25.tbl

24
vf.is vf.is | www.ytjandi.is | sími mi 525 7 5 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Víkurfréttir Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 21. JÚNÍ 2012 25. TÖLUBLAÐ 33. ÁRGANGUR HÁGÆÐASTEYPA FRÁ BORG – TIL AFHENDINGAR STRAX! (FRAMLEITT SAMKVÆMT STÖÐLUM ÍST EN 206-1, ÍST EN 197-1, ÍST EN 12620) Kaplahrauni 9b - 220 Hafnarfirði - Sími: 414 7777 Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946 Leggur skóna á hilluna E ftir 52 ár í skóviðgerðum mun Jón Stefánsson loks láta af störfum í dag. Verkstæði hans á Skólavegi mun ekki þjóna Suðurnesjamönnum áfram en starfsemin mun færast yfir í Nettó-húsið þar sem lærlingur Jóns tekur við keflinu. Í gegnum árin hafa hillurnar á verkstæðinu fyllst af skóm sem fólk hefur gleymt að sækja. Einnig eru þar töskur og annað hafurtask sem Jón vill endilega losna við. Jón Skó, eins og hann er jafnan kallaður hefur rekið skóverkstæðið í yfir 50 ár. Sigurbergur tengdafaðir hans hóf rekstur fyrirtækisins árið 1928 og því mætti segja að fyrirtækið sé eitt það elsta á Suðurnesjum sem hefur verið rekið samfleytt af sömu ölskyldu. Nú er svo komið að Jón hyggst leggja skóna á hilluna eins og svo oſt er haſt á orði varðandi íþróttamenn. Það hefur sjálfsagt aldrei átt jafn vel við og núna. Í næsta blaði Víkurfrétta mun birtast ítarlegt viðtal við Jón og Guðrúnu konu hans. Æfir í elsta „gymminu“ í Las Vegas Blóðrauð bíómynd með uppvakningum Ganga Ísland horn í horn ›› Íþróttir ›› Mannlíf ›› Mannlíf - sjá frétt á bls. 22 - sjá bls 16 - sjá bls 10 Jón Skó og arftaki hans, Sigurður Ólafsson bregða á leik með skó í óskilum VF-Mynd: Eyþór Sæmundsson Krakkarnir á leikskólanum Vesturbergi týndu rusl í nágrenni við bátinn Baldur KE við smábátahöfnina í Keflavík. Þessi litla dama var með fjölbreytt rusl og bleika golfkúlu.

Upload: vikurfrettir-ehf

Post on 08-Mar-2016

243 views

Category:

Documents


8 download

DESCRIPTION

25.tbl 33.árgangur

TRANSCRIPT

Page 1: 25.tbl

vf.isvf.is

Metan er innlendurog umhverfisvænnorkugjafi sem erhelmingi ódýrarien bensín.

Nýttu þér kostimetans meðVolkswagen.

K. Steinarsson – Njarðarbraut 13420 5000 - [email protected]

Das Auto. TM

Opið allansólarhringinn

Fitjum

NÝTTMorgunverðar-matseðill

Aðeins í boði áSubway Fitjum

Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is

989kr/stk.Tilboðsverð!

339kr/stk.Tilboðsverð!

EASYÞVOTTAEFNI

ALOE VERA 2.7 KG

EASYMÝKINGAREFNI

2 L

| www.flytjandi.is | símimi 525 75 7700 |

VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND

Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan-úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2.

Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0

fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB

Æsispennandikörfuknattleikir

- sjá nánar á bls. 23

VíkurfréttirKrossmóa 4, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

F I M M T U d A g U R I n n 2 1 . J Ú n Í 2 0 1 2 • 2 5 . T ö l U b l A ð • 3 3 . á R g A n g U R

HÁGÆÐASTEYPA FRÁ BORG

– TIL AFHENDINGAR STRAX!(FRAMLEITT SAMKVÆMT STÖÐLUM

ÍST EN 206-1, ÍST EN 197-1, ÍST EN 12620)

Kaplahrauni 9b - 220 Hafnar�rði - Sími: 414 7777

Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæs. 420 5000 - Fax: 421 5946

Leggur skóna á hillunaEftir 52 ár í skóviðgerðum mun Jón Stefánsson loks láta af störfum í dag. Verkstæði hans á Skólavegi mun ekki þjóna

Suðurnesjamönnum áfram en starfsemin mun færast yfir í Nettó-húsið þar sem lærlingur Jóns tekur við keflinu. Í gegnum árin hafa hillurnar á verkstæðinu fyllst af skóm sem fólk hefur gleymt að sækja. Einnig eru þar töskur og annað hafurtask sem Jón vill endilega losna við.Jón Skó, eins og hann er jafnan kallaður hefur rekið skóverkstæðið í yfir 50 ár. Sigurbergur tengdafaðir hans hóf rekstur fyrirtækisins árið 1928 og því mætti segja að fyrirtækið sé eitt það elsta á Suðurnesjum sem hefur verið rekið samfleytt af sömu fjölskyldu. Nú er svo komið að Jón hyggst leggja skóna á hilluna eins og svo oft er haft á orði varðandi íþróttamenn. Það hefur sjálfsagt aldrei átt jafn vel við og núna. Í næsta blaði Víkurfrétta mun birtast ítarlegt viðtal við Jón og Guðrúnu konu hans.

Æfir í elsta „gymminu“ í Las Vegas

Blóðrauð bíómynd með uppvakningum

Ganga Ísland horn í horn

›› Íþróttir ›› Mannlíf ›› Mannlíf

- sjá frétt á bls. 22 - sjá bls 16 - sjá bls 10

Jón Skó og arftaki hans, Sigurður Ólafsson bregða á leik með skó í óskilum VF-Mynd: Eyþór Sæmundsson

Krakkarnir á leikskólanum Vesturbergi týndu rusl í nágrenni við bátinn Baldur KE við

smábátahöfnina í Keflavík. Þessi litla dama var með fjölbreytt rusl og bleika golfkúlu.

Page 2: 25.tbl

2 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Innbrot í fyrirtæki í Reykjanesbæ

Brotist var inn í fyrirtæki í Reykjanesbæ aðfaranótt

sunnudags. Rúða hafði verið brotin á norðurhlið hússins og voru ummerki um að þar hefði verið farið inn. Athugun leiddi í ljós að verðmæt Apple tölva var horfin, en ekki hafði verið hreyft við öðru innandyra. Öryggiskerfi í fyrirtækinu hafði farið í gang skömmu eftir miðnætti og var þá hringt eftir aðstoð lögreglu, sem vinnur nú að rannsókn málsins.

Steypumótum og olíu stolið

Tilkynnt var til lögreglunnar á Suðurnesjum um stuld

á steypumótum um helgina. Þegar flytja átti mótin milli staða kom í ljós að hluti þeirra var horfinn, svo og klemmur, stoðir og ýmislegt fleira. Þá var tilkynnt um stuld á olíu af vinnutækjum á vinnusvæði við Reykjanesvirkjun. Olíunni var stolið af beltagröfu og tveimur öðrum vinnutækjum þar. Ekki er ljóst um hve mikið magn var að ræða. Málið er í rannsókn.

Ölvaður í hraðakstri á torfæruhjóli

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið akstur

karlmanns á fertugsaldri sem ók torfæruhjóli langt yfir leyfilegum hraða á Sandgerðisvegi. Mældist hjólið vera á 122 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Maðurinn bar einkenni ölvunar og var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var hann sviptur ökuréttindum. Tíu ökumenn til viðbótar reyndust aka yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögregl-unnar um helgina.

›› FRÉTTIR ‹‹

LÖGREGLU

Skemmdarvargur olli milljóna tjóni á tug bílaleigubíla í Innri

Njarðvík í liðinni viku. Bílarnir voru rispaðir og dældaðir, speglar og rúður brotnar og þá var mannasaur atað á bíla.Aðkoman að bílaleigubílunum var vægast sagt ógeðsleg en inni á milli bílanna hafði skemmdarvargurinn leyst niður um sig buxurnar og skitið í nærbuxur sínar. Saurnum hafði svo verið makað og kastað í bíla.Skemmdar verkin á bí lunum hafa að öllum líkindum verið unnin á tímabilinu 20:30 til 22:00 á fimmtudagskvöldið 14. júní.

Rannsóknardeild lögreglunnar var kölluð til þegar málið kom upp en nú er biðlað til vegfarenda sem voru á ferðinni við gömlu Gokart-brautina í Innri Njarðvík á þessum tíma en bílaleigan er í húsi við brautina og bílarnir sem voru skemmdir stóðu allir á, eða við gömlu Gokart-brautina.Eigendur bílaleigunnar segja tjónið bagalegt. Vont sé að missa svo marga bíla úr leigunni nú þegar vertíðin sé að byrja.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á vettvangi skemmdarverkanna.

Skemmdi tug bílaleigubíla og ataði mannasaur

Um helgina 21.-24. júní fer fram Sólseturshátíðin í

Garðinum. Sólseturshátíðin hefur undanfarin ár fest sig í sessi sem hátíð fjölskyldunnar. Hátíðarhöldin fara fram á Garðskaga en þar er góð aðstaða fyrir tjaldbúa, tjaldvagna og húsbíla. Snyrting, rennandi vatn og rafmagn er til staðar. Sólsetrið á Garðskaga er einstök sjón og tímasetning hátíðarinnar er vel við hæfi þar sem Sumarsólstöður

eru nýafstaðnar og sólsetrið gyllir hafið á meðan Garðbúar og gestir þeirra syngja og gleðjast við varðeldinn.Sjá má dagskrá hátíðarinnar í auglýsingu í blaðinu og einnig á svgardur.is. Hátíðarhöldum Ferskra vinda lýkur sömu helgi með tónleikum hinnar bresku og heimsþekktu Nicolette og bandarísku tónlistarkonunni Deborah Charles.

Sólseturshátíð í Garðinum

Page 3: 25.tbl

Skeifan 8108 Reykjavík

Hafnargata 60230 Reykjanesbæ

Strandgata 18735 Eskifjörður

Tryggvabraut 10600 Akureyri

Reykjavík | Reykjanes | Austurland | Akureyri | 580 7000 | www.securitas.is

SECURITAS TILFYRIRMYNDARSECURITAS TILFYRIRMYNDAR

Securitas státar af 30 ára sögu. Á því tímabili hefur safnast saman reynsla og þekking sem meira en 400 starfsmenn skila viðskiptavinum okkar, bæði nótt sem nýtan dag. Securitas er stærsta öryggisfyrirtæki á Íslandi og þjónar meira en 12 þúsund heimilum og fjölda fyrirtækja.

Árlega veitir VR efstu fyrirtækjum í könnun sinni á fyrirtækjum ársins viðurkenningu fyrir frábæran árangur. Við hjá Securitas erum stolt af því að hafa náð öðru sæti í vali á fyrirtækjum ársins 2012.

Nú hefur okkur hlotnast þessi nafnbót þriðja árið í röð. Það er okkur hvatning til að halda áfram á sömu braut og vinna staðfastlega eftir einkunnarorðum okkar sem eru: heiðarleiki, árvekni og hjálpsemi.

Securitas státar af 30 ára sögu. Á því tímabili hefur safnast saman reynsla og þekking sem meira en 400 starfsmenn skila viðskiptavinum okkar, bæði nótt sem nýtan dag. Securitas er stærsta öryggisfyrirtæki á Íslandi og þjónar meira en 12 þúsund heimilum og fjölda fyrirtækja.

Árlega veitir VR efstu fyrirtækjum í könnun sinni á fyrirtækjum ársins viðurkenningu fyrir frábæran árangur. Við hjá Securitas erum stolt af því að hafa náð öðru sæti í vali á fyrirtækjum ársins 2012.

Nú hefur okkur hlotnast þessi nafnbót þriðja árið í röð. Það er okkur hvatning til að halda áfram á sömu braut og vinna staðfastlega eftir einkunnarorðum okkar sem eru: heiðarleiki, árvekni og hjálpsemi.

ÍSL

EN

SKA

SIA

.IS

SE

C 6

0244

06

/12

SEC 60244 Fyrirmyndarfyrirtaeki Vikurfr HQ.pdf 1 20.06.2012 15:29

Page 4: 25.tbl

mar

khon

nun.

is

Kræsingar & kostakjör

SÓL OG SUMARSKAP Í NETTÓ

ÁÐUR 549 KR/PK

384ÁÐUR 2.398 KR/KG

1.990

ÁÐUR 1.698 KR/KG

1.290 ÁÐUR 498 KR/KG

299

KJÖTSELSVÍNABÓGSNEIÐAR

LAMBARIFJURGRILL

798489ÁÐUR 998 KR/KGÁÐUR 698 KR/KG

GRÍSAKÓTELETTURRAUÐVÍNSKRYDDAÐAR

OSTA- GRILLPYLSUR300 G

KJÚKLINGAVÆNGIRHVÍTLAUKS 40% AFSLÁTTUR

30% AFSLÁTTUR24% AFSLÁTTUR

30% AFSLÁTTUR

ÁV

ÖX

TU

RV

IKU

NN

AR

599ÁÐUR 798 KR/STK

SJÓNVARPSKAKAÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

25% AFSLÁTTUR

PLÓMUR500 G ASKJA

1.792ÁÐUR 2.298 KR/KG

MJÓLKURKEX500 G - ÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

KREMKEX500 G - ÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

MATARKEX2X250GÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

359 459 359

GRÍSA T-BEINCAJ P’S

Tilboðin gilda 21. - 24. JÚNÍTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

BA

KA

ÐT

ILB

VÍNARBRAUÐSLENGJA

ÁÐUR 549 KR/STK

275

50% AFSLÁTTUR

HRÍSKÖKURÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐDÖKKAR EÐA LJÓSAR4STK/PK

GRÍSAFÍLESNEIÐARLOUISIANA

ÁÐUR 269 KR/PK

199ÁÐUR 2.298 KR/STK

1.499

ÁÐUR 398 KR/PK

199PESTÓ –GRÆNT190 G

PESTÓ –RAUTT190 G

KJÚKLINGABRINGUROKKAR 3 STK

379 X-TRA FLÖGURSOUR CREAM ONION

X-TRA FLÖGURSALT

26% AFSLÁTTUR

50% AFSLÁTTUR

198ÞÚ SPARAR 101 KR PER STK!

198ÞÚ SPARAR 101 KR PER STK!

