blaðið þitt

6
1 Í nánast hverjum grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu er haldin ein skólasýning eða skólaleikrit á ári. Hægt er að vinna að skólasýningu á marga vegu, annað hvort að nemendur komi sjálfir með hugmynd að skólaleikriti eða kennarinn einn kemur með hugmyndina en það er alltaf best að bera hugmyndina undir hinn aðilann. Því þetta er samstarf á milli tveggja eða fleiri aðila. Það er þó alltaf kúnst að byrja að vinna með leikrit því það er miklu meira en að láta nemendur fá handrit í hendurnar og láta þá leika. Ef kennarinn er að hluta til óöruggur í starfi sínu er alltaf gott að fá tilbúið handrit til að láta nemendur leika eftir en þó er gott að henda sér í djúpu laugina og semja leikrit með nemendum. Það er alla vega mjög góður kostur sem allir ættu að reyna að gera. Í mars hélt Hlíðaskóli skólaleikrit sem hét Hver er ég? Það var einstaklega áhrifamikið og glæsilegt. Í stuttu máli fjallaði það um fíkniefnaheiminn og hvað getur gerst í honum. Það var virkilega átakanlegt að sjá það og virkilega gott að sjá hve nemendur eru meðvitaðir um fíknaefnaheiminn. Því er mikilvægt að hafa skólaleikrit og skólasýningar í skólum, sérstaklega ef það er tekinn ákveðin þemi sem nemendur hafa virkilega áhuga á því þá mun það skila frá sér skýr skilaboð bæði til þeirra og áhorfenda. Eftir skólasýningu er hægt að vinna út frá skólaleikritinu. Sérstaklega við skólaleikritið Hver er ég? Þá er hægt að fá nemendur til að setja sig í hlutverkin sem þeim var úthlutað í sjálfu leikritinu og í framhaldi gera þeir kennsluverkefnið útvarpsþáttur. Þar getur kennari nýtt sér kennsluaðferðina kastljósið. Þá væri einn spyrjandi og hinn í sínu hlutverki þar sem spyrjandi spyr aðilann ýmsa krefjandi spurninga. Spáð er fyrir mikilli hitabylgju fyrstu hel- gina í maí. Nú geta allir íslendingar tekið upp stuttermabolina og stuttbuxurnar því sumarið mun koma í maí. Gleðilegt sumar! Veðurspáin í maí 2012 Skólasýningar í grunnskólum 23.apríl 2012 1. bindi Blaðið þitt Efnisyfirlit Skólasýningar 1 Þátttökuleikhús 2 Heyrst hefur... 2 Vettvangsnám í Hlíðaskóla 3 Hver hlýtur Grímuna í ár? 3 Hvað sérð þú? Deildu því 4 Dánarfregnir 4 GSS419G Frá hugmynd til sýningar Vor 2012 Höfundur: María Lovísa Magnúsdóttir Blaðið mælir með: Hver hlýtur Grímuna í ár? Bls. 3 Heyrst hefur... á bls. 2 Reynslusagan á bls. 4 Gagnrýnandinn á bls. 5 Gagnrýnandinn 5 Hugmyndabankinn 6 -Þar sem sannleikur er sagður-

Upload: maria-lovisa-magnusdottir

Post on 21-Feb-2016

250 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Dagblað úr námskeiðinu Frá hugmynd til sýningar

TRANSCRIPT

1

Í nánast hverjum grunnskóla á

höfuðborgarsvæðinu er haldin

ein skólasýning eða skólaleikrit

á ári. Hægt er að vinna að

skólasýningu á marga vegu,

annað hvort að nemendur

komi sjálfir með hugmynd að

skólaleikriti eða kennarinn

einn kemur með hugmyndina

en það er alltaf best að bera

hugmyndina undir hinn

aðilann. Því þetta er samstarf á

milli tveggja eða fleiri aðila.

