kynningarfundur - 16. nóvember 2013

36
Kynningarfundur - 16. nóvember 2013 13.06.22 1 Borgaraleg ferming 2014 Uppbyggileg fræðsla – hátíðleg athöfn

Upload: leroy

Post on 13-Jan-2016

41 views

Category:

Documents


4 download

DESCRIPTION

Borgaraleg ferming 2014 Uppbyggileg fræðsla – hátíðleg athöfn. Kynningarfundur - 16. nóvember 2013. Efni kynningarfundar. Bakgrunnur Hver er kynnirinn, Hope Knútsson? Saga Borgaralegrar fermingar á Íslandi. Hvað er borgaraleg ferming? Hvað er Siðmennt? Undirbúningsnámskeiðið. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Kynningarfundur - 16. nóvember 2013

21.04.23 1

Borgaraleg ferming 2014 Uppbyggileg fræðsla – hátíðleg athöfn

Page 2: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Efni kynningarfundar1. Bakgrunnur

• Hver er kynnirinn, Hope Knútsson?• Saga Borgaralegrar fermingar á Íslandi.

2. Hvað er borgaraleg ferming?3. Hvað er Siðmennt?4. Undirbúningsnámskeiðið.5. Hátíðleg athöfn – kynningarmyndband.6. Hagnýtar upplýsingar – kostnaður o.fl.7. Upplýsingaskil - fylla út eyðublað vegna námskeiðs.

21.04.23 2

Page 3: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Bakgrunnur – hver er Hope KnútssonHope Knútsson frá New York borg.Hef búið á Íslandi síðan 1974.Iðjuþjálfi að mennt.Er ekki kristin, hef aldrei verið kristin.Þegar börnin mín nálguðust fermingaraldur ræddum við um

valkosti.

21.04.23 3

Page 4: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Bakgrunnur – Hope kannar máliðHafði lesið um borgaralega fermingu annars staðar.Var haldin á öllum Norðurlöndunum

- byrjaði í Danmörku 1914, í Noregi 1951.Er líka víða annars staðar í Evrópu.Aflaði upplýsinga erlendis frá.

21.04.23 4

Page 5: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Bakgrunnur - fyrsti hópurinnSkrifaði í dagblöðin 1988.Börnin mín fyrstu Íslendingarnir í BF.Spurði hvort það væru fleiri.16 fjölskyldur vildu vera með.Unglingar allt að 15-16-17 ára.

21.04.23 5

Page 6: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Bakgrunnur – af litlu fræi vex oft stórt tréBjuggum til nefnd og settum saman námskeið.Hermdum eftir Norðmönnum - höfum verið að þróa námskeiðið

síðan.Ætlaði að gera þetta einu sinni, en er hreinlega orðið að

ævistarfi.Erum að fara af stað núna í tuttugasta og sjötta skiptið.Síðan 1989 hafa nú tæplega 2000 íslensk börn fermst

borgaralega.Um 25.000 manns verið viðstaddir þessar athafnir.

21.04.23 6

Page 7: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Bakgrunnur – í hinu stóra samhengiÍslenskt samfélag er fjölmenningarlegt.Hér búa um 20.000 manns sem eru fæddir annars staðar.Það eru ekki lengur allir eins. Um 20% þjóðarinnar „trúa ekki”

á æðri mátt samkvæmt könnun árið 2004. Bráðnauðsynlegt í öllum samfélögum að hafa val.Kjörorð okkar – það er allt í lagi að vera öðruvísi!

21.04.23 7

Page 8: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Hvað er borgaraleg ferming? (1)Valkostur við kristilega fermingu.Fyrir unglinga sem eru ekki reiðubúnir til að strengja trúarheit.Sum eru annarrar trúar eða trúa á guð á sinn hátt.Önnur eru ekki trúuð.Eða hafa af einhverjum ástæðum ekki áhuga á kristilegri

fermingu, en vilja samt halda upp á þessi tímamót í lífinu.

21.04.23 8

Page 9: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Hvað er borgaraleg ferming? (2)Fermingabörnin sækja vandað námskeið þar sem þau læra

ýmislegt sem er góður undirbúningur fyrir það að verða fullorðin með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgir.

Boðskapur: að efla heilbrigt og farsælt viðhorf unglinganna til lífsins.

Lögð áhersla á umburðarlyndi, gagnrýna hugsun, siðfræði, mannleg samskipti og ábyrgð einstaklingsins í nútíma þjóðfélagi.

Snýst ekki um trúarbrögð og er óháð trúarbrögðum.Ekkert kennt á námskeiðinu sem er andstætt kirkjunni.