Page 5: 25.tbl

mar

khon

nun.

is

Kræsingar & kostakjör

SÓL OG SUMARSKAP Í NETTÓ

ÁÐUR 549 KR/PK

384ÁÐUR 2.398 KR/KG

1.990

ÁÐUR 1.698 KR/KG

1.290 ÁÐUR 498 KR/KG

299

KJÖTSELSVÍNABÓGSNEIÐAR

LAMBARIFJURGRILL

798489ÁÐUR 998 KR/KGÁÐUR 698 KR/KG

GRÍSAKÓTELETTURRAUÐVÍNSKRYDDAÐAR

OSTA- GRILLPYLSUR300 G

KJÚKLINGAVÆNGIRHVÍTLAUKS 40% AFSLÁTTUR

30% AFSLÁTTUR24% AFSLÁTTUR

30% AFSLÁTTUR

ÁV

ÖX

TU

RV

IKU

NN

AR

599ÁÐUR 798 KR/STK

SJÓNVARPSKAKAÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

25% AFSLÁTTUR

PLÓMUR500 G ASKJA

1.792ÁÐUR 2.298 KR/KG

MJÓLKURKEX500 G - ÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

KREMKEX500 G - ÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

MATARKEX2X250GÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

359 459 359

GRÍSA T-BEINCAJ P’S

Tilboðin gilda 21. - 24. JÚNÍTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

BA

KA

ÐT

ILB

VÍNARBRAUÐSLENGJA

ÁÐUR 549 KR/STK

275

50% AFSLÁTTUR

HRÍSKÖKURÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐDÖKKAR EÐA LJÓSAR4STK/PK

GRÍSAFÍLESNEIÐARLOUISIANA

ÁÐUR 269 KR/PK

199ÁÐUR 2.298 KR/STK

1.499

ÁÐUR 398 KR/PK

199PESTÓ –GRÆNT190 G

PESTÓ –RAUTT190 G

KJÚKLINGABRINGUROKKAR 3 STK

379 X-TRA FLÖGURSOUR CREAM ONION

X-TRA FLÖGURSALT

26% AFSLÁTTUR

50% AFSLÁTTUR

198ÞÚ SPARAR 101 KR PER STK!

198ÞÚ SPARAR 101 KR PER STK!

Page 6: 25.tbl

Leiðari Víkurfrétta

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.

Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000Páll Ketilsson, sími 421 0007, [email protected] Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected]þór Sæmundsson, [email protected] Einarsson, sími 421 0001, [email protected]íkurfréttir ehf.Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, [email protected]Þorsteinn Kristinsson, [email protected], sími 421 0011Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, [email protected] Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, [email protected] eintök.Íslandspósturwww.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is

Útgefandi:Afgreiðsla og ritstjórn:

Ritstjóri og ábm.:Fréttastjóri:

Blaðamaður:Auglýsingadeild:

Umbrot og hönnun:Auglýsingagerð:

Afgreiðsla:

Prentvinnsla:Upplag:

Dreifing:Dagleg stafræn útgáfa:

Páll Ketilsson, ritstjóri

vf.isvf.is

Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 28. júní 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða [email protected]

Horfum fram á veginnNú þegar sumarið er að ná hátindi sínum og allir hlakka til að njóta birtu, blíðu og yndislegrar náttúru hamast margir Suðurnesjamenn á samfélagsmiðlum og einnig í spjalli manna á milli og tala

um hvað endalok Sparisjóðsins voru okkur leiðinleg og dýr. Hika ekki við að höggva mann og annan, tengdum Spkef á einn eða annan hátt eða jafnvel ekki tengdir honum. Það er deginum ljósara að það voru gerð mistök, bæði fyrir og eftir hrun í Sparisjóðnum. Rannsókn á starfsemi Spkef er í vinnslu sem Alþingi stofnaði til og er von á niðurstöðum úr henni síðla sumars eða á haustmánuðum. Víkurfréttir hafa fengið gagnrýni og spurningar á samfélagsmiðlinum Facebook um að hafa ekki fjallað nægilega um málið. Því er til að svara að fjallað hefur verið um málefni Spkef fyrir og eftir hrun í prentútgáfu og vefútgáfu VF á þann hátt sem miðillinn hefur reynt að gera um hin ýmsu mál í þrjá áratugi. Þar er þess m.a. gætt að bæjarblöð eru miðill sem eru nær fólki á þeim svæðum sem þau koma út á og þeirra óskrifaða regla hefur verið sú að vera með nærgætni í umfjöllunum en beina kröftum sínum meira að jákvæðum þáttum í samfélaginu en því sem miður fer.Í síðustu viku, þegar niðurstaða varð ljós hvað ríkið þarf að greiða ríkisbankanum Landsbankanum fyrir yfirtökuna á okkar aldagamla Spkef, kom í framhaldinu hrina frétta í ríkismiðlinum sem flestar voru gamlar, um Spkef. Í kjölfar frétta

um milljarðana sem ríkið og þar með almenningur þarf að greiða tóku Víkurfréttir viðtal við fjármálaráðherra Íslands, Oddnýju Harðardóttur. Hún er þingkona Suðurnesjamanna, búsett í Garðinum þar sem Sparisjóðurinn var stofnaður. VF birti auk þess frétt frá aðalfundi Samtaka stofnfjáreigenda Spkef og þá var önnur frétt þar sem vitnað var í frétt RÚV og loks skrifaður leiðari um þetta sorglegasta mál okkar Suðurnesjamanna í langan tíma. Á sama tíma spurðu sumir hvers vegna VF gerði ekki neitt og jafnvel ýjað að því að það væri einhver tenging við Spkef, sem engin var utan eðlilegra viðskipta nema að VF leigði húsnæði af Spkef í fimmtán ár og greiddi af mánaðarlega. Engin kúlulán og engar afskriftir, hvorki hjá VF eða eiganda þess.Margir virðast þó hafa áhuga á að fjallað sé um Spkef á þann hátt sem RÚV gerði í nokkra daga í síðustu viku en þar vitnaði fréttastofan í skýrslu sem endurskoðunarfyrirtæki gerði um Spkef síðustu árin fyrir hrun. RÚV eitt hefur þá skýrslu undir höndum af ókunnum ástæðum og því gera aðrir fjölmiðlar lítið annað en að vitna í RÚV, kjósi þeir svo. Engar nýjar upplýsingar liggja fyrir. Ekki er vitað með vissu hvernig rannsóknarvinnan gengur en eins og með rannsóknarskýrslu Alþingis verður hún birt almenningi. Þá verður hún opin fjölmiðlum.Þangað til ættum við Suðurnesjamenn að einbeita okkur að öðrum málum sem tengjast framtíð svæðisins. Forseti

Íslands kom með góða ábendingu í sjónvarpsþætti í vikunni þegar hann var ítrekað spurður út í það sem hann hafði sagt um áramótin um framtíð sína í embættinu, hvort hann yrði jafnvel ekki út síðasta tímabilið, gæfi hann kost á sér áfram. Forsetinn sagðist hafa svarað þeirri spurningu í sjónvarpsþætti á sömu stöð nokkrum dögum áður en einnig oft í spjalli við fólk um allt land síðustu vikurnar. Hann sagðist frekar vilja tala um framtíðina og þá miklu möguleika sem landið hefði og gagnrýndi spyrlana fyrir að spyrja alltaf um gömul mál sem hann væri búinn að svara. Með öðrum orðum, ekki alltaf að vera að líta á það sem liðið er heldur horfa fram á veginn.Er ekki málið að gera það? (Forsetinn kom einnig inn á þetta í viðtali sem sjá má á VF.is.)Er ekki miklu mikilvægara að Suðurnesjamenn standi saman nú þegar mest ríður á í miklu ölduróti atvinnuleysis og óvissu. Látum dómstólana um þeirra hlutverk. Þeir munu án efa fá málefni Spkef inn á borð til sín. Við skulum heldur ekki gleyma því að hér varð bankahrun og það misstu margir fótanna í ótrúlegu og fölsku góðæri sem langflestir tóku þátt í á einn eða annan hátt, svo vitnað sé í orðatiltæki forsetans, sem var óbeinn þátttakandi í því þegar hann hampaði útrásarvíkingunum á margvíslegan hátt. Það er erfitt að skamma hann fyrir það núna þó margir geri það. Hann vissi ekki betur þá. Ekki við heldur. Það er auðvelt að setjast í dómarasætið eftir á. Aðalatriðið er að læra af mistökunum.

Lestur er undirstaða allrar virkni og þátttöku í samfélaginu. Það hefur lengi verið vitað og mikið rætt, ekki síst á undanförnum árum, þar sem framboð afþreyingar hefur aukist. Menningar- og v í s i n d a s t o f nu n S a m e i nu ð u þjóðanna (UNESCO) nefnir örvun og styrkingu lestrarvenja barna frá unga aldri sem fyrsta lykilmarkmið í kjarnaþjónustu almenningsbókasafna.Hlutverk almenningsbókasafna er skýrt út frá lög um um almenn-ingsbókasöfn (1997 nr. 36 16. maí), sem kveða m.a. á um að þau skuli: - veita fólki, börnum og fullorðnum, greiðan aðgang að fjölbreyttum bókakosti og öðrum miðlunargögnum.- efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upplýsingum og þekkingarmiðlum.- efla íslenska tungu, stuðla að

símenntun og örva lestraráhuga.Með þetta að leiðarljósi vill starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar stuðla að því að lestur verði lífsstíll allra íbúa bæjarfélagsins.

„Þeir sem lesa mikið á barnsaldri hafa fjölbreyttari áhugamál en fólk sem les lítið í æsku.“ -Úr rannsókn Ágústu Pálsdóttur bókasafnsfræðings á lestr i í íslenskum fjölskyldum.

SumarlesturSumarlestur fyrir grunnskólabörn hófst 1. júní s.l. og stendur til 31. ágúst. Sumarlesturinn er unninn í samstarfi við grunnskólanna enda leggja skólarnir áherslu á að lestrareflingu og yndislestur, líkt og Bókasafnið. Í sumar eru læs börn á leið í grunnskóla sérstaklega boðin velkomin. Leikskólarnir vinna með læsi, stærðfræðihugtök

o g t a l n a s k i l n i ng í l e i k o g starfi samkvæmt framtíðarsýn Reykjanesbæjar í skólamálum og mörg elstu barnanna orðin læs.

SögustundirÞessi sömu leikskólabörn koma í heimsóknir á Bókasafnið yfir veturinn og fá þannig góð kynni af sínu almenningsbókasafni. Lesið er fyrir börnin í sögustundum og rabbað um bækurnar, þau fá kynningu á safninu og fróðleik um meðferð bóka.

Listsýningar leikskólabarnaÁ safninu fá þessir ungu gestir okkar gagnkvæma virðingu sem birtist m.a. í því að leikskóla-börnum er boðið að sýna afrakstur vetrarstarfsins í mynd- og hand-mennt innan veggja safnsins. Allir leikskólarnir 10 sýna í sumar, 2 vikur í senn, frá 7. maí til 21. september.

Bókakoffort í leikskólumÚtibú frá Bókasafninu er staðsett í 9 leikskólum í Reykjanesbæ. Koffort fullt af bókum fer á milli deilda í hverjum skólanna 9 og auðvelda börnum og foreldrum aðgengi að fjölbreyttum bókakosti. Rúmlega 100 bókatitlar eru í hverju kofforti til útláns og þeim fjölgar í haust. Þá er fjölmenningarverkefni einnig starfandi í 9 leikskólunum en það inniheldur bækur með upplestri til að hluta á samhliða skoðun bóka, en það auðveldar tvítyngdum börnum að læra íslensku.

SögupokarSögupokaverkefni Bókasafnsins hefur vakið mikla athygli víða um land, en sögupoki er taupoki með bók og hlutum/dóti sem tengjast sögunni. Verkefnið miðar að því að auka lesskilning barna og víkka út lestrarupplifun þeirra í gegnum lestur og leik með foreldrum eða forráðamönnum. Sögupokar eru í hnokkadeild alla opnunardaga.Fjölbreyttur bókakostur fyrir allaEftir að Bóksafnið tók þátt í samstar fsverkefni nokkurra almenningsbókasafna, „Bækur

og móðurmál“ sem hafði það að markmiði að efla bókakost fyrir almenning sem átti annað móðurmál en íslensku, á safnið gott úrval af bókum á ensku og pólsku.

Kynningar á safninuStarfsfólk bókasafnsins notar ýmsar leiðir til þess að kynna fjölbreytta þjónustu safnsins og safnkost. Skólabörn koma í heimsóknir, almenningur fær leiðsögn um safnið og starfsfólk nýtir samfélagsmiðilinn Facebook og veraldarvefinn í þessu efni. Vefslóð safnsins er reykjanesbaer.is/bokasafn og safnið er skráð sem Bókasafn Reykjanesbæjar á Facebook.

NotendafræðslaLánþegum stendur til boða að fá kennslu í upplýsingalæsi og heimildaleit í gagnagrunnum á Bókasafninu yfir vetrarmánuðina. Þjónustan, sem er gjaldfrjáls, hefur það að markmiði að bæta notendur í upplýsingalæsi og heimildaleit.

UpplýsingaþjónustaSérhæft starfsfólk Bókasafnsins starfar við upplýsingaþjónustu safnsins. Lánþegar sem þurfa á sérhæfðu efni að halda fá a ð s t o ð f r á b ó k a s a f n s - o g u p p l ý s i n g a f r æ ð i n g u m v i ð efnisöflun og heimildarleit.

Tölvur og þráðlaust netAlmenningi gefst kostur á að nota

tölvukost safnsins sem staðsettur er í almenningsrými. Þar er bæði hægt að komast á veraldarvefinn og vinna í Office forritum. Þá er þráðlaust net á safninu fyrir fólk með eigin tölvur. Allir sem eiga gild bókasafnskort á Bókasafni Reykjanesbæjar fá þjónustuna endurgjaldslaust, annars þarf að greiða fyrir hana.

Heimsendingar, eldri borgarar og sjúkir

Þeir lánþegar sem ekki eiga að heima gegnt geta fengið safn-gögn send heim. Þá þjónustar starf sfólk einnig eldri borgara á Nesvöllum og Hlévangi og sjúka á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Spjall, grúsk og bókmenntaarfurYfir vetrarmánuðina er starf-and i b ók aspj a l l á s a f n i nu . Þar er rabbað um bækur sem þátttakendur Bókaspjalls hafa verið að lesa. Einnig er boðið upp á bókmenntanámskeið undir liðnum „Kynning á bókmenntaarfinum.“ Í haust ætlar Þorvaldur Sigurðsson, bókmennta- og íslenskukennari að fjalla um Njálu. Að lokum má geta þess að aðstaða á safninu hefur verið nýtt fyrir fleiri áhugahópa, t.d. ættfræðigrúskara sem hittast þar reglulega við sína iðju.

