forsetafræðsla 2011

47
Forsetafræðsla 2011 Margar hendur vinna létt verk

Upload: jane-cunningham

Post on 02-Jan-2016

35 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

Forsetafræðsla 2011. Um Kiwanis. Alþjóðahreyfing stofnuð í Detroit 1915 Kiwanis í Evrópu 1963 Kiwanis á Íslandi stofnað 1964 Hekla Umdæmisstjórn . Umdæmisstjóri, ritari , gjaldkeri, erlendur ritari , verðandi og fráfarandi umdæmisstjóri ásamt 5 svæðisstjórum. Hvað er Kiwanis?. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Forsetafræðsla 2011

Forsetafræðsla 2011

Margar hendur vinna létt verk

Page 2: Forsetafræðsla 2011

Um Kiwanis

• Alþjóðahreyfing stofnuð í Detroit 1915• Kiwanis í Evrópu 1963• Kiwanis á Íslandi stofnað 1964 Hekla

• Umdæmisstjórn . Umdæmisstjóri, ritari , gjaldkeri, erlendur ritari , verðandi og fráfarandi umdæmisstjóri ásamt 5 svæðisstjórum.

Margar hendur vinna létt verk

Page 3: Forsetafræðsla 2011

Hvað er Kiwanis?

• Stutta og auðvelda svarið er.

• Kiwanis er alheimssamtök sjálfboðaliða sem hafa að markmiði að bæta heiminn með þjónustu í þágu barna.

Margar hendur vinna létt verk

Page 4: Forsetafræðsla 2011

Kjörorð Umdæmisstjórnar 2011 - 2012

• Kjörorð umdæmisstjórnar 2011 – 2012• District Board Motto• Margar hendur vinna létt verk• Good Cooperation gets the work done

• Markmið umdæmisins starfsárið 2011 – 2012• District Goals• Vinna - Saman• Standa - Saman• Fjölga - Saman• Gaman - Saman

Margar hendur vinna létt verk

Page 5: Forsetafræðsla 2011

Margar hendur vinna létt verk

Höfði,Jöklar, Jörfi, Katla og þyrill voru áður í Eddusvæði.

Básar, Elliði, Esja, Geysir og Hekla voru áður í Þórssvæði

Page 6: Forsetafræðsla 2011

Færeyjasvæði

Margar hendur vinna létt verk

Eysturoy, Rósan og TórshavnTilheyrðu áður Þórssvæði

Page 7: Forsetafræðsla 2011

Sögusvæði

Margar hendur vinna létt verk

Eldfell var græðlingsklúbbur frá Helgafelli er áfram í sama svæði

Mosfell var áður í Grettissvæði

Page 8: Forsetafræðsla 2011

Óðinssvæði

Margar hendur vinna létt verk

Skjöldur og Drangey voru áður í Grettissvæði

Page 9: Forsetafræðsla 2011

Ægissvæði

Margar hendur vinna létt verk

Óbreytt nema Varða kemur inn sem fullgildur Kiwanisklúbbur

Page 10: Forsetafræðsla 2011

1. Lesa vel fræðsluefni forseta Kiwanis, sem er aðgengilegt á kiwanis.is

2. Skipa formenn nefnda og tilnefna nefndarmenn í samráði við þá.

3. Búa til starfsskrá fyrir árið í samráði við formenn nefnda.

4. Sjá til þess að félagatal sé leiðrétt og frágengið. Senda til umdæmisins, ásamt mynd af

forseta.

5. Útvega sérstaka skjalamöppu, sem þú hefur eingöngu undir gögn, sem varða starf þitt

sem forseti.

MINNISPUNKTAR FYRIR FORSETA

Margar hendur vinna létt verk

Page 11: Forsetafræðsla 2011

6. Ganga frá stjórnarskiptafundi við svæðisstjórann. Jafnframt að sjá til þess að

embættismerki séu til í klúbbnum. Bæði fyrir nýja og fráfarandi

embættismenn.

7. Fjárhagsáætlun sé tilbúin og samþykkt fyrir 1. nóvember 2011.

8. Fjárhagsáætlun þarf að berast svæðisstjóra með októberskýrslu.

9. Fjárhagsáætlun á að vera tvískipt: Félagssjóður og styrktarsjóður.

10. Gera ráð fyrir eftirfarandi í fjárhagsáætlun: a)Kostnaður vegna forseta á

svæðisráðsfundi og afmælisfundi. b) Kostnaður vegna ritara á

svæðisráðsfundi. c) Kostnaður vegna gjafa til klúbba sem eiga stórafmæli (5, 10, 15 ára o.s.frv.).