21.04.23 9

Page 10: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Af hverju orðið ferming? (1)Er ekki upphaflega íslenskt orð.Dregið af latneska orðinu confirmare sem þýðir að styðja eða

að styrkjast.Í alþjóðlegum orðabókum er orðið confirmare skilgreint á 7

mismunandi vegu.Trúarleg skilgreining er aðeins ein af 7 og ekki sú sem fyrst er

upp talin.Ungmenni sem fermast borgaralega eru einmitt að styrkjast í

þeirri ákvörðun að verða ábyrgir borgarar.

21.04.23 10

Page 11: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Af hverju orðið ferming? (2)Gott að hafa í huga að engin getur haft einkaleyfi á orði. Kristnir

menn eiga ekki orðið ferming.Íslendingar nota rammheiðið orð jól frekar en kristsmessa.

Þegar kristnir menn á Íslandi hætta að nota orðið jól, þá munum við e.t.v. endurskoða nafnið borgaraleg ferming.

Okkur finnst sjálfsagt að nota orðið ferming því að annars staðar þar sem þessi valkostur er fyrir hendi, er hann oftast kallaður borgaraleg ferming.

Þess má geta að árið 2007 breyttu Norðmenn nafninu á borgaralegri fermingu í húmanísk ferming, eftir 56 ára notkun en héldu þó orðinu ferming.

21.04.23 11

Page 12: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Hvað er Siðmennt? (1)Félag siðrænna húmanista á Íslandi - stofnað 1990.Er skráð lífsskoðunarfélag (frá og með 3. maí s.l.) sem hefur

siðferði og skynsemi að leiðarljósi. Lífsskoðunarfélag er félag sem fjallar um: Siðferði, t.d. breytni einstaklinga eða siðferðileg álitamál.

Mannvirðing, velvilji, frelsi og samábyrgð eru meðal áherslna. Þekkingarfræði, þ.e. Hvernig öflum við haldbærrar þekkingar?

Hvað er hlutlægni, huglægni o.s.frv.? Félagslegar athafnir fjölskyldna, sbr. borgaralega fermingu,

veraldlega giftingu, nafngjöf og útför.

21.04.23 12

Page 13: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Hvað er Siðmennt? (2) Félagið er málsvari manngildisstefnu (húmanisma) og

frjálsrar hugsunar, óháð trúarsetningum. Býður upp á veraldlegar, félagslegar athafnir á mikilvægum

tímamótum í lífi fólks.Í maí 2008 setti félagið á fót athafnaþjónustu fyrir nafngjafir,

giftingar og útfarir og hafa tæplega 180 slíkar athafnir farið fram.Siðmennt er með 19 athafnarstjóra sem stýra athöfnum á

veraldlegan máta með húmaníska lífssýn að leiðarljósi.

21.04.23 13

Page 14: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Hvað er Siðmennt? (3) Siðmennt styður siðferði sem byggir á manngildi og

mannvirðingu. Siðmennt vill fjölbreytt, opið, víðsýnt, lýðræðislegt

og veraldlegt samfélag. Vinnur að fullu trúfrelsi og aðskilnaði ríkis og kirkju. Telur að hið opinbera eigi ekki að skrá trúar-og

lífsskoðanir fólks. Styður veraldlegt skólahald þar sem börnum er ekki

mismunað vegna trúar- eða lífsskoðana foreldra. Stendur vörð um grundvallarmannréttindi. Er rödd skynseminnar og gagnrýninnar hugsunar.

21.04.23 14

Page 15: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Aðeins nánar um aðrar athafnir félagsinsNafngjöf – Hugvekja og ávarp til foreldra ásamt formlegri

nafngjöf með innilegum og persónulegum blæ.. Felur ekki í sér vígslu eða inngöngu í félag/söfnuð og því fær

barnið að ákveða sjálft sína lífsskoðun og félagsaðild þegar það kemst á sjálfræðisaldur.

Gifting – Falleg, hátíðleg, innileg, hlý, gleðileg og persónuleg athöfn fyrir alla óháð lífsskoðun eða kynhneigð.

Útför – Kveðjuathöfn eftir óskum hins látna. Persónuleg og virðuleg athöfn.

21.04.23 15

Page 16: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Borgaraleg fermingarnámskeið SiðmenntarUmsjónarkennari Siðmenntar, Jóhann Björnsson

heimspekingur og grunnskólakennari, mun segja nánar frá tilhögun næsta námskeiðs.

Efnisflokkar námskeiðsins, hvar og hvenær.Þess má geta að Jóhann er einstaklega skilningsríkur,

sveigjanlegur, og skemmtilegur maður!Nú tekur Jóhann við.

