kynningarfundur 12. nóvember 2011

27
Kynningarfundur 12. nóvember 2011 10.06.22 1 Borgaraleg ferming 2012

Upload: lamar

Post on 15-Jan-2016

58 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Borgaraleg ferming 2012. Kynningarfundur 12. nóvember 2011. Efni kynningarfundar. Bakgrunnur Hver er kynnirinn, Hope Knútsson? Saga Borgaralegrar fermingar á Íslandi. Hvað er borgaraleg ferming? Hvað er Siðmennt? Undirbúningsnámskeiðið. Hátíðleg athöfn – kynningarmyndband. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Kynningarfundur

12. nóvember 2011

21.04.23 1

Borgaraleg ferming 2012

Page 2: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Efni kynningarfundar1. Bakgrunnur

• Hver er kynnirinn, Hope Knútsson?• Saga Borgaralegrar fermingar á Íslandi.

2. Hvað er borgaraleg ferming?3. Hvað er Siðmennt?4. Undirbúningsnámskeiðið.5. Hátíðleg athöfn – kynningarmyndband.6. Hagnýtar upplýsingar – kostnaður o.fl.7. Upplýsingaskil - fylla út eyðublað vegna námskeiðs.

21.04.23 2

Page 3: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Bakgrunnur – hver er Hope KnútssonHope Knútsson frá New York borg.Hef búið á Íslandi síðan 1974.Iðjuþjálfi að mennt.Er ekki kristin, hef aldrei verið kristin.Þegar börnin mín nálguðust fermingaraldur ræddum við

um valkosti.

21.04.23 3

Page 4: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Bakgrunnur – Hope kannar máliðHafði lesið um borgaralega fermingu annars staðar.Var haldin á öllum Norðurlöndunum

- byrjaði í Danmörku 1914, í Noregi 1951.Er líka víða annars staðar í Evrópu.Aflaði upplýsinga erlendis frá.

21.04.23 4

Page 5: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Bakgrunnur - fyrsti hópurinnSkrifaði í dagblöðin 1988.Börnin mín fyrstu íslendingarnir í BF.Spurði hvort það væru fleiri.16 fjölskyldur vildu vera með.Unglingar allt að 15-16-17 ára.

21.04.23 5

Page 6: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Bakgrunnur – af litlu fræi vex oft stórt tréBjuggum til nefnd og settum saman námskeið.Hermdum eftir Norðmönnum - höfum verið að þróa

námskeiðið síðan.Ætlaði að gera þetta einu sinni, en virðist ætla að verða að

ævistarfi.Erum að fara af stað núna í tuttugasta og fjórða skiptið.Síðan 1989 hafa nú tæplega 1600 íslensk börn fermst

borgaralega.Um 21.000 manns verið viðstaddir þessar athafnir.

21.04.23 6

Page 7: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Bakgrunnur – í hinu stóra samhengiÍslenskt samfélag er fjölmenningarlegt.Hér búa um 20.000 manns sem eru fæddir annars staðar.Það eru ekki lengur allir eins. Um 20% þjóðarinnar „trúa

ekki” á æðri mátt samkvæmt könnun árið 2004. Bráðnauðsynlegt í öllum samfélögum að hafa val.Kjörorð okkar – það er allt í lagi að vera öðruvísi!

21.04.23 7

Page 8: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Hvað er borgaraleg ferming? (1)Valkostur við kristilega fermingu.Fyrir unglinga sem eru ekki reiðubúnir til að strengja

trúarheit.Sum eru annarrar trúar eða trúa á guð á sinn hátt.Önnur eru ekki trúuð.Eða hafa af einhverjum ástæðum ekki áhuga á kristilegri

fermingu, en vilja samt halda upp á þessi tímamót í lífinu.

21.04.23 8

Page 9: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Hvað er borgaraleg ferming? (2)Fermingabörnin sækja vandað námskeið þar sem þau

læra ýmislegt sem er góður undirbúningur fyrir það að verða fullorðin með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja.