MINNISPUNKTAR FYRIR FORSETA

Margar hendur vinna létt verk

Page 12: Forsetafræðsla 2011

11. Fara yfir mánaðarskýrslur með ritara.

12. Nauðsynlegt er að ritari mæti á svæðisráðsfundi og hafi með fjölfaldaða skýrslu. B-skýrsla á að

fylgja. Benda öðrum félögum á að þessir fundir eru opnir öllum Kiwanisfélögum.

13. Lesa upp skýrslu þá sem lögð var fram á

svæðisráðsfundi og taka úrdrátt úr öðrum

skýrslum frá klúbbum í svæðinu, á næsta

félagsmálafundi í klúbbnum.

14. Athuga í upphafi starfsárs með þá félaga sem

mætt hafa illa og kanna viðhorf þeirra.

15. Gera ráð fyrir einum fundi til að ræða markmið

Kiwanis og klúbbsins

MINNISPUNKTAR FYRIR FORSETA

Page 13: Forsetafræðsla 2011

16. Halda stjórnarfundi reglulega, að minnsta kosti 1x í mánuði.

17. Nauðsynlegt er að þú sért í góðu sambandi við svæðisstjórann

18. Mundu að þetta er þitt ár sem forseti. Þó forseti beri ekki einn ábyrgð á starfinu, getur áhugi þinn og elja skipt sköpum fyrir klúbbinn.

Ekki vera hika við að breyta til, ef þú heldur að það hafi jákvæð áhrif.

MINNISPUNKTAR FYRIR FORSETA

Page 14: Forsetafræðsla 2011

A.t.h. ekki vera ræða fjármál klúbbsins á öllum fundum.

15-20 mínútur á einum fundi á að duga fjárhagsnefnd til að klára öll

mál.

Fjármál geta verið leiðinleg

Page 15: Forsetafræðsla 2011

KIWANISLEIÐBEININGAR UM

NEFNDARSTÖRF

Page 16: Forsetafræðsla 2011

Margar hendur vinna létt verk

NEFNDIR OG NEFNDARSTÖRF

Eigi Kiwanis- klúbbur að geta náð árangri í starfi er nauðsynlegt að nefndir starfi vel

Page 17: Forsetafræðsla 2011

Nefndir í klúbbum þurfa:

Að vera skipaðar félögum sem geta hugsað sér að vinna saman að hlutverki viðkomandi nefndar og þar með starfsemi Kiwanisklúbbsins

Að halda fundi reglulega og skrá fundargerðir um fundi nefndanna og gefa skýrslu á almennum fundum klúbbsins sé þess krafist

Margar hendur vinna létt verk

Page 18: Forsetafræðsla 2011

Yfirbragð

• Yfirbragð fundarins: Yfirbragð fundarins fer að verulegu leyti eftir framkomu þess, sem fundinum stjórnar.

• Stjórnandinn á að vera ákveðinn, án þess þó að vera um of og umfram allt kurteis og heiðarlegur. Hann verður ætíð að vera hlutlaus. Forseta ber að halda virðingu sinni og aldrei ætti hann að láta gamanyrði sín verða of gróf.

Margar hendur vinna létt verk

Page 19: Forsetafræðsla 2011

Skynsemi

• Skynsamur forseti gerir sér far um að láta ekki líta svo út sem hann einn stjórni klúbbnum. Oft er skynsamlegt að fá einhvern annan félaga til að kynna þínar eigin hugmyndir og tillögur, en gera það ekki ætíð sjálfur. Forsetinn er miklu fremur dæmdur eftir því, hve áberandi forsetinn er í störfum klúbbsins.

Margar hendur vinna létt verk

Page 20: Forsetafræðsla 2011

Málskrúð

Stuttorður og gagnorður: Hafðu tilkynningar þínar til klúbbsins stuttorðar og gagnorðar. Vertu fljótur, án þess að flýta þér. Forseti verður að vera fljótur að skera úr ágreiningi, vera ákveðinn, en gæta fullrar kurteisi í hvívetna, gagnvart öllum klúbbfélögum.