Hu l d a Björ k Þ or kel s d ót t ir forstöðumaðurSvanhildur Eiríksdóttir deildastjóri

Viljum gera lestur að lífsstíl íbúa Reykjanesbæjar

6 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Page 7: 25.tbl

7VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012

Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 28. júní 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða [email protected]

JÓNSMESSUGANGABLÁA LÓNSINS

Laugardagskvöldið 23. júní bjóða Bláa Lónið og Grindavíkurbærupp á árlega Jónsmessugöngu sem hefst við Sundlaug Grindavíkur kl. 20.30

UPPLIFÐU TÖFRAMÁTT JÓNSMESSUNNAR Á BJARTRI SUMARNÓTTGakktu með okkur á fjallið Þorbjörn og njóttu þess að hlusta á Svavar Knút leika tónlist við varðeld á fjallinu. Komdu svo með okkur í Bláa Lónið þar sem tónlistin heldur áfram til miðnættis og þú færð Blue Lagoon kokteil í boði hússins.

Ekkert þátttökugjald er í gönguna og göngugarpar komast í Bláa Lónið fyrir 3.500 kr. Nánari upplýsingar um Jónsmessugönguna og skipulagðar sætaferðir má sjá á www.bluelagoon.is

AN

TON

& B

ERG

UR

góður bær

Page 8: 25.tbl

8 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Krossmóa 4 • 4. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 0000

„Mamma, þú ert facebook-fíkill!“ sagði eldri sonur minn einn daginn. Ég var snögg í vörn og benti honum pent á að vinna mín væri nú einu sinni

þannig að ég þyrfti að vera mikið í tölvunni en ég hefði fullkomna stjórn á þessu. „Mamma, í gær var ég búin að kveðja þig 10 sinnum án þess að þú tækir eftir því svo hljópstu á eftir mér þegar þú sást mig út um eldhúsgluggann og öskraðir svo allt hverfið heyrði: blesssssss elskan, heyrði þig ekki kveðja! Nú kom stuðningur frá þeim yngri „stundum er ég að segja þér eitthvað merkilegt og þú horfir á mig með tómum augum, segir JÁ öðru hverju, gjóar svo alltaf með öðru auganu á tölvuskjáinn (heldurðu að ég taki ekki eftir því) og ég finn að þú veist ekkert

um hvað ég er að tala“. Þessu var ekki lokið – „svo erum við kannski að horfa á einhverja mynd og þurfum að setja á pásu þegar þú segist ætla á klósettið og svo skilur maður ekkert hvað þú ert lengi, heyrum „pikk, pikk, pikk“ og hlátur í kjölfarið....þú komin á facebook að hlægja að status....frá sjálfri þér“.Stundum hef ég á tilfinningunni að ég ein og óstudd beri ábyrgð á hnignun íslenska stofnsins – homo Islandius!! Þetta byrjaði allt vorið 2008 en þá ákvað ég að fjárfesta í flatskjá. Hefði svo sem getað látið gamla túbusjónvarpið sem jón vinur gaf mér duga lengur, en í einhverju kastinu var ég komin inn í Rönning og búin að fjárfesta í 42 tommu tæki og heimabíói. Ég þarf kannski ekki að hafa mörg orð um líðan mína þegar Geir bað Guð að blessa íslensku þjóðina þar sem flatskjárinn var orðin táknmynd græðgisvæðingarinnar og óráðssíunnar. Dró því gluggatjöldin fyrir þegar við fjölskyldan nutum þess að horfa á hverja stórmyndina á fætur annarri í okkar eigin bíósal. Þetta átti bara eftir að versna því mitt í þessu var ég farin að drekka kaffi latté og tilheyrði þar með aumkunarverðum hópi sem gat ekki einu sinni skolað niður íslenskum kaffisopa. Mér leið eins og landráðamanni þegar ég mætti ekki á Austurvöll til að berja potta og pönnur og fæ reglulega á tilfinninguna að ég sé álitin skoðanalaus með öllu þar sem ég finn ekki þörf á að úthrópa einstaklinga á okkar ástkæra og ilhýra. Nýjasta dæmið um þá skömm sem ég hef kallað yfir þjóðina er sú staðreynd að ég er ekki búin að kynna mér ítarlega einstaklingana sex í forsetaframboðinu, veit eitthvað um þá alla en ekki mikið um neinn (nema kannski einn!!).Til að toppa þessa lágkúru er ég facebook-fíkill skv einhverjum skilgreiningum (já og sonum mínum) – en í rannsókn sem ég fann á netinu kemur fram að: ef þú átt yfir 800 vini, skiptir oft um forsíðumynd, samþykkir fólk inn á síðuna sem þú þekkir ekki, ert alltaf að tjá þig og sækjast eftir athygli og reynir að selja öðrum þá hugmynd að líf þitt sé ævintýralega skemmtilegt, eru miklar líkur á að þú sért yfirborðskenndur, sjálfhverfur og meðalgreindur einstaklingur sem átt ekkert líf!!Þetta er ég í hnotskurn. Ég nota facebook mikið og það í allskonar yfirborðskennda hluti. Ég hef gaman af því – elska að setja inn allskonar statusa og á 809 vini!! Ég nýti miðilinn til að hvetja og sæki sjálf hvatningu þangað. Er alltaf að setja inn myndir og skipti reglulega um forsíðumynd. Mér finnst lífið yfirleitt skemmtilegt, stundum rétt þolanlegt og einstaka sinnum hund helvíti leiðinlegt. Er ég á gráu svæði skv þessari rannsókn?... já svo sannarlega.Ég fagna nýjungum og þeim breytingum sem þeim fylgja og tel eðlilegt að við þurfum tíma til að aðlagast og ráða við alla tæknina sem stendur okkur til boða. Ætla að halda áfram á facebook en geri mér grein fyrir að tæknin leysir aldrei af hólmi „alvöru“ samskipti en getur klárlega kryddað þau. Elska flatskjáinn minn og latté-ið og ætla aldrei til baka í túbu og uppáhellt.Við syni mína langar mig að segja: ég ætla að hafa í huga hvernig samskiptum mínum við tölvuna er háttað þegar fjölskyldan er saman komin, en á sama tíma þætti mér vænt um að þið keyptuð heyrnartæki fyrir FIFA-leikmennina ykkar því þeir heyra klárlega ekki í ykkur þar sem þið sitjið og öskrið úr ykkur lungun þegar þeir klúðra hverjum leiknum á fætur öðrum!!Er ekki kominn tími til að tengja, tengja.......

Þangað til næst – gangi þér vel.Anna Lóa

Ég er meðalgreindur, latté-lepjandi

facebook-fíkill!

Sólseturshátíð í Garði!

ADDI ROKK TRÚBADORFöstudag og laugardag frá kl. 23.00

20 ára aldurstakmarkKa�húsið opið allan daginnGirnilegir réttir af matseðli

Við tökum vel á móti þér

182 útskrifaðir frá KeiliKeilir útskrifaði 182 nem­

endur við hátíðlega athöfn í Andrews Theater sl. föstudag en þá hafa alls 1.250 fengið brautskráningu frá Keili frá stofnun skólans.90 nemendur útskrifuðust frá Háskólabrú og þar af höfðu 30 þeirra lokið Menntastoðum sem grunni að Háskólabrú. 70 ÍAK einkaþjálfarar fengu brautskráningu og 21 nemandi úr flugtengdu námi. Valdimar Guðmundsson og Björgvin Baldursson fluttu þrenn lög við athöfnina og enduðu á laginu „Vegir liggja til allra átta“

sem átti svo sannarlega vel við.Hjálmar Árnason, framkvæmda­stjóri hélt hátíðarræðu í tilefni dagsins og vék hann m.a. að spurningunni um gildi menntunar. Hvað kunnið þið núna? spurði hann útskrifaða. Á þar ekki við það sem stendur á skírteini ykkar. Smiður telst ekki alvöru smiður þó hann fái moðinn í hendur. Hvernig hann notar verkfærin dæmir gæði hans sem smiðs. Þannig má segja að margir þeirra einstaklinga sem sagðir eru hafa keyrt samfélag okkar í kaf hampi fallegum prófskírteinum. Notuðu

þeir menntun sína til góðs? Viljum við fólk með slíka menntun? Frekar viljum við fólk eins og ykkur sem kann að setja sér göfug markmið og er tilbúið að fylgja þeim eftir. Þess vegna er þetta ykkar hátíð.Verðlaun voru veitt fyrir framúr­skarandi náms árangur. Hildur Hrólfsdóttir dúxaði úr ÍAK einka­þjálfun með 9,63 í meðaleinkunn, Kristjana Þórarinsdóttir hlaut í 9,02 úr Háskólabrú, Sigurður Jónsson með 8,83 úr flugumferðarstjórn, Árni Snær Brynjólfsson 8,81 ATPL og Líney Þóra Bryndísardóttir með 9,23 úr flugþjónustu.

Kristjana Þórarinsdóttir var efst í Háskólabrú.

Einkaþjálfarar voru með

skemmtiatriði á útskriftinni.

Hér má sjá hluta af stórum hópi einkaþjálfara sem útskrifuðust.

Page 9: 25.tbl

Til HAMINGJU með áfangann

Kadeco óskar 182 nýútskrifuðum nemendum Keilis til hamingju með áfangann.

90 nemendur útskrifuðust frá Háskólabrú og þar af höfðu 30 þeirra lokið Menntastoðum sem grunni að Háskólabrú. 70 ÍAK einkaþjálfarar fengu brautskráningu og 21 nemandi úr �ugtengdu námi.

Þar með hafa alls 1.250 fengið brautskráningu frá Keili frá stofnun skólans.

Page 10: 25.tbl

10 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Við hétum því vinkonurnar fyrir nokkrum árum að

fara í alvöru gönguferðir annað hvert ár,“ segir Kristín Jóna Hilmarsdóttir, göngugarpur úr Reykjanesbæ sem fyrir réttri viku lagði upp í gönguferð með fimm vinkonum sínum frá Hornvík á Vestfjörðum til Eystri Hornvíkur rétt við Höfn í Hornafirði. Gangan er rúmir 600 kílómetrar og tekur um fimm vikur. Hópurinn kallar sig Sexurnar horn í horn og þær má finna á Facebook.Kristín Jóna segir að þær hafi oft rætt um að fara þessa leið, því hún hafi aldrei verið gengin áður svo vitað sé. Reyndar var annar hópur göngugarpa að ljúka við leiðina þegar þær vinkonurnar voru að byrja gönguna en sá hópur hóf förina þar sem þær enda og fór yfir jökul, þannig að leiðin er ekki alveg sú sama.Nokkrar hindranir eru á leiðinni. T.a.m. Skjálfandafljót en þar þarf að taka hálfs dags útúrdúr til að fara yfir á brú. Eiginmaður einnar í ferðinni er mikill útivistarmaður og hefur sett gönguleiðina inn á GPS-tæki og þar er nákvæm áætlun um dagleiðir og hvar skuli fara. Þá hafa þær ávallt um þrjár leiðir að velja, allt eftir veðri og aðstæðum.Síðast þegar Kristín Jóna fór í langferð um Ísland þá gengu þær þrjár vinkonur frá Reykjanesi og að Fonti á Langanesi. Á þeirri gönguleið bættust þrjár vinkonur í hópinn síðustu vikuna. Nú eru þessar sex vinkonur að „krossa“ Ísland en ætlunin er að reisa vörðu á miðju landinu þegar þær fara yfir þá gönguleið þar sem þær voru síðast á ferð fyrir tveimur árum.Göngugarparnir munu bera með sér vistir í ferðinni en á nokkrum stöðum í ferðinni fá þær nýjar vistir. Þá bera þær með sér eitt sex manna tjald sem þær sofa í um nætur. Tjaldið er sérstaklega

flutt inn til fararinnar en bílaleigan Geysir styrkti þær með því að leggja til tjaldið. Það er sérstaklega hannað til svona farar og eru m.a. göngustafir notaðir til að halda því uppi. Þær munu einnig nýta sér skála sem eru á leiðinni og hafa pantað gistingu í nokkrum slíkum á leiðinni yfir landið.Þegar þetta viðtal birtist þá er erfiðasti hluti leiðarinnar að baki en Vestfirðirnir eru erfiðastir fyrir fótinn. Þar er talsverð fjallganga og einnig var þar nokkur snjór enn á gönguleiðinni. Í dag er hópurinn í Hólmavík að taka vistir. Á þjóðhátíðardaginn fengu þær kjötsúpu og ætluðu að fá sér hamborgara og franskar í Hólmavík.Undirbúningur fyrir þetta ferðalag hefur verið langur. Þær hittast reglulega og labba og hafa einnig verið í hreyfingu í allan vetur. Kristín Jóna sagði sig vera í sínu besta formi um ævina. Hún sagði það erfiðasta við svona göngu vera þyngdina sem þær bera á bakinu og að reyna að sleppa við að fá blöðrur. Það er hins vegar óhjákvæmilegt. Hún sagði að síðasta ganga yfir Ísland hafi verið mikill lærdómur. Nú kunni þær að meðhöndla blöðrur, sprengja þær og teipa.

„Þetta er bara gaman. Við vöknum hressar á morgnana og erum að labba allan daginn. Við tökum tillit til hinna í ferðinni og hvílum á tveggja tíma fresti. Við borðum vel. Maturinn er ekkert spennandi, orkustangir, þurrmatur og Herbalife. Þá borðum við einnig harðfisk og hrökkkex með sýrópi. Það þarf að vera létt að bera matinn og þann þarf að gefa okkur kraft“.Þrátt fyrir einhæft og óspennandi fæði mestan hluta fararinnar þá eru gulrætur inn á milli. Þannig var kærkomið að fá kjötsúpuna í Ófeigsfirði og tilhlökkun að komast í sjoppufæðið á Hólmavík. Þá verður tekið á móti gönguhópnum á nokkrum stöðum og slegið upp smá veislum. Þannig er búið að skipuleggja grillveislu í Laugafelli og þannig mætti áfram telja. Gengið verður alla daga og áætlað að ferðinni ljúki um miðjan júlí í Eystri Hornvík nærri Höfn.Nokkrir aðilar hafa styrkt þær til fararinnar. Geysir lagði til tjaldið, 66°Norður leggur þeim til regnfatnað, Herbalife styrkti þær í mat og Bláa lónið lagði þeim til húðkrem til fararinnar, enda getur verið gott að mýkja og næra húðina á svona löngu ferðalagi.

›› Kristín Jóna Hilmarsdóttir og fimm vinkonur hennar leggja land undir fót:

Ganga Ísland horn í horn

„kærkomið að fá kjötsúpuna í Ófeigsfirði

og tilhlökkun að komast í

sjoppufæðið á Hólmavík“

Undirbúningur skiptir miklu máli fyrir svona ferð.

Mikilvægt er að prófa tjöldin.

Page 11: 25.tbl

11VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012

Ganga Ísland horn í horn

Sunnudagurinn 24. júnígrindavík - þorlákshöfn

14:00 Lagt af stað frá Kvikunni í Grindavík. Ekið um Suðurstrandar-veg, stoppað m.a. við Selatanga, Herdísarvík og við Strandarkirkju.16:00 Stoppað við Ráðhús Ölfuss, þar sem boðið er upp á léttar kaffi-veitingar og sýningarskoðun.16:30 Stutt bæjarferð, litið við í Hendur í höfn og í Herjólfshúsinu. Lagt af stað til baka til Grindavíkur.18:00 Ferðalok við Kvikuna.Fararstjóri Jóhann Davíðsson.