Boðskapur: að efla heilbrigt og farsælt viðhorf unglinganna til lífsins.

Lögð áhersla á umburðarlyndi, gagnrýna hugsun, siðfræði, mannleg samskipti og ábyrgð einstaklingsins í nútíma þjóðfélagi.

Snýst ekki um trúarbrögð og er óháð trúarbrögðum.Ekkert kennt á námskeiðinu sem er andstætt kirkjunni.

21.04.23 9

Page 10: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Af hverju orðið ferming? (1)Er ekki upphaflega íslenskt orð.Dregið af latneska orðinu confirmare sem þýðir að

styðja eða að styrkjast.Í alþjóðlegum orðabókum er orðið confirmare

skilgreint á 7 mismunandi vegu.Trúarleg skilgreining er aðeins ein af 7 og ekki sú sem

fyrst er upp talin.Ungmenni sem fermast borgaralega eru einmitt að

styrkjast í þeirri ákvörðun að verða ábyrgir borgarar.

21.04.23 10

Page 11: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Af hverju orðið ferming? (2)Gott að hafa í huga að engin getur haft einkaleyfi á orði.

Kristnir menn eiga ekki orðið ferming.Íslendingar nota rammheiðið orð jól frekar en kristsmessa. Þegar kristnir menn á Íslandi hætta að nota orðið jól, þá

munum við e.t.v. endurskoða nafnið borgaraleg ferming.Okkur finnst sjálfsagt að nota orðið ferming því að annars

staðar þar sem þessi valkostur er fyrir hendi, heitir það oftast borgaraleg ferming.

Þess má geta að Norðmenn árið 2007, skiptu út lýsingarorðinu við nafn athafnarinnar eftir 56 ár, í húmanísk ferming í stað borgaralegrar fermingar, en þeir halda orðinu ferming.

21.04.23 11

Page 12: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Hvað er Siðmennt? (1)Félag siðrænna húmanista á Íslandi - stofnað 1990.Lífsskoðunarfélag sem hefur siðferði og skynsemi að leiðarljósi.

Lífsskoðunarfélag er félag sem fjallar um: Siðferði, t.d. breytni einstaklinga eða siðferðileg álitamál.

Mannvirðing, velvilji, frelsi og samábyrgð eru meðal áherslna. Þekkingarfræði, þ.e. Hvernig öflum við haldbærrar þekkingar?

Hvað er hlutlægni, huglægni, skynjun o.s.frv.? Félagslegar athafnir fjölskyldna, sbr. borgaralega fermingu

Félagið er málsvari manngildisstefnu (húmanisma) og frjálsrar hugsunar, óháð trúarsetningum og stendur fyrir veraldlegum athöfnum á mikilvægum tímamótum í lífi fólks.

21.04.23 12

Page 13: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Hvað er Siðmennt? (2) Helstu verkefniFélagslegar athafnir fjölskyldna –

„tímamótaathafnir”.Þann 29. maí 2008 (jarðskjálftadaginn) setti félagið á fót

athafnaþjónustu fyrir nafngjafir, giftingar og útfarir.Á vegum hennar starfa 11 athafnarstjórar sem stýra

athöfnum á veraldlegan máta með húmaníska lífssýn að leiðarljósi.

Umsjónarmaður Athafnaþjónustu Siðmenntar er Svanur Sigurbjörnsson. Panta má athöfn á vefsíðu Siðmenntar.

21.04.23 13

Page 14: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Hvað er Siðmennt? (3) Helstu verkefni ... frh.

Barátta fyrir raunverulegu trúfrelsi/sannfæringarfrelsi. jöfn réttindi og staða ólíkra lífsskoðunarfélaga. aðskilnaður ríkis og kirkju, veraldlegt skólahald þar sem börnum er ekki mismunað

vegna trúar eða lífsskoðana foreldra.

Barátta fyrir mannréttindum almennt.