Margar hendur vinna létt verk

Page 21: Forsetafræðsla 2011

Haaa!!!

• Raddbeiting: Forsetinn á að tala þannig að allir heyri til hans. Það skiptir meira máli að tala skýrt og greinilega heldur en að tala hátt. Það verða allir að heyra hvert einasta orð.

Margar hendur vinna létt verk

Page 22: Forsetafræðsla 2011

Fundarsettning.

• Fundarsetning: Nákvæmlega á þeirri stundu, sem fundur á að hefjast ber forseti í fundarbjölluna og segir fund settan.

Margar hendur vinna létt verk

Page 23: Forsetafræðsla 2011

Fyrri hluti fundar: Á fyrri hluta Kiwanisfundar, er máltíðar neytt, menn ræða saman, mætingarkortum er safnað saman, gestir eru kynntir, fundargerð lesin og tilkynningar. Þessi hluti fundarins er algjörlega óformlegur. Þegar gestir eru kynntir, ætti að gera þeim ljóst, að ekki er ætlast til að þeir svari fyrir sig.

Fundir fyrri hluti

Margar hendur vinna létt verk

Page 24: Forsetafræðsla 2011

Fundir seinni hluti

• Síðari hluti fundar: Síðari hluti fundarins einkennist af því, að hann er í föstum skorðum, allt fer þar fram með virðuleik og ró. Það er svo forseti, eða einhver, sem hann til þess velur, sem kynnir ræðumanninn. Kynningin ætti ekki að vera það eitt að nefna nafn ræðumannsins. Segja skal frá manninum og því sem hann hefur gert. Gera skal ræðumanni grein fyrir lengd ræðu, td. 15 – 20 mínútur og leyfa annað eins í fyrirspurnir.

Margar hendur vinna létt verk

Page 25: Forsetafræðsla 2011

Fundarslit: Kiwanisfundir skulu að jafnaði ekki vera lengri en 2 tímar.

Það er forsetinn, sem á að þakka ræðumanni fyrir, eða formaður dagskrárnefndar.

Forseti tilkynnir síðan, að fundi sé slitið. Mjög vel fer á því að þakka ræðumanni fyrir með því að afhenda honum smágjöf.

Fundarslit

Margar hendur vinna létt verk

Page 26: Forsetafræðsla 2011

Fundarstjóri þarf að hafa í huga1. Að kunna góð skil á lögum klúbbsins.

2. Hann þarf að vera röggsamur og ákveðinn.

3. Hann skal vera reiðubúinn að athuga réttlátar ábendingar fundarmanna.

4. Hann verður að vera hlutlaus og tekur því ekki þátt í málflutningi. Sjái hann nauðsyn á að taka til máls, þá skal hann afhenda öðrum fundarstjórn á meðan.

5. Vegna hlutleysis, hafa margir þá reglu, sem fundarstjórar, að taka ekki þátt í opinni atkvæðagreiðslu.

6. Fundarstjóri getur ef ókyrrð er, þurft að beita verulegri ákveðni til að kveða niður læti eða skarkala, láti fundarmenn ekki segjast við tilmæli, hefur hann vald til að fresta fundi þar til kyrrð hefur komist á.

7. Setja fund á réttum tíma og passa að fundir séu almennt ekki lengri en 2 tímar. Ræðumenn hafi 15 – 20 mínútur og fyrirspurnir annað eins.

Margar hendur vinna létt verk

Page 27: Forsetafræðsla 2011

Ávörp á fundumÁvörp miðast við embætti og skulu vera í ákveðinni röð,

eins og sýnt er hér að neðan:

• Forseti viðkomandi klúbbs, eða fundarstjóri ef annar en forsetinn, er ávallt ávarpaður fyrst.

• Ef fundarstjóri stýrir fundi, þá er forseti ávarpaður í öðru ávarpi.

• Það nægir að forseti/fundarstjóri ávarpi gesti með virðingarheitum í upphafi fundar. Þeir sem á eftir koma þurfa þá aðeins að ávarpa forseta/fundarstjóra og síðan gesti og félaga.

• Ef einhver ambættismaður Kiwanis er fyrirlesari, er hann ávalt ávarpaður með embættistitli.