Skráning í síma 420 1190 eða um netfangið [email protected]

OPNUN SUÐURSTRANDARVEGARAf tilefni vígslu Suðurstrandarvegar, bjóða sveitarfélögin Ölfus og Grindavík upp á skoðunarferðir. Skráning í ferðir er til kl. 12:00 föstudaginn 22. júní.

Fleira í boði um opnunarhelgi 23.-24. júní

Ókeypis í sund og 50% afsláttur á tjaldstæði í Grindavík og Þorlákshöfn.Ókeypis aðgangur að sýningum í Kvikunni, auðlinda- og menningarhúsi og opin sýning um Selvoginn á Bæjarbókasafni Ölfuss. 20% afsláttur hjá ferðaþjónustuaðilum í Grindavík.Fjöldi tilboða í glervinnustofunni Hendur í Höfn og skemmtilegar uppákomur við Herjólfshúsið í Þorlákshöfn.

Jónsmessuganga Ferðamálafélags Ölfuss 22. Júní. Gengið um Sogin og Grænudyngju í Reykjanesfólkvangi. Lagt af stað frá bakaríinu í Þorlákshöfn kl. 19:00 og sameinast í bíla við Straumsvík kl. 19:45.

Jónsmessuganga í Grindavík 23. Júní. Gengið upp á Þorbjörn og yfir í Bláa Lónið. Gangan hefst kl. 20:30 við Sundlaug Grindavíkur.

Laugardaginn 23. júníÞorlákshöfn - grindavík

14:00 Lagt af stað frá Ráðhúsinu í Þorlákshöfn. Ekið um Suðurstrandar-veg, stoppað m.a. við Strandarkirkju, Herdísarvík og Selatanga.16:00 Stoppað í Kvikunni í Grindavík þar sem boðið er upp á léttar kaffi-veitingar og sýningarskoðun.16:30 Stutt bæjarferð, litið við hjá GREIP, félagi handverksfólks. Lagt af stað til baka til Þorlákshafnar.18:00 Ferðalok við Ráðhús Ölfuss.Fararstjóri Ómar Smári Ármannsson.

Skráning í síma 480 3830 eða um netfangið [email protected]

www.olfus.iswww.grindavik.is

Sunnudagurinn 24. júnígrindavík - þorlákshöfn

14:00 Lagt af stað frá Kvikunni í Grindavík. Ekið um Suðurstrandar-veg, stoppað m.a. við Selatanga, Herdísarvík og við Strandarkirkju.16:00 Stoppað við Ráðhús Ölfuss, þar sem boðið er upp á léttar kaffi-veitingar og sýningarskoðun.16:30 Stutt bæjarferð, litið við í Hendur í höfn og í Herjólfshúsinu. Lagt af stað til baka til Grindavíkur.18:00 Ferðalok við Kvikuna.Fararstjóri Jóhann Davíðsson.

Skráning í síma 420 1190 eða um netfangið [email protected]

OPNUN SUÐURSTRANDARVEGARAf tilefni vígslu Suðurstrandarvegar, bjóða sveitarfélögin Ölfus og Grindavík upp á skoðunarferðir. Skráning í ferðir er til kl. 12:00 föstudaginn 22. júní.

Fleira í boði um opnunarhelgi 23.-24. júní

Ókeypis í sund og 50% afsláttur á tjaldstæði í Grindavík og Þorlákshöfn.Ókeypis aðgangur að sýningum í Kvikunni, auðlinda- og menningarhúsi og opin sýning um Selvoginn á Bæjarbókasafni Ölfuss. 20% afsláttur hjá ferðaþjónustuaðilum í Grindavík.Fjöldi tilboða í glervinnustofunni Hendur í Höfn og skemmtilegar uppákomur við Herjólfshúsið í Þorlákshöfn.

Jónsmessuganga Ferðamálafélags Ölfuss 22. Júní. Gengið um Sogin og Grænudyngju í Reykjanesfólkvangi. Lagt af stað frá bakaríinu í Þorlákshöfn kl. 19:00 og sameinast í bíla við Straumsvík kl. 19:45.

Jónsmessuganga í Grindavík 23. Júní. Gengið upp á Þorbjörn og yfir í Bláa Lónið. Gangan hefst kl. 20:30 við Sundlaug Grindavíkur.

Laugardaginn 23. júníÞorlákshöfn - grindavík

14:00 Lagt af stað frá Ráðhúsinu í Þorlákshöfn. Ekið um Suðurstrandar-veg, stoppað m.a. við Strandarkirkju, Herdísarvík og Selatanga.16:00 Stoppað í Kvikunni í Grindavík þar sem boðið er upp á léttar kaffi-veitingar og sýningarskoðun.16:30 Stutt bæjarferð, litið við hjá GREIP, félagi handverksfólks. Lagt af stað til baka til Þorlákshafnar.18:00 Ferðalok við Ráðhús Ölfuss.Fararstjóri Ómar Smári Ármannsson.

Skráning í síma 480 3830 eða um netfangið [email protected]

www.olfus.iswww.grindavik.is

Page 12: 25.tbl

12 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

HA FJARNEMENDUR FRÁ SUÐURNESJUMINNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ ÁRANGURINN OG BESTU ÓSKIR UM BJARTA FRAMTÍÐ MEÐ

ÞÖKK FYRIR GOTT SAMSTARF Á LIÐNUM ÁRUM.

Ég byrjaði að syngja mjög ungur með afa og fór út frá

því í barnakór sem var starfræktur við kirkjuna í Grindavík,“ segir Anton Þór Sigurðsson, 25 ára Grindvíkingur og söngvari. Anton er þessa dagana á ferðalagi um Sviss með hópi tónlistarmanna. Anton lærði á píanó og básúnu en endaði í söngnámi hjá Rósulind Gísladóttur við Tónlistarskólann í Grindavík. Árið 2012 fór Anton í Söngskóla Sigurðar Dementz þar sem hann lærir söng hjá hinum þekkta söngvara Kristjáni Jóhannssyni.„Það er mjög gott að vinna með Kristjáni. Hann kann að láta mann koma öllu af stað og hugsar um okkur eins og sín eigin og hefur hann bætt miklu við kennsluna hjá okkur sem erum í námi hjá honum. Hann tekur virkan þátt í félagslífinu með okkur í skólanum og eldar gjarnan fyrir okkur á föstudögum

til að þjappa hópnum saman. Hann er mikil tilfinningavera og þarf maður að fara varlega í hann,“ segir Anton og hlær.Tónlistarlífið er gott í Grindavík að mati Antons. Hann segir flotta kennara kenna við tónlistarskólann en honum finnst vera mikil eftirsjá að ekki sé lengur starfrækt lúðrasveit eins og var á tímum Siguróla Geirs heitins og barnakór við kirkjuna. Anton er í hljómsveit sem heitir Gleðisveit Söngskóla Sigurðar D. Hljómsveitin er að fara að spila saman í sumar á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum.Nýverið hélt Anton tónleika í Grindavíkurkirkju ásamt Höllu Marinósdóttur messósópran söngkonu, Steinþóri Jasonarsyni baritón og Guðbjörgu Sigurjóns­dóttur undirleikara. Vel var mætt og var frítt inn í boði ýmissa fyrirtækja í Grindavík.

Nú fyrir skömmu opnaði svo Ragnar Kjartansson fjöllistamaður sýningu sína, An die Musik í Sviss. Verkið var sérstaklega samið fyrir foropnun Migros nýlistasafnsins í Zurich í nýuppgerðum heim­kynnum þess. Í verkinu koma fram átta söngvarar, að meðtöldum höfundi verksins, Anton er þeirra á meðal og er þessa dagana staddur í Sviss.Athygli vekur að allir söngvararnir í verkinu eru Íslendingar, og eru öll sem stendur í námi í klassískum söng, f lest undir handleiðslu Kristjáns Jóhannssonar, tenór­söngvara. Þetta er að mestu leyti sami hópur og ferðaðist með Ragnari til New York á síðasta ári og flutti með honum verkefnið Bliss í Abronsleikhúsinu, við góðar undirtektir gagnrýnenda.

Kristján er mikil tilfinningavera

- segir Anton Sigurðsson ungur og efnilegur söngvari úr Grindavík

Re y kj a n e s b æ r h e f u r, a ð u n d a n g e n g n u ú t b o ð i ,

samið við Securitas Reykjanesi um vöktun öryggiskerfa í öllum stofnunum og f yrirtækjum Reykjanesbæjar. Samningurinn er til þriggja ára og nær til rúmlega 60 kerfa í 44 byggingum Reykjanesbæjar.Kerfin verða tengd Stjórnstöð Securitas en öryggisverðir Securitas Reykjanesi munu sinna útköllum og viðbragðsafli ef boð berast úr kerfunum. Á meðfylgjandi mynd má sjá Guðlaug Helga

Sigurjónsson, framkvæmdastjóra Umhverfis­ og skipulagssviðs Reykja nesbæjar og Kjartan Má Kjartansson, framkvæmdastjóra Securitas Reykjanesi við undirritun samningsins ásamt Árna Gísla Árnasyni, öryggisráðgjafa Securitas Reykja nesi og Guðmundi Guð­björn ssyni frá Rafmiðstöðinni, sem sá um framkvæmd útboðsins.Hjá Securitas Reykjanesi starfa nú um 30 starfsmenn þ.e. öryggisverðir, tæknimenn, öryggisráðgjafar og framkvæmdastjóri.

Reykjanesbær semur við Securitas

Ungmenna ráð Reykjanes­b æ j a r h i t t i s t í f y r s t a

skipti fimmtudaginn 14. júní sl. Ráðinu er ætlað að vera bæjarstjórn Reykjanesbæjar til ráðgjafar um málefni ungs fólks í bæjarfélaginu. Í ráðinu eru 13 fulltrúar á aldrinum 13 til 18 ára og jafnmargir til vara.Mikill undirbúningur hefur verið í gangi undanfarna mánuði. Nemendur í nemenda ráðum grunn skólanna í Reykja nesbæ tóku þátt í metnaðarfullu námskeiði sem Helga Vala Gunnarsdóttir og Helga Margrét Guðmundsdóttir sáu um og skipulögðu. Á námskeiðinu

fengu ungmennin þjá l fun í lýðræðislegum vinnubrögðum.Einnig hafa ungmennin fengið að taka þátt í fleiri námskeiðum eins og Kompás (mannréttindafræðslu ungs fólks) og tvær stúlkur tóku þátt í UMFÍ ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði á Hvolsvelli.Fyrsti formlegi fundurinn er áætl­aður eftir sumarleyfi.Starfs maður ráðsins er Hafþór Birgis son tóm stunda fulltrúi Reykja ­nes bæjar.Ábendingar og fyrirspurnir til ráðsins er hægt að senda á netfangið [email protected]

Metnaðarfullt ungmennaráð

Reykjanesbæjar

Fimmtudaginn 21. júní verður Suðurstrandavegur formlega

opnaður. Af tilefni opnunar bjóða sveitarfélögin Grindavík og Ölfus upp á skoðunarferðir um helgina. Á laugardeginum verður farið frá ráðhúsinu í Þorlákshöfn um Suðurstrandaveg til Grindavíkur

en á sunnudeginum verður lagt af stað frá Kvikunni í Grindavík. Báðar ferðir hefjast klukkan 14:00 og verður stoppað við valda staði á leiðinni, m.a. við Strandarkirkju, Herdísarvík og Selatanga. Nánar á grindavik.is.

Opnunarhátíð Suðurstrandavegar

um helgina

Anton lengst til vinstri í góðum hópi.

Page 13: 25.tbl

13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012

KJÖRFUNDURvegna forsetakosninga í Sveitarfélaginu Vogum30. júní 2012

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00

Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli

Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrif-stofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi.

Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.

Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga,Hilmar Egill SveinbjörnssonJón Ingi BaldvinssonÞórdís Símonardóttir

Verkefnastjóri farangurskerfa í Flugstöð Leifs EiríkssonarIsavia óskar eftir að ráða verkefnastjóra farangurskerfa í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Verkefnastjórinn heyrir undir deildarstjóra rekstrardeildar FLE og hefur umsjón með þeim kerfum sem mynda farangurskerfið, allt frá afhendingu farangurs fram að því er hann fer um borð í loftfar. Á næstu árum verður ráðist í talsverðar fjárfestingar og viðbætur við farangurskerfin sem verkefnastjóri mun leiða.

Starfs- og ábyrgðarsvið: Menntunar- og hæfniskröfur:

Við leitum að skipulagðri manneskju sem getur sýnt frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Viðkomandi þarf jafnframt að hafa góða samskiptahæfileika og þægilega framkomu.

Umsóknir

Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.

www.isavia.is/atvinna.4. júlí.

Guðmundur Daði Rúnarsson [email protected]

Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna.

Hjá Isavia starfa um 630 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eruað sjá um uppbyggingu og rekstur flugvalla og veita flugleiðsögu-þjónustu fyrir innanlands jafnt sem millilandaflug auk yfirflugþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.

Page 14: 25.tbl

14 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Landsbankinn veitti í vikunni f imm mil ljónir króna í

umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans. Veittir voru 14 styrkir, sex að upphæð 500 þúsund krónur hver og átta að fjárhæð 250 þúsund krónur. Tómas Knútsson og Blái herinn voru í þeim hópi. Ríflega 130 umsóknir bárust sjóðnum að þessu sinni. Þetta er í annað sinn sem Landsbankinn v e i t i r u m h v e r f i s s t y r k i ú r Samfélagssjóði bankans.Umhverfisstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á sviði umhverfismála og náttúruverndar og dómnefnd leitast við að velja metnaðarfull verkefni sem hafa skýra þýðingu fyrir íslenska náttúru og vistkerfið. Þessir styrkir byggja á stefnu Landsbankans um samfélagslega ábyrgð þar sem fram kemur m.a. að bankinn hyggist flétta

umverfismálum, efnahagsmálum og samfélagsmálum saman við rekstur sinn. Eftirtaldir aðilar á Suðurnesjum h l u t u u m h v e r f i s s t y r k i ú r Samfélagssjóði bankans að þessu sinni:500 þúsund króna styrkir:Blái herinn – Hreinn ávinningurBlái herinn hlýtur styrk fyrir verkefnið „Hreinn ávinningur“ sem nýta á til að kenna komandi kynslóðum að ganga vel um náttúruna og stuðla að betri vitund um umhverfið.250 þúsund króna styrkir:Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs – Sjálfbær þróun á Suðurnesjum. Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs hlýtur styrk til að stuðla að sjálfbærri þróun á Suðurnesjum með því að nýta lífrænan úrgang til uppgræðslu á svæðinu.