21.04.23 14

Page 15: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Aðeins nánar um aðrar athafnir félagsinsÚtför – persónuleg athöfn með heimspekilegri hugvekju

athafnarstjóra og minningarorðum. Nafngjöf – hugvekja og ávarp til foreldra ásamt formlegri

nafngjöf með innilegum og persónulegum blæ. Felur ekki í sér vígslu eða inngöngu í félag/söfnuð og því fær

barnið að ákveða sjálft sína lífsskoðun og félagsaðild þegar það kemst á sjálfræðisaldur.

Gifting – Innileg, hlý og persónuleg athöfn með gleðilegu yfirbragði. Athafnarstjóri fer með hugvekju og ávarp til parsins áður en þau fara með heityrði sín.

21.04.23 15

Page 16: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Borgaraleg fermingarnámskeið SiðmenntarUmsjónarkennari Siðmenntar, Jóhann Björnsson

heimspekingur og grunnskólakennari mun segja nánar frá tilhögun næsta námskeiðs.

Efnisflokkar námskeiðsins, hvar og hvenær.Þess má geta að Jóhann er einstaklega skilningsríkur,

sveigjanlegur, og skemmtilegur maður!

21.04.23 16

Page 17: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Fermingarathafnir SiðmenntarDagsetningar: Tvær athafnir verða haldnar í stóra sal

Háskólabíós sunnudaginn 15. apríl 2012 fyrir börn í Reykjavík, Mosfellsbæ og af landsbyggðin þar sem eru ekki nógu margir til að halda sér athöfn.

Fyrri athöfnin verður kl.11:00 og seinni athöfnin kl.14:00.Ein eða jafnvel tvær athafnir í Salnum í Kópavogi sunnudaginn

22. apríl 2012 fyrir börn úr Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Álftanesi og Suðurnesjum. (kl. 11 og 13:30).

Æfingarnar fara fram daginn áður þ.e. laugardaginn 14. apríl í Háskólabíói og 21. apríl í Salnum.

Akureyrarathöfn í Hofi sunnudaginn 13. maí 2012Unglingunum verður skipt í fyrri og seinni athöfn útfrá því

námskeiði sem þau taka þátt í.

21.04.23 17

Page 18: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

FermingarathöfninEftir nokkrar mínútur verður sýnt stutt myndband frá

fermingarathöfnunum vorið 2011 til að gefa ykkur hugmynd um hversu hátíðleg, falleg, þjóðleg og skemmtileg athöfnin er!

Þar koma fram einn utanaðkomandi ræðumaður og nokkur fermingarbörn sem flytja stutt ávörp, lesa ljóð, spila á hljóðfæri, syngja eða dansa.

Athöfnin tekur um eina klukkustund.Hópmyndataka (í Rvk og Kóp) fer fram strax að lokinni

athöfn og tekur ca. 20 mínutur.21.04.23 18

Page 19: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

FermingarskjaliðÍ lokin fá fermingarbörnin skrautskrifað skjal til

staðfestingar á því að viðkomandi hafi sótt námskeiðið til undirbúnings borgaralegri fermingu.

Textinn á fermingarskjalinu:„Það er von okkar að þú munir færa þér í nyt þá fræðslu og leiðsögn sem þú hefur fengið og verðir víðsýn og heilsteypt manneskja. Vertu velkomin(n) í hóp hinna fullorðnu með þeirri ábyrgð sem því fylgir“.

21.04.23 19

Page 20: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Skipulag athafnarinnar (1)Er í höndum stjórnarmanna og athafnarstjóra

Siðmenntar með aðstoð nokkurra foreldra. Öllum var gefinn kostur á að vera í

undirbúningsnefndinni við skráninguna á netinu. Nefndin hefur yfirleitt verið 6-8 manns en nú buðu

um 60 foreldra sig fram, sem er frábært en ópraktískt! Ég er ekki viss hvernig þetta verður, hvort við munum hittast eða vera í tölvupóstsambandi.

Upplýsingar um hver er í hvaða námskeiði og hvenær og hvar á að mæta verða sendar út fyrir miðjan desember.