Margar hendur vinna létt verk

Page 28: Forsetafræðsla 2011

Ávörp á Kiwanisfundum:

1. Fundarstjóri/Forseti

2. Forseti

3. Umdæmisstjóri

4. Evrópuforseti

5. Kjörumdæmisstjóri

6. Fráfarandi umdæmisstjóri

7. Umdæmisritari

8. Umdæmisféhirðir

9. Svæðisstjóri

10.Aðrir embættismenn umdæmisins

11.Forsetar í öðrum klúbbum

12.Gestir

13.Kiwanisfélagar

Margar hendur vinna létt verk

Page 29: Forsetafræðsla 2011

Ítrekun!!!

• Það nægir að forseti/fundarstjóri ávarpi gesti með virðingarheitum í upphafi fundar. Þeir sem á eftir koma þurfa þá aðeins að ávarpa forseta/fundarstjóra og síðan gesti og félaga.

Margar hendur vinna létt verk

Page 30: Forsetafræðsla 2011

Svæðisstjóri framkvæmir stjórnarskipti. Svæðisstjóri tekur við stjórn fundarinns, en honum til aðstoðar er kjörsvæðisstjóri, sem nælir embættismerki í stjórnina. Framkvæmd stjórnarskipta á að vera virðuleg og hátíðleg stund.

Dagsetningar, tímasetning og stað fyrir innsetningu embættismanna þarf að ganga frá þegar fræðsla er haldin fyrir forseta klúbbanna, eða í síðasta lagi á Umdæmisþingi.

Svæðisstjóri þarf eftirfarandi upplýsingar minnst viku fyrir athöfnina:

a) Staðfesting á dagsetningu, tímasetningu og stað athafnarinnar.

b) Er þetta sérstakur atburður eða reglulegur fundur?

c) Er mökum boðið til fundarins?

d) Nöfn og staða allra fráfarandi stjórnarmanna og ebættismanna og hverjir verða viðstaddir.

Svæðisstjóri ráðfæri sig við forseta klúbbsins um uppröðun og framkvæmd stjórnarskiptanna. Það þarf að vera nægilegt pláss.

Stjórnarskipti

Margar hendur vinna létt verk

Page 31: Forsetafræðsla 2011

Keðjunotkun Allstaðar þar sem forseti kemur fram sem í nafni klúbbsins

Á fundum

Í heimsóknum í klúbba

Á svæðisráðstefnum og öðrum ráðstefnum

Á Afmælis- og Vigsluhátíðum og öðrum hátíðum

Við afhendingu gjafa.

Á Umdæmisþingi

Forseti skal taka keðju niður strax að athöfn lokinni

Margar hendur vinna létt verk

Page 32: Forsetafræðsla 2011

Bjöllunotkun

Setningu og slit funda

Frestun fundar og þegar fundi er fram haldið

Þegar tilkynnt er um ákvarðarnir t.d. um styrkveitingar og fjáraflanir

Niðurstöður atkvæðagreiðslu

Litla bjallan er notuð til að kalla til fundar og minna félaga á að hafa hljótt á fundi

Bjallan er notuð þegar forseti tilkynnir eitthvað, t.d.:

Margar hendur vinna létt verk

Page 33: Forsetafræðsla 2011

LEIÐBEININGAR

fyrir ræðumenn

Page 34: Forsetafræðsla 2011

Tíu boðorð ræðumanns:

Fyrsta: Byrjaðu ekki ræðu á afsökunumAnnað: Notaðu ekki tölur í óhófiÞriðja: Vertu ekki of tilfinningasamurFjórða: Íktu ekkiFimmta: Vertu ekki kaldhæðinn eða ófyrirleitinSjötta: Vertu ekki leiðinlegurSjöunda: Misþyrmdu ekki móðurmáli þínuÁttunda: Haltu þig við kjarna málsinsNíunda: Eyddu ekki tíma áheyrenda að óþörfuTíunda: Vertu ekki of háfleigur

Page 35: Forsetafræðsla 2011

Forðast ber:

1. Að hafa hendur í vösum2. Að hringla í peningum eða lyklum3. Að róa fram og aftur4. Að klóra sér í höfðinu5. Að leika sér með penna eða aðra hluti6. Að taka sífellt ofan gleraugun7. Að meðhöndla ræðublöðin í tíma og ótíma