Það er þó alltaf kúnst að byrja

að vinna með leikrit því það er

miklu meira en að láta

nemendur fá handrit í

hendurnar og láta þá leika. Ef

kennarinn er að hluta til

óöruggur í starfi sínu er alltaf

gott að fá tilbúið handrit til að

láta nemendur leika eftir en þó

er gott að henda sér í djúpu

laugina og semja leikrit með

nemendum. Það er alla vega

mjög góður kostur sem allir

ættu að reyna að gera.

Í mars hélt Hlíðaskóli

skólaleikrit sem hét Hver er

ég? Það var einstaklega

áhrifamikið og glæsilegt. Í

stuttu máli fjallaði það um

fíkniefnaheiminn og hvað

getur gerst í honum. Það var

virkilega átakanlegt að sjá það

og virkilega gott að sjá hve

nemendur eru meðvitaðir um

fíknaefnaheiminn. Því er

mikilvægt að hafa skólaleikrit

og skólasýningar í skólum,

sérstaklega ef það er tekinn

ákveðin þemi sem nemendur

hafa virkilega áhuga á því þá

mun það skila frá sér skýr

skilaboð bæði til þeirra og

áhorfenda.

Eftir skólasýningu er hægt að

vinna út frá skólaleikritinu.

Sérstaklega við skólaleikritið

Hver er ég? Þá er hægt að fá

nemendur til að setja sig í

hlutverkin sem þeim var

úthlutað í sjálfu leikritinu og í

framhaldi gera þeir

kennsluverkefnið

útvarpsþáttur. Þar getur

kennari nýtt sér

kennsluaðferðina kastljósið. Þá

væri einn spyrjandi og hinn í

sínu hlutverki þar sem

spyrjandi spyr aðilann ýmsa

krefjandi spurninga.

Spáð er fyrir mikilli hitabylgju fyrstu hel-

gina í maí. Nú geta allir íslendingar tekið

upp stuttermabolina og stuttbuxurnar

því sumarið mun koma í maí.

Gleðilegt sumar!

Veðurspáin í maí 2012

Skólasýningar í grunnskólum

23.apríl 2012

1. bindi

Blaðið þitt

Efnisyfirlit

Skólasýningar 1

Þátttökuleikhús 2

Heyrst hefur... 2

Vettvangsnám í Hlíðaskóla

3

Hver hlýtur Grímuna í ár?

3

Hvað sérð þú? Deildu því

4

Dánarfregnir 4

GSS419G Frá hugmynd til sýningar Vor 2012 Höfundur: María Lovísa Magnúsdóttir

Blaðið mælir með:

Hver hlýtur Grímuna í ár? Bls. 3

Heyrst hefur... á bls. 2

Reynslusagan á bls. 4

Gagnrýnandinn á bls. 5

Gagnrýnandinn 5

Hugmyndabankinn 6

-Þar sem sannleikur er sagður-

2

Að taka þátt í leikhhúsi getur verið mjög

gaman og einstök upplifun.

Þátttökuleikhús er hinsvegar allt annað.

Það fer fram í skólastarfi og þar fá

nemendur smá handrit og eiga að seta í

spor þeirra sem eru í handritinu. Þar

kemur alltaf upp vandamál sem á að leysa

með hjálp áhorfenda og geta þeir stoppað

í miðjum leik og breytt atburðinum með

því að segja ,,stopp”. Þá gefst áhorfanda

að breyta einhverju í leikritinu til að leysa

vandamálið en nemendurnir sem eru í

hlutverki halda áfram að gera það sem

þeir eiga að gera samkvæmt handritinu. Í

lokin kemur oftast upp lausn en ekki alltaf.

Með þátttökuleikhúsi er hægt að taka

ýmis átakanleg verkefni með nemendum

til dæmis einelti, missir, klípu

eða álíka viðfangsefni.

Þátttökuleikhús

- að Haraldur hélt svakalega tónleika á

barnum Róró og lýðurinn gjörsamlega

trylltist!