21.04.23 20

Page 21: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Skipulag athafnarinnar (2)Spurningar verða sendar út með tölvupósti eftir

áramót til allra fjölskyldna. Spurt er um tillögur um ræðumenn og hvaða börn hafa áhuga á að koma fram. Bráðnauðsynlegt er að svara spurningunum þar sem athafnirnar eru byggðar á upplýsingum úr þeim.

Í mars verður kannað hverjir vilja panta hópmynd og/eða DVD. Hópmynd og DVD eru EKKI innifalin í verði vegna athafnarinnar.

21.04.23 21

Page 22: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Kostnaður og greiðslufyrirkomulag...Kostnaður: fermingarnámskeiðið kostar kr. 26.000 og athöfnin

kr.8.000 Bæði námskeiðsgjaldið og athafnagjaldið verður rukkað

saman í einu þáttttökugjaldi samtals kr. 34.000 .Gjalddagi er 3. desember og eindagi 3. janúar. Foreldrar

verða að greiða þátttökugjaldið áður en námskeiðin byrja. Enginn fær að halda áfram í námskeiðinu sé ekki búið að greiða í lok síðasta virks dags í fyrstu kennsluviku (13.jan).

Afslættir: Systkinaafsláttur (systkin sem eru í BF á sama tíma) er 20%. Afsláttur félaga (foreldra) í Siðmennt fer eftir tímalengd aðildar:

10% fyrir fyrstu tvö ár aðildar, 20% frá og með þriðja ári aðildar

21.04.23 22

Page 23: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Kostnaður og greiðslufyrirkomulag...

Í lok nóvember fær foreldri greiðsluseðil fyrir heildargjaldi í heimabanka

Hægt er að fá sendan póstgíróseðil heim hafi foreldri ekki heimabanka, en það þarf að biðja sérstaklega um það. Vegna aukakostnaðar við gíróseðil bætast kr. 300 á hann. Vinsamlegast látið okkur vita ef þið viljið póstgíróseðil.

Fólk í fjárhagsvanda getur samið við gjaldkera um greiðsludreifingu yfir 2-3 mánuði. Fyrsta innborgun 3. des. (t.d. 12 þús í des.-> 12 í jan -> 10 í feb). Félagsmálayfirvöld hafa hjálpað í sumum tilvikum.

21.04.23 23

Page 24: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Gott að vita:Hætti barn við þátttöku er endurgreitt að fulla sé látið

vita fyrir lok sunnudags (15. janúar) fyrstu kennsluviku, en eftir það er haldið eftir krónum 3000 í umsýslugjald.

Engin endurgreiðsla (nema kr. 8000 vegna athafnar) fæst hætti barn að loknum helmingi námskeiðs eða meira.Láta skal vita með því að senda netpóst til [email protected] eða

hringja í:Hope Knútsson umsjónarmann (s: 557 3734, 694 7486), Jóhann Björnsson kennslustjóra (s: 844 9211) eða Svan Sigurbjörnsson gjaldkera (s: 896 3465).

21.04.23 24

Page 25: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Upplýsingaskil – fylla út eyðublöðNú verður dreift eyðublöðum þar sem þið fyllið út allar

upplýsingar sem við þurfum til að tryggja skráningu.Mjög mikilvægt er að merkja við þau námskeið sem

hentar best (fyrsta, önnur og þriðja val) og einnig daga/tíma sem passa alls ekki.

Óákveðnir eru beðnir um að láta Hope vita sem fyrst um hvort þau verða með eða ekki, því við verðum að raða fermingarbörnunum á námskeiðin í byrjun desember. Stórt púsluspil fyrir okkur!

21.04.23 25

Page 26: Kynningarfundur  12. nóvember 2011

Til fróðleiks:Á næstu dögum fáið þið senda þessa

upplýsinga-glærusýningu en hún nýtist bæði þeim sem mættu á kynningarfundinn ásamt þeim sem komust ekki.

Page 27: Kynningarfundur  12. nóvember 2011