Umfram allt verið eðlileg

Page 36: Forsetafræðsla 2011

Hvatning:

1. Gangið að ræðupúltinu ákveðnum öruggum skrefum.2. Beinið þunga líkamans á annan fótinn í einu og skiptið þannig stöðu í

ræðustólnum, fremur en að standa stöðugt í báða fætur.3. Hefjið aldrei flutning ræðu strax og þið komið í ræðustólinn. Bíðið þar til

hlustendur eru tilbúnir að hlusta.4. Í upphafi ræðu er gott að byrja á því að horfa yfir hlustendahópinn og

horfast í augu við flesta viðstadda.5. Þegar þið snúið ykkur í eina átt í salnum, þá talið beint til hlustenda í

þeim hluta salarins.6. Náið trúnaði hlustenda þegar í upphafi með því að sýna að þið séuð

einn af þeim.7. Beitið raddbreytingu, þegar efnið krefst þess.

Takmark hvers ræðumanns er að breyta áhorfendum í áheyrendur

Page 37: Forsetafræðsla 2011

Upphaf og endir ræðu:

Hvernig byrja skal ræðu:• Persónuleg smáskrítla, vísa,

málsháttur eða þín eigin reynsla, í stuttu máli.

• Berðu fram spurningu, næstu setningar gefa þér tilefni til að svara eigin spurningu.

• Berðu fram athyglisverða staðhæfingu, sem getur ýtt við áheyrendum.

• Gerðu eitthvað, einhverja athöfn og skýrðu svo frá hversvegna.

Hvernig enda skal ræðu:1. Samantekt. - Umfram allt ekki

þreytandi endurtekning. 2. Tillaga. - Segðu áheyrendum

þínum nákvæmlega til hvers þú ætlast af þeim.

3. Gerðu tilboð.4. Farðu fram á aðgerðir.5. Ljúktu ræðunni á þeim tíma sem

þú lofaðir.

Upphaf og endir ræðu er sá hluti ræðunnar sem áheyrendur muna helst.

Fyrstu orðin ættu því að miðast við að ná tökum á áheyrendum.

Page 38: Forsetafræðsla 2011

Frábær klúbbur.

Margar hendur vinna létt verk

Page 39: Forsetafræðsla 2011

Frábær klúbbur

Margar hendur vinna létt verk

Frábær klúbbur kemur á framfæri metnaðarfullri fræðslu og reynslu til allra klúbbfélaga. Með því að segja frá jákvæðri klúbbreynslu, fræðslu og hvatningu, tekur þú mikilvæg skref til að viðhalda krafti og styrk til að fjölga í Kiwanis. Þú getur hjálpað klúbbnum þínum og félögum með því að segja frá þinni klúbbreynslu. Það er á ábyrgð félaga klúbbsins að gera klúbbinn sterkari og betri.  Þetta er ekki próf, þú munt ekki falla - aðeins könnun til að sjá hvað megi betur fara í klúbbnum þínum.

Page 40: Forsetafræðsla 2011

0 = aldrei 1 = sjaldan 2 = stöku sinnum 3 = oft 4 = alltaf

• Fjölgun félaga:• _____ Það er virk fjölgunarnefnd í klúbbnum.• _____ Það er farið í fjölgunarherferð einu sinni á ári. • _____ Klúbburinn setur sér markmið um raun fjölgun • _____ Nýjir félagar eru hvattir til að bjóða vinum sínum til að ganga til

liðs við klúbbinn. _____ Félagar sem eru meðmælendur með nýjum félögum, fá

viðurkenningu fyrir. • _____ Gestir eru alltaf boðnir velkomnir og kynntir á klúbbfundum.• _____ Nýjir félagar eru teknir inn í klúbbinn á virðulegan hátt.

• _____ Nýjir félagar eru teknir í fræðslu um Kiwanis.

Margar hendur vinna létt verk

Page 41: Forsetafræðsla 2011

0 = aldrei 1 = sjaldan 2 = stöku sinnum 3 = oft 4 = alltaf

• Þjónusta í byggðarlaginu:• _____ Klúbburinn gerir könnun á þörf fyrir þjónustu í samfélaginu amk.

annað hvert ár. • _____ Klúbburinn veitir félögum viðurkenningu fyrir þátttöku í

verkefnum.• _____ Flestir klúbbfélagar taka þátt í verkefnum á vegum klúbbsins.• _____ Hugmyndir um ný verkefni eru oft ræddar innan klúbbsins.