Blái herinn fékk hæsta umhverfisstyrkinn

hjá Landsbankanum

Örlítil væta um hádegisbilið á þjóðhátíðardaginn kom ekki í veg fyrir að íbúar Reykjanesbæjar legðu leið sína í Skrúðgarðinn í bænum til þess að halda upp á afmæli lýðveldisins. Veður var með besta móti þegar

dagskráin hófst og var bjart yfir fólki á öllum aldri í skrúðgöngunni sem gengin var frá Keflavíkurkirkju að Skrúðgarðinum.Ýmis skemmtiatriði voru í boði og var íslenski fáninn dreginn að húni í skrúðgarðinum eins og venja er. Það gerði fyrrum skólastjóri Njarðvíkurskóla, Gylfi Guðmundsson að þessu sinni. Eyjólfur Eysteinsson formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum hélt ræðu og Karlakór Keflavíkur söng m.a. fyrir gesti ásamt því að fjöldi skemmtikrafta kom fram.

Gylfi dró fánann að húni í Reykjanesbæ

Fjallkonan var nýstúdentinn Andrea Björg Jónsdóttir úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja

FORSETAKOSNINGAR LAUGARDAGINN 30. JÚNÍ 2012

Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, frá miðvikudeginum 20. júní fram að kjördegi.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.

Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað.

Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs fer fram á skrifstofu sýslumannsins, að Víkurbraut 25, neðri hæð. Aðeins er opið virka daga sem hér segir:

Alla virka daga til og með 22. júní frá kl. 8:30 til 13:00.Dagana 25 .- 29. júní frá kl. 8:30 til 17:00.

Kjörstjórn Grindavíkurbæjar

Sa m k v æ m t ný ú t k o m i n n i skýrslu Vinnumálastofnunar

um stöðuna á vinnumarkaði í maí 2012 þá mældist atvinnuleysi á S u ð u r n e s j u n u m 9 , 4 % í maímánuði – 8,6% meðal karla og 10,5% meðal kvenna. Atvinnuleysi á landsvísu mælist 5,6%.

12,1% atvinnuleysi mældist á Suðurnesjum í maí 2011 en þá voru á Suðurnesjum 1410 á atvinnuleysisskrá í lok mánaðar en nú eru 1085 atvinnulausir á Suðurnesjum í lok mánaðar og hafa ekki færri verið á atvinnuleysisskrá hér síðan í desember 2008.

Ekki verið færri á atvinnuleysisskrá

síðan 2008

Eyjólfur Eysteinsson flutti

ræðu dagsins.

Gylfi dró fánann að húni

með aðstoð skátanna.

Page 15: 25.tbl

15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012

Berglind Ásgeirsdóttir er í eldhúsinu þessa vikuna en hún

deilir hér skemmtilegri uppskrift með lesendum Víkurfrétta. Berglind lumar á girnilegri uppskrift af heimatilbúnum hamborgurum sem eru góðir á grillið. Berglind er þrítug og starfar sem yfirmaður vinnuskóla Reykjanesbæjar en hún er einnig garðyrkjufræðingur hjá bænum.

Hvernig verður sumarið hjá þér?„Eins og hefðbundið er fyrir flesta garðyrkjufræðinga eru næg verkefni allt sumarið, en Vinnuskóli Reykjanesbæjar mun eiga stóran part, enda ótrúlega gaman að vinna með unglingum. Stefnan er svo að nota helgarnar til að skoða meira af landinu okkar og njóta þess að vera úti í góða veðrinu með dóttur minni.“Berlindi þykir mjög gaman að elda og baka, samt meira að baka en að elda og kannski þá sérstaklega að skreyta kökur. „Ég viðurkenni það samt fúslega að ég elda mjög sjaldan fyrir okkur tvær, en ef það eru fleiri í mat þá eldar maður

eitthvað gott. Ég og dóttir mín erum svo heppnar að búa nálægt hótel Mömmu/Ömmu og förum oft þangað í mat.“

Elskar kartöflumús

Hvað eldarðu oftast? „Allt með kjúklingi býst ég við. Mér finnst kjúklingur voða góður og svo er auðvelt að finna eitthvað hollt og gott með honum. Mexikóskur matur er líka í miklu uppáhaldi. Einnig allt sem er borið fram með kartöflumús, ég elska kartöflumús í hvaða búningi sem er.“

Hefurðu gaman af því að stússast í eldhúsinu? „Já ég hef gaman af því, sérstaklega þegar ég stússast í stærra eldhúsi en mínu eigin. Það er ótrúlegt hvað það hefur mikil áhrif á eldamennskuna að hafa nóg pláss í kringum sig. Framtíðarplan er sem sagt að eignast stórt eldhús. Einnig er mjög gaman að lesa matreiðslubækur og horfa á matreiðsluþætti. Það er ótrúlegt hvað hægt er að innbyrða af mat á

þann hátt, án þess að fitna.“ „Þar sem mamma mín er snillingur í eldhúsinu og enginn sem gerir betri hamborgara en hún, þó svo að ég reyni mikið, þá ákvað ég að fá hana með mér í þetta verkefni. Við mæðgurnar förum reyndar ekki mikið eftir uppskrift, enda hún þaulvön og ég hermikráka. Við tókum okkur nú samt til og græjuðum saman þessa uppskrift af uppáhalds hamborgurunum á heimilinu.“

Grillborgari að hætti mömmuÍ Eldhúsinu

500 gr hakk3 stk gulrætur2 stk sellerileggir1 laukur3 hvítlauksrif½ mexikó ostur1 lúka spínat½ sæt kartafla4 tsk reykt paprika3 dl hveitikím4 tsk krydd salt (t.d. Season All)1 tsk svartur piparGott að bæta við ferskum eða

þurrkuðum chilli pipar fyrir þá sem vilja.G r æ n m e t i ð r i f i ð n i ð u r í matvinnsluvél og öllu blandað vel saman. Mótar sæmilega kúlu eftir því hvaða stærð borgara óskað er eftir. Leggur hana á „mellemblad“ eða klipptan smjörpappír og fletur létt út með flötum fingrum. Gott er að taka hníf og saxa létt ofan á borgarann til að jafna þykkt og gera huggulegt munstur. Borgararnir grillaðir, ásamt brauði

og borið fram með niðurskornu grænmeti og sósum. Einnig er frábært að bjóða upp á steikta sveppi, egg og beikon til að skella á milli. Það er svona fullorðins. HvítlauksjukkDós af sýrðum rjóma blandað saman við hvítlauk, 2-3 væn rif og smá salt. Einum poka af rifnum mosarella osti blandað saman við. Þetta er algjör snilld út á grillaðar kartöflur og auðvitað á hamborgarann.

Berglind ásamt móður sinni Ólöfu Jónsdóttur og sú stutta heitir Ólöf Rós Davíðsdóttir

Mommy burger - um 15 - 20 stk eftir stærð

Gylfi dró fánann að húni í Reykjanesbæ

Page 16: 25.tbl

16 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Um þessar mundir standa yfir tökur á fyrstu kvikmynd

Hamagu pictures í fullri lengd. Um er að ræða hrollvekju af bestu gerð þó svo framleiðandi myndarinnar segi hreint út að myndin fari strax í flokk svokallaðra B-mynda. Það ræðst af því að myndin er framleidd fyrir brot af þeim peningum sem annars myndi kosta að framleiða sambærilega mynd. Kostnaði við framleiðsluna er haldið niðri með því að nær allir gefa vinnu sína.Kv i k my ndin he i t i r Z ombie Island og handritshöfundur, leikstjóri og framkvæmdastjóri verkefnisins er Marteinn Ibsen k v i k my n d a g e rð ar m a ð u r ú r Reykjanesbæ. Á sama hátt og neyðin hafi kennt naktri konu að spinna, þá var það verkefnaskortur sem rak Martein og félaga hans í að framleiða bíómynd.Zombie Island er þjóðfélagsádeila og er saga minnislauss manns rakin þar sem hann gengur inn í samfélag sem er gjörsamlega farið á hausinn. Nóg er af uppvakningum út um allt en að sjálfsögðu finnst fólk á lífi hér og þar. Myndin er blóðug hrollvekja en höfundurinn

segir að hins vegar sé ekkert gaman af hrollvekjum nema að þú getir brosað eitthvað af þeim líka.Marteinn segir að allir séu mjög spenntir fyrir verkefninu og allir vilji vera með í gerð myndarinnar. En þar sem ekki sé hægt að greiða laun, þá eiga ekki allir kost á því að taka þátt í verkefninu af fullum krafti og komast ekki alltaf. Marteinn segir að listinn yfir aðstandendur verkefnisins innihaldi yfir 200 manns. Þá segir Marteinn að hjálpsemin sé víða. Þannig hafi kvikmyndataka farið fram í matvöruverslununni Kosti í heilan dag. Verslunin var lokuð og var fyllt af uppvakningum. Þegar viðskiptavinir sáu líf við verslunina hafi þeir streymt að en þeim mættu svo blóðugir uppvakningar. Sumum var brugðið, en allir fengu afgreidda mjólkina sína, þó svo á dagatalinu væri föstudagurinn langi.

Valdimar sér um tónlistinaMarteinn segist þakklátur fyrir alla þá hjálp sem kvikmynda­gerðarfólkið hafi fengið. Þannig hafi Brunavarnir Suðurnesja aðstoðað við gerð myndarinnar og

einnig lögreglan á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Háskólavellir veittu aðgang að byggingum á Ásbrú. Kvikmynda­gerðafólkið leigir einnig aðstöðu til kvikmyndatöku í Atlantic Studio sem staðsett er á Ásbrú. Myndin er tekin víða á Reykjanesi, bæði í byggð og á Reykjanestá. Þá kemur tónlistarfólk af Suðurnesjum einnig að myndinni. Þar má nefna Keflvíkinginn Veigar Margeirs son, sem gerir það gott í kvikmynda­tónlist í Bandaríkjunum, og Valdimar Guðmundsson sem mun vinna að tónlist fyrir myndina með hljómsveit sinni.Í myndinni eru þrettán „tal­andi“ hlutverk en mun fleiri leika í myndinni. Mikið er lagt upp úr gervum og eru fram leiðendur myndarinnar með förðunar­fræðinginn Petru Þórðardóttur á sínum snærum sem lærði fagið í Toronto og hefur séð um að gera allt saman ógeðslegt, eins og það á að vera.Myndin er nær öll á ensku eða um 80% talaðs máls. Önnur samtöl fara

fram á íslensku. Ástæðuna segir Marteinn vera þá að markaður fyrir hrollvekjur sé mikill erlendis, og þá sérstaklega þessi tegund mynda.Í dag er staðan á verkefninu sú að búið er að taka upp 65% af myndinni. Sú staða er hins vegar komin upp að endurskrifa þarf endir myndarinnar og leikarar sem áttu að koma þar við sögu þurfa að deyja fyrr í myndinni. Ástæðan er að leikararnir þurfa að sinna öðrum verkefnum og geta ekki verið með til loka verkefnisins. Þeir verða því fyrir óvæntri uppvakningaárás og deyja skyndilega. Marteinn segir hins vegar að endir myndarinnar eigi eft ir að verða betri við það að vera endurskrifaður. Ef leikararnir vilja svo koma aftur að myndinni geta þeir bara mætt sem uppvakningar, segir Marteinn og hlær.

20 ár í bransanumMarteinn byrjaði að framleiða stuttmyndir með fél ögum sín­um árið 1992. Þetta eru þeir Guðmundur Ingvar Jónsson og

Halldór Jón Björgvin sson. Þeir leika báðir í Zombie Island og eru með puttana í framleiðslunni. Þeir stofnuðu á sínum tíma félagsskap sem heitir HAMAGU Pictures en framleiðslufyrirtækið Blue Diamond Productions framleiðir myndina.Þar sem tökuliðið er í smærri kantinum taka allir á sig nokkur hlutverk. Halldór Jón er ásamt því að vera í öðru aðalhlutverki aðstoðarleikstjóri og sér um veitingar. Steinar hljóðmaður er einnig aðstoðartökumaður, r u n ne r o g bí l s t j ór i . D av í ð Örn er sviðmyndahönnuður, umsjónarmaður leikmuna og allsherjar reddari. Leikstjórinn tekur að sér hljóðmanns hlutverkið og blandar sér í förðun og sviðsmyndaskreytingu þegar það vantar mannskap. Karl Newman er tökustjóri.Marteinn er menntaður í kvik­mynda gerð en hann fór í nám til London til þriggja ára eftir að hafa starfað fyrir RÚV og fleiri. Marteinn útskrifaðist árið 2005

›› Marteinn Ibsen og félagar framleiða hryllingsmyndina Zombie Island:

Blóðrauð bíómynd með uppvakningum– tekin upp á Suðurnesjum

„Myndin er blóðug hrollvekja hins vegar sé ekkert gaman af hrollvekjum nema að þú getir brosað eitthvað af þeim líka“

Marteinn við klippiborðið.

Page 17: 25.tbl

17VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012

með MA gráðu í kvikmyndagerð. Strax eftir skóla fór hann að vinna við gerð sjónvarpsauglýsinga og tónlistarmyndbanda. Hann hefur einnig gert heimildarmyndir og kynningarmyndir. Þá hefur hann unnið að kvikmyndum með öðrum en alltaf langað til að gera sína eigin kvikmynd. Hann er nú að láta þann draum verða að veruleika.

En hvernig er að taka upp kvik­myndir á Íslandi, þar sem það er glampandi sól og góðviðri annan daginn en súld hinn daginn?Marteinn er fljótur að svara því. Hann er fastagestur á veður.is og leitar uppi drungalega tökudaga, ef það eru útitökur. Síðan er farið í það að athuga hverjir komast. Sumir

komast í dag, aðrir á morgun, þannig að við getum verið að taka upp samtalssenur þar sem leikari „A“ er að tala í dag, en það sem mótleikarinn segir getur verið tekið upp á morgun eða hinn.Til stendur að klára Zombie Island í haust til að koma myndinni inn á svokallaðar Horror Fest kvikmyndahátíðir sem eru í október. Þannig hátíðir eru haldnar víða t.d. í Edinborg, Toronto og New York. Þá er einnig stór hátíð í Suður-Kóreu þar sem markaður fyrir svona myndir er gríðarstór. Hér heima á Íslandi er áætlað að frumsýna myndina í Keflavík þann 12. desember eða 12.12.12.

Forsetakosningar 30. júní 2012Forsetakosningar 30. júní 2012Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Sandgerðisbæjar í Vörðunni,

Miðnestorgi frá 20. júní fram að kjördegi.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.

Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki.

Kjörstaður opnar kl. 9:00 og lokar kl. 22:00.

Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899 6317

Kjörstjórn Sandgerðisbæjar.

Frá tökum myndarinnar.