- að Aðalbjörg hljóp nakin um bæinn

eftir að hafa verið í afmælispartýi hjá

Björgu og Berglindu.

- að Bryndís og Arna hafa viðurkennt að

hugmyndin af útvarpsþættinu þeirra

hafa komið út af vindgansvandamáli

sem þær eru með.

- að nokkrir einstaklingar sluppu frá

Kleppi og telja þeir trú um að þeir séu á

18.öld og klæðast fötum frá þeim tíma.

Lögreglan leitar að þeim en ef borgar-

búar sjá þá eru þeir beðnir um að hafa

samband við lögreglu í síma 5557771.

Fundarlaun eru í boði.

… úr námskeiðinu Frá hugmynd til

sýningar við Háskóla Íslands:

- að Júlíanna hefur tekið það að sér að

leika Valla í barnaafmælum og felur sig

fyrir börnum. Síðan leita börnin að

Valla.

- að hópur af dvergum munu koma í

heimsókn haustið 2012.

- að mikið drama hefur verið á milli

Höllu og Símons um hvor er hærri í

tímum hjá Ásu. Það endaði með hörku

slag fyrir utan Listgreinahúsið!

- að Hafþór mun nýta sönghæfileikana

sína og sækja um í American Idol 2013.

- að Sigríður ætlar að vera fyrsti leiklis-

tarkennarinn á Selfossi.

Heyrst hefur...

3

Hér er viðtal við stúlku úr Hlíðaskóla um hennar reynslu þegar

kennaranemarnir komu í hennar bekk og kenndi þeim í þrjár vikur.

Hvað heitir þú? Ég heiti Bára.

Hvað ert þú gömul? 9 ára.

Hvað heita kennaranemarnir sem komu til þín? Lovísa og Sigga.

Hvor var skemmtilegri? Lovísa (hlær).

Hvað lærðiru mest hjá Lovísu? Ég lærði mikið um Afríku og hvernig þeir lifa

og svona. Ég gerði líka dúkkulísu sem heitir Samúel sem veiðir tígrisdýr í

matinn fyrir fjölskylduna sína.

Hvað gekk vel henni Lovísu að kenna? Uhm, henni gekk bara vel. Hún kenndi

okkur mikið um Afríku og hún gaf okkur rosa góð fyrirmæli um hvað við

áttum að gera. Hún fór líka með okkur í leiki sem tengdust Afríku, það var

rosalega gaman! Eins og einu sinni fórum við leik sem heitir Fölsku tennurnar

og við áttum að velja okkur eitt dýr og segja það með hálf lokaðann munn

(sýnir og hlær) og svo áttum við að segja nafnið á dýrinu okkar.

Hvað hefði mátt fara betur hjá Lovísu? Uuuu ... ég veit ekki. Kannski bara að

skipta okkur í minni hópa, því í hópnum sem ég var í vorum við alltof mörg og

mér fannst ég gera allt ein. Það var líka ein stelpa sem vildi bara eitthvað

fíflast og fara á klósettið og það er rosalega leiðinlegt.

Lokaorð? Uuu ... já, bara, takk fyrir mig og Lovísa ég sakna þín!

um grímuvinnu í skólastarfi. Margir

nemendur eru feimnir og eiga erfitt með

að koma sjálfir fram í leiklist þá er hægt að

nota ýmsar grímur til að leyfa þeim sem

feimnir eru að njóta sín með grímurnar.

Einnig ef notað eru grímur getur það aukið

sjálfstraust þeirra sem feimnir eru.

Eftir að nemendur hafa prufað

mismunandi grímur er möguleiki að þeir

finna sig í sjálfri grímunni og þá er hægt að

búa til leikrit eða dans út frá grímunum.

