Þéttbýlismyndun – borgir. Fólk varð að flytja úr sveit í borg til að fá vinnu.

Page 19: 2.2  Menntun

Iðnbyltingin (bls. 81)

• Sambýli stórra fjölskyldna úti á landi breyttist í fámennar kjarnafjölskyldur sem bjuggu í þröngum blokkaríbúðum í þéttbýli.

• Fólk þekkti fáa í borgum og einangraðist.

• Vinnutími var allt í einu afmarkaður (ólíkt því sem var í sveitum) og fólk fékk frítíma.

Page 20: 2.2  Menntun

Upplýsingabyltingin (bls. 81)

• Stöðugt fleiri vinna við tölvur og við upp-lýsingatækni.

• Upplýsingabylting leiðir til þess að við verðum að læra nýjar vinnuaðferðir og menntunarkröfur breytast. Stöðugt fleiri vinna við tölvur heima hjá sér þannig að skilin milli vinnutíma og frítíma minnka eða hverfa.

Page 21: 2.2  Menntun

Upplýsingabyltingin (bls. 82)

• Hugtök eins og sýndarveruleikaskólastofa eða sýndarveruleikavinnustaður vísa til þess að hermilíkön af veruleikanum eru notuð á sífellt fleiri sviðum um allan heim.

Page 22: 2.2  Menntun

Mennt er máttur (bls. 82-83)

• Mennt er máttur = Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill.

• Mennun hefur mikil áhrif á líf þitt og stöðu á vinnumarkaði – flestir líta á það sem sjálfsögð mannréttindi að hafa vinnu.

Page 23: 2.2  Menntun

Mennt er máttur (bls. 83)

• Vinnan gefur þér: Tekjur Rétt á sumarleyfum og öðrum fríum Rétt á orlofsgreiðslum Lífeyrisrétt Þátttökurétt í stéttarfélagi Stjórnmálaleg áhrif

Page 24: 2.2  Menntun

Mennt er máttur (bls. 83)

• Vinnan og hvernig okkur líður í vinnunni hefur áhrif á heilsufar okkar. Er þjóðin að skiptast upp í tvennt, þá sem hafa menntun og þá sem hafa hana ekki? Hvaða skoðun hefur þú á fullyrðingunni hér að ofan? Skiptir það einhverju máli hvort þjóðin sé að skiptast í tvennt eftir mennun? Af hverju / af hverju ekki?

Page 25: 2.2  Menntun

Til hvers eru skólar? (bls. 83)

• Svo lengi lærir sem lifir – það þýðir að þú ert alltaf að læra eitthvað nýtt, á hverjum degi, hvort heldur í skólanum eða utan hans.

Hvað hefur þú lært nýtt í dag?

Page 26: 2.2  Menntun

Til hvers eru skólar? (bls. 83)

• Menntun í bændasamfélaginu var óformleg (átti sér ekki stað í skóla) því börn lærðu það sem þau þurftu með því að umgangast foreldra sína og annað fullorðið fólk.

• Í nútímasamfélagi eru stofnanir sem kallast skólar og þeim er ætlað að sjá nemendum fyrir formlegri menntun.

Page 27: 2.2  Menntun

Þurfum við virkilega skóla? (bls. 84)

• Menntun (formleg) er algjör grundvallar-forsenda fyrir því að þjóðfélagið geti lifað af.

• Til hvers er skóli? Væri hægt að sleppa honum alveg? Hver er þín skoðun á því? (Rökstyddu svar þitt.)

Page 28: 2.2  Menntun

Þurfum við virkilega skóla? (bls. 84)

1. Færni: Skólinn kennir það sem fólk þarf til að geta sinnt vinnu (lesa, skrifa, reikna).

2. Dulda námskráin (ekki formleg námskrá skóla) kennir þér að vinna með öðrum og umgangast alls konar fólk.

3. Geymslustaður og giftingamarkaður fyrir nemendur.

Page 29: 2.2  Menntun

Summerhill-skólinn (bls. 86)

• Lestu lýsinguna á Summerhill-skólanum á bls. 86.

Hugleiddu kosti og galla slíks skóla.

Er svona skóli raunverulegur kostur?

Myndir þú vilja ganga í svona skóla? Af hverju / af hverju ekki?

Page 30: 2.2  Menntun

Kafla 2.2 er lokið

• Hér lýkur glósum úr kafla 2.2

• Nú áttu bara eftir að svara spurningunum á bls. 88.