21.04.23 16

Page 17: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

17

Staðsetning – Kvennaskólinn

21.04.23 17

Page 18: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

18

Staðsetning – Kvennaskólinn

21.04.23 18

Page 19: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

19

Staðsetning – Réttarholtsskóli

21.04.23 19

Page 20: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

20

Staðsetning – Réttarholtsskóli

21.04.23 20

Page 21: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Fermingarathafnir Siðmenntar 2014Dagsetningar: Tvær athafnir verða haldnar í stóra sal Háskólabíós sunnudaginn 6.

apríl fyrir börn í Reykjavík, Mosfellsbæ og af landsbyggðinni þar sem ekki eru nógu margir til að halda sér athöfn. Fyrri athöfnin verður kl.11:00 og seinni athöfnin kl.13:30.

Tvær athafnir í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 27. apríl fyrir börn úr Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Álftanesi og Suðurnesjum. (kl. 11 og 13:30).

Æfingar fara fram daginn áður þ.e. laugardaginn 5. apríl í Háskólabíói og 26. apríl í Salnum.

Athöfn á Flúðum laugardaginn 5. apríl.Athöfn á Höfn í Hornafirði laugardaginn 12. apríl.Akureyrarathöfn í Hofi laugardaginn 7. júni kl.14:00. Athöfn í Hallormsstaðarskógi í lok júní – dagsetning enn óákveðin.

21.04.23 21

Page 22: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

2222

Fermingarathafnir á höfuðborgarsvæðinuUnglingunum verður skipt í fyrri og seinni athöfn útfrá því

námskeiði sem þau taka þátt í.Meginreglan er: fermingarbörn sem eru í mánudags-,

þriðjudags- og helgarnámskeiðum verða í fyrri athöfninni.Fermingarbörn sem eru í miðvikudags, fimmtudags-og

föstudagsnámskeiðum verða í seinni athöfninni.Við reynum að koma til móts við séróskir fólks en vegna

stærðar hópsins er það ekki alltaf hægt.Möguleiki er á þriðju athöfninni í Háskólabíói og Salnum ef

fjöldi gefur tilefni til!

21.04.23

Page 23: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

FermingarathöfninEftir nokkrar mínútur verður sýnt stutt myndband frá

fermingarathöfnunum vorið 2013 til að gefa ykkur hugmynd um hversu hátíðleg, falleg, þjóðleg og skemmtileg athöfnin er!

Þar koma fram einn utanaðkomandi ræðumaður og nokkur fermingarbörn sem flytja stutt ávörp, lesa ljóð, spila á hljóðfæri, syngja eða dansa.

Einungis koma fram þau fermingarbörn sem hafa áhuga á því. Enginn er þvingaður!

21.04.23 23

Page 24: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

2424

Fermingarathöfnin Í lokin fá fermingarbörnin skrautskrifað skjal til staðfestingar á

því að viðkomandi hafi sótt námskeiðið til undirbúnings borgaralegri fermingu.

Athöfnin tekur um eina klukkustund.Hópmyndataka (í Rvk og Kóp) fer fram strax að lokinni athöfn

og tekur ca. 20 mínutur.

21.04.23

Page 25: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

FermingarskjaliðTextinn á fermingarskjalinu:

„Það er von okkar að þú munir færa þér í nyt þá fræðslu og leiðsögn sem þú hefur fengið og verðir víðsýn og heilsteypt manneskja. Vertu velkomin(n) í hóp hinna fullorðnu með þeirri ábyrgð sem því fylgir“.

21.04.23 25

Page 26: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Skipulag athafnarinnar Er í höndum stjórnarmanna og athafnarstjóra Siðmenntar. Spurningar verða sendar út með tölvupósti eftir áramót til allra

fjölskyldna. Spurt er um tillögur um ræðumenn og hvaða börn hafa áhuga á að koma fram. Bráðnauðsynlegt er að svara spurningunum þar sem athafnirnar eru byggðar á upplýsingum úr þeim.

Í mars verður kannað hverjir vilja panta hópmynd og/eða DVD. Hópmynd og DVD eru EKKI innifalin í verði námskeiðsins eða athafnarinnar.

21.04.23 26

Page 27: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

UpplýsingamiðlunÁ næstu dögum fáið þið senda þessa upplýsinga-glærusýningu

en hún nýtist bæði þeim sem mættu á kynningarfundinn ásamt þeim sem komust ekki.

Óákveðnir eru beðnir um að láta Hope vita sem fyrst um hvort þau verða með eða ekki, því við verðum að raða fermingarbörnunum á námskeiðin í byrjun desember. Stórt púsluspil fyrir okkur!

Upplýsingar um hver er í hvaða námskeiði og hvenær og hvar á að mæta verða sendar út fyrir miðjan desember.

21.04.23 27

Page 28: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

28

Upplýsingamiðlun - tölvupóstsendingarUpplýsingamiðlun til BF foreldra fer aðallega fram í gegnum

tölvupóst, en eins og gerist oft geta slíkir póstar lent í ruslmöppum (spam folders) hjá fólki. Vinsamlegast skoðið því ruslmöppuna reglulega svo þið missið ekki af neinu.