Margar hendur vinna létt verk

Page 42: Forsetafræðsla 2011

0 = aldrei 1 = sjaldan 2 = stöku sinnum 3 = oft 4 = alltaf

• Samskipti og markaðssetning:• _____ Klúbburinn okkar er með virka almannatengslanefnd. • _____ Frásögnum af verkefnum fyrir börn er komið til fjölmiðla. • _____ Frásögnum af verkefnum okkar er reglulega gerð skil í fjölmiðlum. • _____ Félagar eru vel merktir þegar unnið er að verkefnum fyrir Kiwanis.

• _____ Merki Kiwanis er sýnilegt þegar unnið er að fjáröflunum og verkefnum.

• _____ Félagar eru duglegir við að kynna öðrum Kiwanis. • _____ Klúbburinn er með vefsíðu sem er uppfærð reglulega.

Margar hendur vinna létt verk

Page 43: Forsetafræðsla 2011

0 = aldrei 1 = sjaldan 2 = stöku sinnum 3 = oft 4 = alltaf

• Fræðsla og reynsla félaga: • _____ Klúbburinn sendir verðandi embættismenn í fræðslu.• _____ Klúbburinn sendir fulltrúa á umdæmisþing á hverju ári. • _____ Fundir í klúbbnum eru skemmtilegir, skipulagðir og árangursríkir.• _____ Væntingar eru til þess að klúbburinn sé fyrirmyndarklúbbur á

hverju ári. • _____ Klúbburinn gefur út félagatal sem innheldur dagskrá starfsársin

• _____ Klúbburinn stendur fyrir skemmtunum fyrir félaga, fjölskyldu og gesti á hverju ári.

• Stig samtals :

Margar hendur vinna létt verk

Page 44: Forsetafræðsla 2011

Mat á frábærum klúbb. • Niðurstöður:• Það sem er svo gott við Kiwanis er að klúbbarnir eru með mismunandi

verkefni og menningu. Markmiðin eru þau sömu fyrir alla Kiwanis fjölskylduna - að bjóða fram frábæra þjónustu í samfélagi okkar og mun sú reynslu verða þess valdandi að nýjir félagar ganga til liðs við okkur. Notið niðurstöður úr þessari könnun til að búa til eins til þriggja ára stefnumótun til hagsbóta fyrir klúbbinn ykkar.

• • • Niðurstöður stiga:• Ertu með 80 stig eða meira? Til hamingju. Klúbburinn er mjög góður,

starfið er gott og haldið áfram á sömu braut. Fagnið árangrinum og finnið leiðir til að gera góðan klúbb betri.

Margar hendur vinna létt verk

Page 45: Forsetafræðsla 2011

• Ertu með 60 til 80 stig? Vel gert. Byggið á þeim styrkleika sem þið hafið í klúbbnum. Ef þið eruð ekki örugg með hvar á að byrja, byrjið á klúbbfundum. Upplifun gesta af fyrsta fundi segir allt. Ef fundur er ekki skemmtilegur hugsar gesturinn sig tvisvar um áður en hann kemur aftur. Skoðaðu þá liði sem þú svaraðir með 1, 2 eða 3 og sjáðu hvort þú getir bætt þá.

• • Eru stigin þín færri en 60? Þakka þér fyrir að vera heiðarlegur. Fyrsta

skrefið er að viðurkenna að breytinga er þörf. Hvar byrjar þú? Áður en gesti er boðið á fund, ræðið hvernig hægt er að gera fundinn áhugaverðari. Farið í innri greiningu og stefnumótum og árangurinn mun ekki á sér standa.

Margar hendur vinna létt verk

Page 46: Forsetafræðsla 2011

Takk fyrir.

• Allt efnið sem farið var yfir á þessari fræðslu er aðgengilegt inn á Kiwanis.is

Margar hendur vinna létt verk

Fræðsluefni.

Page 47: Forsetafræðsla 2011

Umdæmisstjórnarfundir 2011-2012

• 25. september 2011 Hornafjörður• 26.nóvember 2011 Reykjavík • 17. mars 2012 Reykjavík• 14. september 2012 Reykjanesbær

Margar hendur vinna létt verk