Page 18: 25.tbl

18 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Sendum frítt

hvert á land sem er

Mægðurnar Kristín Hrönn Ragnarsdóttir og Ragnheiður Kristín Benónýsdóttir

MINNINGKristín Hrönn, eða Hrönn eins og hún var oftast kölluð, lést í Bandaríkjunum þar sem hún hefur búið í rúm 40 ár, þann 29. maí sl . Við Hrönn vorum bekkjarsystkini al lt okkar skyldunám í Keflavík og einmitt á þeim tímapunkti sem hún kvaddi þetta líf voru liðin 50 ár frá því að við lukum námi í Barnaskólanum í Keflavík.Frá því að hún fullorðnaðist fylgdist ég lítið með lífi hennar eða þar til ég kynntist dóttur hennar Ragnheiði Kristínu, sem kölluð var Heiða. Kynni okkar Heiðu voru mjög góð og frá því að þau hófust fyrir um þremur árum vorum við bestu vinir. Þann tíma fylgdist ég í gegnum Heiðu með veikindastríði Hrannar í Bandaríkjunum, en hún var mikill sjúklingur hin síðari ár.Heiða varð bráðkvödd á heimili sínu í Keflavík 10. febrúar sl. og nokkrum mínútum áður vorum við þrír, ég, barnsfaðir hennar Fr iðr ik Fr iðr iksson og sonur þeirra Stefán Jón Friðriksson heima hjá henni. Þar sem hún var þreytt og vildi leggja sig fórum við þrír í sendiferð fyrir hana og er við komum til baka 10-15 mínútum síðar var hún öll.Báðar voru þær mæðgur fæddar í Keflavík, móðirin þann 7. júní 1949 og dóttirin 1. maí 1968 og þær voru jarðsettar í Hólmsbergskirkjugarði í Keflavík. Ragnheiður Kristín, þann 24. febrúar sl. og Kristín Hrönn, þann 18. júní sl.Blessuð sé minning þeirra Emil Páll Jónsson

Birgir Guðbergsson, Sike Quan,Jóna Kristín Birgisdóttir, Jóhannes Stefánsson,Hjálmtýr Birgisson, Tinna Rósantsdóttir,Gunnar Birgisson.

Jarðarförin fer fram þriðjudaginn 26. júní frá Keflavíkurkirkju kl. 15:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er

bent á styrktarsjóð sem stofnaður hefur verið til minningar um Eirík sem nýttur verður til góðgerðarmála tengt barnastarfi Sameinuðu þjóðanna.

Reikningsnr. 0542 14 402626, kt. 120769-3679.

Eiríkur Mussima Quan Birgisson,f. 4. janúar 2003 - d. 16. júní 2012,

lést eftir stutt veikindi.

Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur,

Fyrir hönd aðstandenda hinnar látnu John Richard Brantley

Kristín Hrönn Ragnarsdóttir Brantley,Savannah, Missouri

(áður Smáratúni 44, Keflavík)

Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og systir,

lést á heimili sínu 29. maí sl. eftir langvarandi veikindi.Minningarathöfn hefur farið fram.

AFMÆLISFUNDURÍ tilefni af 40 ára afmæli AA samtakanna í Ke�avík verður haldinn hátíðarfundur þar sem allir eru velkomnir.

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 22. júní kl. 20:00 í KK salnum að Vesturbraut 17, Reykjanesbæ.

Ka�veitingar verða í boði á eftir.

Suðurflug fagnaði í síðustu viku 40 ára afmæli sínu.

Slegið var upp heljarinnar veislu og komu fjölmargir nágrannar flugfélagsins af Keflavíkurflugvelli í heimsókn og fengu sér kaffisopa og góðgæti sem var á boðstólum. Ýmis skemmtiatriði voru í boði en Guðmundur Hermannsson sá að mestu leyti um að skemmta fólkinu. Hljómsveitirnar Klassart og Eldar litu líka við og tóku nokkur lög.Í dag starfa 16 manns hjá Suðurflugi en félagið hefur verið starfandi í 40 ár eins og áður segir. Suðurflug var stofnað á grunni flugfélagsins Þórs þann 12. júní árið 1972. Fyrst í stað var starfsemin útsýnis- og leiguflug en síðan var hafinn rekstur flugskóla. Nú fæst félagið aðallega við afgreiðslu á öllu öðru flugi en áætlunar- og leiguflugi.

Suðurflug hélt upp á 40 árin með glæsibrag

Starfsmenn Suðurflugs í nýjum afmælisfatnaði.

Valdimar og Björgvin Ívar í Eldum.

Fjölmargir gestir litu við.

Fornbílar á Fitjum

Fornbílaáhugi á Íslandi er mikill og margir Suðurnesjamenn eru í hópi fornbílaeigenda. Þessi mynd var tekin af fornbílum sem var raðað upp á Fitjum

í Njarðvík um síðustu helgi. Þarna mátti sjá marga glæsivagna.

Page 19: 25.tbl

19VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012

Skólarnir þrír í Innri Njarðvík, þ.e. Akurskóli og leikskólarnir

Akur og Holt hafa nú tekið í notkun sameiginlegt útinámssvæði í Narfakotsseylu og langar okkur af því tilefni að rekja aðdraganda þess í stuttu máli. Hugmyndir um uppbyggingu útinámssvæðis kviknuðu haustið 2008 hjá þeim Önnu Sofiu og Karólínu og var frá upphafi ákveðið að þetta yrði samfélagslegt samstarfsverkefni skólanna þriggja í Innri Njarðvík þar sem nemendur og börn frá tveggja ára til sextán ára aldurs tækju virkan þátt í verkefninu frá upphafi til enda. Hugsjónin á bak við verkefnið er að nemendur og börn komist í nánara samband við náttúruna, umhverfið og samfélagið á merkingarbæran hátt í gegnum nám. Útikennslusvæðið var hugsað sem aðstaða fyrir nemendur, börn og kennara í útináminu en einnig fyrir aðra íbúa og gesti. Stýrihópur með fulltrúum skólanna var settur á laggirnar til að halda utan um framgang verkefnisins. Haustið 2009 hittust kennarar skólanna þriggja í Akurskóla og átti sameiginlegan starfsdag við undirbúning verkefnisins en í kjölfarið hófst hugmyndavinna og þróun verkefnisins innan skólanna. Á vorönn 2010 hittust nemendur skólanna til að ræða saman og viðra hugmyndir. Í kjölfarið var lögð fram tillaga um uppbyggingu útinámssvæðis í Kópu sem kynnt var fyrir Umhverfis- og skipulagsráði

Reykjanesbæjar. Þeirri tillögu var hafnað og í kjölfarið hófst nýtt ferli þar sem m.a. var leitað eftir nýrri staðsetningu. Landslagsarkitektinn Guðmundur Hrafn Arngrímsson var fenginn til samstarfs og lagði hann fram áhugaverðar hugmyndir um að nýta sérstöðu svæðisins við Narfakotsseylu og vinna út frá hugmyndum um sjósókn og atvinnuhætti fyrri tíma. Vann hann m.a. út frá þeim hugmyndum sem nemendur og leikskólabörn höfðu unnið.Skemmtilegt uppbyggingarferli h ó f s t í s e p t e m b e r 2 0 1 1 þegar fjölþjóðlegur hópur frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS mættu til leiks og unnu með okkur í tvær vikur. Í framhaldi hittust börn, foreldrar og kennarar skólanna og unnu að áframhaldandi uppbyggingu.Náið samstarf hefur verið haft að leiðarljósi í öllu ferlinu þar

sem börn, foreldrar, kennarar og stjórnendur hafa lagt sitt af mörkum. Með samstilltu átaki er þetta skemmtilega verkefni nú orðið að veruleika og á eftir að nýtast skólunum og samfélaginu um ókomin ár.Við viljum færa öllum kærar þakkir sem hafa komið að verkefninu og hjálpað til að gera það að veruleika. Jafnt þeim sem komið hafa að beinni uppbyggingu svæðisins sem og stjórnendum skólanna og þeim sem styrkt hafa verkefnið með beinum hætti s.s. Manngildissjóði og Umhverfis- og skipulagssviði Reykjanesbæjar. Einnig þökkum við Magma Energy fyrir veittan stuðning.StýrihópurinnAnna Sofia Wahlström, Cynthia Grinspan, Erna Ósk Steinarsdóttir, Karólína Einarsdóttir og Magnús Valur Pálsson

Þakklát fyrir útikennslu-svæðið í Narfakotsseylu

Page 20: 25.tbl

20 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Sumarið er heldur betur komið og nú eru margir farnir að

ferðast v í tt o g breitt um landið. Með smá skipulagi er vel hægt að næra alla fjölskylduna með hollu nesti og sneiða að mestu hjá sjoppuáti. Þannig náum við

að halda okkur við heilsusamlegt mataræði og við komum orkumikil og endurnærð heim eftir gott frí! Vissulega er nauðsynlegt öðru hvoru að gera sér dagamun í mat og drykk en það er algjör óþarfi að kúvenda mataræðinu í fríinu. Mikilvægt er að hafa nóg af vatni meðferðis fyrir alla. Meðfylgjandi hugmyndir gætu hjálpað við að nesta unga sem aldna og með lítilli fyrirhöfn. Góða ferð!

Ferskir ávextirGulrætur, gúrka, paprika í stönglumKirsuberjatómatarSamloka úr grófu brauði m/hollu áleggiÁvaxtaboost í fernumGrófar rískökur / hrökkbrauðHnetusmjör (ath plasthníf)

Hnetur og rúsínurLífræn tilbúin orkustykkiHarðfiskurPopp

Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.iswww.facebook.com/grasalaeknir.is

Hollt nesti í ferðalagið!www.facebook.com/grasalaeknir.is

vf.isvf.is

Víkurfréttir eru fluttarí Krossmóa 4 í Reykjanesbæ

Krossmóa 4 • 4. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 0000Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði / www.hotelork.is / [email protected] / sími: 483 4700

Sumarhátíð í blómabænum Hveragerði – kynntu þér tilboðin á hotelork.is

ÝMISLEGT

Tek að mér allskonar viðgerð-ir á bílum, sláttuvélum. Er með greiningartölvu til að bilanagreina margar tegundir bíla. Vanur mað-ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð! Uppl. S: 864 3567.

ÓSKAST

Einstæð móðirmeð 3ja ára dóttur óskar eftir 3 - 4 herbergja íbúð til leigu í Sandgerði, í síðasta lagi fyrir 31. ágúst, helst fyrr. Uppl. í síma 867 5232.

Óska eftir 2ja herbergja íbúð til leigu í Keflavík eða Ytri-Njarðvík. Uppl. í síma 697 8378.

Óska eftir íbúð í KeflavíkÓska eftir húsnæði til leigu í Keflavík. Meðmæli ef óskað er. Sími 865 5263.

Vantar íbúð!Óska eftir 3ja herbergja íbúð til leigu. Hef mjög góð meðmæli. Ég er reglusöm og geng vel um. Vinsamlegast hafið samband í síma 897 2570.

2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 21. - 27. júní nk.

Nánari upplýsingar í síma 420 3400

WWW.VF.IS

896 0364

Raflagnir & viðgerðirÞvottavélaviðgerðir

SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009

TIL LEIGU

Einbýlishús í Ytri NjarðvíkTil leigu í a.m.k. eitt ár. Upplýsingar í síma 695 5100.

Skúr til leiguá góðum stað í Keflavík ca 55m2 bað, niðurföll o.fl. UPPLÝSINGAR 691 1685 LEIGA 47.500.

Til leigu í Ytri-Njarðvík3ja herbergja íbúð til leigu frá 1. ágúst. Leiga 70 þús. á mán. fyrir utan hita og rafmagn. Uppl. í síma 659 1709 eftir kl. 16.

SkartsmiðjanHafnargötu 35

Skart Perlur Tölur Lokkar Keðjur SkrautSteinar Pinnar Lásar

Vír Öskjur KúlurHraun Tangir Roð

Nælur Hringir LeðurOpið 11 – 18

Nánari upplýsingarí síma 421 5121

TIL SÖLU

Innbú til sölu!Þvottavél Whirlpool 15.000, upp-þvottavél Ariston 15.000, hjóm-flutningssamstæða Daewoo AMI 829 L 5.000, bókahilla 150x150x40 7.000, borð með gleri 120x65 7.000, borð með gleri 68x68 3.000, svefn-sófi 220x120 cm 20.000, rafmagns-píanó Korg Concert EC 120 40.000 Upplýsingar í síma 867 7459.

TIL SÖLUTil sölu 3ja herbergja íbúð 70m2 á 1. hæð við

Sólvallagötu 40bParket ásamt fataskápum, flísar á baði,

falleg bleik innrétting í eldhúsi. Hurð út á verönd. Geymsla og þvottaaðstaða í risi.

Verð 12,4 millj. Yfirtaka á íslenskum lánum + 300.000 kr. Mánaðarleg greiðslubyrði af

lánum ca. 67.000 kr.Til sölu eða leigu bílskúr 27m2 við Sólvallagötu.

Nýmálaður og í góðu standi. Verð 2,8 millj.Upplýsingar í síma 867 7459 eða [email protected]

Það var mikið um að vera í Garðinum um síðastliðna

helgi enda stendur þar yfir alþjóðleg listasýning þar sem fjöldi fólks úr öllum listgreinum lætur ljós sitt skína, og skilur í leiðinni eftir sig spor í formi listsköpunar. Alls eru 46 listamenn sem taka þátt í verkefninu sem kallast Ferskir vindar og er haldið núna í annað sinn og stendur yfir frá 20. maí til 30. júní.Listamennirnir koma frá 16 þjóðum, þar á meðal frá Íslandi.

Listafólkið dvelur í Garði og vinnur að list sinni og stendur fyrir allskonar uppákomum, sbr. kynningum á list sinni, tónlistar- o g k v i k m y n d a v i ð b u r ð u m , gjörningum, málþingum og fleira.