Því með grímurnar á eru nemendurnir

ekki lengur þeir heldur allt önnur

manneskja. Það gefur kost á að vera allt

annar en þú sjálfur. Síðan ef nemendur

eru komnir algjörlega úr skelinni geta þeir

jafnvel búið til leikrit eða skapandi dans án

Margir hverjir hafa

verið að spá um

hver fær Grímuna í

ár. Nokkrir hafa

verið tilnefndir það

eru Halla Eyberg Þorgeirsdóttir leikona,

Sævaldur Bjarnason leikari, Júlíanna

Sigtryggsdóttir leikona og Símon Geir

Geirsson leikari. Mikil spenna er í loftinu

og í lok greinarinnar fá lesendur að vita

hver hlýtur Grímuna í ár.

Það er hægt að misskilja þetta á marga

vegu, til dæmis það fyrsta sem fólki dettur

í hug er sjálf Gríman sem er haldin hér á

landi árlega. Þar að auki er hægt að tala

um að seta á sig grímu eða jafnvel gera

grímur. Hinsvegar er hér verið að ræða

þess að vera með grímur.

Sá sem hlýtur Grímuna í ár er Símon Geir

Geirsson leikari fyrir frábært hlutverk í

Snorra Sögu sem Sturla Þórðarson. Hann

getur nálgast vinningana að Bröttugötu 6,

101 Reykjavík. Til hamingju!

Hver hlýtur Grímuna í ár?

Vettvangsnám í Hlíðaskóla

4

Blaðið tók viðtal við hin reynslumikla

Kvalmund Hákonarson. Í viðtalinu sagði

hann frá því sem hann hefur lent í og hvað

hann gerir í dag.

,,Já, ég ætla nú ekki hafa þetta langt

þannig ég ætla koma mér bara beint að

efninu. Í dag er ég 25 ára og hef upplifað

alveg helvíti margt sem enginn á að þurfa

að fara í gegnum. Þetta byrjaði allt á

skilnaðinum hjá foreldrunum mínum

þegar ég var 17 ára gamall en ástæðan

fyrir því að þau skildu var út af því að

pabbi sagðist vera transgender en ég vil

segja að hann sé hommi. Það sló mig alveg

út af laginu þegar hann sagði mér þetta.

Meina, þetta er pabbi minn. Með árunum

varð þetta verra, sérstaklega þegar pabbi

fór í aðgerð og skar undan af sér. Ég

ætlaði ekki að trúa því. Ég byrjaði að sækja

í huggun í drykki, djamm, mismunandi

töflur og gellur. Þessu fylgdi allskonar

óþveri sem ég er enn að glíma við í dag. Ég

áttaði mér ekki á þessu fyrr en ég var 20

ára þá ákvað ég að hætta þessari vitleysu

og sótti hjálp.

Í dag er ég búinn að vera ,,clean” eða

hreinn í fimm ár og er með sérstakt

námskeið þar sem allir sem hafa lent í

svipuðu geta sótt um. Námskeiðið er

háttað þannig að ég held smá fyrirlestur,

sýni þeim áhrifamiklar myndir og vinn

síðan út frá myndnum. Eftir

smáfyrirlesturinn sýni ég þeim

mismunandi myndir af börnum í einhverju

ástandi. Ég hef börn á myndunum út af því

þá eiga þáttakendurnir auðveldara að seta

sig í spor þeirra eða jafnvel upplifa það

sem sín eigin börn, sem er virkilega sterkt.

Ástæðan fyrir því að ég vinn með myndir

er sú að myndirnar gefa svo marga

möguleika til dæmis að láta þátttakendur

seta sig í spor annarra, sjá vandamálið,

átta sig á að þetta er þeirra vandamál og

þeir virkilega íhuga hlutina og jafnvel leysa

vandamálið.

Ég vel myndir sem eru áhrifamiklar, til

dæmis lítill strákur með vodkapela, stúlka

sem situr á rúmbekk og það er fullorðin

karlmaður fyrir aftan hana eða lítill strákur

sem stendur á brún á hárri blokk.