Kynningarfundarboð var t.d. sent með tölvupósti nýlega. Endilega látið okkur vita ef þið hafið ekki fengið það!

Hjálpar að setja t.d. [email protected] í addressubókina ykkar.

21.04.23 28

Page 29: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Kostnaður og greiðslufyrirkomulag...Fermingarnámskeiðið kostar kr. 25.000 og athöfnin

kr. 11.000.Bæði námskeiðsgjaldið og athafnargjaldið verður

rukkað saman í einu þátttökugjaldi samtals kr. 36.000.

Gjalddagi er 13. desember og eindagi 4. janúar. Gjalddagi fyrir fólk með börn í Akureyrar

prógramminu er 1. febrúar og eindagi 15. febrúar.Þátttökugjaldið þarf að greiða áður en námskeiðin

byrja.

21.04.23 29

Page 30: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

30

AfslættirSystkinaafsláttur (systkin sem eru í BF á sama tíma) er

20%.Afsláttur félaga (foreldra) sem eru skráð í Siðmennt

eru eftirfarandi:Kr. 5.000 afsláttur ef eitt foreldri er í Siðmennt.Kr. 10.000 afsláttur ef báðir foreldrar eru félagar.

Siðmennt er nýorðið aðili að Frístundakortinu. Þið þurfið að láta okkur vita ef þið viljið nota Frístundakort upp í fermingargjaldið.

21.04.23

Page 31: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

31

Kostnaður og greiðslufyrirkomulag...Um mánaðarmótin nóv/des fær foreldri kröfu fyrir

heildargjaldi í heimabanka.Hægt er að fá sendan greiðsluseðil heim hafi foreldri ekki

heimabanka, en það þarf að biðja sérstaklega um það. Vegna aukakostnaðar við greiðsluseðil bætast kr. 300 á hann. Vinsamlegast látið okkur vita ef þið viljið slíkt.

Hægt er að semja við gjaldkera um greiðsludreifingu yfir 2-3 mánuði: t.d. fyrsta innborgun 13. des. (þ.e. 12 þús. í des.-> 12 þús. í jan -> 12 þús. í feb).

Einnig er hægt að setja greiðsluna á raðgreiðslur í gegnum greiðslukort.

Félagsmálayfirvöld hafa hjálpað í sumum tilvikum.

21.04.23 31

Page 32: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

32

Ef barn hættir við - endurgreiðslaHætti barn við þátttöku er endurgreitt að fullu sé látið vita

fyrir lok sunnudags fyrstu kennsluviku (12. janúar), en eftir það er haldið eftir kr. 3.000 í umsýslugjald.

Engin endurgreiðsla (nema kr. 11.000 vegna athafnar) fæst hætti barn að loknum helmingi námskeiðs eða meira.

Láta skal vita með því að senda netpóst til [email protected] eða hringja í:

Hope Knútsson umsjónarmann (s: 557-3734, 694-7486),Jóhann Björnsson kennslustjóra (s: 844-9211) eða Steinar Harðarson gjaldkera (s: 891-7600).

21.04.23 32

Page 33: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

33

Hjálpum Siðmennt að vaxa:Fólk þarf alls ekki að vera félagi í Siðmennt til þess að nota þjónustu okkar.Ef þú styður málstað og verkefni Siðmenntar og vilt gerast félagi og fá

afslátt á athöfnum okkar, erum við með skráningarblöð frá Þjóðskrá Íslands hér i dag, sem þið getið fyllt út.

Við munum þá skila blöðunum inn fyrir ykkur. Þeir sem skrá sig í Siðmennt hjá þjóðskrá þurfa ekki að greiða félagsgjöld

þar sem „sóknargöldin“ renna þá til félagsins. En þeir sem vilja styrkja starfsemi félagsins sérstaklega geta greitt félagsgjöld sem nú eru 2.200 - 4.400 á ári.

21.04.23

Page 34: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

Val á námskeiði – fylla út eyðublöðÞið hafið fengið eyðublöð til að velja námskeið. ATHUGIÐ – Ef búið er að fylla út skráningarform á vef Siðmenntar er

bara þörf á því að fylla út “Val á námskeiði” eyðublaðið.Ef þið hafið ekki haft samband við okkur fyrr en í dag: þá þarf að

fylla út annað aðskilið eyðublað fyrir skráningu í borgaralega fermingu.

Mjög mikilvægt er að merkja við þau námskeið sem henta best (fyrsta, annað og þriðja val) og einnig daga/tíma sem passa alls ekki.

21.04.23 34

Page 35: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013

35

Aðgangur að þessum upplýsingumÞessi Power Point sýning verður sett á

vefsíðuna okkar á næstu dögum þannig að þið hafið aðgang að henni þar.

21.04.23

Page 36: Kynningarfundur  -  16. nóvember 2013