Japanskur ferðamaður gerði sér ferð til Íslands til að heimsækja Ferska vinda

Chieko Sato frá Omashi í Japan hreifst mjög af verkum japanska listamannsins Mikio Kawasaki á síðasta ári. Hún frétti af Ferskum

vindum í gegnum hann og ákvað að ferðast til Íslands og kynna sér hvað væri að gerast á listahátíðinni Ferskum vindum.Chieko vinnur á hjúkrunarheimili í Omashi, Björk er uppáhaldssöngkonan hennar og hún er virkilega hrifin af Íslandi og langar að fræðast meira um landið. Hún er mjög hrifin af því hvernig Íslendingar nýta orkuna úr náttúrunni og langaði til að fræðast meira um það um leið og hún upplifir Ferska vinda í Garði.Chieko býr í eina viku á Gistihúsinu Garði. Hún segist ekki vera neinn listamaður en sé hrifin af því sem Ferskir vindar og landið séu að gera þrátt fyrir að landið hafi lent í efnahagslegu skipbroti fyrir þremur árum síðan. Henni finnst

Gustar um í Garðinum

Page 21: 25.tbl

21VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012

Sá sem við leitum að býr yfir:• Óbilandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum • Reynslu af stjórnun og skipulagningu vakta • Samviskusemi• Áræðanleika• Mjög góðu valdi á enskri tungu• Góðri almennri tölvukunnáttu• Hæfileika til þess að starfa vel undir miklu álagi

Kostur er að hafa:• Háskólagráðu í ferðamálafræði eða aðra sambærilega menntun • Áhuga á upplifun gesta og heilsuferðaþjónustu • Frekari tungumálakunnáttu

VIÐ LEITUM AÐ AÐSTOÐAR MÓTTÖKUSTJÓRABláa Lónið hefur margsinnis verið valið eitt besta spa á heimsvísu og hlaut nýverið nafnbótina eitt af25 undrum veraldar hjá National Geographic. Bláa Lónið er einn vinsælasti áfangastaður erlendra ferðamanna og er í örum vexti.

Við leitum að aðstoðar móttökustjóra sem mun starfa á vöktum í móttöku Bláa Lónsins við sölustörfog stýringu á hluta af okkar frábæra teymi. Viðkomandi mun leysa móttökustjóra af við vaktaskipulag ásamt öðrum verkefnum.

Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði 200–250 starfsmenn.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Gísladóttir, mannauðsstjóri Bláa Lónsins,í netfanginu [email protected] eða í síma 420-8838 virka daga.

Umsóknarfrestur er til 2. júlí og eru umsækjendur vinsamlegast beðnirum að sækja um starfið á heimasíðu Bláa Lónsins:www.bluelagoon.is/Um-fyrirtaekid/Atvinna/

Að a l f u n d u r V i r k j u n a r mannauðs var haldinn

nýverið og var mæting góð og Jónas Jónsson sjálfboðaliði bauð fundargestum upp á frábæra kjötsúpu a la Jónas.Formaður stjórnar bauð fólk velkomið og síðan voru kosnir fundarstjóri og fundarritari. Formaður, Ólafur S. Magnússon, f l u t t i s k ý r s l u s t j ó r n a r o g forstöðumaður Virkjunar Gunnar H. Gunnarsson flutti skýrslu um starfsemi Virkjunar fyrir árið 2011 og kynnti reikninga félagsins.Í máli formanns stjórnar kom m.a. fram að starfsemin hafi verið mjög öf lug á árinu og ánægjulegt að geta greint frá því að í byrjun þessa árs (2012) var Virkjun úthlutað veglegum styrk frá Velferðarráðuneytinu undir liðnum Endurhæfing, til reksturs miðstöðvar fyrir atvinnuleitendur. Þessi styrkur gefur okkur byr undir báða vængi og viljum við líta svo á að þetta sé viðurkenning á því starfi sem fram fer í Virkjun.Í máli forstöðumanns Virkjunar

kom fram að aðsóknin í Virkjun hefur vaxið á árinu. Heimsóknir á árinu voru 14.911 og komu þó nokkrir fleiri á seinni hluta ársins miðað við þann fyrri. Í haust byrjuðum við einnig að flokka heimsóknir eftir kynjahlutfalli og samkvæmt því þá eru 62% karlar og 38% konur sem heimsækja Virkjun.Eftir umræður f lutti Þórunn Lindberg ræðu um sína sýn á starfsemi Virkjunar. Síðan voru 5 sjálfboðaliðum afhent þakkarskjal fyrir vel unnin störf. Þar segir; Með framlagi þínu hefur þú lagt dýrmæt lóð á vogarskálarnar í því starfi sem fram fer í Virkjun. Markmið

miðstöðvarinnar er að flestir megi finna sér uppyggjandi vettvang til að efla getu sína til þátttöku í leik og starfi. Í Virkjun á hver og einn að geta miðlað af hæfileikum sínum og lært af öðrum. Þú hefur lagt þitt af mörkum til að efla starfsemi virknimiðstöðvarinnar Virkjunar.Þakklætisskjal fengu:Jónas H. EyjólfssonSif JónsdóttirJón ArasonKristín SveinsdóttirJósep ValgeirssonOg fara þau á sérstakan heiðurslista Virkjunar mannauðs á Reykjanesi. Fundi var síðan slitið og fólki boðið upp á kaffi og spjall.

Fengu viðurkenningu fyrir sjálfboðaliðastarf

Gustar um í Garðinum

stórmerkilegt að Ferskir vindar og Garður bjóði listamönnum að koma alls staðar að úr heiminum til að vinna skapandi verk á borð við verkið Hiroshima 66 sem var unnið á Ferskum vindum 2010-11 og felur í sér 66 hnefastóra steina á stóru steinborði. En það vísar í að það voru 66 ár liðin frá því að kjarnorkusprengjunni var varpað á Hiroshima og Nagasaki. Mikio Kawasaki skapaði verkið og vonar að með því hjálpi hann fólki til að muna eftir þessum sögulega harmleik og að öll kjarnorkuvopn hverfi í þeirri von að harmleikurinn endurtaki sig aldrei aftur. En Mikio

biður fólkið í Garði um að bæta við einum steini á ári í verkið svo steinarnir séu jafnmargir og árin frá því að sprengjunni var varpað.Þessum japanska ferðalangi, sem er að heimsækja Ísland í fyrsta skiptið, finnst stórkostlegt hvernig listamenn Ferskra vinda koma á framfæri í list sinni ábendingum um að það sé eitthvað rangt í heiminum. Henni finnst eins og listamennirnir í Garði séu ekki bara að skapa list heldur séu þeir að gefa heiminum skilaboð. Chieko segist vonast til þess að Ísland verði hið fullkomna land sem gæti verið góð fyrirmynd fyrir önnur lönd.

Page 22: 25.tbl

22 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Björn Snæ var Björnsson yfirþjálfari Hnefaleikafélags

Reykjaness er þessa dagana staddur í Las Vegas í Bandaríkjunum þar sem hann mun æfa í elsta æfingasal borgarinnar ásamt reyndum hnefaleikaköppum. Víkurfréttir litu við á æfingu í gömlu sundlauginni í Keflavík en þar var Björn að ljúka við að setja á sig vafningana.Björn hefur verið að æfa box í fimm ár og á að baki 17 bardaga. Björn hóf að æfa hnefaleika 19 ára gamall og þá undir handleiðslu Daða Ástþórssonar sem Björn segir vera einn færasta þjálfara landsins. Björn hefur nú tekið við keflinu af Daða sem yfirþjálfari Hnefaleikafélags Reykjaness. Björn sér um það að þjálfa fólk sem vill ná grunn- og tækniatriðum í íþróttinni en einnig er hægt að æfa svokallað fitness-box, þar sem fólk nýtir hnefaleika sem líkamsrækt. Einnig þjálfar Björn þá sem vilja ná langt í hnefaleikum.Um 40 hnefaleikakappar á öllum aldri eru undir handleiðslu Björns um þessar mundir en hann er nú staddur í Bandaríkjunum í æfingabúðum eins og áður segir. Nánar t i l tekið í Las Vegas í eyðimörkinni í Nevada-fylki, þar sem margir frægustu hnefaleikakappar sögunnar hafa æft og margir stórir bardagar hafa einnig verið háðir. Þar hyggst Björn ná sér í reynslu sem hann mun miðla af sér með iðkendum hér heima.Björn segist hafa endað í boxinu til þess að skora á sjálfan sig. Hann ætlaði sér í raun aldrei að fara eitthvað langt í íþróttinni en að lokum var það svo komið að hann sá sér ekki fært að hætta að mæta á æfingar. Það sem heillar Björn hvað mest við boxið er hversu erfið

íþróttin er. „Maður þarf að vera í góðu líkamlegu ástandi, hafa góða færni, gott þol og sprengikraft. Þetta spilar allt svo vel saman,“ segir Björn. Fyrir honum eru hnefaleikar eins og skák frekar en bardagi. Honum finnst krefjandi að reyna að lesa andstæðinginn.Í Bandaríkjunum mun Björn æfa í elsta æfingasal í Las Vegas borg, Johnny Tocco´s gym, sem hefur verið starfræktur síðan í kringum 1950. Þar hafa margir goðsagnarkenndir kappar æft en á meðal þeirra eru: Mike Tyson, Sonny Liston og Larry Holmes. Með Birni í för verða fleiri Íslendingar, m.a. Daði Ástþórsson fyrrum þjálfari hans og Árni Ísaksson sem er einn fremsti bardagakappi Íslendinga. „Ég ákvað að stökkva á þetta tækifæri og fara með,“ en Björn vonast til þess að fá að reyna sig í bardögum gegn reyndum köppum. Tilhlökkunin er mikil og Björn er afar spenntur. „Á Íslandi eru ekki það margir í hverjum þyngdarf lokki og því verður gaman að fá að takast á við nýja andstæðinga,“ segir Björn.Björn er sammála blaðamanni að því leyti að vinsældir hnefaleika hafa dalað talsvert á undanförnum árum enda hafa aðrar bardagaíþróttir verið á mikilli uppleið. „Ég hef trú á því að boxið sé aftur á uppleið. Það eru mikið af bardagaíþróttum í boði og fólk er að prófa þær. Ég tel þó að boxið muni alltaf koma sterkt inn aftur enda rótgróin íþrótt.“ Til þess að hnefaleikar skipi sér aftur á fyrri stall telur Björn að hlúa þurfi að unga fólkinu. Björn er á því að boxið muni alltaf vera spennandi kostur þegar ungt fólk stendur frammi fyrir því að velja sér íþróttagrein til þess að æfa. Sama hvort fólk vilji stíga inn í hringinn eða bara þjálfa og vera

með vinum sínum. Hann segir að í einstaklingsíþróttum læri maður að treysta fyrst og fremst á sjálfan sig.„Hér hef ég séð unga stráka verða að mönnum. Það er það sem við viljum gera hérna. Hjálpa ungum krökkum að styrkja sig bæði andlega og líkamlega og þroskast sem manneskjur. Við þurfum ekki að búa til neina heimsmeistara til þess að ná því fram.“ Björn segir hnefaleika hafa hjálpað honum mikið í lífinu og mun boxið alltaf vera til staðar fyrir hann að hans mati.Starfsemin er alltaf á fullu í gömlu sundlauginni í Keflavík en það hús hefur gengið í endurnýjun lífdaga eftir að húsinu var breytt í hnefaleikasal. Nú á næstunni eru að hefjast grunntækninámskeið fyrir 16 ára og eldri. Á Ljósanótt fer svo fram árlegt mót í Reykjanesbæ. Hnefaleikamenn á Íslandi hafa átt í góðu samstarfi við frændur okkar Dani á undanförnum árum og hefur Björn fimm sinnum keppt við danska hnefaleikamenn. Eins og er er hann undir 3-2 í þeim viðureignum en hann hefur átt góðu gengi að fagna í öðrum bardögum. Á Ljósanótt gæti farið svo að Danir verði fyrir barðinu á okkar mönnum en einnig mæta margir af fremstu hnefaleikamönnum landsins til Reykjanesbæjar á mótið.

En af hverju ætti maður að prófa boxið? „Ég get tryggt það að þú sért að fara að prófa eitthvað sem þú hefur aldrei gert áður. Það að prófa nýja hluti er eitthvað sem ég tel að fólk ætti að gera meira af,“ sagði Björn að lokum.

Æfir í elsta „gymminu“ í Las Vegas

Page 23: 25.tbl

23VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012

útspark Ómar JÓhannsson

Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllinn.

safnað fyrir minningum

Ég fjárfesti í blaðinu Vinkillinn fyrir stuttu. Virkilega flott blað sem ég vona að sem flestir hafi keypt. Ekki vegna þess að það er mynd af mér í blaðinu, allir væntanlega komnir með nóg af mér hérna í Víkurfréttum. Heldur vegna þess að salan á blaðinu er fjáröflun fyrir 6. flokk Keflavíkur sem leggur brátt af stað til Vestmannaeyja á hið árlega Shellmót. Fyrir þá sem eru aðeins eldri er Shellmótið gamla Tommamótið. Stærsta og flottasta mót yngri flokka Íslands. Ég er farinn að hallast að því að ég eigi aldrei eftir að spila með íslenska landsliðinu á HM. Shellmótið fyrir mér var það næsta sem ég komst því. Stemmingin að fara nánast til útlanda, sem Vestmannaeyjar voru þá fyrir mér, að keppa í fótbolta var æðisleg. Að sofa, borða og fíflast með liðinu heila helgi og svo spila fótbolta, það gerist einfaldlega ekki betra.

Þessi pistill á reyndar ekki að vera neinn áróður fyrir 6. flokk Keflavíkur. Ég vil bara hvetja fólk til þess að taka vel á móti krökkum sem eru að safna fyrir hinum og þessum æfinga- eða keppnisferðum. Að fara í keppnisferðir með liðinu var ekki bara ótrúlega skemmtilegt, heldur einnig ótrúlega þroskandi. Lítil skref í átt að standa á eigin fótum með hjálp fararstjóra og foreldra sem fylgdu með. Það var til dæmis ekkert lítið mál þegar maður fékk að heyra fyrsta dónabrandarann sinn 10 ára í Eyjum. Það var einhver galsi í strákunum þegar átti að fara að sofa og einn af fararstjórunum lofar okkur dónabrandara ef við höfum hljóð. Það varð dauðaþögn á 0,3 sekúndum. Þá var maður stór kall að hafa heyrt alvöru dónabrandara. Seinna áttaði maður sig á því að brandarinn var ekki sérlega dónalegur, en samt nóg til þess að þagga niður í okkur í smá stund.

Ég fór í mína fyrstu utanlandsferð með 4. flokknum til Hjörring í Danmörku. Þá var ég 13 ára á yngra ári og spilaði með B-liðinu. Það var engin sér keppni fyrir B-liðin heldur þurftum við að spila við A-liðin hjá hinum. Það gekk ekkert allt of vel og við lentum í neðsta sæti. Ferðin var samt virkilega skemmtileg og við alls ekki ósáttir. Sól og blíða allan tímann og maður gat eytt vasapeningnum í það sem maður vildi. Öll liðin fengu bikar fyrir þátttökuna á mótinu og fyrirliðinn okkar, sem var Sigurður Aðalsteins, tók við honum. Hann var fyrstur til að taka við bikar, enda urðum við neðstir. Hann var samt ekki fúlari með úrslitin en það að hann kyssti bikarinn rembingskossi og lyfti honum svo hátt á loft. Fólk missti sig ekki alveg í fagnaðarlátunum en sumir misstu sig samt, enda var þetta frábær endir á þátttöku okkar á mótinu.