Myndirnar sem ég vel fyrir hvert námskeið

eiga alltaf við vandamál hópsins. Þegar

þátttakendur hafa skoðað myndirnar læt

ég þá til dæmis fara í örlagavefinn til að

segja eitt orð um það sem þeir upplifa við

að sjá myndina, ég fæ þá að skrifa í bréf

eða í dagbók sem einhver persóna sem

gæti tengst myndinni eða læt þá fara í

samviskugöng. Alltaf lok hvers námskeiðs

læt ég þátttakendur leika fyrir mig upp á

sviði sem einhver persóna sem á

vandamál að stríða og met ég þá út frá

því.

Til að útskrifa þátttakendurnar geri ég

ákveðið námsmat því ég verð að geta séð

að þáttakendur hafa komist yfir

vandamálið sitt. Oftast tekst en það hefur

komið fyrir að það tekst ekki en þá halda

þeir áfram í námskeiðinu ef þeir vilja og

þá tekur nýtt námskeið við þeim.

Annars er þetta mjög krefjandi

og gott námskeið og ég hvet alla sem hafa

lent í svipuðu að koma á námskeiðin.

Þetta kostar örlítinn pening og þetta er

alla miðvikudaga frá klukkan 20-22. Takk

fyrir mig og farið öll með með ykkur!”

Engar dánarfregnir eru að þessu sinni.

Hinsvegar vill blaðið minna alla á að njóta

lífsins til fulls því hver og einn dagur er einstök

gjöf.

Dánarfregnir

Hvað sérð þú? Deildu því

5

22.febrúar 2012

Komið öll blessuð og sæl!

Ég var á kaffihúsi á Laugarveginum um

daginn og heyrði fólk tala um

skuggaleikhús. Ég hafði aldrei heyrt um

það áður fyrr en kynnti mér málið. Ykkur

til fróðleiks, í skuggaleikhúsi er eingöngu

unnið með skugga. Þá er stórt hvítt tjald

að framan sviðið og fyrir aftan tjaldið eru

myndvarpar sem varpa síðan ljósi á hvíta

tjaldið. Síðan leikur fólk fyrir aftan tjaldið

og myndast þá skemmtilegur skuggi fyrir

framan tjaldið. Það sem sést fyrir framan

tjaldið sjá áhorfendur.

Í skuggaleikhúsi er hægt að vinna

með ljóð eða ákveðna sögu sem hægt er

að vinna með ýmsum hætti. Til að nefna

örfá dæmi er hægt að vinna með liti,

form, dúkkulísur, tákn eða allskyns vökva

því þá myndnast skemmtileg áferð. Einnig

geta allir leikið fyrir aftan tjaldið sem

einhver persóna. Þar að leiðandi er hægt

að hafa sögupersónu eða upplestur á

ljóði.

Þetta fannst mér einstaklega

hrífandi en sá nú samt ekki alveg hvernig

þetta myndi nú fara fram. Þá heyrði ég

þetta ákveðna fólk tala um að það væri

sýning 18.febrúar í Háskólabíói og ég

ákvað að skella mér á hana. Viti menn,

þetta var án efa eitt af því fallegasta sem

ég hef séð á allri minni ævi. Þetta byrjaði á

leik með litum sem var töfrandi að horfa á

og eftir því sem á leið varð þetta betra og

betra. Þó kom af og til hik sem hefði mátt

laga en þetta var þó ekkert sem hægt var

að setja mikið út á því ég tel að tónlistin

hafi bjargað þessu. Einnig komu af og til

skuggar bak við stóra tjaldið sem er hægt

að líta á sem kost eða galla en ég vil líta á

það sem kost því þá sást að það voru

einhverjir þarna bakvið að leika!

Þetta voru örugglega vel æft fólk

og sú/sá sem leikstýrði þeim hlýtur að

hafa verið mjög reynd/ur! Ég var orðlaus

þegar ég fór út af þessari sýningu og því

gef ég þeim 4 stjörnur af 5 stjörnum!

- Jeremías Þorláksson leikari og

listamaður

Hér eru myndir sem ég tók af sýningunni, 18.febrúar 2012.