Úrslitin skipta ekki öllu máli í þessum mótum. Oft er það eitthvað annað sem situr eftir og ferðin sjálf er aðalatriðið. Auðvitað vill maður alltaf vinna og ég var nokkuð lánsamur að spila í góðum flokki. Okkur gekk yfirleitt vel á þeim mótum sem við tókum þátt í. Danmörk er þar undantekningin. Sala á blöðum, bóni, mandarínum og annað eru mikilvægar fjáraflanir fyrir þessa krakka. Vonandi taka sem flestir vel á móti þeim því reynslan sem fæst úr þessum ferðum er ómetanleg.

Æfir í elsta „gymminu“ í Las Vegas

www.heilsuhusid.is

Hringbraut 99 Keflavík Sími 578 5560Opið: mánud. - föstud. 10 -18

Ásdís RagnaEinarsdóttir

grasalæknirveitir ókeypis ráðgjöf í

Heilsuhúsinu, Hringbraut 99, Reykjanesbæ

þriðjudaginn 26. júní milli kl. 15:00 og 18:00.

Ástrós Brynjarsdóttir er 13 ára stúlka sem æfir taekwondo

með Kef lavík. Hún er með svarta beltið og ein efnilegasta taekwondo stúlka landsins. Hún er tvöfaldur Íslandsmeistari, árið 2011 og 2012. Hún keppti einnig á sínu fyrsta móti erlendis 2012, Norðurlandamóti þar sem hún fékk silfur og brons í tveimur greinum. Páll Orri Pálsson fréttamaður Víkurfrétta settist niður með henni og ræddi við hana um íþróttina taekwondo.

Hvernig kom það til að þú byrjaðir í taekwondo? Ég var í 2. bekk og vinkona mín kom til mín og spurði mig hvort ég vildi koma með sér og prufa og ég var til í það. Okkur fannst þetta bara skemmtilegt svo við héldum bara áfram. Hún hætti síðar en ég hélt áfram af því að mér fannst þetta bara svo skemmtilegt.Hvað heillar þig mest við þessa íþrótt? Hvernig maður getur varið sig ef eitthvað kemur upp á.Hvernig undirbýrðu þig fyrir taekwondomót? Við gerum mikið af þrekæfingum og eftir æfingar setjumst við niður í svona 1 mínútu og hugsum um hvernig bardaginn á að vera.Hv a ð e r l e i ð i n l e g a s t v i ð æfingarnar? Þegar kennarinn segir manni að gera eitthvað og maður skilur bara ekki hvað hann er að tala um.En hvað er skemmtilegast? Það er bara allt skemmtilegt en Poomsae er skemmtilegast (Poomsae er þegar maður ímyndar sér einhvern andstæðing og maður á að verja sig og sparka í hann, eins og þú værir að keppa á móti einhverjum).Hvað ertu búin að æfa lengi? Í fimm ár.Áttu þér einhver markmið í íþróttinni?

Já, fara til útlanda og vinna næsta mót.Hvað æfirðu mikið á viku? Ef það er venjuleg vika þá er það 3-4 sinnum í viku en ef það er mót framundan þá er það svona 5-6 sinnum.Hvernig nýtist taekwondo þér í daglegu lífi? Einbeitingin nýtist mér vel.Hvað þarf maður að gera til þess að fá svart belti? Maður þarf að mæta á æfingar, æfa vel kóresku orðin og æfa spörkin og allt. Svo þarf maður að brjóta múrstein og vera með spörkin á hreinu þegar mætt er í prófið.Hvað þarf maður að gera til að sigrast á andstæðingnum? Bara vera yfirvegaður og passa brynjuna og líka sparka í hana hjá andstæðingnum, þannig safnar maður stigum.Af hverju þarf maður að klæðast svona hvítum slopp, eins og margir kalla það? Þetta er bara gömul hefð í taekwondo.E r t a ek won d o ek k i f rek ar strákaíþrótt, er eitthvað verið að skjóta á þig? Nei, ég held að stelpur þori bara ekki eins mikið að fara í þetta, en þetta er klárlega fyrir bæði kynin.En hvernig er félagsskapurinn í taekwondo? Bara mjög góður.

Hver er uppáhaldsíþróttamaðurinn þinn? Helgi R afn (Guðmundsson) kennari minn, hann er bara góður og er alltaf að sýna okkur eitthvað nýtt og skemmtilegt.Hver er fyrirmynd þín í íþróttum? Jón Steinar bróðir minn og Helgi Rafn kennari minn.Hvað eru mörg belti? 12 belti með svarta beltinu og eftir svarta beltinu koma nokkrar gullrendur á beltið.

Á næstunni mun Víkurfréttir kynna ungt og efnilegt íþróttafólk af Suðurnesjunum bæði hér í blaðinu og með myndbandi á vf.is.

Umsjón með þættinum hefur Páll Orri Pálsson.

STELPUR ÞORA BARA EKKI EINS MIKIÐ AÐ FARA Í ÞETTA

Uppáhalds matur? Píta

Sjónvarpsþáttur? 90210

Drykkur? Klárlega vatn

Tónlistarmaður? Adele

Skyndibiti? Subway

Ávöxtur? Epli

Hlutur? Bikararnir mínir

Yfirheyrslan:Yfirheyrslan:

Sjáið skemmtilegt video

um þetta efni á vf.is

Meiðir maður sig eitthvað í taekwondo? Maður fær alveg marbletti og slíkt en maður er eiginlega ekkert að meiða sig eða brotna eða eitthvað þannig. Svo erum við líka með hlífar, hjálm og góm og svoleiðis.Fylgistu með öðrum íþróttum og þá hverjum? Já, stundum handbolta, körfubolta og fótbolta. Ég æfði þær líka þegar ég var lítil.Áttu svo einhverja skemmtilega sögu úr íþróttum? Já, t.d. á seinasta ári á Íslandsmótinu þá var ég búin að vera með lungnabólgu og ég var ekkert búin að æfa neitt en fór samt á mótið og ég gerði bara formið og svo þegar formið var búið þá fór ég út í horn og hóstaði mikið af því að ég mátti ekki hósta í forminu, þá myndi ég fá mínusstig og vann mótið.

Víkurfréttir á nýjum stað!Erum á 4. hæð í Krossmóa 4, Reykjanesbæ.

Page 24: 25.tbl

Toppurinn á Tilverunni

Ég fékk loksins tækifæri á því að efna loforðið mitt frá því í fyrra. Að bjóða heim. Útlendingi. Þessi líka fádæma ljúfi

piltur sem þáði boðið. Dugði ekki dagur eða vika. Mánuður eða ekkert. Vertu velkominn minn kæri. Nóg að gera að sýna honum herlegheitin. Landið mitt Ísland tekur vel á móti öllum. Einstök náttúra og hrjóstrug. Hljótum að fá eins og eitt stykki eldgos til að standa undir væntingum. Hann sagði að það mætti alveg sleppa því. Hafði aldrei stigið upp í flugvél á ævinni. Foreldrarnir ekki heldur. Ætluðu að geyma það í bili. Spenningurinn því mikill fyrir litla fjölskyldu á Norður-Spáni að senda örverpið til eldfjallaeyju í ballarhafi. Byrjuðu að pakka fyrir hann mörgum vikum fyrir brottför. Sendu hann með nesti með sér. Og til okkar líka.

Honum þykir fullbjart á nóttunni. Sefur þó eins og ungabarn. Rólegt og þægilegt í Njarðvíkunum. Sérstaklega eftir að loftrýmisgæslunni lauk.

Langar að skoða höfuðborgina og mannlífið. Bíður spenntur eftir því að komast í Bláa lónið. Það þekkja það allir. Svo segir hann. En frúin hafði önnur áform fyrir hann. Út í sveit með drenginn. Pantaði sumarhús hjá verslunarmannafélaginu og fékk úthlutað á Flúðum. Best að bjóða honum gullna hringinn fyrst. Suðurlandið fullt af tækifærum. Fengum hann varla í burtu frá Seljalandsfossi. Sund og heitir pottar í algjöru uppáhaldi. Lofaði almættið með útbreiddan faðm þegar hann prófaði pottinn í sumarhúsinu. Fannst það toppurinn á tilverunni. Á miðnætti í miðnætursól og birtu. Það sem okkur finnst einhvern veginn svo sjálfsagt, á hann ekki til orð yfir. Ísland er einstaklega rómantískt.

Veðrið hjálpar til við upplifunina. Hann vaknar að morgni í sól og blíðu. Hitinn nálægt 18 gráðum. Um hádegið dregur fyrir sólu og fer að blása.

Skýin einstaklega dimm og fyrr en varir dynja haglélin á pallinum. Vara í korter. Í eftirmiðdaginn dettur allt í dúnalogn og flugurnar fara á kreik. Fuglalífið tekur undir með tónelsku ívafi. Grillað íslenskt lambakjöt og spænskt rauðvín mettar sísvangan sveitapiltinn. Vill jógúrt í eftirrétt. Heimtar að fá að vera lengur. Framlengir í hálfan mánuð í viðbót.

Þjóðhátíðardagurinn heillaði líka. Sjá allt fjörið. Sendur á bílnum í bæinn og við hjónin skilin eftir. Í sveppabænum. Líður eins og í stofufangelsi.

Komumst ekki lönd né strönd. Bíllaus. Reimaði á mig skóna í morgun og fór í göngutúr. Frjáls eins og fuglinn.

vf.isvf.is

Fimmtudagurinn 21. júní 2012 • 25. tölublað • 33. árgangur

auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001

FIMMTUDAGSVALSVAlUr KeTIlSSon SKrIFAr

VEITINGASALAN Í LEIRU ER OPIN ALLA DAGA

HAFIÐ SAMBAND Í SÍMA 421 4100 EÐA

NETFANGIÐ [email protected]

Í HÁDEGINU ALLA DAGA

SÚPA DAGSINS OG FERSKUR FISKUR

KAFFIVEITINGAR, HAMBORGARAR,

SAMLOKUR OG FLEIRA GÓÐGÆTI.

OPIÐ ALLA DAGA FRAM Á KVÖLD FYRIR FÉLAGA Í

GS OG AÐRA.

Laugardagur 23. júní

Sunnudagur 24. júní

Kl.10:00-12:00 Sólseturshátíðarmót hjá 6 �. drengja á Víðisvellinum.Kl.10:00 Sólseturshátíðarhlaup við Íþróttamiðstöðina í Garði. Boðið verður upp á 3 km og 10 km hlaup. Skráning í Íþróttahúsi Garðs eða á [email protected]:00 Hátíðin sett á hátíðarsvæðinu út á Garðskaga

Sólborg GuðbrandsdóttirMelkorka Rós Hjartardóttir

Area of Style Sveppi og Villi

Atriði frá Vinnuskóla Garðs

Leikir út á svæðinu á vegum Knattspyrnufélagsins VíðisFroðubolti - Hestaferðir fyrir börnin (teymt undir börnum) Karmellukast úr þyrlu (fer e�ir veðri) - Hoppukastali

Kl.20:30-23:30 Kvölddagskrá hefst á hátíðarsvæðinu út á GarðskagaLéttsveit Tónlistarskóla Ke�avíkurNicolette söngkonaLínudansBlár OpalHljómsveitin ValdimarHljómsveitin BógusValgeir GuðjónssonVarðeldur

Kl.17:00 Tónleikar í Miðgarði, sal GerðaskólaNicolette og Deborah Charles (aðgangur ókeypis)

Fimmtudagur 21. júní

Föstudagur 22. júní

Garðurinn settur í hátíðarbúning og mælt með að íbúar skreyti hús sín og götur og taki þannig virkan þátt í að gera hátíðina og Garðinn sem glæsilegastan. Sérstök skreytinganefnd veitir verðlaun fyrir best skreytta húsið og götu bæjarins.

Kl.10:00-12:00 GerðaskóliTöfranámskeið fyrir krakka í skólanum með Einari Mikael (frítt)Einar Mikael kennir grunnatriðin í töfrabrögðum (fyrir grunnskólakrakka)

Kl.20:00-22:00 Ganga frá Unu-húsi út að Garðskaga með Herði Gíslasyni.Hörður fer y�r helstu kennileiti á gönguslóðum.

Kl.15:00-17:00 GerðaskóliLeikir og �ör með Gauju, Brynju og Evu fyrir alla krakka.Knattspyrnufélagið Víðir gefur öllum hressum krökkum svala og prins póló.

Kl.18:00-20:00Götugrill í hverfum bæjarins, nefndin mælir með að hver�n hittist á ákveðnum stöðum og götur (rauða hver�ð, gula hver�ð, græna hver�ð og appelsínugula hver�ð) grilli saman. Hermann Ingi mætir í hverfagrillin og kannar stemninguna og tekur nokkur lög.

Kl.20:00 Hermann Ingi fer fyrir skrúðgöngu frá Bæjarskrifstofunni út á Víðisvöll, þar sem Víðir tekur á móti liði Grundar�arðar. Leikurinn hefst kl. 20:30 (Víðir keppir síðan á Grundar�rði við þá á þeirra bæjarhátíð)

Kl.22:00-24:00 Blakmót út á Garðskaga. Allir hvattir til að vera með lið. Þátttökugjald er 500 kr. á leikmann, greiðist á staðnum. (skráning á [email protected])

Kl.23:00 Kvöldmessa í Útskálakirkju.

Sölutjöld verða á svæðinu. Yngri �okkar Víðis verða með ýmislegt góðgæti til sölu á svæðinu, m.a. Candy �oss, Krap-ís, Ka�, Kakó o.�.

10. bekkur Gerðaskóla verður með hamborgara og pylsusöluM.�. Víðis verður með heita súpu til sölu.

Listviðburðir Ferskra vinda alla helgina sjá nánar á svgardur.is eða á fresh-winds.com

...\isn-93\götukort-litur--i93.dgn 9.1.2009 08:55:39

...\isn-93\götukort-litur--i93.dgn 9.1.2009 08:55:39

...\isn-93\götukort-litur--i93.dgn 9.1.2009 08:54:48

...\isn-93\götukort-litur--i93.dgn 9.1.2009 08:55:39

Rauða grillið

Gula grillið Græna grillið

Appelsínugula grillið

Jón Ragnar Ástþórsson formaður Víðis setur hátíðina

Bryn Ballet

Leikskólabörn frá Gefnarborg

Kl.17:00 Sjósund í Garðhúsavík

Einar Mikael töframaður frumsýnir stórkostlegt atriði

Forsetaframbjóðendur á Suðurnesjum

Forsetaframbjóðendurnir Þóra Arnórsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson voru á ferðinni á Suðurnesjum nýlega. Þau komu bæði

við á hinum ýmsu vinnustöðum og spjölluðu við fólk og svöruðu spurningum. Meðfylgjandi mynd af Þóru var tekin á Nesvöllum en af Ólafi Ragnari og Dorrit í húsakynnum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Videoviðtöl við þau bæði má finna á vef Víkurfrétta.