Barnaleikfélagið Hollíhopp er að leita af frábærum skólabörnum sem hafa gaman

af leiklist og vilja taka þátt í skuggaleikhúsi. Það verður eintóm gleði hjá okkur því

öll skólabörn eru velkomin því þau koma alltaf með frábærar hugmyndir sem

hægt er að nýta í skuggaleikhús! Þeir sem hafa áhuga sendið okkur póst á

[email protected]. Við erum með sérstakt tilboð sem er eingöngu fyrir öll

skólabörn og kennara þeirra sem vilja læra að gera skuggaleikhús*.

*ATH. Tilboðið gildir aðeins út maí 2012.

Langar þér að taka þátt í skuggaleikhúsi?

Gagnrýnandinn

6

Anna Jeppesen og Ása Helga Ragnarsdóttir (2004). Leiklist í kennslu. Reykjavík: Námsgagnastofnun Flickmylife (2010). Kvöldið verður gott í Reykjavík. Reykjavík. Sótt 9.apríl 2012 af http://www.flickmylife.com/archives/2612 Phfamilyblog: Love is... (2010). Love is. Sótt 9.apríl 2012 af http://annesphamily.blogspot.com/2010/07/love-is.html Sudoku Puzzle for kids (2006-2012). Kids sudoku puzzels. Sótt 9.apríl 2012 af http://www.allkidsnetwork.com/puzzles/kids-sudoku.asp Aðrar myndir í blaðinu er annað hvort teknar úr myndasafni höfunds eða í forritinu Publisher.

Heimildir

sem allir nemendur taka eitt atvik sem

þeir hafa lent í, til dæmis eitthvað óhapp

og gera leikrit út frá því. Leikritið myndi þá

fjalla um manneskju sem lendir í ýmsum

óhöppum en að lokum finnst

alltaf lausn.

- Kennari getur lagt

kennsluverkefnið Frá

höfuðfati yfir sýningu. Í lokinn

finna allir nemendur sér

persónu og kynnast henni.

Endalaust er hægt að vinna með

hugmyndir og spinna út frá þeim. Í

skólastarfi er hægt að vinna með

hugmyndir nemenda sem myndi enda

með sýningu. Sem dæmi er hægt að:

- Allir nemendur læra um Afríku og kynna

sér lifnaðarhætti og menningu. Síðan að

lokum myndu þeir sýna leikrit um hvernig

líf í Afríku er.

- Hægt er að vinna út frá

kennsluverkefninu Persónuleg reynsla. Þar

Síðan út frá því yrði gert leikrit sem gæti

orðið mjög spennandi.

Hugmyndabankinn

Heimsóttu heimasíðu okkar

á www.brostubreitt.is

Á námskeiðinu Frá hugmynd til sýningar hef ég haft

margt gagn af. Ef ég lít til baka þá sé ég hve mikið ég

hef lært á námskeiðinu sem ég get nýtt mér í

skólastarfi. Einnig hefur verið mikill aukning orðið á

sjálfstrausti mínu!

Að mínu mati komu bækur námskeiðsins

mér að miklu gagni. Þetta eru algjörir gullmolar.

Námskeiðið hefur heppnast mjög vel og allt var mjög

vel skipulagt. Það er ekki hægt að gera upp á milli

viðfangsefna sem var kennt en þó stendur

fyrirlesturinn hjá henni Vigdísi Jakobsdóttur upp úr.

Einnig hefði verið mjög gaman að hafa verið

viðstödd grímugerðanna og skapandi dans en ég var

ekki viðstödd þann tíma. Hinsvegar lærði ég

ótrúlega mikið í námskeiðinu og allt það sem var

kennt á námskeiðinu á skilyrðislaust að vera í næsta

námskeiði! Ég gef námskeiðinu fimm broskalla af

fimm!

- María Lovísa Magnúsdóttir kennaranemi og

höfundur blaðsins Blaðið mitt

Leiklist er ...

... að vera þú sjálfur í einu og öllu.